Fleiri fréttir

Maldonado frá Venúsúela ráðinn sem ökumaður Williams

Pastor Maldonado frá Venúsúela var í dag staðfestur sem ökumaður Williams Cosworth á næsta ári við hliðina á Rubens Barrichello frá Brasilíu. Maldonado sem er 25 ára varð meistari í GP2 mótaröðinni á þessu ári og prófaði Williams bíl á æfingu í Abu Dhabi á dögunum, eftir lokamótið í Formúlu 1.

Sevilla á eftir Park

Hinn 29 ára gamli Suður-Kóreubúi, Park Ji-Sung, er undir smásjá spænska liðsins Sevilla sem vill kaupa hann frá Man. Utd i janúar. Forráðamenn Sevilla hafa þegar sett sig í samband við umboðsmann leikmannsins.

Inter vill líka fá Guardiola

Orðrómurinn um að Pep Guardiola, þjálfari Barcelona, muni hætta með liðið næsta sumar verður sífellt háværari þó svo hann sé samningsbundinn Barcelona til ársins 2012.

Matteo Manassero nýliði ársins á Evrópumótaröðinni

Ítalski táningurinn Matteo Manassero er var í gær valinn nýliði ársins á Evrópumótaröðinni í golfi. Manassero er yngsti sigurvegarinn á Evrópumótaröðinni frá upphafi en hann var aðeins 17 ára og 188 daga gamall þegar hann sigraði á Castello meistaramótinu á Spáni í október.

Butt skoraði og klúðraði víti í Kína - myndband

Nicky Butt, fyrrum leikmaður Man. Utd og Newcastle, tók áhugavert skref á ferlinum um daginn er hann samdi við lið í Kína sem heitir hinu skemmtilega nafni Suður-Kína. Liðið spilar heimaleiki sína í Hong Kong.

Arrhenius gengur í raðir Kiel

Alfreð Gíslason, þjálfari Kiel, er búinn að finna lausn á línumannavandræðum sínum en Svíinn sterki, Marcus Ahlm, varð fyrir því óhappi að handleggsbrotna um daginn.

Drogba setur Meistaradeildina í forgang

Þrátt fyrir frábært gengi í ensku úrvalsdeildinni síðustu ár hefur Chelsea ekki enn tekist að lyfta Meistaradeildardollunni en það er æðsti draumur eiganda félagsins, Roman Abramovich.

Helmingslíkur á að Donovan fari til Everton

Þó svo Everton muni ekki fá David Beckham er ekki loku fyrir það skotið að félagi Beckham hjá LA Galaxy, Landon Donovan, muni fara til félagsins líkt og hann gerði á síðustu leiktíð.

NBA: Þriðja tap Lakers í röð

Hlutirnir eru ekki alveg að ganga upp hjá LA Lakers þessa dagana en liðið tapaði í nótt þriðja leik sínum í röð. Að þessu sinni gegn Memphis.

Torres verður ekki með Liverpool á móti Steaua Búkarest

Fernando Torres verður hvíldur þegar Liverpool mætir Steaua Búkarest í Evrópudeildinni á fimmtudaginn. Roy Hodgson, stjóri Liverpool, sagði að spænski framherjinn myndi ekki ferðast með liðinu því hann ætlaði að spara hann fyrir leikinn á móti Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni um næstu helgi.

Haukarnir hefndu með stórsigri í Krikanum - myndir

Íslands- og bikarmeistarar Hauka sýndu styrk sinn í níu marka stórsigri á FH, 25-16, í Kaplakrika í Hafnarfjarðarslagnum í N1 deild karla í kvöld. Haukar hefndu þar með fyrir níu marka tap fyrir FH á Ásvöllum í október síðastliðunum með því að vinna FH-ingar með sama mun á þeirra heimavelli.

West Ham sló Manchester United út úr enska deildbikarnum

Botnlið West Ham í ensku úrvalsdeildinni tryggði sér sæti í undanúrslitum enska deildarbikarsins eftir 4-0 stórsigur á toppliði Manchester United á Upton Park í kvöld. Jonathan Spector skoraði tvö fyrstu mörkin á móti sínum gömlu félögum og Carlton Cole innsiglaði sigurinn með tveimur mörkum í seinni hálfleik. Arsenal komst líka í undanúrslitin eftir 2-0 sigur á Wigan á heimavelli.

