Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Englendingar mjög slakir Enskir fjölmiðlar voru mjög óánægðir með frammistöðu landsliðs síns í leiknum gegn Makedóníu í undankeppni EM í gær. Lokatölur urðu 0-0 í leik sem gestirnir frá Makedóníu hefðu vel getað unnið. Helstu ensku miðlarnir fóru hörðum orðum um enska liðið og sagði það einfaldlega vera lélegt um þessar mundir. 8.10.2006 06:45
4-0 fyrir Lettum Eiður Smári misnotar góð færi og okkur er refsað um hæl. Enn ein varnarmistökin, Indriði rennur til, Visnjakovs fær frítt skot fyrir utan teig og skorar. 7.10.2006 19:13
Martröð í Ríga 3-0 3-0 fyrir Lettum og ekki hálftími er liðinn af leiknum. Það stendur ekki steinn yfir steini í leik íslenska liðsins sem virðist vera áhorfandi af eigin útför á meðan Lettar hafa skorað þrjú mörk á 12 mínútna kafla. 7.10.2006 18:29
Lettar komnir í 2-0 Lettar hafa skorað tvö mörk með mínútu millibili. Karlsons skoraði eftir mistök í vörinni, Eiður fékk ágætt færi en nánast í sömu andrá gerði Ívar Ingimarsson slæm mistök og Verpakovskis kom Lettum í 2-0. Aðeins eru liðnar 20 mínútur af leiknum. 7.10.2006 18:18
England - Makedónía að hefjast Nú er að hefjast leikur Englendinga og Makedóníumanna á Old Trafford í Manchester í Englandi. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn og hefst klukkan 16:00. Þetta er fyrsti leikur Wayne Rooney undir stjórn Steve McClaren. Rooney hefur verið í banni síðan hann fékk rauða spjaldið fyrir að hafa stigið full harkalega til jarðar gegn Portúgal á HM. 7.10.2006 15:56
Tainio verður frá í mánuð Finnski landsliðsmaðurinn Teemu Tainio verður frá keppni í að minnsta kosti einn mánuð eftir að hafa gengist undir aðgerð vegna kviðslits. Tainio verður því ekki með Finnum í landsleikjunum gegn Armeníu og Kazakstan á næstu viku og ljóst er að fjölhæfni hans og baráttugleði verður sárt saknað í herbúðum Tottenham. 6.10.2006 21:30
Mandaric íhugar að kaupa Leicester Serbneski viðskiptajöfurinn Milan Mandaric, sem nýverið seldi hlut sinn í úrvalsdeildarfélaginu Portsmouth, segist vera að íhuga að kaupa annað félag á Englandi og viðurkennir að um helmings líkur séu á að hann geri tilboð í Leicester City. 6.10.2006 21:15
Hoeness og Mihajlovic í bann Uli Hoeness stjórnarformaður Bayern Munchen og Sinisa Mihajlovic aðstoðarþjálfari Inter Milan voru í dag dæmdir í tveggja leikja bann fyrir að ausa blótsyrðum hvor á annan á leik Inter og Bayern í Meistaradeildinni á dögunum. 6.10.2006 20:15
Leikmenn ráða engu um leikaðferð liðsins Steve McClaren, landsliðsþjálfari Englendinga, segir að enska landsliðið spili nákvæmlega eins og hann vill gegn Makedóníu á morgun, en fregnir höfðu borist af því í morgun að leikmenn liðsins hefðu mótmælt því að þjálfarinn ætlaði að spila 3-5-2 gegn Makedóníu. 6.10.2006 17:45
Tommy Nielsen framlengir við FH Danski varnarmaðurinn Tommy Nielsen hefur framlengt samning sinn við Íslandsmeistara FH til tveggja ára, en þetta staðfesti Pétur Stephensen framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar FH við NFS nú síðdegis. 6.10.2006 16:38
