Fleiri fréttir

Landsliðið í körfu vann Holland

Íslenska landsliðið í körfuknattleik vann í gær sinn annan sigur á Hollendingum á tveimur dögum , 82 - 75 , í framlengdum leik í Groningen í Hollandi, en staðan að loknum venjulegum leiktíma var jöfn 71 - 71.

Abbiati til Juventus að láni

Markvörðurinn Christian Abbiati er genginn til liðs við Juventus að láni frá A.C. Mílan. Gianluigi Buffon, aðalmarkvörður Juventus meiddiist illa í leik gegn A.C. Mílan um helgina þegar hann fór úr axlarlið eftir samstuð við Kaká leikmann Mílan og því þurfti Juventus sárlega á markverði að halda.

Ísland 41 - Kongó 15 í handbolta

Íslenska unglingalandsliðið í handknattleik skipað leikmönnum 21. árs og yngri vann Kongó 41 - 15 í fysta leik liðsins á heimsmeistaramótinu sem fram fer í Ungverjalandi. Staðan í hálfleik var  20 - 7  Íslendingum í vil.

Loutoufi og Baldvin semja við Val

Valsmenn skrifuðu í gær undir samning við franska handknattleiksmanninn Mohamad Loutoufi og þá var gengið frá samningi við Baldvin Þorsteinsson, en Baldvin hafði greint frá því að hann hygðist leika með fyrrum félögum sínum í KA í vetur og yfirgefa Hlíðarenda. Samingaviðræður Baldvins og Vals höfðu siglt í strand, en sættir náðust um síðustu helgi.

Bellion til West Ham

David Bellion, leikmaður Manchester United er genginn til liðs við West Ham í ensku úrvalsdeildinni að láni. Fyrir hjá West Ham hittir Frakkinn Roy Carroll, markvörð og fyrrum samherja sinn hjá Manchester United. Bellion er 22 ára sóknarmaður.

Evrópukeppnin í handbolta

Valsmenn mæta Ljubuski frá Bosníu eða Sjundea frá Finnlandi í 2. umferð í Evrópukeppni - félagsliða í handknattleik nái þeir að sigra Tbilisi frá Georgíu í fyrstu umferð keppninnar, en báðir leikirnir fara fram hér á landi 10 og 11 september.

Newcastle reynir að stela Kanoute

Spænska liðið Sevilla tilkynnti fyrr í dag að liðið hefði keypt framherja Tottenham, Fredi Kanoute, en umboðsmaður Kaunoute segir ekki svo vera. Nú ætlar Newcastle að reyna að kaupa Kanoute áður en hann skrifar undir hjá Sevilla.

Sir Alex aðvarar Solskjær

Alex Ferguson hefur sagt norska framherjanum Ole Gunnar Solskjær hjá Manchester United að gera sér ekki of miklar vonir um að ná að spila leik með aðalliði félagsins á ný, en sá norski hefur sem kunnugt er ekki spilað leik með United í 15 mánuði.

Landsleikurinn í beinni hér á Vísi

Landsleikur Íslands og Suður-Afríku í knattspyrnu sem fram fer í kvöld á Laugardalsvelli verður í beinni hér á boltavaktinni á Vísi. Elvar Geir Magnússon íþróttafréttamaður færir lesendum fregnir af vellinum um leið og eitthvað gerist.

Byrjunarliðið gegn Suður Afríku

Landsliðsþjálfararnir Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson hafa tilkynnt byrjunarlið Íslands gegn Suður-Afríku. Liðið er skipað (4-5-1) Árnir Gautur; Kristján Örn, Auðun, Stef´na G.,Indriði; Arnar Þór,Kári Árnason, Tryggvi G., Grétar Rafn, Eiður Smári; Heiðar Helguson. 

Valsstúlkur sigruðu ÍBV

Valur sigraði ÍBV í Landsbankadeild kvenna 3-1. Olga Færseth kom ÍBV yfir en þær Laufey Ólafsdóttir,Guðný Óðinsdóttir og Margrét Lára Viðarsdóttir svöruðu fyrir heimastúlkur. Valur er sem fyrr í öðru sæti á eftir Breiðablik.

Englendingar niðurlægðir á Parken

Danir unnu Englendinga 4-1 í vináttulandsleik í Parken í Kaupmannahöfn. Mörk Dana gerðu Dennis Rommendahl, Jon Dahl Tomsson, Sören Larsen og Mikael Gravgaard. Mark Englendinga gerði Wayne Rooney. Danir komust í 3-0 á níu mínútna kafla í seinni hálfeik.

