Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Strigakjafturinn Bruce Willis (Myndband) Hasarmyndahetjan Bruce Willis var í gær mættur til að horfa á fjórða leik New Jersey Nets og Toronto Raptors í úrslitakeppninni í NBA. Willis notaði tækifærið og kynnti nýju Die Hard myndina sem er að koma út fljótlega, en orðbragðið á kappanum þótti heldur ruddalegt fyrir beina útsendingu í sjónvarpi. Spurning hvort kappinn hafi fengið sér einum öl of mikið á hliðarlínunni. 30.4.2007 20:33
Duncan og Bowen í varnarúrvali NBA Varnarlið ársins í deildarkeppni NBA var tilkynnt í dag og þar ber hæst að fastagestirnir í úrvalsliðinu og samherjarnir Tim Duncan frá San Antonio voru á sínum stað. Auk þeirra voru þeir Marcus Camby frá Denver, Kobe Bryant frá LA Lakers og Raja Bell frá Phoenix í varnarliði ársins. 30.4.2007 18:37
Houston - Utah í beinni í kvöld Fimmti leikur Houston Rockets og Utah Jazz í fyrstu umferð úrslitakeppni NBA verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á miðnætti í kvöld. Hér er á ferðinni mest spennandi einvígið í úrslitakeppninni til þessa ef marka má stöðuna, því Houston vann fyrstu tvo leikina og Utah síðustu tvo á heimavelli og því er um algjöran lykilleik að ræða í Houston í kvöld. 30.4.2007 17:02
Ævintýrið heldur áfram hjá Warriors Úrslitakeppnin í NBA náði nýjum hæðum í nótt þegar öskubuskulið Golden State náði 3-1 forystu gegn Dallas með 103-99 sigri í fjórða leiknum á heimavelli. Leikurinn var stórkostleg skemmtun og bauð upp á allt það besta sem körfuboltinn hefur upp á að bjóða. 30.4.2007 05:45
Auðvelt hjá New Jersey New Jersey Nets er komið með þægilega 3-1 forystu gegn Toronto Raptors í úrslitakeppni NBA eftir auðveldan sigur í fjórða leik liðanna í New Jersey í nótt 102-81. New Jersey valtaði yfir mótherja sína strax í byrjun og leiddi 56-37 í hálfleik á bak við annan stórleik frá Jason Kidd og Vince Carter. 30.4.2007 04:17
Nash með 23 stoðsendingar í sigri Phoenix Phoenix Suns er komið í afar vænlega 3-1 stöðu í einvígi sínu við LA Lakers í úrslitakeppni NBA deildarinnar. Phoenix vann sannfærandi sigur 113-100 í Los Angeles í kvöld þar sem Steve Nash var nálægt því að slá metið yfir flestar stoðsendingar í leik í úrslitakeppni. 29.4.2007 23:35
Meistarar Miami niðurlægðir á heimavelli NBA meistarar Miami Heat eru úr leik í fyrstu umferð úrslitakeppninnar eftir 92-79 tap á heimavelli gegn frísku liði Chicago Bulls. Miami tapaði því einvíginu 4-0 og var liðið bókstaflega niðurlægt af sterkari andstæðingi. Leikurinn var sýndur beint á Sýn Extra. 29.4.2007 19:31
Jafnt hjá Utah og Houston Utah Jazz náði í nótt að jafna metin í einvígi sínu við Houston Rockets í 2-2 í úrslitakepninni í NBA deildinni. San Antonio vann mikilvægan útisigur á Denver og náði forystu 2-1 í einvíginu og Cleveland er komið í þægilega 3-0 forystu gegn Washington. 29.4.2007 14:00
Stephen Jackson verður ekki stöðvaður Villingurinn Stephen Jackson lék vel með liði Golden State í fyrrinótt þegar liðið náði mjög óvænt 2-1 forystu gegn Dallas í úrslitakeppni NBA. Jackson hefur verið duglegur við að koma sér í vandræði undanfarin ár og var sektaður um rúmar þrjár milljónir króna fyrir ruddalega framkomu í leik tvö. 29.4.2007 02:19
Fékk 30 milljónir fyrir hvern spilaðan leik Framherjinn Grant Hill hjá Orlando Magic sagðist í gær vera að íhuga að leggja skóna á hilluna í sumar. Lið hans féll úr úrslitakeppninni fyrir Detroit í gær og Hill er með lausa samninga í sumar. Ferill kappans hefur einkennst af erfiðri baráttu við meiðsli, en hann þarf þó ekki að hafa áhyggjur af peningamálunum. 29.4.2007 01:38
