Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tap hjá Haukastúlkum Haukastúlkur töpuðu 94-67 fyrir liði Gran Canaria á Kanaríeyjum í Evrópukeppninni í körfubolta í kvöld, eftir að hafa verið undir 55-35 í hálfleik. Ifeoma Okonkwo skoraði 22 stig og hirti 9 fráköst fyrir Hauka og Helena Sverrisdóttir skoraði 21 stig og hirti 7 fráköst. Haukaliðið er því á botni F-riðilsins án sigurs eftir fjóra leiki. 30.11.2006 22:13
LA Lakers - Utah Jazz í beinni í nótt Það verður mjög athyglisverður leikur í beinni útsendingu á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu í nótt þar sem LA Lakers tekur á móti Utah Jazz. Liðin hafa bæði byrjað leiktíðina vonum framar og situr Utah í efsta sæti deildarinnar. 30.11.2006 22:04
Newcastle tryggði sér toppsætið Enska úrvalsdeildarliðið Newcastle tryggði sér í kvöld toppsætið í H-riðli í Evrópukeppni félagsliða þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Frankfurt á útivelli. Þetta var síðasti leikur liðsins í riðlinum, en Newcastle hefur gengið ágætlega í Evrópukeppninni til þessa líkt og hinum ensku liðunum sem leika í sömu keppni. 30.11.2006 21:55
Keflvíkingar steinlágu á heimavelli Karlalið Keflvíkinga í körfubolta steinlá á heimavelli sínum fyrir tékkneska liðinu Mlekarna Kunin 108-78 í Áskorendakeppni Evrópu. Keflvíkingar hafa unnið einn leik í riðlinum en tapað þremur. 30.11.2006 21:10
Geir gefur kost á sér Geir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri KSÍ, hefur gefið frá sér yfirlýsingu þar sem hann segist með formlegum hætti gefa kost á sér til formennsku hjá knattspyrnusambandinu eftir að Eggert Magnússon lætur af störfum snemma á næsta ári. Geir er einn fjölmargra manna sem nefndir hafa verið til sögunnar sem hugsanlegir eftirmenn Eggerts. 30.11.2006 20:36
HSÍ fellir niður sekt Hattar Handknattleikssamband Íslands hefur ákveðið að fella niður 250.000 króna sekt til handa handknattleiks deild Hattar eftir að liðið mætti ekki til leiks gegn ÍBV í 1. deildinni á dögunum. Eyjamönnum var dæmdur 10-0 sigur í leiknum, en þau úrslit munu standa. Formaður handknattleiksdeildar Hattar og Formaður HSÍ segja að sátt hafi náðst í málinu. 30.11.2006 19:31
Terry ákærður fyrir ummæli sín Aganefnd enska knattspyrnusambandsins hefur ákært John Terry, fyrirliða Chelsea, fyrir ummæli sín í garð Graham Poll dómara eftir að hann vísaði Terry af velli í leik Tottenham og Chelsea fyrr í þessum mánuði. Terry hefur verið veittur frestur til 15. desember til að svara fyrir sig í málinu. 30.11.2006 18:53
James íhugaði að raka af sér hárið Markvörðurinn David James hjá Portsmouth segist hafa íhugað að raka af sér allt hárið á dögunum eftir að nýjasta hárgreiðslan hans varð miðpunktur athyglinnar í breskum fjölmiðlum um síðustu helgi. Hárgreiðslu James var líkt við vel smurða hárgreiðslu Ofurmennisins. 30.11.2006 17:31
Gatlin reynir fyrir sér í NFL Spretthlauparinn Justin Gatlin sem á yfir höfði sér ævilangt keppnisbann fyrir steranotkun, reyndi fyrir sér í herbúðum Houston Texans í NFL deildinni í gær. Gatlin er sagður hafa staðið sig ágætlega og ætlar að reyna fyrir sér hjá fleiri liðum á næstunni, en hann hefur ekki spilað ruðning síðan hann var í háskóla. 30.11.2006 16:54
Shevchenko er ekki á leið til Ítalíu Adriano Galliani hjá AC Milan, segir að ekkert sé til í þeim fullyrðingum bresku blaðanna að framherjinn Andriy Shevchenko sé á leið aftur til AC Milan. "Við höfum ekki verið í neinum viðræðum við Chelsea um að fá leikmanninn aftur til okkar," sagði Galliani á heimasíðu ítalska félagsins. 30.11.2006 16:09
Nesta og Serginho undir hnífinn? Svo gæti farið að varnarmennirnir Alessandro Nesta og Serginho hjá ítalska liðinu AC Milan þyrftu báðir að fara í aðgerð fljótlega vegna þrálátra meiðsla sem hafa hrjáð þá lengi. Nesta kom inn sem varamaður í leik gegn Messina á dögunum en kenndi sér meins í öxlinni og þarf nú líklega í uppskurð. Sömu sögu er að segja af Serginho, nema hvað hann er meiddur í baki. 30.11.2006 16:00
Enn eitt áfallið fyrir Valencia Spænska stórliðið Valencia varð fyrir enn einu áfallinu í dag þegar úrugvæski landsliðsmaðurinn Mario Regueiro meiddist á hné á æfingu og verður frá keppni í 6-7 mánuði. Meiðslin eru nákvæmlega þau sömu og félagi hans Edu lenti í fyrir aðeins tveimur vikum, en nú eru 8 af fastamönnum liðsins á sjúkralista. 30.11.2006 15:18
Af hverju að fara til Englands? Argentínski framherjinn Hernan Crespo hjá Inter Milan á Ítalíu segist ekki skilja af hverju framherji sem er sáttur í herbúðum liðs síns á Ítalíu ætti að láta sér detta í hug að flytja til Englands og spila í ensku úrvaldseildinni. Þessi orð lét hann falla í samtali við breska blaðið Mirror þegar hann svar spurður út í vandræði Andriy Shevchenko hjá Chelsea. 30.11.2006 15:06
Keflavík og Haukar í eldlínunni í kvöld Tvö íslensk lið verða í eldlínunni í Evrópukeppninni í körfubolta í kvöld. Karlalið Keflavíkur tekur þá á móti tékkneska liðinu Mlekarna Kunin á heimavelli sínum í Keflavík klukkan 19:15 og Haukastúlkur sækja lið Canarias heim á Las Palmas. 30.11.2006 15:00
Hargreaves spilar ekki fyrr en eftir áramót Enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves hjá Bayern Munchen segist ekki muni spila meira með liði sínu á árinu, en hann er að jafna sig eftir fótbrot í september. Hann útilokar ekki að ganga í raðir Manchester United í janúar. 30.11.2006 14:52
Mourinho segir Chelsea fara á toppinn fljótlega Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, segist ekki hafa áhyggjur af því þó Manchester United hafi enn þriggja stiga forystu á sína menn á toppi ensku úrvaldsdeildarinnar og bendir á að Chelsea hafi spilað mun erfiðari leiki í deildinni til þessa. 30.11.2006 14:42
Sigurganga Dallas heldur áfram Dallas vann í nótt 11. leikinn í röð í NBA deildinni þegar liðið vann auðveldan sigur á Toronto. Utah lagði San Antonio í uppgjöri efstu liðanna í deildinni og þá tapaði Cleveland enn eina ferðina fyrir einu af lakari liðum deildarinnar. 30.11.2006 14:25
Keflavík lagði Grindavík Keflavíkurstúlkur halda öðru sætinu efstu deild kvenna í körfubolta eftir sannfærandi sigur á grönnum sínum í Grindavík í Sláturhúsinu í kvöld. Takesha Watson skoraði 32 stig fyrir Keflavík, en Tamara Bowie skoraði 39 stig fyrir Grindavík. 29.11.2006 22:28
Grétar Rafn skoraði mark Grétar Rafn Steinsson skoraði annað mark hollenska liðsins AZ Alkmaar í kvöld þegar liðið tryggði sér sæti í 32-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða með því að gera 2-2 jafntefli við Liberec frá Tékklandi. Jóhannes Karl Guðjónsson var einnig í liði Alkmaar í kvöld. 29.11.2006 22:22
Fram lagði Fylki Fram er enn í þriðja sæti DHL deildar karla í handbolta eftir nokkuð öruggan sigur á Fylki í Safamýri 34-29 eftir að hafa leitt í hálfleik 18-12. Fylkir er í næst neðsta sæti deildarinnar. 29.11.2006 22:18
Fyrsti sigur Fulham á Arsenal í 40 ár Fulham lagði Arsenal 2-1 á Craven Cottage í ensku úrvalsdeildinni í kvöld og var þetta fyrsti sigur Fulham á grönnum sínum í fjóra áratugi. Fulham komst í 2-0 eftir rúmlega stundarfjórðung segja má að Arsenal hafi aldrei náð sér almennilega á strik eftir það. Efstu liðin, Man Utd og Chelsea, unnu bæði sigur í sínum leikjum. 29.11.2006 21:59
Bolton heimtar virðingu Sammy Lee, aðstoðarstjóri Bolton í ensku úvalsdeildinni, segir að félagið hafi mikinn hug á að reyna að ná einu af fjórum efstu sætunum í deildinni í vetur svo það fái loks þá virðingu sem það á skilið. Bolton hefur verið á meðal átta efstu liða í deildinni undanfarin ár og lagði Arsenal 3-1 um síðustu helgi. Liðsins bíður erfiður leikur gegn Chelsea í kvöld. 29.11.2006 18:49
Tevez fékk harða refsingu frá félögum sínum í West Ham Argentínumaðurinn Carlos Tevez þurfti að taka út mjög harða refsingu frá félögum sínum í enska úrvalsdeildarliðinu West Ham eftir að hann rauk til síns heima strax eftir síðasta leik liðsins án þess að tala við kóng eða prest. Stjóri liðsins Alan Pardew sagðist ætla að láta leikmennina ráða því hvaða refsingu framherjinn fengi. 29.11.2006 18:36
Bellamy sleppur Velski landsliðsframherjinn Craig Bellamy hjá Liverpool var í dag sýknaður af ákæru um líkamsárás fyrir rétti í Cardiff, en hann var ákærður fyrir að hafa ráðist að stúlku á næturklúbbi í borginni fyrr í haust. Bellamy hefur lítið geta æft með liði sínu vegna réttarhaldanna og misstir til að mynda af leik Liverpool og Portsmouth í kvöld. 29.11.2006 18:25
Fram tekur á móti Fylki Einn leikur er á dagskrá í DHL-deild karla í handbolta í kvöld. Íslandsmeistarar Fram taka þá á móti Fylki í Framhúsinu í Safamýri og hefst leikurinn klukkan 20. Fram er í þriðja sæti deildarinnar, en Fylkir er í næst neðsta sæti. Þá er rétt að minna á stórleik í kvennakörfunni þar sem Keflavík tekur á móti Grindavík í Keflavík klukkan 19:15. 29.11.2006 17:09
Fimm leikir í ensku úrvalsdeildinni í kvöld Fimm leikir verða á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld og þar verða sex efstu liðin í deildinni öll í sviðsljósinu. Efstu liðin, Manchester United og Chelsea, eiga mjög erfiða leiki fyrir höndum. 29.11.2006 17:03
Kvennaliðin í sókn Íslensk félagslið í kvennaflokki eru í ágætri sókn samkvæmt nýjum styrkleikalista sem Handknattleikssamband Evrópu gaf út í dag. Kvennaliðin á Íslandi eru þar í 19. sæti á styrkleikalistum og vinna sig upp um sjö sæti frá því listinn var síðast birtur, en karlaliðin falla um eitt sæti og eru í 22. sæti. 29.11.2006 16:21
Dida dregur lappirnar Forráðamenn ítalska stórliðsins AC Milan hafa lýst yfir óánægju sína með það hversu erfiðlega gengur að ná samningum við brasilíska markvörðinn Dida. Samningur Dida rennur út í júní, en hann nú meiddur og getur ekki spilað með liðinu fyrr en í fyrsa lagi í janúar. 29.11.2006 16:13
Fjölnir mætir Keflavík Í dag var dregið í 16-liða úrslitin í bikarkeppni Lýsingar í körfubolta. Þrjár af átta viðureignum í umferðinni verða einvígi úrvalsdeildarliða þar sem Fjölnir tekur á móti Keflavík, Tindastóll mætir KR og þá mætast suðurlandsliðin Hamar/Selfoss og Þór úr Þorlákshöfn. 29.11.2006 16:04
Framtíð Klose óráðin Framtíð þýska landsliðsframherjans Miroslav Klose hjá Werder Bremen virðist alfarið vera óráðin, en bæði leikmaðurinn og forráðamenn liðsins viðurkenna að til greina komi að hann fari frá félaginu. Klose er 28 ára gamall og var markahæsti leikmaður HM í Þýskalandi í sumar, en vitað er af áhuga fjölda liða í Evrópu á þessum sterka framherja. 29.11.2006 15:01
Henry ekki tilnefndur sem knattspyrnumaður ársins Alþjóða knattspyrnusambandið gaf í dag út hvaða þrír menn eru tilnefndir sem knattspyrnumenn ársins hjá FIFA. Athygli vekur að framherjinn Thierry Henry hjá Arsenal er ekki á listanum að þessu sinni, en hann skipa nýkjörinn knattspyrnumaður Evrópu, Fabio Cannavaro frá Ítalíu og þeir Ronaldinho og Zinedine Zidane. 29.11.2006 14:45
Michael Redd skaut Lakers í kaf Michael Redd átti stórleik í nótt þegar Milwaukee bar sigurorð af LA Lakers á útivelli 109-105 í NBA deildinni. Redd skoraði 45 stig, þar af 18 í lokaleikhlutanum og afstýrði þar með 11. tapi Milwaukee í röð gegn Lakers. Kobe Bryant skoraði 27 stig fyrir Lakers en var með afleita skotnýtingu. Lamar Odom var bestur hjá Lakers með 21 stig, 13 fráköst og 8 stoðsendingar. 29.11.2006 14:28
Heimsókn verknámskennara hrossaræktardeildar Tamninganemar sem stunda nám sitt á öðru ári við Hrossaræktardeild Hólaskóla taka á vorönn 2007, fimm mánaða verknám. Verknámið er tekið við tamningastöðvar vítt og breitt um landið. Hólaskóli leggur mikla áherslu á að hafa gott samband við þá aðila sem taka nemendur í verknám, verknámskennarana. Það hefur til nokkurra ára verið árvisst að bjóða þeim til fundar á Hólum að hausti, 29.11.2006 08:19
Fulham yfir gegn Arsenal í hálfleik Nú er kominn hálfleikur í viðureignunum fimm sem standa yfir í ensku úrvalsdeildinni. Fulham hefur yfir 2-1 gegn Arsenal á heimavelli og Manchester United hefur yfir 1-0 gegn Everton. Manchester City hefur 2-0 yfir gegn Aston Villa á Villa Park. Markaskorara má sjá á Boltavaktinni hér á íþróttasíðunni. 29.11.2006 20:52
New Orleans - Toronto í beinni Leikur New Orleans Hornets og Toronto Raptors verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu í kvöld og hefst hann klukkan 1 eftir miðnættið. New Orleans er erfitt heim að sækja þó liðið spili heimaleiki sína raunar í Oklahoma-borg, en Toronto hefur enn ekki unnið útileik á tímabilinu. Rétt er að minna svo á leik Dallas og Sacramento sem verður í beinni á Sýn á föstudagskvöldið. 28.11.2006 22:38
Mikilvægur sigur Sheffield United Sheffield United tryggði sér þrjú afar dýrmæt stig í botnbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í kvöld með 1-0 útisigri á Watford. Það var Danny Webber, fyrrum leikmaður Watford, sem skoraði sigurmark United rétt fyrir leikslok. Markið var nokkuð umdeilt, því Webber þótti hafa verið rangstæður þegar hann skoraði, en sigurinn var engu að síður verðskuldaður hjá United. 28.11.2006 22:31
