Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Reyes gæti komið til baka Arsene Wenger hjá Arsenal segist ekki útiloka þann möguleika að Jose Antonio Reyes snúi aftur til félagsins eftir þessa leiktíð. Reyes er í láni hjá Real Madrid og hefur sagt að hann vilji alls ekki fara aftur til Englands. Wenger segir að það sé ekki alfarið undir honum sjálfum komið. 5.11.2006 16:30
Vilja Shepherd burtu Þúsundir stuðningsmanna Newcastle söfnuðust fyrir framan aðalinngang St. James Park, heimvöll félagsins, eftir tapið gegn Sheffield United í ensku úrvalsdeildinni í gær og kröfðust þess að Freddie Shepherd segði af sér stjórnarformennsku hjá félaginu. 5.11.2006 16:30
Harewood hetja West Ham Sóknarmaðurinn Marlon Harewood reyndist hetja West Ham í nágrannaslagnum gegn Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í dag. Harewood skoraði eina mark leiksins, mínútu fyrir leikslok. 5.11.2006 15:43
Það á að fangelsa svona aumingja Chris Coleman, knattspyrnustjóri Fulham, er öskuvondur út í þann sem henti smápeningi úr stúkunni í viðureign Fulham og Everton í gær sem hafnaði á höfði Claus Jensen, markaskorara Fulham í leiknum. Coleman segir viðkomandi vera heigul sem eigi heima í fangelsi. 5.11.2006 13:00
Barcelona náði aðeins jafntefli Ríkjandi Spánarmeistarar Barcelona náði aðeins jafntefli gegn Deportivo í stórleik gærkvöldsins í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Lokatölur urðu 1-1. 5.11.2006 12:30
Zlatan gefur kost á sér á nýjan leik Zlatan Ibrahimovich hefur náð sáttum við Lars Lagerback, þjálfara sænska landsliðsins í fótbolta, og aðra forkólfa sænska knattspyrnusambandsins, og mun hann snúa aftur í sænska liðið í næsta leik þess. Fjölmiðlar á Ítalíu greindu frá þessu í gær. 5.11.2006 00:01
Kuyt er frábær liðsmaður Hollenski framherjinn Dirk Kuyt fékk mikið hrós frá stjóra sínum, Rafael Benitez, eftir leikinn gegn Reading í dag. Liverpool vann 2-0 og skoraði Kuyt bæði mörkin. 4.11.2006 21:15
Þú ert ennþá of feitur Brasilíski framherjinn Ronaldo er ennþá of feitur að mati þjálfara Real Madrid, Fabio Capello. Ítalski þjálfarinn segir að það verði ekki fyrr en nokkur kíló séu farin til viðbótar sem hann geti farið að gera tilkall til byrjunarliðssætis. 4.11.2006 20:52
Við erum í rosalegu formi Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, segist finna mikinn meðbyr með sínu liði þessa dagana og miðað við andann og stemninguna í hópnum segist hann handviss um að lærisveinar sínir muni koma til með að berjast um titla í vetur. 4.11.2006 20:45
Man. Utd. heldur sínu striki Manchester United heldur sínu striki í ensku úrvalsdeildinni og er nú komið með 28 stig á toppi deildarinnar eftir sannfærandi 3-0 sigur á Portsmouth á Old Trafford í dag. Liverpool sigraði Reading, 2-0, en Bolton tapaði óvænt á heimavelli fyrir Wigan. 4.11.2006 17:10
Ívar, Brynjar og Hermann í byrjunarliðinu Ívar Ingimarsson er fyrirliði Reading sem mætir Liverpool á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í dag. Brynjar Björn Gunnarsson er sömuleiðis í byrjunarliðinu, sem hægri bakvörður, og þá er Hermann Hreiðarsson í vörn Charlton sem tekur á móti Man. City. 4.11.2006 15:25
Allir þjálfarar vildu hafa Carragher í sínu liði Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, segir að Jamie Carragher sé leikmaður sem allir þjálfarar vildu hafa í sínu liði. Benitez hrósar leikmanninum í hástert en hann leikur sinn 300. leik fyrir Liverpool þegar það tekur á móti Reading í dag. 4.11.2006 14:45
