Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fjölmiðlaveldi í uppnámi David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, kallaði þjóðþing landsins saman á neyðarfund í gær til að ræða hleranamálið, sem hefur ekki aðeins grafið undan trausti fólks á fjölmiðlaveldi Ruperts Murdoch, sem kannski var þó eitthvað takmarkað fyrir, heldur einnig til bresku lögreglunnar og forsætisráðherrans sjálfs. Tíu manns hafa verið handteknir vegna málsins síðan í byrjun apríl, bæði vegna rannsóknar á símahlerunum blaðamanna fjölmiðlasamsteypunnar og vegna rannsóknar á því hvort breskir lögreglumenn hafi þegið fé frá fjölmiðlum Murdochs í skiptum fyrir upplýsingar. 19.7.2011 02:00
14 ára drengur skotinn til bana Fjórtán ára drengur var skotinn til bana í hörðum mótmælum í Túnis í gær. Stjórnvöld segja að hann hafi orðið fyrir slysaskoti. 19.7.2011 00:30
Tugir hlaupast úr Sýrlandsher Fjöldi sýrlenskra hermanna var sendur með þyrlum í gær til bæjarins al-Boukamal þar sem tugir hermanna höfðu gerst liðhlaupar og gengið til liðs við mótmælendur. 18.7.2011 23:30
Gáfu mæðrum röng börn Sjúkrahús í Victoria fylki í Ástralíu hefur viðurkennt að hafa fyrir mistök afhent tveimur mæðrum röng börn á fæðingadeild sinni síðastliðinn föstudag. Rannsóknir þarlendra miðla hafa í kjölfarið leitt í ljós að auðkennisruglingurinn ekkert einsdæmi á svæðinu. 18.7.2011 21:00
Vildi bensíntankinn fullan af áfengi Ellilífeyrisþegi frá Kúveit stoppaði bíl sinn við bensíndælu á bensínstöð í litlum bæ í landinum á dögunum. Þegar að afgreiðslumaðurinn gekk til hans og bauð honum aðstoð sína tjáði ökumaðurinn honum að hann skyldi bara fylla bílinn. En þegar afgreiðslumaðurinn var búinn að dæla bensíni á bílinn í nokkrar sekúndur varð ökumaðurinn alveg brjálaður. 18.7.2011 22:00
Fundað í kjaradeilu flugmanna Fundur í kjaradeilu flugmanna og Icelandair stendur enn yfir hjá ríkissáttasemjara. Óvíst er hvenær honum lýkur. Ef ekki næst samkomulag á fundinum kemur boðað yfirvinnubann flugmanna til framkvæmda klukkan tvö á morgun. 18.7.2011 21:51
Fálmkennd viðbrögð Camerons vegna hlerunarhneykslisins Forsætisráðherra Bretlands er undir miklum þrýstingi eftir að tveir hæst settu lögregluforingjar landsins sögðu af sér vegna hlerunarhneykslisins þar í landi. Breska þingið mun fresta því að fara í sumarfrí. 18.7.2011 19:52
Mubarak í dái eða með svima Hosni Mubarak, sem hrökklaðist frá völdum í Egyptalandi snemma árs, var í gær sagður hafa fengið heilablóðfall og liggja í dái. 18.7.2011 18:00
Hergeymslur eyðilagðar Herþotur á vegum NATO sprengdu snemma í gærmorgun vopnabúr og geymslur stjórnarhersins í austurhluta Trípolí, höfuðborgar Líbíu. Einnig var sprengjum varpað á fleiri skotmörk í borginni, þar sem æðstu ráðamenn þjóðarinnar hafast við. 18.7.2011 17:31
97 ára gamall ungverskur nasisti sýknaður Hinn 97 ára gamli Sandor Kepiro var sýknaður af ákærum um stríðsglæpi í Búdapest í dag, en hann var sakaður um að hafa fyrirskipað aftöku rúmlega 30 gyðinga og Serba í Serbíu árið 1942. 18.7.2011 16:30
Rauða nornin látin laus Rebekha Brooks sem breskir fjölmiðlar eru farnir að kalla Rauðu nornina hefur verið látin laus gegn tryggingu. Hún var handtekin í gær vegna gruns um að hafa átt aðild að símhlerunum og tölvuhakki. 18.7.2011 14:21
Bretar segja nei við herstjórnarstöð ESB Bretar hafa lýst því yfir að þeir muni koma í veg fyrir að Evrópusambandið komi sér upp varanlegri herstjórnarstöð vegna þess að það myndi veikja Atlantshafsbandalagið. William Hague utanríkisráðherra Bretlands sagði í dag að herstjórnarstöðin væri rauð lína sem Bretar myndu ekki stíga yfir. 18.7.2011 14:10
Hitnar undir David Cameron John Yates aðstoðarlögreglustjóri í Lundúnum hefur sagt af sér vegna hlerunarhneykslisins sem nú skekur Bretland. Yfirmaður hans Sir Paul Stephenson, lögreglustjóri sagði af sér í gær af sömu ástæðu. 18.7.2011 13:34
Íranar ráðast inn í Írak Íranskar hersveitir hafa ráðist á og hertekið þrjár bækistöðvar íranskra Kúrda í Írak. Íranska ríkisfréttastöðin IRNA hefur eftir írönskum ofursta að fjöldi Kúrda hafi verið felldir og aðrir teknir til fanga. 18.7.2011 13:18
Sækjast eftir að myrða háttsetta Náinn ráðgjafi og vinur Hamids Karzai forseta Afganistans hefur verið myrtur. Tveir byssumenn með sprengjubelti vafin um sig ruddudst inn á heimili ráðgjafans og skutu hann til bana. 18.7.2011 11:55
Telja að David Cameron hafi sýnt dómgreindarskort Leiðarar margra breskra blaða í morgun fjalla um afsögn lögreglustjóra Lundúna og segja afsögnina varpa fram spurningu um dómgreindarskort hjá David Cameron forsætisráðherra Bretlands. 18.7.2011 07:43
Mikill meirihluti Norðmanna andvígur ESB aðild Ný skoðanakönnun í Noregi sýnir að tæplega 64% Norðmanna eru andvígir því að landið gangi í Evrópusambandið. Rúm 26% eru hinsvegar fylgjandi aðild. 18.7.2011 07:37
Hiltabeltisstormur skellur á Bahamaeyjar Íbúar á Bahamaeyjum eru nú að undirbúa sig undir komu hitabeltisstormsins Bret en talið er að hann muni skella á eyjarnar í dag. 18.7.2011 07:20
Banna geislavirkt nautakjöt í Fukushima Japönsk stjórnvöld ætla sér að banna allan útflutning á nautakjöti frá Fukushima héraðinu. Ástæðan er sú að geislavirkni hefur mælst í kjötinu. 18.7.2011 07:16
Harðir bardagar í olíuborginni Brega Uppreisnarmenn í Líbýu segja að þeir hafi átti í hörðum bardögum við hersveitir Muammar Gaddafi í úthverfum olíuborgarinnar Brega um helgina. 18.7.2011 07:02
Hörð viðbrögð almennings Casey Anthony á sér fáa stuðningsmenn í Bandaríkjunum þótt hún hafi verið sýknuð af ákæru um að hafa myrt barn sitt. Hópur fólks var viðstaddur þegar hún gekk í gær frjáls manneskja út úr fangelsinu í Orlando í Flórída, þar sem hún hefur dvalist í nærri þrjú ár meðan mál hennar var til meðferðar hjá dómstólum. 18.7.2011 07:00
Lögreglustjóri Lundúna segir af sér Sir Paul Stephenson, lögreglustjóri Lundúnaborgar hefur sagt af sér vegna tengsla sinna við fjölmiðlaveldi Ruperts Murdoch. 18.7.2011 06:54
Gæti fengið tólf ára fangelsi Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, á að mæta fyrir rétti í dag. Hann hefur þó tilkynnt að hann komist ekki þar sem hann mun funda með Giorgio Napolitano, forseta landsins. Berlusconi sætir ákærum fyrir mútur og að hafa borgað 17 ára stúlku fyrir kynlíf. Réttarhöld hefjast í báðum þessum málum í dag. 18.7.2011 05:00
Brýn þörf fyrir fjárhagsaðstoð Tony Lake, yfirmaður Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, segir að ástandið á þurrkasvæðunum í Afríku muni versna á næstu mánuðum. Fólk hefur ekki mat og engin uppskera er væntanleg til að bæta úr matarskortinum. Hann segir að nú skipti öllu máli að útvega fjölskyldum aðstoð. 18.7.2011 03:30
