Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Michael Owen ristarbrotinn Framherjinn Michael Owen þurfti að fara meiddur af velli í leik liðsins gegn Tottenham í Lundúnum í dag og nú er komið í ljós að hann er ristarbrotinn og verður því frá keppni í að minnsta kosti 2-3 mánuði. Ekki nóg með það, heldur grunar sjúkraþjálfara liðsins að markvörðurinn Shay Given sé fingurbrotinn, eins og til að bæta gráu ofan á svart fyrir félagið. 31.12.2005 17:17
Öruggur sigur United á Bolton Manchester United sigraði Bolton 4-1 í ensku úrvalsdeildinni í dag. Fyrsta markið var sjálfsmark, en Louis Saha bætti við öðru marki undir lok fyrri hálfleiks. Það var svo Cristiano Ronaldo sem tryggði sigurinn í síðari hálfleiknum með tveimur mörkum. Gary Speed skoraði mark Bolton. 31.12.2005 17:04
United yfir gegn Bolton í hálfleik Manchester United hefur yfir 2-1 í hálfleik gegn Bolton, en nú standa yfir sex leikir í ensku úrvalsdeildinni. Fyrsta mark United var sjálfsmark frá N´Gotty, en eftir að Gary Speed hafði jafnað metin fyrir Bolton, kom Louis Saha United yfir á nýjan leik. 31.12.2005 15:57
Áttundi sigur New Jersey í röð New Jersey Nets vann sinn áttunda leik í röð í nótt þegar liðið sigraði Atlanta Hawks 99-91. Vince Carter skoraði 37 stig fyrir New Jersey, en Al Harrington var atkvæðamestur hjá Atlanta með 26 stig. Alls voru spilaðir níu leikir í deildinni í nótt. 31.12.2005 15:39
Tottenham sigraði Newcastle Fjórum fyrstu leikjum dagsins í ensku úrvalsdeildinni er nú lokið. Tottenham sigraði Newcastle 2-0 á heimavelli sínum með mörkum frá Tainio og Mido, Chelsea sigraði Birmingham 2-0 með mörkum frá Robben og Crespo, Charlton sigraði West Ham 2-0 með mörkum frá Bartlett og Bent, en Arsenal tapaði dýrmætum stigum í toppbaráttunni með markalausu jafntefli gegn Aston Villa á útivelli. 31.12.2005 15:04
Chelsea yfir gegn Birmingham Nú er kominn hálfleikur í fyrstu fjórum leikjum dagsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Chelsea hefur yfir 2-0 í hálfleik gegn Birmingham, þar sem Crespo og Robben hafa skorað mörk Chelsea. Finninn Tainio hefur komið Tottenham 1-0 yfir gegn Newcastle og Shaun Bartlett kom Charlton yfir gegn West Ham. Markalaust er hjá Aston Villa og Arsenal. 31.12.2005 13:47
Bryant fær tveggja leikja bann Kobe Bryant, leikmaður Los Angeles Lakers, hefur verið dæmdur í tveggja leikja bann fyrir að gefa Mike Miller hjá Memphis ljótt olnbogaskot í leik liðanna á miðvikudagskvöldið. Höggið var einsskonar hefndarhögg hjá Bryant, sem fékk skurð á augað eftir Miller og svaraði hressilega fyrir sig þegar hann sneri aftur á völlinn með fimm spor saumuð í andlitið á sér. 31.12.2005 11:30
Samvinna McBride og Heiðars kom mér á óvart Chris Coleman segir að það hafi komið sér á óvart hve vel þeir Heiðar Helguson og Brian McBride hafi náð saman í framlínu liðsins í síðustu tveimur leikjum, en bendir á að varnarmenn andstæðinganna hafi haft fangið fullt við að gæta þeirra vegna líkamlegs styrks þeirra. 31.12.2005 10:15
Vidic bíður eftir atvinnuleyfi Manchester United er við það að landa varnarmanninum Nemanja Vidic frá Spartak Moskvu, en Serbinn hefur samið um kaup og kjör og staðist læknisskoðun hjá félaginu. Kaupverðið er sjö milljónir punda og vonast forráðamenn United til að hann verði orðinn laus allra mála þann 8. næsta mánaðar þegar liðið á leik í bikarkeppninni. 31.12.2005 09:30
