Fleiri fréttir

Bolton kvartar undan spænsku lögreglunni

Bolton hefur sent Knattspyrnusambandi Evrópu (UEFA) formlega kvörtun vegna framkomu spænsku lögreglunnar í garð stuðningsmanna Bolton á leiknum gegn Atletico Madrid í gær.

NBA í nótt: Ólíkt gengi Houston og Miami

Þrír leikir fóru fram í NBA-deildinni í nótt. Houston vann Miami og þar með sinn tíunda leik í röð en um leið tapaði Miami sínum tíunda leik í röð.

Alfreð í björgunarleiðangur fyrir HSÍ

Aron Kristjánsson hefur hafnað boði HSÍ um að gerast landsliðsþjálfari í handknattleik. Hann er fjórði þjálfarinn sem segir nei við HSÍ en áður höfðu Magnus Andersson, Dagur Sigurðsson og Geir Sveinsson gefið sama svar og Aron.

Þeir þorðu ekki í verkefnið

Þorbergur Aðalsteinsson, stjórnarmaður í HSÍ, skaut föstum skotum að mönnunum sem sambandið hefur rætt við um að taka við landsliðsþjálfarastöðunni undanfarna daga og vikur í þættinum Utan Vallar á Sýn í kvöld.

Uefa bikarinn: Ensku liðin áfram

Ensku liðin Tottenham, Everton og Bolton tryggðu sér öll sæti í 16-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða í kvöld, en með mismiklum glæsibrag.

Valur lagði HK

Valur lagði HK í Digranesi í N1 deild kvenna í handbolta í kvöld 32-27 og Grótta lagði Fylki á útivelli 23-17. Valur er í þriðja sæti deildarinnar og Grótta í því fjórða.

Jafnt í Mýrinni hjá Stjörnunni og Fram

Síðari leik kvöldsins í N1 deild karla í handbolta lauk með jafntefli líkt og þeim fyrri þegar Framarar heimsóttu Stjörnumenn í Mýrina og náðu jafntefli 29-29. Fram er í öðru sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir Haukum, en Stjarnan erí fjórða sætinu, tveimu stigum á eftir Fram.

Jón Arnór með 10 stig í sigri Roma

Lottomatica Roma vann í kvöld góðan 75-67 sigur á spænska liðinu Unicaja í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í körfubolta. Jón Arnór skoraði 10 stig í leiknum og ítalska liðið vann nokkuð öruggan sigur þó þjálfarinn sæti heima með flensu.

Cleveland fær fjóra nýja leikmenn

Cleveland fékk heldur betur liðsstyrk í NBA deildinni í kvöld þegar liðið fékk til sín fjóra nýja leikmenn á síðustu augnablikum félagaskiptagluggans í NBA deildinni.

Jafnt á Akureyri

Akureyri og Haukar skildu jöfn í fyrri leik kvöldsins í N1 deild karla í handbolta í kvöld. Heimamenn voru skrefinu á undan lengst af en Haukarnir tryggðu sér jafntefli 27-27 með því að skora tvö síðustu mörk leiksins á lokamínútunum.

Stjarnan færði Fram fyrsta tapið í vetur

Stjörnustúlkur unnu í kvöld mikilvægan sigur á Fram 27-20 í toppslagnum í N1 deild kvenna í handbolta og færðu Fram þar með fyrsta tapið í deildinni í vetur. Nú munar því aðeins tveimur stigum á liðunum þar sem Fram hefur 31 stig á toppnum en Stjarnan er komin með 29 stig.

Uefa bikarinn: Bayern burstaði Aberdeen

Síðari leikirnir í 32 liða úrslitum Uefa bikarkeppninnar fara fram í kvöld og þegar er fimm af sextán leikjum lokið. Bayern Munchen tryggði sig áfram í keppninni með 5-1 stórsigri á skoska liðinu Aberdeen á heimavelli.

New Orleans og Houston skipta á leikmönnum

Nú er aðeins um klukkutími þangað til leikmannamarkaðurinn í NBA lokar en aðeins ein skipti hafa farið fram til þessa í dag. Houston lét þá Bonzi Wells og Mike James fara til New Orleans í skiptum fyrir Bobby Jackson.

Meiðsli Toure minni en talið var

Varnarmaðurinn Kolo Toure hjá Arsenal verður líklega ekki nema tvær vikur að jafna sig af meiðslunum sem urðu til þess að hann fór af velli snemma leiks gegn AC Milan í gærkvöldi. Arsene Wenger hefur eftir læknum félagsins að líklega þurfi hann ekki nema tvær vikur frá í stað fjögurra eins og talið var í fyrstu.

Lampard og Terry tæpir fyrir úrslitaleikinn

BBC segir að bæði Frank Lampard og John Terry, leikmenn Chelsea, gætu misst af úrslitaleiknum í enska deildarbikarnum um helgina þegar liðið mætir grönnum sínum í Tottenham

Gascoigne í haldi lögreglu

Paul Gascoigne er nú í haldi lögreglu í Bretlandi eftir að hann var handtekinn á hóteli í Newcastle þar sem hegðun hans þótti undarleg.

HSÍ að leita til útlanda

Guðmundur Ágúst Ingvarsson, formaður HSÍ, segir að sambandið sé nú fyrst og fremst að horfa til útlanda hvað varðar ráðningu nýs landsliðsþjálfara.

Aron: Tímasetningin er afleit

Aron Kristjánsson segist hafa verið afar spenntur fyrir starfi landsliðsþjálfara en að tímasetningin hefði ekki getað verið verri.

Nevalirova aftur valin best

Línumaðurinn Pavla Nevarilova var í dag valin besti leikmaður N1-deildar kvenna fyrir umferðir 10-18. Hún var einnig valin best í fyrstu níu umferðunum.

Aron hafnaði HSÍ

Aron Kristjánsson mun ekki þjálfa íslenska landsliðið í handbolta en hann er fjórði þjálfarinn sem hafnar starfinu.

Playboy-dómarinn aftur að störfum

Brasilíski knattspyrnudómarinn Ana Paula Oliviera var sett í bann í heimalandi sínu eftir að nektarmyndir birtust af henni í Playboy. Hún hefur nú hafið störf á nýjan leik.

Toure frá í 3-4 vikur

Arsene Wenger, stjóri Arsenal, býst við því að Kolo Toure verði frá í þrjár til fjórar vikur vegna meiðslanna sem hann varð fyrir í leiknum gegn AC Milan í Meistaradeild Evrópu í gær.

Naumur sigur Tiger Woods

Tiger Woods vann nauman sigur á JB Holmes í fyrstu umferð heimsmeistarakeppninnar í holukeppni sem fer fram þessa dagana í Arizona í Bandaríkjunum.

Enn einn sigurinn hjá TCU

TCU vann sinn sjöunda sigur í röð í bandaríska háskólaboltanum í nótt er liðið vann Colorado State, 76-41.

Enn tapar GOG dýrmætum stigum

GOG gerði í gær jafntefli við Bjerringbro-Silkeborg, 30-30, í mikilvægum leik í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta.

Ferguson: Benzema er frábær

Sir Alex Ferguson var ánægður með baráttu sinna manna í Manchester United í kvöld eftir að þeir lentu marki undir gegn Lyon en náðu að jafna og hafa góða stöðu fyrir síðari leikinn á Englandi.

Wenger nokkuð sáttur

Arsene Wenger var mjög sáttur við frammistöðu sinna manna í Arsenal í jafnteflinu við AC Milan í Meistaradeildinni í kvöld en sagði súrt að ná ekki að nýta færin. Hann er bjartsýnn á síðari leikinn í Mílanó.

