Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ryan Donk til WBA West Bromwich Albion hefur fengið hollenska varnarmanninn Ryan Donk lánaðan frá AZ Alkmaar út tímabilið. Donk er 22 ára og hefur honum oft verið líkt við Jaap Stam sem gerði garðinn frægan hjá Manchester United. 1.9.2008 16:45
Berbatov í viðræðum við Manchester United Dimitar Berbatov er í þessum skrifuðu orðum í viðræðum við Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóra Manchester United. Þetta er samkvæmt heimildum Sky fréttastofunnar. 1.9.2008 16:13
Torres frá í tvær til þrjár vikur Liverpool hefur staðfest að sóknarmaðurinn Fernando Torres verði frá í tvær til þrjár vikur vegna þeirra meiðsla sem hann hlaut gegn Aston Villa í gær. 1.9.2008 16:04
Voronin lánaður til Þýskalands Úkraínski sóknarmaðurinn Andriy Voronin hefur verið lánaður frá Liverpool til þýska liðsins Herthu Berlín. Lánssamningurinn er út tímabilið. 1.9.2008 15:38
Steve Finnan til Espanyol Írski bakvörðurinn Steve Finnan er farinn frá Liverpool en hann hefur skrifað undir tveggja ára samning við Espanyol. Finnan er 32 ára en hann hefur leikið með Liverpool síðan 2003. 1.9.2008 15:30
Viktor Unnar í utandeildina Sóknarmaðurinn Viktor Unnar Illugason hefur verið lánaður frá Reading til enska utandeildarliðsins Eastbourne Borough í einn mánuð. Viktor er 18 ára gamall. 1.9.2008 15:17
Drogba spilar í kvöld Framherjinn Didier Drogba mun í kvöld spila sinn fyrsta leik á tímabilinu þegar hann verður í varaliði Chelsea sem mætir Arsenal í kvöld. 1.9.2008 14:39
Ronaldinho er stórkostlegur Forráðamenn AC Milan héldu ekki vatni yfir frumraun Brasilíumannsins Ronaldinho með liðinu um helgina þrátt fyrir að Milan tapaði opnunarleik sínum í A-deildinni. 1.9.2008 14:30
Tottenham samþykkti risatilboð City í Berbatov Mark Hughes knattspyrnustjóri Manchester City hefur staðfest að Tottenham hafi samþykkt risatilboð City í framherjann Dimitar Berbatov. 1.9.2008 13:58
Saha til Everton Everton hefur gengið frá tveggja ára samningi við franska framherjann Louis Saha hjá Manchester United. Saha hefur aldrei náð sér almennilega á strik síðan hann gekk í raðir United árið 2004, en hann hefur átt við erfið meiðsli að stríða. 1.9.2008 13:48
Portsmouth fær varnarmann Enska úrvalsdeildarfélagið Portsmouth hefur gengið frá lánssamningi við varnarmanninn Nadir Belhadj frá franska liðinu Lens. Hann er 26 ára gamall og kemur frá Alsír. 1.9.2008 13:15
Sir Alex tippar á Skota Sir Alex Ferguson segist hafa góða trú á því að skoska landsliðið komist upp úr riðli sínum í undankeppni HM 2010 þar sem liðið leikur með íslenska landsliðinu. 1.9.2008 13:05
Liverpool semur við ungan Brassa Liverpool hefur gengið frá samningi við framherjann Vitor Flora sem er 18 ára gamall og kemur frá Brasilíu. Hann var með lausa samninga hjá liði Botafogo en er með ítalskt vegabréf og þarf því ekki að verða sér út um atvinnuleyfi. 1.9.2008 12:50
Ferreira í viðræðum við West Ham Bakvörðurinn Paulo Ferreira hjá Chelsea er í viðræðum við West Ham með möguleg félagaskipti í huga samkvæmt heimildum Sky fréttastofunnar. Ferreira er 29 ára og hefur ekki átt fast sæti í liði Chelsea að undanförnu. 1.9.2008 12:41
City með tilboð í Berbatov? Nú er farið að hitna í kolunum á leikmannamarkaðnum á Englandi, en félagaskiptaglugginn lokar um miðnætti í kvöld. Heimildir Sky fréttastofunnar herma að Manchester City hafi óvænt gert yfir 30 milljón punda kauptilboð í Dimitar Berbatov hjá Tottenham, en hann hefur verið orðaður við Manchester United í margar vikur. 1.9.2008 12:37
Real hefur ekki unnið á Riazor síðan 1991 Segja má að leiktíðin á Spáni hafi byrjað hörmulega fyrir stórveldin Barcelona og Real Madrid. Barcelona tapaði opnunarleik sínum í deildinni gegn Numancia á útivelli í gær 1-0 og ekki gekk betur hjá erkifjendum þeirra, meisturum Real Madrid. 1.9.2008 12:30
Læsti forsetann inni á klósetti Þær undarlegu fréttir bárust úr herbúðum ítalska liðsins Juventus á dögunum að forseti félagsins hefði óvart lokast inni á klósetti í meira en eina klukkustund. 1.9.2008 11:24
Bjórþamb eiganda Newcastle vekur athygli Mike Ashley, eigandi Newcastle United, gæti átt yfir höfði sér bann eða sekt eftir að myndir náðust af honum þar sem hann þambaði bjór á leik Arsenal og Newcastle um helgina. 1.9.2008 11:14
Fjárfestar frá Abu Dhabi kaupa Manchester City Fjárfestar frá Sameinuðu Arabísku Furstadæmunum hafa keypt enska knattspyrnufélagið Manchester City af Tælendingnum Thaksin Shinawatra. 1.9.2008 10:17
Torres fer í myndatöku í dag Spænski framherjinn Fernando Torres hjá Liverpool fer í myndatöku í dag þar sem lagt verður mat á meiðslin sem hann varð fyrir í leik Liverpool og Aston Villa í gær. 1.9.2008 09:15
Corluka til Tottenham Enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham gekk nú rétt í þessu frá kaupum á króatíska landsliðsmanninum Vedran Corluka frá Manchester City. Corluka er bakvörður, en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp. 1.9.2008 09:01
WBA kaupir sænskan varnarmann Enska úrvalsdeildarfélagið West Brom hefur fest kaup á sænska varnarmanninum Jonas Olsson frá hollenska liðinu NEC Nijmegen fyrir 800 þúsund pund. 1.9.2008 09:00
Félagaskiptaglugginn lokast í kvöld Félagaskiptaglugginn í Evrópuknattspyrnunni lokast seint í kvöld og því má eiga von á því að eitthvað spennandi muni gerast á leikmannamörkuðunum, ekki síst á Englandi. 1.9.2008 08:45
Quaresma til Inter Ítalíumeistarar Inter Milan hafa fengið góðan liðsstyrk fyrir átökin í vetur, en liðið hefur loksins gengið frá kaupum á portúgalska landsliðsmanninum Ricardo Quaresma. 1.9.2008 08:30
Pavlyuchenko samdi til fimm ára Rússneski framherjinn Roman Pavlyuchenko gekk í dag formlega í raðir Tottenham á Englandi fyrir 14 milljónir punda og skrifaði undir fimm ára samning. Hann er 26 ára gamall og kemur frá Spartak í Moskvu. Pavlyuchenko vann sér það helst til frægðar að skora tvívegis fyrir Rússa í landsleik gegn Englendingum fyrir ári síðan. 1.9.2008 08:26
Heiðar orðaður við Norwich Landsliðsmaðurinn Heiðar Helguson hjá Bolton er í dag orðaður við lið Norwich í ensku B-deildinni. Breska blaðið Evening Standard greinir frá því í dag að Heiðar verði lánaður frá Bolton út leiktíðina, en sagt er að Charlton og Ipswich séu einnig á höttunum eftir honum. 1.9.2008 08:20
Þolinmæðin skilaði stigum Keflavík náði fimm stiga forystu á toppi Landsbankadeildar karla með því að leggja Grindavík, 3-0, á heimavelli sínum. Grindvíkingar voru komnir til Keflavíkur til að verja stigið og sýndi Keflavík mikla þolinmæði sem skilaði að lokum sigrinum. 1.9.2008 08:00
Botnliðin leika Valsmenn grátt „Þetta er alveg grátlegt. Það er eins og töfluröðin taki okkur alveg úr sambandi. Skagamenn komu hingað til að spila fyrir stoltið í dag og börðust meira og uppskáru eftir því,“ sagði Willum Þór Þórsson, þjálfari Vals, eftir að liðið tapaði fyrir ÍA á heimavelli sínum í gær. 1.9.2008 07:00
HK-ingar hleyptu meiri spennu í botnbaráttuna HK vann í gær sannfærandi 4-0 sigur á Þrótti og vann þar með sinn þriðja sigur í röð. Liðið hefur fengið tvöfalt fleiri stig í síðustu fjórum leikjum liðsins en í öllum hinum fjórtán leikjum sumarsins. Fyrir vikið er liðið nú aðeins einu stigi frá Fylki sem er í tíunda sæti deildarinnar. 1.9.2008 06:30
Tómas hetja Fjölnismanna Það vantaði ekki dramatíkina í undanúrslitaleik Fylkis og Fjölnis í VISA-bikar karla í gær. Flest benti til þess að grípa þyrfti til framlengingar þegar Fjölnismaðurinn Tómas Leifsson skoraði sigurmarkið þegar tæpar tvær mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. 1.9.2008 00:01