Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Knattspyrnusambandið rannsakar meint veðmál Enska knattspyrnusambandið ætlar að hefja formlega rannsókn í kjölfar þess að fyrrum starfsmaður hjá veðmangarafyrirtækinu Victor Chandler hélt því fram að fleiri en einn knattspyrnustjóri í ensku úrvalsdeildinni stundaði að veðja á úrslit leikja í deildinni, en slíkt er með öllu óheimilt. 9.11.2006 14:43
McFadden neitar sökum Enski knattspyrnudómarinn Graham Poll var enn og aftur í sviðsljósinu í gær þegar hann vísaði James McFadden hjá Everton af velli eftir aðeins 19 mínútur í bikarleiknum gegn Arsenal í gærkvöld. Poll gaf þá skýringu að McFadden hafi brúkað munn við sig, en leikmaðurinn vísar því alfarið á bug. 9.11.2006 14:33
Enn meiðist Martin Laursen Danski varnarmaðurinn Martin Laursen hjá Aston Villa verður frá keppni í nokkurn tíma eftir að hafa þurft að fara meiddur af velli í leiknum gegn Chelsea í gær. Laursen hefur átt við þrálát hnémeiðsli að stríða allar götur síðan hann gekk í raðir enska liðsins árið 2004. Leikmaðurinn sjálfur segir meiðslin ekki alvarleg, en Villa missti Gareth Barry einnig í meiðsli í gær. 9.11.2006 14:28
Freddy Adu verður til reynslu hjá United Manchester United er nú í viðræðum við bandaríska úrvalsdeildarliðið DC United um að fá framherjann efnilega Freddy Adu til reynslu í þessum mánuði. Adu þessi er aðeins 17 ára gamall og talinn mikið efni. Hann hefur einnig verið orðaður við Chelsea og talið er að félögin muni jafnvel gera kauptilboð í hann í janúar. 9.11.2006 14:23
Sissoko frá í mánuð Miðjumaðurinn Mohamed Sissoko verður frá keppni í að minnsta kosti einn mánuð eftir að hann fór úr axlarlið í bikarleiknum gegn Birmingham í gærkvöldi. Sissoko er landsliðsmaður Malí og hefur verið nokkuð óheppinn með meiðsli síðan hann gekk í raðir Liverpool. 9.11.2006 14:16
Bayern tapaði fyrir botnliðinu Þýskalandsmeistarar Bayern Munchen töpuðu mjög óvænt 1-0 fyrir botnliði Hannover í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld. Það var Szabolcs Huszti sem skoraði mark félaga Gunnars Heiðars Þorvaldssonar eftir varnarmistök Bayern, sem er nú sex stigum á eftir toppliði Werder Bremen. Stuttgart er í öðru sætinu eftir 2-0 sigur á Hamburg í gær. 8.11.2006 23:52
Tottenham áfram eftir framlengingu Enska úrvalsdeildarliðið Tottenham var síðasta liðið til að tryggja sér sæti í 8-liða úrslitum enska deildarbikarsins í kvöld þegar liðið lagði Port Vale 3-1 á heimavelli sínum eftir framlengdan leik. Tom Huddlestone skoraði tvö marka Tottenham og Jermain Defoe eitt. 8.11.2006 23:31
Auðvelt hjá Chelsea Chelsea burstaði Aston Villa 4-0 í enska deildarbikarnum í kvöld og er komið áfram í næstu umferð keppninnar líkt og Liverpool sem vann Birmingham 1-0 og Arsenal sem lagði Everton 1-0. Leikur Tottenham og Port Vale fór í framlengingu þar sem staðan var 1-1 að loknum venjulegum leiktíma. 8.11.2006 21:51
Liverpool yfir gegn Birmingham Liverpool hefur yfir 1-0 gegn Birmingham þegar flautað hefur verið til leikhlés í virðureign liðanna í enska deildarbikarnum. Það var danski landsliðsmaðurinn Daniel Agger sem skoraði mark Liverpool í uppbótartíma, en Mohamed Sissoko þurfti að fara meiddur af velli eftir 26 mínútur. Leikurinn hefur verið fjörlegur og er í beinni útsendingu á Sýn. 8.11.2006 20:36
Bindur miklar vonir við íslenska knattspyrnumenn Einn litríkasti knattspyrnumarkvörður heims, Bruce Grobbelaar segir að Ísland verði á meðal sterkustu knattspyrnuþjóða innan tíu ára. Grobbelar dúkkaði óvænt upp á knattspyrnumóti í Egilshöll um síðustu helgi. 8.11.2006 20:18