Detroit sópaði Orlando úr keppni Detroit Pistons varð í kvöld fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í annari umferð úrslitakeppni NBA með naumum sigri á Orlando 97-93 í fjórða leik liðanna. Chauncey Billups skoraði 25 stig fyrir Detroit og Rip Hamilton 19, en Dwight Howard skoraði 29 stig og hirti 17 fráköst fyrir Orlando. Detroit vann rimmuna því mjög sannfærandi 4-0. 28.4.2007 22:07
Körfuboltaæði í Oakland Þrátt fyrir að lið Golden State Warriors frá Oakland í Kaliforníu hafi ekki riðið feitum hesti í NBA deildinni á síðustu árum, eru stuðningsmenn liðsins jafnan taldir þeir hollustu og bestu í allri deildinni. Í gær var 13 ára bið á enda þegar lið Warriors spilaði loks leik á heimavelli í úrslitakeppninni og fengu þeir nóg fyrir peninginn. 28.4.2007 18:37
Meistarar Miami á leið úr keppni Óvænt úrslit litu dagsins ljós í úrslitakeppninni í NBA í nótt. Meistarar Miami töpuðu á heimavelli fyrir Chicago og eru undir 3-0 í einvíginu og Golden State er komið yfir 2-1 gegn Dallas eftir stórsigur í þriðja leik liðanna. New Jersey náði forystu gegn Toronto á bak við stórleik Jason Kidd og Vince Carter. 28.4.2007 14:10
Orlando - Detroit í beinni núna Fjórði leikur Orlando og Detroit í úrslitakeppni Austurdeildar NBA er í fullum gangi í beinni á NBA TV sjónvarpsstöðinni og hófst klukkan 19. Detroit getur "sópað" Orlando úr leik með sigri í kvöld því liðið hefur yfir 3-0 í seríunni. Síðar í kvöld mætast Washington og Cleveland, Denver og San Antonio og svo Utah og Houston. 28.4.2007 19:49
LeBron James tekur Bee Gees slagara (Myndband) Körfuboltamaðurinn LeBron James hefur farið á kostum með liði Cleveland Cavaliers í úrslitakeppni NBA undanfarna daga, en hann kann meira en bara að spila körfubolta. Í myndbandi hér í fréttinni má sjá og heyra kappann syngja og dansa við lag Bee Gees. Svo verður hver og einn að dæma fyrir sig hvort James ætti að leggja skóna á hilluna og snúa sér að tónlistinni. 27.4.2007 20:09
Sigurður væntanlega áfram með Keflavík Þjálfaramál Keflvíkinga í körfuboltanum ráðst í kvöld eða fyrramálið. Sigurður Ingimundarsson verður væntanlega áfram þjálfari liðsins. Ný stjórn tók við á aðalfundi deildarinnar í gærkvöldi. Birgir Már Bragason tók við formennsku. Birgir staðfesti í samtali við Vísi að körfuknattleiksdeildin ætti í viðræðum við Sigurð. 27.4.2007 19:21
Beinar útsendingar frá NBA um helgina Áhugamenn um NBA körfuboltann fá nóg fyrir sinn snúð um helgina þegar úrslitakeppnin heldur áfram af fullum krafti. Stórleikur helgarinnar verður slagur Miami og Chicago á Sýn Extra klukkan 17 á sunnudaginn, en auk þess er NBA TV sjónvarpsstöðin með beina útsendingu á hverju kvöldi. New Jersey tekur á móti Toronto klukkan 23 í kvöld og á miðnætti verður Sýn með útsendingu frá leik Utah og Houston frá í gærkvöldi. 27.4.2007 18:45
Marcus Camby varnarmaður ársins Dagblaðið Denver Post greindi frá því í morgun að miðherjinn Marcus Camby hjá Denver Nuggets verði kjörinn varnarmaður ársins í NBA deildinni. Camby á að baki 11 ár í deildinni og skoraði 11 stig, hirti tæp 12 fráköst og varði 3,3 skot að meðaltali í leik í vetur - sem er besti árangurinn í deildinni. Camby er sagður hafa fengið 431 atkvæði í kjöri fjölmiðlamanna en Bruce Bowen hjá San Antonio varð annar með 206 stig og félagi hans Tim Duncan í þriðja sæti með 158 stig. 27.4.2007 17:45
