Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þýski handboltinn byrjar aftur á Sýn í næsta mánuði Þýski boltinn byrjar fljótlega að rúlla aftur eftir að HM í handbolta lýkur og verður sjónvarpsstöðin Sýn með toppleiki í beinni útsendingu í febrúar. Fyrsti leikurinn í beinni verður viðureign Gummersbach og Wilhalmshavener þann 9. febrúar klukkan 18:30. 30.1.2007 14:15
Zlatan gefur kost á sér í landsliðið á ný Framherjinn sterki Zlatan Ibrahimovic hefur á ný gefið kost á sér í sænska landsliðið í knattspyrnu, en hann hefur verið úti í kuldanum síðan á síðasta ári þegar hann braut útivistarreglur liðsins og fór í fýlu við landsliðsþjálfarann Lars Lagerback. 30.1.2007 13:59
Charlton neitaði risatilboði West Ham í Darren Bent Charlton hefur neitað 18 milljón punda kauptilboði West Ham í enska landsliðsframherjann Darren Bent og hefur knattspyrnustjórinn Alan Pardew nú sagt að hann sé ekki til sölu. Pardew hafði áður sagt að félagið myndi íhuga að selja hann ef gott tilboð kæmi í janúar og vitað er af áhuga fjölda liða á framherjanum knáa, eins og West Ham, Aston Villa og Tottenham. 30.1.2007 13:37
Alfreð dreymir um að spila á "heimavelli" um helgina Alfreð Gíslason viðurkennir að það væri draumur fyrir sig ef íslenska liðið næði í undanúrslitin á HM um helgina, því þá fengi liðið "heimaleik" í Köln þar sem hann stýrir liði Gummersbach í þýsku úrvalsdeildinni. 30.1.2007 13:05
Hentar mér vel að mæta Fúsa Michael Knudsen, leikmaður danska landsliðsins, segir að það henti sér vel að mæta Sigfúsi Sigurðssyni, línumanni íslenska landsliðsins í kvöld. Hann segist hafa mætt öðrum eins tröllum á mótinu til þessa. 30.1.2007 12:55
Íslendingurinn ekki með gegn Íslendingum Hans Óttar Lindberg, Íslendingurinn í danska landsliðinu í handknattleik, og leikstjórnandinn Claus Möller Jakobsen verða ekki í danska landsliðshópnum í kvöld sem mætir Íslendingum í Hamborg. 30.1.2007 12:49
Bjartsýnin hættulega mikil fyrir leikinn gegn Íslendingum Lars Christiansen, einn reyndasti leikmaður danska landsliðsins í handknattleik, varar liðsfélaga sína og dönsku þjóðina við of mikilli bjartsýni fyrir leikinn við Ísland. Undir það tekur greinarhöfundur í Politiken sem segir bjartsýnina hættulega mikla fyrir leikinn. 30.1.2007 12:43
Miðar á leik Dana og Íslendinga seldir á uppsprengdu verði Miðar á leik Íslands og Danmerkur á heimsmeistaramótinu í handknattleik seljast nú á nærri fjórföldu því verði sem þeir kostuðu í forsölu eftir því sem fram kemur á vef danska blaðsins Politiken. 30.1.2007 12:40
Jafnt á með okkur Óla Stefáns Markvörðurinn magnaði Kasper Hvidt hjá danska landsliðinu og Portland San Antonio á Spáni, segir að einvíg hans og Ólafs Stefánssonar hafi verið nokkuð jöfn í spænsku deildinni undanfarin ár. Hann segir að Ólafur sé klókur leikmaður. 30.1.2007 12:34
Liverpool að landa ungum Spánverja Liverpool er nú við það að ganga frá lánssamningi við 18 gamlan spænskan miðjumann, Francis Duran, frá liði Malaga sem leikur í annari deildinni á Spáni. Duran spilaði sinn fyrsta leik fyrir aðallið Malaga á dögunum og ef hann gengur frá samningi við enska liðið, verður það með möguleika á að ganga frá formlegum kaupsamningi á næsta ári. 30.1.2007 12:25
Ledley King verður ekki með gegn Arsenal Ledley King, fyrirliði Tottenham, verður ekki með liði sínu í síðari leiknum við Arsenal í deildarbikarnum í vikunni vegna ristarmeiðsla. Forráðamenn félagsins óttast að hann gæti verið ristarbrotinn en hann hefur ekki spilað síðan um jólin. 30.1.2007 12:23
Davids farinn til Ajax Miðjumaðurinn Edgar Davids er genginn í raðir Ajax í heimalandi sínu frá Tottenham í ensku úrvalsdeildinni og hefur hann skrifað undir 18 mánaða samning við fyrrum félaga sína. Davids varð þrisvar hollenskur meistari með gullaldarliði Ajax á tíunda áratugnum þar sem liðið náði einnig frábærum árangri í Evrópukeppnunum. 30.1.2007 12:17
Minnesota stöðvaði 17 leikja sigurgöngu Phoenix Kevin Garnett átti stórleik fyrir Minnesota Timberwolves í nótt þegar liðið stöðvaði 17 leikja sigurgöngu Phoenix Suns í NBA deildinni með 121-112 sigri á heimavelli sínum. Denver á enn í vandræðum þrátt fyrir að vera búið að fá Carmelo Anthony aftur úr meiðslum og Vince Carter tryggði New Jersey sigur á Utah með flautukörfu. 30.1.2007 11:48
Margrét Lára hætt hjá Duisburg Landsliðskonan Margrét Lára Viðarsdóttir hefur fengið sig lausa frá þýska úrvalsdeildarliðinu Duisburg og ber við persónulegum ástæðum. Margrét staðfesti þetta í viðtali á fréttavefnum sudurland.is í morgun en vildi ekkert gefa upp um ástæður ákvörðunar sinnar, en segir þetta hafa komið snögglega upp. 30.1.2007 11:42
Tottenham staðfestir áhuga á táningnum Bale Enska úrvalsdeildarliðið Tottenham hefur staðfest að það sé á höttunum eftir Gareth Bale, vinstri bakverði Southampton sem Manchester United sýndi einnig áhuga. 30.1.2007 11:02
Munu ekki skiptast á upplýsingum Bræðurnir Pétur og Jón Arnar Ingvarssyni ætla ekkert að ræða íslenskan körfubolta á meðan þeir eru að þjálfa lið í sömu deild. Á sunnudagskvöldið komu þeir sínum liðum óvænt í bikarúrslitaleikinn. 30.1.2007 00:01
Alfreð Gíslason: Vinnum með góðri vörn Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari á von á mjög jöfnum og spennandi leik gegn Dönum í kvöld er liðin mætast í Hamborg í átta liða úrslitum á HM. Íslenska landsliðið tók létta æfingu í Colour Line höllinni í gærkvöldi eftir fjögurra tíma akstur frá Halle. Alfreð Gíslason var rólegur að sjá og hann gerir ráð fyrir jöfnum leik í kvöld. 30.1.2007 00:01
Ívar skoraði fyrir Reading Nú er kominn hálfleikur í leikjunum fjórum sem standa yfir í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Staðan er jöfn 1-1 í leik Reading og Wigan og þar var það Ívar Ingimarsson sem skoraði mark Reading. Sheffield United hefur yfir 2-0 gegn Fulham og markalaust er hjá Portsmouth - Middlesbrough og í leik West Ham og Liverpool. 30.1.2007 20:49
Jafnt í hálfleik framlengingar Staðan er jöfn eftir fyrri hálfleik framlengingar gegn dönum 38-38. Snorri Steinn er búinn að skora tvö af fjórum mörkum Íslands í framlengingunni og heldur áfram að eiga stórleik. 30.1.2007 20:48
Snorri jafnaði á lokasekúndunum Íslendingar jöfnuðu á síðustu sekúndum leiksins gegn Dönum og leikurinn verður framlengdur. Snorri Steinn Guðjónsson reyndist þyngdar sinnar virði í gulli á síðustu mínútum venjulegs leiktíma, en hann hefur skorað alls 12 mörk í leiknum. 30.1.2007 20:33
Danir með yfirhöndina Danir eru að síga framúr en þegar seinni hálfleikur er hálfnaður er staðan 25-22 fyrir Dönum. Íslendingar áttu slæman leikkafla á fyrstu tíu mínútum hálfleiksins á meðan dönsku skytturnar fóru á kostum. 30.1.2007 20:12
Ísland yfir í hálfleik Íslendingar leiða með 17 mörkum gegn 16 mörkum Dana þegar flautað hefur verið til hálfleiks. Íslendingar náðu mest þriggja marka forystu en Danir náðu að jafna rétt fyrir hálfleikinn. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði hinsvegar á lokasekúndum hálfleiksins og Íslendingar því með forystu sem fyrr segir. 30.1.2007 19:40
Allt í járnum gegn Dönum Það er enn allt í járnum í leik Íslendinga og Dana þegar fyrri hálfleikur er rétt hálfnaður. Danir hafa þó forystu 10-9. Liðin fóru bæði rólega af stað en hefur vaxið ásmeign í sóknarleiknum eftir því sem á hefur liðið. 30.1.2007 19:17
Alfreð: Þurfum að spila frábæran leik Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari segir að íslenska liðinu dugi ekkert minna en frábær leikur ætli það að koma sér í undanúrslitin á HM í Þýskalandi. Leikmenn liðsins taka í sama streng. 29.1.2007 21:30
Keflavík í bikarúrslit Keflavíkurstúlkur tryggðu sér í kvöld sæti í úrslitaleik bikarkeppnis Lýsingar og KKÍ þar sem mótherjar liðsins verða Haukastúlkur. Keflavík vann öruggan sigur á Hamar á heimavelli í kvöld, 104-80. Haukar tryggðu sæti í úrslitunum í gær með því að leggja Grindavík af velli. 29.1.2007 21:28
Ashton lengur frá en áætlað var West Ham varð fyrir áfalli í dag þegar í ljós kom að það tekur sóknarmanninn Dean Ashton lengri tíma en áætlað var að jafna sig eftir fótbrot frá því í sumar. Sinar og vöðvafestingar í kringum ökklann sem brotnaði hafa ekki gróið rétt og þarf Ashton á sprautumeðferð að halda. 29.1.2007 21:24
Ferguson bannar Ronaldo að tjá sig um Real Madrid Cristiano Ronaldo vill með engu móti tjá sig um áhuga Real Madrid á sjálfum sér, en spænska stórliðið hefur ekki farið leynt með aðdáun sína á leikmanninum og er sagt reiðubúið að borga allt að 40 milljónir punda fyrir hann. Ástæðan fyrir þagnarbindindi Ronaldo er skipun frá Sir Alex Ferguson. 29.1.2007 20:58
Þjálfari Dana: Þetta verður eins og í hryllingsmynd Ulrik Wilbek, landsliðsþjálfari Dana, líkir leiknum við Íslendinga á HM í Hamborg á morgun við orrustu sem komi til með að vera eins og hin besta hryllingsmynd að horfa á. Danski þjálfarinn varar við of mikilli bjartsýni. 29.1.2007 20:45
Boldsen: Skipuleggjendur eru heiladauðir Joachim Boldsen, leikmaður danska handboltalandsliðsins, vandar skipuleggjendum Heimsmeistaramótsins í Þýskalandi ekki kveðjurnar og segir "heiladauða" einstaklinga vera ábyrga fyrir klúðrinu sem hefur átt sér stað í miðsölunni fyrir leikinn gegn Íslendingum á morgun. 29.1.2007 19:50
