Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hollendingar áfram Hollendingar mörðu 2-1 sigur á frískum Fílabeinsstrendingum í fjörugum leik liðanna í C-riðli. Hollendingarnir byrjuðu betur og komust í 2-0 með mörkum frá Robin Van Persie og Ruud Van Nistelrooy, en Bakari Kone minnkaði muninn fyrir Afríkuliðið. Hollendingar hafa því hlotið 6 stig í riðlinum líkt og Argentínumenn, en þjóðirnar eiga eftir að mætast í lokaumferðinni og þar kemur í ljós hvaða lið hreppir efsta sætið. 16.6.2006 17:51
Englendinga skortir þolinmæði Hinn reyndi þjálfari Leo Beenhakker hjá Trinidad og Tobago, segir að enska landsliðið verði að bæta sig verulega af það ætli sér að eiga vonarglætu um að komast langt á HM. Beenhakker var ekki hrifinn af spilamennsku liðsins gegn sínum mönnum í síðasta leik, þó enska liðinu hafi tekist að kreista út 2-0 sigur í lokin. 16.6.2006 17:37
Tiger Woods í miklum vandræðum Nú er útlit fyrir að Tiger Woods lendi í því í fyrsta skipti á ferlinum að komast ekki í gegn um niðurskurð á stórmóti í golfi. Woods er nýkominn til keppni á ný eftir frí vegna dauða föður hans og virkar mjög ryðgaður. Woods hefur spilað fyrstu tvo hringina á 76 höggum og er á 12 höggum yfir pari Winged Foot-vallarins. 16.6.2006 17:25
Við eigum góða möguleika á að vinna HM Framherjinn David Villa hjá spænska landsliðinu segir að liðið hafi alla burði til að verða eitt þeirra liða sem berjast um heimsmeistaratitilinn í byrjun næsta mánaðar. Villa var markahæsti heimamaðurinn í spænsku deildinni á síðasta tímabili, hefur skorað tvö mörk það sem af er HM og fjögur í sínum fyrstu níu landsleikjum. 16.6.2006 16:57
Frábær fyrri hálfleikur í Stuttgart Hollendingar hafa yfir 2-1 gegn Fílabeinsströndinni í leik liðanna í C-riðlinum á HM. Robin Van Persie og Ruud Van Nistelrooy skoruðu tvö mörk á 4 mínútum um miðbik hálfleiksins, en síðan hafa leikmenn Fílabeinsstrandarinnar verið stórhættulegir og Bakari Kone minnkaði muninn á 38. mínútu. Þá átti hinn eitraði Didier Zokora þrumuskot í þverslá hollenska marksins. 16.6.2006 16:49
Viljum gjarnan forðast að mæta Englendingum Oliver Bierhoff segir að þýska liðið vilji gera allt sem í valdi þess stendur til að vinna lokaleik sinn í A-riðlinum gegn Ekvador, því ef liðið hafnar í öðru sæti síns riðils, bendir allt til þess að það muni mæta Englendingum í 16-liða úrslitum. 16.6.2006 16:35
Hollendingar í stuði Hollendingar eru heldur betur í stuði gegn Fílabeinsströndinni í leik liðanna í C-riðli sem nú stendur yfir. Þegar hálftími er liðinn af leiknum hafa þeir hollensku náð 2-0 forystu. Robin Van Persie skoraði fyrsta markið beint úr aukaspyrnu á 23. mínútu og aðeins 4 mínútum síðar bætti Ruud Van Nistelrooy við góðu marki eftir frábæran undirbúning Arjen Robben. 16.6.2006 16:28
Eitt versta tap í sögu okkar Þjálfari Serba var skiljanlega eyðilagður eftir tapið stóra gegn Argentínumönnum í C-riðlinum á HM í dag. Hann segir að tap sinna manna verði lengi í minnum haft og sé eitt það versta á knattspyrnuvellinum í sögu þjóðarinnar. 16.6.2006 16:18
Það er heiður að spila með svona liði Hinn ungi framherji argentínska landsliðsins, Carlos Tevez, segir að liðsandinn hafi verið lykillinn að 6-0 stórsigri liðsins á Serbum og Svartfellingum í dag. Tevez kom inná sem varamaður í leiknum og skoraði ótrúlegt mark eftir einstaklingsframtak. 16.6.2006 16:04
Holland - Fílabeinsströndin næstur á dagskrá Hollendingar mæta með óbreytt lið til leiks í Stuttgart í dag frá sigurleiknum gegn Serbum í upphafi móts, en þrjár breytingar hafa verið gerðar á byrjunarliði Strandamanna. Arouna Kone kemur inn í framlínu liðsins við hlið Didier Drogba, en liðið verður að vinna í dag til að eiga möguleika á að komast upp úr þessum ógnarsterka riðli. Leikurinn hefst klukkan 16 og verður að sjálfssögðu í beinni á Sýn. 16.6.2006 15:36
Zlatan tæpur fyrir leikinn gegn Englendingum Mikil óvissa ríkir um það hvort framherjinn sterki Zlatan Ibrahimovic geti spilað lokaleik Svía í riðlakeppninni á HM þar sem sænska liðið mætir Englendingum. Zlatan tognaði á nára í upphitun fyrir leikinn gegn Paragvæ en spilaði hálfan leikinn engu að síður. Læknar sænska vonast til að fá niðurstöðu í málið í dag, en segja að meiðslin gætu jafnað sig á 24 tímum - en í versta falli á tveimur vikum. 16.6.2006 15:26
Tango nuevo Hér er enn einn snilldarleikurinn, Argentína, hvað er hægt að segja við svona sýningu, ljóðrænni, töfrandi fegurð einsog í útsetningu Astor Piazzolla á gamla argentíska tangóinum, þetta er hinn nýi tangó í fótboltanum, hinn hreini tónn. Ég fann sömu tilfinningu og þegar ég horfði á Spánverjana í fyrsta leik, þetta eru töfrar, auðvitað er fótbolti líka barátta, taktík og allt það, en þetta er hrein snilld, ekkert minna. 16.6.2006 14:54
Argentínumenn rótburstuðu Serba Argentínumenn sýndu úr hverju þeir eru gerðir á HM í dag þegar liðið valtaði yfir Serba og Svartfellinga 6-0 í viðureign liðanna í C-riðli og ljóst að ekkert lið verður öfundsvert af því að mæta Suður-Ameríkuliðinu í framhaldinu. 16.6.2006 14:49
Við eigum ekki möguleika á titlinum Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool og leikmaður enska landsliðsins, viðurkennir að liðið eigi ekki nokkurn möguleika á að verða heimsmeistari ef það spilar ekki betur en það hefur gert hingað til í keppninni. 16.6.2006 14:32
Cisse fer að láni til Marseille Franska dagblaðið L´Equipe greindi frá því í dag að Liverpool hafi samþykkt að lána franska framherjann Djibril Cisse til liðs Marseille í heimalandi hans út næstu leiktíð. Cisse fótbrotnaði á dögunum og er ekki væntanlegur í slaginn aftur fyrr en í fyrsta lagi eftir um fimm mánuði. 16.6.2006 14:16
Vinsæll hjá samkynhneigðum í Hollandi Cristiano Ronaldo, landsliðsmaður Portúgal hefur verið valinn af samtökum samkynhneigðra í Hollandi fallegasti og mest kynæsandi leikmaðurinn á HM. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem samkynhneigðir velja nafnbót á leikmanninn en hann er sagður mjög vinsæll meðal homma og hefur tekið við hlutverki David Beckham. 16.6.2006 14:06
Argentínumenn að valta yfir Serba Argentínumenn eru að sýna sínar bestu hliðar í leik sínum gegn Serbum og Svartfellingum í C-riðli og staðan er orðin 3-0 fyrir Argentínu þegar flautað hefur verið til leikhlés. Maxi Rodrigues hefur skorað tvívegis og varamaðurinn Esteban Cambiasso hefur skorað eitt mark. 16.6.2006 13:56
Blikarnir hafa tapað flestum stigum Nýliðar Breiðabliks töpuðu niður forskoti fjórða leikinn í röð í Landsbankadeild karla á Akranesi í gær og eru það lið í deildinni sem hefur tapað langflestum stigum í fyrstu sjö umferðunum. Að tapa stigum telst það þegar lið tapa eða gera jafntefli í leikjum sem þau hafa haft forustu í. Grindvíkingar koma þeim næstir en þeir eru líka það lið sem hefur unnið sér inn flest stig eftir að hafa verið undir í leikjum sínum. 16.6.2006 13:21
Willum Þór ósigraður í Grindavík Willum Þór Þórssyni hefur gengið vel með sín lið þegar hann hefur heimsótt Grindvíkinga þótt ekki hafi Valsmönnum tekist að koma með öll stigin heim úr leik sínum þar í gær. Þetta var sjötti leikur liðs undir stjórn Willums Þór á Grindavíkurvelli og hans lið hafa náð í 14 af 18 stigum í boði eða 78% stiganna. Markatalan er, 7-2, liðum Willums í vil. 16.6.2006 13:13
Van Basten segir fjölmiðla blása sögur upp Marco van Basten, þjálfari hollenska landsliðsins segir að fjölmiðlar hafi blásið upp og búið til sögur um að Arjen Robben og Robin van Persie hafi lent saman eftir leikinn gegn Serbíu. Van Basten segir þetta vera rangt. 16.6.2006 11:33
Owen á von að vera settur á bekkinn Micheal Owen, leikmaður enska landsliðsins segir að hann eigi allt eins von á því að verma bekkinn í síðasta leiknum í riðlakeppninni en þá leikur England gegn Svíum. 16.6.2006 11:23
HM leikir dagsins: Þrír leikir eru á dagskrá á HM í dag en nú er vika liðin af mótinu. Þeir leikir sem þegar hafa verið leiknir lofa mjög góðu fyrir framhaldið. Argentína og Serbía mætast klukkan 13.00 og verður þetta án efa mjög harður og spennandi leikur, enda báðar þjóðir þekktar fyrir hörku og meiri hörku. 16.6.2006 10:33
Stjörnur Juventus munu halda til Englands Ítalski umboðsmaðurinn, Silvano Martina segir að bestu leikmenn Juventus muni fara til Englands, verði félagið dæmt niður um deild. Félagið hefur verið sakað um að hafa haft áhrif á úrslit leikja á Ítalíu en rannsókn er í fullum gangi um þessar mundir. 16.6.2006 10:24
Miami ætlar í sögubækurnar Miami Heat stefnir hraðbyri á að verða þriðja liðið í sögu lokaúrslita NBA-deildarinnar til að vinna meistaratitilinn eftir að lenda undir 2-0, því í nótt vann liðið auðveldan 98-74 sigur á heillum horfnu liði Dallas Mavericks í fjórða leik liðanna. Næsti leikur fer einnig fram í Miami á sunnudagskvöldið og einvígið, sem margir héldu að væri nánast búið, er skyndilega orðið æsispennandi á ný. 16.6.2006 04:19
Michael Jordan snýr aftur Michael Jordan hefur hingað til ekki séð sér fært um að vera lengi í einu frá körfuboltanum og í gærdag eignaðist hann umtalsverðan hlut í Charlotte Bobcats. Liðið er það yngsta í deildinni og er staðsett skammt frá þeim stað þar sem Jordan tók fyrstu skrefin í átt til þess að verða þekktasti körfuboltamaður allra tíma, þegar hann lék með háskólaliði Norður-Karólínu. 16.6.2006 03:59
FH lagði ÍBV Íslandsmeistarar FH lögðu ÍBV 3-1 á heimavelli sínum í Landsbankadeildinni í kvöld. KR lagði Víking 1-0, Skagamenn lögðu Blika 2-1 og Grindavík og Valur skildu jöfn 1-1 í Grindavík. 15.6.2006 21:28
Ljungberg tryggði Svíum sigur á elleftu stundu Svíar unnu í kvöld baráttusigur á Paragvæum 1-0 í B-riðli HM og eru því komnir í ágæt mál í öðru sæti riðilsins. Það var Arsenal-leikmaðurinn Freddy Ljungberg sem skoraði mark sænska liðsins með skalla á 89. mínútu eftir laglega sókn. Bæði lið hefðu í raun geta stolið sigrinum í kvöld, en hungur Svíanna var einfaldlega meira í þettta sinn. England hefur 6 stig á toppi riðilsins, Svíar 4 stig, Trínídad 1 og Paragvæ er úr leik með 0 stig. 15.6.2006 20:52