Afganar tóku við stjórn Hersveitir NATO létu stjórn Bamiyanhéraðsins í hendur afganskra öryggissveita í dag. Þessar breytingar eru hluti af áætlun sem Hamid Karzai, forseti Afganistan, kynnti í mars. Til stendur að Afganar taki við stjórn sex héraða til viðbótar á næstunni og að erlendar hersveitir verði búnar að yfirgefa Afganistan að fullu árið 2014. Öryggissveitir frá Nýja Sjálandi verða staddar í Bamiyanhéraðinu um skeið en þær verða undir stjórn Afgana. 17.7.2011 14:25
Brooks handtekin vegna símhleranamálsins Rebekah Brooks, fyrrum stjórnandi hjá News International í Bretlandi, hefur verið handtekin í tengslum við símhleranamálin sem hafa skekið breskt samfélag að undanförnu. Brooks var handtekin eftir skýrslutökur á lögreglustöð í Lundúnum og er hún í gæsluvarðhaldi. Fram kemur á fréttavef BBC að þetta er tíunda handtakan í tengslum við ásakanir á hendur dagblaðinu News of the World um símhleranir. 17.7.2011 13:17
Chavez kominn aftur til Kúbu Hugo Chavez, forseti Venesúela, er aftur kominn til Kúbu til að gangast undir frekari meðferð við krabbameini. Chavez ræðir opinbskátt um veikindi sín í fjölmiðlum og tók meðal annars lyfin sín í beinni útsendingu. 17.7.2011 12:16
Tilkynna of feit börn til barnavernda Offita á meðal barna í Danmörku er orðið svo stórt vandamál að barnaverndanefndir í fjölmörgum sveitafélögum eru farnar að fá tilkynningar um vanrækslu barnanna frá heilbrigðisstarfsfólki, segir í danska blaðinu Politiken. 17.7.2011 10:40
Dalai Lama hittir forseta Bandaríkjanna í dag Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, hittir í dag Dalai Lama andlegan leiðtoga Tíbeta. Hvíta húsið sendi út fréttatilkynningu um fundinn í gær, en Dalai Lama yfirgefur Bandaríkin í dag eftir 11 daga dvöl í Washington. Hvíta húsið segir að Fundur Obama og Dalai Lama sýni stuðning forsetans við málstað Tíbeta, en þeir berjast sem kunnugt er, fyrir sjálfstæði frá Kína. Dalai Lama hefur verið í útlegtð frá heimalandi sínu frá árinu 1959 vegna baráttu sinnar fyrir málstaðnum. 16.7.2011 10:55
Fjölmiðlakóngur biðst afsökunar Helstu blöð Bretlands birta í dag heilsíðuauglýsingar frá Rupert Murdoch vegna þess sem hann kallar alvarlegar misgjörðir News of the World. Í auglýsingunni segir „Okkur þykir fyrir þeim alvarlegu misgjörðum sem átt hafa sér stað.". Rebekah Brooks, fyrrverandi ritstjóri News of the World og Les Hinton, stjórnandi hjá útgáfufyrirtækinu News Corporation, sögðu upp störfum í gær vegna símahlerunarhneykslis sem skekið hefur Bretland að undanförnu. 16.7.2011 09:30
Skuldaþref á Bandaríkjaþingi „Ef þeir sýna mér alvöru áætlun, þá er ég tilbúinn,“ segir Barack Obama Bandaríkjaforseti sem hvetur þing landsins til að ná samkomulagi um hækkun skuldaþaks Bandaríkjanna og niðurskurð útgjalda. 16.7.2011 00:15
Opinber afsökunarbeiðni Rupert Murdoch Fjölmiðlamógúllinn Rupert Murdoch hefur gefið út opinbera afsökunarbeiðni þar sem hann biðst velvirðingar á því hvernig vikuritið News of the World bar sig að við fréttaskrif, en Murdoch tók þá ákvörðun fyrir stuttu að leggja útgáfu blaðsins niður. Vikublaðið breska kom út í síðasta skipti mánudaginn 11. júlí, eftir að hafa verið starfandi í 168 ár frá stofnun þess árið 1843. 15.7.2011 16:00
Þúsundir á flótta undan eldgosi Tugþúsundir manna eru á flótta undan eldgosi sem hófst í gærkvöldi á eynni Sulawesi í Indónesíu. Gosið kom ekki á óvart þar sem miklar jarðhræringar hafa verið á þessum slóðum undanfarna daga. Búið var að skilgreina 3,5 kílómetra hættusvæði umhverfis eldfjallið Lokon. 15.7.2011 12:21
Bin-Laden vildi gera afmælisárás Þegar Osama bin-Laden var ráðinn af dögum átti hann í viðræðum við aðgerðastjóra sinn um enn eina árás á Bandaríkin. Árásina átti að gera hinn 11. september næstkomandi á tíu ára afmæli árásanna á New York. 15.7.2011 11:10