Ísland burstaði Chile

Íslenska landsliðið í handbolta karla 21 árs og yngri burstaði Chile með 20 marka mun 43-23 á heimsmeistaramótinu í Ungverjalandi í kvöld. Í hálfleik var staðan 24-10. Árni Sigtryggsson var markahæstur okkar manna og gerði 12 mörk.Arnór Atlason og Ragnar Njálsson skoruðu 5 mörk hvor og Ernir Hrafn Arnarsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson 4 hvor.

Jafnt eftir hálftíma leik

Staðan er jöfn 1-1 í leik Íslands og Suður Afríku þegar hálftími er liðinn af leiknum. Grétar Rafn Steinsson kom Íslandi yfir á 25. mínútu en Delron Buckley jafnaði fyrir Suður Afríku rúmri mínútu síðar. Leikurinn er í beinni á <strong>BOLTAVAKT VÍSIS.</strong>

Jafntefli hjá nágrönnunum

Hollendingar og Þjóðverjar gerðu jafntefli í kvöld 2-2 í vináttulandsleik í Hollandi. Arjen Robben gerði bæði mörk Hollendinga og kom þeim í 2-0 en þeir Michael Ballack og Gerald Asemoah jöfnuðu fyrir Þjóðverja.

Ísland komið í 3-1

Ísland er að vinna Suður Afríku 3-1 á Laugardalsvelli. Þeir Arnar Þór Viðarsson, Grétar Rafn Steinsson og Heiðar Helguson hafa gert mörk Íslendinga en Delron Buckley gerði mark gestanna.

Stórsigur á Suður Afríku

Ísland sigraði Suður Afríku 4-1 í vináttulandsleik á Laugardalsvelli í kvöld. Arnar Þór Viðarsson, Grétar Rafn Steinsson, Heiðar Helguson og Veigar Páll Gunnarsson gerðu mörk Íslendinga. Mark Veigars Páls var sérlega glæsilegt, þrumuskot utan teigs í efri 90 gráðurnar, sjón er sögu ríkari. Mark Suður Afríku gerði Delron Buckley.

Við Eiður Smári grétum saman

Í nýútkominni bók sinni greinir John Terry, fyrirliði Chelsea, frá þeirri angist sem greip um sig meðal leikmanna liðsins eftir að þeir féllu úr Meistaradeildinni gegn Liverpool í undanúrslitum, annað árið í röð í vor og segir að tapið hafi fengið hvað mest á þrjá leikmenn liðsins.

Fékk rautt eftir 30 sekúndur

Argentínumenn þurftu ekki að sýna á sér sparihliðarnar þegar þeir sóttu Ungverja heim í æfingaleik í gær og höfðu sigur 2-1, þrátt fyrir að leika manni færri síðustu 25 mínútur leiksins. Það var Maxi Rodriguez sem kom Argentínumönnum yfir eftir 17 mínútna leik, en lærisveinar Lothar Matthaus náðu að jafna metin rétt fyrir lok fyrri hálfleiksins.

Danir flengdu Englendinga

Danir tóku Englendinga í kennslustund í vináttuleik á Parken í Kaupmannahöfn í gærkvöld en þetta var stærsta tap enska landsliðsins í 25 ár. Englendingar binda miklar vonir við landslið sitt á HM í Þýskalandi næsta sumar, en ef marka má frammistöðu liðsins í gærkvöld þarf Sven-Göran Eriksson að lesa hressilega yfir hausamótunum á sínum mönnum.

Eiður, Grétar og Kári bestir

Þeir Eiður Smári Guðjohnsen, Grétar Rafn Steinsson og Kári Árnason stóðu sig best í leiknum gegn Suður-Afríku að mati Fréttablaðsins en hér má finna dóm um frammistöðu allra leikmanna liðsins í 4-1 sigrinum á Laugardalsvellinum í gær.

Suður-Afríka átti aldrei möguleika

Íslenska landsliðið vann afar sannfærandi 4-1 sigur á arfaslöku s-afrísku liði í vináttuleik á Laugardalsvellinum í gærkvöld. Mikil batamerki voru á leik íslenska liðsins og lofar frammistaðan góðu.

Ég mun alltaf svara kallinu

Eiður Smári Guðjohnsen, fyrirliði íslenska landsliðsins, sagðist í samtali við Fréttablaðið eftir leikinn í gær mjög ánægður með sigurinn og að hann hefði svarað gagnrýnisröddum sem hefðu verið á stjá í allt sumar.

Yfirlýsing frá Fylki

Yfirlýsing frá meistaraflokksráði Fylkis í knattspyrnu; <em>Í ljósi þeirrar umræðu, sem verið hefur innan félagsins og í fjölmiðlum að undaförnu varðandi árangur liðsins og störf þjálfarans vill meistarflokksráð koma eftirfarandi á framfæri</em>.......

Nakata til Bolton

Japanski knattspyrnumaðurinn Hidetoshi Nakata hefur verið lánaður frá Fiorentina á Ítalíu til enska úrvalsdeildarliðsins Bolton.

Sölunni á Essien seinkar enn

Forráðamenn Lyon náðu ekki að senda samningsdrög til Chelsea í tæka tíð til að ganga frá félagsskiptum Mickael Essien og því verður það ekki fyrr en á morgun sem gengið verður frá kaupunum.

Fowler á nokkuð í land

Robbie Fowler, framherjinn knái hjá Manchester City, er enn nokkrum vikum frá því að ná bata á þeim meiðslum sem hafa hrjáð hann í allt sumar.

Ólafur og Hannes líklega ekki með

Ólíklegt er að Ólafur Bjarnason og Hannes Þ. Sigurðsson leiki með íslenska landsliðinu gegn Suður-Afríkumönnum í vináttuleik í knattspyrnu á Laugardalsvellinum á morgun. Þeir eru báðir meiddir og Ólafur líklega með rifinn liðþófa. Ásgeir Sigurvinsson landsliðsþjálfari reiknar með því að leyfa sem flestum leikmönnum að spreyta sig annað kvöld.

Sigur á Hollendingum

Íslendingar sigruðu Hollendinga með 78 stigum gegn 74 í vináttulandsleik í körfuknattleik Groningen í Hollandi í gærkvöldi. Í hálfleik var staðan 37-36 fyrir íslenska liðið. Jón Arnór Stefánsson skoraði 26 stig og Hlynur Bæringsson 22 auk þess sem hann tók 11 fráköst. Logi Gunnarsson skoraði 10 stig og Jakob Sigurðarson 7.

Halvorsen hættir með Sundsvall

Norski þjálfarinn Jan Halvor Halvorsen hjá sænska úrvalsdeildarliðinu Sundsvall hætti í gær störfum daginn eftir að lið hans var kjöldregið af Halmstad. Eyjamaðurinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði þrennu þegar Halmstad vann Sundsvall 6-0 í fyrrakvöld. Halvorsen fór til Sundsvall í fyrra frá norska liðinu Sogndal og skrifaði þá undir þriggja ára samning.

Ragna og Sara úr leik á HM

Sara Jónsdóttir og Ragna Ingólfsdóttir féllu úr leik í 1. umferð í tvíliðaleik á heimsmeistaramótinu í badminton í Anaheim í Kaliforníu sem hófst í gær. Mótherjar þeirra voru frá Hong Kong sem unnu 15-13 og 15-5.

Leika gegn Kongó á HM í dag

Keppni á heimsmeistaramóti landsliða leikmanna 21 árs og yngri í handknattleik hófst í Ungverjalandi í gær. Íslendingar sátu yfir í fyrstu umferð en mæta Kongómönnum í dag. Kongómenn steinlágu fyrir Þjóðverjum í gær með 38 marka mun, 48-10. Auk Þjóðverja og Kongómanna eru Chilemenn og Spánverjar með Íslendingum í riðli.

Berger rekinn

Jörg Berger þjálfari þýska liðsins Hansa Rostock var rekinn í gær og Frank Pagelsdorf  ráðinn í hans stað, en hann var þjálfari liðsins á árunum 1994 til 1997. Hansa Rostock, sem féll úr þýsku úrvalsdeildinni í vor, hefur tapað tveimur fyrstu leikjum sínum í 2. deild. 

