Fleiri fréttir

Boro komið í 3-0 gegn Chelsea

Middlesbrough er komið í 3-0 gegn Chelsea í leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni þegar enn er stundarfjórðungur til leiksloka, en þetta er í fyrsta sinn sem lið Chelsea fær á sig þrjú mörk í deildarleik síðan Jose Mourinho tók við liðinu. Fabio Rochemback, Stewart Downing og Yakubu hafa skorað mörk Boro í leiknum.

Denver stöðvaði sigurgöngu Dallas

Fjölmargir leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt og þar bar hæst að 13 leikja sigurgöngu Dallas lauk í Denver þar sem heimamenn höfðu sigur 113-104. Kenyon Martin sneri aftur úr meiðslum og skoraði 34 stig fyrir Denver, en Keith Van Horn skoraði 21 stig fyrir Dallas.

Heiðar Helguson búinn að skora tvisvar

Nú er kominn hálfleikur í leikjunum fimm sem standa yfir í ensku úrvalsdeildinni. Heiðar Helguson er búinn að skora bæði mörk Fulham sem er 2-0 yfir gegn West Brom og Middlesbrough hefur yfir 2-0 gegn Chelsea. Bolton hefur yfir 1-0 gegn Arsenal á Highbury, Everton er yfir 1-0 gegn Blackburn og Newcastle hefur yfir 2-1 á útivelli gegn Aston Villa.

Wenger neitaði að taka við Englendingum

Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hefur nú greint frá því að hann hafi afþakkað boð um að taka við enska landsliðinu eftir að Kevin Keegan hætti árið 2000. Wenger segir að mun heppilegra sé að heimamaður stýri liðinu en útlendingur.

Heiðar kemur Fulham yfir

Það tók Heiðar Helguson aðeins 4 mínútur að láta að sér kveða í leik Fulham og West Brom, en hann skoraði fyrsta mark sinna manna eftir sendingu frá Brian McBride.

Heiðar og Eiður byrja

Heiðar Helguson er í byrjunarliði Fulham í dag þegar liðið tekur á móti West Brom á heimavelli sínum og Eiður Smári er í byrjunarliði Chelsea sem sækir Middlesbrough heim, en þar skoruðu heimamenn reyndar mark eftir rétt rúma mínútu og þar var að verki Fabio Rochemback.

Liverpool lagði Wigan

Liverpool náði að rétta úr kútnum í dag með 1-0 útisigri á Wigan í ensku úrvalsdeildinni, en liðið hafði tapað tveimur leikjum í röð. Það var varnarmaðurinn Sami Hyypia sem skoraði mark gestanna á 30. mínútu. Liverpool er enn í þriðja sæti deildarinnar, en Wigan í því 6.

Mayweather með stórar yfirlýsingar

Bandaríski hnefaleikarinn Floyd Mayweather er með skýr skilaboð til hins breska Ricky Hatton sem ætlar að hasla sér völl í Bandaríkjunum á næsu mánuðum. "Ef Hatton ætlar að berjast við mig, fer eins fyrir honum og Prinsinum á sínum tíma. Ef hann fer inn í hringinn með mér, verður hann laminn og kemur aldrei til Bandaríkjanna aftur," sagði Mayweather.

Heskey fær bann og sekt

Framherjinn Emile Heskey hjá Birmingham hefur verið dæmdur í eins leiks bann og verið gert að greiða fimm þúsund pund í sekt fyrir dólgslega hegðun eftir að hann var rekinn af leikvelli í leik gegn Arsenal á dögunum. Hann missti af bikarleik í vikunni og missir nú líka af deildarleiknum við West Ham um helgina.

Udinese rekur þjálfarann

Ítalska A-deildarliðið Udinese rak í dag þjálfara sinn Serse Cosmi, en hann er níundi þjálfarinn í deildinni sem fær að taka pokann sinn í vetur. Við starfi hans tekur Loris Dominissini, sem áður stýrði liði smáliði Como og hóf það úr neðri deildunum á Ítalíu og upp í A-deildina fyrir nokkrum árum.

Egyptar Afríkumeistarar

Egyptar tryggðu sér nú áðan Afríkubikarinn í knattspyrnu þegar liðið lagði Fílabeinsströndina í vítakeppni eftir markalausan leik og framlengingu. Didier Drogba hjá Chelsea var einn þeirra sem misnotuðu vítaspyrnu sína í vítakeppninni.

Ragnhildur íþróttamaður Reykjavíkur

Kylfingurinn Ragnhildur Sigurðardóttir úr GK var í dag kjörin íþróttamaður Reykjavíkur fyrir árið 2005 og tók við viðurkenningu frá borgarstjóra við hátíðlega athöfn. Ragnhildur skaraði framúr í golfinu á síðasta ári og vann alla titla sem í boði voru hérlendis. Þetta var í 27. sinn sem þessi viðurkenning er veitt.

Trapattoni rekinn frá Stuttgart

Ítalski knattspyrnustjórinn Giovanni Trapattoni hefur verið rekinn úr starfi hjá þýska úrvalsdeildarliðinu Stuttgart eftir aðeins 8 mánuði í starfi. Það verður fyrrum þjálfari Hansa Rostock, Armin Veh, sem tekur við liðinu í hans stað.

Ferguson í sjö leikja bann

Framherjinn Duncan Ferguson hjá Everton hefur verið dæmdur í fjögurra leikja bann fyrir dólgslega hegðun sína eftir að hann fékk að líta rauða spjaldið í leik gegn Wigan á dögunum. Ferguson fékk þriggja leikja bann fyrir rauða spjaldið og hefur nú verið dæmdur í fjögurra leikja bann í viðbót.

Naumt tap hjá Valsstúlkum

Valsstúlkur töpuðu í dag fyrri leiknum sínum við gríska liðið Athinaikos í Áskorendakeppni Evrópu í handknattleik 26-24, eftir að hafa verið 5 mörkum undir í hálfleik 14-9. Arna Grímsdóttir var markahæst í liði Vals með 7 mörk og Hafrún Kristjánsdóttir skoraði 6 mörk, en Berglind Hansdóttir varði 18 skot í markinu. Síðari leikur liðanna er á morgun.

Jafnt í hálfleik í úrslitaleiknum

Enn er ekki komið mark í viðureign Fílabeinsstrandarinnar og heimamanna Egypta í úrslitaleiknum í Afríkukeppninni í knattspyrnu sem nú stendur yfir, en í gær tryggðu Nígeríumenn sér þriðja sætið á mótinu.

Við getum unnið HM

Framherjinn Wayne Rooney hjá Manchester United segir engan vafa á því í sínum huga að Englendingar geti sigrað á HM í Þýskalandi í sumar og segir félaga sinn hjá landsliðinu Steven Gerrard á sama máli.

Vonast til að komast í landsliðið á ný

Varnarmaðurinn sterki hjá Reading, Ívar Ingimarsson, segir í viðtali á heimasíðu félagsins í gær að hann hafi mikinn áhuga á að verða valinn aftur í íslenska landslishópinn fyrir vináttuleikinn við Trinidad og Tóbagó í endaðan febrúar. Ívar verður í eldlínunni í kvöld þegar Reading sækir Southampton heim í beinni á Sýn klukkan 19:35.

Næsti þjálfari ætti að verða Breti

Dave Richards hjá enska knattspyrnusambandinu, einn þeirra þriggja sem hafa mest að gera með ráðningu nýs landsliðsþjálfara, segir að flest bendi til þess að næsti þjálfari liðsins verði Englendingur - eða öllu heldur Breti.

Anton Ferdinand leikmaður mánaðarins

Varnarmaðurinn Anton Ferdinand hjá West Ham var í dag útnefndur leikmaður janúarmánaðar í ensku úrvalsdeildinni, en Ferdinand hefur verið eins og klettur í vörn liðsins á sínu fyrsta ári í deildinni. Hann skoraði auk þess glæsilegt mark í sigri West Ham á Fulham á dögunum og hefur nú verið orðaður við Barcelona á Spáni.

Moyes stjóri mánaðarins

David Moyes, stjóri Everton, hefur verið útnefndur knattspyrnustjóri janúarmánaðar í ensku úrvalsdeildinni, en undir stjórn hans var liðið taplaus í deildinni í janúar og hefur nú komist á ágætt ról eftir hreint út sagt skelfilega byrjun í haust.

Dallas valtaði yfir Miami

Sjóðheitt lið Dallas Mavericks var aldrei í vandræðum með Miami Heat í leik liðanna í NBA í nótt og vann 112-76. Þetta var 13. sigur Dallas í röð í deildinni og var sigurinn svo öruggur að lykilmenn Dallas gátu sest á bekkinn í síðasta leikhlutanum. Dirk Nowitzki skoraði 27 stig fyrir Dallas, en Shaquille O´Neal skoraði 23 stig fyrir Miami.