Ólöf úr leik á BMW-mótinu Ólöf María Jónsdóttir úr Keili er úr leik á BMW-mótinu á Ítalíu, en mótið er liður í Evrópumótaröðinni. Ólöf lék skelfilega í dag og lauk keppni á 11 höggum yfir pari vallar - 83 höggum. Í gær lék hún á þremur höggum yfir pari og lýkur því keppni á 14 yfir pari og var fjarri því að komast í geng um niðurskurðinn á mótinu. 15.6.2006 20:34
Pétur skoraði eftir 30 sekúndur í Kaplakrika Nú er kominn hálfleikur í leikjunum fjórum sem fara fram í Landsbankadeild karla í kvöld. Staðan í leik FH og ÍBV í Kaplakrika er 1-1. Pétur Runólfsson kom gestunum yfir eftir aðeins 30 sekúndur, en Atli Viðar Björnsson jafnaði á 31. mínútu. Grindvíkingar hafa yfir 1-0 gegn Val í Grindavík þar sem Jóhann Þórhallsson skoraði mark heimamanna. Þá er markalaust hjá KR og Víkingi í vesturbænum, eins og hjá ÍA og Blikum á Skaganum. 15.6.2006 20:28
Við hefðum átt að vinna stærra Sven-Göran Eriksson, landliðsþjálfari Englendinga, var mjög ánægður með spilamennsku sinna manna gegn Trinidad í kvöld, en sagðist hafa viljað fá fleiri mörk. Sigur enska liðsins þýðir að það hefur tryggt sér sæti í 16-liða úrslitum keppninnar. 15.6.2006 20:01
Markalaust í hálfleik í Berlín Staðan í leik Svía og Paragvæa í B-riðli HM er markalaus í hálfleik. Leikurinn hefur verið sæmilega fjörugur þrátt fyrir markaleysið, en bæði lið tjalda öllu til að ná í sigur til að eiga möguleika á að fylgja Englendingum í 16-liða úrslitin. Zlatan Ibrahimovic fór meiddur af leikvelli í hálfleik eftir að hafa alls ekki náð sér á strik og Marcus Allback er kominn inn í stað hans. 15.6.2006 19:45
Kekic hættur hjá Grindavík Hinn fjölhæfi leikmaður Sinisa Kekic, sem leikið hefur með Grindvíkingum í Landsbankadeildinni undanfarin ár, hefur spilað sinn síðasta leik fyrir félagið. Kekic lenti í deilum við þjálfarann Sigurð Jónsson á dögunum, en Sigurður staðfesti þessi tíðindi á fréttavef Víkurfrétta síðdegis í dag. 15.6.2006 19:37
Rosalega sárt að tapa fyrir Englendingum Leo Beenhakker sagði tapið fyrir Englendingum í dag hafa verið gríðarlega sárt, en um tíma leit út fyrir að spútniklið hans næði að stela stigi af enska liðinu og setja þar með allt upp í loft í B-riðlinum. 15.6.2006 19:01
Við höfum alls ekki sagt okkar síðasta David Beckham, fyrirliði enska landsliðsins, segir að liðið eigi mikið inni og lofar að það muni spila betur eftir því sem líður á heimsmeistaramótið. Englendingar lögðu Trinidad og Tobago 2-0 í dag, en enska liðið var fjarri því að vera sannfærandi. 15.6.2006 18:50
Kallström og Isaksson í byrjunarliði Svía Leikur Svía og Paragvæa í B-riðli hefst klukkan 19 og búið er að tilkynna byrjunarliðin. Kim Kallström kemur inn í sænska liðið í stað Anders Svensson og þá er Andreas Isaksson á ný í markinu eftir meiðsli. Miðjumaðurinn Jorge Nunez er kominn í byrjunarlið Paragvæ í stað Delio Toledo. 15.6.2006 18:37
Englendingar mörðu sigur Englendingar höfðu sigur 2-0 gegn Trinidad og Tobago í B-riðli HM í dag og eru komnir áfram í keppninni þrátt fyrir að hafa ekki sýnt nein glæsitilþrif. Peter Crouch náði loks að brjóta ísinn fyrir enska liðið á 83. mínútu þegar hann skoraði með laglegum skalla eftir fyrirgjöf David Beckham og Steven Gerrard innsiglaði sigur enska liðsins með laglegu skoti í uppbótartíma. 15.6.2006 17:52
Wayne Rooney mættur til leiks Staðan í leik Englands og Trínídad er enn markalaus og því hefur Sven-Göran Eriksson ákveðið að tefla djarft og er búinn að skipta þeim Wayne Rooney og Aaron Lennon inn á völlinn fyrir þá Michael Owen og Jamie Carragher á 57. mínútu. 15.6.2006 17:17
Englendingar í bullandi vandræðum Staðan í leik Trínidad og Englands er markalaus í hálfleik. Enska liðið hefur alls ekki verið sannfærandi og John Terry bjargaði enska liðinu frá því að lenda undir með því að verja skot Trínidada á marklínunni með glæsilegum tilþrifum skömmu fyrir hlé. Enska liðið hefur átt sín færi sömuleiðis, en þau hafa runnið út í sandinn og ljóst að Eriksson verður að blanda sterkt te handa sínum mönnum í hálfleik. 15.6.2006 16:58
Lahm er ekki til sölu Bayern Munchen hefur ekki í hyggju að selja þýska landsliðsbakvörðinn Philipp Lahm þrátt fyrir mikinn áhuga Chelsea á að kaupa leikmanninn. 15.6.2006 16:33
Mér líður vel í landi Adidas Ofurstjarnan David Beckham hefur aldrei verið í vandræðum með að koma fyrir sig orði og í viðtali við Sky-sjónvarpsstöðina í gær, sagði hann að sér liði mjög vel í Þýskalandi af því Þýskaland væri "land Adidas." 15.6.2006 16:33
Lætur blaðamenn heyra það Thierry Henry, fyrirliði Arsenal og framherji franska landsliðsins, lét blaðamenn heyra það í dag fyrir að gagnrýna félaga sinn Franck Ribery fyrir frammistöðu sína í jafnteflinu gegn Sviss. Henry á von á mjög erfiðum næsta leik gegn Suður-Kóreu. 15.6.2006 16:20
Carragher byrjar í stað Neville Leikur Englands og Trinidad í B-riðli er næstur á dagskrá á HM og hefst klukkan 16. Hinn fjölhæfi varnarmaður Liverpool, Jamie Carragher, kemur inn í stöðu hægri bakvarðar í stað Gary Neville sem er meiddur. Þá er jafnvel búist við að Wayne Rooney fái að spreyta sig í leiknum. Búið er að tilkynna byrjunarliðin og þau má sjá hér fyrir neðan. 15.6.2006 15:09
Ekvador í 16-liða úrslitin Ekvador vann í dag auðveldan sigur á Kosta Ríka 3-0 í dag og er því búið að tryggja sér farseðilinn í 16-liða úrslit keppninnar. Carlos Tenorio kom Ekvador yfir á 8. mínútu leiksins, Agustin Delgado bætti við öðru marki á þeirri 54. og Ivan Kaviedes innsiglaði öruggan sigurinn í uppbótartíma. Ekvador hefur því unnið báða leiki sína til þessa með nokkuð sannfærandi hætti og er liðið til alls líklegt í keppninni. 15.6.2006 14:50
Fisichella áfram hjá Renault Ökuþórinn Giancarlo Fisichella hefur framlengt samning sinn við lið Renault í Formúlu 1út næsta keppnisár, en gamli samningurinn hefði runnið út að loknu yfirstandandi tímabili. Nokkur óvissa hafði ríkt um framtíð ítalans hjá liðinu og höfðu þeirKimi Raikkönen, Juan Pablo Montoya og Mark Webber allir verið orðaðir við Renault. Heimsmeistarinn Fernando Alonso fer sem kunnugt er frá liðinu til McLaren á næsta tímabili. 15.6.2006 14:28
Ekvador yfir í hálfleik Ekvador hefur yfir 1-0 í hálfleik í viðureign sinni við Kosta Ríka í A-riðlinum á HM. Carlos Tenorio skoraði mark Ekvadora á 22. mínútu leiksins og ljóst að liðið getur komið sér í ágæt mál í riðlinum með sigri í dag. 15.6.2006 13:43