Hefur rætt við stjórnarformann West Ham Eggert Magnússon, formaður KSÍ, ræddi við Terry Brown, stjórnarformann West Ham, í gær um hugsanlega yfirtöku fjárfestingarhóps undir hans stjórn á Lundúnarfélaginu. Fundurinn þykir gefa sterkar vísbendingar um að Eggert sé ennþá með í baráttunni um yfirtöku á félaginu. 4.11.2006 14:30
Er ekki fúll yfir því að sitja á bekknum Portúgalski markvörðurinn Hilario hjá Chelsea segist reiðubúinn að gefa sæti sitt í byrjunarliði liðsins til Ítalans Carlo Cudicini, sem er orðinn heill heilsu eftir að hafa fengið heilahristing í leik gegn Reading fyrir nokkrum vikum. Chelsea tekur á móti Tottenham á morgun. 4.11.2006 14:15
Cassano á að biðjast afsökunar Predrag Mijatovic, yfirmaður knattspyrnumála hjá Real Madrid og fyrrum fyrirliði liðsins, telur að Antonio Cassano skuldi þjálfara sínum og samherjum afsökunarbeiðni fyrir hegðan sína eftir að hafa verið skilinn eftir utan leikmannahópsins um síðustu helgi. 4.11.2006 13:15
Puyol ekki með vegna andláts föður Carlos Puyol, fyrirliði Barcelona, hefur dregið sig út úr leikmannahópi Barcelona fyrir leikinn gegn Deportivo La Coruna í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld, eftir að faðir hans lést í gær. 4.11.2006 12:30
Ætlar að taka vel á móti Wenger Alan Pardew segist ekki hafa neitt á móti Arsene Wenger knattspyrnustjóra Arsenal og segist ætla að taka vel á móti honum þegar Arsenal mætir West Ham á Upton Park um helgina. Pardew gagnrýndi lið Arsenal fyrir að vera með eintóma útlendinga í liðinu á síðustu leiktíð og féllu þessi ummæli í mjög grýttan jarðveg. 3.11.2006 22:00
Gefur leikmönnum átta vikur til að sanna sig Martin O´Neill hefur sent leikmönnum sínum þau skilaboð að þeir hafi tvo mánuði til að sanna tilverurétt sinn í liðinu, en það er tíminn fram að því þegar leikmannamarkaðurinn opnar á ný. 3.11.2006 21:15
Redknapp ætlar að versla í janúar Harry Redknapp, stjóri Portsmouth, ætlar sér að versla sér varnarmenn til að styrkja hóp sinn í janúar til að koma í veg fyrir meiðslakrísu eins og þá sem hann stendur frammi fyrir skömmu fyrir mikilvægan leik gegn Manchester United um helgina. 3.11.2006 20:30
Þór/KA áfrýjar til ÍSÍ Enn liggur ekki fyrir hvort það verður Þór/KA eða ÍR sem tekur sæti í Landsbankadeild kvenna á næsta tímabili eftir að forráðamenn kvennaliðs Þórs/KA áfrýjuðu í dag niðurstöðu áfrýjunardómstóls KSÍ til áfrýjunardómstóls ÍSÍ, þar sem endanlegrar niðurstöðu er að vænta eftir um það bil 10 daga. 3.11.2006 19:22
Drogba framlengir við Chelsea Framherjinn sterki Didier Drogba hefur framlengt samning sinn við Englandsmeistara Chelsea um fjögur ár og er því samningsbundinn félaginu til ársins 2010. Drogba er 28 ára gamall og var keyptur til Chelsea fyrir 24 milljónir punda árið 2004. Hann hefur skorað 10 mörk í 15 leikjum á leiktíðinni. 3.11.2006 19:17
Líkir rannsókninni við yfirheyrslur KGB Paul Jewell segist hafa verið óttasleginn þegar hann var yfirheyrður af fyrrverandi lögreglumönnum í tengslum við rannsóknina sem stendur yfir vegna gruns um spillingu í enska boltanum. 3.11.2006 18:00
Það er mitt mál hvenær ég hætti Sir Alex Ferguson lét fjölmiðlamenn heyra það á blaðamannafundi í dag þegar hann var spurður hvort hann ætlaði ekki að fara að hætta störfum í tilefni þess að á mánudag eru 20 ár liðin frá því hann tók við Manchester United. 3.11.2006 17:00
