Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bein útsending: Mannréttindaráð fundar um Íran að beiðni Íslands og Þýskalands Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna í Genf heldur í dag sérstakan aukafund um ástand mannréttindamála í Íran. Fundurinn er haldinn að beiðni Íslands og Þýskalands og er honum ætlað að knýja á um að Sameinuðu þjóðirnar hefji markvissa gagnaöflun varðandi framgöngu yfirvalda í Íran gegn friðsömum mótmælendum. 24.11.2022 09:34
Vilja taka skýrslu af varaforseta Trump Bandaríska dómsmálaráðuneytið vill taka vitnaskýrslu af Mike Pence, fyrrverandi varaforseta, í tengslum við sakamálarannsókn á tilraunum Donalds Trump til þess að halda í völdin eftir að hann tapaði forsetakosningunum fyrir tveimur árum. Pence er sagður opinn fyrir því að gefa skýrslu. 24.11.2022 08:33
Sakar Rússa enn og aftur um glæpi gegn mannkyni Volodómír Selenskí Úkraínuforseti sakar Rússa enn of aftur um glæpi gegn mannkyninu eftir að þeir skutu eldflaugum sínum enn og aftur á landið með það að augnamiði að eyðileggja orkuinnviði. 24.11.2022 07:29
Staðfest kórónusmit aldrei fleiri í Kína Kórónuveiran virðist vera að sækja verulega í sig veðrið í Kína þessi dægrin en í gær voru tæplega 32 þúsund tilfelli staðfest af veirunni í landinu öllu en það það mesta sem sést hefur þar frá því veiran fór fyrst að láta á sér kræla. 24.11.2022 07:21
Færeyingar endurnýja umdeildan fiskveiðisamning við Rússa Færeyingar hafa endurnýjað umdeildan fiskveiðisamning við Rússland. Almenn pólitísk samstaða er um málið og verður samningurinn endurnýjaður til eins árs. 23.11.2022 22:08
Fjögur hundruð milljónir bandaríkjadala í hernaðaraðstoð Bandaríkjamenn hyggjast styðja Úkraínu um ígildi 400 milljón bandaríkjadala í hernaðaraðstoð. Vopn, skotfæri og loftvarnarkerfi verða meðal hergagna. 23.11.2022 18:48
Rússar grunaðir um netárás á vefsíðu Evrópuþingsins Netárás var gerð á vefsíðu Evrópuþingsins fyrr í dag. Árásin var gerð mjög skömmu eftir að þingmenn samþykktu þingsályktun um að skilgreina Rússland sem hryðjuverkaríki. Rússneskur hópur hefur lýst yfir ábyrgð. 23.11.2022 17:36
Víða rafmagnslaust eftir enn eitt stýriflaugaregnið Umfangsmiklar stýriflaugaárásir Rússa á Úkraínu í dag hafa leitt til þess að rafmagnslaust er víða um landið. Minnst þrír eru látnir og níu særðir í Kænugarði og er borgin þar að auki án neysluvatns í kjölfar árásanna. 23.11.2022 15:32
Skotar mega ekki kjósa um sjálfstæði aftur án leyfis Æðsti dómstóll Bretlands bannað skosku heimstjórninni að halda aðra atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Skotlands án samþykkis breska þingsins í dag. Skoskir þjóðernissinnar vonuðust til þess að kjósa aftur um sjálfstæði á næsta ári. 23.11.2022 14:50
Leggja mikið kapp á að koma jarðsýnum frá Mars til jarðarinnar Geimvísindastofnanir Evrópu (ESA) og Bandaríkjanna (NASA) opinberuðu nýverið áætlun sem snýr að því að sækja jarðsýni til Mars og flytja til jarðarinnar. Vélmennið Perseverance, sem lenti á Mars í fyrra, er þegar byrjað að bora eftir jarðsýnum. 23.11.2022 14:25
Skilgreina Rússland sem hryðjuverkaríki: Tveggja daga gamalt barn dó í eldflaugaárás á fæðingardeild Þingmenn Evrópuþingsins samþykktu í dag þingsályktun um að skilgreina Rússland sem hryðjuverkaríki. Er það gert með vísan í ítrekaðar árásir Rússa á orkuinnviði Úkraínu, sjúkrahús, skóla og neyðarskýli. Nýfætt barn lést í árás Rússa á fæðingardeild í suðurhluta landsins í nótt. 23.11.2022 12:09