Fjórir leikmenn frá Detroit í Stjörnuleiknum

Nú í kvöld var tilkynnt hvaða leikmenn skipa lið austurs og vesturs í Stjörnuleiknum í NBA sem fram fer í Houston þann 19. febrúar næstkomandi. Þjálfarar í deildinni völdu fjóra leikmenn frá Detroit í austurliðið og þá eru fimm leikmenn í stjörnuliði í fyrsta sinn.

Dallas - Miami í beinni útsendingu

Það verður sannkallaður stórleikur í beinni útsendingu á NBA TV í nótt þegar heitasta liðið í NBA, Dallas Mavericks, tekur á móti Shaquille O´Neal og félögum í Miami Heat. Leikurinn hefst klukkan eitt eftir miðnætti og þar verður forvitnilegt að sjá hvort Dallas-liðið nær að vinna sinn 13. leik í röð í deildinni, sem yrði met í vetur.

Snæfell lagði Grindavík

Heil umferð fór fram í úrvalsdeild karla í körfubolta í kvöld. Snæfellingar lögðu Grindavík í hörkuleik í Hólminum 68-67, Njarðvík vann Hamar/Selfoss 85-73, KR lagði Hauka 83-74, Skallagrímur burstaði Þór 114-83, Keflavík valtaði yfir Hött 119-79 og ÍR lagði Fjölni 91-83.

McLeish hættir í sumar

Forráðamenn Glasgow Rangers hafa staðfest að knattspyrnustjóri liðsins Alex McLeish muni láta af störfum í sumar, en lengi hefur verið vitað að til stæði að ráða annan mann í hans stað. McLeish hefur náð góðum árangri með liðið og hefur krækt í sjö titla á þeim fjórum árum sem hann hefur stýrt liðinu, þar á meðal meistaratitlinum á elleftu stundu í vor.

Rodman spilar aftur með Brighton

Körfuboltamaðurinn Dennis Rodman mun spila tvo leiki til viðbótar með liði Brighton Bears á Englandi eftir að hann sló í gegn í leik með liðinu um daginn. "Stuðningsmennirnir vildu fá hann aftur og við getum ekki brugðist þeim. Við selt tíu sinnum fleiri miða en við gerðum síðast en húsrúm leyfði það ekki," sagði þjálfari Brighton ánægður.

Campbell meiddur

Varnarmaðurinn Sol Campbell hjá Arsenal er meiddur á ökkla og verður frá keppni í tvær til þrjár vikur. Campbell meiddist í leiknum fræga við West Ham á dögunum, þar sem honum var skipt útaf í hálfleik eftir skelfilega frammistöðu sína og fór leikmaðurinn í leyfi frá liðinu í nokkra daga til að jafna sig.

Þjálfarinn er viðvaningur

Egypski framherjinn Mido hefur enn ekki sagt sitt síðasta varðandi brottvísun sína úr landsliðinu eftir rifrildi við þjálfara sinn á dögunum og nú hefur hann gefið það út að þjálfarinn og þeir sem standi að liðinu séu eintómir viðvaningar.

Forseti Renault dulur

Carlos Ghosn, forseti Renault í Formúlu 1, vill lítið gefa upp um framtíðaráform liðsins, en segir að það muni í það minnsta verða með á næsta keppnistímabili. Ghosn er ekki sáttur við framtíðaráform æðstu manna í íþróttinni og segir lið sitt aðeins halda áfram að því tilskyldu að það sjái sér hag í því.

Heil umferð í kvöld

Heil umferð verður á dagskrá í Iceland Express deild karla í körfubolta í kvöld og hefjast allir leikirnir klukkan 19:15. Snæfell mætir Grindavík, Hamar/Selfoss tekur á móti Njarðvík, Haukar mæta KR, Þór tekur á móti Skallagrími, Keflavík mætir Hetti og ÍR fær Fjölni í heimsókn í Seljaskóla.

Paletta í viðræðum við Liverpool

Argentínski varnarmaðurinn Gabriel Paletta, sem leikur með liði Banfield í heimalandi sínu sem og yngri liðum Argentínu, er væntanlegur til Liverpool um helgina með það fyrir augum að ganga til liðs við enska félagið í sumar.

Greenwood látinn

Ron Greenwood, fyrrum þjálfari West Ham og enska landsliðsins lést í dag 84 ára að aldri. Greenwood stýrði enska landsliðinu á árunum 1977-82 og West Ham á árunum 1961-74. Mínútu þögn verður á næsta heimaleik West Ham á Upton Park til minningar um Greenwood.

