Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Milan hefur gefist upp á að landa Eto´o og Ronaldinho Varaforseti AC Milan segir félagið vera búið að gefast upp á að reyna að kaupa þá Samuel Eto´o og Ronaldinho frá Barcelona. Þetta staðfesti hann í viðtali við netsíðu Gazzetta dello Sport í dag og segir ástæðuna einfaldlega þá að leikmennirnir séu alls ekki til sölu. Blaðið Gazetta dello Sport hélt því fram í dag að Milan hefði gert 50 milljón evru tilboð í Eto´o, en varaforsetinn hafnaði því. 19.7.2007 16:23
Ferguson: Framtíð Smith og Rossi óráðin Sir Alex Ferguson viðurkennir að framtíð framherjanna Alan Smith og Giuseppe Rossi gæti legið frá Old Trafford í sumar ef Manchester United nær að klófesta Carlos Tevez frá West Ham. Báðir hafa verið orðaðir við fjölda liða í sumar, en Ferguson ítrekar að þeir séu báðir samningsbundnir United þangað til annað kemur í ljós. 19.7.2007 15:26
Slúðrið á Englandi í dag Breska blaðið Daily Express heldur því fram að Nicolas Anelka sé fyrsti valkostur Arsene Wenger hjá Arsenal til að fylla skarð Thierry Henry í sókninni. Stjórn Arsenal er ekki sögð hrifin af hugmynd knattspyrnustjórans, enda var brottför framherjans frá Arsenal nokkuð sóðaleg á sínum tíma. 19.7.2007 14:38
Brynjar skoraði sigurmark Reading Brynjar Björn Gunnarsson skoraði sigurmark Reading þegar liðið lagði japanska liðið Shimizu S-Pulse 1-0 í Friðarbikarnum í Suður-Kóreu. Sigurinn dugði enska liðinu þó ekki til að komast í úrslitaleik mótsins, en það hefði tekist ef liðið hefði náð að skora annað mark í leiknum. Ívar Ingimarsson var í liði Reading og fór illa með þrjú dauðafæri. 19.7.2007 14:33
Breska ríkisstjórnin komin í Tevez-málið Breska ríkisstjórnin hefur nú ákveðið að ganga í lið með enska knattspyrnusambandinu í að herja á FIFA svo hægt sé að leysa mál Carlos Tevez hjá West Ham sem allra fyrst. Ríkisstjórnin er sammála enska knattspyrnusambandinu og vill ekki sjá að leikmenn geti verið í eigu þriðja aðila og vill skjóta lausn í málinu til að forðast svartan blett á knattspyrnuna á Englandi. 19.7.2007 14:25
Van der Sar íhugar að hætta næsta vor Hollenski markvörðurinn Edwin van der Sar hjá Manchester United segir að mögulega verði næsta leiktíð hans síðasta hjá félaginu. Samningur hans rennur út næsta sumar og hann viðurkennir að hann hafi ekki verið sáttur við frammistöðu sína með liðinu í lokaleikjunum á síðustu leiktíð. 19.7.2007 12:42
Ferguson: Heinze fer ekki til Liverpool Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segir útilokað að varnarmaðurinn Gabriel Heinze verði seldur til erkifjendanna Liverpool. Rafa Benitez bauð United 6 milljónir punda í leikmanninn, sem er talið það verð sem United vill fá fyrir hann - en því var neitað umsvifalaust. "Ég get fullvissað alla um að Liverpool fær ekki Gabriel Heinze," sagði Alex Ferguson. 19.7.2007 12:34
Håcken - KR í beinni lýsingu í KR-útvarpinu Fyrri leikur Håcken og KR í Evrópukeppni félagsliða verður í beinni lýsingu í KR-Útvarpinu í kvöld og hefst lýsingin klukkan 17:00 að íslenskum tíma. Leikurinn hefst klukkan 18:00 og hægt er að fylgjast með lýsingunni á tíðninni 98,3. 19.7.2007 12:30
West Ham svarar Joorabchian Forráðamenn West Ham blása á ummæli Kia Joorabchian frá því í gærkvöldi þegar hann sakaði félagið um að hafa svikið gefin loforð í máli framherjans Carlos Tevez. Félagið svaraði hinsvegar fullum hálsi í dag og segir að allir samningar sem Joorabchian hafi gert við West Ham um leikmanninn hafi verið við fyrrum stjórnarmenn félagsins og fullyrða að leikmaðurinn sé að fullu samningsbundinn félaginu. 19.7.2007 12:23
