Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Mourinho verðleggur Cech á 50 milljónir punda Jose Mourinho, stjóri Chelsea, sagði eftir sigur sinna manna á Wigan í dag að markvörðurinn Peter Cech væri búinn að fá grænt ljós á að hefja æfingar að fullum krafti. Mourinho sagði Cech vera besta markvörð í heimi og smellti í leiðinni 50 milljón punda verðmiða á Tékkann stóra og stæðilega. 13.1.2007 21:00
Fyrsta tap Juve á tímabilinu Juventus tapaði sínum fyrsta leik í ítölsku B-deildinni í fótbolta í dag gegn Mantova á útivelli, 1-0. Sjálfsmark frá Robert Kovac réði úrslitunum í leiknum en við tapið fellur Juventus niður í 6. sæti deildarinnar, þremur stigum á eftir toppliði Napoli og einu stigi á eftir Mantova. 13.1.2007 20:03
Stjarnan upp að hlið Valsstúlkna Stjörnustúlkur komust í dag upp að hlið Valsstúlkna á toppi DHL-deildar kvenna í handbolta með því að leggja Hauka af velli á heimavelli sínum, 21-15. Um sannkallaðan toppslag var að ræða því fyrir leikinn voru liðin með jafnmörg stig. Valur, Stjarnan og Grótta hafa öll fengið 18 stig en Grótta hefur spilað tveimur leikjum meira en tvö fyrstnefndu liðin. 13.1.2007 19:32
Mögnuð tilþrif í stjörnuleikjunum í dag Fullt var út úr dyrum í DHL-Höllinni í Frostaskjóli í dag þar sem fram fóru hinir árlegu stjörnuleikir úrvalsdeildar karla og kvenna í körfubolta. Hjá körlunum höfðu erlendir leikmenn betur gegn þeim íslensku en hjá konunum laut Esso-liðið í lægra haldi fyrir Shell-liðinu. 13.1.2007 19:24
Walter Smith ver ákvörðun sína Walter Smith, frávarandi þjálfari skoska landsliðsins og nýráðinn þjálfari Glasgow Rangers í Skotlandi, hefur varið ákvörðun sína um að yfirgefa herbúðir landsliðsins til að snúa aftur á Ibrox. Smith segir að nánast allir knattspyrnustjórar í heiminum hefðu tekið sömu ákvörðun og hann. 13.1.2007 19:15
10 leikmenn Arsenal lögðu Blackburn Leikmenn Arsenal sýndu mikinn karakter með því að leggja Blackburn af velli á útivelli í kvöldleik ensku úrvalsdeildarinnar, 2-0. Gilberto Silva var vikið af leikvelli strax á 12. mínútu leiksins en þrátt fyrir að vera manni fleiri átti Blackburn ekki roð í fríska leikmenn Arsenal. Kolo Toure og Thierry Henry skoruðu mörk Arsenal. 13.1.2007 19:06
Íslendingar töpuðu fyrir Tékkum Íslenska landsliðið í handbolta beið lægri hlut, 29-27, í æfingaleik gegn Tékklandi í Laugardalshöllinni í dag. Íslenska liðið lék langt undir getu í leiknum en megin munurinn á liðunum lá í markvörslunni. Liðin mætast öðru sinni á morgun. 13.1.2007 17:42
Beckham getur haft gríðarleg áhrif Koma David Beckham til LA Galaxy getur komið liðinu í hóp fremstu félagsliða veraldar, að því er Alexei Lalas, fyrrum landsliðsfyrirliði Bandaríkjanna og núverandi framkvæmdastjóri LA Galaxy, heldur fram. 13.1.2007 17:30
Ísland einu marki yfir í hálfleik Íslenska landsliðið í handbolta hefur forystu, 16-15, í æfingaleik liðsins við Tékkland sem fram fer í Laugardalshöllinni. Íslenska liðið hefur verið nokkuð frá sínu besta í leiknum en jafnt hefur verið á nánast öllum tölum. 13.1.2007 17:03