Bojovic hættur að þjálfa Hauka Stjórn körfuknattleiksdeildar Hauka hefur slitið samstarfi sínu við þjálfara karlaliðsins Predrag Bojovic og við starfi hans tekur Ágúst Björgvinsson, sem þjálfað hefur kvennalið félagsins með mjög góðum árangri undanfarið. Hann mun þó ekki hætta afskiptum sínum af stúlknaliðinu, en aðstoðarmaður hans Yngvi Gunnlaugsson mun væntanlega fá stærra hlutverk á þeim bænum í kjölfarið. 31.12.2005 08:15
Liverpool að landa Kromkamp Nú eiga þeir Josemi og Jan Kromkamp aðeins eftir að standast læknisskoðun svo félagaskipti þeirra milli Liverpool og Villareal geti gengið í gegn. Þeir hafa báðir komist að kaupum og kjörum og því er búist við að skiptin fari fram eftir um það bil viku. 31.12.2005 07:00
Guðjón Skúlason snýr aftur með Keflavík Það kom mörgum í opna skjöldu þegar þeir sáu leikmannahóp Keflvíkinga í leiknum við Njarðvík í kvöld að gamla kempan Guðjón Skúlason var mættur aftur á bekkinn hjá Keflvíkingum. Ekki nóg með það heldur var hann aftur kominn með sitt gamla númer, sem er númer tólf, og Arnar Freyr Jónsson var þess í stað kominn í treyju númer fimm. 30.12.2005 21:34
Njarðvík burstaði Keflavík Njarðvíkingar styrktu stöðu sína á toppi úrvalsdeildar karla í körfuknattleik í kvöld, þegar liðið burstaði granna sína Keflvíkinga 108-84 í Njarðvík í kvöld. Keflvíkingar byrjuðu betur í leiknum og höfðu ágæta forystu eftir fyrsta leikhlutann, en eftir það tóku heimamenn við sér og skutu granna sína í kaf. 30.12.2005 21:16
Þórir skoraði tíu mörk fyrir Lubbecke Fimm leikir voru á dagskrá í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Þórir Ólafsson skoraði tíu mörk fyrir lið sitt Lubbecke þegar það burstaði Delitzsch 40-25. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði níu mörk fyrir Gummersbach í sigri liðsins á Minden, Róbert Gunnarsson bætti við þremur mörkum fyriri Gummersbach, en Snorri Steinn Guðjónsson skoraði eitt mark fyrir Minden. 30.12.2005 21:05
Earnshaw fær ekki að fara Framherjinn Robert Earnshaw hefur nú í annað sinn verið neitað um að fá að fara frá félaginu og hefur Bryan Robson knattspyrnustjóri harðneitað að leyfa leikmanninum að fara á sölulista í janúar. 30.12.2005 17:15
Jólaörtröðin er Eriksson að kenna Forráðamenn ensku úrvalsdeildarinnar eru mjög óhressir með það uppistand sem hefur orðið á keppninni um jólin, þar sem fresta hefur þurft leikjum vegna kulda og snjóa, en forráðamenn liðanna í deildinni hafa einnig kvartað sáran undan of miklu leikjaálagi yfir hátíðarnar. Þetta mun allt saman vera Sven-Göran Eriksson, landsliðsþjálfara Englendinga að kenna að þeirra mati. 30.12.2005 16:00
Baldvin síðasti maður inn í landsliðið Viggó Sigurðsson landsliðsþjálfari í handbolta tilkynnti í dag að Valsarinn Baldvin Þorsteinsson hefði hreppt síðasta lausa sætið í landsliðshópnum fyrir EM í Sviss í næsta mánuði. Viggó er því búinn að velja þann 16 manna hóp sem fer á mótið, þó enn sé óvíst með þátttöku Jaliesky Garcia vegna meiðsla. 30.12.2005 15:44
Ólafur og félagar bikarmeistarar Ólafur Stefánsson og félagar í Ciudad Real tryggðu sér sigur í deildarbikarkeppninni á Spáni, þriðja árið í röð í fyrrakvöld þegar liðið sigraði Portland San Antonio í úrslitaleik 31-23. Þetta er í þriðja sinn í röð sem Ciudad vinnur þennan titil. 30.12.2005 15:15
Ronaldo meiddur Brasilíski framherjinn Ronaldo hjá Real Madrid meiddist á kálfa á æfingu í gær og talið er víst að hann missi því af bikarleiknum gegn Atletico Bilbao þann 3. janúar, en framherjinn Raul er enn frá vegna hnémeiðsla sem hann hlaut í nóvember. Varnarmaðurinn Jonathan Woodgate er þó byrjaður að æfa á ný eftir að hafa verið meiddur á læri. 30.12.2005 14:30
Tungumálaerfiðleikar helsta ástæða skiptanna Rafael Benitez, stjóri Liverpool, hefur viðurkennt að helsta ástæða þess að hann ákvað að skipta varnarmanninum Josemi til Villareal á Spáni hafi verið tungumálaerfiðleikar leikmannsins, en því var einmitt svo farið líka með manninn sem kemur í skiptum fyrir hann ef samningar nást, Hollendinginn Jan Kromkamp. 30.12.2005 14:00
Agathe orðaður við Leeds og Boro Franski varnarmaðurinn Didier Agathe hjá Glasgow Celtic mun að öllum líkindum fara frá félaginu þegar félagaskiptaglugginn opnast eftir áramótin og er hann nú orðaður við Middlesbrough í úrvalsdeildinni og Leeds í þeirri fyrstu. Agathe hefur ekki verið í náðinni hjá Gordon Strachan, stjóra Celtic og hefur lítið fengið að spila. 30.12.2005 13:30
Chelsea að landa Maniche Úrvalsdeildarlið Chelsea er sagt vera að leggja lokahönd á að fá portúgalska miðjumanninn Maniche til sín á lánssamningi frá Dynamo Moskvu, með möguleika á að kaupa hann í sumar. Maniche spilaði undir stjórn Jose Mourinho hjá Benfica og Porto á sínum tíma og er 28 ára gamall, en honum verður væntanlega ætlað að fylla skarð Michael Essien þegar hann fer í Afríkukeppnina eftir áramótin. 30.12.2005 13:08
Efast um að Woods toppi Nicklaus Golfsérfræðingurinn Peter Alliss hjá BBC segist efast um að Tiger Woods nái að slá met Jack Nicklaus yfir flesta sigra á stórmótum á ferlinum. Woods, sem er þrítugur, hefur sigrað á 10 stórmótum til þessa en Nicklaus vann 18 slík á sínum ferli, þar af 11 fyrir þrítugt. 30.12.2005 11:30
Beckham á ekki skilið að vera í landsliðinu Fyrrum landsliðsmaðurinn Chris Waddle gaf það út í viðtali við BBC í gær að fyrirliðinn David Beckham ætti ekki skilið að halda sæti sínu í enska landsliðinu á miðað við þá spilamennsku sem hann hefði sýnt að undanförnu. 30.12.2005 11:15
Kromkamp til Liverpool í skiptum fyrir Josemi Nú á aðeins eftir að ganga frá formsatriðum í skiptum Liverpool og Villareal á leikmönnunum Jan Kromkamp og Josemi sem væntanlega ganga í gegn eftir áramótin ef leikmenn klára að semja um kaup og kjör. Kromkamp þessi er hollenskur landsliðsmaður og getur spilað bæði í vörn og á miðju. Hann er 25 ára gamall. 30.12.2005 10:45
Sigurganga Detroit heldur áfram Detroit Pistons vann í nótt níunda leikinn í röð í NBA deildinni þegar það skellti Miami Heat 106-101 á heimavelli sínum, en uppgjör liðanna sem mættust í úrslitum Austurdeildarinnar í fyrra var æsispennandi fram á lokamínúturnar þar sem Pistons sýndi af hverju liðið hefur verið í úrslitum NBA tvö ár í röð. 30.12.2005 10:15
Þrír leikir í kvöld Þrír leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Grosswallstadt sigraði Kronau Ostringen 27-26 þar sem Alexander Petersson skoraði sex mörk fyrir Grosswallstadt. Nordhorn sigraði Dusseldorf 30-29 og Göppingen lagði Hamburg 34-29. 29.12.2005 22:00
Fyrsti sigur Hattar í úrvalsdeild Höttur frá Egilsstöðum vann í kvöld sinn fyrsta leik í úrvalsdeildinni í körfubolta í vetur þegar liðið skellti Haukum 85-76 í Hafnarfirði. KR-ingar lögðu Grindvíkinga í fjörugum og spennandi leik 82-81. Hamar/Selfoss tapaði fyrir ÍR 95-72, Skallagrímur sigraði Fjölni 99-81 og loks bar Snæfell sigurorð af Þór á Akureyri 74-72. 29.12.2005 21:15
Solskjær biður um tíma Norski framherjinn Ole Gunnar Solskjær biður stuðningmenn Manchester United um að gefa sér tíma til að koma til baka úr langvarandi meiðslum sínum og segir að fólk verði alfarið að stilla væntingar sínar í hóf með framhaldið á ferli sínum. Solskjær spilaði sjö mínútur með Manchester United í jafnteflinu gegn Birmingham í gær, en það var í fyrsta sinn í átján mánuði sem hann spilaði í úrvalsdeildinni. 29.12.2005 20:33
Augenthaler tekinn við Wolfsburg Fyrrum landsliðsmaðurinn Klaus Augenthaler hefur verið ráðinn þjálfari þýska úrvalsdeildarliðsins Wolfsburg, en samningurinn gildir út árið 2007. Augenthaler tekur við af Holger Fach sem var rekinn fyrir jólin, en hann stýrði áður liði Bayer Leverkusen. 29.12.2005 20:28
Verður Pandiani áfram á Englandi? Svo gæti farið að framherjinn Walter Pandiani færi ekki frá Birmingham eins og til stóð, því þó spænska liðið hafi talið sig vera búið að landa honum fyrir eina milljón punda í vikunni, hefur nú komið hik á Birmingham í málinu. Forráðamenn liðsins segja ekki koma til greina að hleypa Pandiani í burtu fyrr en eftirmaður hans finnst, því liðið hefur í dag aðeins á að skipa þremur framherjum. 29.12.2005 20:19
Mido flýgur í leikina í janúar Tottenham hefur náð samkomulagi við egypska knattspyrnusambandið um að fá að nota framherjann Mido meira en til stóð í janúar, en hann verður þá á fullu með landsliði Egypta í Afríkukeppninni. Mido mun fljúga á milli Afríku og Englands og verður því með Tottenham í mikilvægum leikjum gegn Liverpool og Manchester City. 29.12.2005 17:45
Marcus Camby fingurbrotinn Frákastahæsti leikmaðurinn í NBA-deildinni, miðherjinn Marcus Camby hjá Denver Nuggets, er fingurbrotinn og þarf að fara í aðgerð. Það er því ljóst að enn bætast menn á langan meiðslalista liðsins, sem þegar hefur misst einn mann út tímabilið og nokkra aðra í 6-10 leiki. Camby hirti um 12,9 fráköst að meðaltali í leik, auk þess að skora 16 stig og verja yfir 3 skot, svo meiðsli hans eru liðinu mikil blóðtaka. 29.12.2005 17:30
Fimm leikir í kvöld Í kvöld fara fram fimm leikir í úrvalsdeild karla í körfubolta og hefjast þeir allir klukkan 19:15. Stórleikur kvöldsins er án efa viðureign KR og Grindavíkur í Vesturbænum. 29.12.2005 16:30
Neville og Arteta heimskulegir David Moyes var ekki ánægður með að þurfa að sjá á eftir tveimur leikmanna sinna af velli með rautt spjald í leiknum við Liverpool í gærkvöldi og sagði að þeir Phil Neville og Mikel Arteta hefðu verið heimskir að láta reka sig af velli með sitt annað gula spjald. 29.12.2005 15:45
Breytir ekki leikjaniðurröðun Fjöldi athugasemda hafa borist forkálfum ensku úrvalsdeildarinnar í kjölfar þess að fresta þurfti fjölda leikja í gær vegna veðurs og slæmra vallarskilyrða. Margir vilja meina að skipulag hafi verið mjög lélegt og voru stuðningsmenn liðanna sem ferðuðust hvað lengst á leikina og fóru fýluferð sumir hverjir æfir yfir frestun leikjanna. 29.12.2005 15:04
Leikbannið stendur Enska knattspyrnusambandið hefur hafnað beiðni Newcastle um að draga rauða spjaldið sem Lee Bowyer fékk á móti Liverpool á dögunum til baka og því þarf leikmaðurinn að sætta sig við þriggja leikja bann. Hann missir því af leikjum liðs síns við Tottenham og Middlesbrough í deildinni og bikarleiknum við Mansfield. 29.12.2005 15:00
Lánaður til Malmö í Svíðþjóð Knattspyrnumaðurinn Emil Hallfreðsson hjá Tottenham Hotspurs hefur verið lánaður til sænska liðsins Malmö út tímabilið, en Emil á enn nokkuð eftir af samningi sínum við enska liðið. Emil vonast til að fá með þessu tækifæri til að spila með aðalliði Malmö, en hann hefur sem kunngt er verið að leika með varaliði Tottenham. 29.12.2005 14:45
Glasgow-liðin fara ekki í ensku úrvalsdeildina Skosku stórliðin Glasgow Celtic og Glasgow Rangers munu ekki verða partur af ensku úrvalsdeildinni í nánustu framtíð ef marka má orð forráðamenn félaganna. Þeir hafa lengið verið að íhuga að koma liðum sínum í ensku úrvalsdeildina og höfðu vonir um þetta vaknað í kjölfar þess að samið var um sjónvarpsrétt í enska boltanum á dögunum, en menn hafa ákveðið að falla frá þessum áætlunum sínum. 29.12.2005 14:14
Kærður fyrir ummæli Framherjinn Lomana LuaLua hjá Portsmouth hefur verið kærður fyrir ummæli sín í garð dómarans í leik Portsmouth og Tottenham þann 12. desember. Portsmouth tapaði leiknum og LuaLua vildi meina að vítaspyrnudómur sem féll liði sínu í mót hefði verið ósanngjarn. "Það hjálpar ekki þegar dómarinn heldur með hinu liðinu," sagði hann. Leikmaðurinn hefur frest til 17. janúar til að áfrýja. 29.12.2005 14:07
Mandaric ætlar að opna budduna Milan Mandaric, stjórnarformaður Portsmouth, ætlar að opna budduna sína rækilega í janúar og hella sér á leikmannamarkaðinn með það fyrir augum að styrkja liðið í fallbaráttunni. 29.12.2005 13:58
45 stig frá Bryant dugðu skammt Kobe Bryant skoraði 45 stig fyrir LA Lakers í nótt þegar liðið tapaði naumlega 100-99 fyrir Memphis í framlengingu á heimavelli sínum. Damon Stoudamire skoraði 25 stig og gaf 9 stoðsendingar fyrir Memphis. 29.12.2005 13:26
Reyna ökklabrotinn Miðjumaðurinn Claudio Reyna hjá Manchester City er ökklabrotinn og verður frá keppni í að minnsta kosti sex vikur í kjölfarið. Hinn 32 ára gamli bandaríski landsliðsmaður hefur spilað meiddur í tvo mánuði en nú þótti honum nóg komið og ætlar til Hollands í aðgerð á fætinum. 29.12.2005 13:19
Brynjar skoraði fyrir Reading Brynjar Björn Gunnarsson var á skotskónum fyrir lið sitt Reading í kvöld þegar það vann góðan sigur á Leicester City 2-0. Brynjar kom inná sem varamaður í leiknum, en Ívar Ingimarsson lék allan leikinn fyrir Reading og Jóhannes Karl Guðjónsson var í liði Leicester. 28.12.2005 21:57
Jafnt hjá Birmingham og United Manchester United mistókst að saxa á forskot Chelsea á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld þegar liðið þurfti að sætta sig við jafntefli gegn frísku liði Birmingham 2-2. Van Nistelrooy og Rooney skoruðu fyrir United, en þeir Clapham og Pandiani skoruðu mörk heimamanna. 28.12.2005 21:43