Murdoch forstjóri hrökklast úr starfi Rebekha Brooks forstjóri fjölmiðlaveldis Ruberts Murdoch í Bretlandi hefur sagt af sér. Hún er fyrrverandi ritstjóri News of The World, blaðsins sem fyrst varð uppvíst að því að hlera síma þúsunda þekktra Breta, þar á meðal konungsfjölskyldunnar. 15.7.2011 09:28
Sprengja sprakk í Malmö Sprengja sprakk við myndbandaleigu í Malmö í Svíþjóð í nótt. Engin meiðsl urðu á fólki en talsverðar skemmdir urðu á nálægum húsum. Fyrir ofan myndbandaleiguna eru íbúðir og var íbúum þar verulega brugðið. Þeir urðu ekki varir við grunnsamlegar mannaferðir áður en sprengjan sprakk enda flestir í fasta svefni á þessum tíma. Sprengjunni var komið fyrir við inngang myndbandaleigunnar. 15.7.2011 08:31
Naser Khader fór í leynilega ferð til Sýrlands Naser Khader, leiðtogi Nýja bandalagsins í Danmörku, fór í fimm daga leynilega ferð til Sýrlands í vikunni og ræddi við heimamenn um ástandið í landinu. Hvork dönsk né sýrlensk stjórnvöld vissu af ferðum hans. Khader fæddist í Sýrlandi en flutti 11 ára gamall til Danmerkur. Hann hefur verið áberandi í dönskum stjórnmálum undanfarin ár. 15.7.2011 08:20
Eva Joly mælist með 7-9% fylgi Eva Joly, forsetaefni Græningja í Frakklandi og fyrrverandi ráðgjafi sérstaks saksóknara hér á landi, mælist með 7-9% stuðning í skoðanakönnunum, en fyrri umferð forsetakosninganna fer fram 22. apríl á næsta ári. Í seinni umferð kosninganna verður kosið á milli þeirra tveggja frambjóðenda sem hljóta flest atkvæði í fyrri umferðinni. 15.7.2011 07:57
Kveikti í einni stærstu stafkirkju Noregs 17 ára norskur unglingsdrengur hefur viðurkennt að hafa borið eld að einni stærstu timburkirkju Noregs fyrr á þessu ári, en hún brann til grunna. Kirkjan var byggð fyrir rúmum 250 árum og stóð í bænum Porsgrunn suðvestur af höfuðborginni Osló 15.7.2011 07:55
FBI rannsakar Murdoch og hleranir í Bandaríkjunum Enn þrengir að Robert Murdoch og fjölmiðlaveldi hans því bandaríska alríkislögreglan rannsakar nú hvort fjölmiðlar í hans eigu hafi brotið gegn fórnarlömbum hryðjuverkaárásanna 11. september 2001. 15.7.2011 06:56
Hillary hættir á næsta ári Hillary Clinton hyggst láta af störfum sem utanríkisráðherra Bandaríkjanna á næsta ári óháð því hvort Barack Obama verður endurkjörinn forseti. Hún segist vera orðin þreytt á stanslausum ferðalögum sem fylgi starfinu og hún vilji þess í stað eyða meiri tíma með fjölskyldu sinni og vinum. 15.7.2011 06:54
Fundu sjaldgæfa snæhlébarða Sjaldgæfir snæhlébarðar hafa fundist í fjöllum í norðausturhluta Afganistans. Hlébarðarnir eru við góða heilsu að sögn náttúruverndarsinna sem hafa rannsakað málið. 15.7.2011 06:00
Suður-Súdan er komið í hópinn Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í New York samþykkti í gær inngöngu Suður-Súdans í samtökin. Suður-Súdan er þar með formlega orðið 193. ríki Sameinuðu þjóðanna. 15.7.2011 02:00
Saga samkynhneigðra kennd Bandaríkin, APJerry Brown, ríkisstjóri í Kaliforníu, undirritaði í gær ný lög, sem gera skólum í landinu skylt að kenna sögu samkynhneigðra. 15.7.2011 00:30
Deilur harðna um skuldaþak Aukin harka hefur færst í deilur bandarískra þingmanna um skuldaþak bandaríska ríkisins. Fokreiðir þingmenn hafa gagnrýnt bæði hver annan og Barack Obama Bandaríkjaforseta. 15.7.2011 00:00
Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent