Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Liverpool lagði Deportivo Saprissa Liverpool vann auðveldan sigur á Deportivo Saprissa frá Costa Rica nú áðan 3-0 og er því komið í úrslitaleik mótsins þar sem það mætir Sao Paulo frá Brasilíu. Peter Crouch skoraði tvö marka Liverpool í dag og fyrirliðinn Steven Gerrard skoraði eitt. 15.12.2005 12:13
Liverpool - Deportivo Saprissa í beinni á Sýn Leikur Liverpool og Deportivo Saprissa í heimsmeistarakeppni félagsliða í fyrramálið verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn klukkan tíu í fyrramálið. Sigurvegarinn mætir liði Sao Paulo í úrslitaleik mótsins. 14.12.2005 22:22
Bolton slapp fyrir horn Bolton tryggði sér áframhaldandi þáttöku í Evrópukeppni félagsliða í kvöld þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Sevilla frá Spáni á heimavelli sínum. Bæði lið fengu færi á að gera út um leikinn, en tap hefði þýtt að Bolton hefði setið eftir með sárt ennið. Buno N´Gotty skoraði mark heimamanna, en Adriano jafnaði leikinn skömmu síðar fyrir gestina, sem höfðu þegar tryggt sér farseðilinn í 32-liða úrslitin. 14.12.2005 22:16
Keppnistreyja Dwayne Wade vinsælust Það kemur nokkuð á óvart að þegar listinn yfir söluhæstu treyjur NBA leikmanna í Bandaríkjunum er skoðaður, er það treyja merkt bakverðinum Dwayne Wade hjá Miami sem er í efsta sætinu. Listinn er byggður á sölu í NBA búðinni á Manhattan í New York, sem og á sölu á heimasíðu deildarinnar, NBA.com. 14.12.2005 22:15
Manchester United burstaði Wigan Manchester United skaust í annað sætið í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld með auðveldum sigri á Wigan 4-0. Wayne Rooney skoraði tvö mörk fyrir United í kvöld, Rio Ferdinand eitt og Ruud Van Nistelrooy bætti við því fjórða úr vítaspyrnu. Bobby Zamora tryggði West Ham góðan 2-1 útisigur á Everton eftir að jafnt var í hálfleik 1-1. 14.12.2005 22:00
Tíu mörk Einars dugðu skammt Tveir leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld. Grosswallstadt tapaði fyrir Göppingen 33-28, þar sem Einar Hólmgeirsson fór á kostum og skoraði tíu mörk fyrir Grosswallstadt, en Alexander Petersson skoraði fjögur mörk. Jaliesky Garcia var með fjögur mörk fyrir Göppingen. Kiel skaust á toppinn með því að bursta Nordhorn 42-31. 14.12.2005 21:30
Haukar höfðu sigur á ÍR Haukar lögðu ÍR í Austurbergi í leik kvöldsins í DHL-deild karla í handbolta 33-29, eftir að staðan í hálfleik hafði verið 18-14 fyrir gestina. Guðmundur Pedersen skoraði 8 mörk fyrir Hauka, öll úr vítum, en Tryggvi Haraldsson, Ísleifur Sigurðsson, Ragnar Helgason og Hafsteinn Ingason skoruðu allir 5 mörk hver fyrir ÍR. 14.12.2005 21:15
Manchester United yfir gegn Wigan Tveir leikir standa yfir í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu og staðan í hálfleik í leik Manchester United og Wigan er 2-0 fyrir United. Rio Ferdinand og Wayne Rooney skoruðu mörk United í leik sem hefur verið mjög fjörugur. Staðan í leik Everton og West Ham er 1-1, þar sem James Beattie kom Everton yfir, en David Weir jafnaði metin með sjálfsmarki. 14.12.2005 21:00
