Fleiri fréttir Eru tilbúnir að selja Senna Spænska liðið Villarreal er reiðubúið að selja miðjumanninn Marcos Senna til Manchester United ef enska liðið er tilbúið til að greiða rétta upphæð. Senna er þrítugur spænskur landsliðsmaður. "Við erum tilbúnir að ræða við forráðamenn Manchester United og ef tilboð þeirra er jákvætt fyrir alla aðila munum við láta leikmanninn af hendi," sagði Jose Llaneza, stjórnarmaður félagsins. 9.8.2006 12:00 Góður útisigur Arsenal er komið langleiðina í aðalkeppni Meistaradeildar Evrópu eftir að hafa unnið Dinamo Zagreb örugglega 3-0 á útivelli í gær. Þetta var fyrri viðureign liðanna í þriðju umferð forkeppninnar en mörk Arsenal komu öll í seinni hálfleik. Cesc Fabregas skoraði tvö af mörkunum en mínútu eftir að hann braut ísinn á 63. mínútu skoraði Robin Van Persie eftir að hafa fengið langa sendingu frá Alexander Hleb. 9.8.2006 12:00 Erna B. Sigurðardóttir: skoraði þrennu og lagði eitt upp í stórsigri breiðabliks í gær "Við hefðum vel getað unnið þennan leik stærra, við klúðruðum fullt af færum," sagði Erna B. Sigurðardóttir eftir að kvennalið Breiðabliks vann 4-0 sigur á portúgölsku meisturunum í SU 1° Dezembro í undankeppni Evrópumóts félagsliða kvenna í gær. "Mér fannst við vera betra liðið allan leikinn, þær eru fljótar og teknískar en áttu ekki möguleika gegn okkur." 9.8.2006 11:00 Landsliðshópurinn gegn Spáni 9.8.2006 10:
Sjá næstu 50 fréttir
Eru tilbúnir að selja Senna Spænska liðið Villarreal er reiðubúið að selja miðjumanninn Marcos Senna til Manchester United ef enska liðið er tilbúið til að greiða rétta upphæð. Senna er þrítugur spænskur landsliðsmaður. "Við erum tilbúnir að ræða við forráðamenn Manchester United og ef tilboð þeirra er jákvætt fyrir alla aðila munum við láta leikmanninn af hendi," sagði Jose Llaneza, stjórnarmaður félagsins. 9.8.2006 12:00
Góður útisigur Arsenal er komið langleiðina í aðalkeppni Meistaradeildar Evrópu eftir að hafa unnið Dinamo Zagreb örugglega 3-0 á útivelli í gær. Þetta var fyrri viðureign liðanna í þriðju umferð forkeppninnar en mörk Arsenal komu öll í seinni hálfleik. Cesc Fabregas skoraði tvö af mörkunum en mínútu eftir að hann braut ísinn á 63. mínútu skoraði Robin Van Persie eftir að hafa fengið langa sendingu frá Alexander Hleb. 9.8.2006 12:00
Erna B. Sigurðardóttir: skoraði þrennu og lagði eitt upp í stórsigri breiðabliks í gær "Við hefðum vel getað unnið þennan leik stærra, við klúðruðum fullt af færum," sagði Erna B. Sigurðardóttir eftir að kvennalið Breiðabliks vann 4-0 sigur á portúgölsku meisturunum í SU 1° Dezembro í undankeppni Evrópumóts félagsliða kvenna í gær. "Mér fannst við vera betra liðið allan leikinn, þær eru fljótar og teknískar en áttu ekki möguleika gegn okkur." 9.8.2006 11:00
Veigar Páll áfram í Stabæk Landsliðsmaðurinn Veigar Páll Gunnarsson hefur framlengt samning sinn við norska úrvalsdeildarliðið Stabæk til ársins 2009. Mörg lið víða um Evrópu hafa sýnt honum áhuga undanfarnar vikur en ekkert tilboð hefur enn borist í hann. 9.8.2006 09:00
Indriði Sigurðsson farinn frá KR Indriði Sigurðsson leikur ekki með KR á þessu ári. Indriði hefur samið við Oslóarfélagið SFK Lyn og heldur utan í fyrramálið. Frá þessu er greint á heimasíðu KR. 8.8.2006 21:31
Valinn í norska landsliðið á ný Ole Gunnar Solskjær, leikmaður Manchester United, var í gær valinn í norska landsliðið sem mætir Brasilíu þann 16. ágúst í Osló. Solskær hefur verið meira og minna meiddur í tvö ár en stóð sig vel á Amsterdam-mótinu um helgina en Sir Alex Ferguson, stjóri United, biðlaði til Solskjær um að hætta að spila með landsliði sínu. 8.8.2006 15:00
Snýr aftur til Inter á Ítalíu Argentínumaðurinn Hernan Crespo er genginn í raðir Ítalíumeistara Inter á nýjan leik frá Chelsea sem gætu nú þurft að kaupa sér einn sóknarmann til í sumar. Crespo hefur aldrei leynt ást sinni á Ítalíu hann spilaði þar á árunum 1999 til 2003. Hann var síðan lánaður til AC Milan en spilaði á síðasta tímabili með Chelsea. Þrátt fyrir að standa sig með prýði unaði hann ekki lífinu á Englandi og fékk draum sinn uppfylltann með því að fara til Inter á ný. 8.8.2006 14:00
Myndar sérstakt samband með Ronaldinho Landsliðsfyrirliðinn Eiður Smári Guðjohnsen skoraði eina mark Barcelona í 1-1 jafnteflisleik gegn Guadalajara í æfingaferð spænska félagsins um Bandaríkin em nú stendur yfir. Eiður skoraði þar sitt annað mark í jafn mörgum leikjum en bæði komu eftir undirbúning Brasilíumannsins Ronaldinho og virðast þeir félagar vera að finna sig vel saman. 8.8.2006 13:00
Á leiðinni til Chelsea Vinstri bakvörðurinn Ashley Cole mun að öllum líkindum ganga í raðir Englandsmeistar Chelsea í vikunni en hann var ekki í leikmannahópi Arsenal sem fór til Króatíu í gær. Ef Cole hefði spilað með Arsenal gegn Dinamo Zagreb í forkeppni Meistaradeildarinnar mætti hann ekki spila í keppninni með öðru liði. 8.8.2006 12:00
Stefnan er sett á að vinna riðilinn Blikastúlkur eru nú í Austurríki þar sem þær taka þátt í Evrópukeppni félagsliða kvenna. Með þeim í riðli eru SV Neulengbach frá Austurríki, Newtownabbey frá Norður-Írlandi og SU 1° Dezembro frá Portúgal. Fyrsti leikur Breiðabliks er í dag þegar stelpurnar mæta stöllum sínum frá Portúgal. Sigurvegari riðilsins kemst í aðra umferð en þar er einnig um riðla að ræða. Sú umferð fer fram um miðjan september. 8.8.2006 11:00
Indriði hjá Lyn Indriði Sigurðsson er nú til reynslu hjá norska liðinu Lyn en semji hann við liðið fer hann til Noregs frá KR án þess að spila leik fyrir Vesturbæjarfélagið sem hann samdi við á dögunum. Samningur hans við það segir til um að hann megi fara frítt frá þeim ef erlent lið býður honum samning. 8.8.2006 10:00
Tap gegn Dönum Bronsverðlaunin á Norðurlandamótinu í körfubolta rann Íslandi úr greipum en liðið tapaði um helgina fyrir Dönum í lokaleik sínum á mótinu. Tapið var sárt en Danir skoruðu aðeins einu stigi meira en Íslendingar í leiknum en það dugði þeim til 82-81 stigs sigurs. 8.8.2006 09:00
Vonast til að fara til Real Fjölmiðlar á Spáni segja Jose Antonio Reyes, leikmann Arsenal, enn hafa fullan hug á því að fara til Real Madrid. Spænska stórliðið hefur lengi haft augastað á Spánverjanum sem vonast til að þurfa ekki að spila með liði sínu í forkeppni meistaradeildarinnar gegn Dinamo Zagreb þar sem það myndi hindra hann í að spila í meistaradeildinni sjálfri með Real. 5.8.2006 19:00
Við eigum mikið inni og munum bara bæta okkur Íslenska landsliðið í körfubolta vann sinn fyrsta sigur á Norðurlandamótinu í Finnlandi í gær. Ísland lagði Norðmenn af velli með 90 stigum gegn 69 og segir þjálfari liðsins, Sigurður Ingimundarson, liðið vera á réttri braut. 5.8.2006 18:00
Pirraður á meiðslunum Jóhannes Harðarson, leikmaður Start í Noregi, er enn ekki góður af meiðslunum sem hafa hrjáð hann síðan í byrjun árs. Jóhannes meiddist aftur um leið og hann hafði náð sér og á enn nokkuð í land með að ná fullum bata. 5.8.2006 17:00
United vann Manchester United vann opnunarleik Amsterdammótsins gegn Porto í Hollandi í gær með þremur mörkum gegn einu en mótið verður sýnt beint á Sýn alla helgina. Paul Scholes kom United yfir með góðu skoti áður en Wayne Rooney skoraði glæsilegt mark eftir einleik. Ole Gunnar Solskjær, sem er óðum að ná sér eftir erfið meiðsli, skoraði svo þriðja mark United áður en Pepé minnkaði muninn með stórbrotnu marki. 5.8.2006 16:00
Nýr stjóri hjá Aston Villa Aston Villa hefur fundið nýjan knattspyrnustjóra en það er Martin O'Neill sem hefur ekki verið viðriðinn fótboltann undanfarið ár. Hann hætti með skoska liðið Glasgow Celtic þar sem eiginkona hans, Geraldine, átti við alvarleg veikindi að stríða. Hún er hins vegar á skjótum batavegi og mun O'Neill halda með aSton Villa í æfingaferð til Þýskalands og Hollands um helgina að því er BBC hermir. 5.8.2006 15:00
Anna Lísa og Örn Ævar meistarar Anna Lísa Jóhannsdóttir úr GR og Örn Ævar Hjartarson úr GS urðu Íslandsmeistarar í holukeppni en mótið fór fram á Grafarholtsvelli. Anna Lísa vann Þórdísi Geirsdóttur í úrslitaleiknum 3/2 en staðan var jöfn eftir þrettán holur áður en leiðir skildust. Anna Lísa vann þá þrjár holur í röð og tryggði sér sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil. 5.8.2006 14:00
Einvígi Alonso og Schumacher Um helgina verður Formúlu 1 kappakstur í Búdapest og er mikil spenna fyrir hann. Michael Schumacher á þarna möguleika á að vinna sitt fjórða mót í röð en sex mót eru eftir. Fernando Alonso er í efsta sæti í keppni ökumanna en Schumacher er aðeins ellefu stigum á eftir honum og því ljóst að allt getur gerst. 5.8.2006 13:00
Fyrsta markið fyrir Barcelona Landsliðsfyrirliðinn Eiður Smári Guðjohnsen skoraði í gær sitt fyrsta mark í búningi Barcelona en hann er nýgenginn í raðir Spánar- og Evrópumeistaranna. Markið kom í æfingaleik við UANL Tígrana í Mexíkó. Barcelona sigraði með þremur mörkum gegn engu og skoraði brasilíski snillingurinn Ronaldinho eitt mark úr aukaspyrnu, en hann kom inn sem varamaður í leiknum líkt og Eiður Smári. 5.8.2006 12:00
Fer til Häcken til að fá að spila Knattspyrnumaðurinn Ari Freyr Skúlason skrifaði í gær undir þriggja ára samning við sænska úrvalsdeildarliðið Häcken. Ari er nítján ára gamall og hefur leikið frábærlega með Valsmönnum í Landsbankadeildinni í sumar. "Þetta gerðist alveg ótrúlega fljótt, nú er það bara frágengið að ég mun fara út á miðvikudaginn og gangast undir læknisskoðun," sagði Ari sem er alveg pottþéttur á því að hann muni fljúga í gegnum þá skoðun. 5.8.2006 11:00
Hólmar til Silkeborg Hólmar Örn Rúnarsson er nánast búinn að ná samkomulagi við Silkeborg um kaup og kjör en danska liðið eru nú í viðræðum við Keflvíkinga um kaupverð á miðjumanninum. Hólmar sagðist vera spenntur fyrir atvinnumennskunni þegar Fréttablaðið talaði við hann í gær en hann verður líklega orðinn leikmaður Silkeborg innan skamms. 5.8.2006 11:00
Örn í tíunda sæti Örn Arnarson úr Sundfélagi Hafnarfjarðar bætti Íslandsmet sitt í 100 metra flugsundi um tæpa hálfa sekúndu í undanrásum á Evrópumótinu í Búdapest í gær. Örn lenti í sjötta sæti á tímanum 53,42 sekúndum en hann keppti síðan í undanúrslitum í gærdag. Þar lenti Örn í tíunda sæti þegar hann synti á 53,54 sekúndum. og komst ekki í úrslitin. Jakob Jóhann Sveinsson úr Ægi synti 50m bringusund í undanrásum í gær og var það síðasta grein hans á mótinu. Jakob synti á tímanum 29,09 sem dugði honum í 34. sætið. 5.8.2006 10:00
Þénar meira en Beckham Tekjur Rússneski tennisspilarinn Maria Sharapova er tekjuhærri en sjálfur David Beckham samkvæmt úttekt bandaríska tímaritsins Sports Illustrated á tekjuhæstu íþróttamönnum heims, annarra en Bandaríkjamanna. Sharapova skaust upp í fjórða sæti listans með 25,4 milljónir bandaríkjadala en Beckham er með 23 milljónir í tekjur á hverju ári. 4.8.2006 17:30
Vinnubrögð Livingstone eru fáránleg Sigurður Jónsson, þjálfari Grindavíkur, er mjög ósáttur með vinnubrögð skoska 1. deildarliðsins Livingstone sem hefur gert þriggja ára samning við Colin Stewart. Markmaðurinn hefur leikið vel með Grindavíkingum í sumar og er samningsbundinn þeim til 1. september en Livingstone talaði ekki við Suðurnesjaliðið áður en þeir sömdu við Stewart. 4.8.2006 17:00
Þarf miklu meiri baráttu "Nú er maður bara tannlæknir í hlutastarfi," sagði Heimir Hallgrímsson, nýráðinn þjálfari karlaliðs ÍBV en hann tekur við af Guðlaugi Baldurssyni sem látið hefur af störfum. "Þetta er er mjög há brekka en það er ekkert annað að gera en að ráðast á hana og leggja af stað. Laugi er góður drengur og ég mun sakna hans," sagði Heimir sem var aðstoðarmaður Guðlaugs og hefur starfað við þjálfun hjá kvennaliði félagsins. 4.8.2006 16:30
Valur samþykkti tilboð Häcken Valur og sænska úrvalsdeildarliðið Häcken hafa komist að samkomulagi um kaupverð á miðvallarleikmanninnum unga, Ara Frey Skúlasyni, sem slegið hefur í gegn með Valsmönnum í Landsbankadeildinni í sumar. Þetta staðfesti Ótthar Edvardsson, framkvæmdarstjóri knattspyrnudeildar Vals, í samtali við Fréttablaðið í gær. Ari Freyr og fulltrúi sænska liðsins, sem staddur var hér á landi í gær, eiga þó eftir að komast að samkomulagi um kaup og kjör sem og lengd samningsins. 4.8.2006 16:30
Útsölunni lokið hjá Juventus Ítalska félagið Juventus segir að Patrick Vieira sé sá síðasti sem fer frá liðinu í sumar en frakkinn gekk í raðir Inter Milan í fyrradag. Eftir að Juventus var dæmt niður í Serie-B deildina hafa þeir neyðst til að selja Vieira, sem kostaði Inter 6,5 milljónir punda, Gianluca Zambrotta og Lilian Thuram til Barcelona auk Fabio Cannavaro og Emerson sem fóru til Real Madrid. 4.8.2006 16:00
Tveir tapleikir hjá Íslandi Íslenska karlalandsliðið í körfubolta tapaði í gær fyrir Svíum með tólf stiga mun á Norðurlandamótinu í körfubolta sem fram fer í Finnlandi þessa dagana. Íslenska liðið tapaði fyrir heimamönnum í fyrsta leik liðsins á mótinu í fyrradag. 4.8.2006 15:45
Stórt skref úr bankanum í atvinnumennskuna en sé ekki eftir neinu Sverre Jakobsson lætur vel af atvinnumannalífinu í Gummersbach en hann gekk í raðir liðsins í sumar frá Fram. Sverre er enn að venjast því að líta á handboltann sem vinnuna sína. 4.8.2006 15:15
Pascal Chimbonda alls ekki sáttur við Wigan Franski bakvörðurinn Pascal Chimbonda er orðinn mjög pirraður út í félag sitt Wigan sem heimtar háa greiðslu frá Tottenham, vilji þeir kaupa hann. Tottenham hafa boðið tvisvar í Chimbonda sem sló í gegn með spútnikliði Wigan á síðasta tímabili eftir að hann kom frá Bastia fyrir fjögur hundruð þúsund pund fyrir ári síðan. 4.8.2006 14:30
Langar enn á heimaslóðir Enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves hefur ítrekað áhuga sinn á því að spila á Englandi fyrr eða síðar en hinn 25 ára gamli miðjumaður leikur með Bayern München. Hargreaves stóð sig vel á HM í sumar og þrátt fyrir að líða vel hjá Bayern langar hann til að spila í heimalandi sínu. 4.8.2006 14:00
Kominn til Ferrari? Finnski ökuþórinn Kimi Raikkonen hefur skrifað undir fimm ára samning við Ferrari samkvæmt Ilta-Sanomat í Finnlandi. Dagblaðið hefur þetta eftir mjög öruggum heimildum og segja að Raikkonen fái 32 milljónir Evra á hverju ári fyrir samninginn. Michael Schumacher hefur enn ekki tekið ákvörðun um hvort hann hætti eða haldi áfram en hann mun tilkynna það eftir mánuð, þegar keppt verður á Monza, heimavelli Ferrari. 4.8.2006 13:45
Ivanov dæmir í Laugardalnum Knattspyrnusamband Evrópu hefur gefið út hver dæmir leik Íslands og Danmerkur í undankeppni EM 2008 þann 6. september næstkomandi en leikurinn fer fram á Laugardalsvellinum. Hlutverkið fær hinn 42ja ára gamli Nikolai Ivanov frá Rússlandi sem hefur verið alþjóðlegur FIFA-dómari í sex ár. Í þeim þremur leikjum sem hann dæmdi í undankeppni HM 2006 gaf hann alls átta gul spjöld og ekkert rautt. 4.8.2006 13:30
Gæti misst af Spánarleiknum Kristján Örn Sigurðsson meiddist illa á ökkla í leik Brann og Lilleström í norsku úrvalsdeildinni á miðvikudagskvöldið. Hann lenti illa eftir skallaeinvígi og þó svo að hann hafi reynt að halda áfram eftir það varð fljótlega ljóst að hann væri ekki í standi til þess. 4.8.2006 13:00
Fyrstu skrefin lofa góðu Varnarmaðurinn Gunnar Þór Gunnarsson er búinn að stíga sín fyrstu skref í atvinnumennskunni en hann er hjá Hammarby sem er á toppnum í Svíþjóð. 4.8.2006 13:00
Ég vil alls ekki fara frá Barcelona Ronaldinho hefur verið orðaður við metsölu til AC Milan á Ítalíu undanfarnar vikur. Fjölmiðlar héldu því fram að Mílanóliðið væri tilbúið til að borga 85 milljónir punda fyrir brasilíska töframanninn sem er samningsbundinn Barcelona til ársins 2014. Þrátt fyrir að vera upp með sér yfir áhuga Milan segir Ronaldinho að hann sé ánægður hjá Barcelona og vilji ekki fyrir nokkra muni yfirgefa félagið. 4.8.2006 12:30
Brjálaður út í William Gallas Jose Mourinho, stjóri Chelsea, er alls ekki sáttur við framkomu Frakkans William Gallas sem mætti ekki til London fyrir för liðsins til Bandaríkjanna. Treyjunúmer Gallas hefur verið tekið af honum og gefið Michael Ballack en sá franski var löngum orðinn ósáttur með að þurfa að fylla upp í vinstri bakvarðarstöðuna síðasta tímabil. 4.8.2006 12:00
Bjóða aftur í Dirk Kuyt Liverpool ætla að gera annað tilboð í hollenska framherjann Dirk Kuyt á allra næstu dögum en Feyenoord hefur þegar hafnað einu tilboði ensku bikarmeistaranna í sóknarmanninn. 4.8.2006 11:30
Áfall fyrir Svía Djurgården féll úr leik í 2. umferð forkeppni Meistaradeildarinnar eftir 3-1 tap á útivelli fyrir slóvakíska liðinu Ruzomberok. Djurgården vann heimaleikinn, 1-0, og hefði því þurft að skora eitt mark til viðbótar. Sænskt lið hefur nú ekki komist í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í sex ár, síðan Helsingborg tókst það árið 2000. Tap Djurgården er mikið áfall fyrir sænska knattspyrnu. Kári Árnason kom inn á sem varamaður á 77. mínútu. 4.8.2006 11:00
Að færast nær United? Manuel Pellegrini, þjálfari Villareal, viðurkennir að Marcos Senna færist skrefinu nær Manchester United með dögunum sem líða. Sir Alex Ferguson vonast eftir öðrum miðjumanni í kjölfarið á kaupunum á Michael Carrick en hinn þrítugi Senna var í landsliði Spánverja á HM í sumar. 4.8.2006 10:00
Þungur róður framundan hjá Öster Helgi Valur Daníelsson er loksins byrjaður að spila með sænska úrvalsdeildarliðinu Öster á nýjan leik en hann var frá í þrjá mánuði vegna meiðsla í nára. Meiðslin ná reyndar mun lengra aftur þar sem hann lék flesta leiki liðsins áður en deildin fór í HM-frí meiddur á nára. 4.8.2006 09:30
Öruggur sigur Hammarby Sænska úrvalsdeildariðið Hammarby vann í gær öruggan 3-1 sigur á botnliði Örgryte á útivelli í gær. Pétur Marteinsson og Gunnar Þór Gunnarsson voru að vanda báðir í byrjunarliði Hammarby í gær og léku þeir allan leikinn. Örgryte, sem hefur ekki unnið leik það sem af er sænsku úrvalsdeildinni, komst reyndar yfir í leiknum og hélt forystunni allt fram í síðari hálfleikinn þar sem topplið Hammarby tók til sinna valda og skoraði þrívegis. Pétur og Gunnar Þór fengu báðir að líta gula spjaldið í leiknum í gær. 4.8.2006 09:00
Tap gegn Færeyingum Íslenska U17 ára landslið Íslands tapaði fyrir heimamönnum í Færeyjum á opna Norðurlandamótinu í gær. Leikar enduðu 2-0 en Danir sigruðu í riðlinum með sjö stig úr leikjunum þremur, Finnar urðu í öðru sæti með fjögur en síðan komu Íslendingar og Færeyjingar með þrjú stig. 4.8.2006 08:00