Charlton hafnaði tilboði West Ham í Hermann Sky Sports fréttastofan í Englandi sagði frá því í dag að Charlton hefði hafnað rúmlega 300 milljóna tilboði West Ham í íslenska varnarmanninn Hermann Hreiðarsson. Eggert Magnússon og Alan Curbishley þekkja vel til Hermanns og hæfileika hans - Curbishley frá stjóratíð sinni hjá Charlton og Eggert frá starfi sínu hjá KSÍ. 29.1.2007 19:21
Sverre og Róbert með bestu nýtinguna Sverre Jakobsson og Róbert Gunnarsson eru með langbestu skotnýtinguna af leikmönnum íslenska landsliðsins á HM. Róbert hefur skorað úr 13 af 14 skotum sínum í keppninni til þess og er með 93% skotnýtingu en Sverre hefur gert enn betur og er með 100%. Þess ber þó að geta að hann hefur aðeins skotið tvisvar á markið. 29.1.2007 19:00
Magath: Við höfum saknað Hargreaves Felix Magath, þjálfari Bayern Munchen, segir að Owen Hargreaves hafi verið sárlega saknað á miðju þýska liðsins upp á síðkastið en fjórir mánuðir eru síðan enski landsliðsmaðurinn fótbrotnaði. Hann er hins vegar byrjaður að æfa á fullum krafti að nýju og gæti leikið sinn fyrsta leik eftir meiðslin gegn Bochum á morgun. 29.1.2007 19:00
Byrjunarlið Íslands er eitt það besta í heimi Peter Henriksen, annar markmanna danska landsliðsins í handbolta, segir að liðinu bíði erfitt verkefni gegn Íslandi í 8-liða úrslitum HM í Þýskalandi. Hann telur byrjunarlið Íslands vera eitt það allra besta í heimi en lykillinn að sigri sé að stöðva Ólaf Stefánsson. 29.1.2007 18:00
Boldsen undir smásjá spænskra stórliða Joachim Boldsen, leikstjórnandi danska handboltalandsliðsins, er undir smásjá spænskra stórliða eftir að hafa spilað eins og engill á HM í Þýskalandi. Boldsen hefur verið á mála hjá Flensburg undanfarin ár en hefur þegar ákveðið að ganga til liðs við AaB í heimalandi sínu á næsta tímabili. Það ku hins vegar vera gamall draumur leikmannsins að reyna fyrir sér á Spáni. 29.1.2007 17:30
Þjálfari Frakka er ekki bjartsýnn Claude Onesta, þjálfari franska landsliðsins í handbolta, er ekki bjartsýnn fyrir viðureign sinna manna gegn Króötum í 8-liða úrslitum Heimsmeistarakeppninnar á morgun. Onesta segir Króata með sigurstranglegasta liðið í Þýskalandi þar sem þeir séu eina taplausa liðið til þessa. Þjálfari Króata segir öll lið eiga jafna möguleika á sigri. 29.1.2007 17:15
Mourinho hló að meiðslum Shevchenko Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, hló sig máttlausan þegar úkraínski framherjinn Andrei Shevchenko var tæklaður harkalega niður af varnarmanni Nottingham Forest í leik liðanna í ensku bikarkeppninni í gær. Myndir náðust af Mourinho hlæjandi þegar Shevchenko lá sárkvalinn í grasinu. 29.1.2007 17:00
Danir eru mun sigurstranglegri en Íslendingar Erik Veje Rasmussen, þjálfari Aarhus í Danmörku og helsti HM-sérfræðingur blaðsins Berlinske Tidende í heimalandi sínu, telur að Danir séu mun sigurstranglegri en Íslendingar í viðureign liðanna í 8-liða úrslitum HM í Þýskalandi. Rasmussen telur að Danir séu einnig með sterkara lið en Rússar og Pólverjar, en það verða væntanlegir mótherjar í undanúrslitum. 29.1.2007 16:30