Björgólfur staðfestir samstarf við Eggert Björgólfur Guðmundsson, formaður bankaráðs Landsbankans, sendi í dag frá sér yfirlýsingu þar sem hann staðfestir að hann sé maðurinn sem standi á bak við meirihluta þess fjármagns sem Eggert Magnússon hefur verið að raka saman til að gera kauptilboð í enska knattspyrnufélagið West Ham. 8.11.2006 18:51
Farinn aftur til Tottenham Landsliðsmaðurinn Emil Hallfreðsson hefur nú snúið aftur til London þar sem hann ætlar sér að halda áfram að vinna sér sæti í liði Totteham. Emil gerði gott mót með Malmö í Svíþjóð sem lánsmaður á síðustu mánuðum, en samkvæmt heimasíðu félagsins hefur hann ákveðið að reyna aftur fyrir sér á Englandi. 8.11.2006 18:30
Malbranque í byrjunarliði Tottenham Franski miðjumaðurinn Steed Malbranque verður að öllum líkindum í byrjunarliði Tottenham í kvöld þegar liðið mætir Port Vale í enska deildarbikarnum. Malbranque hefur enn ekki spilað leik fyrir Tottenham síðan hann gekk í raðir liðsins í sumar eftir uppskurð við kviðsliti. 8.11.2006 18:00
Veigar tilnefndur sem besti leikmaðurinn Veigar Páll Gunnarsson hjá norska liðinu Stabæk er einn þriggja leikmanna sem tilnefndir hafa verið sem leikmaður ársins í norsku úrvalsdeildinni. Þeir Robert Koren hjá Lilleström og Steffen Iversen hjá Rosenborg eru einnig tilnefndir sem leikmenn ársins. 8.11.2006 17:24
Birmingham verður í hefndarhug Rafa Benitez reiknar fastlega með því að lið Birmingham verði í miklum hefndarhug í kvöld þegar liðið tekur á móti Liverpool í enska deildarbikarnum, en þessi lið mættust í bikarkeppninni á síðustu leiktíð og þá sigraði Liverpool 7-0. 8.11.2006 16:42
Beckham varð fyrir áfalli Fabio Capello segir að erfiðleikar David Beckham á knattspyrnuvellinum undanfarið stafi af því að hann hafi orðið fyrir sálrænu áfalli við það að segja af sér sem fyrirliði enska landsliðsins og að það hafi fengið á hann að vera ekki valinn í liðið síðan á HM. 8.11.2006 16:30
Tveir bikarleikir á Sýn í kvöld: Leikur Birmingham og Liverpool í enska deildarbikarnum verður sýndur beint á Sýn í kvöld og hefst útsending klukkan 19:35. Þá verður síðari leikur Barcelona og Badalona í spænska bikarnum sýndur beint þar á eftir. 8.11.2006 15:15
Xavier skrifar undir hjá Boro Portúgalski varnarmaðurinn Abel Xavier hefur skrifað undir samning við enska úrvalsdeildarfélagið Middlesbrough og gildir hann til loka leiktíðarinnar. Xavier hefur nýlokið við að afplána 12 mánaða keppnisbann vegna lyfjanotkunar og er 33 ára gamall. Hann hefur staðið sig vel á æfingum með liðinu að undanförnu og því ákváðu forráðamenn félagsins að bjóða honum stuttan samning. 8.11.2006 14:53
Wenger og Pardew kærðir Enska knattspyrnusambandið hefur kært knattspyrnustjórana Arsene Wenger hjá Arsenal og Alan Pardew hjá West Ham fyrir ósæmilega hegðun á hliðarlínunni þegar lið þeirra mættust í úrvalsdeildinni um helgina. Vallarverðir þurftu að skilja þá félaga í sundur og lá við handalögmálum. Þeir hafa frest til 23. nóvember til að svara fyrir sig. 8.11.2006 14:47
Leiktíðinni lokið hjá Ameobi? Glenn Roeder, stjóri Newcastle, segir að framherjinn Shola Ameobi þurfi líklega að fara til Ameríku í skurðaðgerð vegna þrálátra meiðsla á mjöðm sem hafa haldið framherjanum frá keppni í tvær vikur. Roeder segir að ef hann þurfi í uppskurðinn, þýði það væntanlega að hann spili ekki meira með liðinu á leiktíðinni. 8.11.2006 14:40
Handtekinn vegna gruns um líkamsárás Fyrrum landsliðsmaðurinn Paul Gascoigne hefur verið handtekinn af lögreglu vegna gruns um líkamsárás á næturklúbbi í Kensington í Lundúnum. Gascoigne er 39 ára gamall og hefur um árabil átt við áfengis- og fíkniefnavanda að stríða. 43 ára gamall karlmaður hefur lagt fram kæru til lögreglu og heldur því fram að á sig hafi verið ráðist. Málið er í rannsókn. 8.11.2006 14:36