John Terry tábrotinn Varnarmaðurinn John Terry, fyrirliði Chelsea og enska landsliðsins, tábrotnaði í æfingaleik Chelsea og Suwon Bluewings í fyrrakvöld. Ekki er vitað hvort Terry verður lengi frá vegna þessa, en reiknað er með því að hann verði búinn að ná sér fyrir vináttuleik Þjóðverja og Englendinga þann 22. ágúst. 19.7.2007 12:19
Fjölnismenn biðjast afsökunar Stuðningsmannaklúbbur Fjölnis í Grafarvogi hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna atviksins sem átti sér stað á leik liðsins gegn ÍBV í 1. deildinni á mánudagskvöldið. Þar voru stuðningsmenn Fjölnis sektaðir fyrir gróf köll að dómurum og leikmönnum. Fjölnismenn viðurkenna að munnsöfnuður nokkurra stuðningsmanna hafi verið óviðeigandi, en hafna því alfarið að um kynþáttafordóma hafi verið að ræða. 19.7.2007 12:15
Pearce tekur formlega við U-21 liði Englendinga Enska knattspyrnusambandið hefur gengið frá formlegum samningi við Stuart Pearce um að þjálfa U-21 árs landslið Englendinga. Pearce var fenginn til að taka við liðinu í hlutastarfi í janúar, en hefur síðan verið rekinn frá Manchester City. Hann stýrði landsliðinu í undanúrslit á Evrópmótinu í síðasta mánuði. 19.7.2007 12:05
Terry gerir ofursamning - 1583 krónur á mínútu næst fimm árin The Sun heldur því fram í dag að John Terry, fyrirliði Englands og Chelsea, sé búinn að ná samkomulagi við Chelsea um nýjan samning. Terry fær 131 þúsund pund á viku fyrir fimm ára samning við félagið. Þetta gerir Terry að launahæsta knattspyrnumanni á Englandi. 19.7.2007 11:44
Lee Hendrie skrifar undir hjá Sheffield United Sheffield United hefur tryggt sér Lee Hendrie frá Aston Villa. Leikmaðurinn var með lausan samning og fer því frítt til Sheffield United. Hendrie skrifaði undir þriggja ára samning við félagið, en liðið féll úr Úrvalsdeildinni á síðasta tímabili. 19.7.2007 10:32
Öruggur sigur FH á HB FH-ingar eru í vænlegri stöðu í forkeppni Meistaradeildarinnar eftir öruggan 4-1 sigur á HB frá Færeyjum í fyrri leik liðanna í fyrstu umferðinni í kvöld. Matthías Vilhjálmsson skoraði tvö marka FH, Sigurvin Ólafsson eitt og varnarmaðurinn Freyr Bjarnason var einnig á skotskónum. Síðari leikurinn er í Færeyjum eftir viku, en FH-ingar eru með pálmann í höndunum eftir sigurinn í kvöld. 18.7.2007 21:53
Ísland steinlá fyrir Noregi Íslenska kvennalandsliðið skipað leikmönnum yngri en 19 ára steinlá í kvöld 5-0 fyrir Norðmönnum í opnunarleik sínum í A-riðli á Evrópumótinu. Íslenska liðið fékk á sig tvö mörk skömmu fyrir leikhlé og eftir það var róðurinn þungur á Laugardalsvellinum. Þjóðverjar lögðu Dani 1-0 í þessum sama riðli í dag. 18.7.2007 21:03
Ian Wright tilbúinn að halda með Tottenham Arsenal goðsögnin Ian Wright segist alveg geta hugsað sér að sitja á White Hart Lane og styðja Tottenham ef sonur hans Shaun Wright-Phillips gengur í raðir liðsins frá Chelsea eins og greint hefur verið frá í bresku blöðunum. 18.7.2007 18:36
Fabregas vill verða fyrirliði Arsenal Spænski miðjumaðurinn Cesc Fabregas hefur undirstrikað skuldbindingu sína við Arsenal með því að óska eftir því að fá að gerast fyrirliði liðsins í framtíðinni. Fabregas hefur nú lofað að einbeita sér að fullu að Arsenal eftir að hafa verið orðaður við Real Madrid í allt sumar. 18.7.2007 18:30
