Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
LeBron James fékk flest atkvæði Nú er búið að birta lista yfir þá leikmenn sem verða í byrjunarliðum Austur- og Vesturdeildar í Stjörnuleiknum í NBA deildinni, sem haldinn verður í Las Vegas í næsta mánuði. LeBron James sló Kínverjanum Yao Ming við að þessu sinni og fékk flest atkvæði aðdáenda um allan heim - rúmar 2,5 milljónir atkvæða. 26.1.2007 12:55
Íslendingar mæta Serbum Í dag var dregið í umspilsleikina um sæti á EM í handbolta sem fram fer í Noregi eftir eitt ár. Íslenska liðið mætir þar Serbum um laust sæti og fara leikirnir fram í júní í sumar. Ljóst er að þetta verður erfitt verkefni, enda Serbar með sterkt lið. Hér fyrir neðan má sjá hvaða þjóðir mætast í umspilinu. 26.1.2007 12:35
Chicago stöðvaði sigurgöngu Dallas Tveir leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Chicago Bulls stöðvaði átta leikja sigurgöngu Dallas Mavericks og þá tapaði New Jersey þriðja leiknum í röð með aðeins einu stigi þegar liðið lá fyrir LA Clippers. 26.1.2007 12:09
Platini kjörinn forseti UEFA Michel Platini, fyrrverandi leikmaður og þjálfari franska landsliðsins, var fyrir stundu kjörinn forseti Knattspyrnusambands Evrópu, UEFA, á ársþingi sambandsins í Düsseldorf í Þýskalandi. Hann atti kappi við sitjandi formann, Svíann Lennart Johansson sem setið hefur í stólnum frá árinu 1998, og hlaut 27 atkvæði en Johansson fékk 23 atkvæði. 26.1.2007 12:03
Watson meidd og á heimleið Kvennalið Keflavíkur hefur orðið fyrir áfalli því Takesha Watson er með rifinn liðþófa og á heimleið. Watson hefur leikið mjög vel með Keflavíkurliðinu í vetur en hún er búin að skora 23,7 stig og gefa 6,1 stoðsendingu að meðaltali í 13 leikjum sínum í deildinni. 26.1.2007 00:01
Milljónir fylgjast með HM Skipuleggjendur heimsmeistaramótsins í Þýskalandi eru hæstánægðir með hvernig til hefur tekist. Vel er mætt á leikina og mikil stemning í húsunum. Áhorf í sjónvarpi er einnig gott og fer vaxandi. 26.1.2007 00:01
Alfreð: „Mjög sérstakir dómar“ Alfreð Gíslason segir dómgæsluna í leiknum við Pólverja hafa verið mjög sérstaka á köflum en vill þó ekki kenna dómurunum alfarið um tapið. „Við vorum bara ekki að spila vel í vörninni“, segir Alfreð sem einnig hefur nokkrar áhyggjur af meiðslum íslensku leikmannana enda sé breiddin ekki mikil. 25.1.2007 20:42
Snorri: „Ekki dómurunum að kenna“ Snorri Steinn Guðjónsson segir íslenska liðið bara geta sjálfu sér kennt um tapið gegn Pólverjum. „Við vorum að fá á okkur mörk einum fleiri trekk í trekk, við erum að skjóta of snemma í sókninni og gera tæknifeila, þetta liggur eiginlega alfarið hjá okkur“, segir Snorri Steinn. 25.1.2007 20:30
Tap fyrir Pólverjum Íslenska landsliðið tapaði í kvöld 35-33 fyrir Þjóðverjum í milliriðli 1 á HM. Íslenska liðið hafði yfir í hálfleik 14-12, en Pólverjar sigu framúr í lokin og tryggðu sér mikilvægan sigur. Lukkan var einfaldlega ekki á bandi íslenska liðsins í kvöld, spænsku dómararnir áttu ekki góðan dag og þá urðu þeir Logi Geirsson og Guðjón Valur fyrir meiðslum eftir fólskuleg brot Pólverja. 25.1.2007 18:55