Skotar þurfa leyfi fyrir nýrri atkvæðagreiðslu Skoska heimastjórnin má ekki halda nýja þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði, án leyfis frá breska þinginu. Hæstiréttur Bretlands opinberaði þessa niðurstöðu í morgun en Nicola Sturgeon, oddviti heimastjórnarinnar, stefndi á atkvæðagreiðslu í október á næsta ári. 23.11.2022 11:02
Berjast um mikilvægan skaga við ósa Dniproár Yfirvöld í Úkraínu segjast ætla að reka rússneska hermenn frá mikilvægum skaga vestur af Kherson-borg. Úkraínskir sérsveitarmenn eru þegar sagðir berjast við rússneska hermenn á Kinburn-skaga við ósa Dniproár við Svartahaf. 23.11.2022 10:28
Segja byssumanninn í Koloradó kynsegin Lögmenn byssumanns sem skaut fimm manns til bana á næturklúbbi samkynhneigðra í Koloradó í Bandaríkjunum fullyrða að hann sé kynsegin. Hán gæti átt yfir höfði sér ákæru fyrir hatursglæp og á að koma fyrir dómara í fyrsta skipti í dag. 23.11.2022 08:41
Mótmælir formlega niðurstöðum kosninganna Jair Bolsonaro, fráfarandi forseti Brasilíu hefur sent formlega kvörtun til kosningayfirvalda þar í landi þar sem hann mótmælir niðurstöðum forsetakosninganna í október. Þar beið hann naumlega lægri hlut gegn Luiz Inacio „Lula“ da Silva. 23.11.2022 07:43
Fimmtán særðir eftir sprengjuárás í Jerúsalem Að minnsta kosti fimmtán eru særðir eftir að tvær sprengjuárásir voru gerðar í Jerúsalem í Ísrael í morgun. 23.11.2022 07:23
Hæstiréttur leggur blessun sína yfir afhendingu skattskýrslna Trump Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur heimilað þingnefnd að fá afhent afrit af skattskýrslum Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Demókratar hafa barist fyrir því í þrjú ár að komast yfir gögnin. 23.11.2022 06:56
Um tíu látnir eftir skothríð verslunarstjóra Walmart í Virginíu Allt að tíu eru látnir eftir að maður hóf skothríð inni í Walmart-verslun í Virginíu í Bandaríkjunum í nótt. Erlendir fjölmiðlar segja að talið sé að árásarmaðurinn sé verslunarstjóri verslunarinnar. 23.11.2022 06:49
Eignaðist tvíbura með þrítugum fósturvísum Hjón í Tennessee-ríki í Bandaríkjunum eignaðust undir lok síðasta mánaðar tvíbura. Þau notuðust við fósturvísa sem höfðu verið frystir í apríl árið 1992. Um er að ræða heimsmet. 22.11.2022 19:00
Fordæmalaus sýn á andrúmsloft fjarreikistjörnu Geimvísindastofnun Bandaríkjanna (NASA) hefur birt nýjar mynd sem tekin var með James Webb geimsjónaukanum. Um er að ræða litrófsgreiningu af andrúmslofti fjarlægs gasrisa en greiningin hefur varpað ljósi á hvaða efni finna má í andrúmslofti reikistjörnunnar og er það í fyrsta sinn sem geimvísindamenn öðlast svo nákvæm gögn af þessu tagi. 22.11.2022 17:04
Njósnararnir í Stokkhólmi eru rússnesk hjón á sjötugsaldri Lögregluþjónar og hermenn handtóku í morgun rússnesk hjón í úthverfi Stokkhólms í Svíþjóð. Klukkan sex að staðartíma í morgun var tveimur herþyrlum flogið að heimili hjónanna og út streymdu menn sem handtóku þau en hjónin eru grunuð um njósnir í Svíþjóð og öðru ríki í um tíu ár. 22.11.2022 15:29
Ein forystukvenna mæðranna á Maítorgi látin Baráttukona sem átti þátt í að stofna samtökin Mæðurnar á Maítorgi sem kröfðust þess að fá að vita um afdrif fólks sem herforingjastjórn Argentínu lét hverfa er látin, 93 ára að aldri. Tveir synir hennar voru á meðal fórnarlamba stjórnarinnar. 22.11.2022 11:59
Vopnaframleiðendur beðnir um að bretta upp ermarnar Ráðamenn á Vesturlöndum hafa áhyggjur af því hve mikið vestrænir herir hafa þurft að ganga á skotfærabirgðir sínar vegna vopnasendinga til Úkraínu. Vopnaframleiðendur hafa verið beðnir um að bretta upp ermarnar og auka framleiðslu á vopnum og skotfærum og sérstaklega með tilliti til þess að stríðinu í Úkraínu mun líklega ekki ljúka á næstunni. 22.11.2022 11:27
Fjölmörg skólabörn í hópi látinna í Indónesíu Fjölmörg skólabörn eru í hópi látinna eftir að mikill jarðskjálfti varð á indónesísku eyjunni Jövu í gær. Börnin voru stödd í skólum sem hrundu til grunna þegar skjálftinn reið yfir. 22.11.2022 11:04
Snjókoma raskar daglegu lífi Svía og Dana Óvenjumikil snjókoma hefur raskað lífi Dana og Svía síðustu daga. Nokkuð hefur nú dregið úr ofankomunni, en snjóveðrið hefur verið að færa sig í norðurátt. 22.11.2022 10:24
Tveir handteknir fyrir njósnir í Svíþjóð Svíar hafa handtekið tvo grunaða njósnara. Hinir meintu njósnarar voru handteknir í Stokkhólmi en annar þeirra er grunaður um njósnir gegn bæði Svíþjóð og öðru landi. Hinn er grunaður um að aðstoða þann fyrri við hinar meintu njósnir. 22.11.2022 09:58
Tæklaði árásarmanninn en tapaði tengdasyninum Miðaldra fyrrverandi hermanni hefur verið hampað sem hetju eftir að hann afvopnaði og yfirbugaði árásarmann sem hóf skotárás á hinsegin skemmtistað í Colorado í Bandaríkjunum um helgina. Hann segist hafa farið ósjálfrátt í stríðsham þegar kúlunum byrjaði að rigna. Tengdasonur hermannsins er á meðal þeirra sem lést í árásinni. 22.11.2022 08:29
Milljónir í hættu á að deyja sökum kulda Milljónir Úkraínumanna eru í hættu á að deyja í vetur sökum kulda, segir Alþjóðaheilbrigðisstofnunin. Helmingur orkuinnviða landsins er skemmdur eða ónýtur og um 10 milljón manns án rafmagns. 22.11.2022 08:19
43 ár á valdastóli og með 99 prósent atkvæða Flokkur Teodoro Obiang, forseta Miðbaugs-Gíneu, hefur tryggt sér 99 prósent atkvæða í kosningunum þar í landi. Það stefnir allt í að þaulsetnasti forseti heims sitji áfram á valdastóli. 22.11.2022 00:00
Fjöldi látinna orðinn 162 Fjöldi látinna eftir jarðskjálftann í Indónesíu er nú orðinn 162. Rúmlega tvö hundruð manns eru slasaðir en þrettán þúsund manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín. Enn er tugi manna saknað. 21.11.2022 17:41
Surovikin undir þrýstingi eftir undanhald frá Kherson Sergei Surovikin, sem stýrir innrás Rússa í Úkraínu, er undir þrýstingi um að ná árangri eftir að hafa hvatt til þess að rússneski herinn hörfaði frá vesturbakka Dniproár og Kherson-borg. Herforinginn þarf að geta sýnt fram á að ákvörðunin hafi verið rétt og geti skilað Rússum árangri annarsstaðar í Úkraínu. 21.11.2022 17:05
Uppgjöf varð að blóðbaði Ráðamenn í Rússlandi hafa á undanförnum dögum sakað úkraínska hermenn um stríðsglæp í austurhluta Úkraínu þar sem minnst ellefu rússneskir hermenn voru skotnir til bana. Hermennirnir voru umkringdir og að gefast upp þegar þeir voru skotnir af stuttu færi, eftir að einn þeirra skaut á úkraínsku hermennina. 21.11.2022 13:46
Stjarna að fæðast í stundaglasi Frumstjarna í hjarta stundaglasslaga gasskýs sem James Webb-geimsjónaukinn náði nýlega mynd af er sögð veita innsýn í hvernig sólin og sólkerfið okkar leit út í frumbernsku sinni. Hún er talin á fyrsta stigi í myndunarferli sínu. 21.11.2022 13:00
Kínverjar minnka losun en toppnum enn ekki náð Losun gróðurhúsalofttegunda í Kína hefur dregist saman frá því í fyrra en ekki er útlit fyrir að hún hafi enn náð hámarki sínu. Niðurstaða nýrrar rannsóknar er að núverandi stefna kommúnistastjórnarinnar samræmist ekki að fullu loftslagsmarkmiðum hennar. 21.11.2022 12:13
Bein útsending: Flogið upp að tunglinu Orion-geimfarið sem sent var til tunglsins í fyrsta geimskoti Artemis-áætlunarinnar stefnir nú hraðbyr að tunglinu. Þyngdarkraftur tunglsins verður notaður í dag til að koma því á háa sporbraut en myndefni frá geimfarinu er streymt til jarðarinnar. 21.11.2022 10:52
Mannskæður skjálfti í Indónesíu Minnst 46 eru sagðir hafa dáið og minnst sjö hundruð eru slasaðir eftir að sterkur skjálfti skók eyjuna Jövu í Indónesíu í morgun. Tugir bygginga munu hafa skemmst í skjálftanum og íbúar Jakarta, höfuðborgar Indónesíu flúðu út á götu í massavís. 21.11.2022 09:54
Mismunun að fá ekki að kjósa fyrr en átján ára Hæstiréttur Nýja-Sjálands hefur úrskurðað að það feli í sér mismunun að fá fyrst að kjósa þegar maður er orðinn átján ára. 21.11.2022 07:38
Íranskar kvikmyndastjörnur fangelsaðar Tvær Íranskar kvikmyndaleikkonur hafa verið handteknar í heimalandi sínu sakaðar um undirróðurstarfsemi gegn íranska ríkinu og fyrir að styðja við mótmælaölduna sem riðið hefur yfir landið síðustu mánuði. 21.11.2022 07:30
Selenskí segir Rússa hafa gert 400 árásir í austurhluta landsins í gær Vólódímir Selenskí Úkraínuforseti sagði í daglegu ávarpi sínu í gærkvöldi að Rússar hefðu gert 400 loftárásir á skotmörk í austurhluta landsins frá því um morguninn. Harðast væri barist í Donetsk en Úkraínumenn væru að sækja fram í Luhansk. 21.11.2022 07:30
Veikari texti en fyrir ári séu vonbrigði Ráðherra sem fór fyrir Íslands hönd á COP27-loftslagsráðstefnuna fagnar því að sögulegur samningur um loftslagshamfarasjóð hafi náðst á ráðstefnunni, einkum í ljósi þess að á tímabili hafi verið tvísýnt hvort samningur næðist yfir höfuð. Það séu þó vonbrigði að ekki hafi tekist að herða á orðalagi í samkomulagi ríkja heims um að draga úr losun. 20.11.2022 22:18
Tyrkir hefna fyrir hryðjuverkaárás með loftárásum Tyrkir hafa hafið banvænar loftárásir yfir borgir í sjálfstjórnarhéröðum Kúrda í norðurhluta Sýrlands og Írak. Tyrkir segja árásunum beint er að hersveitum Kúrda sem þeir segja að beri ábyrgð á hryðjuverkaárás sem gerð varí Istanbúl, stærstu borgar Tyrklands, í síðustu viku. 20.11.2022 20:25
Börn látin eftir íkveikju í Nottingham Morðrannsókn er hafin eftir að tvö börn létust bruna í Nottingham í Bretlandi, sem talinn er hafa verið kveiktur af ásetningi. 20.11.2022 18:28
Tvær hetjur yfirbuguðu árásarmanninn Sá sem er grunaður um að hafa orðið fimm að bana á hinsegin skemmtistað í Colorado í Bandaríkjunum aðfaranótt sunnudags er 22 ára karlmaður. Skemmtistaðurinn þakkar hetjum sem voru inni á staðnum og yfirbuguðu árásarmanninn. 20.11.2022 17:47
Verður nautaat bannað í Frakklandi? Franska þingið greiðir atkvæði í næstu viku um hvort banna skuli nautaat í Frakklandi, en það er stundað í suðurhéruðum landsins. Svo virðist sem einungis þingmenn umhverfis- og dýraverndunarsinna styðji bannið þrátt fyrir að nær 80% þjóðarinnar séu fylgjandi því að nautaat verði bannað. 20.11.2022 16:00
Benda hvor á annan eftir sprengingar við kjarnorkuverið Rússar og Úkraínumenn benda hvorir á aðra eftir að sprengingar urðu við kjarnorkuverið Zaporizhzhia í Úkraínu og svæði í kringum það í dag og í gær. Úkraínumenn segja Rússa hafa ætlað sér að koma í veg fyrir raforkuframleiðslu. Rússar segja að kjarnorkuverið hafi orðið fyrir árásum af völdum úkraínska hersins. 20.11.2022 14:46