Totti hótar að segja sig úr leikmannasamtökunum Francesco Totti, fyrirliði Roma á Ítalíu, hefur nú hótað að segja sig úr leikmannasamtökunum þar í landi vegna deilu í tengslum við það hvenær keppni hefst í A-deildinni í sumar. Deildin á að byrja 26. ágúst, eða seinna en flestar aðrar deildarkeppnir í Evrópu. Þetta segir Totti að komi niður á ítalska landsliðinu í undankeppni EM. 18.7.2007 17:11
Skólausum Celtic-mönnum þótti heitt í Denver Skotlandsmeistarar Glasgow Celtic eru nú í æfingaferð í bandaríkjunum þar sem þeir spila tvo æfingaleiki við stjörnulið MLS-deildarinnar og Chicago Fire. Skotarnir urðu að bíða í hátt í klukkutíma eftir sinni fyrstu æfingu því skór leikmanna týndust á flugvellinum í Denver. 18.7.2007 16:53
KSÍ sektaði Fjölnismenn Aganefnd KSÍ hefur sektað knattspyrnudeild Fjölnis um 30 þúsund krónur vegna framkomu stuðningsmanna liðsins í leik gegn ÍBV í fyrrakvöld. Sektinni fylgdi líka aðvörun og til greina kemur að liðið fái heimaleikjabann ef stuðningsmennirnir haga sér ekki í framtíðinni. 18.7.2007 16:28
Sjónvarpsáhorfendur fá að sjá "meira" af Beckham Svo gæti farið að hörðustu kvenkynsaðdáendur knattspyrnuhetjunnar David Beckham fái meira fyrir peninginn sinn þegar hann byrjar að spila með LA Galaxy. Öfugt við áð sem tíðkast í Evrópu, fá nefnilega myndatökumenn aðgang að búningsherbergjum leikmanna í Bandaríkjunum. Þar fá sjónvarpsáhorfendur oft að sjá hetjurnar sínar nánast klæðalausar. 18.7.2007 15:06
Slúðrið á Englandi í dag Arjen Robben hjá Chelsea er eðlilega sá maður sem mest er talað um í slúðrinu á Englandi í dag, enda er talið að hann gangi í raðir Real Madrid á næstu dögum. The Sun segir að Real muni bjóða honum sex ára samning sem muni borga honum 24 milljónir punda í laun. 18.7.2007 14:47
City neitaði tilboði Besiktas í Vassell Sven-Göran Eriksson og félagar hjá Manchester City neituðu í dag kauptilboði tyrkneska félagsins Besiktas í framherjann Darius Vassell. Þetta er talið benda til þess að Vassell muni spila stórt hlutverk hjá Eriksson á næstu leiktíð, en hann var aðallega notaður sem útherji á síðustu leiktíð og náði sér aldrei á strik í markaskorun fyrir vikið. 18.7.2007 14:43
FIFA kallað til í Tevez-deilunni David Gill, framkvæmdastjóri Manchester United, hefur ákveðið að kalla á Alþjóða Knattspyrnusambandið til að reyna að fá leyst úr hnútnum sem myndast hefur í máli framherjans Carlos Tevez. Manchester United er að reyna að kaupa leikmanninn frá West Ham, en ef svo fer sem horfir stefnir í að ekki náist að klára kaupin fyrir 31. ágúst sem er síðasti dagur félagaskipta á Englandi. 18.7.2007 14:38
Faubert gæti misst af fyrstu leikjum West Ham Franski miðjumaðurinn Julien Faubert hjá West Ham gæti misst af fyrstu leikjum West Ham í ensku úrvalsdeildinni eftir að hafa meiðst illa á ökkla í æfingaleik liðsins í Austurríki í gær. Faubert er 23 ára gamall og átti að verða lykilmaður í liði Alan Curbishley á næstu leiktíð eftir að hann var keyptur á 6,1 milljón punda frá Bordeux. 18.7.2007 14:36
Voronin byrjar vel með Liverpool Framherjinn Andriy Voronin stal senunni í gær þegar hann skoraði tvö mörk í sigri Liverpool á Werder Bremen í æfingaleik og féllu þeir Fernando Torres og Ryan Babel þar með alveg í skuggann. Michael Owen skoraði sitt fyrsta mark fyrir Newcastle í 19 mánuði þegar liðið lagði Hartlepool 3-1 og Didier Drogba skoraði sigurmark Chelsea í 1-0 sigri á Bluewings frá Kóreu í Kaliforníu. 18.7.2007 14:01
