Handbolti

Ísland yfir í hálfleik

NordicPhotos/GettyImages

Íslendingar leiða með 17 mörkum gegn 16 mörkum Dana þegar flautað hefur verið til hálfleiks. Íslendingar náðu mest þriggja marka forystu en Danir náðu að jafna rétt fyrir hálfleikinn. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði hinsvegar á lokasekúndum hálfleiksins og Íslendingar því með forystu sem fyrr segir.

Frakkar hafa yfir 10-9 gegn Króötum þegar flautað hefur verið til hálfleiks í viðureign þjóðanna í 8-liða úrslitunum.

Markaskorarar Íslands:

Snorri Steinn Guðjónsson 3

Alexander Petersson 2

Ólafur Stefánsson 3

Logi Geirsson 4

Guðjón Valur Sigurðsson 2

Róbert Gunnarsson 3






Fleiri fréttir

Sjá meira


×