Tveir leikir í kvöld Tveir leikir fara fram í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Manchester United tekur á móti nýliðum Wigan á Old Trafford, en eftir frábæra byrjun hefur nýluðunum fatast flugið í erfiðum leikjum undanfarið. Þá tekur Everton á móti West Ham á Goodison Park. 14.12.2005 18:30
ÍR tekur á móti Haukum Einn leikur fer fram í DHL-deild karla í handknattleik í kvöld. ÍR-ingar taka á móti Íslandsmeisturum Hauka í Austurbergi og hefst leikurinn klukkan 19:15. Haukar eru sem stendur í þriðja sæti deildarinnar með 17 stig eftir 11 leiki, en ÍR er í áttunda sætinu með 11 stig úr 12 leikjum. 14.12.2005 18:00
Meiddist á læri og verður frá út árið Sænski varnarmaðurinn Olof Mellberg hjá Aston Villa varð fyrir því óláni að meiðast á læri í leiknum gegn Bolton á laugardaginn og verður frá keppni fram yfir áramót. "Þessi tíðindi eru eitthvað sem við hefðum alveg viljað sleppa við," sagði David O´Leary á heimasíðu Villa í dag, en hann er orðinn langþreyttur á meiðslum lykilmanna sinna. 14.12.2005 17:45
Keane fer til Celtic í vikunni Þær fregnir bárust nú rétt í þessu frá höfuðstöðvum BBC í Skotlandi að fréttastöðin hafi heimildir fyrir því að Roy Keane muni ganga til liðs við Glasgow Celtic í vikunni og að einn af stærri hluthöfum í félaginu hafi boðist til að greiða stóran hluta launa hans úr eigin vasa ef hann féllist á að ganga til liðs við félagið sem hann hefur borið hug til síðan hann var strákur. 14.12.2005 17:06
Schuster framlengir hjá Getafe Þýski knattspyrnustjórinn Bernd Schuster hefur framlengt samning sinn við spútniklið Getafe til ársins 2008, en þetta var tilkynnt í dag. Schuster hefur náð undraverðum árangri með liðið síðan hann tók við í júní í sumar. 14.12.2005 17:00
Jón Oddur og Kristín Rós íþróttamenn ársins Íþróttamenn ársins í karla- og kvennaflokki hjá íþróttasambandi fatlaðra voru tilkynntir í dag. Fyrir valinu urðu þau Jón Oddur Halldórsson frjálsíþróttamaður og Kristín Rós Hákonardóttir sundkona. 14.12.2005 17:00
Michelin hættir eftir næsta keppnistímabil Dekkjaframleiðandinn Michelin hefur gefið það út að hann muni hætta að framleiða hjólbarða fyrir Formúlu 1 eftir tímabilið 2006, en ákvörðun þessi kemur í kjölfar þess að alþjóða aksturssambandið, FIA, ákvað á dögunum að öll dekk í keppnum frá og með árinu 2008 skuli vera frá sama framleiðandanum. 14.12.2005 16:15
Heilsaði aftur að hætti fasista Hinn skrautlegi Paolo di Canio hjá Lazio er aftur kominn í fréttirnar á Ítalíu eftir að hann heilsaði áhorfendum að fasistasið með útréttri hendi í leik gegn Livorno um helgina, en hann var fyrir skömmu sektaður um háa fjárhæð fyrir að gera slíkt hið sama þegar hann fagnaði marki. 14.12.2005 16:00
Bjartsýnn á að Walcott skrifi undir nýjan samning Huw Jennings, þjálfari ungmennaliðs Southampton, segist viss um að ungstirnið Theo Walcott muni taka af allan vafa um framtíð sína fljótlega með því að gera sinn fyrsta atvinnumannasamning við félagið, en Walcott þessi er aðeins 16 ára gamall og hefur verið orðaður við Chelsea og Arsenal. 14.12.2005 15:30