Haukar unnu níu marka stórsigur á FH í Krikanum

Haukar jöfnuðu FH að stigum með því að vinna sigur í Hafnarfjarðarslagnum í Kaplakrika í kvöld, lokastaðan 16-25. Þeir lögðu grunninn að sigrinum með því að skora sjö mörk í röð í kringum hálfleikinn.

Beckham: Ég styð Man. Utd og spila því ekki með Everton

Everton er á höttunum á eftir nýjum leikmönnum í janúar og á meðal þeirra leikmanna sem hafa verið orðaðir við félagið er David Beckham. David Moyes, stjóri félagsins, sagðist vera mjög spenntur fyrir því að fá Beckham.

Hrafnhildur: Búin að bíða eftir þessu í ansi mörg ár

Hrafnhildur Skúladóttir og félagar hennar í íslenska kvennalandsliðinu eru nú á lokasprettinum í undirbúningi sínum fyrir Evrópumótið sem hefst eftir viku. Júlíus Jónasson, landsliðsþjálfari tilkynnti lokahóp sinn á blaðamannafundi í dag.

Heimir Guðjóns fer hamförum á grillinu

Þegar þessi orð eru skrifuð er hálftími í slag erkifjendanna FH og Hauka í N1-deildinni í handbolta. FH-ingar voru í gær verðlaunaðir fyrir góða umgjörð á leikjum sínum en í leiknum í kvöld er öllu til tjaldað.

Mourinho fékk eins leiks bann og sex milljónir í sekt

Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, var í kvöld dæmdur í eins leiks bann hjá UEFA fyrir að skipa leikmönnum sínum að fá viljandi rautt spjald í 4-0 sigri Real Madrid á Ajax í Meistaradeildinni á dögunum. Þeir Xabi Alonso og Sergio Ramos fengu báðir sitt annað gula spjald í leiknum fyrir að tefja leikinn og það var augljóst að eitthvað skrítið var í gangi.

Del Piero fær nýjan samning hjá Juventus

Það vakti mikla athygli um daginn þegar Silvio Berlusconi, forseti AC Milan, lýsti því yfir að hann ætlaði sér að fá gamla brýnið, Alessandro Del Piero, til liðsins í janúar.

Everton á eftir Wright-Phillips

Það er fastlega búist við því að Shaun Wright-Phillips muni yfirgefa herbúðir Man. City í janúar og eitt af þeim liðum sem hefur áhuga á leikmanninnum er Everton.

Kovalainen og kærasta þurfa að hvílast eftir óhapp

Finninn Heikki Kovalainen og kærasta hans Catherine Hyde lentu í óhappi í kappakstursmóti meistaranna í Dusseldorf á sunnudaginn, þegar afturfjöðrun brotnaði á keppnisbíl sem hann ók og hún var farþegi í endaði á varnargirðingu. Kovalainen fékk þungt höfuðhögg og Hyde meiddist á mjöðm í atvikinu.

Rannsaka spillingu hjá FIFA

Alþjóða Ólympíunefndin, IOC, hefur ákveðið að rannsaka mál varaforseta FIFA, Issa Hayatou, ofan í kjölinn þar sem hann er ekki bara varaforseti FIFA heldur einnig meðlimur í IOC.

EM-hópur Júlíusar tilbúinn

Júlíus Jónasson, landsliðsþálfari kvenna í handknattleik valdi í dag leikmannahóp sinn sem fer á EM í Danmörku í næsta mánuði.

Inter vill fá Cassano

Inter bíður á hliðarlínunni eftir því að Antonio Cassano losni frá Sampdoria. Ítölsku meistararnir eru tilbúnir að veðja á hinn óstýriláta framherja.

Alves vill framlengja við Barcelona

Það er ekki langt síðan brasilíski bakvörðurinn Dani Alves var sagður á förum frá Barcelona þar sem ekkert gekk að ganga frá nýjum samningi. Einn leikur getur aftur á móti breytt miklu.

