Fleiri fréttir Skotland krefur Shell upplýsinga Skoska ríkisstjórnin hefur krafist frekari upplýsinga um versta olíuleka síðasta áratugar í norðurhöfum. Eins og fréttastofa hefur áður greint fóru pípur í sundur á einum olíuborpalla Shell útaf ströndum Skotlands í síðustu viku. Fyrirtækið hefur enn ekki komist fyrir lekann, en hann er nú töluvert minni en hann var í upphafi. Þegar hafa 13.0000 tunnur af olíu, sem nemur um 200 þúsund lítrum, farið í sjóinn. Talið er að um 4000 tunnur séu enn eftir í pípunum, eða 62 þúsund lítrar. 18.8.2011 14:36 Ríki ESB taka undir Forsætisráðherrar Bretlands, Frakklands og Þýskalands taka undir kröfu Barack Obama, forseta Bandaríkjanna, um að Bashar al-Assad segi af sér. 18.8.2011 14:17 Obama krefst afsagnar Assad Bandaríkjaforseti kallar í dag opinberlega eftir því að Sýrlandsforseti, Bashar al-Assad, leggi niður völd. Þá hefur Obama einnig hótað auknum refsiaðgerðum sem ku vera mun harkalegri en hinar fyrri, verði Assad ekki við ósk Bandaríkjanna. 18.8.2011 13:48 Hundur drap unga stúlku Fjögurra ára stelpa lést í dag í Ástralíu þegar pitbull hundur réðst á hana, þar sem hún sat og horfði á sjónvarp. Móðir stúlkunnar var viðstödd árásina en gat ekkert gert þegar hundur nágrannans ruddist inn í stofuna og réðist á barnið. 18.8.2011 13:31 Leyft að fasta í 15 daga Mótmælandinn Anna Hazare hefur loks fengið leyfi til að fasta opinberlega í miðri Delhi í Indlandi. Þegar fréttir bárust af leyfinu ærðust stuðningsmenn hans af fögnuði, sungu og öskruðu. 18.8.2011 12:25 Sex létust hið minnsta í Ísrael Að minnsta kosti sex liggja í valnum eftir hryðjuverkaárásirnar í Ísrael í morgun. Um þaulskipulagðar árásir virðist hafa verið að ræða en fyrst létu byssumenn til skarar skríða gegn langferðarbíl í suðurhluta landsins. Skömmu síðar var önnur árás gerð á bifreið á sama svæði. 18.8.2011 12:22 Verðlaunablaðamaður handtekinn vegna símahlerana Blaðamaðurinn James Desborough var í morgun handtekinn í tengslum við símahleranirnar á fjölmiðlinum News of the World. Handtakan er merkileg fyrir þær sakir að Desborough starfaði hjá útgáfu blaðsins í Los Angeles í Bandaríkjunum frá því í apríl 2009. Það vekur upp spurningar hvort Desborough notaði símahleranir í Bandaríkjunum, og þá hvort hann var sá fyrsti og eini. 18.8.2011 11:49 Vilja borga stjörnunum fyrir að ganga ekki í A&F Bandaríska fatamerkið Abercrombie and Fitch hefur boðist til þess að greiða umtalsverðar upphæðir til leikara og framleiðanda þáttanna vinsælu Jersey Shore á MTV sjónvarpsstöðinni, fyrir að ganga ekki í fötum frá fyrirtækinu. Yfirleitt er þessu öfugt farið og greiða fyrirtæki oft fúlgur fjár til þess að vörumerki þeirra sjáist í vinsælum þáttum. 18.8.2011 11:13 Kraftmesti gervihnöttur Rússlands tapast Rússneska geimferðastofnunin missti samband við gervihnött stuttu eftir flugtak. Nú standa yfir tilraunir til að ná aftur sambandi við hnöttinn, sem hefur verið lýst sem „kraftmesta fjarskiptahnetti Rússlands". 18.8.2011 10:41 Rúta varð fyrir skotárás Ísraelskur langferðabíll varð fyrir skothríð við landamærin milli Egyptalands og Ísrael nú fyrr í dag. „Þetta var hryðjuverkaárás," sagði á ísraelskri útvarpsstöð. Skothríðin virtist koma frá Egypsku hlið landamæranna, en minnst fjórir menn urðu fyrir meiðslum. Fréttir herma að ísraelskar öryggissveitir hafi elt árásarmennina uppi og þeir eigi nú í vopnuðum átökum. 