Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Luke Young í byrjunarliðinu? Svo gæti farið að Luke Young, leikmaður Charlton, verði í byrjunarliði Englands í stöðu hægri bakvarðar. Gary Neville, leikmaður Manchester United, er meiddur en hann er venjulega í þeirri stöðu. Búist hafði verið við að bróðir hans Phil myndi jafnvel leysa hann af en ef marka má æfingu enska landsliðsins í gær er Young líklegri í byrjunarliðið. 2.9.2005 00:01
Stuart Downing frá í þrjá mánuði Stuart Downing, leikmaður Middlesbrough, verður frá næstu þrjá mánuðina þar sem hann fór nýlega í uppskurð á hné. Downing er 21 árs miðvallarleikmaður sem hafði gert sér vonir um að vinna sér inn sæti í enska landsliðinu fyrir næstu heimsmeistarakeppni. 2.9.2005 00:01
Breytt byrjunarlið U-21 landsliðs Eyjólfur Sveirrisson, þjálfari landsliðs Íslands skipað leikmönnum 21 árs og yngri, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir liði Króatíu á KR-velli klukkan 17. Eins og fram hefur komið eru fjórir fastamenn frá af ýmsum ástæðum, það eru Bjarni Þórður Halldórsson, Ólafur Ingi Skúlason, Viktor Bjarki Arnarsson og Hannes Þ. Sigurðsson. 2.9.2005 00:01
De la Rosa frábær á Monza Pedro de la Rosa, tilraunaökumaður McLaren-liðsins ók hraðast allar á æfingu á Monza-brautinni á Ítalíu en þar fer fram keppni í Formúlu 1 um helgina. Tími hans í dag var sekúndu betri en brautarmetið sem Rubins Barrichello setti í keppninni þar í fyrra. Mark Webber varð annar í dag - 1,4 sekúndu á eftir de la Rosa. 2.9.2005 00:01
Giggs ætlar að taka Beckham í gegn Fyrrum liðsfélagar hjá Manchester United og vinir til margra ára, David Beckham og Ryan Giggs, verða fyrirliðar sinna landsliða er England mætir Wales á þúsaldarvellinum í Cardiff á morgun. Ryan Giggs segir að fyrir tíu árum hefði hvorugum þeirra órað fyrir að sá dagur ætti eftir að koma að þeir mætast á velli sem landsliðsfyrirliðar. 2.9.2005 00:01
Blatter myndi fagna boði Englands Joseph S. Blatter, formaður alþjóðaknattspyrnusambandins, FIFA, segir að hann myndi fagna boði Englands til að halda heimsmeistarakeppnina árið 2018. "Þetta er vagga fótboltans. Ég myndi segja já og þeir ættu að leggja fram boð," sagði Blatter. London var um daginn valin til að vera vettvangur Ólympíuleikanna árið 2012 eins og kunnugt er. 2.9.2005 00:01
Eitt fótboltalið Breta á ÓL 2012 Alþjóða knattspyrnusambandið, FIFA, hefur farið fram á það að Bretar sendi eitt fótboltalið til keppni á Ólympíuleikunum árið 2012, sem fara fram í Lundúnum. Eins og kunnugt er hafa knattspyrnusamböndin fjögur innan Bretlands fengið að senda hvert sitt lið til þátttöku á stórmótum í knattspyrnu en svo verður ekki á Ólympíuleikunum. 2.9.2005 00:01
Sullivan framlengir um eitt ár Neil Sullivan, markvörður enska 1. deildarliðsins Leeds United, hefur framlengt samning sinn við félagið um eitt ár en fyrri samningur hans rennur út í vor. Sullivan kom frá Chelsea árið 2004 og hefur verið á milli stanganna hjá Leeds í 53 leikjum síðan þá. Meiðsli í læri hafa gert honum erfitt fyrir í haust og hefur hann spilað aðeins þrjá leiki. 2.9.2005 00:01