Segir Tevez og Mascherano að fara frá West Ham Nýráðinn landsliðsþjálfari Argentínu er ekki að skafa af því í viðtali á vefsíðu þar í landi í dag og segir að þeir Javier Mascherano og Carlos Tevez ættu að hypja sig frá West Ham því það henti þeim alls ekki að spila fyrir liðið. 5.10.2006 21:39
Ívar á von á nýjum samningi Enska úrvalsdeildarfélagið Reading reiknar með að gera nýja og endurbætta samninga við nokkra af lykilmönnum félagsins í kjölfar þess að liðið vann sér sæti í úrvalsdeildinni og hefur þar slegið í gegn í upphafi leiktíðar. Ívar Ingimarsson er einn þeirra sem Sky segir að gæti átt von á að fá nýjan og betri samning í framtíðinni. 5.10.2006 18:00
Kærður af knattspyrnusambandinu Joey Barton er ekki alveg sloppinn fyrir horn eftir að hafa berað á sér bossann eftir leik City og Everton á dögunum, því þó kappinn hafi sloppið við lögregluákæru í gær, hefur hann nú verið kallaður inn á teppi hjá aganefnd enska knattspyrnusambandsins og kærður fyrir hegðun sína. Hann hefur frest fram á þriðjudag til að svara fyrir gjörðir sínar. 5.10.2006 15:23
Atletico ætlar alls ekki að selja Torres Einhver þrálátasti orðrómur í knattspyrnuheiminum á liðnum áratug fór enn á ný á fullt í dag þegar breskir fjölmiðlar fullyrtu að Manchester United væri á höttunum eftir framherjanum Fernando Torres hjá Atletico Madrid. Forseti spænska félagsins er orðinn mjög þreyttur á að svara spurningum þessu tengt. 5.10.2006 15:15
David Dein kjörinn stjórnarformaður G14 David Dein, varastjórnarformaður Arsenal, var í dag kjörinn formaður samtakanna G14 sem samanstanda af stjórnarmönnum 18 stærstu knattspyrnufélaga Evrópu. 4.10.2006 19:24
Hættur í ruglinu og ætlar að snúa aftur í úrvalsdeildina Knattspyrnumaðurinn Stan Collymore hugar nú að endurkomu fyrir alvöru og hefur lýst því yfir að hann ætli að komast að hjá liði í ensku úrvalsdeildinni innan skamms. Collymore hefur ekki spilað fótbolta í nokkur ár en hefur verið iðinn við áfengisneyslu og kvikmyndaleik. 4.10.2006 18:15
Yfirtökutilboð rætt á stjórnarfundi í dag Breskir fjölmiðlar segja að hópur fjárfesta undir stjórn íranska milljarðamæringsins Kia Joorabchian hafi nú gert 70 milljón punda yfirtökutilboð í enska úrvalsdeildarfélagið West Ham. 4.10.2006 17:27
Aaron Lennon á undan áætlun Enski landsliðsmaðurinn Aaron Lennon hjá Tottenham hefur náð skjótari bata en vonir stóðu til um í upphafi og að sögn Martin Jol þjálfara gæti verið að hann yrði klár í slaginn eftir um tvær vikur. Lennon hefur verið sárt saknað í herbúðum enska úrvalsdeildarliðsins að undanförnu, en liðið hefur aðeins unnið tvo leiki í deildinni til þessa. 4.10.2006 17:17
Úrslitaleikirnir spilaðir í Moskvu og Róm Knattspyrnusamband Evrópu hefur tilkynnt að úrslitaleikirnir í Meistaradeild Evrópu verði háðir í Moskvu árið 2008 og Róm árið eftir. Þá fer úrslitaleikurinn í Evrópukeppni félagsliða árið 2008 fram í Manchester á Englandi og í Istanbul í árið eftir. 4.10.2006 16:55
Henry kjörinn besti útlendingur allra tíma Franski sóknarmaðurinn Thierry Henry hjá Arsenal hefur verið kjörinn besti útlendingur allra tíma til að spila í ensku úrvalsdeildinni. Þetta var niðurstaða könnunar Sky sjónvarpsstöðvarinnar þar sem rúmlega 1,5 milljónir fólks fengu að kjósa. Landi hans Eric Cantona varð annar í kjörinu. 4.10.2006 16:18
Hópurinn sem mætir Bandaríkjamönnum Jörundur Áki Sveinsson hefur valið landsliðshóp sinn sem mætir sterku liði Bandaríkjanna í æfingaleik ytra á sunnudaginn og í hópnum er að finna einn nýliða, Helgu Sjöfn Jóhannesdóttur úr Stjörnunni. 4.10.2006 15:45
Meiddist á æfingu hjá Norrköping Knattspyrnumaðurinn Hafþór Ægir Vilhjálmsson hjá ÍA er nú á leið heim frá Svíþjóð þar sem hann var til reynslu hjá liði Norrköping. Hafþór meiddist á æfingunni og þarf um viku til að jafna sig, en honum hefur verið boðið að koma aftur út þegar hann nær sér og mun hann þá væntanlega einnig fara til Noregs og reyna sig hjá Aalesund. 4.10.2006 15:10
Clichy og Senderos að verða klárir hjá Arsenal Arsene Wenger, stjóri Arsenal, getur nú glaðst yfir þeim tíðindum að tveir að leikmönnum hans sem verið hafa meiddir eru nú óðum að ná sér og ættu að verða klárir í slaginn þegar keppni í ensku úrvalsdeildinni hefst eftir landsleikjahlé. 4.10.2006 14:30
Jenas missti af æfingu Enski landsliðsmaðurinn Jermaine Jenas æfði ekki með enska landsliðinu í dag eftir að hafa fengið högg á hnéð á æfingu í gær. Talsmenn enska liðsins segja meiðsli hans minniháttar og vonast til að hann verði klár í slaginn á laugardaginn þegar Englendingar leika við Makedóna og verður sá leikur sýndur beint á Sýn. 4.10.2006 14:27
Ætlar ekki að hætta eftir tvö ár Talsmaður enska knattspyrnumannsins David Beckham vísar orðum forseta Real Madrid á bug, en forsetinn sagði í viðtali í dag að Beckham væri búinn að ákveða að leggja skóna á hilluna eftir tvö ár. 4.10.2006 14:21
Joey Barton sleppur við refsingu Lögregluyfirvöld í Liverpool hafa ákveðið að aðhafast ekki frekar í máli Joey Barton hjá Manchester City sem beraði á sér bakhlutann framan við stuðningsmenn Everton eftir leik liðanna í deildinni á dögunum. 4.10.2006 14:05
Þór/KA heldur stöðu sinni í deildinni Lið Þórs/KA frá Akureyri heldur stöðu sinni í Landsbankadeild kvenna en ÍR þarf að láta sætta sig við að vera áfram í 1. deildinni þrátt fyrir að hafa unnið sér sæti í efstu deild í umspili á dögunum. 4.10.2006 14:00
Ætlar ekki að láta nördana skora hjá sér Varnarmaðurinn sterki Auðunn Helgason hjá Íslandsmeisturum FH á von á því að spila sinn fyrsta leik eftir meiðsli gegn KF Nörd þegar liðin eigast við á Laugardalsvellinum annað kvöld. Auðunn á ekki von á því að fá sæti í byrjunarliðinu en segir ekki koma til greina að láta nördana skora hjá sér meðan hann er innan vallar. 3.10.2006 21:15
Sutton til Aston Villa Enska úrvalsdeildarfélagið Aston Villa hefur náð samningi við framherjann Chris Sutton um að leika með liðinu það sem eftir lifir leiktíðar. Sutton var með lausa samninga eftir að hafa verið hjá Birmingham á síðustu leiktíð, en gengur nú til liðs við fyrrum stjóra sinn Martin O´Neill sem á í vandræðum með að manna framherjastöður sínar vegna meiðsla hjá Villa. 3.10.2006 17:20
Lofar markaveislu annað kvöld Logi Ólafsson segist verða milli steins og sleggju þegar hans menn mæta Íslandsmeisturum FH á Laugardalsvelli á morgun í kjölfar yfirlýsinga kollega hans Ólafs Jóhannessonar, þjálfara FH, á blaðamannafundi sem haldinn var í dag. 3.10.2006 15:52
Watford, 3-3, Fulham Watford og Fulham gerðu 3-3 jafntefli í ensku deildinni í kvöld. Heiðar Helguson var í byrjunarliði Fulham og var þetta í fyrsta skipti sem hann mætti sínum gömlu félögum í Watford. Watford komst í 2-0, en eftir æsilegar lokamínútur og mark frá Heiðari á 83. mínútu varð niðurstaðan 3-3 jafntefli. 2.10.2006 21:15
Luke Moore frá út leiktíðina? Sóknarmaðurinn ungi Luke Moore hjá Aston Villa þarf að öllum líkindum að fara í uppskurð vegna þrálátra meiðsla á öxl og svo gæti farið að hann yrði frá keppni það sem eftir lifir tímabils vegna þessa. 2.10.2006 20:00
Brann lagði Odd Grenland Síðasti leikurinn í 22. umferð norsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu fór fram í kvöld. Íslendingalið Brann vann þar 1-0 sigur á Odd Grenland og þar spilaði FH-ingurinn Ármann Smári Björnsson sinn fyrsta leik fyrir norska félagið. Hann spilaði allar 90 mínúturnar líkt og Ólafur Örn Bjarnason, en Kristján Sigurðsson var í leikbanni að þessu sinni. 2.10.2006 19:40
Samdi við Duisburg í Þýskalandi Landsliðskonan og markamaskínan Margrét Lára Viðarsdóttir skrifaði um helgina undir samning við þýska liðið Duisburg sem gildir til ársins 2008. Margrét Lára fór á kostum með liði Vals í Landsbankadeildinni í sumar og sló meðal annars markametið í deildinni með því að skora 34 mörk. 2.10.2006 16:39
Frekari meiðsli í herbúðum Tottenham Frekari skörð voru höggvin í leikmannahóp enska úrvalsdeildarliðsins Tottenham í gær eftir sigurinn á Portsmouth, en þeir Michael Dawson og Pascal Chimbonda geta ekki æft með liðinu næstu viku vegna meiðsla. Dawson fékk heilahristing eftir samstuð við félaga sinn Tom Huddlestone og þurfti að leggjast inn á sjúkrahús í gærkvöld, en Chimbonda meiddist á kálfa og verður frá í að minnsta kosti viku. 2.10.2006 16:28
Hefur ekki í huga að taka við West Ham Brasilíumaðurinn Luiz Felipe Scolari sendi frá sér yfirlýsingu í dag þar sem hann vísar á bug fréttum ensku blaðanna um helgina þar sem fullyrt var að hann væri inni í myndinni sem næsti knattspyrnustjóri West Ham vegna kunningsskapar síns við Kia Joorabchian, en sá er talinn vera að undirbúa yfirtökutilboð í enska félagið. 2.10.2006 16:20
Rannsókn haldið áfram vegna 39 félagaskipta Forráðamenn ensku úrvalsdeildarinnar hafa nú gefið Lord Stevens og rannsóknarteymi hans tvo mánuði til viðbótar til að rannsaka frekar meint ólöglegt athæfi í ensku knattspyrnunni í kjölfar sjónvarpsþáttarins Panorama sem sýndur var í breska sjónvarpinu á dögunum. Þáttur þessi verður á dagskrá Sýnar klukkan 22 á fimmtudagskvöldið. 2.10.2006 15:56