18.8.2011 10:25 Cameron mun ná fram félagslegum endurbótum Breski þingmaðurinn, Iain Duncan Smith, telur óeirðirnar í síðustu viku marka vendipunkt í stjórnartíð David Cameron, forsætisráðherra Bretlands. Hann segir Cameron muni nota eftirmála óeirðanna til að ná fram félagslegum endurbótum 18.8.2011 10:09 Hætt að eyða kókaínplöntum í Perú Stjórnvöld í Perú hafa ákveðið að hætta eyðingu kókaínplanta í Huallaga dalnum þaðan sem mest af kókaíni kemur frá Perú. 18.8.2011 07:53 Má ekki mæta í kjólfötunum Anders Behring Breivik fær ekki að mæta í kjólfötum fyrir rétt á morgun eins og hann hafði óskað eftir. Síðast þegar hann kom fyrir dómara óskaði hann eftir því að mæta í einkennisbúningi en því var einnig hafnað. 18.8.2011 07:45 Assad segist hafa hætt hernaðaraðgerðum í Sýrlandi Assad Sýrlandsforseti heldur því fram að hernaðaraðgerðum gegn andófsmönnum í landinu hafi verið hætt. 18.8.2011 07:43 Unglingur ætlaði að sprengja skóla sinn í loft upp Lögreglan í borginni Tampa í Flórída hefur handtekið 17 ára gamlann ungling sem ætlaði sér að sprengja skóla sinn í loft upp. 18.8.2011 07:41 Lögregluaðgerð í Kristjaníu endaði í ofbeldi og eldsvoða Aðgerð Kaupmannahafnarlögreglunnar gegn hasssölum í Kristjaníu endaði í töluverðu ofbeldi og eldsvoða í gærkvöldi. 18.8.2011 07:15 Segir mótmæli ógna lýðræðinu 18.8.2011 06:
Sjá næstu 50 fréttir
Skotland krefur Shell upplýsinga Skoska ríkisstjórnin hefur krafist frekari upplýsinga um versta olíuleka síðasta áratugar í norðurhöfum. Eins og fréttastofa hefur áður greint fóru pípur í sundur á einum olíuborpalla Shell útaf ströndum Skotlands í síðustu viku. Fyrirtækið hefur enn ekki komist fyrir lekann, en hann er nú töluvert minni en hann var í upphafi. Þegar hafa 13.0000 tunnur af olíu, sem nemur um 200 þúsund lítrum, farið í sjóinn. Talið er að um 4000 tunnur séu enn eftir í pípunum, eða 62 þúsund lítrar. 18.8.2011 14:36
Ríki ESB taka undir Forsætisráðherrar Bretlands, Frakklands og Þýskalands taka undir kröfu Barack Obama, forseta Bandaríkjanna, um að Bashar al-Assad segi af sér. 18.8.2011 14:17
Obama krefst afsagnar Assad Bandaríkjaforseti kallar í dag opinberlega eftir því að Sýrlandsforseti, Bashar al-Assad, leggi niður völd. Þá hefur Obama einnig hótað auknum refsiaðgerðum sem ku vera mun harkalegri en hinar fyrri, verði Assad ekki við ósk Bandaríkjanna. 18.8.2011 13:48
Hundur drap unga stúlku Fjögurra ára stelpa lést í dag í Ástralíu þegar pitbull hundur réðst á hana, þar sem hún sat og horfði á sjónvarp. Móðir stúlkunnar var viðstödd árásina en gat ekkert gert þegar hundur nágrannans ruddist inn í stofuna og réðist á barnið. 18.8.2011 13:31
Leyft að fasta í 15 daga Mótmælandinn Anna Hazare hefur loks fengið leyfi til að fasta opinberlega í miðri Delhi í Indlandi. Þegar fréttir bárust af leyfinu ærðust stuðningsmenn hans af fögnuði, sungu og öskruðu. 18.8.2011 12:25
Sex létust hið minnsta í Ísrael Að minnsta kosti sex liggja í valnum eftir hryðjuverkaárásirnar í Ísrael í morgun. Um þaulskipulagðar árásir virðist hafa verið að ræða en fyrst létu byssumenn til skarar skríða gegn langferðarbíl í suðurhluta landsins. Skömmu síðar var önnur árás gerð á bifreið á sama svæði. 18.8.2011 12:22
Verðlaunablaðamaður handtekinn vegna símahlerana Blaðamaðurinn James Desborough var í morgun handtekinn í tengslum við símahleranirnar á fjölmiðlinum News of the World. Handtakan er merkileg fyrir þær sakir að Desborough starfaði hjá útgáfu blaðsins í Los Angeles í Bandaríkjunum frá því í apríl 2009. Það vekur upp spurningar hvort Desborough notaði símahleranir í Bandaríkjunum, og þá hvort hann var sá fyrsti og eini. 18.8.2011 11:49