Carragher frá í þrjá mánuði

Jamie Carragher, varnarmaður Liverpool, er kominn í langt jólafrí. Hann varð fyrir alvarlegum meiðslum í leiknum gegn Spurs á sunnudag er hann fór úr axlarlið.

Birgir Leifur komst áfram og keppir um 30 laus sæti á Evrópumótaröðinni

Birgir Leifur Hafþórsson komst í gegnum 2. stig úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina í golfi og mun hann taka þátt á lokaúrtökumótinu sem hefst þann 4. desember þar sem 160 kylfingar keppa um 30 laus sæti á næst stærstu atvinnumótaröð heims. Birgir endaði í 2.-3. sæti á mótinu á Arcos Garden.

„Barcelona er ljósárum á undan Real Madrid“

Fjölmiðlar í Evrópu og víðar hrósa Barcelona liðinu mikið í dag í umfjöllun sinni um stórleik gærkvöldsins í spænsku knattspyrnunni þar sem Börsungar gjörsigruðu Real Madrid, 5-0, í hinum eina sanna El Clásico.

Þurfum að hjálpa Tevez meira

Joe Hart, markvörður Man. City, hefur beðið félaga sína vinsamlegast um að bæta sinn leik svo Carlos Tevez þurfi ekki að bera liðið á herðum sér mikið lengur.

Drogba: Feginn að nóvember er liðinn

Didier Drogba, framherji Chelsea, segir að liðið geti ekki falið sig á bak við meiðsli til þess að útskýra lélegt gengi síðustu vikur.

Guardiola: Munum njóta sigursins í nokkra daga

Pep Guardiola, þjálfari Barcelona, var að vonum himinlifandi með órúlegan sigur sinna manna á Real Madrid í gær sem skaut Barcelona á topp spænsku úrvalsdeildarinnar.

Mourinho: Við vorum ekki niðurlægðir

José Mourinho, þjálfari Real Madrid, mátti þola sitt versta tap á ferlinum í gær er hann mætti með lið sitt á Nou Camp. Barcelona hreinlega kjöldró Madridarliðið og vann 5-0.

NBA: Miami aftur á sigurbraut

LeBron James og félagar í Miami Heat komust aftur á sigurbraut í nótt er þeir tóku á móti Washington Wizards. LeBron skoraði 30 stig, Dwyane Wade 26 og Chris Bosh var með 20.

Niðurlæging á Nou Camp

José Mourinho mátti þola sitt fyrsta tap með Real Madrid í kvöld og tapinu í kvöld mun hann aldrei gleyma. Barcelona niðurlægði þá Madridarliðið frá fyrstu mínútu og vann verðskuldaðan stórsigur, 5-0.

Huggulegur heimsmeistari í freestyle fótbolta - myndband

Charlotte Lade er norsk fótboltakona sem getur nánast gert allt með fótboltann nema kannski að láta hann tala. Hún er núverandi heimsmeistari kvenna í freestyle fótbolta og hefur verið hjá Tottenham síðasta hálfa árið.

Helena valin í úrvalsliðið á Paradísar-mótinu

Helenu Sverrisdóttur og félögum í TCU háskólaliðinu gekk illa á Paradísar-mótinu á Jómfrúaeyjum sem lauk um helgina þar sem liðið tapaði öllum þremur leikjum sínum á móti sterkum andstæðingum.

Barcelona sundurspilaði Real Madrid - myndir

Börsungar fóru illa með erkifjendur sína í Real Madrid í El Clasico leiknum í Katalóníu í kvöld en Barcelona sundurspilaði lærsveina Jose Mourinho og vann leikinn 5-0. Þetta var stærsti sigurinn í El Clasico í síðan Real Madrid vann 5-0 sigur á Barcelona í janúar 1995.

Kolbeinn réttur maður á réttum stað - myndband

Kolbeinn Sigþórsson tryggði AZ Alkmaar 2-2 jafntefli á móti Heerenveen í hollensku úrvalsdeildinni í fótbolta um helgina en jöfnunarmark hans kom á 90. mínútu leiksins. Kolbeinn hafði komið inn á sem varamaður á 69. mínútu.

Sjá næstu 50 fréttir