Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Raúl ánægður með sitt hlutskipti Raúl, leikmaður Real Madrid og fyrirliði Spánverja á HM, segist vera mjög ánægður með stöðuna sem að Luis Aragones, þjálfari spænska liðsins, ætlar að láta hann leika í á HM. 2.6.2006 20:45
Neville er ánægður með enska liðið Gary Neville, fyrirliði Manchester United og landsliðsmaður Englands, segir að enska landsliðið sé það besta sem að hann hafi spilað í á ferlinum. 2.6.2006 20:34
Advocaat stefnir hátt Dick Advocaat, fyrrum knattspyrnustjóri hjá Rangers og núverandi þjálfari landsliðs Suður-Kóreu, stefnir hátt með Suður-Kóreu menn á HM.Suður-Kóreu menn komu öllum á óvart þegar þeir komust í undanúrslit á HM 2002 í Suður-Kóreu og Advocaat vill gera eins vel núna. 2.6.2006 20:30
Grönholm leiðir í Grikklandi Finnski ökuþórinn Marcus Grönholm á Ford vann allar sex sérleiðirnar á öðrum keppnisdeginum í Grikklandsrallinu sem hófst í dag. Norðmaðurinn Petter Solberg er í öðru sæti 23 sekúndum á eftir Finnanum og heimsmeistarinn Sebastien Loeb frá Frakklandi er í þriðja sætinu, 35,5 sekúndum á eftir Grönholm. 2.6.2006 20:30
Messi jafnar sig á meiðslunum Lionel Messi hinn ungi Maradona eins og margir vilja kalla hann er mjög ánægður með hversu vel hann er að ná sér af meiðslum á læri sem hafa hrjáð hann undanfarna tvo mánuði. 2.6.2006 19:59
Obi Mikel til Chelsea Einhver umdeildasti knattspyrnumaður síðari ára, Nígeríumaðurinn John Obi Mikel, hefur loks skrifað undir samning við Englandsmeistara Chelsea. Mikel samþykkti á sínum tíma að ganga í raðir Manchester United, en sagði síðar að hann hefði verið neyddur til að skrifa undir samninginn. Chelsea þurfti að punga út 16 milljónum punda fyrir leikmanninn. 2.6.2006 19:02
Dein látinn víkja David Dein, stjórnarmaður í Arsenal, hefur verið látinn víkja úr stjórn enska knattspyrnusambandsins í kjölfar ítarlegrar rannsóknar sem hafin hefur verið á meintu peningaþvætti enska félagsins í Belgíu. David Gill, stjórnarformaður Manchester United mun taka sæti Dein í stjórn sambandsins í staðinn. 2.6.2006 18:15
Corrales lofar öðrum sögulegum bardaga Diego Corrales segist þess fullviss að þriðji bardagi hans við Luis Castillo annað kvöld verði jafn sögulegur á sá fyrsti, en fyrsta einvígi þeirra í fyrravor hefur verið kallað einn besti bardagi sögunnar. Þriðja bardagans er því beðið með mikilli eftirvæntingu og verður hann sýndur beint á Sýn Extra aðra nótt. 2.6.2006 17:45
Auðveldur sigur hjá Nadal Spænski tennisleikarinn Rafael Nadal heldur áfram ótrúlegri sigurgöngu sinni á leirnum, en í dag vann hann öruggan sigur á Kevin Kim í annari umferð opna franska meistaramótsins 6-2, 6-1 og 6-4. Þetta var 55. sigur Nadal í röð á leirvelli og á hann titil að verja á mótinu. 2.6.2006 17:30
Luke Young fer fram á sölu Varnarmaðurinn Luke Young hefur farið fram á að verða settur á sölulista hjá Lundúnaliði Charlton. Þó nýráðinn knattspyrnustjóri liðsins, Ian Dowie, hafi verið duglegur að taka til í herbúðum liðsins að undanförnu er ekki talið að hann vilji missa enska landsliðsmanninn - sem nú er orðaður sterkt við grannaliðið West Ham. 2.6.2006 17:00