Eiður Smári orðaður við West Ham Breska slúðurblaðið Daily Star sagði frá því í gær að Alan Curbishley hefði hug á því að fá Eið Smára Guðjohnsen til West Ham áður en lokast fyrir félagsskiptagluggann í þessari viku. Er Curbishley sagður ætla að nýta sér hinn íslensku sambönd félagsins til þess að lokka Eið Smára frá Barcelona. 29.1.2007 16:00
Guðjón Valur enn í hópi markahæstu manna Guðjón Valur er í 4.-5. sæti á lista markahæstu leikmanna HM í Þýskalandi þegar keppni í milliriðlum er lokið, en hann hefur skorað 47 mörk í sjö leikjum. Ef mörk úr vítaköstum eru dregin frá leikmönnum er Guðjón Valur hins vegar markahæstur allra, en hann hefur aðeins skorað eitt mark úr vítakasti. Tékkinn Filip Jicha er enn markahæstur með 55 mörk. 29.1.2007 15:30
Tucker Hibbert vinnur í X-Games Arctic Cat ökumaðurinn og undrið Tucker Hibbert kom sá og sigraði í X-Games á laugardaginn. Liðstjóri og viðgerðamenn hans tóku þó mikla áhættu með bensínið hjá kappanum,því þegar Tucker tók köflótta flaggið varð hann bensínlaus. 29.1.2007 15:01
Maria Sharapova: Ég er sú besta Vont tap gegn Serenu Williams í úrslitum opna ástralska meistaramótsins í tennis um helgina hefur ekki slegið rússnesku drottninguna Mariu Sharapovu út af laginu. Sharapova er í efsta sæti á nýjum heimslista sem birtur var í morgun og segir hún það ekki vera neina tilviljun. 29.1.2007 15:00
Eggert Magnússon: Áform Platini eru óraunhæf Eggert Magnússon, fyrrum meðlimur í framkvæmdastjórn UEFA, segir að áform Michael Platini um að fækka liðum frá stærstu deildum Evrópu sem eiga gjaldgengt í Meistaradeild Evrópu vera óraunhæf. Platini var í síðustu viku kosinn nýr forseti UEFA og hafði hann boðað róttækar breytingar á fyrirkomulagi Meistaradeildarinnar. 29.1.2007 14:36
Montgomerie vill verða fyrirliði Evrópuliðsins Skoski kylfingurinn Colin Montgomerie hefur sett sér það markmið að verða fyrirliði Evrópuliðsins í keppninni um Ryder-bikarinn árið 2010. Fari svo að honum takist ekki ætlunarverk sitt mun Montgomerie freista þess að hljóta nafnbótina árið 2014, en þá fer keppnin fram í heimalandi hans. 29.1.2007 14:30
Chelsea heppið með dráttinn í bikarnum Englandsmeistarar Chelsea voru einstaklega heppnir þegar dregið var í 16-liða úrslit ensku bikarkeppninnar nú í hádeginu því þar mætir liðið annaðhvort 1. deildarliðinu Norwich eða 2. deildarliðinu Blackpool. Manchester United var ekki eins heppið því það verður Reading sem kemur í heimsókn á Old Trafford. 29.1.2007 14:05
Þrír með ólöglegt bensín í Anaheim. Nick Way ásamnt þeim Joshua Hill og Jason Thomas voru teknir með ólöglegt bensín í þriðju umferð AMA supercross í Anaheim nú á dögunum. Eldsneyti var tekið til athugunar úr níu hjólum og reyndust þessi þrjú hjól vera með eldsneyti sem ekki leyfist AMA supercrossinu. Þeim hefur því verið refsað með því að taka af þeim stigin sem þeir fengu ásamnt því að fá sekt fyrir athæfið. 29.1.2007 14:04