Milan og Roma skildu jöfn AC Milan og Roma skildu jöfn 2-2 í fyrri leik sínum í undanúrslitum ítalska bikarsins á San Siro í kvöld. Heimamenn komust í 2-0 með mörkum frá Olivera og Inzaghi, en gestirnir jöfnuðu með mikilli baráttu með mörkum frá Perotta og Pizarro. 25.1.2007 22:30
Blatter varpaði sprengju á UEFA þinginu Sepp Blatter, forseti FIFA, náði að hleypa lífi í síðari daginn á ársþingi UEFA þegar hann lýsti yfir stuðningi við Michel Platini yfir Lennart Johansson sitjandi forseta - aðeins innan við tveimur sólarhringum fyrir forsetakosningarnar. Blatter á að heita hlutlaus í þessu sambandi, en ekki tóku allir jafn vel í uppátæki hans. 25.1.2007 21:17
Þjálfari Dana: „Við höfum breidd en Spánverjar ekki“ Ulrik Wilbek landsliðsþjálfari Dana segist hafa séð fyrir sigur sinna manna á heimsmeisturum Spánverja. „Spánverjarnir voru þreyttir í kvöld. Ég hef allan tímann sagt að ég væri sannfærður um að við mundum vinna þennan leik. Þetta er langt mót og liðin þurfa að hafa breidd. Hana höfum við en Spánverjar ekki,“ sagði Wilbek í viðtali við TV2 í Danmörku. 25.1.2007 21:08
Logi Geirsson ætlar að spila næsta leik Logi Geirsson varð fyrir meiðslum á öxl í leiknum gegn Pólverjum í kvöld, en þessi sama öxl fór úr lið fyrir um tveimur mánuðum. Logi ætlar ekki að láta þetta hafa áhrif á sig og lýsti því yfir í kvöld að hann ætlaði að spila gegn Slóvenum hvað sem raulaði eða tautaði. Þá er Guðjón Valur Sigurðsson nokkuð þjáður eftir að hafa fengið þungt högg á lærið og verður eflaust nokkurn tíma að jafna sig. 25.1.2007 20:57
Sigrar hjá Dönum og Frökkum Danir unnu heimsmeistara Spánverja í síðasta leik dagsins í milliriðli 2 á HM með fjórum mörkum 27-23. Það var að duga eða drepast fyrir Dani en þeir voru stigalausir í riðlinum fyrir. Spánverjar eru hinsvegar með 4 stig eftir leikinn og í góðri stöðu þrátt fyrir tapið. Í milliriðli 1 sigruðu Frakkar Slóvena mjög öruggt með 33 mörkum gegn 19. Frakkar eru komnir upp að hlið Íslands, Þýskalands og Póllands í riðlinum, öll liðin með 4 stig. 25.1.2007 20:49
Samba til Blackburn Enska úrvalsdeildarfélagið Blackburn gekk í dag frá kaupum á kongóska landsliðsmanninum Christopher Samba frá Hertha Berlín í Þýskalandi. Hinn 22 ára gamli varnarmaður hefur skrifað undir samning til ársins 2010, en hann er fæddur í París í Frakklandi. 25.1.2007 20:44
Ronaldinho upp með sér yfir áhuga Chelsea Brasilíski snillingurinn Ronaldinho segist upp með sér yfir þeim áhuga sem fullyrt er að Chelsea og AC Milan hafi á því að fá hann í sínar raðir, en segist staðráðinn í að vera áfram hjá Barcelona þar sem hann ætli sér að vinna fleiri titla. 25.1.2007 20:29
Skotar ráða nýjan þjálfara á mánudag Skoska knattspyrnusambandið hefur boðað til blaðamannafundar á mánudag þar sem nýr landsliðsþjálfari verður kynntur til sögunnar. Fastlegar er reiknað með því að það komi í hlut fyrrum Rangers-þjálfarans Alex McLeish að taka við starfi Walter Smith, sem lét af störfum 10. janúar - einmitt til að taka við liði Rangers. 25.1.2007 20:22
Taylor hættur með enska U-21 árs liðið Peter Taylor sagði í dag af sér sem þjálfari U-21 árs liðs Englendinga í knattspyrnu. Taylor er líka knattspyrnustjóri 1. deildarliðsins Crystal Palace og segist vilja einbeita sér að því að stýra liði Palace. 25.1.2007 20:19
Drogba viðurkennir titring í herbúðum Chelsea Fílstrendingurinn Didier Drogba hjá Chelsea segir að vissulega hafi verið titringur í herbúðum félagsins að undanförnu, en segist styðja knattspyrnustjórann sinn í einu og öllu. 25.1.2007 20:06
Ronaldo á enn eftir að standast læknisskoðun Ekki er enn búið að setja stimpilinn á kaup AC Milan á brasilíska framherjanum Ronaldo frá Real Madrid, þar sem leikmaðurinn á enn eftir að standast læknisskoðun. Forseti Milan segir að ekki komi til greina að ganga frá kaupunum nema Ronaldo sé í toppstandi, en sú hefur ekki alltaf verið raunin hjá Brassanum markheppna. 25.1.2007 20:02
Hleb verður frá keppni í mánuð Miðjumaðurinn Alexander Hleb verður ekki með liði Arsenal næstu vikurnar eftir að hann tognaði á læri í leiknum við Tottenham í gærkvöld. Þá er talið að Robin Van Persie gæti þurft allt að tíu vikur til að jafna sig af ristarbroti sínu, en ekki sex eins og talað var um í fyrstu. 25.1.2007 19:58
Króatar öruggir í átta liða úrslit Króatar urðu í kvöld fyrstir til að tryggja sig í átta liða úrslit á HM í handbolta með sjö marka sigri á Ungverjum 25-18 og eru þeir komnir með sex stig í milliriðli 2. Blazenko Lackovic var markahæstur Króata með 7 mörk og Dragan Jerkovic varði 17 skot í markinu. Hjá Ungverjum var Gergö Ivancsik markahæstur með sex mörk. Stórskyttan Lazlo Nagy átti dapran dag fyrir Ungverja en hann skoraði aðeins 1 mark úr fimm tilraunum. 25.1.2007 19:06
Auðveldur sigur Þjóðverja á Túnisum Þjóðverjar létu ekki smá hik í byrjun hafa áhrif á sig og völtuðu yfir Túnisa 35-28 í milliriðli 1 í dag. Túnis komst í 3-1 í leiknum en eftir það var leikurinn eign heimamanna sem leiddu 19-11 í hálfleik. Markvörðurinn Henning Fritz var kjörinn maður leiksins. 25.1.2007 17:24
Alfreð og Wenta mætast á ný Nú styttist í leik Íslendinga og Pólverja á HM en hann hefst klukkan 17:30. Frægasti leikur Íslendinga og Pólverja er eflaust einvígi liðanna í B-keppninni árið 1989, en þar mættust þjálfarar liðanna Alfreð Gíslason og Bogdan Wenta á vellinum og verða nú að gera sér að góðu að fylgjast með af hliðarlínunni. 25.1.2007 17:14
Pólverjar með grófasta liðið á HM Pólska landsliðið er grófasta liðið á HM til þessa samkvæmt stigagjöf Alþjóða Handknattleikssambandsins. Þessar niðurstöður eru reiknaðar út frá tveggja mínútna brottrekstrum og gulum og rauðum spjöldum. Suður-Kórea er þannig prúðasta liðið á HM fyrir keppni dagsins í dag, en íslenska liðið er þar í 14. sæti. 25.1.2007 17:01
Nistelrooy hefur ekkert á móti Ronaldo Ruud Van Nistelrooy segir að hann hafi ekkert á móti fyrrum félaga sínum Cristiano Ronaldo hjá Manchester United, en langlífar vangaveltur fjölmiðla um að Real ætli sér að kaupa Portúgalann urðu til þess að blaðamenn rifjuðu upp deilur sem komu upp milli þeirra félaga á sínum tíma. 25.1.2007 15:52
