Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Átökin á Stamford Bridge til rannsóknar Enska knattspyrnusambandið hefur farið fram á að fá myndbandsupptökur af átökunum sem urðu milli varamanna Manchester United og starfsmanna Chelsea á Stamford Bridge eftir leik liðanna í gær. 27.4.2008 18:34
HK í annað sætið eftir sigur á Fram Þrír leikir fóru fram í N1 deild karla í handbolta í dag. HK er í öðru sæti deildarinnar þegar ein umferð er eftir af deildinni eftir 32-26 útisigur á Fram í dag. 27.4.2008 18:19
Mikill hasar á Goodison Park Mikill hasar var á lokamínútunum í leik Everton og Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni í dag. Svo fór að liðin skildu jöfn 2-2 í hörkuleik. 27.4.2008 18:04
Góður leikur Árna dugði skammt Árni Gautur Arason átti prýðilegan leik með liði sínu Thanda Royal Zulu í Suður-Afríku í dag en það kom þó ekki í veg fyrir 3-0 tap fyrir Bloemfontein Celtic í fallslag liðanna. 27.4.2008 17:11
Kiel á toppinn - Jafnt hjá Lemgo Tveir leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Kiel náði aftur toppsætinu í deildinni með afar naumum sigri á Berlín á útivelli 27-26 og þá skildu Lemgo og Hamburg jöfn 29-29 þar sem Logi Geirsson skoraði tvívegis úr vítum fyrir Lemgo. 27.4.2008 17:01
Ítalía: Inter skrefi nær titlinum Toppliðin Inter og Roma á Ítalíu unnu bæði leiki sína í A-deildinni í dag og fyrir vikið færðist Inter skrefi nær þriðja meistaratitlinum í röð. Liðið hefur sex stiga forskot á toppnum og getur tryggt sér titilinn með sigri á AC Milan um næstu helgi. 27.4.2008 16:12
Fer Phoenix í sumarfrí í kvöld? Fjórir leikir eru á dagskrá í kvöld og í nótt í úrslitakeppni NBA deildarinnar og verður stórleikur Phoenix og San Antonio sýndur beint á NBA TV sjónvarpsrásinni klukkan 19:30. 27.4.2008 15:30
Santa Cruz tryggði Blackburn sigur Framherjinn Roque Santa Cruz tryggði Blackburn 1-0 sigur á Portsmouth á útivelli í fyrri leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Tapið setur strik í reikninginn hjá Portsmouth í keppninni um fimmta sætið í deildinni. 27.4.2008 14:43
Celtic lagði granna sína Celtic náði í dag fimm stiga forskoti á toppi skosku úrvalsdeildarinnar með 3-2 sigri á grönnum sínum Rangers í Glasgow. Scott McDonald skoraði tvö mörk fyrir Celtic í leiknum en Rangers á reyndar þrjá leiki til góða og á möguleika á titlinum þrátt fyrir tvö töp gegn grönnum sínum í vetur. 27.4.2008 14:31
Flensburg á toppinn Flensburg komst aftur á toppinn í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í gærkvöld þegar liðið lagði Grosswallstadt 33-27 á útivelli. Alexander Petersson skoraði 2 mörk fyrir Flensburg og Einar Hólmgeirsson 1. Kiel getur komist aftur á toppinn á í dag þegar það mætir Berlín. 27.4.2008 14:25
Raikkönen sigraði í Barcelona Ferrari-liðið átti góðan dag þegar Kimi Raikkönen sigraði í Barcelona kappakstrinum og félagin hans Felipe Massa varð annar. Lewis Hamilton náði sér aftur á strik og náði þriðja sætinu. 27.4.2008 14:07
Benitez klippti saman bestu tilþrif Drogba Rafa Benitez hefur talsverðar áhyggjur af Didier Drogba fyrir síðari leik Liverpool og Chelsea í Meistaradeildinni, en ekki bara því að hann eigi eftir að skora mörk. Benitez hefur þannig tekið saman sérstakt myndband með leikrænum tilþrifum Fílstrendingsins og ætar að sýna varnarmönnum sínum afraksturinn. 27.4.2008 13:53
