Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Phillips er velkominn aftur Stuart Pearce, knattspyrnustjóri Manchester City, segir að Shaun Wright-Phillips sé alltaf velkominn aftur til Manchester City eftir 16 mánaða tilþrifalitla veru í herbúðum Englandsmeistara Chelsea. Breskir fjölmiðlar eru á því að Phillips verði seldur frá Chelsea í janúar og var hann síðast orðaður við West Ham. 28.11.2006 14:01
Solskjær og Park farnir að æfa á ný Enska úrvalsdeildarfélagið Manchester United hefur fengið þær gleðifregnir að þeir Ole Gunnar Solskjær og Park Ji-Sung hafi nú snúið aftur til æfinga eftir meiðsli. Solskjær hefur verið meiddur á læri, en þó hann sé byrjaður að æfa létt - mun hann ekki snúa aftur fyrr en í kring um jólin. Park hefur verið frá vegna ökklameiðsla síðan í september. 28.11.2006 13:55
Tíu sigrar í röð hjá Dallas Dallas vann í nótt 10. leikinn í röð í NBA deildinni þegar liðið vann sigur á Minnesota 93-87 í beinni útsendingu á NBA TV sjónvarpsstöðinni. Josh Howard og Dirk Nowitzki skoruðu 15 stig hvor fyrir Dallas en Kevin Garnett skoraði 19 stig og hirti 12 fráköst fyrir Minnesota. 28.11.2006 13:32
Dagskrá Meistaradeildar VÍS í hestaíþróttum Nú liggur fyrir endanlega dagskrá Meistaradeildar VÍS 2007. Þátttakendur verða alls 24, úrtaka fyrir laus sæti í Meistaradeildinni verður haldin laugardaginn 20.janúar og hefst hún klukkan 13.00. Keppt verður í fjórgangi og fimmgangi. Úrtakan er öllum opin. Þeir knapar sem unnið hafa sér þátttökurétt eru eftirtaldir. 28.11.2006 08:37
Bellamy missir af næsta leik Vandræðagemlingurinn Craig Bellamy hjá Liverpool mun að öllum líkindum missa af leik Liverpool og Portsmouth í miðri viku eftir að réttarhöld yfir honum í heimaborg hans Cardiff töfðust um nokkurn tíma. Bellamy var tvo daga fyrir rétti í síðustu viku og þarf að eyða þremur dögum þar í þessari viku. Hann er ákærður fyrir líkamsárás. 27.11.2006 22:30
Silvestre vill reyna fyrir sér á Spáni Franski varnarmaðurinn Mikael Silvestre hjá Manchester United segist gjarnan vilja breyta til og spila jafnvel á Spáni áður en hann leggur skóna á hilluna. Þessi 29 ára gamli leikmaður hefur misst sæti sitt í liði United til Nemanja Vidic, en segist engu að síður sáttur við sitt hlutskipti. 27.11.2006 22:15
Bilbao rekur þjálfarann Baskaliðið Atletic Bilbao rak í dag þjálfarann Felix Sarriugarte eftir að liðið tapaði 3-1 fyrir Sevilla í spænsku deildinni í gær, en liðið datt niður á fallsvæðið í deildinni í kjölfarið. Bilbao hefur aldrei fallið úr efstu deild í sögu félagsins, en liðið slapp naumlega við fall á síðustu leiktíð og er sömuleiðis í vandræðum nú. 27.11.2006 21:45
Dallas - Minnesota í beinni í nótt Leikur Dallas og Minnesota í NBA deildinni verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu klukkan hálf tvö í nótt. Dallas er heitasta liðið í NBA og hefur unnið níu leiki í röð og þá er leikur kvöldsins fín upphitun fyrir leik Dallas og Sacramento sem sýndur verður beint á Sýn á föstudagskvöldið klukkan eitt. 27.11.2006 20:45
Hahnemann og Little semja við Reading Markvörðurinn Marcus Hahnemann og miðjumaðurinn Glen Little hafa nú fetað í fótspor Íslendinganna hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Reading og undirritað nýjan samning við félagið. Báðir leikmennirnir eru nú samningsbundnir Reading út leiktíðina 2008. 27.11.2006 20:30
Cannavaro þakkar landsliðinu og Juventus Ítalska landsliðið og Juventus voru Fabio Cannavaro ofarlega í huga í kvöld þegar hann tók við Gullknettinum, sem er viðurkenning sem afhent er knattspyrnumanni ársins að mati franska tímaritsins France Football. Cannavaro tileinkaði hluta verðlaunanna heimaborg sinni Napoli. 27.11.2006 19:00
Houllier segir það hneyksli að Cannavaro fái Gullknöttinn Gerrard Houllier, þjálfari Frakklandsmeistara Lyon, segir að það sé algjört hneyksli að ítalski varnarmaðurinn Fabio Cannavaro skuli hafa verið útnefndur knattspyrnumaður Evrópu í ár, en það verður staðfest við hátíðlega athöfn í kvöld. 27.11.2006 18:33
Eiður Smári semur við Adidas Eiður Smári Guðjohnsen skrifaði í gær undir samning við íþróttavöruframleiðandann Adidas sem gilda mun til ársins 2012. Samkvæmt samningnum mun Eiður leika í Predator skóm Adidas á næstu árum og mun taka þátt í þróun á nýjum vörum frá fyrirtækinu. Hann kemst þar með í hóp stórstjarna á borð við Beckham, Kaka og Gerrard sem þegar eru með samning við Adidas. 27.11.2006 18:15
Vialli spáir Manchester United sigri Gianluca Vialli, fyrrum knattspyrnustjóri Chelsea, segir að Manchester United sé líklegasta liðið til að hampa Englandsmeistaratitlinum í vor vegna þeirrar auknu áherslu sem lögð sé á Meistaradeildina í herbúðum Chelsea. 27.11.2006 17:26
Uppskeruhátíð yngri flokka Fáks Í gær sunnudag var haldin uppskeruhátíð yngri flokka hjá Fáki. Þar komu saman þau börn sem höfðu tekið þátt í keppni, námskeiðum og öðrum uppákomum á vegum félagsins síðastliðið ár. Má ætla að um 100 börn hafi mætt á hátíðina. Þátttakendur félagsins í barna og unglingaflokki á Landsmóti fengu viðurkenningarskjal fyrir þátttökuna. 27.11.2006 17:23
Tottenham að fá ungan markvörð Allt stefnir nú í að enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham muni fá enska U-21 árs landsliðsmarkvörðinn Ben Alnwick frá Sunderland í sínar raðir í janúar. Sunderland fær í staðinn ungverska markvörðinn Martin Fulop og eina milljón punda ef af skiptunum verður, en þau geta ekki klárast formlega fyrr en í janúar. 27.11.2006 17:15
Blatter útilokar sjónvarpstækni við dómgæslu Sepp Blatter, forseti FIFA, hefur gefið það sterklega í skyn að ekki verði notast við sjónvarpstækni við dómgæslu í knattspyrnu á meðan hann sitji í forsetastóli hjá Alþjóða knattspyrnusambandinu. Hann vill þó taka marklínubúnað upp á stórmótum sem fyrst. 27.11.2006 16:45
Bayern íhugar að segja sig úr G-14 Karl-Heinz Rummenigge, stjórnarformaður Bayern Munchen, vandar félögum sínum í G-14 ekki kveðjurnar í viðtali við þýska blaðið Kicker í dag og ræðst þar sérstaklega að eiganda Chelsea, Roman Abramovich. Hann segir Bayern vera að íhuga að segja sig úr G-14. 27.11.2006 16:34
Tevez biðst afsökunar Argentínski framherjinn Carlos Tevez hjá West Ham hefur beðist afsökunar á gjörðum sínum á laugardaginn þegar hann stormaði beint til síns heima eftir að honum var skipt af velli í viðureign liðsins gegn Sheffield United - fyrsta deildarleik liðsins eftir að Eggert Magnússon tók við formennsku hjá félaginu. 27.11.2006 16:06
Handboltamenn stofna G-14 Handknattleiksforystan í Evrópu hefur nú fetað í fótspor kollega sinna í knattspyrnunni og hefur stofnað sitt eigið G-14 samband. Það er samband 14 stærstu félagsliða Evrópu sem koma frá 8 löndum og verður samtökunum ætlað að bæta tengsl félagsliða við Alþjóða- og Evrópusambandið í handbolta. 27.11.2006 15:46
Skaut vin sinn til bana vegna 1500 króna veðmáls Rúmlega fertugur karlmaður skaut vin sinn til bana í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum um helgina eftir að þeir lentu í deilum vegna 1500 króna veðmáls þeirra á leik í háskóladeildinni í ruðningi. 27.11.2006 15:45
Cannavaro fær Gullknöttinn Þýskir fjölmiðlar hafa nú gefið það út að ítalski varnarmaðurinn Fabio Cannavaro hjá Real Madrid verði sæmdur titlinum knattspyrnumaður Evrópu og fái Gullknöttinn frá franska blaðinu France Football. Úrslitin verða formlega kunngjörð í kvöld. 27.11.2006 15:35
Börn sitja í fangelsi fyrir að horfa á fótbolta í sjónvarpi Mikil mildi þykir að enginn skyldi slasast í gær þegar löggæslumenn stjórnvalda í Sómalíu réðust inn í kvikmyndahús þar sem 150 manns fylgdust með leik Manchester United og Chelsea. Íslamskir ráðamenn í landinu hafa fordæmt allt íþróttaáhorf í sjónvarpi og líta á menn sem horfa á fótbolta sem glæpamenn. 27.11.2006 14:55
McLaren er að eyðileggja feril Hamilton David Coulthard, ökumaður Red Bull í Formúlu 1 og fyrrum ökumaður McLaren, segir að Ron Dennis og félagar hjá McLaren séu mjög líklega að eyðileggja feril hins efnilega Breta Lewis Hamilton með því að gera hann að aðalökumanni of snemma. 27.11.2006 14:45
Við vorum heppnir Fabio Capello viðurkenndi fúslega að hans menn í Real Madrid hefðu haft heilladísirnar á sínu bandi í gær þegar þeir lögðu Valencia 1-0 á Mestalla í Valencia. Þetta var fyrsta tap liðsins á heimavelli í 13 mánuði, en Fabio Capello er greinilega að setja stimpil sinn á lið Real Madrid sem nú situr í þriðja sæti deildarinnar á eftir Barcelona og Sevilla. 27.11.2006 14:18
Ferguson sagður vera með framherja í sigtinu Sænskir og ítalskir heimildarmenn halda því fram í dag að Sir Alex Ferguson hafi í huga að reyna að fá hinn 17 ára gamla sókarmann Goran Slavkovski í raðir Manchester United í janúar. Slavkovski þessi er yngsti leikmaðurinn í herbúðum Ítalíumeistara Inter Milan og hefur verið líkt við Zlatan Ibrahimovic vegna uppruna síns og hæfileika. 27.11.2006 14:12
Calderon ekki búinn að gefast upp Ramon Calderon, forseti Real Madrid, er enn ekki búinn að gefa upp alla von á að lokka brasilíska miðjumanninn Kaka hjá AC Milan til Madrid. Real skrifaði undir sjónvarpssamning á dögunum sem færir félaginu yfir milljarð evra í tekjur og Calderon segir að í kjölfarið verði félaginu fært að bjóða í alla bestu knattspyrnumenn heimsins. 27.11.2006 14:00
Banni aflétt á Írana Alþjóða knattspyrnusambandið aflétti í dag keppnisbanninum sem það setti á landslið Íran á dögunum og því geta Íranar tekið þátt í Asíuleikunum eins og til stóð. Sepp Blatter forseti FIFA segir þó að þessi ráðstöfun sé skilyrðum háð og hefur sambandið fengið frest til 5. desember til að koma sínum málum á hreint. Bannið var sett á í kjölfar þess að stjórnvöld í landinu höfðu óeðlileg afskipti af knattspyrnusambandinu í landinu. 27.11.2006 13:53
Mido verður frá keppni í tvær vikur Framherjinn Mido hjá Tottenham verður frá keppni næstu tvær vikurnar eftir að í ljós koma að hann er með rifinn vöðva í nára. Þessi 23 ára framherji skrifaði undir samning við félagið í sumar en hefur skorað 17 mörk á þeim tíma sem hann hefur leikið með Tottenham - lengst af sem lánsmaður frá Roma á Ítalíu. 27.11.2006 13:47
Fimmti sigur Denver í röð Carmelo Anthony skoraði 33 stig þegar Denver lagði LA Clippers á heimavelli 103-88 í NBA deildinni í nótt. Þetta var fimmti sigurleikur Denver í röð í deildinni og er Anthony stigahæsti leikmaður deildarinnar það sem af er með 31 stig að meðaltali. Corey Maggette var besti leikmaður Clippers í leiknum með 22 stig og 12 fráköst. 27.11.2006 13:31
Fimiæfingar uppá 10 Á fyrirlestri sem Sigurður Sigurðarson hélt á endurmenntunarnámskeiði Félags tamningamanna og Félags hrossabænda sýndi hann myndband sem tekið var upp á sýningu á Spáni en þar er sýnt hvernig samspil manns og hests er upp á 10. 27.11.2006 07:25
Vel heppnað endurmenntunarnámskeið Endurmenntunarnámskeið Félags tamningamanna og Félags hrossabænda sem haldið var í Ölfushöllinni á Ingólfshvoli í gær var mjög vel heppnað og greinilega mjög mikill áhugi fyrir svona námskeiðum. Eins og áður hefur komið fram var húsfylli í höllinni og þurfti að bæta við hátölurum fram á bar til að gestir gætu hlustað á fyrirlestrana, þar sem fyrirlestrarsalurinn var fullur. 27.11.2006 07:22
Hunt óskar eftir fundi með Petr Cech Miðjumaðurinn Stephen Hunt hjá Reading segist ætla að fara þess á leit við Petr Cech, markvörð Chelsea, að hann hitti sig að máli maður á mann þegar liðin eigast við að nýju í kring um jólin. Cech hefur ekki spilað með Chelsea síðan hann höfuðkúpubrotnaði í viðskiptum sínum við Hunt í deildarleik í síðasta mánuði. 26.11.2006 22:30
Grindavík lagði Snæfell Grindavík lagði Snæfell 87-82 í stórleik dagsins í 32 liða úrslitum bikarkeppni Lýsingar í körfubolta. Steven Thomas skoraði 23 stig og hirti 8 fráköst fyrir Grindavík og Adam Darboe skoraði 18 stig. Justin Shouse skoraði 28 stig fyrir Snæfell, Sigurður Þorvaldsson 17 og Hlynur Bæringsson skoraði 13 stig og hirti 15 fráköst. 26.11.2006 22:06
Stuttgart í þriðja sæti Stuttgart smellti sér í þriðja sæti þýsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í kvöld með 1-0 sigri á Gladbach. Það var framherjinn Cacau sem skoraði eina mark leiksins og hefur Gladbach aðeins náð í eitt stig í síðustu sjö leikjum sínum. Leverkusen lyfti sér af mesta fallsvæðinu með 3-1 sigri á Cottbus. 26.11.2006 21:51
Inter heldur toppsætinu Inter Milan hefur fjögurra stiga forskot á toppi ítölsku A-deildarinnar í knattspyrnu eftir mjög þýðingarmikinn 2-1 útisigur á Palermo á Sikiley í kvöld. Zlatan Ibrahimovic og Patrick Vieira skoruðu mörk Mílanóliðsins í kvöld. Palermo búið að missa annað sætið alfarið í hendur Roma sem lagði Sampdoria 4-2 í dag þar sem Francesco Totti skoraði tvö mörk og lagði upp eitt. 26.11.2006 21:38
Raul tryggði Real mikilvægan sigur Gulldrengurinn Raul tryggði liði sínu Real Madrid mikilvægan 1-0 útisigur á Valencia í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Markið skoraði fyrirliðinn á 53. mínútu eftir sendingu frá Roberto Carlos og er Real komið í annað sæti deildarinnar fyrir vikið. Leik Atletico Bilbao er að ljúka í beinni útsendingu á Sýn en þar hafa gestirnir frá Sevilla 2-1 forystu og hirða annað sætið af Real með sigri. 26.11.2006 21:29
Menn verða að vinna fyrir sæti sínu Martin Jol, stjóri Tottenham, var að vonum ánægður með frammistöðu sinna manna í dag eftir að liðið lagði Wigan 3-1 á White Hart Lane. Jol hrósaði framherjanum Dimitar Berbatov fyrir frammistöðu sína og svaraði spurningum sem dunið hafa á honum vegna sífelldra mannabreytinga í framlínunni. 26.11.2006 21:07
Við vorum betri aðilinn í dag Sir Alex Ferguson vildi meina að hans menn í Manchester United hefðu verið betri aðilinn í leiknum gegn Chelsea í dag. United hefur enn þriggja stiga forskot á toppi deildarinnar eftir leiki dagsins. 26.11.2006 20:18
United missti af stóru tækifæri Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, vill meina að topplið Manchester United hafi í dag missta af stóru og gullnu tækifæri til að ná afgerandi forystu í deildinni. Liðin skildu jöfn 1-1 í stórleik helgarinnar í dag. 26.11.2006 20:01
Stórmeistarajafntefli á Old Trafford Manchester United og Chelsea skildu jöfn í uppgjöri toppliðanna í ensku úrvalsdeildinni á Old Trafford í Manchester í dag. Louis Saha kom heimamönnum yfir eftir hálftíma leik með góðu langskoti, en Ricardo Carvalho jafnaði metin fyrir Chelsea í síðari hálfleik þegar Englandsmeistararnir náðu að jafna með miklu harðfylgi. Forskot United er því enn þrjú stig á toppi deildarinnar. 26.11.2006 18:00
Akureyri lagði Val Akureyri gerði sér lítið fyrir og lagði topplið Vals í DHL-deild karla í handbolta í dag 25-22. Goran Gusic skoraði 8 mörk fyrir Akureyri en þeir Ingvar Árnason og Baldvin Þorsteinsson skoruðu 4 hvor fyrir Val. 26.11.2006 17:47
Berbatov stal senunni í sigri Tottenham Búlgarski sóknarmaðurinn Dimitar Berbatov átti stórleik í dag þegar Tottenham þokaðist loks upp í efri helming ensku úrvalsdeildarinnar með 3-1 sigri á Wigan á heimavelli. Berbatov skoraði eitt mark og lagði upp önnur tvö fyrir þá Jermaine Defoe og Aaron Lennon eftir að Henry Camara hafði komið gestunum yfir snemma leiks. 26.11.2006 17:38
Haukar lögðu ÍR Haukar lögðu ÍR 31-29 í DHL deild karla í handbolta í dag eftir að hafa verið þremur mörkum yfir í leikhléi 16-13. Árni Þór Sigtryggsson skoraði 8 mörk fyrir Hauka og Guðmundur Pedersen 7. Brynjar Steinarsson skoraði 8 mörk fyrir ÍR og þeir Jón Gunnarsson og Björgvin Hólmgeirsson 6 hvor. 26.11.2006 17:28
Ciudad Real fagnaði sigri Ciudad Real tryggði sér í dag sigur í EHF Ofurbikarnum í handbolta þegar liðið lagði Íslendingalið Gummersbach frá Þýskalandi í úrslitaleik keppninnar 36-31 eftir að hafa verið yfir í hálfleik 18-13. Ólafur Stefánsson skoraði 4 mörk fyrir Ciudad í leiknum og gamla brýnið og þjálfari liðsins Talant Duishebaev skorað sjálfur 5 mörk. 26.11.2006 16:53
United hefur yfir í hálfleik Manchester United hefur yfir 1-0 gegn Chelsea í hálfleik í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Heimamenn í United hafa verið öllu sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og það var franski framherjinn Louis Saha sem skoraði mark liðsins á 29. mínútu. Þetta var 99. deildarmark framherjans í úrvalsdeildinni. 26.11.2006 16:50