Hrósar Alex Ferguson Roy Keane, fyrrum fyrirliði gullaldarliðs Manchester United og núverandi stjóri Sunderland, segir það ótrúlegt afrek hjá Alex Ferguson að hafa nú verið 20 ár í starfi hjá einu stærsta knattspyrnufélagi heims. 3.11.2006 16:36
Savage verður frá í allt að mánuð Miðjumaðurinn Robbie Savage hjá Blackburn gæti orðið frá keppni í allt að einn mánuð eftir að meiðsli hans á læri tóku sig upp á ný í Evrópuleiknum við Basel í gærkvöld. Savage varð upprunalega fyrir meiðslunum í deildarleik gegn Bolton um daginn. 3.11.2006 16:13
Argur yfir að þurfa að sitja á bekknum Brasilíski framherjinn Ronaldo hjá Real Madrid segist undrast það að þurfa að húka á varamannabekknum hjá Fabio Capello þjálfara og segist ekki skilja til hvers þjálfarinn ætlist af sér. 3.11.2006 15:25
Valur semur við fjóra leikmenn Valsmenn héldu blaðamannafund í hádeginu þar sem kynntir voru fjórir nýjir leikmenn sem spila munu með liðinu í Landsbankadeildinni næsta sumar. Þetta eru þeir Hafþór Ægir Vilhjálmsson úr ÍA, Daníel Hjaltason úr Víkingi, Jóhann Helgason frá Grindavík og Gunnar Einarsson sem áður lék með KR. 3.11.2006 14:14
Leikjaálagið er brjálæði Glenn Roeder og félagar í Newcastle standa nú frammi fyrir því erfiða verkefni að spila þrjá leiki á sex dögum. Roeder segir það brjálæði að leggja þetta á leikmenn sína, en nýtti sér ekki réttinn til að fresta deildarleik við Sheffield United vegna sjónvarpstekna sem félagið fær af leiknum. 3.11.2006 13:55
Ágætt að það sé skap í mönnum Tveir leikmenn danska stórliðsins Bröndby lentu í slagsmálum á æfingu liðsins á miðvikudaginn. Með liðinu leikur íslenski framherjinn Hannes Þorsteinn Sigurðsson en gengi liðsins á þessu tímabili hefur ekki verið sem skyldi. Liðið er sem stendur í sjöunda sæti dönsku deildarinnar. 3.11.2006 00:01
Segir sig úr stjórn UEFA ef hann kaupir West Ham Bresk blöð hafa það eftir talsmanni Eggerts Magnússonar í dag að hann muni segja af sér sem forseti KSÍ og hætta störfum hjá evrópska knattspyrnusambandinu ef kaupum hans á West Ham verður. 2.11.2006 23:00
Kia neitaði tilboði Barcelona Breska blaðið Daily Mail heldur því fram í dag að milljónamæringurinn Kia Joorabchian sem á kaupréttinn á Argentínumanninum Carlos Tevez, hafi hafnað kauptilboði Barcelona í kappann í dag. 2.11.2006 22:30
Tottenham lagði Club Brugge Tottenham er í mjög góðum málum í B-riðli Evrópukeppni félagsliða eftir 3-1 sigur á Club Brugge í fjörugum leik sem sýndur var beint á Sýn í kvöld. Dimitar Berbatov skoraði tvö mörk fyrir heimamenn og Robbie Keane eitt, en framherjar liðsins fóru engu að síður illa með fjölda tækifæra eins og hefð hefur myndast fyrir í vetur. 2.11.2006 21:51
Southgate hefur engar áhyggjur Gareth Southgate, stjóri Middlesbrough í ensku úrvalsdeildinni, segist aðeins vera að einbeita sér að því að vinna vinnuna sína þó undanþága hans til að þjálfa liðið falli úr gildi eftir 9 daga. 2.11.2006 19:45
Verður ekki með gegn Deportivo Eiður Smári Guðjohnsen verður ekki í liði Barcelona sem mætir Deportivo í spænsku úrvalsdeildinni um helgina vegna ökklameiðslanna sem hann varð fyrir í leiknum við Chelsea í Meistaradeildinni. 2.11.2006 18:31
Shevchenko er gæludýrið hans Abramovich Framherjinn Samuel Eto´o hjá Barcelona tekur undir skoðun þeirra fjölmörgu sem segja að Andriy Shevchenko hafi gert afdrifarík mistök með því að ganga til liðs við Chelsea í sumar. 2.11.2006 18:14