Vilja borga stjörnunum fyrir að ganga ekki í A&F Bandaríska fatamerkið Abercrombie and Fitch hefur boðist til þess að greiða umtalsverðar upphæðir til leikara og framleiðanda þáttanna vinsælu Jersey Shore á MTV sjónvarpsstöðinni, fyrir að ganga ekki í fötum frá fyrirtækinu. Yfirleitt er þessu öfugt farið og greiða fyrirtæki oft fúlgur fjár til þess að vörumerki þeirra sjáist í vinsælum þáttum. 18.8.2011 11:13
Kraftmesti gervihnöttur Rússlands tapast Rússneska geimferðastofnunin missti samband við gervihnött stuttu eftir flugtak. Nú standa yfir tilraunir til að ná aftur sambandi við hnöttinn, sem hefur verið lýst sem „kraftmesta fjarskiptahnetti Rússlands". 18.8.2011 10:41
Rúta varð fyrir skotárás Ísraelskur langferðabíll varð fyrir skothríð við landamærin milli Egyptalands og Ísrael nú fyrr í dag. „Þetta var hryðjuverkaárás," sagði á ísraelskri útvarpsstöð. Skothríðin virtist koma frá Egypsku hlið landamæranna, en minnst fjórir menn urðu fyrir meiðslum. Fréttir herma að ísraelskar öryggissveitir hafi elt árásarmennina uppi og þeir eigi nú í vopnuðum átökum. 18.8.2011 10:25
Cameron mun ná fram félagslegum endurbótum Breski þingmaðurinn, Iain Duncan Smith, telur óeirðirnar í síðustu viku marka vendipunkt í stjórnartíð David Cameron, forsætisráðherra Bretlands. Hann segir Cameron muni nota eftirmála óeirðanna til að ná fram félagslegum endurbótum 18.8.2011 10:09
Hætt að eyða kókaínplöntum í Perú Stjórnvöld í Perú hafa ákveðið að hætta eyðingu kókaínplanta í Huallaga dalnum þaðan sem mest af kókaíni kemur frá Perú. 18.8.2011 07:53
Má ekki mæta í kjólfötunum Anders Behring Breivik fær ekki að mæta í kjólfötum fyrir rétt á morgun eins og hann hafði óskað eftir. Síðast þegar hann kom fyrir dómara óskaði hann eftir því að mæta í einkennisbúningi en því var einnig hafnað. 18.8.2011 07:45
Assad segist hafa hætt hernaðaraðgerðum í Sýrlandi Assad Sýrlandsforseti heldur því fram að hernaðaraðgerðum gegn andófsmönnum í landinu hafi verið hætt. 18.8.2011 07:43
Unglingur ætlaði að sprengja skóla sinn í loft upp Lögreglan í borginni Tampa í Flórída hefur handtekið 17 ára gamlann ungling sem ætlaði sér að sprengja skóla sinn í loft upp. 18.8.2011 07:41
Lögregluaðgerð í Kristjaníu endaði í ofbeldi og eldsvoða Aðgerð Kaupmannahafnarlögreglunnar gegn hasssölum í Kristjaníu endaði í töluverðu ofbeldi og eldsvoða í gærkvöldi. 18.8.2011 07:15
Uppreisnarsveitir þrengja að Gaddafí Hörð átök brutust út í gær milli uppreisnarmanna og liðsveita Múammars Gaddafí í borginni Savíja, þar sem þeir börðust um yfirráð einu starfhæfu olíuhreinsistöðvar landsins. 18.8.2011 05:45
Evruhagstjórn hafi forseta Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti og Angela Merkel Þýskalandskanslari telja nauðsynlegt að ný efnahagsstjórn evruríkjanna, sem þau vilja koma á laggirnar, hafi sérstakt forsetaembætti. 18.8.2011 04:30
Viktoría á von á barni Viktoría krónprinsessa Svía er með barni. Þetta staðfesti sænska hirðin í dag en fæðingardagur er áætlaður í mars á næsta ári. Öll konungsfjölskyldan er sögð himinlifandi með tíðindin en þetta verður fyrsta barnabarn Karls Svíakonungs en hann á tvö önnur börn auk Viktoríu. Karl Reinfeldt forsætisráðherra Svíþjóðar sendi einnig frá sér tilkynningu í dag þar sem fréttunum er fagnað. 17.8.2011 14:23
Reglur ESB of strangar Svíþjóð munu banna úlfaveiðar í ár vegna reglna Evrópusambandsins. Framkvæmdastjórn sambandsins, segir veiðarnar brjóta í bága við tilskipanir þess. 17.8.2011 15:49
Sveltir sig í Indlandi Tugþúsunda mótmæli í Indlandi sýna engin merki þess þau muni lognast útaf. Mótmælin hófust í gær þegar þekktur aðgerðarsinni þar í landi, Anna Hazare, var hnepptur í fangelsi fyrir mótmæli. 17.8.2011 15:21
Frumlegt húsnæði til sölu Fimm herbergja hús með forláta grafhvelfingu og beinagrind í kjallaranum er til sölu í Svíþjóð. Húsið var reist kringum 1750 á grunni rússneskrar kirkju. 17.8.2011 14:45
Málari í fangelsi fyrir skattsvik Norski listmálarinn Odd Nerdrum var í dag dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir gróf skattsvik. Hann er sakfelldur fyrir að selja málverk að andvirði nær 300 milljóna íslenskra króna án þess að gefa það upp til skatts á tímabilinu 1998-2002. Hann var og dæmdur til að greiða 10.000 norskar krónur, sem samsvarar um 210.000 isk, í sekt. 17.8.2011 13:39
Depardieu pissaði á gólf flugvélar í París Franski stórleikarinn Gerard Depardieu ákvað að láta allt vaða þegar honum var meinað að fara á klósettið í flugvél rétt fyrir flugtak í París í gærkvöldi. Sjónarvottar segja að leikarinn hafi verið nokkuð ölvaður, og þegar hann fékk þau skilaboð frá flugfreyjunni að ekki væri hægt að nota klósettið fyrr en nokkrum mínútum eftir flugtak ákvað hann að míga einfaldlega á gólfið þar sem hann stóð. 17.8.2011 12:44
Dómar fyrir facebook-færslur Tveir ungir menn í Norður-Englandi voru í gær dæmdir í fjögurra ára fangelsi fyrir að hvetja til óeirða gegnum facebook. Dómana fengu þeir fyrir að búa til event inná síðunni með tíma- og staðsetningu fyrir þá sem vildu taka þátt í óeirðum. 17.8.2011 11:09
Vilja flýta réttarhöldum yfir Mladic Saksóknarar við stríðsglæpadómstólinn í Haag vilja flýta réttarhöldunum yfir Serbneska hershöfðingjanum Ratko Mladic. Ástæðan ku vera sú að þeir óttast um heilsu Mladic og að hann hrökkvi uppaf meðan á réttarhöldunum stendur. 17.8.2011 10:01
Breivik í kjólföt Nú á föstudaginn kemur Héraðsdómur í Osló saman til að fjalla um þá kröfu lögreglunnar að fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik verði áfram í einangrun. Breivik hefur óskað eftir því að fá að klæðast kjólfötum við réttarhöldin. 17.8.2011 09:39
Vilja samhæfða stefnu Samhæfðari stefna í efnahagsmálum er að mati Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, nauðsynleg til að verja evruna. Hún lét þessi orð falla í gær eftir fund með Nicolas Sarkozy Frakklandsforseta, en meðal þess sem þau leggja til er sameiginleg hagstjórn á evrusvæðinu. 17.8.2011 08:45
Sjálfstætt Wales væri 39 prósentum ríkara Ef Wales hefði sagt skilið við Bretland og fengið sjálfstæði þegar Berlínarmúrinn féll, árið 1989, væri það um 39 prósentum ríkara land en það er. 17.8.2011 08:15
Danir orðnir að þjóð af pilluætum Nærri hálf milljón Dana tekur nú lyf gegn þunglyndi og hefur fjöldi þeirra tvöfaldast frá árinu 1999. 17.8.2011 08:00
Burt Reynolds að missa hús sitt Gamla Hollywood hetjan Burt Reynolds má muna fífil sinn fegri en banki hefur gert kröfu um að einbýlishús hans í Flórída verði selt á uppboði þar sem Reynolds hefur ekki borgað af húsnæðisláni sem hvílir á því í um eitt ár. 17.8.2011 07:54
Hraunað yfir Rick Perry úr öllum áttum Rick Perry ríkisstjóri í Texas og einn þeirra sem sækist eftir því að verða forsetaefni Repúblikaflokksins liggur undir harðri gagnrýni þvert á pólitískar línur í Bandaríkjunum fyrir ummæli sín um Ben Bernanke seðlabankastjóra landsins. 17.8.2011 07:48
