Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sevilla lagði Real Madrid Sevilla vann í kvöld mikilvægan 2-1 sigur á Real Madrid í uppgjöri liðanna í spænska boltanum. David Beckham kom Real yfir snemma leiks með glæsilegu marki úr aukaspyrnu, en Freddy Kanoute jafnaði fyrir Sevilla og það var svo varamaðurinn Chevanton sem skoraði sigurmark heimamanna með glæsilegri hjólhestaspyrnu 13 mínútum fyrir leikslok. Sevilla fór því upp fyrir Real í annað sæti deildarinnar. 9.12.2006 23:31
Gott kvöld hjá Íslendingum Þrír leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöl og segja má að þar voru íslensku leikmennirnir áberandi eins og svo oft áður. Snorri Steinn Guðjónsson skoraði 8 mörk og Einar Örn Jónsson 3 þegar hans menn í Minden unnu sjaldgæfan útisigur á Melsungen 27-28. 9.12.2006 22:15
Pardew hefur enn trú á sínum mönnum Alan Pardew, stjóri West Ham, viðurkenndi að lið hans hefði verið yfirspilað löngum stundum í dag þegar það steinlá 4-0 gegn Bolton í ensku úrvalsdeildinni. Pardew sagði vandræðaganginn í vörninni skrifast mikið til á þá staðreynd að miðverðir hans í dag hafi aldrei áður spilað leik saman. 9.12.2006 22:00
Naldo með þrennu í stórsigri Bremen Leikmenn Werder Bremen voru ekki lengi að hrista af sér vonbrigðin í Meistaradeildinni í vikunni þegar liðið malaði Frankfurt 6-2 á útivelli í þýsku úrvalsdeildinni í dag. Brasilíski varnarmaðurinn Naldo skoraði þrennu fyrir Bremen. Stuttgart lagði Bochum 1-0 og Bayern lagði Cottbus 2-1 með mörkum frá Schweinsteiger og Van Buyten. 9.12.2006 21:30
Mikið fjör í bikarnum á morgun Á morgun hefjast 16-liða úrslitin í Lýsingarbikar karla í körfubolta með fjórum leikjum. Grannliðin Hamar/Selfoss og Þór Þorlákshöfn eigast þá við í Hveragerði klukkan 16 og klukkan 19:15 mætast Keflavík B og Grindavík í Keflavík, Valur og Skallagrímur í Kennaraháskólanum og Tindastóll tekur á móti KR á Króknum. 9.12.2006 21:25
Gummersbach og Ciudad áfram Íslendingaliðið Gummersbach vann í dag sigur á rússneska liðinu Medvedi 32-29 í síðari viðureign liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í handbolta, en leikið var í Þýskalandi. Segja má að leikurinn hafi verið formsatriði fyrir lærisveina Alfreðs Gíslasonar eftir sex marka sigur í útileiknum. Róbert Gunnarsson skoraði 7 mörk fyrir Gummersbach, Guðjón Valur Sigurðsson 7 og varnarjaxlinn Guðlaugur Arnarsson 1. 9.12.2006 21:15
Ronaldinho tryggði Barcelona sigur Brasilíski snillingurinn Ronaldinho skoraði eina mark leiksins í kvöld þegar Barcelona sigraði Real Sociedad 1-0 í spænsku deildinni. Barcelona er því enn á toppnum en mátti þakka fyrir að sleppa með öll þrjú stigin í kvöld enda var liðið nokkuð frá sínu besta. Eiður Smári var í byrjunarliði Barcelona en fór af velli um miðjan síðari hálfleik. Nú er að hefjast bein útsending frá leik Real Madrid og Sevilla á Sýn. 9.12.2006 20:59
Birmingham á toppnum í 1. deild Birmingham smellti sér í dag á toppinn í ensku 1. deildinni með sannfærandi 3-1 sigri á Preston North End. Gary McSheffrey skoraði þrennu fyrir Birmingham en Derby lyfti sér í annað sætið með 1-0 sigri á lánlausu liði Leeds United á útivelli. 9.12.2006 20:25
