Fleiri fréttir

Hinn 16 ára Bruno Gomes á leiðinni til United

Manchester United er við það að ganga frá samningi við brasilíska undrabarnið Bruno Gomes frá Desportivo Brasil, en þetta segir umboðsmaður leikmannsins, Gilmar Rinaldi, í viðtali ytra.

Arshavin gæti verið á leiðinni til Reading

Andrey Arshavin gæti verið á leiðinni til Reading nú í janúarmánuði frá Arsenal, en leikmaðurinn hefur ekki náð sér sem skildi hjá Arsenal frá því að hann kom til félagsins árið 2009.

Hörður Axel með tíu stig í sigurleik

Hörður Axel Vilhjálmsson skoraði 10 stig þegar Mitteldeutscher BC vann fimm stiga heimasigur á LTi GIESSEN 46ers, 93-88, í framlengdum leik í þýsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.

Taarabt fer ekki á Afríkumótið

Adel Taarabt, leikmaður QPR, mun ekki fara á Afríkumótið í janúar með Marokkó en hann var einfaldlega ekki valinn í landsliðið.

Draumabyrjun Liverpool dugði skammt á móti Stoke

Stoke er komið upp í áttunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir 3-1 sigur á Liverpool í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Liverpool hefði verið fimm stigum frá Meistaradeildarsætinu með sigri en Stoke náði því að leik níunda deildarleikinn í röð án þess að tapa.

Flensburg lék sér að meisturum Kiel

Flensburg-Handewitt vann frábæran sex marka sigur á THW Kiel, 35-29, í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld en lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í Kiel hefðu verið á toppnum í HM-fríinu ef Kiel-liðið hefði unnið þennan leik.

Ellefu marka sigur hjá Refunum hans Dags

Dagur Sigurðsson og lærisveinar hans í Füchse Berlin áttu ekki í miklum vandræðum með að landa tveimur stigum í síðasta leik sínum fyrir HM-fríið. Füchse Berlin vann þá 11 marka heimasigur á TV 1893 Neuhausen, 36-25.

Sir Alex Ferguson: Þetta var sönn meistaraframmistaða

Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, var kátur eftir sigurinn á Newcastle í ensku úrvalsdeildinni í dag. Unted lenti þrisvar sinnum undir í leiknum en tókst að tryggja sér þrjú stig í lokin.

Emil lagði upp jöfnunarmark Hellas Verona

Emil Hallfreðsson var maðurinn á bak við jöfnunarmark Hellas Verona í ítölsku b-deildinni í dag. Verona gerði þá 1-1 jafntefli við Empoli á útivelli.

Bale með þrennu - Gylfi lagði upp það síðasta

Gareth Bale var á skotskónum þegar Tottenham vann 4-0 útisigur á Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Tottenham er í 4. sæti deildarinnar með betri markatölu en Everton og West Bromwich Albion.

Aron Einar tryggði Cardiff sigur og fimm stiga forskot

Aron Einar Gunnarsson kom inn á sem varamaður og skoraði sigurmark Cardiff City á móti Crystal Palace í toppslag ensku b-deildarinnar í dag. Cardiff City er í framhaldinu komið með fimm stiga forskot á toppnum.

Slæmt tap hjá Wetzlar

Kári Kristján Kristjánsson, Fannar Friðgeirsson og félagar í Wetzlar töpuðu nokkuð óvænt, 32-29, fyrir Balingen í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í dag.

Cercle Brugge enn á botninum

Cercle Brugge tapaði, 3-0, fyrir Lokeren í belgísku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag en þeir Arnar Þór Viðarsson og Eiður Smári Guðjohnsen leika fyrir botnlið Cercle Brugge.

Berbatov með skemmtilegt fagn í jafntefli Fulham

Fjórum leikjum er ný lokið í ensku úrvalsdeildinni en þar ber helst að nefna fínan sigur WBA á QPR en lærisveinar Harry Redknapp hafa verið heitir að undanförnu en réðu ekki við WBA í dag.

Alexander tekur þátt í sýningarleik í New York

Alexander Petersson verður ekki með íslenska landsliðinu á HM á Spáni vegna meiðsla eins og áður hefur komið fram en hann ætlar hinsvegar að taka þátt í sýningarleik í New York 30. desember næstkomandi. Þetta kemur fram á heimasíðu New York City Team handball.

Hombrados vill komast í formannssætið

Jose Javier Hombrados er einn frægasti handboltamaður Spánverja í gegnum tíðina enda hefur hann varið mark spænska handboltalandsliðsins undanfarna áratugi. Hombrados lagði landsliðsskóna á hilluna eftir Ólympíuleikana í London en vill nú komast í formannsstólinn hjá spænska sambandinu.

Michael Owen nýtur þess ekki að spila á móti Liverpool

Michael Owen hefur aldrei náð því að skora á móti Liverpool en hann getur breytt því í kvöld þegar Liverpool og Stoke City mætast í kvöldleiknum í ensku úrvalsdeildinni. Owen viðurkennir að hann eigi ekki góðar minningar frá því að mæta sínu uppeldisfélagi.

LeBron James orðinn of gamall fyrir troðslukeppnina

LeBron James býður vanalega upp á trölla-troðslur í hverjum leik með Miami Heat í NBA-deildinni í körfubolta og það er því ekkert skrýtið að hann sé alltaf í umræðunni þegar kemur að því að finna menn í troðslukeppnina á Stjörnuhelginni.

Sir Alex líkir komu Van Persie við komu Cantona

Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, er ánægður með frammistöðu hollenska framherjans Robin van Persie og það er að heyra á skoska stjóranum að Van Persie sé að hans mati síðasta púslið í meistaraliðið.

Friedel verður 43 ára þegar nýi samningurinn rennur út

Brad Friedel verður áfram í herbúðum Tottenham en bandaríski markvörðurinn fékk nýjan samning í jólagjöf frá félaginu. Friedel er orðinn 41 árs en framlengdi samning sinn til ársins 2014. Hann verður þá orðinn 43 ára gamall.

Downing ekki lengur á sölulista hjá Liverpool

Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, er ánægður með frammistöðu Stewart Downing að undanförnu og segir það ekki koma lengur til greina að selja enska landsliðsmanninn frá félaginu.

NBA: Los Angeles liðin á siglingu - Miami vann OKC

Fimm leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta á jóladag og þar hélt sigurganga beggja Los Angeles liðanna áfram. Los Angeles Clippers vann sinn fjórtánda leik í röð en Los Angeles Lakers vann sinn fimmta leik í röð og náði með því aftur fimmtíu prósent sigurhlutfalli. Miami Heat vann Oklahoma City Thunder í uppgjöri liðanna sem mættust í lokaúrslitunum á síðustu leiktíð. Boston Celtics og Houston Rockets unnu einnig sína leiki á jóladag.

Saga stangveiða: Netaveiðin áhyggjuefni fyrir 47 árum

Lax, sem er á leið í Laxá í Hreppum, á langa leið fyrir höndum, og verður að fara fram hjá mörgum torfærum. Ég er þeirrar skoðunar, að netaveiðin á Ölfusársvæðinu, í jökulvatninu, hafi verið og sé að eðlisbreyta stofninum.

Williams sleppur við refsingu | Sparkaði í Van Persie

Ashley Williams, varnarmaður Swansea í ensku úrvalsdeildinni, fær enga refsingu fyrir að sparka knettinum í höfuð Robin van Persie, leikmanns Manchester United, í viðureign liðanna á Þorláksmessu.

Michu fær tækifæri með spænska landsliðinu

Michu, markahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar, verður í næsta landsliðshópi Spánverja. Þetta staðfesti Vicente del Bosque, þjálfari heims- og Evrópumeistaranna, í viðtali við spænska ríkissjónvarpið.

Mourinho ræddi ekkert við Casillas

Það vakti athygli um helgina þegar José Mourinho þjálfari Spánarmeistaraliðs Real Madrid valdi ekki markvörðinn Iker Casillas í byrjunarliðið gegn Malaga. Antonio Adan var valinn í stað hins 31 árs gamla Casilla sem jafnframt er fyrirliði Real Madrid. Casillas segir að Mourinho hafi ekkert rætt við sig um liðsvalið.

Lionel Messi er falur fyrir 42 milljarða kr.

Besti knattspyrnumaður veraldar verður 31 árs gamall þegar samningur hans við Barcelona rennur út árið 2018. Verðmiðinn á Argentínumanninum er klár ef eitthvað félag hefur áhuga. Hann er samt sem áður ekki tekjuhæsti knattspyrnumaður heims.

Neymar í peningavandræðum þrátt fyrir háar tekjur

Brasilíski knattspyrnumaðurinn Neymar er gríðarlega eftirsóttur enda er hinn tvítugi framherji eitt mesta efni sem komið hefur fram á síðari árum í Brasilíu. Neymar leikur með Santos í heimalandi sínu og lifir þægilegu lífi en samkvæmt grein sem birt var á vef Forbes virðist Neymar ekki hafa góða yfirsýn yfir útgjöld og tekjur.

Fáir þoldu Zlatan þegar hann hóf ferilinn hjá Ajax

Leo Beenhakker, sem var íþróttastjóri hjá Ajax þegar Zlatan Ibrahimovic gekk til liðs við hollenska knattspyrnuliðið á sínum tíma, segir að sænski landsliðsframherjinn hafi átt erfitt uppdráttar hjá félaginu þegar hann hóf atvinnumannaferilinn. "Hann hagaði sér eins og drullusokkur og eftir þrjár vikur voru aðeins tveir sem höfðu trú á honum, ég og hann sjálfur,“ segir hinn sjötugi Beenhakker í viðtali við The Blizzard.

Saga stangveiða: Að kasta 139,70 metra

"Ég gerði endurbætur á hjólinu. Penn bakelite-hjóli, og gekk mér anzi vel, eftir að ég gat stillt viðnámið. Ég átti það í mörg ár. Það var því í upphafi tilviljun, að ég fór að reyna við löng köst.“

Ellefu ára undrabarn í körfubolta

Hinn 11 ára gamli Julian Newman er enginn venjulegur körfuboltadrengur. Hann er algert undrabarn í íþróttinni sem rúllar upp 17 og 18 ára gömlum strákum.

Ambrosini vill frekar fá Drogba en Balotelli

Bæði Didier Drogba og Mario Balotelli eru orðaðir við ítalska liðið AC Milan í janúar en liðið er að leita að liðsstyrk. Fyrirliði Milan, Massimo Ambrosini, er þó ekki í vafa um hvorn leikmanninn hann vill fá.

Wilshere nuðar í Walcott um að skrifa undir

Jack Wilshere er vongóður um að félagi sinn hjá Arsenal, Theo Walcott, skrifi undir nýjan samning við félagið og haldi tryggð við félagið sem er að byggja upp nýtt lið.

Nýr Kani til Keflavíkur

Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hefur samið við Bandaríkjamanninn Billy Baptist. Frá þessu er greint á heimasíðu Keflavíkurliðsins.

Downing vill ekki fara frá Liverpool

Hlutirnir hafa breyst svolítið hjá Stewart Downing. Fyrir nokkru síðan leit út fyrir að hann færi frá Liverpool i janúar en fátt bendir til þess núna.

Sjá næstu 50 fréttir