Neitar alfarið að ræða Manchester United Hollenski framherjinn Ruud van Nistelrooy vill ekkert tjá sig um framtíð sína hjá Manchester United, en hann er sem stendur með hollenska landsliðinu sem leggur lokahönd á undirbúning sinn fyrir HM. Nistelrooy sagði í samtali við Sky-sjónvarpsstöðina að hann hugsaði aðeins um landsliðið núna, en benti á að átök hans við knattspyrnustjórann Alex Ferguson heyrðu nú sögunni til og tími væri kominn til að horfa fram á við. 2.6.2006 16:36
Rooney á ágætum batavegi Wayne Rooney er að sögn Sven-Göran Eriksson landsliðsþjálfara á ágætum batavegi og er byrjaður að æfa lítillega með enska landsliðinu. Ekki kemur í ljós fyrr en eftir viku hvort hann verður klár á HM, en Eriksson er ánægður með formið á honum. Þá gaf landsliðsþjálfarinn það upp í dag að Jermain Defoe hjá Tottenham væri líklegastur til að taka stöðu Rooney í liðinu ef allt fer á versta veg. 2.6.2006 15:58
Góðar fréttir af Rooney Wayne Rooney hefur aukið við æfingar sínar og lítur vel út. Rooney sem æfði með bolta í morgun (föstudag) virtist í fínu standi og notaði báða fæturna við boltaspark. 2.6.2006 15:20
Sionko kallaður inn fyrir Smicer Libor Sionko miðjumaður Glasgow Rangers hefur verið kallaður inn í HM hóp Tékka í staðinn fyrir Vladimir Smicer sem meiddist á hásin og þurfti að draga sig úr hópnum. 2.6.2006 15:09
Benitez framlengir við Liverpool Knattspyrnustjórinn Rafa Benitez hefur skrifaðu undir nýjan fjögurra ára samning við bikarmeistara Liverpool og stýrir liðinu til ársins 2010. Benitez hefur náð fínum árangri með liðið síðan hann tók við og er þegar búinn að krækja í enska bikarinn og vinna meistaradeildina, svo ljóst er að næst á dagskrá verður að vinna ensku úrvalsdeildina. 2.6.2006 15:00
Tveir grannaslagir í 4. umferð Í dag var dregið í 4. umferð Visa-bikarsins í knattspyrnu, en sigurvegarar þar fara í 16-liða úrslitin og mæta úrvalsdeildarliðunum. Breiðholtsliðin og erkifjendurnir ÍR og Leiknir drógust saman, silfurliðið frá í fyrra, Fram, sækir Hauka heim, Þróttur R mætir HK, Afturelding mætir Njarðvík, Akureyrarliðin KA og Þór etja kappi og loks mætast liðin að austan Sindri frá Höfn í Hornafirði og Fjarðabyggð. 2.6.2006 14:55
Guðmundur aðstoðar Alfreð Guðmundur Guðmundsson, þjálfari Fram og fyrrum landsliðsþjálfari, var í dag ráðinn aðstoðarþjálfari Alfreðs Gíslasonar hjá íslenska karlalandsliðinu í handbolta og mun hann gegna starfinu fram yfir umspilsleikina mikilvægu við Svía í nú í júní. Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi í dag. 2.6.2006 14:45
Ljungberg verður með gegn Chile Sænski miðjumaðurinn, Freddie Ljungberg, sem mun verða einn af lykilmönnum Svía í HM í Þýskalandi verður með í vináttuleik gegn Chile í dag. 2.6.2006 11:58
Starfsmaður FIFA sagður útvega leikmönnum kvenfólk Starfsmaður FIFA, alþjóðaknattspyrnusambandsins, sem jafnframt er aðstoðarmaður og túlkur landsliðs Paragvæ á HM í knattspyrnu sætir nú ámæli fyrir tilraunir til að koma á kynnum milli leikmanns liðsins og sænsks blaðaljósmyndara. 2.6.2006 11:01
Eiður Smári í Kuwait Flestir Íslendingar bíða nú spenntir eftir því að vita hver næsti áfangastaður knattspyrnuhetjunnar Eiðs Smára Guðjohnsen verður en búist er við að tilkynnt verði um vistaskipti hans frá Chelsea á allra næstu dögum. Athygli vekja tvær fréttagreinar um Eið Smára á fréttavefnum Vitalfootball en þar segir m.a. að Eiður Smári hafi hafnað boði sjónvarpsstöðvar á Íslandi um að lýsa leikjum á HM. 2.6.2006 09:30
Fljúgandi knattspyrnumenn Þorsteini fannst frammistaða Englendinga á móti Ungverjum hreint ekkert stórkostleg. Hann vill meina að Owen eigi langt í land með að ná Cisse og vonar að hann fljúgi inn í byrjunarlið Frakka. Þetta kemur fram í nýju bloggi Þorsteins J hér á HM vefnum. 2.6.2006 06:00
Nowitzki skoraði 50 stig Þjóðverjinn Dirk Nowitzki bætti fyrir slaka frammistöðu sína í síðasta leik og sallaði 50 stigum á Phoenix í nótt þegar lið hans Dallas vann fimmta leik liðanna í úrslitaeinvígi Vesturdeildarinnar 117-101 og tók þar með 3-2 forystu. 2.6.2006 05:57
Spilar knattspyrnu með Þór í sumar Heiðmar Felixson er ekkert á því að taka sér sumarfrí frá atvinnumennskunni í handboltanum en hann leikur með þýska liðinu Hannover-Burgdorf. Heiðmar er kominn hingað til lands og auk þess að starfa í lögreglunni á Dalvík spilar hann knattspyrnu með Þór í 1. deildinni í sumar. 2.6.2006 00:01
Michael Ballack gagnrýnir Jurgen Klinsmann Michael Ballack, leikmaður Chelsea og Þýska landsliðsins hefur nú gagnrýnt Jurgen Klinsmann þjálfar Þýskalands. Ballack sagði að þetta gæti ekki gengið svona lengur að spila eins og þeir gerðu á móti Japan. 1.6.2006 22:00
Gary Neville missti af æfingu á þriðjudag Meiðsli í hásin hafa verið að hrjá hann. Neville var tekinn útaf í seinni hálfleik á móti Ungverjum, á Old Trafford á þriðjudag, og kom Jamie Carragher inná í stað Neville. Talsmaður Enska knattspyrnusambandsins sagði „þetta er ekki alvarleg meiðsl, að taka hann útaf var aðeins varúðarráðstöfun“. Neville var eini leikmaður Enska liðsins sem að ekki var á æfingu með liðinu í dag. 1.6.2006 21:30
Hart tekist á í Vetrargarðinum Aflaunasambandið IFSA-Ísland stendur um helgina fyrir keppninni IFSA sterkasti maður Íslands og fer hún fram í Vetrargarðinum í Smáralind. Á meðal keppenda verða Benedikt "Tarfur" Magnússon, Stefán Sölvi Pétursson, Georg Ögmundsson, Guðmundur Otri Sigurðsson, Sigfús Fossdal og Jón Valgeir Williams. 1.6.2006 21:07
Joe Cole dreymir um að lyfta styttunni góðu Joe Cole hefur sagt að hans draumur frá því að hann hóf að horfa á fótbolta hafi verið að lyfta Heimsmeistarabikarnum. „Mín heitasta ósk og minn metnaður núna er að halda á bikarnum. Síðan að ég horfði á HM, á Ítalíu 1990, og sá okkur komast svo nálægt takmarkinu, þá hefur það verið minn draumur að halda á bikarnum,“ sagði Cole. 1.6.2006 21:00
Corrales og Castillo berjast til þrautar Óhætt er að minna alla áhugamenn um hnefaleika á að fá sér sæti og stilla á Sýn Extra klukkan eitt á laugardagskvöldið, því þá mætast þeir Luis Castillo og Diego Corrales í þriðja sinn í hringnum og herlegheitin verða í beinni útsendingu. Fyrsti bardagi þeirra félaga í fyrravor var einhver ótrúlegasti bardagi síðari ára. 1.6.2006 20:43
Cisse flýgur fugla hæst Úrslitin í síðustu æfingaleikjum fyrir HM eru umhugsunarefni, sérstaklega er skrýtið hvað Sven Göran Eriksson var ánægður eftir leik Englendinga við Unghverja á þriðjudagskvöldi. Þeir unnu 3-1, fínt, tvö mörk úr föstum leikatriðum, Beckham með stórkostlegar aukaspyrnur, og skakki turninn Peter Crouch með það þriðja. 1.6.2006 20:30
„Ég tek vítin“ Frank Lampard leikmaður Enska landsliðsins segir að hann muni áfram taka vítaspyrnur liðsins þrátt fyrir að hafa mistekist af vítapunktinum í vináttuleik Englendinga og Ungverja. 1.6.2006 20:30
Naumur sigur á Andorra Íslenska karlalandsliðið skipað leikmönnum 21 árs og yngri lagði Andorra 2-0 á Skipaskaga í kvöld og er því komið í milliriðil fyrir Evrópumótið í sumar. Þar leikur íslenska liðið við Ítali og Austurríkismenn. Það voru Emil Hallfreðsson og Rúrik Gíslason sem skoruðu mörk íslenska liðsins á síðustu mínútum leiksins í kvöld. 1.6.2006 20:21
Dallas - Phoenix í beinni á Sýn Fimmti leikur Dallas Mavericks og Phoenix Suns verður sýndur í beinni útsendingu í Sýn klukkan 0:30 í nótt. Staðan er 2-2 í einvígi liðanna í úrslitum Vesturdeildarinnar og leikur kvöldsins fer fram í Dallas. 1.6.2006 19:32
Markalaust á Skaganum í hálfleik Staðan í leik Íslands og Andorra í umspilsleik þjóðanna um sæti í lokakeppni EM er 0-0 þegar flautað hefur verið til hálfleiks á Akranesi. Fyrri leik liðanna lauk með markalausu jafntefli, en íslenska liðinu hefur enn ekki tekist að brjóta ísinn í kvöld þrátt fyrir talsverða yfirburði. 1.6.2006 19:17
Brasilíumenn ósáttir við nýja HM boltann Heimsmeistarar Brasilíu hafa átt erfitt með að venjast nýja HM boltanum sem notaður verður á HM í Þýskalandi og hafa látið óánægju sína í ljós við yfirmenn keppninnar. 1.6.2006 18:44
„Við getum unnið HM“ Cesc Fabregas, miðjumaður Arsenal, hefur mikla trú á að spænska landsliðið geti náð langt á HM. Búist er við því að þessi snjalli miðjumaður, sem að átti stórkostlega leiktíð fyrir Arsenal þrátt fyrir að vera aðeins 18 ára gamall, hefji leik fyrir Spánverja þegar þeir taka á móti Úkraínu í sínum fyrsta leik á HM 14. júní. 1.6.2006 18:30
Peter Crouch vonast eftir sæti í byrjunarliði Englendinga Peter Crouch, framherji Liverpool, vonast til þess að fá tækifæri í byrjunarliði enska landsliðsins í æfingaleiknum gegn Jamaica á laugardaginn. 1.6.2006 18:21
Lyon hefur áhuga á Cisse Jean-Michel Aulas, stjórnarformaður frönsku meistaranna í Lyon, útilokar ekki að félagið muni reyna að fá til sín franska framherjann Djibril Cisse frá Liverpool. Cisse er ósáttur í herbúðum Liverpool og hefur óskað eftir því að fá að ganga til liðs við Gerard Houllier og félaga í Lyon, jafnvel þó hann þurfi að taka á sig launalækkun. Það var einmitt Houllier sem fékk Cisse til Liverpool á sínum tíma þegar hann var knattspyrnustjóri í Bítlaborginni. 1.6.2006 18:15