Man. Utd. gefur ekkert eftir Manchester United og Chelsea unnu bæði góða sigra í leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni í dag. Man. Utd. átti ekki í erfiðleikum með Aston Villa á heimavelli sínum og vann 3-1 og þá spilaði Chelsea sinn besta leik í langan tíma þegar það lagði Wigan af velli, 4-0. Íslendingaliðið West Ham missti unnin leik niður í jafntefli á síðustu stundu. 13.1.2007 16:55
Mourinho: Ekki lesa blöðin Jose Mourinho hefur hvatt stuðningsmenn Chelsea til að leiða hjá sér allar vangaveltur um framtíð sína hjá félaginu, en portúgalski stjórinn hefur ítrekað verið orðaður við brotthvarf úr stjórastólnum í vor. Mourinho vill enn ekki tjá sig efnislega um meint ósætti hans og stjórnar félagsins og segja spænsk dagblöð í morgun að umboðsmaður hans sé í viðræðum við Real Madrid. 13.1.2007 16:00
Man. Utd. að valta yfir Aston Villa Topplið Manchester United er að sýna allar sínar bestu hliðar í leik sínum við Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni. Þegar flautað hefur verið til hálfleiks er staðan 3-0, en Ji-Sung Park, Michael Carrick og Cristiano Ronaldo hafa skorað mörkin. Chelsea er einnig yfir gegn Wigan, 1-0, en það var Frank Lampard sem skoraði mark meistaranna. 13.1.2007 15:46
Heiðar byrjar hjá Fulham Heiðar Helguson er í fremstu víglínu hjá Fulham þegar liðið sækir Eggert Magnússon og félaga hjá West Ham heim í ensku úrvalsdeildinni í dag. Nýju mennirnir hjá West Ham. Luis Boa Morte og Nigel Quashie, eru báðir í byrjunarliðinu ásamt Carlos Tevez. 13.1.2007 15:02
Öruggt hjá Liverpool Liverpool vann sannfærandi 3-0 útisigur á Watford í ensku úrvalsdeildinni í dag þar sem framherjarnir Dirk Kuyr og Peter Crouch sáu um að skora mörkin. Sá síðarnefndi skoraði tvívegis. Með sigrinum styrkir Liverpool stöðu sína í þriðja sæti deildarinnar, fjórum stigum á undan Arsenal en fimm stigum á eftir Chelsea. 13.1.2007 14:48
16 ára gutti komst í gegnum niðurskurð Tadd Fujikawa, 16 ára strákur frá Hawaai, varð í gær næst yngsti kylfingurinn frá upphafi til að komast í gegnum niðurskurð á PGA-mótaröðinni í golfi. Fujikawa lék þá á þremur höggum undir lágmarkinu á Sony-meistaramótinu í Honolulu og skyggði algjörlega á Michelle Wie, stöllu sína frá Hawaii, sem var langt frá því að komast í gegnum niðurskurðinn. 13.1.2007 14:45
Beckham spilar ekki meira fyrir Real David Beckham hefur spilað sinn síðasta leik fyrir Real Madrid, að því er Fabio Capello, knattspyrnustjóri liðsins, staðfesti nú í morgun. Beckham á hálft ár eftir af samningi sínum við Real og fær að æfa með liðinu - en ekki spila. 13.1.2007 14:14
Liverpool með forystu í hálfleik Liverpool hefur 2-0 forystu gegn Watford á útivelli í hádegisleik enska boltans nú þegar flautað hefur verið til hálfleiks. Peter Crouch og Dirk Kuyt hafa skorað mörk Liverpoool, en knattspyrnustjórinn Rafa Benitez stillir upp einkar sókndjörfu liði í leiknum. 13.1.2007 13:56
Doyle er ekki á förum frá Reading Kevin Doyle, framherji Reading og einn helsti spútnikleikmaður enska boltans í ár, kveðst ekki reiðubúinn að yfirgefa herbúðir nýliðinna í ensku úrvalsdeildinni þrátt fyrir að stærri lið hafi sýnt honum áhuga á síðustu vikum. Doyle hefur slegið í gegn á leiktíðinni og skorað 10 mörk. 13.1.2007 13:45