Federer er að verða besti tennisleikari allra tíma Tennisgoðsögnin Rod Laver, sem margir sérfræðingar kalla besta tennisleikara allra tíma, segir að Roger Federer sé kominn vel á veg með að geta kallast sá besti sem uppi hefur verið. Þetta sagði Laver eftir að hann horfði upp á Federer bursta Andy Roddick í undanúrslitunum á opna ástralska í morgun. 25.1.2007 15:23
United er betra lið en Chelsea Eric Cantona, fyrrum leikmaður Manchester United, segir að United sé með betra lið en Chelsea í dag og verði það næstu árin. Cantona vann sjálfur fjóra meistaratitla með United á sínum tíma og segir Alex Ferguson vera rétta manninn til að tryggja góðan árangur liðsins næstu ár. 25.1.2007 14:17
Parlour og Ehiogu farnir frá Middlesbrough Gareth Southgate, stjóri Middlesbrough, hefur leyst þá Ray Parlour og Ugo Ehiogu undan samningi sínum við félagið. Parlour er 33 ára og hefur átt við þrálát meiðsli að stríða, en hann er nú að leita sér að nýju félagi og ekki er talið útiloka að hann fari til Bandaríkjanna. Ehiogu er í viðræðum við Rangers í Skotlandi. 25.1.2007 13:55
Sharapova og Williams leika til úrslita Það verða Maria Sharapova og Serena Williams sem leika til úrslita á opna ástralska meistaramótinu í tennis. Sharapova lagði Kim Clijsters frá Belgíu nokkuð örugglega í undanúrslitum 6-4 og 6-2, en þetta var síðasta keppni Clijsters í Ástralíu því hún er að hætta eftir tímabilið. Williams vann góðan sigur á hinni 17 ára Nicole Vaidisova 7-6 (7-5) og 6-4 í hörkuleik og verður þetta fyrsti úrslitaleikur hennar á stórmóti í tvö ár. 25.1.2007 13:09
Ronaldo farinn til Milan Brasilíski framherjinn Ronaldo hjá Real Madrid er genginn í raðir AC Milan og er kaupverðið sagt um 6 milljónir evra. Ronaldo lék áður með Inter á Ítalíu og er því öllum hnútum kunnugur í Mílanó. Hann er þrítugur og hafði átt erfitt uppdráttar hjá Real síðan Fabio Capello tók þar við stjórnartaumum. 25.1.2007 13:03
Federer valtaði yfir Roddick og er kominn í úrslit Tenniskappinn Roger Federer sýndi úr hverju hann er gerður í morgun þegar hann vann yfirburðasigur á Bandaríkjamanninum Andy Roddick í undanúrslitum opna ástralska meistaramótsins 6-4, 6-0 og 6-2. Roddick náði 4-3 forystu í fyrsta settinu, en var aðeins áhorfandi eftir það þar sem Federer stormaði áfram og vann leikinn á klukkustund og 23 mínútum. 25.1.2007 12:59
Tottenham fer beint í 16-liða úrslit Nú hefur Knattspyrnusamband Evrópu staðfest að Tottenham muni sitja hjá í 32-liða úrslitum UEFA keppninnar eftir að hollenska liðinu Feyenoord var vísað úr keppni vegna óláta stuðningsmanna liðsins fyrr í keppninni. Svo gæti farið að niðurstöðunni verði áfrýjað, en Tottenham mætir að öllu óbreyttu Braga eða Parma í næstu umferð. 25.1.2007 12:56
Miami tapaði í endurkomu Shaquille O´Neal Shaquille O´Neal spilaði í nótt sinn fyrsta leik með Miami Heat síðan í nóvember þegar hann kom af bekknum í tapi Miami á útivelli fyrir Indiana Pacers. Cleveland er í bullandi vandræðum og tapaði á heimavelli fyrir lágt skrifuðu liði Philadelphia. Báðir leikir fóru í framlengingu. 25.1.2007 12:26
Fyrsta tap Lyon á heimavelli í vetur Fimmfaldir meistarar í franska boltanum, Lyon, töpuðu fyrsta heimaleik sínum á tímabilinu þegar liðið beið lægri hlut fyrir Bordeux. 25.1.2007 11:53
Fer ekki á Opna breska ef það stangast á við fæðingu frumburðar Besti kylfingur heims, Tiger Woods, segir ekki víst að hann verji titil sinn á Opna breska meistaramótinu í golfi sem fram fer 19.-22. júlí á Carnoustie-vellinum. Ástæðan er sú að eiginkona hans, hins sænska Elin, á von á barni í júlímánuði. 25.1.2007 11:43
Fimmtán sigurleikir í röð hjá Phoenix Suns Phoenix Suns náði þeim merka áfana í gær að sigra í 15 leikjum í röð í NBA-deildinni þegar liðið lagði New York Knicks 112-107 í Madison Square Garden. Liðið er það fimmta sem nær þessum árangri í deildinni en áður hafa LA Lakers, Utah Jazz, Milwaukee Bucks og Washington Capitals unnið fimmtán leiki í röð. 25.1.2007 11:26
Asterisk með nýjar spelkur Hnéspelkuframleiðandinn Asterisk frumsýndi á dögunum 2007 línuna af Asterisk hnéspelkunum. Spelkurnar eru nánast þær sömu og 2006 nema að nýjar festingar og teygjur eru komnar á bakhlið spelknanna. 25.1.2007 11:14
Taylor hættir sem þjálfari ungmennaliðs Englendinga Peter Taylor hefur sagt starfi sínu lausu sem þjálfari 21 árs landsliðs Englendinga til þess að einbeita sér að þjálfun enska fyrstu deildar liðsins Crystal Palace. Taylor hefur þjálfað ungmennaliðið í nærri þrjú ár en hann þjálfaði það einnig á árabilinu 1996-1999. 25.1.2007 11:05
Bann og sekt vegna slæmrar hegðunar Hlynur Sigmarsson, formaður handknattleiksdeildar ÍBV, hefur verið úrskurðaður í tveggja leikja bann og deildin sektuð um 50 þúsund krónur vegna hegðunar Hlyns á leik ÍBV og Stjörnunnar í Eyjum þann 20. janúar. 25.1.2007 10:50
Federer í úrslit á Opna ástralska Svisslendingurinn Roger Federer átti ekki vandræðum með að tryggja sér sæti í úrslitum Opna ástrálska meistaramótsins í tennis en hann lagði í morgun Bandaríkjamanninn Andy Roddick örugglega í undanúrslitum, 6-4,6-0 og 6-2. 25.1.2007 10:26
Real sagt reiðubúið að borga 4,5 milljarða fyrir Cristiano Ronaldo Spænskir miðlar greina frá því í morgun að Real Madrid sé reiðubúið að greiða Manchester United 50 milljónir evra, jafnvirði um 4,5 milljarða króna, fyrir portúgalska landsliðsmanninn Cristiano Ronaldo. 25.1.2007 10:13
Tomasson lánaður til Stuttgart Hinn íslenskættaði Dani Jon Dahl Tomasson hefur verið lánaður til spænska liðsins Villareal þar sem eftir er tímabilsins en hann hefur verið á mála hjá þýska liðinu Stuttgart. 25.1.2007 09:57
Austrið mætir vestrinu á Opna ástralska Það verða hin rússneska Maria Sharapova og bandaríska stúlkan Serena Williams sem leika til úrslita á Opna ástralska meistaramótinu í tennis um helgina. 25.1.2007 09:30
Kewell vonast til að verða klár fyrir leikina gegn Barcelona Harry Kewell, hin meiðslum hráði leikmaður Liverpool vonast til að vera orðinn heill heilsu fyrir leikina gegn Barcelona í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Kewell hefur ekkert spilað á yfirstandandi leiktíð eftir að hann meiddist á heimsmeistaramótinu í Þýskalandi í fyrra. 25.1.2007 09:18
Vilja sjá Þórólf hugsa líka um konurnar: „Gæti gert þetta að ríkasta liði landsins“ Íslenski boltinn