Juventus á toppinn Juventus smellti sér á toppinn í ítölsku B-deildinni í knattspyrnu í dag þegar liðið lagði Verona 1-0 í dag með marki frá Mauro Camoranesi. Juventus er á toppnum ásamt Bologna með 28 stig, en Napoli getur komist á toppinn á ný með sigri á Cesena á mánudaginn. 9.12.2006 20:18
Elvis farinn úr húsi Steven Pressley, sem kallaður er Elvis á meðal stuðningsmanna skoska úrvalsdeildarfélagsins Hearts, var í dag látinn fara frá félaginu eftir deilur við eiganda félagsins. Mikil ólga hefur ríkt í herbúðum félagsins undanfarnar vikur og ljóst að eigandi félagsins verður ekki vinsælli í kjölfar þess að fyrirliðinn var látinn fara. 9.12.2006 20:11
Jermain Taylor mætir Kassim Ouma í kvöld Það má búast við hörkubardaga í Little Rock í kvöld þegar Bandaríkjamaðurinn Jermain Taylor tekur á móti Úgandamanninum Kassim Ouma. Taylor hefur helst unnið sér það til frægðar að sigra Bernard Hopkins, en Ouma er sannarlega sýnd veiði en ekki gefin. Báðir hafa þeir unnið 25 sigra og tapað aðeins einu sinni. 9.12.2006 19:23
Barcelona - Sociedad í beinni á Sýn Nú er hafin leikur Barcelona og Real Sociedad í spænska boltanum og er hann sýndur beint í lýsingu Harðar Magnússonar á sjónvarpsstöðinni Sýn. Eiður Smári Guðjohnsen er á sínum stað í byrjunarliði Barcelona en síðar í kvöld verður svo á dagskrá Sýnar leikur Sevilla og Real Madrid. 9.12.2006 19:16
Bolton burstaði West Ham Bolton burstaði West Ham 4-0 í lokaleiknum í ensku úrvalsdeildinni í dag þar sem þeir Björgólfur Guðmundsson og Eggert Magnússon sátu þungir á brún meðal áhorfenda og horfðu upp á lið sitt tapa enn eina ferðina. 9.12.2006 19:06
Tottenham burstaði Charlton Tottenham burstaði Charlton 5-1 í ensku úrvalsdeildinni í dag og því eru Hermann Hreiðarsson og félagar sem fyrr í vondum málum í botnbaráttunni. Liverpool burstaði Fulham 4-0 og Newcastle vann góðan 3-1 útisigur á Blackburn. 9.12.2006 17:05
Höldum með Arsenal á morgun Sir Alex Ferguson var mjög ánægður með frammistöðu sinna manna í grannaslagnum í Manchester í dag. United hafði sigur 3-1 og segir Ferguson liðið eiga að hafa reynslu til að verja forskot sitt á Chelsea áfram, en það er orðið 9 stig. Chelsea mætir Arsenal á morgun. 9.12.2006 16:42
Pearce samur við sig Stuart Pearce, stjóri Manchester City, er ekki vanur að skafa af hlutunum og það gerði hann heldur ekki í dag þegar hann var spurður út í brottrekstur framherjans Bernardo Corradi fyrir leikaraskap á lokamínútum leiksins gegn Manchester United. 9.12.2006 16:33
Kiel upp að hlið Flensburg á toppnum Kiel komst í dag upp að hlið Flensburg á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta þegar liðið skellti Lemgo 37-30 á heimavelli sínum. Logi Geirsson skoraði 4 mörk fyrir Lemgo í leiknum en Ásgeir Örn Hallgrímsson komst ekki á blað. Þrír leikir eru á dagskrá í deildinni síðar í kvöld. 9.12.2006 16:16
Níu sigrar í röð hjá Phoenix Phoenix Suns vann í nótt sinn níunda leik í röð í NBA deildinni þegar liðið skellti Boston á útivelli 116-111. Shawn Marion skoraði 29 stig og hirti 12 fráköst fyrir Phoenix en Paul Pierce skoraði 36 stig fyrir Boston. 9.12.2006 15:54
Tottenham yfir gegn Charlton Nú er kominn hálfleikur í leikjunum sex sem standa yfir í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Tottenham hefur 2-1 forystu gegn Hermanni Hreiðarssyni og félögum í Charlton. Dimitar Berbatov og Teemu Tainio komu heimamönnum í 2-0 en Michael Dawson jafnaði fyrir gestina með sjálfsmarki skömmu fyrir leikhlé. 9.12.2006 15:49
Góður árangur hjá Erni Sundkappinn Örn Arnarson komst í morgun í undanúrslit í 100 metra fjórsundi á EM í Helsinki þegar hann kom þriðji í mark á tímanum 54,32 sek og bætt eigið Íslandsmet í greininni um rúma sekúndu. 9.12.2006 15:32
United vann grannaslaginn Manchester United lagði granna sína í Manchester City 3-1 í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Wayne Rooney, Louis Saha og Cristiano Ronaldo skoruðu mörk United en Hatem Trabelsi minnkaði muninn fyrir City - sem missti Bernardo Corradi af velli með rautt spjald á síðustu mínútunni. United hefur því náð 9 stiga forskoti á Chelsea á toppi deildarinnar. 9.12.2006 14:48
Dramatískur sigur Flensburg Lærisveinar Viggós Sigurðssonar í Flensburg tryggðu sér í kvöld sæti í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handbolta þegar liðið vann 10 marka sigur á Celje Lasko á heimavelli sínum 36-26. Celje vann fyrri leik liðanna einnig með 10 marka mun á heimavelli, en þýska liðið fer áfram á fleiri mörkum skoruðum á útivelli. 8.12.2006 22:23
Coppell stjóri nóvembermánaðar Steve Coppell, stjóri Íslendingaliðs Reading í ensku úrvalsdeildinni, var í dag kjörinn knattspyrnustjóri mánaðarins í annað sinn á leiktíðinni. Reading hefur komið mjög á óvart í vetur og vann sigur á Tottenham, Charlton og Fulham, en tapaði fyrir Liverpool. Coppell var einnig kjörinn stjóri septembermánaðar. 8.12.2006 21:45
Sacramento - Miami á Sýn í kvöld Leikur Sacramento Kings og Miami Heat frá því liðna nótt verður sýndur á sjónvarpsstöðinni Sýn í kvöld klukkan 0:25 eftir miðnætti. Þá verður leikur Milwaukee og Memphis sýndur í beinni útsendingu á NBA TV á Fjölvarpinu klukkan 1:30 í nótt svo það er nóg um að vera á skjánum fyrir körfuboltaáhugamenn í kvöld. 8.12.2006 21:18
Ronaldo bestur í nóvember Portúgalski vængmaðurinn Cristiano Ronaldo hjá Manchester United var í dag útnefndur knattspyrnumaður nóvembermánaðar í ensku úrvalsdeildarinnar. United tapaði ekki leik í deildinni í mánuðinum og skoraði Ronaldo tvö glæsileg mörk á þessum tíma. Þetta er í fyrsta sinn sem Portúgalinn ungi vinnur þessi verðlaun, en félagi hans Paul Scholes hjá United hreppti þau í október. 8.12.2006 20:52
Iverson vill fara frá Philadelphia Skorunarmaskínan Allen Iverson hjá Philadelphia 76ers í NBA virðist nú loksins vera búinn að fá nóg af því að tapa og nú hafa þær fréttir lekið út í fjölmiðla að Iverson hafi formlega farið fram á það við forseta félagsins að fá að fara frá félaginu. 8.12.2006 20:30
