Formúla 1

Toyota frumsýnir nýja bílinn

Hér má sjá nýja bílinn frá Toyota
Hér má sjá nýja bílinn frá Toyota NordicPhotos/GettyImages
Lið Toyota frumsýndi í dag nýja keppnisbíl liðsins í Formúlu 1 sem fær heitið TF 107. Forráðamenn liðsins notuðu tækifærið og báðust afsökunar á því að liðið næði ekki í sinn fyrsta sigur á síðasta tímabili og lofuðu að úr því yrði bætt á komandi tímabili. Toyota er eina liðið sem verður með sömu ökumenn og í fyrra á næsta ári, þá Ralf Schumacher og Jarno Trulli, og þá er liðið með sömu hjólbarða og sömu vél.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×