Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Xavier að snúa aftur? Svo gæti farið að portúgalski varnarmaðurinn Abel Xavier spilaði sinn fyrsta leik með varaliði félagsins eftir helgina, en leikbannið sem hann fékk fyrir að falla á lyfjaprófi forðum rennur út á laugardag. 12.10.2006 16:32
Sex æfingaleikir í nótt Sex æfingaleikir voru á dagskrá á undirbúningstímabilinu í NBA liðna nótt. Ben Wallace stimplaði sig vel inn í lið Chicago Bulls sem vann nauman sigur á Washington Wizards. 12.10.2006 16:11
Byrjaður að æfa á ný Vængmaðurinn ungi, Aaron Lennon hjá Tottenham, er nú farinn að stunda léttar æfingar á ný eftir að hafa gengist undir lítla aðgerð á hné fyrir skömmu. Bati enska landsliðsmannsins hefur verið skjótari en nokkur þorði að vona, en hann verður þó ekki klár í slaginn gegn Aston Villa um helgina. 12.10.2006 15:54
Henry talinn líklegur Alþjóða knattspyrnusambandið hefur nú gefið út lista yfir þá 30 leikmenn sem tilnefndir hafa verið sem knattspyrnumaður ársins. Tólf leikmenn úr ensku úrvalsdeildinni eru þar tilnefndir og þykir Thierry Henry hjá Arsenal líklegastur til að hreppa hnossið að þessu sinni. 12.10.2006 15:36
Formlegar viðræður hafnar Breska sjónvarpið heldur því fram í dag að Eggert Magnússon hafi staðfest að hann sé kominn í formlegar viðræður við forráðamenn West Ham um að festa kaup á félaginu. Talið er að kaupverðið yrði í kring um 75 milljónir punda, eða um 10 milljarðar króna. 12.10.2006 14:59
Rasheed Wallace eignar sér reglubreytingar Reglur í NBA deildinni hafa nú verið hertar til muna og dómurum verið gert að grípa mun fyrr til þess að gefa leikmönnum tæknivillur fyrir mótmæli. Rasheed Wallace segir að þessar breyttu áherslur séu bein árás á sig og kallar hinar nýju reglubreytingar "aðeins enn eina Wallace-regluna" 11.10.2006 23:00
Chicago - Washington í beinni Leikur kvöldsins á NBA TV frá undirbúningstímabilinu er viðureign Chicago Bulls og Washington Wizards. Þarna gefst áhorfendum tækifæri til að sjá Big Ben Wallace í eldlínunni með Chicago í fyrsta sinn síðan hann gekk í raðir liðsins frá Detroit í sumar. Leikurinn hefst klukkan hálf eitt í nótt. 11.10.2006 22:52
Stephen Jackson á leið í fangelsi? Stephen Jackson, leikmaður Indiana Pacers í NBA deildinni, gæti nú átt yfir höfði sér fangelsisvist eftir að lögregla í Indianapolis ákvað í dag að kæra hann fyrir gáleysi og ólæti á almannafæri í kjölfar þess að hann lenti í átökum fyrir utan súlustað þar í borg á dögunum. 11.10.2006 22:45
Ég gat ekkert gert Enski landsliðsmarkvörðurinn Paul Robinson gat lítið sagt þegar hann var spurður út í sjálfsmarkið slysalega sem hann fékk á sig í Zagreb í kvöld þegar Englendingar töpuðu 2-0 fyrir Króötum í undankeppni EM. 11.10.2006 22:26
Corey Lidle látinn Nú hefur verið staðfest að maðurinn sem flaug vélinni sem brotlenti á háhýsinu á Manhattan í kvöld var Croy Lidle, kastari hafnarboltaliðsins New York Yankees. Lidle gekk til liðs við New York nú í sumar og var nýbúinn að verða sér út um flugmannspróf. 11.10.2006 21:58
Tap fyrir Svíum Íslenska landsliðið tapaði 2-1 fyrir Svíum í undankeppni EM á Laugardalsvelli í kvöld eftir að staðan hafði verið jöfn í leikhléi 1-1. Íslenska liðið var mun sterkari aðilinn í síðustu mínúturnar og átti Eiður Smári Guðjohnsen meðal annars skot í slá sænska marksins. 11.10.2006 21:30
HK á toppnum Einn leikur var á dagskrá í DHL-deild karla í handknattleik í kvöld. Íslandsmeistarar Fram urðu að láta sér lynda jafntefli gegn HK í Digranesi 22-22 og því er Kópavogsliðið í efsta sæti deildarinnar. 11.10.2006 21:29
Fyrsti sigur Maltverja í 13 ár Smálið Möltu vann í kvöld frækinn sigur á Ungverjum á heimavelli 2-1 í C-riðli undankeppni EM. Þetta var fyrsti sigur liðsins í alvöru knattspyrnuleik í 13 ár og fyrsti sigur liðsins í undankeppni EM síðan árið 1982 - en það var einmitt gegn okkur Íslendingum. 11.10.2006 20:58
England fer áfram Steve McClaren segir að enska landsliðið muni án efa komast á EM 2008 þrátt fyrir að liðið hafi tapað 2-0 fyrir Króötum í kvöld og hafi nú aðeins náð í eitt stig og ekki skorað mark í síðustu tveimur leikjum sínum. 11.10.2006 20:42
Englendingar lágu í Króatíu Englendingar voru mjög langt frá sínu besta í kvöld þegar liðið steinlá 2-0 fyrir Króatíu á útivelli í kvöld. Eduardo kom króatíska liðinu yfir eftir 60 mínútna leik og Gary Neville innsiglaði sigur heimamanna með því að skora afar slysalegt sjálfsmark. Englendingar hafa ekki skorað í tveimur leikjum í röð í undankeppninni. 11.10.2006 20:32
Wilhelmson kemur Svíum yfir Svíar hafa náð 2-1 forystu gegn Íslendingum á Laugardalsvelli. Markið skoraði Christian Wilhelmsson á 59. mínútu eftir laglegt spil sænska liðsins. 11.10.2006 19:21
Jafnt í hálfleik á Laugardalsvelli Staðan í leik Íslendinga og Svía í undankeppni EM á Laugardalsvelli er jöfn 1-1 þegar flautað hefur verið til leikhlés. Arnar Þór Viðarsson skoraði mark íslenska liðsins með laglegu skoti á 6. mínútu en Kim Kallström jafnaði með ótrúlegu skoti úr aukaspyrnu skömmu síðar. Svíarnir voru nálægt því að komast yfir með öðrum þrumufleyg undir lok hálfleiksins, en Hermann Hreiðarsson varði skotið með glæsilegum hætti. 11.10.2006 19:06
Fjörug byrjun á Laugardalsvelli Það hefur heldur betur dregið til tíðinda snemma á Laugardalsvelli, en staðan í leik Íslendinga og Svía er orðin 1-1 eftir aðeins 10 mínútna leik. Arnar Þór Viðarsson kom Íslendingum yfir með frábæru langskoti á 6. mínútu, en Kim Kallström jafnaði með ótrúlegum þrumufleyg úr aukaspyrnu af hátt í 40 metra færi innan við tveimur mínútum síðar. 11.10.2006 18:16
Mellberg veikur Svíar gerðu eina breytingu á liði sínu á síðustu stundu fyrir leikinn gegn Íslendingum, en miðvörðurinn sterki Olof Mellberg frá Aston Villa er með magakveisu og í stað hans kom Mikael Antonsson í byrjunarliðið. 11.10.2006 18:10
Ísland - Svíþjóð að hefjast Nú er leikur Íslands og Svíþjóðar í undankeppni EM í knattspyrnu að hefjast á Laugardalsvelli, en leikurinn er sýndur beint á Rúv fyrir þá sem ekki hafa tök á því að mæta á völlinn. Þjóðsöngvarnir hafa verið sungnir af stjörnutenórnum knáa og Emil Hallfreðsson var eini íslenski leikmaðurinn sem tók undir fullum hálsi. Sómi af því. 11.10.2006 18:04
Okkur er full alvara Þau tíðindi að Eggert Magnússon hefði í hyggju að kaupa enska úrvalsdeildarfélagið West Ham hafa farið um England eins og eldur í sinu í dag. Mikið hefur verið rætt um hugsanlega sölu á meirihluta í félaginu í haust og segir Eggert að sér sé dauðans alvara með formlegu yfirtökutilboði sínu. 11.10.2006 17:45
Líkir landsliðsþjálfurum við bílþjófa Arsene Wenger hefur enn á ný ákveðið að tjá gremju sína í garð landsliðsþjálfara og í dag líkti hann leikmönnum sínum við stolna bensínlausa bíla á víðavangi þegar þeir sneru aftur úr landsleikjum. 11.10.2006 17:30
Hermann í ljótasta liði ársins Það er ekkert nýtt undir sólinni í knattspyrnuheiminum og nú hefur íslenski landsliðsmaðurinn Hermann Hreiðarsson orðið þess vafasama heiðurs aðnjótandi að vera valinn í úrvalslið ljótustu leikmanna í ensku úrvalsdeildinni að mati vefsíðu sem hefur útlit knattspyrnumanna að umtalsefni. 11.10.2006 16:44
Írland - Tékkland á Sýn í kvöld Leikur Íra og Tékka verður sýndur á Sýn Extra klukkan 20 í kvöld, en hann verður einnig á dagskrá Sýnar klukkan 21:40, eða eftir útsendinguna frá leik Króata og Englendinga. Írar eiga undir högg að sækja þessa dagana og er stóllinn farinn að hitna verulega undir Steve Staunton landsliðsþjálfara. 11.10.2006 16:29
Byrjunarlið Svía klárt Nú er ljóst hverjir verða í byrjunarliði Svía sem sækir okkur Íslendinga heim á Laugardalsvelli í undankeppni EM í kvöld. Nokkur ný andlit eru í hópnum eftir forföll í sænska liðinu. 11.10.2006 16:15
Kalla Íslendinga aumingja Blaðamenn Aftonbladet í Svíþjóð eru ekki að skafa af því þegar þeir fjalla um leik Íslendinga og Svía í undankeppni EM á Laugardalsvellinum í kvöld og kalla íslenska liðið aumingja. Þorsteinn Gunnarsson greindi frá þessu á NFS í hádeginu. 11.10.2006 15:25
Leikmenn Arsenal hitta aðdáendur í dag Leikmenn kvennaliðs Arsenal munu klukkan 16 í dag hitta áhugasama aðdáendur liðsins í Landsbankanum í Smáralindinni, en enska liðið mætir kvennaliði Breiðabliks í Evrópukeppninni á morgun. Allir eru velkomnir í Smáralindina í dag og þar verður lið Breiðabliks einnig að gefa eiginhandaráritanir. 11.10.2006 15:17
Detroit skellti meisturunum Nokkrir leikir fóru fram á undirbúningstímabilinu í NBA í nótt. Detroit Pistons skellti Miami 84-64 í Portó Ríkó í leik sem sýndur var beint á NBA TV á Digital Ísland. 11.10.2006 15:15
Carragher og Parker væntanlega í byrjunarliðinu Þeir Jamie Carragher og Scott Parker fá líklega tækifæri í byrjunarliði Englendinga í kvöld þegar liðið mætir Króötum í undankeppni EM en leikurinn verður sýndur á Sýn klukkan 20 í kvöld. 11.10.2006 14:37
Byrjunarlið Íslands gegn Svíum Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálfari hefur tilkynnt byrjunarlið sitt sem tekur á móti Svíum í undankeppni EM á Laugardalsvelli í kvöld. Þrjár breytingar hafa verið gerðar á liðinu frá síðasta leik. 11.10.2006 14:27
Eggert Magnússon að kaupa West Ham? Eggert Magnússon, formaður knattspyrnusambands Íslands, átti í fyrradag fund með forráðamönnum enska úrvalsdeildarfélagsins West Ham. Eggert staðfesti í samtali við Þorstein Gunnarsson á NFS að hann væri að íhuga að festa kaup á félaginu. 11.10.2006 14:15
Arsenal í Landsbankanum Leikmenn kvennaliðs Arsenal frá Englandi verða í Landsbankanum í Smáralind í dag klukkan 16:00. Öllum er boðið að koma og hitta stúlkurnar. Þar verður til dæmis hægt að fá eiginhandaáritanir frá þeim. 11.10.2006 12:00
George Karl framlengir við Denver Þjálfarinn George Karl hefur framlengt samning sinn við NBA lið Denver Nuggets til ársins 2010, en undir hans stjórn hefur liðið náð sínum besta árangri síðan það gekk inn í NBA deildina fyrir þremur áratugum. 10.10.2006 22:00
Walcott tryggði Englendingum sæti á EM Táningurinn Theo Walcott tryggði enska U-21 árs landsliðinu 2-0 sigur á Þjóðverjum í kvöld og um leið sæti á EM næsta sumar, þegar hann skoraði bæði mörk liðsins eftir að hafa komið inn sem varamaður þegar 15 mínútur voru eftir af leiknum. Einum leikmanni var vikið af leikvelli í báðum liðum í kvöld, en Þjóðverjar klúðruðu vítaspyrnu og fjölda marktækifæra. Enska liðið vann því einvígið í umspilinu samanlagt 3-0. 10.10.2006 20:50
Brasilía lagði Ekvador Brasilíumenn lögðu granna sína Ekvadora 2-1 í vináttulandsleik í Stokkhólmi í kvöld eftir að hafa verið manni fleiri frá 29. mínútu. Ekvadorar komust í 1-0 og voru betra liðið framan af, en Fred jafnaði skömmu fyrir hálfleik og Kaka skoraði sigurmarkið á 74. mínútu. 10.10.2006 19:52
Jónas Sævarsson í landsliðið Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálfari hefur valið Jónas Guðna Sævarsson úr Keflavík og Ásgeir Gunnar Ágeirsson úr FH í landsliðshóp sinn fyrir leikinn gegn Svíum á morgun í stað Helga Vals Daníelssonar sem er meiddur. Eins og fram kom í dag er Veigar Páll Gunnarsson veikur og verður ekki með gegn Svíum. 10.10.2006 19:31
Fyrsta beina útsendingin á NBA TV í nótt Í kvöld geta NBA áhugamenn tekið forskot á sæluna þegar NBA TV sjónvarpsstöðin á Digital Ísland verður með fyrstu beinu útsendinguna frá undirbúningstímabilinu og hér er enginn smá leikur á ferðinni - viðureign Miami Heat og Detroit Pistons. 10.10.2006 18:56
Kallar á stolt og ástríðu Steve McClaren vill að leikmenn enska landsliðsins sýni stolt sitt og ástríðu þegar þeir sækja Króata heim í undankeppni EM annað kvöld í leik sem sýndur verður beint á Sýn. 10.10.2006 18:24
Veigar Páll og Helgi Valur ekki með gegn Svíum Þær fréttir voru að berast af íslenska landsliðinu í knattspyrnu að þeir Veigar Páll Gunnarsson og Helgi Valur Daníelsson hafa þurft að draga sig út úr hópnum fyrir leikinn gegn Svíum á morgun. 10.10.2006 18:02
Leik kvöldsins frestað Leik Hauka og Stjörnunnar í DHL-deild kvenna sem fara átti fram í kvöld klukkan 20 hefur verið frestað og fer hann fram á sama tíma annað kvöld. 10.10.2006 17:59
Brasilía - Ekvador í beinni á Sýn Brasilíumenn og Ekvadorar spila í kvöld vináttuleik í knattspyrnu í Stokkhólmi í kvöld og verður leikurinn sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn klukkan 17:50. Landsliðsþjálfari Brasilíu hefur ákveðið að gera breytingar á undirbúningi liðsins frá því sem tíðkaðist á HM. 10.10.2006 17:14
Króatar aðvaraðir Evrópska knattspyrnusambandið hefur nú sent króatíska knattspyrnusambandinu aðvörun um að hafa hemil á stuðningsmönnum landsliðsins í leiknum gegn Englendingum annað kvöld, en stuðningsmenn króatíska liðsins hafa gerst sekir um kynþáttafordóma að undanförnu. 10.10.2006 15:15
Sleppur með sekt Joey Barton sleppur með skrekkinn eftir að hafa berað á sér bossann í leik gegn Everton á dögunum, en aganefnd enska knattspyrnusambandsins ákvað að sleppa honum með 2000 punda sekt og aðvörun fyrir háttalag sitt. Tekið var mið af því að Barton baðst afsökunar á uppátækinu og var leikmaðurinn ánægður með niðurstöðuna. 10.10.2006 14:36
Ledley King meiddur Miðvörðurinn sterki Ledley King hefur dregið sig úr enska landsliðshópnum fyrir leikinn gegn Króötum annað kvöld vegna meiðsla á hné, en miklar bólgur hafa tekið sig upp í hné hans eftir leiki í haust vegna aðgerðar sem hann gekkst undir í sumar. Þetta kemur ekki að sök fyrir enska liðið því Rio Ferdinand tekur stöðu hans eftir að snúa sjálfur til baka eftir meiðsli. 10.10.2006 14:32
Haukar mæta Paris Handball Í dag var dregið í í þriðju umferð Evrópukeppni félagsliða í handbolta og fá Haukar það verkefni að mæta franska liðinu Paris Handball og verður fyrri leikur liðanna spilaður í París 4. eða 5. næsta mánaðar. Í Áskorendakeppninni dróst Fylkir á móti liði St Gallen í Sviss, en fyrri leikurinn verður hér heima í byrjun næsta mánaðar. 10.10.2006 14:26