Cannavaro neitaði Chelsea Ítalski miðvörðurinn Fabio Cannavaro hjá Real Madrid hefur neitað að ganga í raðir Chelsea á Englandi, en honum stóð það til boða á dögunum að sögn umboðsmanns leikmannsins. Cannavaro er 33 ára gamall og þykir framtíð hans hjá Real ótrygg eftir að landi hans Fabio Capello var látinn taka pokann sinn á dögunum. 18.7.2007 13:51
Robben hefur samþykkt samningstilboð Real Madrid Hollenski landsliðsmaðurinn Arjen Robben hjá Chelsea hefur samþykkt að ganga í raðir Real Madrid og hefur þegar samþykkt samningstilboð frá félaginu. Chelsea og Real Madrid hafa þó enn ekki komist að samkomulagi um kaupverðið. Þetta kemur fram á vef breska sjónvarpsins. 18.7.2007 13:47
Brasilía aftur á topp heimslistans - Ísland í 109. sæti Brasilía er aftur komið á topp heimslistans hjá FIFA. Þar með hafa Brassarnir endurheimt toppsætið af Ítalíu sem hafa vermt sætið síðan á heimsmeistaramótinu í fyrrasumar. Íslendingar eru í 109. sæti ásamt Aserbaídsjan. Englendingar falla niður í 12. sæti. 18.7.2007 09:29
FH-ingar hafa 2-1 yfir gegn HB í hálfleik Nú er kominnn hálfleikur í viðureign FH og HB frá Færeyjum í fyrri leik liðanna í 1. umferð forkeppni Meistaradeildarinnar. FH-ingar byrjuðu vel og komust í 2-0 með mörkum frá Frey Bjarnasyni og Matthíasi Vilhjálmssyni snemma leiks, en liðið svaf á verðinum á lokamínútum hálfleiksins og þar varð Tommy Nielsen fyrir því óláni að skora sjálfsmark. Leikurinn er sýndur beint á Sýn. 18.7.2007 20:45
Forlan: Ég er enginn Torres Framherjinn Diego Forlan sem gekk í raðir Atletico Madrid á dögunum segist ekki vera að hugsa um það að hann sé arftaki Fernando Torres hjá félaginu. Forlan verður engu að síður ætlað að fylla skarð "El Nino" hjá Atletico, en hann hefur að mestu séð um markaskorun hjá félaginu síðustu ár. 17.7.2007 22:15
Ayala gengur frá umdeildum samningi við Zaragoza Argentínski varnarjaxlinn Roberto Ayala hefur gengið frá þriggja ára samningi við Real Zaragoza á Spáni, aðeins stuttu eftir að hann skrifaði undir samning við Villarreal. Ayala skrifaði undir við Villarreal fyrir nokkru en ákvað að kaupa sig út úr samningnum og semja heldur við Zaragoza. 17.7.2007 21:30
Hitzfeld ánægður með nýju leikmennina Ottmar Hitzfeld, þjálfari Bayern Munchen, segist ekki geta beðið eftir að leiktíðin hefjist í Þýskalandi eftir að félagið pungaði út 70 milljónum evra til leikmannakaupa í sumar. Hann segir nýju leikmennina ekki aðeins smellpassa inn í liðið á vellinum heldur séu þeir allir góðir drengir. 17.7.2007 20:15
Santa Cruz vill ólmur fara til Englands Framherjinn Roque Santa Cruz hjá Bayern Munchen vill helst af öllu spila í ensku úrvalsdeildinni að sögn umboðsmanns leikmannsins. Santa Cruz gerði gott mót með landsliði sínu á Copa America á dögunum, en hann er ekki inni í myndinni hjá forráðamönnum Bayern á næstu leiktíð. 17.7.2007 19:45
Wright-Phillips orðaður við Tottenham Nokkur bresku blaðanna halda því fram í dag að kantmaðurinn Shaun Wright-Phillips hjá Chelsea sé á leið til Tottenham fyrir um 12-14 milljónir punda í vikunni. Sagt er að viðræður milli félaganna séu komnar langt á veg, en af þessum kaupum yrði hjá Tottenham myndi það þýða að félagið væri búið að eyða hátt í 50 milljónum punda til leikmannakaupa í sumar. 17.7.2007 19:15
