Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Valencia - Mallorca í beinni á Sýn Extra í kvöld Leikur Valencia og Mallorca í spænska boltanum verður sýndur beint á Sýn Extra klukkan 19:55 í kvöld, en leikurinn verður svo sýndur á Sýn að loknum leik Liverpool og Arsenal í enska deildarbikarnum. Annað kvöld verður svo leikur Real Madrid og Recreativo í beinni á Sýn Extra á sama tíma og leikur Newcastle og Chelsea í deildarbikarnum á Englandi sýndur beint á Sýn. 19.12.2006 16:28
Söknum Ballack ekki neitt Karl-Heinz Rummenigge, stjórnarformaður Bayern Munchen, segir að félagið sakni miðjumannsins Michael Ballack ekki neitt og segir þá gagnrýni sem liðið hefur orðið fyrir undanfarið vera alveg þá sömu og á síðasta ári þegar þýski landsliðsmaðurinn var í herbúðum liðsins. 19.12.2006 16:01
Máli ÍR og KA/Þórs lokið Sameinað lið KA og Þórs frá Akureyri leikur í Landsbankadeild kvenna næsta sumar en ekki ÍR. Þetta úrskurðaði áfrýjunardómstóll ÍSÍ í dag. ÍR vann einvígi liðanna samanlagt 3-2 í september, en tefldi fram ólöglegum leikmanni og því var norðanliðinu dæmdur 3-0 sigur. 19.12.2006 15:17
Liverpool - Arsenal í beinni á Sýn í kvöld Stórleikur Liverpool og Arsenal í enska deildarbikarnum verður sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn í kvöld og hefst útsending klukkan 19:35. Bæði lið gera miklar breytingar fyrir leik kvöldsins. 19.12.2006 15:06
Röber tekur við Dortmund Jurgen Röber, fyrrum þjálfari Stuttgart og Wolfsburg, var í dag ráðinn þjálfari þýska úrvalsdeildarliðsins Dortmund í stað Hollendingsins Bert van Marwijk sem rekinn var í gær. Dortmund er í miklum fjárhagserfiðleikum og því bíður Röber erfitt verkefni hjá stórliðinu. 19.12.2006 14:22
Sveinn farinn að æfa með Barcelona Fréttir frá Spáni í dag herma að Eiður Smári Guðjohnsen hafi nú komið átta ára gömlum syni sínum Sveini að hjá yngri flokkum Barcelona þar sem hann mun æfa undir handleiðslu góðra manna. Það er því útlit fyrir að knattspyrnuhefðin sterka í fjölskyldunni haldi áfram og hver veit nema Sveinn feti í fótspor föður síns og afa og verði atvinnumaður í knattspyrnu í framtíðinni. 19.12.2006 14:13
Henry íhugar að spila fimm ár í viðbót Franski framherjinn Thierry Henry hjá Arsenal segist geta hugsað sér að spila fimm ár til viðbótar áður en hann leggur skóna á hilluna. Þetta sagði Frakkinn eftir að hann var kjörinn knattspyrnumaður Frakklands í fimmta sinn í gær, en hann er 29 ára gamall. 19.12.2006 14:02
Everton leggur fram kvörtun vegna Mourinho Forráðamenn Everton hafa nú ákveðið að leggja fram formlega kvörtun vegna ummæla Jose Mourinho knattspyrnustjóra Chelsea á hendur framherjanum Andy Johnson eftir leik liðanna á sunnudag. Mourinho sakaði Johnson um leikaraskap og hafa Everton menn brugðist harkalega við þessu. 19.12.2006 13:50
Hargreaves til sölu? Uli Hoeness, framkvæmdastjóri Bayern Munchen, hefur nú látið í veðri vaka að Owen Hargreaves gæti farið frá félaginu í framtíðinni, en aðeins ef félagið gæti fengið mann í staðinn á viðráðanlegu verði. Hann segir þó að liðið þurfi á enska landsliðsmanninum að halda í næstu umferð Meistaradeildarinnar þegar hann verði búinn að ná sér af meiðslum. 19.12.2006 13:47
New York lagði Utah á flautukörfu Fámennt lið New York gerði sér lítið fyrir og lagði Utah Jazz í framlengdum leik á NBA TV í nótt þar sem Stephon Marbury tryggði New York 97-96 sigur með sniðskoti um leið og leiktíminn leið. Utah hafði feikna yfirburði í upphafi leiks og stefndi í stórtap New York, en gestirnir spiluðu sinn versta leik á tímabilinu eftir það og heimamenn gengu á lagið og höfðu sigur. 19.12.2006 13:27
Heiðar skoraði í sigri Fulham Heiðar Helguson skoraði fyrra mark Fulham þegar liðið lagði Middlesbrough 2-1 í leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni. Heiðar kom Fulham yfir með marki úr víti eftir 12 mínútur og Brian McBride kom heimamönnum í 2-0 í fyrri hálfleik. Mark Viduka minnkaði muninn fyrir Boro eftir 74 mínútur en lengra komst Boro ekki. 18.12.2006 21:47
McCulloch kærður Miðjumaðurinn Lee McCulloch hjá Wigan hefur verið ákærður af enska knattspyrnusambandinu fyrir að kýla andstæðing sinn Chris Morgan í leik liðanna á dögunum. McCulloch hefur frest fram á morgundaginn til að svara til saka, en hann fer væntanlega í þriggja leikja bann vegna þessa. 18.12.2006 21:30
Reo-Coker fékk hatursbréf Umboðsmaður miðjumannsins Nigel Reo-Coker hjá West Ham segir að leikmanninum unga hafi borist hatursbréf fyrir leik West Ham og Manchester United í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag. 18.12.2006 20:55
Cannavaro maður ársins Ítalski varnarmaðurinn Fabio Cannavaro var í kvöld kjörinn knattspyrnumaður ársins af FIFA, Alþjóða Knattspyrnusambandinu. Zinedine Zidane varð í öðru sæti og Ronaldinho í því þriðja. Þetta eru þriðju verðlaunin sem Cannavaro sópar til sín á skömmum tíma, en hann var fyrir stuttu kjörinn knattspyrnumaður Evrópu. 18.12.2006 20:34
New York - Utah í beinni á NBA TV í kvöld Lið New York Knicks mætir undirmannað til leiks klukkan hálf eitt í nótt þegar það tekur á móti Utah Jazz í beinni útsendingu á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu. Þeir Mardy Collins, Nate Robinson og Jared Jeffries hjá New York verða allir í leikbanni í kvöld. 18.12.2006 19:53
Heiðar í byrjunarliði Fulham Heiðar Helguson er í fremstu víglínu hjá liði Fulham sem tekur á móti Middlesbrough í leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni. Fulham er í 15. sæti deildarinnar með 20 stig og Middlesbrough í því 17. með 17 stig. 18.12.2006 19:43
Wenger ákærður fyrir ólæti Arsene Wenger, stjóri Arsenal, var í dag ákærður fyrir ólæti sín í garð dómara í annað sinn á stuttum tíma, en hann lét dómara heyra það og var sendur upp í stúku á leik Arsenal og Portsmouth á dögunum. Wenger hefur frest til 5. janúar til að svara fyrir sig, en hann var sektaður um 10.000 pund fyrir rimmu sína við Alan Pardew á dögunum. 18.12.2006 18:24
Anthony fær 15 leikja bann Framherjinn Carmelo Anthony hjá Denver Nuggets í NBA deildinni var í dag settur í 15 leikja keppnisbann fyrir að vera í aðalhlutverki í slagsmálunum sem brutust út á leik New York Knicks og Denver á laugardagskvöldið. Alls þurfa leikmennirnir sem tóku þátt í látunum að sitja af sér 47 leikja bann. 18.12.2006 18:02
Curbishley skorar á Tevez að sanna sig Alan Curbishley, stjóri West Ham, hefur skorað á Carlos Tevez og aðra varamenn liðsins að sýna hvað í þeim býr á æfingum næstu daga, því liðið muni þurfa á þeim að halda í jólatörninni framundan. 18.12.2006 16:51
Jol hefur áhyggjur af hnénu á Lennon Martin Jol, stjóri Tottenham í ensku úrvalsdeildinni, segist vonast til að enski landsliðsmaðurinn Aaron Lennon verði orðinn klár í slaginn þegar liðið mætir Southend í deildarbikarnum á miðvikudag. Lennon fór í uppskurð á hné í haust og virðist enn ekki hafa náð sér að fullu. 18.12.2006 15:49
O´Neill hefur áhyggjur Martin O´Neill, þjálfari Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni, viðurkennir að hann hafi miklar áhyggjur af gengi liðins undanfarið eftir að því mistókst að sigra í sjötta leiknum í röð þegar það tapaði fyrir Bolton um helgina. 18.12.2006 15:41
Hitzfeld hafnaði Dortmund Ottmar Hitzfeld hefur hafnað tilboði þýska úrvalsdeildarliðsins Dortmund um að taka við þjálfun þess, en félagið hefur þegar tilkynnt að sitjandi þjálfari Bert van Marwijk hætti með liðið í vor. Hitzfeld segist ætla að einbeita sér að því að vinna fyrir sjónvarp í nánustu framtíð, en hann gerði Dortmund að Evrópumeisturum fyrir um áratug síðan. 18.12.2006 15:34
Hamar/Selfoss mætir KR Í dag var dregið í 8-liða úrslit bikarkeppni Lýsingar í körfubolta í karla- og kvennaflokki, en bikardrátturinn fór fram í húsakynnum Lýsingar. Í karlaflokki verða tvær viðureignir úrvalsdeildarliða þar sem ÍR mætir Skallagrími og Hamar/Selfoss tekur á móti KR. 18.12.2006 15:20
Eriksson í viðræðum við þrjú félög Umboðsmaður sænska þjálfarans Sven-Göran Eriksson segir skjólstæðing sinn vera í viðræðum við þrjú knattspyrnufélög og reiknar með því að fyrrum landsliðsþjálfari Englendinga verði kominn í vinnu snemma á næsta ári. Eriksson hefur verið orðaður við tvö frönsk lið og eitt frá Katar, en engin félög á Englandi hafa sett sig í samband við kappann. 18.12.2006 14:22
Woods sigraði á mótinu sínu Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods sigraði í nótt á Target World mótinu í golfi sem fram fór í Kaliforníu, en hann skipuleggur mótið sjálfur. Woods lauk keppni á 16 höggum undir pari, fjórum höggum á undan Ástralanum Geoff Ogilvy. Aðeins 16 kylfingar tóku þátt í mótinu og var sigurinn sá annar á þremur árum hjá Woods á mótinu. Hann gaf verðlaunaféð allt til góðgerðamála. 18.12.2006 13:39
Everton ósátt við Mourinho Knattspyrnufélagið Everton hefur farið þess á leit við Jose Mourinho knattspyrnustjóra Chelsea að hann biðjist afsökunar á ummælum sem hann lét falla um Andy Johnson, framherja Everton eftir leik liðanna í gær. Mourinho sagði Johnson hafa sótt of fast að markverðinum Hilario og vændi hann um ruddaskap. 18.12.2006 13:35
Óbreytt staða á FIFA listanum Íslenska landsliðið situr sem fyrr í 93. sæti á styrkleikalista FIFA sem birtur var í dag. Engar breytingar hafa orðið á efstu liðum heldur, þar sem Brasilíumenn sitja enn í toppsætinu, Ítalír í öðru og Argentínumenn í því þriðja. Íslenska liðið hefur unnið sig upp um eitt sæti á listanum á árinu. 18.12.2006 13:31