Ibrahimovic ekki í hópnum Lars Lagerback, landsliðsþjálfari Svía, hefur valið landsliðshópinn sem mætir Fílabeinsströndinni í næstu viku og það sem mesta athygli vakti var að Zlatan Ibrahimovic var ekki valinn í liðið. 8.11.2006 00:01
United úr leik - Hermann skaut Charlton áfram Deildarbikarmeistarar Manchester United eru úr leik í keppninni þetta árið eftir 1-0 tap gegn Southend. Hermann Hreiðarsson og félagar í Charlton unnu nauman sigur á Chesterfield eftir framlengdan leik og vítakeppni, en Hermann skoraði sigurmark Charlton í vítakeppninni. 7.11.2006 22:58
Verðum að taka leikinn við Southend alvarlega Alex Ferguson hefur varað leikmenn sína við því að ætla að vanmeta lið Southend þegar liðin mætast í deildarbikarnum í kvöld í leik sem sýndur verður beint á Sýn. Hann segir leikinn við Crewe í síðustu umferð hafa undirstrikað að menn verði að vera fullkomlega einbeittir þó þeir spili gegn lægra skrifuðum andstæðingum. 7.11.2006 18:47
Íhugaði að hætta í sumar Steve Bruce segist hafa íhugað alvarlega að segja af sér sem knattspyrnustjóri Birmingham í sumar eftir að lið hans féll úr úrvalsdeildinni. Lærisveinar hans mæta Liverpool í enska deildarbikarnum annað kvöld og reyna þá að hefna ófaranna frá því í fyrra þegar liðið tapaði 7-0 fyrir þeim rauðu. 7.11.2006 18:08
Þjálfari dæmdur í lífstíðarbann Stanislav Bernikov, fyrrum þjálfari þriðjudeildarliðsins Metallurg Lipetsk í Rússlandi, hefur verið dæmdur í lífstíðarbann frá atvinnuknattspyrnu eftir að hafa ráðið handrukkara til að berja þrjá af fyrrum leikmönnum sínum hjá liðinu. 7.11.2006 16:33
Peningakast til rannsóknar Forráðamenn enska úrvalsdeildarfélagsins Fulham hafa fengið lögreglu að komast að því hver var að verki um helgina þegar smápeningi var kastað í höfuð Claus Jensen, leikmanns Fulham, í leik gegn Everton á laugardaginn. Svipað atvik átti sér stað í leik West Ham og Arsenal. 7.11.2006 16:19
Ég er engin rolla Franski bakvörðurinn Benoit Assou-Ekotto hjá Tottenham vandar fyrrum félögum sínum í Rennes ekki kveðjurnar og segist hafa farið frá félaginu af því það kjósi að vera með viljalausa sauði í sínum röðum. 7.11.2006 15:54
Southend - Man Udt í beinni í kvöld Nokkrir leikir fara fram í enska deildarbikarnum í kvöld og verður leikur Southend og Man Utd sýndur beint á Sýn klukkan 19:50. Fleiri leikir fara fram í keppninni annað kvöld og þá verður slagur Birmingham og Liverpool sýndur á Sýn. 7.11.2006 15:06
Kemur Graham Poll til varnar Keith Hackett, yfirmaður dómarastéttarinnar á Englandi, hefur komið Graham Poll dómara til varnar eftir að einn leikmanna Chelsea hélt því fram að hann hefði sagst vera að "kenna Chelsea lexíu" með því að spjalda þá í leiknum gegn Tottenham á sunnudaginn. 7.11.2006 14:17
Lýsir yfir stuðningi við Roeder Stjórnarformaður Newcastle segir að Glenn Roeder knattspyrnustjóri hafi fullan stuðning stjórnarinnar þrátt fyrir afleitt gengi liðsins það sem af er tímabils í ensku úrvalsdeildinni, en Newcastle hefur ekki unnið sigur í sjö leikjum í röð og er í næst neðsta sæti deildarinnar. 7.11.2006 14:05
Diouf enn í vandræðum Knattspyrnumaðurinn El Hadji Diouf hjá Bolton Wanderers hefur verið handtekinn í kjölfar þess að konan hans sakaði hann um að leggja hendur á sig snemma á sunnudagsmorguninn. Diouf var sleppt úr fangelsi gegn tryggingu en hann þarf að snúa aftur á lögreglustöðina á morgun og þá færst úr því skorið hvort hann verður kærður eða ekki. 7.11.2006 13:49