Dýrmætir sigrar hjá Jazz og Lakers Þrír leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA deildarinnar í nótt. LA Lakers minnkaði muninn í einvígi sínu við Phoenix í 2-1 með góðum heimasigri og sömu sögu var að segja af Utah gegn Houston. Lið Detroit Pistons er hinsvegar komið í afar vænlega stöðu gegn Orlando Magic og hefur yfir 3-0 eftir góðan útisigur í nótt. 27.4.2007 13:41
Monta Ellis tók mestum framförum Bakvörðurinn Monta Ellis hjá Golden State Warriors í NBA deildinni var í kvöld valinn sá leikmaður sem tók mestum framförum í deildinni ár af nefnd fjölmiðlamanna. Ellis bætti stigaskor sitt um tæp 10 stig frá nýliðaári sínu í fyrra. Kevin Martin hjá Sacramento Kings varð annar í kjörinu en aðeins munaði þremur stigum á þeim í fyrsta og öðru sæti, sem er minnsti munur í sögu kjörsins. 26.4.2007 19:25
Þrír leikir í úrslitakeppni NBA í kvöld Utah Jazz, LA Lakers og Orlando Magic standa öll frammi fyrir erfiðu verkefni í kvöld þegar þau mæta andstæðingum sínum í þriðja sinn í úrslitakeppninni í NBA. Leikur Utah og Houston verður sýndur beint á NBA TV klukkan eitt í nótt, en öll þrjú liðin eru undir 2-0 í einvígjum sínum eftir tap á útivöllum í fyrstu tveimur leikjunum. 26.4.2007 18:34
Ítarleg úttekt á tölfræðinni í IE deildinni Síðustu daga hefur verið að safnast inn á heimasíðu Körfuknattleikssambandsins ítarleg úttekt á efstu mönnum í öllum tölfræðiþáttum í Iceland Express deildinni í vetur. Þar kemur fram að Damon Baley frá Þór Þorlákshöfn var stigahæsti leikmaður deildarinnar með rúm 24 stig að meðaltali í leik. Stigahæsti Íslendingurinn var Páll Axel Vilbergsson hjá Grindavík með rúm 22 stig að meðaltali. 26.4.2007 16:22
Heitt í kolunum í Dallas Dallas jafnaði í nótt metin í 1-1 í einvígi sínu við Golden State í úrslitakeppninni í NBA með 112-99 sigri í öðrum leik liðanna. Gestirnir spiluðu vel í fyrri hálfleik, en misstu tökin á leiknum í síðari hálfleik þegar bæði Baron Davis og Stephen Jackson var hent í bað fyrir kjaftbrúk. 26.4.2007 05:01
Dallas - Golden State í beinni í nótt Annar leikur Dallas Mavericks og Golden State Warriors verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni klukkan 1:30 í nótt. Golden State vann mjög óvæntan útisigur í fyrsta leiknum en annar leikurinn fer einnig fram í Dallas. 25.4.2007 23:02
Larry Brown að taka við Grizzlies? Forráðamenn Philadelphia 76ers í NBA deildinni hafa gefið Larry Brown leyfi til að ræða við eigendur Memphis Grizzlies um að hann taki hugsanlega við þjálfun liðsins í sumar. Brown hefur verið í stjórnunarstöðu hjá Philadelphia síðan hann var rekinn frá New York Knicks fyrir síðasta keppnistímabil. 25.4.2007 22:38
Carlisle hættur hjá Indiana Pacers Rick Carlisle sem þjálfað hefur lið Indiana Pacers í NBA frá árinu 2003 er hættur hjá liðinu. Þetta tilkynnti Larry Bird forseti félagsins í dag. Carlisle náði frábærum árangri með Indiana á fyrsta ári sínu með liðið, en þar á bæ hefur allt verið á lóðréttri niðurleið eftir áflogin í Detroit 2004. Indiana komst ekki í úrslitakeppnina í ár og náði lakasta árangri sínum í nær tvo áratugi. 25.4.2007 20:50
Framkvæmdastjórar tippa á Dirk Nowitzki Nú styttist óðum í að fjölmiðlamenn í Bandaríkjunum velji verðmætasta leikmann ársins í deildarkeppninni í NBA körfuboltanum. Dirk Nowitzki hjá Dallas Mavericks þykir afar líklegur til að hreppa hnossið að þessu sinni en hann hlaut nokkuð afgerandi kosningu í könnun sem gerð var í gær þar sem framkvæmdastjórar allra liða í deildinni voru spurðir um sitt álit. 25.4.2007 17:09
Bjartsýni í herbúðum Miami NBA meistarar Miami örvænta ekki þó liðið sé komið 2-0 undir í einvíginu við Chicago Bulls í fyrstu umferð úrslitakeppninnar eftir stórt tap í gærkvöldi. Leikmenn liðsins eru flestir með gríðarlega reynslu og vilja meina að mikið sé eftir af einvíginu. 25.4.2007 13:48
Phoenix burstaði LA Lakers Phoenix náði í nótt 2-0 forystu í einvígi sínu við Los Angeles Lakers í úrslitakeppninni í NBA með auðveldum 126-98 sigri á heimavelli sínum. Sigur Phoenix var aldrei í hættu og líkt og í fyrsta leiknum var það varamaður ársins Leandro Barbosa sem stal senunni. 25.4.2007 05:04
Meistarar Miami í vandræðum Meistarar Miami Heat eru komnir í bullandi vandræði gegn frísku liði Chicago Bulls í úrslitakeppni NBA deildarinnar eftir að Chicago vann sannfærandi 107-89 sigur í öðrum leik liðanna í nótt. Chicago leiðir nú 2-0 í einvíginu og næstu tveir leikir fara fram í Miami. 25.4.2007 03:47
Fyrsti sigur Toronto í úrslitakeppni síðan 2002 Toronto Raptors vann í nótt fyrsta sigur sinn í úrslitakeppni NBA síðan árið 2002 þegar liðið skellti New Jersey á heimavelli 89-83 og jafnaði metin í einvíginu í 1-1. Anthony Parker skoraði 26 stig fyrir heimamenn og Chris Bosh skoraði 25 stig og hirti 13 fráköst. Þjálfarinn Sam Mitchell var í gær útnefndur þjálfari ársins í deildinni og fékk verðlaunagripinn afhentan fyrir leikinn. 25.4.2007 03:35
Tiltekt hjá Seattle Supersonics Eigendur Seattle Supersonics voru ekki sáttir við slakan árangur liðsins í deildarkeppninni í NBA í vetur og í gærkvöldi ráku þeir framkvæmdastjóra og þjálfara liðsins. Seattle lauk keppni með 31 sigur og 51 tap í deildarkeppninni og er það versti árangur liðsins 20 ár og þriðji lélegasti árangurinn í 40 ára sögu félagsins. 25.4.2007 03:17
Maðurinn flaugst á við Shaquille O´Neal og lifði það af Chicago Bulls og Miami Heat mætast öðru sinni í fyrstu umferð úrslitakeppni NBA í kvöld. Scott Skiles þjálfari Chicago spilaði með Shaquille O´Neal hjá Miami þegar hann var nýliði með liði Orlando Magic árið 1992 og vann sér það þá til frægðar að slást við tröllið og lifa það af. 24.4.2007 18:41
Sam Mitchell þjálfari ársins í NBA Sam Mitchell hjá Toronto Raptors var í dag kjörinn þjálfari ársins í NBA deildinni. Mitchell þótti framan af vetri einn líklegasti þjálfarinn til að verða rekinn úr starfi eftir erfiða byrjun liðsins, en síðari hluti leiktíðar var frábær hjá liðinu sem tryggði sér heimavallarrétt í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. 24.4.2007 16:01
Hinrich sektaður um 25 þúsund dollara Leikstjórnandinn Kirk Hinrich hjá Chicago Bulls var í gærkvöld sektaður um 25,000 dollara eða 1,6 milljónir króna, fyrir að kasta munnstykki sínu upp í áhorfendastæði í fyrsta leik Chicago og Miami í úrslitakeppni NBA í fyrrakvöld. Hinrich átti afleitan leik og var í villuvandræðum frá fyrstu mínútu. Liðin mætast öðru sinni í kvöld, en Chicago vann fyrsta leikinn á heimavelli sínum. 24.4.2007 14:15
Barbosa besti varamaðurinn í NBA Brasilíumaðurinn sprettharði Leandro Barbosa hjá Phoenix var í gær kjörinn varamaður ársins í NBA deildinni. Barbosa tók stórstígum framförum á tímabilinu og var lykilmaður í sigursælu liði Phoenix. Hann undirstrikaði mikilvægi sitt í fyrsta leik Phoenix og LA Lakers í fyrrakvöld þegar hann var stigahæsti maður liðsins í góðum sigri. 24.4.2007 14:10
Detroit og Houston í góðum málum Tveir leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA deildarinnar í körfubolta í nótt. Detroit kom sér í 2-0 gegn Orlando með nokkuð auðveldum 98-90 sigri á heimavelli og Houston komst sömuleiðis í 2-0 gegn Utah með 98-90 sigri í leik tvö. 24.4.2007 13:09
Dallas og San Antonio töpuðu óvænt Deildarmeistarar Dallas og firnasterkt lið San Antonio töpuðu óvænt fyrstu leikjum sínum í úrslitakeppni NBA-deildarinnar á heimavelli í nótt. San Antonio þurfti að lúta í lægra haldi fyrir Denver, 95-89, þar sem Allen Iverson og Carmelo Anthony fóru á kostum, og Dallas steinlá fyrir Golden State, 97-85. 23.4.2007 08:47
Cleveland og Phoenix komin með forystu Tveimur leikjum er þegar lokið í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í kvöld. Cleveland lagði Washington auðveldlega á heimavelli, 97-82, en Phoenix þurfti að hafa mikið fyrir 95-87 sigri á LA Lakers, þar sem gestirnir höfðu forystu allt fram í fjórða og síðasta leikhluta. Cleveland og Phoenix hafa því náð 1-0 forystu í einvígunum. 22.4.2007 21:38
Phoenix og LA Lakers í beinni á Sýn Extra Sjónvarpsstöðin Sýn mun sýna mikið frá úrslitakeppni NBA-deildarinnar næstu vikur og má segja að fjörið hefjist formlega í kvöld þegar Phoenix og LA Lakers eigast við í sínum fyrsta leik. Leikurinn hefst kl. 19 og verður verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn Extra, en auk þess verður útsending frá leiknum sýnd á Sýn strax að loknum leik Barcelona og Villareal í spænsku úrvalsdeildinni. 22.4.2007 18:30
Titilvörn Miami hófst með tapi New Jersey vann góðan útisigur á Toronto og meistarar Miami hófu titilvörn sína á að tapa fyrir Chicago þegar úrslitakeppni NBA-deildarinnar hófst í nótt. Tveir aðrir leikir voru á dagskrá úrslitakeppninnar í nótt. 22.4.2007 11:07
21,8 milljónir manns sáu leikina Nýtt aðsóknarmet var sett í NBA-deildinni á nýafstöðnu keppnistímabili í NBA-deildinni en alls komu 21,8 milljónir manna á leiki vetrarins, eða 17,757 manns að meðaltali. Þetta er þriðja árið í röð sem nýtt aðsóknarmet er sett í deildinni, en í fyrra mættu 17,558 manns að meðaltali á hvern leik í deildinni. 21.4.2007 19:15
Riley verður áfram hjá Miami Pat Riley, þjálfari Miami Heat í NBA-deildinni, segir allar líkur á því að hann stjórni Miami-liðinu allt þar til samningur hans við félagið rennur út árið 2010. Riley hefur átt við heilsuvandamál að stríða síðustu misseri og vildu margir meina að núverandi tímabil kynni að vera hans síðasta með Miami. Riley segist hins vegar vera í fullu fjöri. 21.4.2007 18:00
Lykilmenn Grindavíkur framlengja samninga Nafnarnir Páll Axel Vilbergsson og Páll Kristinsson, landsliðsmenn í körfubolta, hafa skrifað undir nýja samninga við lið Grindavíkur í Iceland Express-deild karla í körfubolta. Páll Axel samdi til þriggja ára en Páll Kristinsson skrifaði undir tveggja ára samning. Þá er ljóst að Friðrik Ragnarsson verður áfram þjálfari liðsins á næstu leiktíð. 21.4.2007 14:10
Sacramento sparkar þjálfaranum Þjálfarinn Eric Musselman hefur verið rekinn frá Sacramento Kings í NBA-deildinni eftir að hafa stjórnað liðinu í aðeins eina leiktíð. Forráðamenn félagsins tilkynntu um uppsögn Musselman eftir að deildarkeppninni í NBA lauk í gær, en Sacramento vann aðeins 33 af 82 leikjum tímabilsins. 21.4.2007 11:34