Frábær ef ég skora - Feitur ef ég skora ekki Brasilíski framherjinn Ronaldo hjá Real Madrid er orðinn dauðleiður á þeirri umfjöllun sem hann hefur fengið í fjölmiðlum undanfarin ár, en kappinn skoraði tvö mörk fyrir Madrid í Meistaradeildinni í vikunni. Hann hefur ekki átt fast sæti í liði Real Madrid og vitað er að Fabio Capello er ósáttur við líkamlegt ástand framherjans snjalla. 8.12.2006 19:30
Margfaldur Íslandsmeistari í rallý sat ekki hest sinn Fyrir einum fimm árum var Fjölnir Þorgeirsson með hestaþætti á Skjá einum. Í einum þættinum hjá honum hóaði hann saman öllum fremstu rallýköppum landsins í kappreiðar á kappreiðavellinum í Fáki. 8.12.2006 18:52
Skoraði 27 stig með vinstri Körfuboltagoðsögnin Larry Bird sem lék með Boston Celtics á árum áður varð fimmtugur í gær og í tilefni af því var heill dagur helgaður ferli þessa frábæra íþróttamanns á NBA TV sjónvarpsstöðinni. Þar sögðu margir af félögum hans og keppinautum skemmtilegar sögur af honum. 8.12.2006 17:45
Sýnir félögum í 1. deild vanvirðingu David Gold, stjórnarformaður enska 1. deildarliðsins Birmingham, segir að Jose Mourinho sýni liðum deildinni vanvirðingu með tillögu sinni þess efnis að varaliðum úrvalsdeildarfélaga verði leyft að spila í 1. deildinni. 8.12.2006 17:30
Hagnaður hefur dregist saman hjá Tottenham Rekstrarhagnaður hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Tottenham minnkaði verulega á síðasta rekstrarári ef marka má tölur sem gefnar voru út í dag. Á rekstrarárinu sem lauk þann 30. júní sl. kemur fram að hagnaður félagsins minnkar úr 4,9 milljónum punda árið áður í aðeins 600 þúsund pund þetta árið. 8.12.2006 17:15
Birgir Leifur úr leik Birgir Leifur Hafþórsson er úr leik á Alfred Dunhill mótinu í golfi sem fram fer í Suður-Afríku eftir að hann lauk keppni í dag á þremur höggum yfir pari eða 75 höggum. Birgir kemst því ekki í gegn um niðurskurðinn á mótinu og lýkur keppni á 8 höggum yfir pari. Sjónvarpsstöðin Sýn er með beinar útsendingar frá mótinu um helgina. 8.12.2006 17:13
Pearce ber mikla virðingu fyrir Ferguson Stuart Pearce, stjóri Manchester City, hrósaði kollega sínum Alex Ferguson í hástert í dag þegar hann var spurður út í leik liðsins gegn Manchester United á morgun. Pearce segir aðdáunarvert hvernig Ferguson hafi komið United á toppinn á ný þrátt fyrir harða gagnrýni. 8.12.2006 16:30
Speed spilar 500. leikinn á morgun Miðjumaðurinn Gary Speed nær væntanlega þeim merka áfanga á morgun að verða fyrsti leikmaðurinn í sögu úrvalsdeildarinnar til að spila 500 deildarleiki. Formaður leikmannasamtakanna hrósar Speed sem einstökum atvinnumanni. 8.12.2006 16:00
Cole er við öllu búinn Bakvörðurinn Ashley Cole hjá Chelsea segist vera við öllu búinn þegar hann mætir fyrrum félögum sínum í Arsenal í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn og segist skilja að margir af stuðningsmönnum Arsenal hugsi sér þegjandi þörfina. 8.12.2006 15:30
Nýtt Íslandsmet hjá Ragnheiði Sunddrottningin Ragnheiður Ragnarsdóttir úr KR setti í morgun sitt annað Íslandsmet á EM í sundi í Helsinki þegar hún sló annað gamalt met sem hún átti sjálf. Ragnheiður synti 100 metra fjórsund á 1 mínútu 3,66 sekúndum en það dugði henni ekki til að komast í undanúrslit í greininni. 8.12.2006 15:12