Allen og Nowitzki stálu senunni Dirk Nowitzki hjá Dallas og Ray Allen hjá Seattle voru menn næturinnar í NBA-boltanum. Nowitzki skoraði 43 stig, það mesta sem hann hefur skorað á leiktíðinni, þegar Dallas lagði Indiana af velli en Allen gerði enn betur og setti niður 54 stig í sigri Seattle á Utah. Allen hefur aldrei skorað meira á sínum ferli. 13.1.2007 12:39
Inter getur sett met með sigri á morgun Ítalíumeistarar Inter Milan geta sett nýtt met í ítölsku A-deildinni á morgun þegar keppni eftir hefst á ný þar í landi eftir vetrarfrí, en liðið vann sinn ellefta leik í röð í deildinni þegar það skellti Atalanta á síðasta keppnisdegi fyrir jólafrí. Liðið mætir Torino á morgun. 12.1.2007 22:15
Vörn og markvarsla mikilvægir þættir Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari segir að í ljósi þeirra miklu meiðsla sem hrjá lykilmenn íslenska landsliðsins í handknattleik, muni þættir eins og vörn og markvarsla að vera í topplagi á HM í Þýskalandi ef liðið á að ná langt. 12.1.2007 21:15
McClaren sendi Beckham til Ameríku Arsene Wenger hefur ákveðnar skoðanir á fyrirhuguðum vistaskiptum knattspyrnustjörnunnar David Beckham, en hann telur að ef leikmaðurinn hefði ekki misst sæti sitt í enska landsliðinu, hefði hann klárlega samið við lið í Evrópu. 12.1.2007 20:55
Ferguson vill að Mourinho verði áfram Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segist vonast til að keppinautur hans Jose Mourinho verði áfram við stjórnvölinn hjá Chelsea í ljósi þeirra frétta sem gengið hafa á Englandi í dag. Því er haldið fram að Mourinho hætti hjá Chelsea í vor. 12.1.2007 20:40
Blatter vill ekki lýsa yfir fullum stuðningi við Platini Sepp Blatter, forseti Alþjóða Knattspyrnusambandsins, segir knattspyrnugoðið Michel Platini eiga erfitt verkefni fyrir höndum í lok mánaðarins þegar forsetakosningar fara fram hjá Knattspyrnusambandi Evrópu. Platini býður sig þar fram gegn sitjandi forseta, Svíanum Lennart Johansson, en sá hefur verið í valdastól síðan árið 1990. 12.1.2007 20:15
Phoenix - Cleveland á Sýn í kvöld Stórleikur Phoenix Suns og Clevleland Cavaliers frá því í gærkvöld verður sýndur á sjónvarpsstöðinni Sýn á miðnætti í kvöld. Óhætt er að lofa áhorfendum Sýnar góðum tilþrifum að þessu sinni, en þarna áttust við tveir af bestu leikmönnum deildarinnar Steve Nash og LeBron James. 12.1.2007 19:18
Róbert Magnússon aðstoðar Guðjón Þórðarson Róbert Magnússon hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari Guðjóns Þórðarsonar hjá knattspyrnuliði ÍA á Akranesi. Róbert hefur áður starfað með Guðjóni og var m.a. sjúkraþjálfari í teymi Guðjóns þegar hann stýrði Barnsley á Englandi á sínum tíma. 12.1.2007 17:36
Garcia er miður sín Spánverjinn Luis Garcia hjá Liverpool segist vera gjörsamlega miður sín vegna meiðslanna alvarlegu sem hann varð fyrir á hné í leik Liverpool og Arsenal í deildarbikarnum á dögunum. Hann segist sérstaklega fúll yfir að missa af leikjunum við Barcelona í Meistaradeildinni. 12.1.2007 17:27