Stangast á við orð Murdochs Clive Goodman, fyrrverandi blaðamaður á breska æsifréttablaðinu News of the World, segir að símhleranir hafi verið mikið notaðar á ritstjórn blaðsins með vitund og fullu samþykki yfirmanna. 17.8.2011 07:45
Dularfullur Rembrandt þjófnaður Þjófnaður á Rembrandt teikningu frá hóteli í Los Angeles þykir orðinn dularfullur. Teikningunni, sem er frá árinu 1655 og metin er á um 250 milljónir kr., var stolið frá Ritz-Carlton hótelinu um síðustu helgi. 17.8.2011 07:39
Í fangelsi fyrir Facebook-skrif Um 1.400 einstaklingar hafa verið ákærðir fyrir brot í tengslum við óeirðirnar í Bretlandi í síðustu viku. Flestir hafa þegar farið fyrir dómara og nokkrir þegar hlotið dóma. 17.8.2011 06:45
Hungurverkfallið heldur áfram Indverska baráttumanninum Anna Hazare var sleppt úr haldi í gær eftir að hafa verið settur í varðhald vegna fyrirhugaðs hungurverkfalls til að þrýsta á um harðari lög gegn spillingu, sem er landlæg í Indlandi. 17.8.2011 05:45
Shell berst við leka olíuleiðslu Starfsmenn olíurisans Shell berjast nú við að komast fyrir leka úr lögn frá einum borpalli fyrirtækisins út af ströndum Skotlands. 17.8.2011 05:30
Fyrsta gleðigangan í Nepal Fyrsta gleðiganga samkynhneigðra í Nepal var haldin um helgina í tengslum við hina fornu kúahátíð Gai jatra. Sú hátíð var upphaflega haldin til að minnast látinna ættingja en hefur á seinni árum snúist upp í almenna gleðihátíð, þar sem fólk klæðir sig gjarnan í alls kyns afkáralega búninga og hefur frávik mannlífsins í hávegum. 17.8.2011 04:45
35 látnir í árás hersins 35 manns hafa látist af völdum hersins í borginni Latakia í Sýrlandi undanfarna fjóra daga, að sögn íbúa. Af sautján manns sem drepnir voru í landinu á mánudag samkvæmt mannréttindasamtökum voru sex í Latakia. 17.8.2011 04:15
Lést í hákarlaárás í brúðkaupsferðinni sinni Yfirvöld á Seychelles eyjum hafa staðfelst að þrítugur karlmaður frá Bretlandi hafi látið lífið þegar hákarl réðst á hann við Paslin eyju í dag. Maðurinn var staddur á eyjunni ásamt eiginkonu sinni í brúðkaupsferð þeirra hjóna. 16.8.2011 23:05
Tveir Palestínumenn falla fyrir hendi Ísraelsmanna Ísraelski herinn felldi tvo Palestínumenn á Gaza-svæðinu í dag. Annar þeirra féll í loftárás en hinn var skotinn þar sem hann nálgaðist landamæri Gaza og Ísrael. 16.8.2011 21:30
Uppreisnarmenn eiga ekki í viðræðum við Sameinuðu þjóðirnar Leiðtogi uppreisnarmanna í Líbíu hefur vísað því á bug að hann eigi í viðræðum við erindreka Sameinuðu þjóðanna. Þetta kom fram á upplýsingafundi nú fyrr í dag. Leiðtoginn, Mustafa Abdel Jalil, tók einnig fram að hann ætti ekki í nokkrum viðræðum við ríkisstjórn Muammar Gaddafi. 16.8.2011 17:10
Sjónvarp drepur Áströlsk rannsókn hefur leitt í ljós að sjónvarpsgláp styttir líf fólks. Rannsóknin var birt í British Journal of Sports Medicine. Niðurstaðan var að hver klukkutími af áhorfi eftir 25 ára aldur kostar fólk 22 mínútur af lífi. 16.8.2011 15:30
Átökin í Líbíu - fundir með báðum aðilum Sérstakur erindreki Sameinuðu þjóðanna í Líbíu tilkynnti í dag að hann muni eiga fund með hvorum tveggja, fulltrúum uppreisnarmanna og liðsmönnum Gaddafi. Fundirnir fela ekki í sér sáttarviðræður, enda fara þeir fram með hvorum aðilanum fyrir sig. 16.8.2011 14:43
Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent