Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Iverson vill vinna gull Allen Iverson hefur lýst yfir áhuga sínum á að vera valinn í bandaríska landsliðið í körfubolta fyrir heimsmeistaramótið í ár og Ólympíuleikana árið 2008. Hann lýsti þessu yfir við Jerry Colangelo, framkvæmdastjóra liðsins á dögunum. 5.1.2006 15:30
Tæklingin verður skoðuð af aganefnd Fulltrúar aganefndar enska knattspyrnusambandsins hafa nú sett sig í samband við Alan Wiley dómara og beðið hann um skýrslu vegna ljótrar tæklingar David Sommeil, leikmanns Manchester City, á bakvörðinn Lee hjá Tottenham í leik liðanna í gærkvöldi. 5.1.2006 14:45
Allardyce reiður Sam Allardyce, stjóri Bolton, brást reiður við þegar hann var spurður út í þrálátan orðróm sem enn er kominn á kreik um að hann verði næsti stjóri Newcastle. Mikið hefur verið rætt um framtíð Graeme Souness í stjórastól Newcastle og vilja margir meina að hann verði rekinn fljótlega, þar sem gengi liðsins hefur verið langt undir væntingum. 5.1.2006 14:24
Alfreð látinn fara Alfreð Gíslasyni hefur verið vikið úr starfi sem þjálfara úrvalsdeildarliðsins Magdeburg, þar sem hann hefur verið við störf síðan 1999. Alfreð hefur náð góðum árangri á þessum tíma með liðið, en gengi liðsins hefur þó verið upp og niður í vetur. Alfreð hefur þegar gert samning um að taka við liði Gummersbach árið 2007. 5.1.2006 14:10
Kominn til Birmingham Sóknarmaðurinn Chris Sutton hefur gengið í raðir Birmingham í ensku úrvalsdeildinni á frjálsri sölu. Hann komst að niðurstöðu um að fá að fara eftir nokkrar viðræður við forráðamenn Glasgow Celtic og er því kominn á kunnuglegar slóðir á ný, því hann spilaði lengi á Englandi áður en hann fór til Skotlands. Hann skoraði 86 mörk í 199 leikjum fyrir Celtic á ferlinum. 5.1.2006 13:58
LeBron James með stórleik LeBron James átti stjörnuleik þegar lið hans Cleveland Cavaliers bar sigurorð af Milwaukee Bucks í NBA deildinni í nótt 91-84. James skoraði 32 stig, þar af 17 í fjórða leikhluta, hirti 11 fráköst, gaf 11 stoðsendingar og stal 5 boltum. Liðið varð þó fyrir áfalli í leiknum, því Larry Hughes fingurbrotnaði og verður frá í 6-8 vikur. Michael Redd var atkvæðamestur hjá Milwaukee með 28 stig. 5.1.2006 07:45
Tottenham sigraði Manchester City Tottenham styrkti stöðu sína í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld þegar liðið vann góðan útisigur á Manchester City 2-0. Mido og Robbie Keane gerðu mörk Tottenham, sem var betri aðilinn í leiknum og vann sanngjarnan sigur. 4.1.2006 22:32
Heiðar Davíð og Ólöf María kylfingar ársins Golfsamband Íslands útnefndi í dag Heiðar Davíð Bragason og Ólöfu Maríu Jónsdóttur kylfinga ársins 2005. Davíð varð Íslands- og stigameistari á árinu, en Ólöf varð sem kunnugt er fyrsti íslenski kylfingurinn til að tryggja sér þáttöku á evrópsku mótaröðinni á árinu og spilaði á 12 slíkum á síðasta ári. 4.1.2006 20:30
Olisadebe kominn til Portsmouth Enska úrvalsdeildarliðið Portsmouth hefur náð samkomulagi við pólska landsliðsmanninn Emmanuel Olisadebe og mun hann verða með liðinu út leiktíðina. Þetta kemur nokkuð á óvart, því enska liðið hafði sent leikmanninn aftur til Pananthiakos á dögunum eftir að hafa verið með hann til reynslu í nokkra daga og talið var að ekkert yrði af viðskiptunum. 4.1.2006 19:30
Eftirsóttur í ensku úrvalsdeildinni Umboðsmaður framherjans Chris Sutton hjá Glasgow Celtic segir að nokkur lið í ensku úrvalsdeildinni séu búin að hafa samband við sig varðandi kaup á leikmanninum. Samningur Sutton við Celtic rennur út í sumar og sagt er að Everton og Portsmouth séu á meðal þeirra liða sem eru í viðræðum um að fá hann til liðs við sig. 4.1.2006 19:00
Kromkamp kominn, Agger á leiðinni Enska úrvalsdeildarliðið Liverpool hefur nú gengið frá samningi við hollenska bakvörðinn Jan Kromkamp frá Villareal, en liðið fékk hann í skiptum fyrir Josemi á dögunum. Þá er félagið við það að ganga frá samningi við danska landsliðsmanninn Daniel Agger, en það hefur þó enn ekki verið staðfest. 4.1.2006 18:52
Hættur fasistakveðjum Ítalinn Paolo Di Canio hjá Lazio segist vera hættur fasistakveðjum sínum á knattspyrnuvellinum, en hann var á dögunum sektaður og settur í leikbann vegna þessa. "Ég hugsaði málið yfir jólin og hef ákveðið að setja hagsmuni Lazio framar mínum eigin," sagði Di Canio, en benti á að hann stæði þó fast á pólitískum skoðunum sínum engu að síður. 4.1.2006 18:17
Manchester City - Tottenham í kvöld Einn leikur er á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Manchester City tekur á móti Tottenham á City of Manchester Stadium. City er sem stendur um miðja deild, en Tottenham situr nokkuð óvænt í fjórða sæti deildarinnar og getur minnkað forskot Liverpool í þriðja sætinu niður í eitt stig með sigri í kvöld. 4.1.2006 17:30
Heimir í landsliðið í stað Baldvins Baldvin Þorsteinsson hefur þurft að draga sig út úr íslenska landsliðshópnum fyrir EM í Sviss síðar í mánuðinum vegna veikinda. Viggó Sigurðsson hefur í stað hans valið Heimir Örn Árnason, leikmann Fylkis. 4.1.2006 17:23
Hefur augastað á Ugo Ehiogu Bryan Robson, stjóri West Brom í ensku úrvalsdeildinni, hefur fullan hug á að reyna að lokka fyrrum landsliðsmanninn Ugo Ehiogu frá Middlesbrough á næstu dögum. Robson keypti Ehiogu til Boro á sínum tíma fyrir metfé þegar hann var stjóri liðsins, en Ehiogu hefur lítið fengið að spreyta sig með liði sínu í vetur. 4.1.2006 16:45
Schalke ræður nýjan þjálfara Þýska úrvalsdeildarliðið Schalke tilkynnti í dag að aðstoðarþjálfari liðsins, Mirko Slomka, hefði verið gerður að nýjum aðalþjálfara liðsins eftir að Ralf Rangnick var rekinn á dögunum. Schalke er í fjórða sæti í þýsku úrvalsdeildinni, en þar á bæ eru kröfurnar miklar um árangur. 4.1.2006 16:15
Sainz enn í forystu Spánverjinn Carlos Sainz heldur enn forskoti sínu í París-Dakar rallinu eftir að hann hafnaði í níunda sæti á fimmtu sérleiðinni í Marokkó í dag. Sainz ekur Volkswagen Touareg bifreið og hefur verið í nokkrum sérflokki það sem af er. Frakkinn Stephane Peterhansel sigraði á fimmtu sérleiðinni í dag og er í áttunda sæti í heildarkeppninni. 4.1.2006 16:00
Honda er betra en Ferrari Brasilíski ökuþórinn Rubens Barrichello sem nýverið gekk í raðir Honda-liðsins í Formúlu 1, segir að lið Honda sé sterkara en Ferrari í dag og það hafi orðið til þess að hann ákvað að skipta um lið í sumar. 4.1.2006 15:45
Queudrue frá í tvo mánuði Varnarmaðurinn Franch Queudrue hjá Middlesbrough er meiddur á hné og verður frá í sex til átta vikur. Steve McClaren, stjóri Middlesbrough segir að enn eigi eftir að koma í ljós hvort leikmaðurinn þarf í aðgerð, en ljóst sé að hann verði lengi frá engu að síður. Queudrue hefur verið fastamaður í liði Middlesbrough í vetur og verður hans því sárt saknað að sögn McClaren. 4.1.2006 15:15
Wenger og Ferguson játa sig sigraða Arsene Wenger og Alex Ferguson, stjórar Arsenal og Manchester United, hafa kastað inn hvíta handklæðinu í baráttunni um enska meistaratitilinn og viðurkenna báðir að lið þeirra eigi ekki möguleika á að ná Chelsea í vetur. 4.1.2006 14:44
Fimmta tap Lakers í röð LA Lakers tapaði fimmta leik sínum í röð í nótt þegar liðið lá fyrir Utah Jazz, en þetta var síðari leikurinn sem Kobe Bryant þurfti að taka út leikbann fyrir olnbogaskot í leik á dögunum. Utah sigraði 90-80. Mehmet Okur skoraði 20 stig og hirti 10 fráköst fyrir Utah og Andrei Kirilenko skoraði 14 stig, gaf 9 stoðsendingar, hirti 8 fráköst, varði 7 skot og stal 6 boltum. Lamar Odom skoraði 25 stig fyrir Lakers. 4.1.2006 14:28
Scott Parker frá í nokkrar vikur Scott Parker hjá Newcastle hefur þurft að gangast undir smávægilega aðgerð á hné og verður frá keppni í þrjár til fimm vikur. Hinn 25 ára gamli Parker meiddist í leik þann 17. desember og er nú nýjasta nafnið á meiðslalista liðsins, sem hefur verið afar óheppið í þeim efnum í vetur. 4.1.2006 14:19
Farinn til Benfica Franski miðjumaðurinn Lauren Robert er farinn frá Portsmouth, þar sem hann hefur leikið sem lánsmaður frá Newcastle í vetur og er genginn í raðir portúgalska liðsins Benfica þar sem hann hittir fyrir þjálfarann Ronald Koeman. Samningur Robert er til þriggja og hálfs árs. 4.1.2006 14:06
Defoe verður í HM-hóp Englands Martin Jol, knattspyrnustjóri Tottenham, segist þess fullviss að Jermain Defoe fái fast sæti í HM-hóp Englendinga í sumar þó hann sé ekki fastamaður í byrjunarliði Tottenham um þessar mundir. 4.1.2006 12:30
Souness orðinn leiður á meiðslunum Graeme Souness, stjóri Newcastle, á ekki orð yfir öllum meiðslunum sem hrjá lið hans um þessar mundir, en hann á í nokkrum erfiðleikum með að stilla upp sterku liði um þessar mundir, aðallega vegna meiðsla lykilmanna. 4.1.2006 12:00
Fer ekki í Afríkukeppnina Miðjumaðurinn sterki Michael Essien fer ekki með landsliði sínu í Afríkukeppnina vegna meiðsla sem hann hlaut í leiknum gegn West Ham á mánudaginn. Þetta er mikið áfall fyrir landslið Ghana, en Jose Mourinho sagði á heimasíðu Chelsea í gær að tilgangslaust væri fyrir leikmanninn að fara á mótið því hann gæti ekki spilað á næstunni og því væri hann betur settur í endurhæfingu á Englandi. 4.1.2006 11:15
Arsenal saknar mín Miðjumaðurinn Patrick Vieira er ekki í nokkrum vafa um að gömlu félagar hans í Arsenal sakni hans, en þrátt fyrir orðróm á dögunum um að Vieira væri aftur á leið til Englands, segir sá franski að hann ætli sér að ljúka ferlinum hjá Juventus á Ítalíu. 4.1.2006 10:30
Hefur áhyggjur af gengi Arsenal Franski framherjinn Thierry Henry hjá Arsenal vill enn ekki ræða framtíð sína hjá félaginu, en segir að óstöðugleiki liðsins í vetur sé einmitt ástæða þess að hann hafi alltaf sagt að hann vildi ekki ræða sín mál við félagið fyrr en í sumar. 4.1.2006 07:45
Weiss rekinn frá Seattle NBA-lið Seattle Supersonics rak í gær þjálfara sinn Bob Weiss og er aðstoðarmaður hans Bob Hill tekinn við þjálfun liðsins þangað til eftirmaður Weiss er fundinn. Gengi Seattle hefur verið upp og ofan það sem af er vetri en illa hefur gengið að byggja á góðum árangri sem náðist svo óvænt í fyrra, þegar liðið fór lengra en nokkurn óraði fyrir í úrslitakeppninni. 4.1.2006 07:45
Eiður til London í einkaþotu Baugs Eiður Smári Guðjohnsen var krýndur íþróttamaður ársins við hátíðlega athöfn á Grand Hótel í gær. Þessi frábæri knattspyrnumaður hefur staðið í ströngu með Chelsea yfir hátíðirnar og fengið lítið frí. Hann flaug til landsins með Flugleiðavél seinni partinn í gær og stoppaði stutt því Chelsea vildi fá hann aftur á æfingu í dag. 4.1.2006 07:00
Stoudamire spilar ekki meira í ár Spútniklið Memphis Grizzlies hefur orðið fyrir gríðarlegu áfalli því leikstjórnandinn Damon Stoudamire fór í aðgerð í gær vegna hnémeiðsla og nú þykir víst að hann muni ekki leika meira með liðinu á þessu tímabili. Stoudamire var kjörinn nýliði ársins árið 1996 þegar hann lék með Toronto Raptors. Hann var með um 12 stig og 4 stoðsendingar að meðaltali í leik í vetur með Memphis. 4.1.2006 06:45
Moye fær þriggja leikja bann Bandaríkjamaðurinn A.J. Moye hjá Keflavík var í gær úrskurðaður í þriggja leikja bann í úvalsdeild karla í körfubolta fyrir að gefa landa sínum Jeb Ivey ljótt olnbogaskot í viðureign Njarðvíkur og Keflavíkur þann 30. desember sl. 4.1.2006 06:30
Jafnt á Highbury - Forskot Chelsea eykst Hinir fornu fjendur Arsenal og Manchester United gerðu markalaust jafntefli á Highbury í kvöld og því hefur Chelsea nú þrettán stiga forskot á toppi deildarinnar, svo fátt bendir til annars en að liðið verji titil sinn í vor. Bæði lið fengu færi á að gera út um leikinn í kvöld, sem var hraður og skemmtilegur, en niðurstaðan engu að síðust jafntefli. 4.1.2006 01:50
Stu Jackson er glæpamaður Danny Fortson, leikmaður Seattle Supersonics í NBA deildinni á ekki von á góðu eftir nýjustu ummæli sín í garð Stu Jackson, sem er varaforseti deildarinnar. Fortson hefur þurft að greiða sem nemur 200.000 dollurum í sektir fyrir ósæmilega hegðun og tæknivillur í vetur og segir að hann hljóti ósanngjarna meðferð hjá Jackson - sem sé ekkert annað en glæpamaður. 3.1.2006 21:00
Kominn til Manchester City að láni Manchester City hefur komist að samkomulagi við spænska félagið Espanyol um að fá vinstri kantmanninn Albert Riera að láni út leiktíðina, með hugsanleg kaup í huga. Riera þessi er 23 ára gamall og hefur áður leikið með Mallorca og Bordeux í Frakklandi. Hann hefur lítið fengið að spreyta sig með liði Espanyol í vetur og á aðeins að baki fjóra leiki í byrjunarliði liðsins. 3.1.2006 19:45
Hill íhugar að hætta eftir næsta tímabil Framherjinn Grant Hill hjá Orlando Magic hefur viðurkennt að hann íhugi að leggja skóna á hilluna eftir næsta keppnistímabil í NBA deildinni, en Hill hefur sem kunnugt er átt við þrálát meiðsli að stríða allar götur síðan hann gekk til liðs við Orlando árið 2000. 3.1.2006 18:30
Fór í aðgerð á fæti í dag Framherjinn Michael Owen gekkst undir aðgerð á fæti í dag þar sem græddur var járnteinn í ristina á honum til að flýta fyrir bata hans. Owen tábeinsbrotnaði í leiknum gegn Tottenham á laugardag og talið er að hann verði frá í að minnsta kosti tíu vikur. Owen er mjög bjartsýnn á að geta spilað aftur með Newcastle á leiktíðinni og segist viss um að verða orðinn fullkomlega góður á HM í sumar. 3.1.2006 17:45
Tveir leikmenn hættir vegna barneigna Heldur hefur fækkað í leikmannahópi kvennaliðs ÍBV í vikunni, þar sem tvær konur í hópnum eru barnshafandi og spila því ekki meira með liðinu í vetur. Þetta eru þær Eva Björk Hlöðversdóttir og Nokolett Varga. 3.1.2006 17:00
Sainz kominn aftur í forystu Fyrrum heimsmeistarinn í rallakstri, Carlos Sainz, er kominn aftur í forystu í París-Dakar rallinu eftir að hann sigraði í fjórða áfanga keppninnar í dag. Sainz hefur því unnið þrjár af fjórum leiðum sem eknar hafa verið á Volkswagen Tuareg-bifreið sinni. 3.1.2006 16:45
Campo vill snúa heim Varnarmaðurinn hárprúði Ivan Campo hjá Bolton hefur mikinn áhuga á að snúa aftur til Spánar og leika með gamla liðinu sínu Mallorca, en umboðsmaður hans sagði í samtali við spænska blaðið Marca, að Mallorca hefði áhuga á að fá hann í sínar raðir á ný. 3.1.2006 16:15
Kærður fyrir að gagnrýna dómara Varnarmaðurinn Ryan Nelsen hefur verið kærður af aganefnd enska knattspyrnusambandsins fyrir ummæli sín í garð Mark Halsey dómara í leik Blackburn og Everton þann 3. desember. 3.1.2006 15:45
Get alltaf treyst á hinn ljóshærða Maradona Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, bíður þess nú að fá leyfi frá konu sinni til að fara á leik Arsenal og Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Nokkur meiðsli eru í liði hans um þessar mundir, en þó þeir Michael Essien og Hernan Crespo séu báðir meiddir - segist stjórinn ekki hafa áhyggjur því hann geti alltaf treyst á "Hinn ljóshærða Maradona" og á þar við Eið Smára Guðjohnsen. 3.1.2006 15:30
Arsenal mætir Manchester United Í kvöld verður sannkallaður risaslagur í ensku úrvalsdeildinni þegar Arsenal tekur á móti Manchester United á Highbury. Litlir kærleikar hafa verið á milli þessara stórliða í gegn um árin, en Arsenal mun í kvöld freista þess að vinna United í deildinni í fyrsta sinn síðan 2003, en Arsenal hefur aðeins unnið tvo af tíu síðustu leikjum liðanna. 3.1.2006 15:15
Ekki á leið til Tottenham Norski vængmaðurinn Morten Gamst Pedersen hjá Blackburn hefur vísað þeim orðrómi að hann sé á leið til Tottenham í janúar algjörlega á bug og segir Tottenham engu betra lið en Blackburn. 3.1.2006 15:00
Kaupir ísraelskan sóknarmann Úrvalsdeildarlið West Ham hefur gengið frá kaupum á ísraelska landsliðsframherjanum Yanic Katan fyrir 100.000 pund frá Maccabi Haifa. Katan hittir fyrir félaga sinn í landsliðinu, Yossi Benayoun, hjá West Ham. Hann er 24 ára gamall og hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Lundúnaliðið. 3.1.2006 14:30