Howard er enn inni í myndinni Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, segir að markvörðurinn Tim Howard gæti vel átt framtíðina fyrir sér á Old Trafford þó hann hafi ekki náð að festa sig í sessi hjá félaginu. Howard er lánsmaður hjá Everton um þessar mundir. 28.11.2006 22:30
Formúla 1 er ekkert barnaafmæli Michael Schumacher segist ekki hafa hlotið neina sérmeðferð þau ár sem hann var ökumaður númer eitt hjá Ferrari eins og margir hafa meinað, heldur segist hann hafa unnið fyrir því með því að vera einfaldlega fljótari en félagi sinn hverju sinni. 28.11.2006 21:16
Orkuríkur Rooney David James, nemandi við háskóla í Sheffield á Englandi, opinberaði í dag rannsókn sína á orkuframleiðslu framherjans Wayne Rooney á knattspyrnuvellinum og niðurstöður skýrslu hans voru mjög eftirtektarverðar. James fann það út að Rooney framleiddi t.a.m. næga orku til að sjóða vatn í 16 tebolla á meðan á einum knattspyrnuleik stendur. 28.11.2006 21:06
Böðullinn er hættur við að hætta "Böðullinn" Bernard Hopkins hefur nú ákveðið að hætta við að leggja hanskana á hilluna og segist ætla að berjast um heimsmeistaratitilinn í þungavigt að þessu sinni. Hopkins er 41 árs gamall og hætti í júní sl. eftir góðan sigur á Antonio Tarver, en hann segist nú ætla að halda uppi heiðri Bandaríkjanna í þungavigtinni. 28.11.2006 20:30
Riquelme byrjaður að æfa á ný Argentínski landsliðsmaðurinn Juan Roamn Riquelme er nú byrjaður að æfa með liði sínu Villarreal á ný eftir sex daga leyfi. Riquelme var í Argentínu til að vera viðstaddur fæðingu síns þriðja barns og missti fyrir vikið af leik Villarreal og Barcelona um helgina. 28.11.2006 19:19
Tottenham að kaupa ungan miðjumann Enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham er nú sagt hafa gengið frá kaupum á 17 ára gömlum miðjumanni frá franska liðinu Lens. Þetta er Marokkómaðurinn Abel Taarabt sem verið hefur í akademíu franska liðsins síðan hann var uppgötvaður hjá Vallons, uppeldisfélagi Zinedine Zidane. 28.11.2006 19:09
Ísland lagði Asera Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik vann sigur á Aserum í fyrsta leik sínum í undankeppni HM í Rúmeníu í dag 31-28. Íslenska liðið var yfir 18-13 í hálfleik. Hanna Stefánsdóttir og Hrafnhildur Skúladóttir skoruðu 6 mörk hvor fyrir íslenska liðið í dag og Rakel Dögg Bragadóttir skoraði 5 mörk. Liðið mætir Portúgölum klukkan 15 að íslenskum tíma á föstudaginn. 28.11.2006 17:17
Juninho gagnrýnir brasilíska landsliðið Juninho, leikmaður Lyon í Frakklandi og fyrrum landsliðsmaður Brasilíu, gagnrýnir harðlega undirbúning Brassa fyrir HM í Þýskalandi í sumar og segir að liðið hafi farið á mótið með hangandi hendi. Hann segist þó ánægður með störf nýja landsliðsþjálfarans Dunga það sem af er. 28.11.2006 17:15
Thomas Sörensen í aðgerð Danski landsliðsmaðurinn Thomas Sörensen hjá Aston Villa þarf að fara í aðgerð vegna hnémeiðsla semhann varð fyrir þegar hann lenti í samstuði við Emmanuel Pogatetz hjá Middlesbrough um helgina. Ekki er vitað hversu alvarleg meiðslin eru, en ljóst er að hann verður frá keppni í að minnsta kosti nokkrar vikur. 28.11.2006 16:45