Mourinho ögrar Wenger Jose Mourinho hefur nú sent kollega sínum Arsene Wenger góða sneið fyrir stórleik Chelsea og Arsenal í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn, en Mourinho segir vandræði Arsenal í deildinni í vetur að hluta til stafa af því að Wenger sé ekki nógu góður í að laga lið sitt eftir aðstæðum. 8.12.2006 14:45
Ferguson á von á mjög erfiðum grannaslag Sir Alex Ferguson segist eiga von á mjög erfiðum leik þegar grannarnir í Manchester eigast við í ensku úvalsdeildinni á morgun. Manchester City hefur náð í stig í síðustu tveimur leikjum sínum á Old Trafford og því á Ferguson von á miklu stríði á morgun. 8.12.2006 14:16
Birgir á pari á fyrstu 9 holunum Birgir Leifur Hafþórsson hefur nú leikið fyrri 9 holurnar á öðrum hringnum á Alfred Dunhill mótinu í Suður-Afríku og er á pari vallar. Hann er því enn á fimm höggum yfir pari og þarf að leika fullkomlega á síðari 9 holunum til að komast í gegn um niðurskurðinn á mótinu. Sýn er með beina útsendingu frá mótinu. 8.12.2006 14:07
Shevchenko ekki í úrvalsliði Mourinho Jose Mourinho segir að það séu aðeins bestu leikmennirnir hverju sinni sem fái sæti í liði Chelsea og hefur lýst því yfir að Andriy Shevchenko sé ekki einn þeirra, að minnsta kosti ekki í augnablikinu. Mikið er rætt um framtíð framherjans á Englandi þessa dagana. 8.12.2006 13:43
Þetta er besti leikur sem ég hef séð Leikur New Jersey Nets og Phoenix Suns í NBA deildinni í nótt er þegar kominn í sögubækurnar, en gestirnir frá Phoenix höfðu sigur 161-157 eftir tvíframlengdan leik. Þetta er fjórða hæsta stigaskor í einum leik í sögu NBA deildarinnar og var hann í járnum allan tímann. 8.12.2006 05:27
Icelandics on Ice (IOI) óskar eftir starfsfólki/knöpum Icelandics on Ice (IOI) óskar eftir starfsfólki/knöpum til að taka þátt í sýningum á ís í Bandríkjunum frá og með haustinu 2007. IOI hefur gengið frá samningi við frægustu íssýningu allra tíma í Bandaríkjunum. Sýningin samanstendur af heimsklassa skautaatriðum, fimleikum á ís, glæfraatriðum, dansatriðum, tæknibrellum og tónlist. 7.12.2006 22:39
Klinsmann hafnar Bandaríkjamönnum Jurgen Klinsmann sendi frá sér fréttatilkynningu í dag þar sem hann gefur það út að hann ætli ekki að taka við stöðu landsliðsþjálfara bandaríska landsliðsins. Klinsmann átti fund með forráðamönnum knattspyrnusambandsins í gær en ákvað í dag að draga sig út úr viðræðunum og því verður lið Bandaríkjanna án þjálfara fram á nýtt ár. 7.12.2006 22:23
Dein hótar FIFA öllu illu David Dein, stjórnarmaður hjá Arsenal sem einnig situr í stjórn G-14, segir að FIFA eigi ekki von á góðu ef hugmyndir forsetans Sepp Blatter um takmarkanir á útlendingum í evrópskri knattspyrnu ná fram að ganga. Dein segir að ef FIFA falli ekki frá áformum sínum, muni það fá yfir sig þungar lögsóknir. 7.12.2006 22:06
Mótlætið hefur styrkt Ronaldo Wayne Rooney segir að mótlætið sem félagi hans Cristiano Ronaldo varð fyrir á Englandi eftir hinn umdeilda leik Englendinga og Portúgala á HM í sumar hafi styrkt hann til muna og segir hann einn besta knattspyrnumann heims. 7.12.2006 21:45