Emre ákærður fyrir kynþáttaníð Tyrkneski miðjumaðurinn Emre hjá Newcastle hefur verið ákærður fyrir kynþáttafordóma af aganefnd enska knattspyrnusambandsins eftir að leikmenn Everton kvörtuðu undan framkomu hans í leik Newcastle og Everton þann 30. desember sl. Leikmaðurinn hefur frest til 29. janúar að svara fyrir sig. 12.1.2007 17:22
Toyota frumsýnir nýja bílinn Lið Toyota frumsýndi í dag nýja keppnisbíl liðsins í Formúlu 1 sem fær heitið TF 107. Forráðamenn liðsins notuðu tækifærið og báðust afsökunar á því að liðið næði ekki í sinn fyrsta sigur á síðasta tímabili og lofuðu að úr því yrði bætt á komandi tímabili. Toyota er eina liðið sem verður með sömu ökumenn og í fyrra á næsta ári, þá Ralf Schumacher og Jarno Trulli, og þá er liðið með sömu hjólbarða og sömu vél. 12.1.2007 16:51
Beckham hefði farið til AC Milan Adriano Galliani, yfirmaður AC Milan á Ítalíu, segir að félagið hefði klárlega gert David Beckham tilboð ef hann hefði ekki ákveðið að fara til Bandaríkjanna næsta sumar. Þá sagði Galliani að félagið ætlaði ekki að bjóða í framherjann Ronaldo hjá Real Madrid eins og slúðrað hefur verið um í marga mánuði. 12.1.2007 16:43
Wenger hefur neitað tilboðum í Ljungberg Arsene Wenger segir að fleiri en eitt lið hafi gert tilboð í sænska miðjumanninn Freddie Ljungberg, en tekur það fram að leikmaðurinn sé alls ekki til sölu. Hann segist einnig hafa fengið tilboð í framherjann Jeremie Aliadiere, en sá er heldur ekki til sölu nema hann krefjist þess að fá að fara frá félaginu. 12.1.2007 16:36
Ákvörðun Beckham kom Ferguson ekki á óvart Sir Alex Ferguson segist hafa séð það fyrir að fyrrum leikmaður hans David Beckham færi til Bandaríkjanna eftir að hann féll úr náðinni hjá Real Madrid. Félagar hans á Spáni segjast muni sakna hans þegar hann heldur vestur um haf. 12.1.2007 16:25
Vel heppnaður samningafundur í dag Framkvæmdastjóri KSÍ átti í hádeginu fund með samninganefnd félags deildardómara og þar náðist samkomulag um nýjan þriggja ára samning við dómara fyrir árin 2007-2009. Samningurinn er þó gerður með fyrirvara um að hann verði samþykktur á fundi félags deildadómara. Þetta kemur fram á vef KSÍ í dag. 12.1.2007 16:20
Lyon bauð í Shevchenko Franska stórliðið Lyon er sagt hafa gert Chelsea kauptilboð í úkraínska framherjann Andriy Shevchenko í dag, en tilboðinu var neitað undir eins. Lyon er nú að leita sér að framherja og hefur liðið verið orðað við menn eins og Milan Baros hjá Aston Villa og David Trezeguet hjá Juventus á Ítalíu. 12.1.2007 14:30
Fær 500 sinnum hærri laun en samherjarnir David Beckham segir peninga ekki helstu ástæðu þess að hann ákvað að ganga í raðir bandaríska liðsins LA Galaxy í sumar, en þar mun hinn 31 árs gamli leikmaður verða á 500 sinnum hærri launum en félagar hans í liðinu. 12.1.2007 14:15
Davids í viðræðum við Kana Hollenski miðjumaðurinn Edgar Davids hjá Tottenham fetar mögulega í fótspor David Beckham á næstunni, því knattspyrnustjóri FC Dallas í MLS deildinni hefur nú gefið það upp að félagið sé í viðræðum við Tottenham um að fá Davids til sín. Leikmaðurinn hefur ekki átt fast sæti í liði Tottenham í vetur. 12.1.2007 13:30