Ribery er ekki til sölu Franska liðið Marseille hefur sent liðum sem eru á höttunum eftir kantmanninum Franck Ribery skýr skilaboð og segja að ekki komi til greina að selja hann. Frönsku meistararnir í Lyon hafa verið hrifnir af leikmanninum og sömu sögu er að segja af Manchester United en Pape Diouf, stjórnarformaður Marseille segir að hann verði ekki seldur fyrr en í fyrsta lagi eftir eitt ár. 1.6.2006 17:30
Íslandsmót fullorðinna í hestaíþróttum 2006 Íslandsmót fullorðinna í hestaíþróttum fer fram í Glaðheimum í Kópavogi dagana 14.-16. júlí nk. Keppt verður í öllum hefðbundnum greinum og stefna Gustarar að því að halda glæsilegt mót. Hin þekktu listahjón Baltasar og Kristjana Samper hafa hannað glæsilega verðlaunagripi sem veittir verða fyrir efstu sætin, en þeir eru sannkölluð listaverk og verða aðeins framleiddir í takmörkuðu magni. 1.6.2006 16:51
Arsenal borið þungum sökum Alþjóða knattspyrnusambandið hefur nú hafið opinbera rannsókn eftir að enska úrvalsdeildarfélagið Arsenal var sakað um að hafa dælt peningum í smálið í Belgíu með það fyrir augum að láta það ala upp fyrir sig afríska leikmenn. Ef Arsenal verður fundið sekt um peningaþvott af þessu tagi má reikna með að félaginu yrði jafnvel vísað úr meistaradeildinni á næstu leiktíð. 1.6.2006 16:49
Líður eins og dauðadæmdum manni Larry Brown, þjálfari New York Knicks í NBA, á ekki sjö dagana sæla um þessar mundir. Hann stýrir nú æfingabúðum liðsins í borginni og undirbýr það fyrir næsta tímabil, en þegar hann hitti blaðamenn að máli í byrjun vikunnar var ekki gott hljóð í honum. 1.6.2006 16:30
Rossi framlengir við Yamaha Mótorhjólagoðsögnin Valentino Rossi hefur framlengt samning sinn við Yamaha-lið sitt um eitt ár og tekur þar með af allan vafa um framtíð sína á kappakstursbrautinni. Rossi hefur lengi verið orðaður við Ferrari-liðið í Formúlu 1, en nú er ljóst að hinn 27 ára, sjöfaldi heimsmeistari verður áfram á mótorhjóli. 1.6.2006 16:15
Messi ánægður með batann Argentínski miðjumaðurinn Lionel Messi segist vera fullur sjálftrausts er Heimsmeistarakeppnin í Þýskalandi nálgast óðfluga og gefur í skyn að að hann sé að ná góðum bata á meiðslunum sem hafa hrjáð hann undanfarna mánuði. 1.6.2006 15:59
Hilario að lenda hjá Chelsea Portúgalski markvörðurinn Hilario á nú aðeins eftir að gangast undir læknisskoðun áður en hann skrifar undir tveggja ára samning við Chelsea. Hilario spilaði áður undir stjórn Jose Mourinho hjá Porto, en þessi þrítugi leikmaður á að verða varamarkvörður þeirra Petr Cech og Carlo Cudicini. 1.6.2006 15:45
Smicer verður ekki með Tékkum á HM Læknar tékkneska landsliðsins fundu blóðköggul í læri leikmannsins Vladimir Smicer. Þessi 33 ára fyrrverandi leikmaður Liverpool leikur núna í Frakklandi hjá Bordeaux. 1.6.2006 14:52