Handbolti

Miðar á leik Dana og Íslendinga seldir á uppsprengdu verði

mynd/pjetur
Miðar á leik Íslands og Danmerkur á heimsmeistaramótinu í handknattleik seljast nú á nærri fjórföldu því verði sem þeir kostuðu í forsölu eftir því sem fram kemur á vef danska blaðsins Politiken.

Eins og við greindum frá í morgun var uppselt á leikinn í kvöld áður en vitað var hverjir myndu mætast en svo virðist sem hópur fólks hafi engan hug á að sjá leikinn því miðar á leikinn bjóðast nú á uppsprengdu verði á þýskri útgáfu uppboðsvefjarins eBay. Á vef Politiken segir að boðið hafi verið á tólfta þúsund króna í miða sem seldir hafi verið á rúmlega þrjú þúsund krónur í forsölu. Er því bætt við að miðar á leiki í undanúrslitum séu sömuleðis til sölu á vefnum og einnig á uppsprengdu verði.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×