Jafet gefur kost á sér til formanns Jafet S. Ólafsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Verðbréfastofunnar og Íslenska útvarpsfélagsins, hefur ákveðið að gefa kost á sér í kosningu til formanns KSÍ á ársþingi sambandsins sem haldið verður þann 10. febrúar næstkomandi. 12.1.2007 12:35
Wenger neitar að gangast við ákæru Arsene Wenger hefur neitað að gangast við ákæru enska knattspyrnusambandsins vegna ósæmilegrar hegðunar sinnar á leik Arsenal og Portsmouth þann 16. desember sl. Wenger veittist þá að dómurum leiksins í hálfleik og hefur nú farið fram á lokaðan fund með aganefndinni sem haldinn verður fljótlega. 12.1.2007 12:30
Ronaldo er besti leikmaður í heimi í dag Miðjumaðurinn Paul Scholes hjá Manchester United segir að enginn leikmaður í heiminum sé búinn að spila betur en Cristiano Ronaldo félagi hans undanfarnar vikur. Ronaldo er búinn að skora 12 mörk í deildinni í vetur og United hefur sex stiga forskot á toppi úrvalsdeildarinnar. 12.1.2007 12:30
Bayern hefur áhuga á Robben Forráðamenn þýska félagsins Bayern Munchen hafa gefið það upp að þeir hafi mikinn áhuga á að fá til sín hollenska vængmanninn Arjen Robben hjá Chelsea. Þessar fréttir komu upp úr kafinu í kjölfar þess að Chelsea er sagt hafa blandað sér í hóp þeirra liða sem vilja fá Owen Hargreaves frá Bayern. 12.1.2007 12:27
Forráðamenn Chelsea hljóðir Forráðamenn enska úrvalsdeildarliðsins Chelsea hafa neitað að tjá sig í dag eftir að þær fréttir gengu fjöllum hærra í morgun að Jose Mourinho hefði tjáð vini sínum að hann ætlaði að hætta hjá liðinu í vor. Mourinho hefur ekki fengið að kaupa þá leikmenn sem hann óskaði í janúar og svo er því haldið fram að hann eigi í deilum við hátt setta menn innan félagsins. 12.1.2007 12:24
Kári samdi við AGF Eins og fram kom hér á Vísi á dögunum hefur landsliðsmaðurinn Kári Árnason nú gengið frá samningi við danska félagið AGF. Kári hefur verið á mála hjá sænska liðinu Djurgarden, en er nú samningsbundinn danska liðinu til ársins 2010. 12.1.2007 12:18
Kidd lætur skrautlegan skilnað ekki hafa áhrif á sig Leikstjórnandinn magnaði Jason Kidd hjá New Jersey Nets lætur erfiðan hjónaskilnað ekki hafa áhrif á leik sinn með liðinu og í nótt fór hann á kostum þegar Nets lagði Chicago Bulls á útivelli í NBA deildinni. Þá var stórleikur í Phoenix þar sem heimamenn tóku á móti Cleveland, en sá leikur verður sýndur á Sýn í kvöld. 12.1.2007 12:10
Beckham verður með 1,5 milljón á tímann hjá LA Galaxy Beckham hjónin David og Victoria ættu að hafa það sæmilegt í Los Angeles næstu fimm árin því að David á von á launahækkun. Samningur Beckhams við LA Galaxy hljóðar upp á fimm sinnum hærri laun en hann hefur haft hjá Real Madrid. Tímakaupið verður 1,5 milljón króna og búist er við að Beckham verði teljuhæsti íþróttamaður heims. 12.1.2007 12:01
Segir eiginkonuna hafa lamið sig í mörg ár Ein skærasta stjarna NBA-deildarinnar, Jason Kidd, leikmaður New Jersey Nets, hefur sótt um skilnað frá eiginkonu sinni til síðustu tíu ára. Málið hefur vakið mikla athygli vestra enda sakar Kidd eiginkonu sína um áralanga misnotkun, líkamlega sem andlega. Kidd sótti um skilnað degi eftir að hann fór fram á tímabundið nálgunarbann á eiginkonuna. 12.1.2007 00:01