Keflavík lagði granna sína í framlengingu

Mikið fjör var í Iceland Express deild kvenna í körfubolta í kvöld. Keflavík situr á toppnum eftir 106-101 sigri á Grindavík á útivelli eftir framlengdan leik. Valsstúlkur unnu góðan útisigur á Haukum 66-61 en þó varð ljóst að liðið nær ekki að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni.

Jafnt hjá Arsenal og Man Utd

Arsenal og Manchester United þurftu bæði að sætta sig við jafntefli í fyrri leikjum sínum í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld, en Barcelona landaði góðum sigri í Skotlandi.

Stórleikur Karabatic of mikið fyrir Flensburg

Kiel vann í kvöld gríðarlega þýðingarmikinn sigur á Flensburg í toppslagnum í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta 30-28. Kiel hafði eins marks forystu í hálfleik og kláraði leikinn þökk sé 11 mörkum frá hinum frábæra Nikola Karabatic.

Tímaspursmál hvenær Balic kemur heim

Forráðamenn króatíska handboltaliðsins Zagreb vilja ólmir fá hinn sterka Ivano Balic aftur til heimalandsins frá Portland San Antonio á Spáni. Balic er almennt talinn einn besti handboltamaður í heiminum, en hann er samningsbundinn Portland til ársins 2010.

Muhammad Ali hefði óttast Klitschko

Þjálfari úkraínska hnefaleikarans Vladimir Klitschko segir að goðsögnin Muhammad Ali hefði orðið hræddurv við að mæta honum í hringnum.

Ciudad hafði betur gegn Gummersbach

Ólafur Stefánsson skoraði tvö mörk fyrir spænska liðið Ciudad Real í kvöld þegar það vann góðan útisigur á Gummersbach í Köln 28-27 í milliriðli meistaradeildarinnar í handbolta. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 6 mörk fyrir þýska liðið og Róbert Gunnarsson 4, en Gummersbach hafði yfir í hálfleik 15-14.

Stoke ævintýrinu er ekki lokið

Eignarhaldsfélagið Stoke Holding fær endurgreiddar um 260 milljónir króna takist Stoke City að komast upp í úrvalsdeildina í vor. Þetta kemur fram í íþróttafréttum Stöðvar 2 í kvöld.

Hvað er að gerast á leikmannamarkaðnum í NBA?

Félagaskiptaglugginn í NBA deildinni rennur út annað kvöld og því er mikið slúðrað um hugsanleg leikmannaskipti á síðustu stundu. Leikmannamarkaðurinn hefur iðað síðustu daga eftir hver stórskiptin á fætur öðrum.

Gill sagður muni mótmæla útrásinni

Enska knattspyrnusambandið mun á morgun funda með forráðamönnum ensku úrvalsdeildarinnar þar sem útrás deildarinnar verður efst á baugi og rætt verður um 39. leikinn sem spilaður yrði á erlendri grundu.

Luke Moore á leið til WBA

Framherjinn Luke Moore gengur að öllu óbreyttu í raðir West Brom í ensku B-deildinni á morgun. Moore hefur ekki fengið mörg tækifæri undir stjórn Martin O´Neill hjá Aston Villa og fer þessi 22 ára gamli leikmaður fyrst sem lánsmaður til West Brom og gengur væntanlega formlega í raðir félagsins fyrir 3,5 milljónir punda í sumar.

Vertu tilbúinn að láta lífið

"Böðullinn" Bernard Hopkins hefur gefið andstæðingi sínum Joe Calzaghe kaldar kveðjur fyrir bardaga þeirra í Las Vegas þann 19. apríl næstkomandi.

Ekki algengt en tíðkast

Ólafur Garðarsson umboðsmaður knattspyrnumanna segir að þó nokkur dæmi séu um að utanaðkomandi aðilar hafi fjármagnað kaup knattspyrnumanna, líkt og í tilfelli Sverris Garðarssonar.

Sjá næstu 50 fréttir