Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ameobi: Sáum hvað Blackburn gerði á móti United Shola Ameobi og félagar í Newcastle unnu frábæran 3-0 sigur á Englandsmeisturum Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í kvöld en þetta var aðeins annar sigur Newcastle í síðustu níu leikjum sínum og fyrsti sigur liðsins á United síðan í september 2001. 4.1.2012 22:19
Howard fjórði markvörðurinn til að skora í ensku úrvalsdeildinni Bandaríski markvörðurinn Tim Howard skoraði ótrúlegt mark fyrir Everton á móti Bolton í ensku úrvalsdeildinni í kvöld en markið skoraði hann með mögnuðu skoti yfir allan völlinn. Howard er aðeins fjórði markvörðurinn sem nær að skora í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. 4.1.2012 22:14
Newcastle vann 3-0 sigur á Man. United | Tvö töp í röð hjá meisturunum Newcastle vann 3-0 sigur á Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í kvöld og hefur þar með tekið fjögur stig út úr tveimur leikjum sínum á móti ensku meisturunum á tímabilinu. Þetta var fyrsti heimsigur Newcastle-liðsins síðan 5. nóvember og ennfremur fyrsta tap United á útivelli á tímabilinu. 4.1.2012 19:30
Tók út reiði sína á sæti með óvæntum afleiðingum Knattspyrnuáhugamenn eru margir hverjir mjög skapheitir og taka stundum út reiði sína á vellinum á því sem er hendi næst. 4.1.2012 21:15
Valskonur unnu í Hólminum | Úrslitin í kvennakörfunni í kvöld Keflavík og Njarðvík bættu stöðu sína í tveimur efstu sætunum Iceland Express deildar kvenna í kvöld og KR komst upp í 3. sætið eftir átta sigur á Hamar í Hveragerði. Valskonur ætla að byrja árið vel því þær fóru í Stykkishólm og unnu 15 stiga sigur á Snæfell. 4.1.2012 20:56
82 prósent stuðningsmanna Hoffenheim ósáttir við brotthvarf Gylfa Samkvæmt könnun sem þýska dagblaðið Rhein-Neckar Zeitung framkvæmdi á heimasíðu sinni voru 82 prósent stuðningsmanna Hoffenheim ósáttir við að Gylfi Þór Sigurðsson hafi verið lánaður til Swansea í ensku úrvalsdeildinni. 4.1.2012 20:30
Kári Steinn og Kristjana Sæunn valin íþróttafólk ársins í Kópavogi Kári Steinn Karlsson frjálsíþróttamaður úr Breiðabliki og Kristjana Sæunn Ólafsdóttir fimleikakona úr Gerplu voru kjörin íþróttakarl og íþróttakona Kópavogs fyrir árið 2011 en verðlaun voru afhent í kvöld. 4.1.2012 19:53
Ótrúlegt mark Tim Howard dugði ekki Everton | Cahill með sigurmarkið Grétar Rafn Steinsson og félagar í Bolton unnu gríðarlega mikilvægan útisigur í ensku úrvalsdeildinni í kvöld þegar þeir unnu Everton 2-1 á Goodison Park. Bolton var eitt á botninum fyrir leikinn en náði að fara upp um tvö sæti með þessum sigri. 4.1.2012 19:30
PSG tapaði fyrir AC Milan í fyrsta leiknum undir stjórn Ancelotti Franska liðið Paris Saint-Germain tapaði 0-1 fyrir ítalska liðinu AC Milan í æfingaleik í Dúbæ í dag en þetta var fyrsti leikur Paris Saint-Germain liðsins undir stjórn Ítalans Carlo Ancelotti. 4.1.2012 19:12
Áfrýjun QPR hafnað | Barton í þriggja leikja bann Joey Barton þarf að taka út þriggja leikja bann vegna rauða spjaldsins sem hann fékk í leik QPR og Norwich á mánudagskvöldið. 4.1.2012 19:00
Messi og Valdés veikir - missa af leiknum í kvöld Barcelona verður án tveggja lykilmanna í kvöld þegar liðið mætir Osasuna í sextán liða úrslitum spænska Konungsbikarsins fótbolta en þetta er fyrri leikur liðanna og fer leikur kvöldsins fram á heimavelli Barcelona. 4.1.2012 18:15
Guðmundur valdi 18 fyrir Danmerkurförina | Arnór og Fannar ekki með Guðmundur Þórður Guðmundsson landsliðsþjálfari hefur valið átján leikmenn sem fara til Danmerkur í fyrramálið en þar tekur liðið þátt á Total Kredit Cup og leikur þar við Pólland, Slóveníu og Danmörku. 4.1.2012 18:06
Ronaldo lagður inn á sjúkrahús með beinbrunasótt Brasilíska knattspyrnugoðsögnin Ronaldo þurfti að leggjast inn á sjúkrahús í gær vegna veikinda en þá kom í ljós að hann er með beinbrunasótt sem er hitabeltissjúkdómur af völdum veiru sem berst í menn með biti moskítóflugu. 4.1.2012 17:30
Hrafnhildur Ósk er íþróttamaður Reykjavíkur 2011 Hrafnhildur Ósk Skúladóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins í handbolta, var í dag valin íþróttamaður ársins í Reykjavíkurborg. 4.1.2012 16:49
Zlatan spilar í þrjú ár í viðbót og svo er það þjálfun Sænski framherjinn Zlatan Ibrahimovic er alls óhræddur við að skipta um skoðun á hlutunum. Hann segist nú vera opinn fyrir því að fara út í þjálfun að loknum ferlinum en hann hafði áður útilokað þann möguleika. 4.1.2012 16:45
Terry: Ég stend með stjóranum Mörgum finnst það hreinlega orðið pínlegt hvernig leikmönnum Chelsea virðist umhugað um að sanna samheldni liðsins í hvert skipti sem það skorar mark um þessar mundir. 4.1.2012 16:00
Santos leggur niður kvennaliðið svo félagið geti haldið Neymar Forseti brasilíska félagsins Santos hefur gefið það út að félagið þurfi að leggja niður hið sigursæla kvennalið félagsins til þess að hafa efni á því að halda hinum 19 ára Neymar hjá félaginu. Neymar er einn eftirsóttasti knattspyrnumaður heims en ætlar að vera hjá æskufélagi sínu fram yfir HM 2014 sem fer fram í Brasilíu. 4.1.2012 15:15
Guðmundur hættur hjá FH | Orðaður við Hauka FH-ingurinn Guðmundur Sævarsson hefur ákveðið að yfirgefa uppeldisfélagið og róa á ný mið næsta sumar. 4.1.2012 14:51
Hinn 39 ára gamli Rivaldo leitar að félagi Besti knattspyrnumaður heims árið 1999, Brasilíumaðurinn Rivaldo, leitar sér að félagi þessa dagana eftir að hafa fengið sig lausan frá Sao Paulo í heimalandinu. 4.1.2012 14:30
Dagur og Þórir bestu þjálfarar heims Ísland á bestu handboltaþjálfara heims, bæði í karla- og kvennaflokki, samkvæmt netkosningu síðunnar handball-planet.com - þá Dag Sigurðsson og Þóri Hergeirsson. 4.1.2012 13:45
Kjálkabraut mann á gamlárskvöld Áramótagleðin fór eitthvað úr böndunum hjá Darius Henderson, framherja Millwall, því hann kýldi mann af slíku afli á veitingastað að fórnarlambið kjálkabrotnaði. 4.1.2012 13:00
Szczesny: Þurfum á Henry að halda Wojciech Szczesny, markvörður Arsenal, er afar ánægður að fá Frakkann Thierry Henry í lið félagsins næstu mánuði og segir að liðið þurfi á honum að halda. 4.1.2012 12:15
Tilþrifin úr leik Man. City og Liverpool á Vísi Man. City vann frekar auðveldan sigur á Liverpool í gær og hægt er að sjá öll tilþrif leiksins á Vísi. 4.1.2012 11:30
Niðurlægingin gegn City það besta sem gat komið fyrir okkur Rio Ferdinand, varnarmaður Man. Utd, er afar bjartsýnn á að hans lið geti varið Englandsmeistaratitilinn. Hann segir að 6-1 niðurlægingin gegn Man. City hafi verið mikilvæg áminning til liðsins. 4.1.2012 10:45
Guðlaugur og Heimir Örn báðir meiddir Varnaruxinn Guðlaugur Arnarsson, leikmaður Akureyrar, er á hækjum þessa dagana eftir að hafa farið í hnéaðgerð skömmu fyrir jól. 4.1.2012 10:00
Breytingar framundan í Skógá Útlit er fyrir því að byrjað verði frá grunni með uppbyggingu Skógár sem laxveiðiá á þessu ári og Ásgeir Ásmundsson sem staðið hefur í eldlínunni síðustu tólf árin, hverfi á braut og komi þar hvergi nærri. 4.1.2012 09:54
Opið fyrir umsóknir hjá SVFR Opnað hefur verið fyrir umsóknir félagsmanna á vefnum hjá SVFR. Vinsamlegast athugið að til að sækja umsóknarformið þarf aðeins að slá inn kennitölu félagsmanna. Við það fyllast út persónuupplýsingar og félagsnúmer. 4.1.2012 09:43
Eyjólfur búinn að velja stóran æfingahóp Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari íslenska U-21 árs liðsins, hefur valið 29 manna æfingahóp fyrir leikinn gegn Aserbaídsjan sem fram fer í næsta mánuði. 4.1.2012 09:10
Kobe sjóðheitur | Bulls marði Atlanta Kobe Bryant, leikmaður LA Lakers, minnti heldur betur á sig í nótt þegar hann skoraði 37 stig í sigurleik gegn Houston í NBA-deildinni í nótt. Andrew Bynum einnig með stórleik en hann skoraði 21 stig og tók 22 fráköst. 4.1.2012 09:04
Snorri Steinn: EM ekki efst í huga mér núna Landsliðsmaðurinn Snorri Steinn Guðjónsson er í þeirri sérkennilegu aðstöðu að geta ekki tekið þátt í undirbúningi landsliðsins fyrir EM þar sem hann bíður eftir því að verða faðir í annað sinn. Snorri segir að eðlilega gangi fjölskyldan fyrir á þessari stundu en gangi allt vel stefnir hann að því að fara með á EM. 4.1.2012 08:00
Hrafn vill sjá meiri hraða hjá KR-liðinu Það er óhætt að segja að KR-ingar mæti með gerbreytt lið á nýju ári því Hrafn Kristjánsson, þjálfari KR, fær nú það verkefni að koma þremur nýjum erlendum leikmönnum inn í leik KR-liðsins. KR-ingar hafa samið við tæplega tveggja metra háa serbneska skyttu, Dejan Sencanski, sem bætist við Bandaríkjamennina Josh Brown og Rob Ferguson sem eru byrjaðir að æfa með liðinu. 4.1.2012 07:00
12 dagar í EM í Serbíu Frakkar eru núverandi Heims-, Evrópu- og Ólympíumeistarar og eiga nú mögleika á því að vinna fimmtu gullverðlaunin í röð á EM í Serbíu. 4.1.2012 06:00
Man. City með þriggja stiga forskot eftir 3-0 sigur á Liverpool Manchester City er komið með þriggja stiga forskot á nágranna sína í Manchester United á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir 3-0 sigur á Liverpool í kvöld. Manchester United getur náð þeim að stigum á morgun þegar liðið heimsækir Newcastle. 3.1.2012 19:30
Cuban ætlaði ekki að missa af heimsókninni í Hvíta húsið NBA-deildin í körfubolta er komin á fullt eftir verkbann en þar sem að liðin spila aðeins 66 leiki mun liðin ekki ná að spila í öllum borgum þetta tímabilið. Þetta þýðir meðal annars að NBA-meistarar Dallas Mavericks fá ekki tækifæri til að koma til Washington til að spila við Wizards. 3.1.2012 23:45
Gylfi Þór og Eggert komnir með númer á búningana sína Gylfi Þór Sigurðsson og Eggert Gunnþór Jónsson eru báðir mættir í ensku úrvalsdeildina, Gylfi Þór er í láni hjá Swansea og Eggert Gunnþór er kominn til Wolves eftir sjö ára dvöl hjá Hearts í Skotlandi. 3.1.2012 23:15
Real Madrid lenti 0-2 undir en vann samt Real Madrid komst í hann krappann á mót Malaga í kvöld í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum spænska Konungsbikarsins. Real Madrid vann leikinn á endanum 3-2 eftir að hafa lent 0-2 undir eftir hálftíma leik. 3.1.2012 22:53
Mancini: Mjög mikilvægur sigur | Ætlar að selja þrjá leikmenn í janúar Roberto Mancini, stjóri Manchester City, sá sína menn vinna 3-0 sigur á Liverpool í kvöld og ná þar með þriggja stiga forskoti á Manchester United á toppi ensku úrvalsdeildarinnar. City hafði ekki skorað í síðustu tveimur leikjum sínum. 3.1.2012 22:36
Martin O'Neill: Flottasti sigurinn Martin O'Neill, stjóri Sunderland, hefur framkvæmt sannkallað kraftaverk á liði Sunderland sem er nú allt annað lið en fyrir mánuði þegar liðið tapaði hverjum leiknum á fætur öðrum undir stjórn Steve Bruce. Sunderland vann 4-1 útisigur á Wigan í kvöld og hefur þar með náð í þrettán stig út úr síðustu sex leikjum sínum. 3.1.2012 22:26
Kompany: Þessi sigur var stór Vincent Kompany, fyrirliði Manchester City, var ánægður eftir 3-0 sigur á Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í kvöld en liðið komst þá aftur á sigurbraut eftir að hafa fengið aðeins eitt stig út úr tveimur síðustu leikjum sínum. 3.1.2012 22:13
Jón Arnór innsiglaði sigur Zaragoza - stighæstur í liðinu Jón Arnór Stefánsson og félagar í CAI Zaragoza unnu 63-61 sigur á Gran Canaria 2014 í spænsku úrvaldeildinni í körfubolta í kvöld. Jón Arnór fór langt með að innsigla sigurinn þegar hann setti niður þrist og kom Zaragoza-liðinu í 63-59 á lokakafla leiksins. 3.1.2012 21:23
Schweinsteiger bíður spenntur eftir því að koma til Indlands Þýska stórliðið Bayern Munchen er á leið til Indlands þar sem það mun mæta indverska landsliðinu í æfingaleik þann 12. janúar næstkomandi. Þýski landsliðsmaðurinn Bastian Schweinsteiger er afar spenntur fyrir ferðinni og þegar byrjaður að pakka. 3.1.2012 20:15
Suarez: Nú skil ég það fyrir alvöru hvað "You'll Never Walk Alone" þýðir Liverpool birti yfirlýsingu frá Luis Suarez á heimasíðu sinni í kvöld eftir að ljóst varð að átta leikja banni hans yrði ekki áfrýjað. Suarez byrjar á því að taka út bannið í kvöld en enska knattspyrnusambandið dæmdi Úrúgvæmanninn á dögunum fyrir kynþáttaníð gagnvart Patrice Evra hjá Manchester United. Suarez mun ekki spila með Liverpool fyrr en í febrúar. 3.1.2012 19:28
Fjórði sigur Sunderland í sex leikjum undir stjórn Martin O'Neill Sunderland hélt áfram frábæru gengi sínu undir stjórn Martin O'Neill þegar liðið vann 4-1 útisigur á Wigan í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Sunderland er þar með búið að vinna fjóra af síðustu sex leikjum sínum og er komið upp í tíunda sætið. 3.1.2012 19:15
Jermain Defoe hetja Tottenham Tottenham er ekkert að gefa eftir í toppbaráttunni og fylgir Manchetser-liðunum eftir sem skugginn eftir 1-0 heimasigur á West Bromwich Albion í kvöld. Tottenham er nú þremur stigum á eftir Manchester United í 2. sætinu þegar bæði hafa spilað 19 leiki. 3.1.2012 19:15
Liverpool mun ekki áfrýja leikbanni Suarez | Byrjar bannið í kvöld Luis Suarez, framherji Liverpool, er á leiðinni í átta leikja bann eftir að ljóst varð að Liverpool ætlar ekki að áfrýja banninu sem enska knattspyrnusambandið dæmdi Úrúgvæmanninn á dögunum fyrir kynþáttaníð gagnvart Patrice Evra hjá Manchester United. 3.1.2012 19:00