Tevez bannað að fara í læknisskoðun Argentínumaðurinn Carlos Tevez mun ekki fara í læknisskoðun hjá Manchester United á morgun eftir að West Ham neitað að gefa grænt ljós á að hann færi í skoðunina. Mál Tevez er því enn langt frá því að leysast þar sem United, West Ham, MSI-fyrirtækið og enska úrvalsdeildin deila um fyrirhuguð félagaskipti hans til Manchester. 17.7.2007 18:44
Capello með fullt borð af tilboðum Ítalski knattspyrnuþjálfarinn Fabio Capello hefur fengið nokkur atvinnutilboð síðan hann var rekinn frá Real Madrid á dögunum. Í samtali við Gezzetta Dello Sport á Ítalíu segist hann hafa neitað tilboðum frá Dynamo Kiev í Úkraínu og Lokomotiv í Moskvu, en segir tilboð frá Bandaríkjunum hafa freistað sín. 17.7.2007 18:15
Laudrup: Villarreal verður að halda auðmýktinni Michael Laudrup, nýráðinn þjálfari spænska liðsins Villarreal, segir að félagið verði að halda þeirri auðmýkt sem einkennt hefur leik liðsins síðustu ár til að geta náð góðum árangri í Evrópukeppni félagsliða á næsta tímabili. 17.7.2007 17:30
Torres spilar sinn fyrsta leik í kvöld Spænski framherjinn Fernando Torres hjá Liverpool spilar væntanlega sinn fyrsta leik með liðinu í kvöld þegar liðið mætir Werder Bremen í æfingaleik í Sviss. Torres á raunar við ökklameiðsli að stríða en þau eru ekki talin alvarleg. Til greina kemur að hann verði í framlínunni með öðrum nýjum framherja liðsins, Andriy Voronin. 17.7.2007 16:49
Sættir í deilu ÍA og Keflavíkur KSÍ hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna umdeilds marks sem skorað var í leik ÍA og Keflavíkur í Landsbankadeildinni 4. júlí sl. Jafnframt kemur fram í að forystumenn félaganna rita með undirskrift sinni undir fullar sættir milli félaganna. 17.7.2007 16:46
Geovanni til Manchester City Manchester City gekk í dag frá samningi við brasilíska miðjumanninn Geovanni sem var með lausa samninga hjá Cruzeiro í heimalandi sínu. Geovanni þessi er 27 ára gamall og lék áður með Barcelona og Benfica. Hann á að baki fimm landsleiki og hefur skrifað undir eins árs samning við City. Hann er þriðji maðurinn sem Sven-Göran Eriksson kaupir til félagsins á einni viku auk þeirra Rolando Bianchi og Gelson Fernandes. 17.7.2007 16:41
Giuly á leið til Roma Franski útherjinn Ludovic Giuly hjá Barcelona er við það að ganga til liðs við Roma á Ítalíu. Þetta tilkynnti yfirmaður knattspyrnumála hjá Barcelona í dag. Giuly varð tvisvar Spánarmeistari með Barcelona en var settur á sölulista hjá félaginu í vor. Hjá Roma fær hann aftur tækifæri til að spila í Meistaradeildinni þar sem liðið hafnaði í öðru sæti í A-deildinni á síðustu leiktíð. Kaupverðið er sagt 4,5 milljónir evra. 17.7.2007 16:08
Wilhelmsson orðaður við Bolton Sænskir fjölmiðlar greina frá því í dag að enska úrvalsdeildarfélagið Bolton sé nú líklegast til að landa útherjanum Christian Wilhelmsson frá Nantes í Frakklandi. Landsliðsmaðurinn sænski náði sér aldrei á strik í Frakklandi en átti ágæta leiktíð sem lánsmaður með Roma á síðasta tímabili. 17.7.2007 16:01
Cuper tekur við Betis Hector Cuper, fyrrum þjálfari Inter og Valencia, var í gær ráðinn þjálfari spænska knattspyrnufélagsins Real Betis. Cuper er 51 árs gamall Argentínumaður og var síðast við stjórnvölinn hjá Mallorca. Hann hefur skrifað undir eins árs samning við Andalúsíufélagið, sem naumlega náði að bjarga sér frá falli á síðustu leiktíð. 17.7.2007 15:30