Gefur Aaron Lennon aðvörun Martin Jol hefur sent enska landsliðsmanninum Aaron Lennon aðvörun og hvetur hann til að ná meiri stöðugleika í frammistöðu sína með Tottenham - ella verði hann á fá sér sæti á varamannabekknum. 2.11.2006 17:15
Xavier við það að semja við Boro Portúgalski varnarmaðurinn Abel Xavier er nú við það að skrifa undir samning við enska úrvalsdeildarfélagið Middlesbrough að sögn umboðsmanns hans, en Xavier er nýlaus úr löngu keppnisbanni vegna steranotkunar. Svo gæti farið að hann yrði í leikmannahópi Boro gegn Watford um helgina en mikil meiðsli eru meðal varnarmanna liðsins. 2.11.2006 16:30
Vill aldrei fara til Englands aftur Spænski landsliðsmaðurinn Jose Antonio Reyes sem nú leikur sem lánsmaður hjá Real Madrid frá enska félaginu Arsenal, segist aldrei geta hugsað sér að spila á Englandi aftur. Reyes fór sem lánsmaður til Real í skiptum fyrir Julio Baptista í sumar og búist er við því að sú ráðstöfun verði gerð varanleg fljótlega. 2.11.2006 15:45
Ole Gunnar frá í nokkrar vikur Norski markaskorarinn Ole Gunnar Solskjær hjá Manchester United verður frá keppni í nokkrar vikur eftir að hafa tognað aftan á læri í Meistaradeildarleiknum á Parken í gærkvöldi. Alex Ferguson knattspyrnustjóri liðsins segist hafa verið feginn að heyra að vandamálið var ekki alvarlegra en raun bar vitni og sagðist hafa óttast að hnéð hefði gefið sig þegar hann fór að haltra undir lok leiksins. 2.11.2006 15:30
Stórhuga í Meistaradeildinni Jose Mourinho segir að lið sitt sé að spila betur en nokkru sinni fyrr í Meistaradeild Evrópu og bendir á að þó samkeppnin sé hörð, hafi hans menn alla möguleika á að fara alla leið í keppninni að þessu sinni. 2.11.2006 15:00
Englendingar íhuga að bjóða í HM 2018 Richard Caborn, íþróttamálaráðherra Englendinga, segir að stjórnvöld þar í landi séu mjög hrifinn af þeirri hugmynd að fá að halda HM í knattspyrnu árið 2108. HM 2010 fer fram í Suður-Afríku og keppnin þar á eftir mun fara fram í einhverju af löndum Suður-Ameríku. Þar á eftir verður keppnin haldin í Evrópu á ný og þá hafa enskir hug á því að fá að halda keppnina. 2.11.2006 14:35
Tottenham - Club Brugge í beinni Leikur Tottenham og Club Brugge í Evrópukeppni félagsliða verður sýndur beint á Sýn Extra í kvöld og hefst útsending klukkan 19:55. Tottenham hvílir væntanlega eitthvað af lykilmönnum sínum fyrir deildarleikinn gegn Chelsea um helgina, en Didier Zokora er í leikmannahópi Lundúnaliðsins eftir að hafa veikst af malaríu á dögunum. 2.11.2006 13:56
Jafnt í hálfleik á White Hart Lane Staðan í leik Tottenham og Club Brugge í riðlakeppni Evrópukeppni félagsliða er jöfn 1-1 þegar flautað hefur verið til leikhlés. Dimitar Berbatov jafnaði metin fyrir Tottenham eftir að liðið lenti undir 1-0. Albert Luqueskoraði mark Newcastle hefur yfir 1-0 gegn Palermo á Sikiley og þá er markalaust hjá Blackburn og Basel. 2.11.2006 21:03
Hugsanlega besti leikur okkar í Meistaradeildinni Arsene Wenger var ekkert að velta sér upp úr því að lið hans hafi farið illa með fjölda færa og því þurft að sætta sig við markalaust jafntefli á heimavelli við CSKA Moskva í kvöld. Hann segir spilamennsku liðsins hafa verið frábæra. 1.11.2006 23:24
Við verðum að ná í stig gegn Celtic Sir Alex Ferguson var ekki á þeim buxunum að koma með lélegar afsakanir í kvöld eftir að hans menn afhentu FC Kaupmannahöfn fyrsta sigur sinni í Meistaradeildinni í sögu félagsins. Ferguson sagði sína menn hafa fengið á baukinn fyrir að nýta ekki færi sín. 1.11.2006 23:20