Fimm nefndir sem hugsanlegir eftirmenn Eggert Magnússon hefur verið formaður Knattspyrnu-sambands Íslands síðan 1989. Undanfarnar vikur hefur hann farið fyrir hópi fjárfesta sem hefur reynt að eignast meirihluta hlutabréfa í enska úrvalsdeildarfélaginu West Ham. 7.11.2006 08:15
Southend yfir gegn Man Utd Southend hefur yfir 1-0 á heimavelli sínum gegn Manchester United þegar flautað hefur verið til leikhlés í viðureign liðanna í enska deildarbikarnum. United hefur átt eitt skot í stöngina á marki Southend, sem á í vök að verjast eftir að Freddy Eastwood kom liðinu yfir á 27. mínútu. 7.11.2006 20:54
Barcelona hirti öll verðlaunin Ronaldinho var valinn besti leikmaðurinn og Lionel Messi besti ungi leikmaðurinn þegar úrslit hinna árlegu FIFPro verðlauna voru gerð kunn í dag. Aukinheldur hlaut Samuel Eto´o, einnig leikmaður Barcelona, sérstök heiðursverðlaun sem veitt eru knattspyrnumanni sem hefur unnið framúrskarandi starf í þágu íþróttarinnar. 6.11.2006 20:30
Ætlar ekki að gefast upp Glenn Roeder, stjóri Newcastle, hefur tjáð leikmönnum sínum að þeir verði að átta sig á því hvaða þýðingu það hefur fyrir þá að klæðast treyju félagsins. Roeder segir leikmenn hafa brugðist trausti stuðningsmanna. 6.11.2006 19:30
Eiður Smári gerir upp ferilinn hjá Chelsea Kl. 20:15 í kvöld verður sýndur þáttur á sjónvarpsstöðinni Sýn um feril Eiðs Smára Guðjohnsen hjá Chelsea. Sem kunnugt er gekk Eiður Smári í raðir Barcelona í sumar eftir að hafa spilað í sex ár með Chelsea. 6.11.2006 18:15
Rijkaard hrósar Saviola Eiður Smári Guðjohnsen gæti átt á hættu að missa byrjunarliðssæti sitt í framlínu Barcelona, ef eitthvað er að marka orð Frank Rijkaard eftir jafnteflið gegn Deportivo um helgina. Hollenski þjálfarinn hrósar Argentínumanninum Javier Saviola, sem tók stöðu Eiðs í fremstu víglínu, fyrir góða frammistöðu. 6.11.2006 17:00
Cassano eða Eiður Smári? Enska slúðurblaðið News Of The World greinir frá því að Newcastle ætli sér að bjóða 11 milljónir punda í ítalska framherjann Antonio Cassano hjá Real Madrid þegar leikmannaglugginn opnar að nýju í janúar. Um helgina var Eiður Smári Guðjohnsen orðaður við Newcastle í nokkrum ensku blaðanna. 6.11.2006 16:30
Í viðræðum við Dynamo Kiev Sænski skrautfuglinn Sven Göran Eriksson, fyrrum þjálfari enska landsliðsins, hefur átt í viðræðum við forráðamenn Dynamo Kiev í Úkraínu um að taka við þjálfun liðsins. 6.11.2006 15:02
Sex lið eiga fulltrúa Vefmiðillinn Soccernet birtir ávallt á mánudögum lið vikunnar í enska boltanum. Að þessu sinni eiga aðeins sex félög í deildinni fulltrúa í liði vikunnar og ekkert þeirra fleiri en tvo leikmenn. 6.11.2006 15:00
Rændur og barinn af þjófum í Róm Dino Zoff, fyrrum fyrirliði ítalska landsliðsins í knattspyrnu, lenti í óskemmtilegri lífsreynslu þegar hann var á göngu með konu sinni í Róm á laugardagskvöldið. Óprúttnir náungar höfðu af þeim öll þeirra verðmæti og gáfu Zoff um leið vænt glóðurauga. 6.11.2006 14:45
Ólátabelgjum verður refsað Enska knattspyrnusambandið hefur hrint af stað rannsókn til að komast að því hverjir köstuðu smápeningum úr stúkunni í tveimur leikjum ensku úrvalsdeildarinnar um helgina. Á laugardag varð Claus Jensen, leikmaður Fulham, fyrir smápeningi og í gær fékk Robin van Persie hjá Arsenal aðskotahlut í höfuðið. 6.11.2006 13:45
Vill ekki skrifa strax undir nýjan samning David Beckham, fyrrum landsliðsmaður Englendinga og leikmaður Real Madrid á Spáni, vill ekki skrifa undir nýjan samning við félagið fyrr en hann hefur náð að vinna sér sæti í byrjunarliðinu á nýjan leik. 6.11.2006 13:00
Peningasekt er ekki nóg fyrir ríku liðin Lennart Johansson, forseti knattspyrnusambands Evrópu, vill að refsingum fyrir ríkari félög verði breytt ef þau fara yfir strikið. 6.11.2006 12:00