UEFA vill semja frið við Mourinho Knattspyrnusamband Evrópu hefur lofað að Jose Mourinho og Chelsea fái að hefja nýtt tímabil í Evrópukeppninni með hreinan skjöld en grunnt var á því góða milli þessara aðila í fyrra. Mourinho var dæmdur í tveggja leikja bann fyrir að gagnrýna sænska dómarann Anders Frisk og Frank Rijkaard, knattspyrnustjóra Barcelona. 2.9.2005 00:01
2-1 sigur Króatíu á Íslandi Í dag áttust við landslið Íslands og Króatíu skipuð leikmönnum 21 árs og yngri á KR-vellinum og lauk leiknum með 2-1 sigri gestanna. Króatar skoruðu tvö mörk, eitt í hvorum hálfleik en Emil Hallfreðsson minnkaði muninn með marki úr víti á 88. mínútu. Króatar sitja sem fyrr á toppi riðilsins með 18 stig en Íslendingar eru enn með sjö stig í fjórða sæti. 2.9.2005 00:01
Eiður sætti sig ekki við jafntefli Ásgeir Sigurvinsson landsliðsþjálfari og Eiður Smári Guðjohnsen landsliðsfyrirliði eru sammála um að króatíska liðið sem mætir því íslenska í dag í undankeppni HM sé það sterkasta sem hefur mætt á Laugardalsvöllinn í langan tíma. 2.9.2005 00:01
Aldrei æft eins vel saman Jón Arnór Stefánsson og félagar hans í íslenska körfuboltalandsliðinu mæta Dönum í Keflavík í dag klukkan 14.00 í mikilvægasta leik síðari ára en hann getur haft úrslitaáhrif um hvaða lið vinnur riðilinn og fær í kjölfarið möguleika á að vinna sér sæti meðal A-þjóða. 2.9.2005 00:01
Helstu félagaskipti gærdagsins Félagskiptum í enska boltanum rigndi inn í gær. Dæmi er um að félög hafi fengið einn og fleiri en tvo leikmenn á síðustu stundu. Til að mynda fengu Portsmouth til sín þrjá leikmenn, sem allt eru landsliðsmenn. 1.9.2005 00:01
Tottenham keypti framherja Tottenham Hotspur keypti í gær pólska framherjann Grzegorz Rasiak frá Derby County fyrir um tvær milljónir punda, en tilraunir liðsins til að landa stóru nafni í framlínuna skiluðu ekki árangri. 1.9.2005 00:01
Michael Finley valdi Spurs Eftirsóttasti leikmaður NBA deildarinnar með lausa samninga, Michael Finley, gaf það út í gærkvöldi að hann myndi ganga til liðs við NBA meistara San Antonio Spurs á næstu dögum, en mörg lið voru búin að gera hosur sínar grænar fyrir honum síðustu daga. 1.9.2005 00:01
England spilar nýtt kerfi Sven-Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englands er að hugleiða að spila leikkerfið 4-5-1 á laugardaginn þegar Englendingar spila við Wales í undankeppni HM og það mun þýða að David Beckham verði stillt upp djúpum á miðjunni, fyrir aftan þá Frank Lampard og Steven Gerrard. 1.9.2005 00:01
Yao Ming semur við Houston Kínverski risinn Yao Ming hefur gert langtímasamning við Houston Rockets í NBA deildinni og verður því á mála hjá félaginu til loka tímabilsins 2010-11. Ekki hefur verið gefið upp hve hár samningurinn er, en þó er talið að fyrsta ár hans muni færa Yao Ming um 12,5 milljónir í árslaun, en fari svo ört hækkandi eftir því sem líður á hann. 1.9.2005 00:01
Ronaldinho semur við Barcelona Brasilíski snillingurinn Ronaldinho hjá Barcelona hefur framlengt samning sinn við félagið til ársins 2010 og fetar þar með í fótspor þeirra Samuel Eto´o, Deco, Xavi og Victor Valdes, sem allir hafa framlengt til ársins 2010. 1.9.2005 00:01
West Brom keypti varnarmann West Brom krækti í varnarmanninn unga Curtis Davies frá Luton Town áður en félagaskiptaglugginn lokaðist á Englandi í gærkvöldi, en hann kostaði félagið um 3 milljónir punda og talinn mikið efni. 1.9.2005 00:01
Carragher ver ákvörðun Liverpool Varnarmaðurinn Jamie Carragher er ekki á því að Liverpool hafi gert mistök þegar liðið náði ekki í fyrrum sóknarmann sinn Michael Owen frá Real Madrid og bendir á að liðið sé búið að eyða alveg nógum peningum í framherja. 1.9.2005 00:01
Fólkið vildi Solano aftur Graeme Souness segir að stuðningsmenn Newcastle hafi spilað stóran þátt í því að félagið ákvað að fá Nolberto Solano aftur á St James´ Park, aðeins tæpu ári eftir að hann yfirgaf félagið og fór til Aston Villa. 1.9.2005 00:01
Guðjón stjóri mánaðarins Guðjón Þórðarson, hjá Notts County var nú í hádeginu valinn knattspyrnustjóri mánaðarins í ensku annari deildinni, en það er frábær árangur hjá Guðjóni sem er ný tekinn við liðinu. 1.9.2005 00:01
Tveir reknir fyrir drykkjuskap Lawrie Sanchez landsliðsþjálfari Norður Íra hefur rekið 2 leikmenn úr landsliðshópnum fyrir drykkjuskap. Jeff Whitley og Phil Mulryne leikmann Cardiff City duttu í það í gær þegar flugi þeirra frá Cardiff til Belfast var frestað. Þegar þeir skiluðu sér á hótel landsliðsins voru þeir búnir að missa af fyrstu æfingunni og héldu þá áfram að sitja á sumbli. 1.9.2005 00:01
Liverpool missti af Sabrosa Liverpool mistókst að ganga frá kaupum á nýjum leikmönnum áður en félagaskiptaglugginn lokaðist í gær. Portúglalski útherjinn Simao Sabrosa var á leið til Liverpool í gær fyrir 10 milljónir punda. 1.9.2005 00:01
Rochemback fer til Middlesbro Brasilíumaðurinn Fabio Rochemback var í gær seldur frá Barcelona til Middlesbro. Barcelona keypti Rochemback á 770 milljónir króna í júlí 2001 en honum gekk illa að vinna sér fast sæti í liðinu. Hann var því lánaður til Sporting. Middlesbro þarf aðeins að borga 116 milljónir króna fyrir leikmanninn. 1.9.2005 00:01
Ramos til Real Madríd Real Madríd keypti í gær spænska varnarmanninn, Sergio Ramos frá Sevilla og borgaði fyrir hann rúma 2 milljarða króna. Real Madríd notaði því fjárhæðina sem félagið fékk fyrir söluna á Michael Owen og þurfti að bæta við 165 milljónum króna að auki. 1.9.2005 00:01
Þorlákur út - Sverrir inn Þorlákur Árnason er hættur að þjálfa úrvalsdeildalið Fylkis í knattspyrnu. Þetta er sameiginlega ákvörðun Þorláks og meistaflokksráðs félagsins. Við þjálfun liðsins taka þeir Sverrir Sverrisson, fyrrum leikmaður liðsins og Jón Sveinsson sem var aðstoðarmaður Þorláks. 1.9.2005 00:01
NFL gefa til hjálparstarfs Amerísku fótboltasamtökin, NFL, gáfu í gær eina milljón bandaríkjadala eða 63 milljónir íslenskra króna til hjálpar og uppbyggingarstarfs eftir eyðileggingu af völdum fellibylsins Katrínar. 1.9.2005 00:01
Breytingar hjá 21. árs og yngri Eyjólfur Sverrisson þjálfari 21 árs landsliðsins í knattspyrnu hefur orðið að gera 2 breytingar á leikmannahópnum fyrir landsleik Íslendinga og Króata á morgun. Fylkismennirnir Bjarni Þórður Halldórsson og Viktor Bjarki Arnarsson geta ekki verið með. 1.9.2005 00:01
Stark dæmir á laugardag Wolfgang Stark, frá Þýskalandi dæmir leik Íslands og Króatíu á laugardaginn á Laugardalsvelli í undankeppni HM 2006. Stark þykir einn bestir dómari heims og dæmir um hverja helgi í þýsku úrvalsdeildinni. Aðstoðarmenn hans koma einnig frá Þýskalandi. 1.9.2005 00:01
Rútuferð á landsleikinn Íslenska landsliðið í körfuknattleik mætir Dönum á laugardag. Leikurinn fer fram í Keflavík og fyrir þá sem búa í bænum verður rútuferð á leikinn frá Íþróttahúsinu Smáranum í Kópavogi klukkan 12:30 en leikurinn hefst klukkan 14. 1.9.2005 00:01
Ronaldinho hjá Barcelona til 2010 Knattspyrnumaður ársins árið 2004, Ronaldinho hefur skrifaði undir framlengingu á samningi sínum við Barcelona til ársins 2010. Hinn 24 ára gamli Brasilíumaður fylgir þar með í fótspor þeirra Eto´o, Xavi, Deco og Victor Valdez sem allir höfðu samið við félagið til 2010. 1.9.2005 00:01
Ólöfu gengur illa í Danmörku Kylfingurinn Ólöf María Jónsdóttir lék í dag fyrsta hringinn á alþjóðlega golfmótinu sem fram fer í Kokkedal í Danmörku. Ólöf lék á 5 höggum yfir pari og er sem stendur í 71-96 sæti. Mótið er liður í evrópsku mótaröðinni. Lora Fairclough frá Englandi hefur forystu eftir fyrsta hringinn á 7 höggum undir pari. 1.9.2005 00:01
Tap gegn Egyptum Íslenska kvennalandsliðið í blaki tapaði fyrir Egyptalandi 3-0 í öðrum leik á 4 landa móti í Nígeríu í gærkvöld. Egyptar unnu fyrstu hrinuna með aðeins 3 stigum, 25-22, en hinar næstu voru ekki eins spennandi. Önnur hrinan endaði 25-9 og sú þriðja 25-14. Á morgun leika Íslendingarnir við svo við Englendinga en þær unnu Nígeríu í gær, 3-0. 1.9.2005 00:01
Gylfi til Reading Gylfi Þór Sigurðsson, 16 ára gamall leikmaður Breiðabliks í knattspyrnu gengur til liðs við Reading sem leikur í ensku Championship deildinni þann 1. október næstkomandi. Fyrir hjá Reading eru tveir Íslendingar, Ívar Ingimarsson og landsliðsmaðurinn Brynjar Björn Gunnarsson. 1.9.2005 00:01
Á eftir að sanna sig í Hraðbraut Ungmennalandsliðsmaðurinn Viktor Bjarki Arnarsson varð að draga sig úr landsliðshópi Íslands skipað leikmönnum 21 árs og yngri en fram undan eru leikir gegn Króatíu og Búlgaríu, rétt eins og hjá A-landsliðnu. 1.9.2005 00:01
Átök í Árbænum Þorlákur Árnason greindi frá því á dögunum að hann myndi hætta í lok tímabilsins með Fylki en athygli vakti að hann sagði þessa ákvörðun hafa verið tekna fyrir löngu. Eitthvað virðist hafa gerst í kjölfarið og samkvæmt heimildum Fréttablaðsins fór stjórn knattspyrnudeildarinnar fram á við meistaraflokksráðið að þeir leystu Þorlák undan samningi. 1.9.2005 00:01