Atlanta lagði Boston Fjórir leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA deildarinnar í körfubolta í gærkvöldi og í nótt. Boston Celtics tapaði óvænt fyrir Atlanta, en LA Lakers, Orlando og Utah eru komin í sterka stöðu gegn mótherjum sínum. 27.4.2008 13:33
Barcelona tapaði fyrir Deportivo Barcelona tapaði 2-0 fyrir Deportivo í spænsku deildinni í kvöld. Eiður Smári Guðjohnsen var í byrjunarliði Barcelona, en Frank Rijkaard þjálfari hvíldi nokkra af lykilmönnum liðsins vegna leiksins við Manchester United í næstu viku. 26.4.2008 21:15
Leikmenn United í handalögmálum við starfsmenn Chelsea Til átaka kom milli varamanna Manchester United og vallarstarfsmanna Chelsea eftir leik liðanna á Stamford Bridge í dag. 26.4.2008 19:42
Ferguson: Vítaspyrnudómurinn var fáránlegur Sir Alex Ferguson segir að vítaspyrnudómurinn sem réði úrslitum í leik Chelsea og Manchester United í dag hafi verið fáránlegur. 26.4.2008 19:18
Íslendingaliðin leika til úrslita í Danmörku Það verða FCK og GOG sem leika til úrslita um meistaratitilinn í handbolta í Danmörku. GOG vann í dag 37-36 sigur á Arhus á útivelli í dag þar sem Snorri Steinn Guðjónsson skoraði 6 mörk og Ásgeir Örn Hallgrímsson 4. 26.4.2008 18:29
Stjörnustúlkur í góðri stöðu Kvennalið Stjörnunnar er í vænlegri stöðu í N1 deild kvenna eftir leiki dagsins. Liðið vann nauman 20-19 sigur á Gróttu á útivelli í dag og getur því tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri á Val í lokaleik sínum. 26.4.2008 18:17
Haukar lögðu Aftureldingu og tóku við bikarnum Íslandsmeistarar Hauka kláruðu leiktíðina í N1 deildinni með sóma í dag þegar þeir lögðu Aftureldingu 32-29. Haukarnir fengu svo Íslandsbikarinn afhentan eftir leikinn en þeir höfðu þegar tryggt sér sigur í deildinni. 26.4.2008 18:01
Eiður í byrjunarliðinu gegn Deportivo Leikur Deportivo og Barcelona í spænsku úrvalsdeildinni hefst klukkan 19:00 og er sýndur beint á Stöð 2 Sport. Eiður Smári Guðjohnsen er í byrjunarliði Barcelona í kvöld, en liðið verður án nokkurra fastamanna sem eru hvíldir fyrir síðari leikinn gegn Manchester United í næstu viku. 26.4.2008 17:54
Denver - LA Lakers beint á Stöð 2 Sport í kvöld Þriðji leikur Denver Nuggets og LA Lakers í fyrstu umferð úrslitakeppni NBA deildarinnar verður sýndur beint á Stöð 2 Sport klukkan 21:25 í kvöld. Lakers vann fyrstu tvær viðureignir liðanna á heimavelli sínum en í kvöld eigast liðin við í Colorado. 26.4.2008 16:45
Teitur hættur í Njarðvík Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur hefur ákveðið að endurnýja ekki samning sinn við þjálfarann Teit Örlygsson. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins í dag. Undir stjórn Teits féllu Njarðvíkingar úr leik 2-0 fyrir Snæfelli í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. 26.4.2008 16:20
Enski í dag: Drama á botninum Mikil dramatík var í botnbaráttunni í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag þar sem segja má að Fulham hafi stolið senunni rækilega. Liðið náði sér í gríðarlega mikilvæg stig í fallslagnum með 3-2 útisigri á Manchester City eftir að hafa lent undir 2-0. 26.4.2008 15:57
Grant heldur enn í vonina Avram Grant, stjóri Chelsea, gaf tilfinningunum lausan tauminn í dag þegar lið hans lagði Manchester United í toppslagnum í ensku úrvalsdeildinni. Hann segir vel mögulegt að Manchester United verði á í messunni í síðustu tveimur leikjunum. 26.4.2008 15:38
Vincent rekinn frá Bobcats Þjálfarinn Sam Vincent hefur verið látinn taka pokann sinn hjá Charlotte Bobcats í NBA deildinni eftir aðeins eitt ár í starfi. Gamla brýnið Lary Brown hefur þegar verið orðaður við starfið hjá Michael Jordan og félögum, en hann hætti forsetastöðu sinni hjá Philadelphia fyrir nokkru. 26.4.2008 15:00
Kotila hættur að þjálfa Snæfell Bandaríski þjálfarinn Geof Kotila hefur ákveðið að hætta að þjálfar bikarmeistara Snæfells í körfubolta. Samningur hans rennur út nú í sumar og ætlar hann að flytja aftur til Danmerkur með fjölskyldu sinni. Þetta kom fram í Stykkishólmspóstinum. 26.4.2008 14:03
Chelsea lagði United í fjörugum leik Chelsea vann í dag gríðarlega mikilvægan 2-1 sigur á Manchester United í toppbaráttunni í ensku úrvalsdeildinni og þar með eru liðin orðin jöfn með 81 stig á toppnum. Michael Ballack var hetja þeirra bláklæddu í dag og skoraði bæði mörk heimamanna. 26.4.2008 13:45
Raikkönen á ráspól í Barcelona Heimsmeistarinn Kimi Raikkönen á Ferrari verður á ráspól í Barcelona kappakstrinum í Formúlu 1 á morgun eftir að frábær lokahringur hans í tímatökum í dag tryggði honum besta tímann. 26.4.2008 13:33
Tottenham kaupir króatískan landsliðsmann Tottenham hefur gengið frá kaupum á króatíska miðjumanninum Luka Modric frá Dinamo Zagreb fyrir rúmar 15 milljónir punda. Modric þessi er 22 ára gamall og hefur verið orðaður við m.a. Chelsea og Arsenal, en hann á þegar að baki 20 landsleiki þrátt fyrir ungan aldur. 26.4.2008 12:42
Chelsea yfir í hálfleik Chelsea hefur yfir 1-0 gegn Manchester United þegar flautað hefur verið til hálfleiks í þýðingarmiklum leik liðanna á Stamford Bridge í ensku úrvalsdeildinni. 26.4.2008 12:35
Philadelphia burstaði Detroit - Phoenix í vondum málum Þrír leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA deildarinnar í nótt og þar mátti heldur betur sjá óvænt tíðindi. Philadelphia burstaði Detroit á heimavelli sínum, Dallas lagaði stöðu sína gegn New Orleans og Phoenix er komið í mjög vond mál gegn meisturum San Antonio. 26.4.2008 08:30
Inter getur jafnað árangur granna sinna Ítalska liðið Inter Milan getur jafnað árangur granna sinna í AC Milan um helgina þegar hagstæð úrslit geta tryggt því 14. meistaratitilinn. Mílanóliðin eiga þó enn langt í Juventus, sem hefur unnið titilinn 25 sinnum. 25.4.2008 22:30
Mikið fjör í körfunni í nótt Það verður nóg um að vera í NBA deildinni í körfubolta í kvöld og þar af geta sjónvarpsáhorfendur fengið tvo leiki beint í æð í kvöld. Leikur Toronto og Orlando frá því í gærkvöld verður sýndur á Stöð 2 Sport skömmu fyrir miðnætti og þá verður bein útsending á NBA TV rásinni frá leik Philadelphia og Detroit klukkan 23:00. 25.4.2008 21:57
KR vann Lengjubikarinn KR-stúlkur tryggðu sér í kvöld sigur í Lengjubikarnum með 4-0 sigri á Val í úrslitaleik sem fram fór í Egilshöllinni. KR hafði yfir 1-0 í hálfleik en Valsstúlkur misstu mann af velli um miðjan síðari hálfleik og eftir það tók KR öll völd á vellinum. 25.4.2008 21:51
Mourinho er til í að snúa aftur til Englands Jose Mourinho segist ekki útiloka að snúa aftur til Englands á næstu leiktíð, en þvertekur fyrir að vera búinn að lofa að taka að sér þjálfun Inter á Ítalíu. 25.4.2008 21:38
Leeds tryggði sér umspilssæti Leeds United tryggði sér í kvöld sæti í umspili um sæti í ensku B-deildinni þegar það lagði Yeovil 1-0. Það er ekki síst merkilegur árangur í ljósi þess að Leeds hóf leik með fimmtán stig í mínus í sumar sem leið eftir að félagið fór í greiðslustöðvun. 25.4.2008 21:31
Víkingur í úrvalsdeildina Karlalið Víkings tryggði sér í kvöld sæti í N1 deildinni í handbolta næsta vetur þegar liðið lagði ÍR 35-30 í úrslitaleik um sæti meðal þeirra bestu. Víkingar tryggðu sér annað sæti 1. deildarinnar með sigrinum og fara upp með FH-ingum. 25.4.2008 21:10
Magnús bíður eftir ákvörðun þjálfarans Magnús Gunnarsson og félagar hans í Keflavík taka nú þátt í sigurhátíð sem að hans sögn mun standa yfir alla helgina þar í bæ. Liðið landaði enn einum meistaratitlinum í safnið í gærkvöld og Vísir heyrði hljóðið í skyttunni í kvöld. 25.4.2008 20:39
Magdeburg burstaði Minden Einn leikur var á dagskrá í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Magdeburg burstaði Minden 37-23 eftir að hafa verið yfir í hálfleik 17-8. Einar Örn Jónsson skoraði 3 mörk fyrir Minden, sem er í bullandi fallhættu í deildinni og situr í sætinu fyrir ofan fallsvæðið. 25.4.2008 20:30
Gautaborg tapaði fyrir nýliðunum Sjöundu umferðinni í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu lauk í kvöld og þar urðu óvænt úrslit þegar meistarar Gautaborgar töpuðu 2-1 á útivelli fyrir nýliðum Ljungskile. Ragnar Sigurðsson og Hjálmar Jónsson voru á sínum stað í byrjunarliði Gautaborgar sem situr í fjórða sæti deildarinnar. 25.4.2008 20:24
Fartölvu forsetans stolið Þjófur lét greipar sópa um höfuðstöðvar knattspyrnufélagsins Barcelona eftir leik liðsins gegn Manchester United í Meistaradeildinni. Hann hafði á brott með sér fartölvum forseta félagsins Joan Laporta og hefur félagið tilkynnt að mál verði tafarlaust höfðað á hendur hverjum þeim sem misnotar upplýsingar sem þar er að finna. 25.4.2008 18:40
Pierce klár í slaginn með Boston Framherjinn Paul Pierce hjá Boston verður klár í slaginn annað kvöld þegar Boston sækir Atlanta heim í þriðja leik liðanna í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í NBA. 25.4.2008 18:27
Hopkins er tapsár Joe Calzaghe virðist vera búinn að fá sig fullsaddan af yfirlýsingum Bernard Hopkins eftir bardaga þeirra félaga um síðustu helgi. Hopkins tapaði bardaganum en hefur allar götur síðan haldið því fram að hann hefði átt að vinna. 25.4.2008 18:09
Liverpool nálgast Degen Samkvæmt fréttum frá Liverpool er liðið að nálgast hægri bakvörðinn svissneska Philipp Degen. Rafael Benítez ræddi í vikunni við Tom Hicks um leikmannakaup sumarsins og er Degen ofarlega á óskalista hans. 25.4.2008 16:47
Vidic æfði með United í dag Serbneski varnarmaðurinn Nemanja Vidic æfði með Manchester United í dag og eru menn vongóðir um að hann verði tilbúinn í slaginn fyrir stórleikinn gegn Chelsea á morgun. 25.4.2008 16:45