Gilbert Arenas skoraði 60 stig gegn Lakers Gilbert Arenas fór hamförum með liði Washington Wizards í nótt þegar liðið sigraði LA Lakers 147-141 í framlengdum leik í Staples Center í Los Angeles. Arenas skoraði 60 stig fyrir Washington og var lykilmaðurinn á bak við góðan sigur liðsins í frábærum leik sem sýndur var beint á NBA TV á Fjölvarpinu. 18.12.2006 13:21
Cannavaro leikmaður ársins hjá FIFA Þær fréttir láku út í dag að ítalski varnarmaðurinn Fabio Cannavaro hjá Real Madrid verði á morgun kjörinn knattspyrnumaður ársins hjá Alþjóða Knattspyrnusambandinu. Cannvaro var á dögunum kosinn knattspyrnumaður Evrópu og sagt er að Zinedine Zidane hafi orðið í öðru sæti í kosningu FIFA og Ronaldinho í því þriðja. 17.12.2006 22:15
Real vann nauman sigur Real Madrid vann gríðarlega mikilvægan sigur á Espanyol í spænska boltanum í kvöld þar sem Ruud van Nistelrooy skoraði sigurmark liðsins. Real náði að hanga á sigrinum þó það missti Fabio Cannavaro af velli með rautt spjald eftir 54 mínútur. Sevilla er í efsta sæti deildarinnar með 34 stig, Barcelona hefur 33 og á leik til góða og Real Madrid hefur 32 stig. 17.12.2006 21:15
Njarðvík og Keflavík halda sínu striki Það er að verða ansi þröngt á þingi á toppnum í Iceland Express deild karla í körfubolta, en í dag komst Njarðvík upp að hlið Skallagríms, Snæfells og KR á toppi deildarinnar með sigri á botnliði Hauka 104-99. Keflvíkingar geta komist upp að hlið toppliðanna með sigri í leiknum sem liðið á til góða en liðið lagði granna sína í Grindavík í dag 90-86. 17.12.2006 20:56
Flensburg og Kiel efst Viggó Sigurðsson stýrði liði Flensburg í toppsætið í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag þegar lið hans lagði Magdeburg á útivelli 34-29. Þetta var næst síðasti leikur liðsins undir stjórn Viggós en síðasti leikur hans með liðið verður sýndur beint á Sýn á Þorláksmessu. 17.12.2006 20:47
Sigurganga Hauka stöðvuð í Keflavík Íslandsmeistarar Hauka í körfubolta töpuðu sínum fyrsta leik í IE deild kvenna í körfubolta í dag þegar liðið lá fyrir Keflavík 92-85. Keflvíkingar eru því komnir á topp deildarinnar en Haukaliðið á leik til góða. 17.12.2006 19:38
Verðum að klára færin okkar Sir Alex Ferguson sagði sína menn í Manchester United hafa farið illa með færi sín enn eina ferðina í dag og sagði það helstu ástæðuna fyrir tapinu gegn West Ham. Hann vill þó ekki meina að Chelsea sé komið í vænlega stöðu til að hirða af þeim toppsætið í deildinni. 17.12.2006 19:06
Sjálfstraustið lykillinn að sigri Jose Mourinho segir að sjálfstraust leikmanna sinna hafi verið það sem gerði útslagið í mögnuðum sigri Chelsea á Everton í dag þar sem liðið lenti tvívegis undir á útvelli áður en það tryggði sér 3-2 sigur með glæsimarki Didier Drogba. 17.12.2006 18:57
Espanyol - Real Madrid í beinni á Sýn Leikur Espanyol og Real Madrid er nú hafinn í beinni lýsingu Arnars Björnssonar á Sýn, en þar á undan var leikur Recreativo og Sevilla í beinni og það voru gestirnir sem höfðu auðveldan sigur 4-1. Þá er enn eftir leikur Getafe og Atletico í spænska boltanum og svo verður leikur úr NFL í beinni auk Tiger Woods mótsins í golfi. 17.12.2006 18:06
West Ham lagði Manchester United Alan Curbishley knattspyrnustjóri átti sannkallaða draumabyrjun með liði West Ham í dag þegar hann stýrði liðinu til 1-0 sigurs á toppliði Manchester United í lokaleik dagsins í enska boltanum. Það var Nigel Reo-Coker, fyrirliði West Ham, sem skoraði sigurmark liðsins á 75. mínútu og því er forskot Man Utd aðeins tvö stig á toppnum eftir sigur Chelsea á Everton í dag. 17.12.2006 18:00
Ernie Els sigraði í Suður-Afríku Heimamaðurinn Ernie Els sigraði glæsilega á SA Airways mótinu í Suður-Afríku í dag en mótið var liður í evrópsku mótaröðinni. Els lék frábært golf á lokasprettinum og hafði betur gegn landa sínum Trevor Immelman. Els lauk keppni á 24 höggum undir pari en Immelman var þremur höggum þar á eftir. 17.12.2006 17:31
Norðmenn Evrópumeistarar Kvennalið Noregs varði í dag Evrópumeistaratitil sinn í handknattleik kvenna þegar liðið sigraði Rússa í úrslitaleik mótsins 27-24 eftir að hafa leitt í hálfleik 16-12. Frakkar hirtu þriðja sætið með sigri á Þjóðverjum í bronsleiknum 29-25. 17.12.2006 17:26
Loksins útisigur hjá Tottenham Tottenham vann í dag sinn fyrsta útisigur í ensku úrvalsdeildinni á leiktíðinni þegar liðið skellti Manchester City 2-1 á útivelli. Ungu mennirnir Calum Davenport og Tom Huddlestone komu Tottenham yfir í leiknum en Joey Barton minnkaði muninn fyrir City. Heimamenn áttu síðari háfleikinn og hefðu með öllu átt að fá vítaspyrnu undir lokin, en höfðu ekki heppnina með sér. 17.12.2006 17:14
Chelsea lagði Everton Englandsmeistarar Chelsea lentu tvisvar undir í leik sínum við Everton á útivelli í dag en náðu samt að hirða öll stigin og vinna 3-2 og halda því enn í við topplið Manchester United. Mikel Arteta og Joseph Yobo skoruðu mörk West Ham, en þeir Frank Lampard og Michael Ballack jöfnuðu fyrir Chelsea áður en Didier Drogba skoraði sigurmarkið með þrumuskoti skömmu fyrir leikslok. 17.12.2006 15:52
Jafnt í grannaslagnum í Glasgow Erkifjendurnir Glasgow Rangers og Glasgow Celtic gerðu í dag 1-1 jafntefli í skosku deildinni og hefur Celtic því enn 14 stiga forskot á toppi deildarinnar. Thomas Gravesen kom Celtic yfir á 38. mínútu í dag, en heimamenn í Rangers höfnuðu með marki Brahim Hemdani aðeins tveimur mínútum fyrir leikslok. 17.12.2006 15:09
Everton leiðir gegn Chelsea Everton leiðir 1-0 gegn Englandsmeisturum Chelsea þegar flautað hefur verið til leikhlés í viðureign liðanna á Goodison Park. Mikel Arteta skoraði mark Everton úr víti þegar skammt var eftir af fyrri hálfleik. Síðar í dag eigast svo við Manchester City og Tottenham og þá tekur West Ham á móti Man Utd. 17.12.2006 15:03
Phoenix jafnaði félagsmet Phoenix Suns vann í nótt 14. leikinn í röð í NBA deildinni í körfubolta þegar liðið skellti Sacramento 105-98 á útivelli. Á sama tíma tapaði Philadelphia 11. leiknum í röð í tapi gegn San Antonio 103-98, en eins og áður kom fram hér á vísi logaði leikur New York og Denver í slagsmálum áður en gestirnir sigruðu 123-100. 17.12.2006 14:54
Curbishley fær tíma og peninga Eggert Magnússon, stjórnarformaður West Ham, hefur lýst því yfir að Alan Curbishley knattspyrnustjóri muni fá allan þann tíma og fjármuni sem hann þarf til að koma West Ham á réttan kjöl í vetur. 17.12.2006 14:05