Verður frá út árið Markvörðurinn Gianluigi Buffon hjá Juventus er meiddur og verður frá út árið eftir að hafa meiðst á tá á æfngu. Buffon mun því missa af í það minnsta tveimur leikjum en vonir standa til um að hann verði orðinn klár í slaginn þann 7. janúar þegar Juve sækir Palermo heim. Buffon hefur verið mikið meiddur á þessu tímabili, en hann er einnig ítalskur landsliðsmaður. 14.12.2005 14:55
Þrjú sæti laus í hópnum fyrir HM Sven-Göran Eriksson hefur gefið það út að enn séu þrjú sæti laus í leikmannahópi sínum fyrir heimsmeistaramótið í knattspyrnu sem fram fer í Þýskalandi næsta sumar. Eriksson hefur þegar nefnt 20 manna hóp, en hann ætlar sér að hafa 23 manna hóp á mótinu. 14.12.2005 14:45
Celtic toppar listann í dag Það nýjasta að frétta af írska miðjumanninum Roy Keane er það að uppáhalds lið hans í æsku, Glasgow Celtic, sé líklegasta liðið til að landa honum eftir að samningar sigldu í strand milli hans og Real Madrid. 14.12.2005 14:30
Vodafone fer frá Ferrari til McLaren Fjarskiptarisinn Vodafone hefur náð samningi við McLaren-liðið í Formúlu 1 um að verða aðal styrktaraðili liðsins frá og með árinu 2007. Vodafone hefur verið hjá erkifjendunum Ferrari síðan árið 2002 og hefur skaffað ítalska liðinu um 23 milljónir punda á ári, en nú er ljóst að þeir styðja við bakið á keppinautum þeirra eitthvað fram á næsta áratug. Ekki hefur enn verið gefið upp hve hár samningurinn er. 14.12.2005 14:30
Hefur brennt allar brýr og ætti að hætta strax Breski almannatengslasérfræðingurinn Max Clifford telur að Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United sé búinn að brenna allar brýr að baki sér í samskiptum sínum við fjölmiðla og telur að honum væri hollast að segja af sér á meðan hann haldi enn einhverri reisn. 14.12.2005 13:45
Dregið í undanúrslit Í dag varð ljóst hvaða lið mætast í undanúrslitum í karlaflokki í bikarkeppninni. Það verða annarsvegar Stjarnan og ÍBV og hinsvegar Haukar og Fram sem mætast í undanúrslitunum. Leikirnir fara fram um miðjan febrúar. 14.12.2005 13:15
Tap hjá Magdeburg Magdeburg tapaði í gær fyrir Flensburg á heimavelli sínum 37-32 í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta. Sigfús Sigurðsson skoraði fjögur mörk fyrir Magdeburg og Arnór Atlason tvö, en Magdeburg hefur ekki tekist að halda í við efstu liðin í deildinni undanfarið. Þá vann Lemgo auðveldan sigur á Delitzsch 34-24, en Ásgeir Örn Hallgrímsson komst ekki á blað hjá Lemgo í gær. 14.12.2005 12:45
Riley stýrði Miami til sigurs í fyrsta leik Miami Heat bar sigurorð af Chicago Bulls í nótt í fyrsta leik Pat Riley sem þjálfara, en hann tók við af Stan Van Gundy á dögunum eftir að sá síðarnefndi ákvað að hætta af fjölskylduástæðum. Riley og félagar þurftu að hafa nokkuð fyrir sigrinum, en þriggja stiga skot frá Chicago sem hefði getað jafnað leikinn á lokasekúndunni vildi ekki ofan í. 14.12.2005 12:19
Grant Hill væntanlega með Orlando í nótt Framherjinn Grant Hill leikur að öllum líkindum sinn fyrsta leik á tímabilinu með Orlando Magic í kvöld þegar liðið sækir New York heim. Hill hefur verið frá keppni síðan í haust vegna kviðslits og þurfti í aðgerð vegna þessa í endaðan október. Þetta eru góð tíðindi fyrir Orlando liðið, því flestir lykilmanna liðsins hafa misst úr leiki í vetur vegna meiðsla og gengið því verið brösótt. 13.12.2005 20:45
Kári skoraði fyrir Djurgarden Landsliðsmaðurinn Kári Árnason var á skotskónum fyrir lið sitt Djurgarden í kvöld, þegar það lagði Álaborg frá Danmörku í Skandinavíudeildinni 2-1. Kári skoraði síðara mark liðsins, sem er efst í sínum riðli í deildinni. 13.12.2005 20:24
Býðst til að koma Mourinho til varnar Paul Jewell, stjóri Wigan, ætlar ekki að erfa það við kollega sinn Jose Mourinho hjá Chelsea þó hann hafi blásið út í fjölmiðlum eftir leik liðanna á dögunum, þar sem Mourinho kallaði einn leikmanna Wigan svindlara og á yfir höfði sér stóra sekt frá knattspyrnusambandinu fyrir vikið. 13.12.2005 20:00
Þarf í aðgerð vegna ökklameiðsla Sóknarmaðurinn Kevin Phillips hjá Aston Villa þarf að fara í aðgerð á ökkla og verður frá í nokkurn tíma, því læknar félagsins telja víst að beinflís sé að skemma út frá sér í ökklanum á honum. David O´Leary, stjóri Villa, getur þó huggað sig við að Mark Delaney er óðum að braggast eftir að hafa verið frá nánast allt tímabilið og ekki veitir af, því varnarleikur Villa hefur ekki alltaf verið upp á marga fiska í vetur. 13.12.2005 19:45
Kynþáttafordómar verða ekki liðnir á næsta ári Lars-Christer Olsson, yfirmaður UEFA segir að knattspyrnufélög í Evrópu megi ekki búast við að verða tekin vettlingatökum á næsta ári og hefur gefið það út að sambandið ætli að herða enn frekar refsingu í garð liða ef stuðningsmenn þeirra gera sig seka um kynþáttafordóma, bæði í Evrópukeppnum og heimafyrir. 13.12.2005 19:07
Liverpool verður í baráttunni um titilinn Rick Parry hjá Liverpool segir að markmið Liverpool um að blanda sér í slaginn um toppsætið í úrvalsdeildinni sé raunhæft og segir Rafa Benitez vera rétta manninn til að stýra liðinu á sigurbraut. 13.12.2005 18:00
Komin í sögubækurnar Sænski kylfingurinn Annika Sörenstam varð í dag fyrsta konan til að hljóta hina virtu nafnbót kylfingur ársins hjá íþróttafréttamönnum tvisvar á ferlinum, en það hefur ekki gerst áður í 55 ára sögu verðlauna þessara. Sörenstam vann verðlaunin síðast fyrir tveimur árum, en hún hlaut þau í ár eftir harða samkeppni við Colin Montgomerie og Michael Campbell. 13.12.2005 16:04
Hugsaði um að taka eigið líf Miðjumaðurinn og meiðslakálfurinn Kieron Dyer hjá Newcastle hefur gefið það út að löng og erfið barátta hans við þrálát meiðsli hafi gert það að hann hafi verið orðinn þunglyndur og hafi verið kominn með sjálfsvígshugsanir. 13.12.2005 16:00
Lét fjölmiðlamenn heyra það Sir Alex Ferguson segir að fjölmiðlar séu á hausaveiðum þegar kemur að því að fjalla um Manchester United og segir þá gagnrýni sem lið hans hefur fengið undanfarið keyra úr hófi fram. Sá gamli stormaði út af blaðamannafundi í dag eftir að hafa aðeins svarað einni spurningu, en lið hans mætir Wigan í úrvalsdeildinni annað kvöld. 13.12.2005 15:30
Bikarmeistararnir mæta Þór Þorlákshöfn Í dag var dregið í 16-liða úrslit bikarkeppni KKÍ í karla- og kvennaflokki. Bikarmeistarar Njarðvíkur í karlaflokki sækja Þór frá Þorlákshöfn heim, en kvennalið Hauka sem sigraði í keppninni í vor, tekur á móti Tindastól. 13.12.2005 14:38
Walcott verður eftirsóttur í janúar Hinn ungi og efnilegi Theo Walcott hjá Southampton verður líklega eftirsóttur þegar opnar fyrir leikmannamarkaðinn á Englandi í janúar, en þessi 16 ára gamli framherji hefur þegar vakið athygli Chelsea og Arsenal. Talið er að verðmiðinn á drengnum verði um átta milljónir punda, en hann hefur lýst yfir áhuga sínum á að fara frá Southampton. 13.12.2005 14:30
Ekkert frí hjá Schumacher í ár Fyrrum margfaldur heimsmeistari í Formúlu 1, Þjóðverjinn Michael Schumacher, sleppti að taka sitt venjubundna vetrarfrí í ár eins og hann hefur gert undanfarið og hefur þess í stað fylgst náið með prófunum á Ferrari-bílnum og segist ekki geta beðið eftir að byrja að keyra á ný. 13.12.2005 14:00
Ciudad Real mætir Celje Lasko Í dag var dregið í 8-liða úrslit Evrópukeppnanna í handbolta. Í Meistaradeildinni mæta Ólafur Stefánsson og félagar í Ciudad Real sterku liði Celje Lasko frá Slóveníu. Guðjón Valur Sigurðsson og félagar í Gummersbach mæta Bidasoa frá Spáni í EHF keppninni og Lemgo, lið Ásgeirs Hallgrímssonar og Loga Geirssonar, mætir rússneska liðinu Dynamo Astachan. 13.12.2005 13:15
Mourinho og Ferguson gætu fengið sekt Nú eru ummæli þeirra Jose Mourinho og Alex Ferguson eftir leiki helgarinnar í rannsókn og svo gæti farið að báðir yrðu sektaðir fyrir gremju sína. Mourinho sakaði leikmann Wigan um að vera svindlara og Ferguson lét vafasöm orð falla um Rob Styles dómara eftir jafnteflið við Everton. 13.12.2005 13:00
Detroit lá í Utah Fimm leikir voru háðir í NBA deildinni í körfubolta í nótt og þar bar hæst að sjóðheitt lið Detroit Pistons tapaði óvænt fyrir Utah Jazz á útivelli. Kobe Bryant tryggði LA Lakers sömuleiðis óvæntan sigur á Dallas Mavericks með þriggja stiga körfu í lokin og Phoenix lá fyrir New Orleans á heimavelli sínum. 13.12.2005 12:45
Tottenham sigraði Portsmouth Lið Tottenham Hotspurs hefur ekki sagt sitt síðasta orð í toppbaráttunni í ensku úrvalsdeildinni í vetur og í kvöld vann liðið góðan sigur á botnliði Portsmouth 3-1 á heimavelli sínum. Sigurinn var þó langt frá því að vera auðveldur. 12.12.2005 22:00
Eiður Smári og Ásthildur knattspyrnumenn ársins Eiður Smári Guðjohnsen og Ásthildur Helgadóttir voru nú síðdegis kosin knattspyrnumenn ársins við árlega athöfn á Hótel Nordica. Í öðru sæti í karlaflokki varð Hermann Hreiðarsson, en Margrét Lára Viðarsdóttir varð önnur í kvennaflokki. 12.12.2005 19:00
Verðum að sýna meiri hörku Steve Bruce hefur gefið það út til leikmanna sinna að þeir verði að sýna meiri hörku og harðfylgni ef þeir ætli sér að sleppa við fall úr ensku úrvalsdeildinni, en gengi liðsins það sem af er vetri hefur verið langt undir væntingum. 12.12.2005 18:00
Verður í hóp Tottenham í kvöld Miðjumaðurinn ungi hjá Tottenham Hotspurs, Wayne Routledge, sem félagið keypti frá Crystal Palace í sumar verður í hóp liðsins gegn Portsmouth í kvöld eftir að hafa verið frá keppni síðan síðla sumars vegna fótbrots. 12.12.2005 17:45
Ragnick hættur hjá Schalke Ralf Rangnick hefur sagt starfi sínu lausu og er hættur að þjálfa þýska úrvalsdeildarliðið Schalke. Rangnick hafði ætlað að hætta eftir að samningur hans rynni út í sumar, en hann hefur átt erfitt samband við stjórn liðsins að undanförnu og gengi liðsins hefur ekki þótt nógu gott. 12.12.2005 17:30