Shevchenko er marki frá því að springa út Jose Mourinho hefur nú enn á ný tekið upp hanskann fyrir 30 milljón punda fjárfestingu Chelsea í sumar, úkraínska framherjann Andriy Shevchenko. Mourinho segir hann vinna vel fyrir liðið og bendir á að það sé aðeins tímaspursmál hvenær hann springi út og fari að skora grimmt. 2.10.2006 14:45
Dómarinn bað mig afsökunar Harry Redknapp segir að Chris Foy, dómarinn sem dæmdi leik Tottenham og Portsmouth í ensku úrvalsdeildinni í gær, hafi komið til sín í hálfleik í leiknum í gær og beðið sig afsökunar á því að hafa dæmt vítaspyrnu á lið hans. Sigurmark Tottenham kom úr vítaspyrnu sem aldrei átti að dæma og Redknapp kallar í kjölfarið á að fjórði dómari megi styðjast við myndbandsupptökur til að skera úr um atvik sem þetta. 2.10.2006 13:51
Aganefndin fær skýrslu lögreglu Lögregluyfirvöld í Liverpool hafa nú sent enska knattspyrnusambandinu skýrslu vegna uppátækis Joey Barton eftir leik Everton og Manchester City um helgina, þegar Barton sýndi stuðningsmönnum Everton hvað honum fannst um þá þegar hann gekk af leikvelli og beraði á sér afturendann. Barton er talinn eiga yfir höfði sér leikbann fyrir þessa uppákomu, en leikmaðurinn var svo óheppinn að láta sjónvarpsmyndavélar festa bakhliðina á sér á myndband. 2.10.2006 13:43
Darren Bent í landsliðið í stað Andy Johnson Framherjinn ungi Darren Bent hefur verið kallaður inn í enska landsliðshópinn í stað Andy Johnson hjá Everton, eftir að sá síðarnefndi þurfti að draga sig úr hópnum vegna meiðsla sem hann varð fyrir á lokamínútum leiksins gegn Manchester City á laugardag. 2.10.2006 13:36
Ósáttur við niðurröðun landsleikja Arsene Wenger hefur alltaf ákveðnar skoðanir á því þegar liðsmenn hans yfirgefa herbúðir Arsenal og spila með landsliðum sínum. Wenger segir að landsliðin taki allt of mikinn tíma frá félagsliðunum yfir keppnistímabilið og óttast væntanlega að það komi niður á þeirri góðu siglingu sem er á liði hans um þessar mundir. 1.10.2006 21:45
Fer fögrum orðum um Heiðar Helguson Aidy Bootroyd segist ekki sjá eftir því að hafa selt Heiðar Helguson til Fulham á sínum tíma og segir að bæði Heiðar og Watford hafi hagnast á því á sínum tíma. Heiðar og félagar í Fulham sækja gamla liðið hans heim í ensku úrvalsdeildinni annað kvöld og á Boothroyd von á því að íslenski landsliðsmaðurinn fái góðar móttökur. 1.10.2006 21:14
Ólafur framlengir við Blika Knattspyrnudeild Breiðabliks sendi frá sér fréttatilkynningu í kvöld þar sem fram kemur að deildin hafi gert nýjan þriggja ára samning við Ólaf Kristjánsson þjálfara. Ólafur tók við liðinu af Bjarna Jóhannssyni í sumar og stýrði nýliðunum í fimmta sæti í deildinni eftir að það hafði verið í æsilegri fallbaráttu lengst af í sumar. 1.10.2006 21:01
Sló á létta strengi eftir tapið Paul Jewell og félagar í Wigan hafa ekki haft heppnina með sér í undanförnum leikjum í ensku úrvalsdeildinni og liðið mátti þola mjög súrt tap gegn Blackburn á útivelli í dag, þrátt fyrir að vera ef til vill betra liðið á löngum stundum í leiknum. 1.10.2006 20:28
Uppgjörið og viðtöl: Tindastóll - Grindavík 101 - 109 | Grindavík er Íslandsmeistari Körfubolti