Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ísland í riðli með Frökkum, Úkraínu og Ástralíu Nú rétt áðan var dregið í riðla fyrir HM í handknattleik sem fram fer í Þýskalandi snemma næsta árs. Íslendingar munu leika í B-riðli mótsins ásamt Frökkum, Úkraínumönnum og Áströlum og ljóst að íslenska liðið getur verið nokkuð sátt við mótherja sína. 14.7.2006 14:04
Horacio Elizondo hættur að dæma Argentínski dómarinn Horacio Elizondo hefur tilkynnt að hann ætli sér að hætta dómgæslu og engin hætta er á því að lokaleikur hans renni mönnum úr minni, því Elizondo var maðurinn sem rak Zinedine Zidane af velli í úrslitaleiknum á HM um síðustu helgi. Elizondo segist hafa tekið hárrétta ákvörðun. 13.7.2006 22:29
Keflvíkingar burstuðu ÍBV Keflvíkingar tóku Eyjamenn í bakaríið í leik kvöldsins í Landsbankadeild karla í knattspyrnu og sigruðu 6-2. Stefán Örn Arnarsson og Þórarinn Kristjánsson skoruðu sitt hvor tvö mörkin fyrir Keflavík og Kenneth Gustavsson og Guðmundur Steinarsson skoruðu eitt hvor. Pétur Runólfsson og Ulrik Drost skoruðu mörk ÍBV, en Páli Hjarðar var vikið af leikvelli fyrir olnbogaskot á 70. mínútu og léku Keflvíkingar því manni fleiri síðasta korterið í leiknum. 13.7.2006 21:10
Valur lá í Danmörku Valsmenn töpuðu í kvöld fyrri leik sínum gegn danska liðinu Bröndby í forkeppni Evrópukeppni félagsliða 3-1. Danska liðið hafði yfir 3-0 í hálfleik, en Garðar Gunnlaugsson náði að rétta hlut íslenska liðsins undir lokin. 13.7.2006 20:43
Keflvíkingar yfir í hálfleik Einn leikur fer fram í Landsbankadeild karla í knattspyrnu í kvöld. Keflvíkingar hafa yfir 2-1 gegn ÍBV á heimavelli sínum þegar flautað hefur verið til leikhlés. Pétur Runólfsson kom ÍBV yfir á 13. mínútu, en þeir Kenneth Gustavsson og Stefán Örn Arnarsson skoruðu fyrir heimamenn. 13.7.2006 20:11
Útlitið dökkt hjá Val Það stefnir í langt kvöld hjá Valsmönnum sem etja nú kappi við danska liðið Bröndby í forkeppni Evrópukeppni félagsliða. Staðan í hálfleik er 3-0 fyrir heimamenn, sem komust yfir strax eftir 8 mínútur og bættu svo við tveimur mörkum á tveggja mínútna kafla eftir hálftíma leik. Þetta er fyrri viðureign liðanna og fer fram í Danmörku. 13.7.2006 19:33
Tap hjá ÍA í Danmörku Skagamenn töpuðu í kvöld fyrri leik sínum gegn danska liðinu FC Randers í forkeppni Evrópukeppni félagsliða á útivelli 1-0. Heimamenn í Randers voru ívið sterkari í leiknum, en sá síðari fer fram á Skipaskaga þann 27. júlí næstkomandi. 13.7.2006 18:57
Roberto Donadoni tekur við af Lippi Ítalska knattspyrnusambandið gekk í dag frá ráðningu Roberto Donadoni í stöðu landsliðsþjálfara Ítala í stað Marcello Lippi sem sagði af sér á dögunum. Donadoni hefur ekki mikla reynslu af þjálfun, en var síðast með lið Livorno á Ítalíu og stýrði liðinu í sjötta sæti í deildinni. Hann er aðeins 43 ára gamall og stýrði áður Lecce og Genoa. Donadoni gerði garðinn frægan með liði AC Milan sem leikmaður og var í landsliðinu sem hlaut bronsið á HM árið 1990. 13.7.2006 18:14
Jafnt í hálfleik hjá Skagamönnum Nú er kominn hálfleikur í viðureign Skagamanna og danska liðsins FC Randers í forkeppni Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu. Staðan er enn 0-0. Heimamenn voru hættulegri framan af leik, en Skagaliðið komst betur inn í leikinn þegar á leið. 13.7.2006 17:58
Mike James til Minnesota Leikstjórnandinn Mike James skrifaði í gærkvöld undir samning við lið Minnesota Timberwolves í NBA deildinni, en James var með lausa samninga hjá Kanadaliði Toronto Raptors. James þótti minni spámaður í deildinni allt þar til í fyrravetur, þegar hann sprakk út með Toronto og skoraði yfir 20 stig að meðaltali í leik og var á meðal efstu manna í deildinni í 3ja stiga skotnýtingu. 13.7.2006 17:45
Ætlum ekki inn í hringinn til að dansa Hnefaleikarinn Shane Mosley lofar að setja á svið flugeldasýningu fyrir áhorfendur á laugardagskvöldið þegar hann mætir Fernando Vargas í Las Vegas í bardaga sem sýndur verður á sjónvarpsstöðinni Sýn. Þeir félagar mættust áður í febrúar og þar var Mosley dæmdur sigur eftir að Vargas hlaut skurð í andliti, sem hann sagðist hafa fengið eftir að Mosley skallaði sig. 13.7.2006 17:13
Suðurlandströllið 2006 um helgina Á laugardag fer fram hin árlega aflraunakeppni Suðurlandströllið. Keppnin hefst á Selfossi klukkan 13:30 þar sem meðal annars verður keppt í trukkadrætti og drumbalyftu. Klukkan 15:30 verður keppt í axlalyftu við Hótel Örk og keppninni lýkur við Eden í Hveragerði þar sem keppendur burðast með Húsafellshelluna. Á meðal keppenda verða Kristinn Óskar Haraldsson "Boris" sem nýlega tryggði sér þáttökurétt í keppninni um sterkasta mann heims og Auðunn "Verndari" Jónsson. 13.7.2006 16:16
Landsleik Íslendinga og Spánverja flýtt? Spænsk vefsíða helguð knattspyrnuliði Barcelona greinir frá því í dag að Frank Rijkaard geti teflt fram sínu sterkasta liði í hinum árlega leik um meistara meistaranna á Spáni, því spænska knattspyrnusambandið sé búið að semja við það íslenska að flýta fyrirhuguðum landsleik þjóðanna hér á landi þann 16. ágúst. 13.7.2006 15:40
Kirk Hinrich í hópinn í stað Redick Leikstjórnandinn Kirk Hinrich hefur verið valinn í bandaríska landsliðshópinn í körfubolta í stað stórskyttunnar JJ Redick sem er meiddur og þurfti að hætta við að fara í æfingabúðir með liðinu. Bandaríkjamenn eru nú á fullu að undirbúa lið sitt fyrir heimsmeistaramótið sem fram fer í Japan í næsta mánuði, þar sem liðið leikur í riðli með Ítölum, Porto Rikó, Slóvenum, Kínverjum og Senegölum. 13.7.2006 15:09
Sam Cassell framlengir við Clippers Leikstjórnandinn Sam Cassell hefur framlengt samning sinn við Los Angeles Clippers um tvö ár, en ekki hefur verið gefið upp hvað hann fær í aðra hönd fyrir samninginn. Þó Cassell sé fyrir nokkru kominn af léttasta skeiði sem leikmaður, skoraði hann rúm 17 stig og gaf 6 stoðsendingar að meðaltali í leik fyrir Clippers á síðasta vetri. Það sem meira er tók hann að sér leiðtogahlutverk í liðinu og leiddi það til besta árangurs síns í yfir þrjá áratugi. 13.7.2006 15:03
Wade framlengir við Miami Verðmætasti leikmaður NBA-úrslitanna í vor, Dwyane Wade hjá Miami, hefur framlengt samning sinn við félagið um þrjú ár líkt og LeBron James hjá Cleveland gerði á dögunum. Flestir bjuggust við að Wade skrifaði undir fimm ára samning, en líta má á samningur þessi sé langtímafjárfesting fyrir leikmanninn. 13.7.2006 14:53
Ruud Van Nistelrooy á leið til Real Madrid Spænska dagblaðið Marca heldur því fram í dag að aðeins eigi eftir að ganga frá smáatriðum svo hollenski framherjinn Ruud Van Nistelrooy geti gengið í raðir Real Madrid frá Manchester United fyrir upphæð nálægt 11 milljónum punda. Engar fréttir hafa borist frá Englandi til að staðfesta þetta en lið Real Madrid er með hverjum deginum orðað við fleiri leikmenn í ensku úrvalsdeildinni. 13.7.2006 14:41
Valencia hefur mikinn áhuga á Del Horno Spænska stórliðið Valencia hefur gefið það út að það hafi mikinn hug á því að fá vinstri bakvörðinn Asier del Horno til liðs við sig frá Chelsea. Del Horno er 25 ára gamall spænskur landsliðsmaður og spilaði 25 deildarleiki fyrir ensku meistarana á síðustu leiktíð. 13.7.2006 14:35
Rannsókn hafin vegna ásakana Zidane Alþjóða knattspyrnusambandið, FIFA, hefur ákveðið að hefja rannsókn á hegðun ítalska varnarmannsins Marco Materazzi í úrslitaleiknum á HM í kjölfar þeirra þungu saka sem Zinedine Zidane bar hann í viðtali við franska sjónvarpið í gær. Zidane hefur verið gert að leggja fram skrifleg gögn í málinu og fær Materazzi tækifæri til að svara fyrir sig í kjölfarið. 13.7.2006 14:30
Enska knattspyrnusambandið er á villigötum Tony Woodcock, fyrrum landsliðsmaður Englands í knattspyrnu, segir að menn verði að leita lengra en til Sven-Göran Eriksson til að finna svör við döpru gengi og spilamennsku enska landsliðsins á HM. 13.7.2006 14:20
Middlesbrough hætt við að kaupa Robert Huth Enska úrvalsdeildarfélagið Middlesbrough tilkynnti í dag að það væri hætt við að kaupa þýska landsliðsmiðvörðinn Robert Huth frá Chelsea. Búið var að samþykkja félagaskipti hans fyrir fimm milljónir punda, en talið er víst að Boro hafi hætt við að kaupa hann eftir að ökklameiðsli hans urðu þess valdandi að hann stóðst ekki læknisskoðun. 13.7.2006 14:15
Ekkert tilboð frá Arsenal Umboðsmaður franska landsliðsmannsins Franck Ribery hefur vísað því á bug að Arsenal hafi gert 10 milljón punda tilboð í vængmanninn knáa, sem gerði fína hluti með Frökkum á HM þrátt fyrir að vera nýgræðingur með landsliðinu. 13.7.2006 13:28
Vill að Zidane haldi gullknettinum Varnarmaðurinn Marco Materazzi vill að Zinedine Zidane haldi gullknettinum, verðlaununum sem hann fékk fyrir að vera kjörinn besti leikmaðurinn á HM. Borist hefur í tal að verðlaunin verði tekin af Zidane eftir að hann gerðist sekur um líkamsárás í úrslitaleiknum, en það hefur ekki áhrif á skoðun fórnarlambs árásarinnar, hinn ítalska Materazzi. 13.7.2006 13:18
Get ekki beðið Materazzi afsökunar Franski leikmaðurinn Zinedine Zidane tjáði sig í fyrsta sinn opinberlega um atburðina í úrslitaleiknum á HM á dögunum, í viðtali við franska sjónvarpið. Zidane biðst afsökunar á framferði sínu þegar hann skallaði hinn ítalska Marco Materazzi og segir hann hafa sagt mjög ljóta persónulega hluti um systur sína og móður. Hann fékkst ekki til að greina frekar frá því hvað fór þeirra á milli. 12.7.2006 18:08
Neitar ásökunum Zidane Ítalski varnarmaðurinn Marco Materazzi neitar því að hafa sagt ljóta hluti um móður Zinedine Zidane í úrslitaleiknum á HM eins og Zidane hélt fram í franska sjónvarpinu nú undir kvöld. Materazzi segist sjálfur hafa misst móður sína ungur og segir að Zidane sé ein af hetjum sínum á knattspyrnuvellinum. 12.7.2006 19:06
Inter kaupir þrjá leikmenn Stórlið Inter Milan á Ítalíu hefur fest kaup á þremur nýjum leikmönnum. Sá þekktasti er líklega franski miðjumaðurinn Oliver Dacourt sem leikið hefur með Roma undanfarin ár og var fastamaður í franska landsliðinu í mörg ár. Þá hefur liðið fengið til sín Brasilíumennina Maicon Douglas Sisenando frá Mónakó og Maxwell Scherrer Cabelino Andrade frá Empoli, en þeir eru báðir 24 ára gamlir. 12.7.2006 17:15
Eriksson vildi fá Ferdinand í landsliðið Sven-Göran Eriksson, fráfarandi landsliðsþjálfari Englendinga, hefur gefið það upp að hann hafi viljað fá varnarmanninn Anton Ferdinand inn í hóp sinn á HM í stað Luke Young þegar hann meiddist. Ekkert varð þó af þessu, því þegar Eriksson hafði samband við Ferdinand, hafði hann 24 tímum áður gengist undir aðgerð vegna kviðslits. 12.7.2006 16:38
LeBron James skrifar undir styttri samning Stórstjarnan LeBron James undirritar í kvöld nýjan samning við Cleveland Cavaliers í NBA-deildinni, en samningur hans verður þó nokkuð frábrugðinn þeim samningi sem félagar hans Carmelo Anthony og Dwyane Wade úr nýliðaárgangnum 2003 skrifuðu undir á dögunum. 12.7.2006 16:30
Arsenal líklegast Umboðsmaður argentínska framherjans Javier Saviola hjá Barcelona segir að allt bendi til þess að hann gangi í raðir Arsenal í sumar. Saviola var í eldlínunni með argentínska landsliðinu á HM og var lykilmaður í liði Sevilla sem vann sigur í Evrópukeppni félagsliða í vor, en þar var hann sem lánsmaður. 12.7.2006 16:25
Sol Campbell á nóg inni Harry Redknapp heldur áfram að gera hosur sínar grænar fyrir miðverðinum Sol Campbell, sem á dögunum tilkynnti að hann væri hættur að spila með Arsenal og ætlaði að reyna fyrir sér erlendis. Campbell var gagnrýndur nokkuð undir lok síðustu leiktíðar og voru margir á því að bestu dagar hans sem leikmanns væru að baki. 12.7.2006 16:16
Keppnisbanni aflétt á Grikki Alþjóða knattspyrnusambandið aflétti í dag keppnisbanninu sem það setti á Grikki í kjölfar upplausnar í rekstri knattspyrnusambandsins þar í landi. Nú hefur tekist að ganga frá lausum endum sem uppfylla kröfur FIFA og því geta Grikkir mætt Englendingum í vináttuleik í næsta mánuði eins og til stóð. 12.7.2006 16:06
Fabregas fer ekki fet Arsene Wenger segir að spænski miðjumaðurinn Cesc Fabregas sé alls ekki á leið til Real Madrid eins og fjölmiðlar á Spáni og ný stjórn Real hefur haldið fram undanfarna daga. 12.7.2006 15:55
Farinn sem lánsmaður til Marseille Franski framherjinn Djibril Cisse er farinn til liðs Marseille í heimalandi sínu sem lánsmaður frá enska úrvalsdeildarfélaginu Liverpool, þetta staðfesti franska liðið í dag. Cisse er fótbrotinn og getur ekkert leikið á næstunni, en hann ræður sér ekki yfir fögnuði yfir að vera loks kominn til Frakklands á ný. Samningurinn býður upp á að franska liðið kaupi Cisse að lánstímanum loknum. 12.7.2006 15:21
Ísland hrapar niður listann Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu er komið í 107. sæti styrkleikalista FIFA, en nýr listi var birtur í morgun. Íslenska liðið hefur aldrei áður verið svo neðarlega á listanum en nokkrar þjóðir lyfta sér verulega mikið í þetta sinn í kjölfar góðs árangurs á HM. 12.7.2006 15:15
Hamann genginn í raðir Mancester City Þýski miðjumaðurinn Dietmar Hamann, sem verið hefur í röðum Liverpool síðustu ár, hefur gengið til liðs við Manchester City. Hamann var á dögunum kominn á fremsta hlunn með að fara til Bolton, en snerist hugur á síðustu stundu og fór til City í einhverjum snörustu félagaskiptum sem um getur í ensku úrvalsdeildinni. 12.7.2006 15:10
