Fleiri fréttir

Kenyon Martin þarf í uppskurð

Meiðslavandræði Denver Nuggets í NBA deildinni virðast engan endi ætla að taka og í gær kom í ljós að framherjinn Kenyon Martin þarf enn og aftur í uppskurð á hné og óvíst er hvenær hann getur snúið aftur til keppni. Martin fór í uppskurð á vinstra hné fyrir rúmu ári, en að þessu sinni er það hægra hnéð sem gaf sig.

Benitez vill fara til Ítalíu

Breska dagblaðið Sun hefur það eftir umboðsmanni Rafa Benitez, knattspyrnustjóra Liverpool, að Rafa hafi mikinn áhuga á því að þjálfa á Ítalíu því knattspyrnan þar í landi henti hans leikstíl best.

Hedman til reynslu hjá Chelsea

Englandsmeistarar Chelsea hafa fengið fyrrum landsliðsmarkvörð Svía, Magnus Hedman, til reynslu hjá félaginu í kjölfar meiðsla Petr Cech. Hedman lék áður með skoska liðinu Celtic auk þess sem hann spilaði með Coventy á Englandi. Hann er 33 ára gamall, en hann lagði skóna á hilluna í fyrra.

Stórleikur Oberto tryggði San Antonio sigur

Argentínumaðurinn Fabricio Oberto átti stórleik í nótt þegar San Antonio lagði Phoenix 111-106 eftir framlengdan leik í San Antonio. Oberto skoraði 22 stig, hirti 10 fráköst og hitti úr öllum 11 skotum sínum í leiknum. Dallas er enn án sigurs eftir tap gegn LA Clippers.

Knattspyrnusambandið rannsakar meint veðmál

Enska knattspyrnusambandið ætlar að hefja formlega rannsókn í kjölfar þess að fyrrum starfsmaður hjá veðmangarafyrirtækinu Victor Chandler hélt því fram að fleiri en einn knattspyrnustjóri í ensku úrvalsdeildinni stundaði að veðja á úrslit leikja í deildinni, en slíkt er með öllu óheimilt.

McFadden neitar sökum

Enski knattspyrnudómarinn Graham Poll var enn og aftur í sviðsljósinu í gær þegar hann vísaði James McFadden hjá Everton af velli eftir aðeins 19 mínútur í bikarleiknum gegn Arsenal í gærkvöld. Poll gaf þá skýringu að McFadden hafi brúkað munn við sig, en leikmaðurinn vísar því alfarið á bug.

Enn meiðist Martin Laursen

Danski varnarmaðurinn Martin Laursen hjá Aston Villa verður frá keppni í nokkurn tíma eftir að hafa þurft að fara meiddur af velli í leiknum gegn Chelsea í gær. Laursen hefur átt við þrálát hnémeiðsli að stríða allar götur síðan hann gekk í raðir enska liðsins árið 2004. Leikmaðurinn sjálfur segir meiðslin ekki alvarleg, en Villa missti Gareth Barry einnig í meiðsli í gær.

Freddy Adu verður til reynslu hjá United

Manchester United er nú í viðræðum við bandaríska úrvalsdeildarliðið DC United um að fá framherjann efnilega Freddy Adu til reynslu í þessum mánuði. Adu þessi er aðeins 17 ára gamall og talinn mikið efni. Hann hefur einnig verið orðaður við Chelsea og talið er að félögin muni jafnvel gera kauptilboð í hann í janúar.

Sissoko frá í mánuð

Miðjumaðurinn Mohamed Sissoko verður frá keppni í að minnsta kosti einn mánuð eftir að hann fór úr axlarlið í bikarleiknum gegn Birmingham í gærkvöldi. Sissoko er landsliðsmaður Malí og hefur verið nokkuð óheppinn með meiðsli síðan hann gekk í raðir Liverpool.

Sacramento - Detroit í beinni

Leikur Sacramento Kings og Detroit Pistons verður sýndur í beinni útsendingu á NBA TV sjónvarpsstöðinni klukkan hálf fjögur í nótt. Þarna eru á ferðinni tvö af sterkari liðum deildarinnar og því kjörið fyrir nátthrafna að stilla á NBA TV í nótt.

Bayern tapaði fyrir botnliðinu

Þýskalandsmeistarar Bayern Munchen töpuðu mjög óvænt 1-0 fyrir botnliði Hannover í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld. Það var Szabolcs Huszti sem skoraði mark félaga Gunnars Heiðars Þorvaldssonar eftir varnarmistök Bayern, sem er nú sex stigum á eftir toppliði Werder Bremen. Stuttgart er í öðru sætinu eftir 2-0 sigur á Hamburg í gær.

Bikarmeistararnir úr leik

Óvænt úrslit urðu í spænska bikarnum í kvöld þegar titilhafarnir Espanyol féllu úr keppni gegn þriðjudeildarliði Rayo Vallecano 2-1 samanlagt. Barcelona kláraði smálið Badalona í beinni á Sýn 4-0 og samanlagt 6-1, þar sem Javier Saviola skoraði tvívegis.

Tottenham áfram eftir framlengingu

Enska úrvalsdeildarliðið Tottenham var síðasta liðið til að tryggja sér sæti í 8-liða úrslitum enska deildarbikarsins í kvöld þegar liðið lagði Port Vale 3-1 á heimavelli sínum eftir framlengdan leik. Tom Huddlestone skoraði tvö marka Tottenham og Jermain Defoe eitt.

Auðvelt hjá Chelsea

Chelsea burstaði Aston Villa 4-0 í enska deildarbikarnum í kvöld og er komið áfram í næstu umferð keppninnar líkt og Liverpool sem vann Birmingham 1-0 og Arsenal sem lagði Everton 1-0. Leikur Tottenham og Port Vale fór í framlengingu þar sem staðan var 1-1 að loknum venjulegum leiktíma.

Allt eftir bókinni í kvöld

Fjórir leikir voru háðir í úrvalsdeild karla í körfubolta í kvöld og þá var einn leikur í kvennaflokki. Segja má að úrslit kvöldsins hafi verið nokkuð eftir bókinni, en toppliðin unnu sigur í sínum leikjum.

HK á toppinn

HK skellti sér á toppinn í dhl deild karla í kvöld með sigri á Haukum 26-21 í Digranesi. HK hefur 9 stig í efsta sæti deildarinnar en Valsmenn hafa 8 stig og eiga leik til góða. Haukar eru í sjötta sætinu með 4 stig eftir 6 leiki.

Liverpool yfir gegn Birmingham

Liverpool hefur yfir 1-0 gegn Birmingham þegar flautað hefur verið til leikhlés í virðureign liðanna í enska deildarbikarnum. Það var danski landsliðsmaðurinn Daniel Agger sem skoraði mark Liverpool í uppbótartíma, en Mohamed Sissoko þurfti að fara meiddur af velli eftir 26 mínútur. Leikurinn hefur verið fjörlegur og er í beinni útsendingu á Sýn.

Bindur miklar vonir við íslenska knattspyrnumenn

Einn litríkasti knattspyrnumarkvörður heims, Bruce Grobbelaar segir að Ísland verði á meðal sterkustu knattspyrnuþjóða innan tíu ára. Grobbelar dúkkaði óvænt upp á knattspyrnumóti í Egilshöll um síðustu helgi.

Ferrari vill halda Schumacher í vinnu

Forráðamenn Ferrari vilja ólmir halda í sjöfaldan heimsmeistara Michael Schumacher þó hann hafi lagt stýrið á hilluna á dögunum og er Schumacher nú með tilboð í höndunum um að gerast aðstoðarmaður Jean Todt liðsstjóra. Þjóðverjinn er sagður ætla að hugsa málið í nokkrar vikur áður en hann tekur ákvörðun um framhaldið.

Björgólfur staðfestir samstarf við Eggert

Björgólfur Guðmundsson, formaður bankaráðs Landsbankans, sendi í dag frá sér yfirlýsingu þar sem hann staðfestir að hann sé maðurinn sem standi á bak við meirihluta þess fjármagns sem Eggert Magnússon hefur verið að raka saman til að gera kauptilboð í enska knattspyrnufélagið West Ham.

Farinn aftur til Tottenham

Landsliðsmaðurinn Emil Hallfreðsson hefur nú snúið aftur til London þar sem hann ætlar sér að halda áfram að vinna sér sæti í liði Totteham. Emil gerði gott mót með Malmö í Svíþjóð sem lánsmaður á síðustu mánuðum, en samkvæmt heimasíðu félagsins hefur hann ákveðið að reyna aftur fyrir sér á Englandi.

Stórt tap hjá Keflvíkingum

Keflvíkingar töpuðu fyrsta leik sínum í Áskorendakeppni Evrópu í körfubolta 107-74 gegn Mlekana Kurin frá Tékklandi ytra í kvöld. Tékkneska liðið er mjög sterkt og því var við ramman reip að draga fyrir Keflvíkinga, sem auk þess voru án Magnúsar Gunnarssonar sem var að eignast sitt fyrsta barn með konu sinni.

Malbranque í byrjunarliði Tottenham

Franski miðjumaðurinn Steed Malbranque verður að öllum líkindum í byrjunarliði Tottenham í kvöld þegar liðið mætir Port Vale í enska deildarbikarnum. Malbranque hefur enn ekki spilað leik fyrir Tottenham síðan hann gekk í raðir liðsins í sumar eftir uppskurð við kviðsliti.

Mars frá Feti til Svíþjóðar

Á vefsíðunni www.fet.is segir að stóðhesturinn Mars frá Feti hafi verið seldur til Svíþjóðar og fór hann utan fyrir skemmstu. Mars er fimm vetra gamall, undan Seif frá Efra-Apavatni og gæðingamóðurinni Ásdísi frá Neðra-Ási. Mars var sýndur í kynbótadómi sl. vor og hlaut þá feiknagóðan dóm, 8.41 fyrir sköpulag og 8.44 fyrir hæfileika, í aðaleinkunn 8.43.

Nýtt hesthúsahverfi og íþróttaaðstaða fyrir hestamenn

Á síðasta bæjarstjórnarfundi Garðabæjar var samþykkt nýtt skipulag á Kjóavöllum og verður nýtt skipulag kynnt á aðalfundi Andvara sem haldin verður 20. nóvember næstkomandi. Er þetta mikil stækkun á félagssvæði Andvara og Gustara, en á nýju sameiginlegu hesthúsasvæði Andvara og Gusts verður frábær aðstaða fyrir hestamenn, hvort sem það eru keppnismenn, útreiðarmenn eða börn og unglingar.

Carmelo Anthony gaf Syracuse 200 milljónir

Framherjinn Carmelo Antony hjá Denver Nuggets gaf í gær gamla háskólanum sínum 200 milljónir króna sem varið verður til byggingar nýrrar æfingaaðstöðu fyrir körfuboltalið skólans. Anthony varð háskólameistari með liðinu árið 2003 á sínu eina ári í háskóla áður en hann gaf kost á sér í NBA deildina.

Veigar tilnefndur sem besti leikmaðurinn

Veigar Páll Gunnarsson hjá norska liðinu Stabæk er einn þriggja leikmanna sem tilnefndir hafa verið sem leikmaður ársins í norsku úrvalsdeildinni. Þeir Robert Koren hjá Lilleström og Steffen Iversen hjá Rosenborg eru einnig tilnefndir sem leikmenn ársins.

Birmingham verður í hefndarhug

Rafa Benitez reiknar fastlega með því að lið Birmingham verði í miklum hefndarhug í kvöld þegar liðið tekur á móti Liverpool í enska deildarbikarnum, en þessi lið mættust í bikarkeppninni á síðustu leiktíð og þá sigraði Liverpool 7-0.

Beckham varð fyrir áfalli

Fabio Capello segir að erfiðleikar David Beckham á knattspyrnuvellinum undanfarið stafi af því að hann hafi orðið fyrir sálrænu áfalli við það að segja af sér sem fyrirliði enska landsliðsins og að það hafi fengið á hann að vera ekki valinn í liðið síðan á HM.

Mikið fjör á öllum vígstöðvum í kvöld

Það verður mikið um að vera í körfuboltanum í kvöld. Karlalið Keflavíkur spilar sinn fyrsta leik í Evrópukeppninni á útivelli gegn tékkneska liðinu Mlekarna Kunin og þá eru fjórir leikir í úrvalsdeild karla og einn í efstu deild kvenna.

Tveir bikarleikir á Sýn í kvöld:

Leikur Birmingham og Liverpool í enska deildarbikarnum verður sýndur beint á Sýn í kvöld og hefst útsending klukkan 19:35. Þá verður síðari leikur Barcelona og Badalona í spænska bikarnum sýndur beint þar á eftir.

Besta byrjun í sögu Hornets

New Orleans Hornets vann í nótt sinn fjórða leik í röð í upphafi leiktíðar í NBA og er þetta besta byrjun í sögu félagsins. Liðið skellti Golden State 97-93 á heimavelli í Oklahoma City þar sem Chris Paul skoraði 22 stig og gaf 11 stoðsendingar fyrir New Orleans en Baron Davis skoraði 22 stig fyrir Golden State.

Xavier skrifar undir hjá Boro

Portúgalski varnarmaðurinn Abel Xavier hefur skrifað undir samning við enska úrvalsdeildarfélagið Middlesbrough og gildir hann til loka leiktíðarinnar. Xavier hefur nýlokið við að afplána 12 mánaða keppnisbann vegna lyfjanotkunar og er 33 ára gamall. Hann hefur staðið sig vel á æfingum með liðinu að undanförnu og því ákváðu forráðamenn félagsins að bjóða honum stuttan samning.

Wenger og Pardew kærðir

Enska knattspyrnusambandið hefur kært knattspyrnustjórana Arsene Wenger hjá Arsenal og Alan Pardew hjá West Ham fyrir ósæmilega hegðun á hliðarlínunni þegar lið þeirra mættust í úrvalsdeildinni um helgina. Vallarverðir þurftu að skilja þá félaga í sundur og lá við handalögmálum. Þeir hafa frest til 23. nóvember til að svara fyrir sig.

Leiktíðinni lokið hjá Ameobi?

Glenn Roeder, stjóri Newcastle, segir að framherjinn Shola Ameobi þurfi líklega að fara til Ameríku í skurðaðgerð vegna þrálátra meiðsla á mjöðm sem hafa haldið framherjanum frá keppni í tvær vikur. Roeder segir að ef hann þurfi í uppskurðinn, þýði það væntanlega að hann spili ekki meira með liðinu á leiktíðinni.

Handtekinn vegna gruns um líkamsárás

Fyrrum landsliðsmaðurinn Paul Gascoigne hefur verið handtekinn af lögreglu vegna gruns um líkamsárás á næturklúbbi í Kensington í Lundúnum. Gascoigne er 39 ára gamall og hefur um árabil átt við áfengis- og fíkniefnavanda að stríða. 43 ára gamall karlmaður hefur lagt fram kæru til lögreglu og heldur því fram að á sig hafi verið ráðist. Málið er í rannsókn.

Ibrahimovic ekki í hópnum

Lars Lagerback, landsliðsþjálfari Svía, hefur valið landsliðshópinn sem mætir Fílabeinsströndinni í næstu viku og það sem mesta athygli vakti var að Zlatan Ibrahimovic var ekki valinn í liðið.

United úr leik - Hermann skaut Charlton áfram

Deildarbikarmeistarar Manchester United eru úr leik í keppninni þetta árið eftir 1-0 tap gegn Southend. Hermann Hreiðarsson og félagar í Charlton unnu nauman sigur á Chesterfield eftir framlengdan leik og vítakeppni, en Hermann skoraði sigurmark Charlton í vítakeppninni.

Indiana - Philadelphia í beinni

Leikur Indiana Pacers og Philadelphia 76ers verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Digital Ísland á miðnætti í kvöld. Leikurinn er ekki síst merkilegur fyrir þær sakir að Philadelphia er eitt þriggja liða í NBA sem enn hafa ekki tapað leik og hefur þessi byrjun Philadelphia komið nokkuð á óvart.

Verðum að taka leikinn við Southend alvarlega

Alex Ferguson hefur varað leikmenn sína við því að ætla að vanmeta lið Southend þegar liðin mætast í deildarbikarnum í kvöld í leik sem sýndur verður beint á Sýn. Hann segir leikinn við Crewe í síðustu umferð hafa undirstrikað að menn verði að vera fullkomlega einbeittir þó þeir spili gegn lægra skrifuðum andstæðingum.

Íhugaði að hætta í sumar

Steve Bruce segist hafa íhugað alvarlega að segja af sér sem knattspyrnustjóri Birmingham í sumar eftir að lið hans féll úr úrvalsdeildinni. Lærisveinar hans mæta Liverpool í enska deildarbikarnum annað kvöld og reyna þá að hefna ófaranna frá því í fyrra þegar liðið tapaði 7-0 fyrir þeim rauðu.

Þjálfari dæmdur í lífstíðarbann

Stanislav Bernikov, fyrrum þjálfari þriðjudeildarliðsins Metallurg Lipetsk í Rússlandi, hefur verið dæmdur í lífstíðarbann frá atvinnuknattspyrnu eftir að hafa ráðið handrukkara til að berja þrjá af fyrrum leikmönnum sínum hjá liðinu.

Peningakast til rannsóknar

Forráðamenn enska úrvalsdeildarfélagsins Fulham hafa fengið lögreglu að komast að því hver var að verki um helgina þegar smápeningi var kastað í höfuð Claus Jensen, leikmanns Fulham, í leik gegn Everton á laugardaginn. Svipað atvik átti sér stað í leik West Ham og Arsenal.

Ég er engin rolla

Franski bakvörðurinn Benoit Assou-Ekotto hjá Tottenham vandar fyrrum félögum sínum í Rennes ekki kveðjurnar og segist hafa farið frá félaginu af því það kjósi að vera með viljalausa sauði í sínum röðum.

Southend - Man Udt í beinni í kvöld

Nokkrir leikir fara fram í enska deildarbikarnum í kvöld og verður leikur Southend og Man Utd sýndur beint á Sýn klukkan 19:50. Fleiri leikir fara fram í keppninni annað kvöld og þá verður slagur Birmingham og Liverpool sýndur á Sýn.

Sjá næstu 50 fréttir