Við játum okkur ekki sigraða

Juan Ramon Lopez Caro, stjóri Real Madrid, segir sína menn ekki ætla að játa sig sigraða í spænska bikarnum þrátt fyrir að vera kjöldregnir í fyrri leik sínum gegn Real Zaragoza í gærkvöldi 6-1.

Sjöundi sigur San Antonio í röð

Meistarar San Antonio Spurs unnu í nótt sjöunda sigur sinn í röð í NBA deildinni þegar liðið vann nauman sigur á Toronto Raptors eftir framlengingu 125-118. Tim Duncan gat ekki leikið með San Antonio vegna veikinda, en Tony Parker tók upp hanskann fyrir hann og skoraði 32 stig og gaf 13 stoðsendingar.

Á eftir að sýna mitt rétta andlit

Framherjinn Hannes Þ. Sigurðsson hjá Stoke City í Englandi er á batavegi eftir ökklameiðsli og vonast til að fá tækifæri í byrjunarliði liðsins um næstu helgi.

Spilar þrjá leiki fyrir Malmö

Knattspyrnukonan Ásthildur Helgadóttir mun fljúga í þrígang utan til Malmö FF í Svíþjóð í vor og spila þrjá fyrstu leiki liðsins á komandi leiktíð.

Þeir rauðklæddu eru ekki samkvæmir sjálfum sér

Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, hefur komið Arjen Robben til varnar eftir að leikmenn og þjálfari Liverpool gagnrýndu hann harðlega fyrir leikaraskap sem varð til þess að Jose Reina var rekinn af leikvelli í leik liðanna um síðustu helgi.

Þjóðernið skiptir ekki máli

Fyrirliði enska landsliðsins í knattspyrnu, David Beckham, segir að þjóðerni næsta landsliðsþjálfara eigi ekki að skipta nokkru máli, en sem kunnugt er mum Sven Göran Eriksson hætta með liðið að lokinni HM í Þýskalandi í sumar.

Haukastúlkur deildarmeistarar

Haukastúlkur tryggðu sér í kvöld deildarmeistaratitilinn í körfuknattleik kvenna þegar liðið vann átakalítinn sigur á Grindavík á útivelli, 89-68. Því er ljóst að liðið hefur tryggt sér heimavallarréttinn í úrslitakeppninni í vor, því ekkert lið getur nú náð þeim að stigum.

Real Madrid niðurlægt

Stjörnulið Real Madrid var tekið í sannkallaða kennslustund í kvöld þegar liðið sótti Real Zaragoza heim í fyrri leik liðanna í undanúrslitum spænska bikarsins. Zaragoza sigraði 6-1 og eru möguleikar Madrid ansi litlir fyrir síðari leikinn, en hætt er við því að stuðningsmenn liðsins eigi eftir að láta vel í sér heyra eftir þennan skell.

Auðveldur sigur hjá Chelsea

Chelsea er komið áfram í enska bikarnum eftir auðveldan 4-1 sigur á Everton í kvöld. Arjen Robben, Frank Lampard, Hernan Crespo og John Terry gerðu mörk Chelsea en Arteta skoraði mark Everton úr vítaspyrnu. Þá er Middlesbrough einnig komið áfram í keppninni eftir 1-0 sigur á Coventry og það var Jimmy Floyd Hasselbaink sem skoraði mark liðsins.

Charlton lagði Liverpool

Hermann Hreiðarsson og félagar í Charlton unnu í kvöld sætan sigur á Liverpool í ensku úrvalsdeildinni 2-0. Það voru Luke Young og Darren Bent sem skoruðu mörk Lundúnaliðsins í kvöld, en Liverpool var án Steven Gerrard sem var meiddur.

Charlton yfir gegn Liverpool

Nú er síðari hálfleikur nýhafinn í leikjunum þremur sem standa yfir í ensku knattspyrnunni. Í úrvalsdeildinni hefur Charlton yfir 2-0 gegn Liverpool á heimavelli sínum. Í enska bikarnum er Chelsea er að eiga náðugt kvöld gegn Everton og er 3-0 yfir og þá hefur Middlesbrough yfir 1-0 gegn Coventry.

Haukasigur í Árbænum

Haukar lögðu Fylki í Árbænum í kvöld í fyrstu umferðinni í DHL deild karla í handbolta eftir hlé sem gert var á deildarkeppninni vegna EM í Sviss. Guðmundur Pedersen var markahæstur hjá Haukum með 9 mörk og Kári Kristjánsson skoraði 7, en hjá Fylki var Anar Agnarsson markahæstur með 8 mörk. Birkir Ívar Guðmundsson varði 18 skot í marki Hauka.

Sjá næstu 50 fréttir