Marcello Lippi hættur Marcello Lippi tilkynnti í dag að hann hefði ákveðið að hætta að þjálfa ítalska landsliðið í knattspyrnu eftir rúm tvö ár í starfi. Lippi segist hætta sáttur eftir að hafa náð að uppfylla draum sinn sem þjálfari, en hefur ekkert gefið upp um framtíðaráform sín enn sem komið er. 12.7.2006 15:01
Ronaldo er ekki til sölu Enska úrvalsdeildarliðið Manchester United hefur nú sent út yfirlýsingu þar sem fram kemur að Portúgalinn Cristiano Ronaldo sé alls ekki til sölu. Ronaldo sjálfur hefur ítrekað lýst því yfir í fjölmiðlum að hann vilji fara til Spánar, en talsmenn félagsins taka það ekki í mál. 12.7.2006 14:55
Klinsmann hættur Jurgen Klinsmann, landsliðsþjálfari Þjóðverja í knattspyrnu, hefur ákveðið að hætta í starfi. Klinsmann hefur verið við stjórnvölinn hjá liðinu í tvö ár, en segist nú ætla að einbeita sér meira að fjölskyldunni - hann hafi einfaldlega ekki orku í að halda starfinu áfram. Við starfi Klinsmann tekur aðstoðarmaður hans Joachim Löw. 12.7.2006 14:50
Tjáir sig opinberlega í kvöld Franski landsliðsmaðurinn Zinedine Zidane tjáir sig í fyrsta sinn opinberlega um atvikið í úrslitaleik HM í franska sjónvarpinu í kvöld, þetta kemur fram á fréttavef breska sjónvarpsins. Zidane skallaði Marco Materazzi, leikmann Ítalíu og var rekinn af velli og til tals hefur komið að taka af honum gullknöttinn sem hann fékk í verðlaun fyrir að vera valinn leikmaður keppninnar. 12.7.2006 14:47
Verður Zidane sviptur Gullknettinum? Forseti FIFA Sepp Blatter hefur gefið í skyn að Zinedine Zidane gæti verið sviptur Gullknettinum vegna hegðunnar sinnar í úrslitaleik HM. Blatter mun vera að bíða niðurstöðu aganefndar um málið áður en gripið verður til aðgerða. 12.7.2006 14:14
Mun ekki hafa áhrif á niðurstöðuna Þrátt fyrir að Ítalir hafi náð að sigra HM á glæstan hátt seinasta sunnudag þá mun það ekki hafa nein áhrif á ákvörðun Íþróttadómstólsins sem að fjallar um hneykslismálið sem að tröllriðið hefur Ítalskri knattspyrnu undanfarna tvo mánuði. 12.7.2006 14:04
Sigurganga Vals heldur áfram Valsstúlkur halda áfram ótrúlegri sigurgöngu sinni í Landsbankadeild kvenna og í kvöld valtaði liðið yfir KA/Þór fyrir norðan 7-0. Á sama tíma lögðu Blikastúlkur Keflavík 3-0 í Kópavogi. Valur er í efsta sæti deildarinnar með fullt hús, 27 stig úr 9 leikjum og Blikar í öðru sæti með 24 stig úr 10 leikjum. 11.7.2006 21:34
Hugsaði alvarlega um að hætta Enski markvörðurinn Chris Kirkland hefur viðurkennt að hann hafi verið kominn á fremsta hlunn með að hætta knattspyrnuiðkun eftir langa og erfiða baráttu við meiðsli. Kirkland gekk nýverið í raðir Wigan á sex mánaða lánssamningi frá Liverpool og ætlar að leitast við að rétta feril sinn við. 11.7.2006 20:18
Fulham kaupir Zakuani Enska úrvalsdeildarfélagið Fulham hefur fest kaup á varnarmanninum Gabriel Zakuani frá Leyton Orient fyrir upphæð sem gæti numið allt að 1,5 milljónum punda. Zakuani hefur lengi verið undir smásjánni hjá Chris Coleman knattspyrnustjóra Fulham og hefur sá látið í veðri vaka að hann ætli að taka hressilega til í herbúðum sínum í sumar. 11.7.2006 19:56
Beenhakker ráðinn landsliðsþjálfari Pólverja Pólska knattspyrnusambandið gekk í dag frá ráðningu Leo Beenhakker í stöðu landsliðsþjálfara. Hinn hollenski Beenhakker er 64 ára gamall og stýrði liði Trínídad og Tóbagó alla leið á HM eins og frægt varð. Hann er fyrsti útlendingurinn sem ráðinn er landsliðsþjálfari í Póllandi. 11.7.2006 19:48