Chelsea ævintýri ísmannsins lokið

Jæja þá er Eiður á leið í Bolton eða einhvers álíka liðs. Fimm ára ævintýri hans hjá stórliði Chelsea er lokið. Dapur endir á síðustu leiktíð, afleitt undirbúningstímabil, slakur fyrsti leikur þar sem honum var skipt útaf í hálfleik gegn Wigan og tilkoma Michael Essiens til liðsins þýðir einfaldlega að kappinn er á leiðinni frá Stamford Bridge

Ósáttur við Mikka Mús leiki

Graeame Souness, knattspyrnustjóri Newcastle er ekki sáttur við vináttulandsleikina sem eru spilaðir í þessari viku. "Þetta eru Mikka Mús leikir sem skipta engu máli og nú þegar ég vil vinna með mína menn á æfingavellinum eru sex eða sjö leikmenn fjarverandi. Spurðu hvaða knattspyrnustjóra sem er, allir eru ósáttir," sagði Souness.

Valsstúlkur til Svíþjóðar

Ákveðið hefur verið að riðill Vals í 16-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða kvenna í knattspyrnu verði leikinn í Svíþjóð. Auk Vals eru í riðlinum í Djurgården/Älvsjö, sem eru mótshaldarar, ZFK Masinac-Classic Nis og Alma KTZH.

Ronaldo meiddur á ökkla

Cristiano Ronaldo, leikmaður Manchester United, leikur ekki með landsliði sínu, Portúgal gegn Egyptum á miðvikudag vegna ökklameiðsla. Ronaldo missti af leik United gegn Everton vegna sömu meiðsla en verður líklega með United gegn Aston Villa næsta laugardag. Í stað Ronaldos var Luis Boa Morte,leikmaður Fulham valinn í landsliðið.

Maradona kominn með sjónvarpsþátt

Argentíska knattspyrnuhetjan Diego Maradona er byrjaður með sjónvarpsþátt sem kallast "Kvöld með númer tíu", sem er tilvísun í númerið sem Maradona var með á bakinu sem leikmaður. Gestirnir í fyrsta þættinum voru af dýrari gerðinni, en þar bar hæst langt spjall Maradona við brasilísku goðsögnina Pele.

SWP meiddur

Enska landsliðið í knattspyrnu verður að vera án Shaun Wright-Phillips í æfingaleiknum við Dani annað kvöld, en tilkynnt var að hann færi ekki með liðinu til Danmerkur vegna þess að annað hné hans væri bólgið.

Rúllað yfir Kongó

Íslendingar rúlluðu yfir Kongó 41-15 í fyrsta leik sínum á heimsmeistaramóti ungmenna (U21) í handknattleik í Ungverjalandi. Í hálfleik var staðan 20-7.  Ernir Hrafn Arnarsson var markahæstur og skoraði 8 mörk. Árni Sigtryggsson gerði 7, Ásgeir Örn Hallgrímsson 6 og Andri Stefan og Arnór Atlason 5 hvor.

Hannes Þór og Ólafur Örn meiddir

Hannes Þór Sigurðsson, leikmaður Víking og Ólafur Örn Bjarnason, leikmaður Brann úr norska boltanum eru meiddir og verða því ekki með íslenska landsliðinu í knattspyrnu gegn Suður Afríku á morgun á Laugardalsvelli. Hannes Þór er meiddur á ökkla en Ólafur Örn er meiddur á liðþófa.

Gerði tvö í litla nágrannaslagnum

Bjarni Þór Viðarsson, 17 ára gamall leikmaður Everton á Englandi gerði tvö mörk fyrir varlið liðsins gegn Liverpool í litla nágrannaslag liðana eins og þeir kalla leikinn á heimasíðu Everton. Hann gerði bæði mörkin í fyrri hálfleik og var óheppinn að gera ekki þrennu í kvöld því hann átti skot sem sleikti stöngina í lok fyrri hálfleiks.

Aftur sigur á Hollendingum

Ísland sigraði Holland annað kvöldið í röð í vináttuleik í körfubolta í Groningen í Hollandi. Leikurinn í kvöld var framlengdur og sigruðu Íslendingar 82 -75 en staðan eftir venjulegan leiktíma var 71 -71. Stigahæstur í íslenska liðinu var Sigurður Þorvaldsson með 14 stig og næstur kom Jón Arnór Stefánsson með 13 stig. 

England sigraði Danmörk í U21

Enska landsliðið skipað leikmönnum 21 árs og yngri sigraði jafnaldra sína frá Danmörku 1-0 í kvöld með marki frá Darren Ambrose leikmanni Charlton. Á morgun eigast við aðallið þjóðanna í Parken í Danmörku.

Sjá næstu 50 fréttir