Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Aska truflar flugumferð í Afríku Aska frá eldfjalli í Eritreu truflar nú flugumferð í norðausturhluta Afríku og er þýska flugfélagið Lufthansa meðal þeirra flugfélaga sem hafa þurft að fella niður flug. Elfjallið byrjaði að gjósa í gær en um 150 ár eru frá seinasta gosi. 14.6.2011 07:39
Réttað yfir fyrrverandi forseta Túnis Réttarhöld yfir Zine Ben Ali, fyrrverandi forseta Túnis, hefjast í næstu viku. Bráðabirgðar forsætisráðherra landsins segir að Ben Ali verðI ekki viðstaddur réttarhöldin en hann flúði ásamt fjölskyldu sinni til Saudi-Arabíu í janúar eftir umfangsmikil mótmæli í Túnis. Forsetinn fyrrverandi er ásakaður er um að hafa staðið fyrir morðum á mótmælendum og stolið háum fjármuni úr opinberum sjóðum. Allt lítur út fyrir að Sádar ætli ekki að framselja Ben Ali til Túnis. 14.6.2011 07:37
Nær helmingur atvinnulaus á Gaza Atvinnuleysi á Gaza-ströndinni mældist 45,2% um áramótin, samkvæmt upplýsingum frá Sameinuðu þjóðunum. Þetta er eitt hæsta hlutfall atvinnulausra í heiminum. 14.6.2011 15:23
Eitt þúsund manns í druslugöngu í Sidney Um eitt þúsund manns tóku þátt í druslugöngu í miðborg Sidney í Ástralíu í dag til að berjast gegn fordómum í tengslum við klæðaburð kvenna. 13.6.2011 19:39
Norðmenn varaðir við aurskriðum Íbúar í Guðbrandsdal í Noregi eru beðnir um að hafa varan á því hætta er á aurskriðum nú þegar flóðin sem þar hafa geisað eru í rénum. Milljarðatjón hefur orðið í hamförunum. 13.6.2011 19:35
Berlusconi beið pólitískan ósigur Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, beið mikinn pólitískan ósigur í gær þegar Ítalar felldu úr gildi lög ríkisstjórnar hans um kjarnorku, einkavæðingu og friðhelgi ráðherra. 13.6.2011 18:41
Erdogan er maðurinn Réttlætis- og þróunarflokkurinn, flokkur Recep Erdogan forsætisráðherra, náði hreinum meirihluta í þingkosningunum í Tyrklandi í gær. Flokkurinn hlaut um það bil 50% atkvæða og 326 þingsæti af 550. Réttlætis- og þróunarflokkurinn hefur verið við völd í Tyrklandi frá árinu 2003 eða í tvö kjörtímabil. Flokkurinn vill breyta stjórnarskrá landsins til að auka lýðræði en stjórnarskráin sem nú er í gildi var skrifuð eftir að herinn tók völdin árið 1980. 13.6.2011 18:39
Mikil skelfing í Christchurch Að minnsta kosti 50 slösuðust í tveimur jarðskjálftum við borgina Christchurch á Nýja Sjálandi í morgun. Fyrri skjálfinn mældist 5,2 stig og sá seinni 6 stig. 13.6.2011 18:15
Þjóðverjar styðja uppreisnarmenn Ríkisstjórn Þýskalands lýsti í dag yfir stuðningi við Líbíska þjóðarráðið, bandalag uppreisnarmanna. Enn geisa hörð átök í Líbíu og er ekkert fararsnið á Moammar Gaddafi. 13.6.2011 16:07
Aðstoðaði Ísbarónessuna sem reyndist vera eftirlýstur morðingi Spænskur götuspilari í Vín komst í hann krappann þegar hann sá aumur á grátandi konu á lestarstöð í Udine á Ítalíu. Hann bauð konunni gistingu en komst ekki að því fyrr en tveim dögum síðar að konan með tárin var eftirlýstur morðingi frá Vín, þekkt undir nafninu Ísbarónessan. 13.6.2011 12:30
Stjórnarherinn segist hafa hrundið árás uppreisnarmanna Stjórnvöld í Líbíu segjast hafa hrundið árás uppreisnarmanna á bæinn Zawiya í vesturhluta landsins. Harðir bardagar hafa geysað um bæinn undanfarnar vikur en bærinn er um 30 kílómetra fyrir vestan Trípolí, höfuðborg landsins. Ekki liggur fyrir hversu margir hafa látið lífið í átökunum en fram kemur á vef breska ríkisútvarpsins, BBC, að mannfall í röðum uppreisnarmanna sé töluvert. 13.6.2011 12:08
Flug fellur niður vegna gosösku Nánast allt flug liggur niðri í Ástralíu og á Nýja Sjálandi vegna gosösku. Búist er við áframhaldandi röskun á flugi í Eyjaálfu næstu daga. Askan úr sílenska eldfjallinu Puyehue-Cordon Caulle raskar nú flugi í Eyjaálfu annan daginn í röð. 13.6.2011 12:00
Handtekinn með sprengiefni Lögreglan í Kaupmannahöfn handtók í gær 27 ára karlmann eftir að hálft kíló af sprengiefni fannst í bíl mannsins. Við nánari leit fundust einnig þrír rifflar og þrjár haglabyssur í bílnum. Maðurinn var stöðvaður við reglubundið umferðareftirlit en stór sprunga var í framrúðu bílsins. 13.6.2011 10:10
Flokkur forsætisráðherrans sigraði Réttlætis- og þróunarflokkurinn, flokkur Recep Erdogan forsætisráðherra, vann stórsigur í þingkosningunum í Tyrklandi í gær. Flokkurinn hlaut um það bil 50% atkvæða og hreinan meirihluta á þingi. Flokkurinn fékk 325 þingsæti af 550 sem dugar þó ekki til að hann geti gert einhliða breytingar á stjórnarskrá landsins. 13.6.2011 09:59
Sýrlensk stúlka reyndist vera bandarískur karlmaður Samkynhneigð sýrlensk stúlka, sem vakti mikla athygli fyrir blogg sem hún ritaði frá Damaskus, reyndist í gær vera harðgiftur bandarískur karlmaður. 13.6.2011 08:00
Ekkert salt á veitingastöðum Heilbrigðisyfirvöld í Buenos Aires, höfuðborg Argentínu, vinna þessa dagana að því að sporna við háum blóðþrýstingi borgarbúa og hyggjast í þeim tilgangi gripa til þess ráðs að láta fjarlægja alla saltstauka af borðum veitingahúsa í borginni. 13.6.2011 07:30
Keppir við gróna háskóla Hópur fræðimanna í Bretlandi hefur stofnað nýjan háskóla í London, The New College of the Humanities, sem á að keppa við háskólana Oxford og Cambridge. 13.6.2011 06:00
Skotárás í Svíþjóð Einn maður lést og annar berst nú fyrir lífi sínu eftir skotárás í bænum Åkersberga í Svíþjóða en bærinn er rétt fyrir utan Stokkhólm. 12.6.2011 10:25
Minnsti maður í heimi 18 ára Hinn filipeyski Junrey Balawing ætlar að fagna í dag með því að drekka bjór úr glasi sem er næstum jafn stórt honum sjálfum. Tilefnið er átján ára afmæli piltsins sem nú má formlega fá sér bjórsopa. 12.6.2011 10:07
Les Paul gítarinn áfram á Google Margir netnotendur brostu út að eyrum síðastliðinn fimmtudag þegar þeir sáu hverju Google hafði tekið upp á í tilefni af 96 ára afmæli tónlistar- og uppfinningamannsins Lester William Polsfuss, betur þekktur undir nafninu Les Paul. 11.6.2011 23:00
5000 druslur í London Skipuleggjendur "druslugöngunnar" í London segja að hátt í 5.000 manns hafi tekið þátt í göngunni í dag en þar mátti sjá konur arka um strætin í netasokkabuxum og brjóstarhöldurum, undir slagorðum á borð við "Brjóstaskora er ekki samþykki". 11.6.2011 22:00
Sökudólgurinn í E. coli faraldrinum fundinn "Það eru baunaspírurnar". Þetta segir Reinard Burger, yfirmaður þýsku smitsjúkdómamiðstöðvarinnar en E. coli faraldurinn í Norður-Þýskalandi hefur verið rakinn til baunaspírubúgarðs nærri Hamburg. 11.6.2011 17:37
Flóttamenn streyma til Tyrklands Að minnsta kosti 4.300 manns hafa nú flúið ofbeldið í Sýrlandi og leitað skjóls í Tyrklandi en 32 týndu lífinu í átökum þar í landi síðastliðinn föstudag. Rauntala flóttamanna er þó talin mun hærri en opinberar tölur segja til um þar sem margir hafi komist óséðir yfir landamærin. 11.6.2011 15:05
Öskuskýið frá Chile stöðvar flug í Nýja Sjálandi Puyehue-eldfjallið sem nú gýs í Chile hefur valdið töluverðum truflunum á flugi í Argentínu, Úrúgvæ og hluta Brasilíu undanfarna daga, en nú lítur út fyrir að öskuskýið úr fjallinu sé farið að teygja sig vestur til Nýja Sjálands. 11.6.2011 13:30
Siðlausar og ólöglegar aðgerðir stjórnvalda í Sýrlandi Fjöldi fólks hefur flúið frá Sýrlandi til Tyrklands frá því á miðvikudagskvöld. Óttast er að árás á borgina Jisr al-Shughour sé yfirvofandi. Stjórnvöld segja að þar hafi vopnaðir hópar uppreisnarmanna drepið yfir 120 öryggissveitarmenn. 10.6.2011 21:00
Játaði morð eftir 65 ár Níutíu og sex ára gömul hollensk kona hefur játað á sig morð sem hún framdi árið 1946. Það var fyrsta heila friðarárið eftir síðari heimsstyrjöldina og uppgjör við föðurlandssvikara og stríðsglæpamenn í fullum gangi. 10.6.2011 13:57
Brown stýrði samsæri gegn Blair Aðeins nokkrum vikum eftir þingkosningarnar árið 2005 hóf Gordon Brown, sem þá var fjármálaráðherra, herferð gegn Tony Blair forsætisráðherra ásamt nánum samstarfsmönnum sínum. 10.6.2011 10:50
Með ferðamenn niður að Titanic Ferðaskrifstofan Bluefish ætlar að hefja köfunarferðir með ferðamenn niður að flakinu af risaskipinu Titanic sem sökk á Norður-Atlantshafi árið 1912. Skipið liggur á hérumbil fjögurra kílómetra dýpi og farið verður niður að því í sérsmíðuðum dvergkafbáti. 10.6.2011 10:44
NATO telur Gaddafi vera lögmætt skotmark Háttsettur yfirmaður hjá NATO segir að Muammar Gaddafi leiðtogi Líbýu sé lögmætt skotmark í árásum NATO á landið. 10.6.2011 07:26
Grænfriðungum bannað að trufla olíuleit við Grænland Hollenskur dómstóll hefur bannað Grænfriðungum að trufla olíuleit skoska olíufélagsins Cairn á Baffins-flóa við Vestur Grænland. 10.6.2011 07:23
Gaddafí sagður fyrirskipa nauðganir í stórum stíl Viðræður um framtíð Líbíu ef Gaddafí fer frá völdum standa nú yfir . Einræðisherrann er sakaður um að beita skipulögðum nauðgunum sem vopni í baráttunni við uppreisnarmenn. 9.6.2011 12:14
NATO sendir ekki hermenn inn í Líbíu Varnarmálaráðherrar aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins (NATO) telja að góður árangur hafi náðst með loftárásum á herafla Líbíu á síðustu tveimur mánuðum. NATO mun halda áfram loftárásum sínum eins lengi og þurfa þykir, sagði Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóri bandalagsins, á fundi með fjölmiðlafólki í höfuðstöðvum NATO í Brussel. 9.6.2011 10:00
Ætlar að skrifa áfram í blaðið Bill Keller, aðalritstjóri bandaríska stórblaðsins The New York Times, hefur ákveðið að segja starfi sínu lausu nú í september. Keller, sem verður 62 ára í ár, mun áfram skrifa í blaðið. 9.6.2011 09:00
Leit lokið í flaki Air France þotunnar Búið er að ljúka leit að líkunum í flaki Air France þotunnar sem fórst í flugi milli Rio de Janeiro og Parísar fyrir tveimur árum síðan. 9.6.2011 07:49
Danir orðnir uppiskroppa með sprengjur í Líbýu Danski flugherinn hefur verið áberandi í loftárásum NATO á skotmörk í Líbýu. Nú er svo komið að Danirnir eru orðnir uppiskroppa með sprengjur þær sem þeir nota í herþotum sínum til árásanna. 9.6.2011 07:44
Frystar Líbýueignir notaðar til uppbyggingar Bandarískir stjórnmálamenn vilja að þær eignir líbýskra stjórnvalda sem Bandaríkjamenn hafa fryst verði notaðar til uppbyggingar í Líbýu. 9.6.2011 07:42
Tveimur nýjum frumefnum bætt við Lotukerfið Ákveðið hefur verið að bæta tveimur nýjum frumefnum við Lotukerfið og verða þau þá orðin 114 talsins. 9.6.2011 07:12
Flokkaðir með tilliti til öryggis Alþjóðasamtök áætlunarflugfélaga, IATA, hafa kynnt áætlun um nýja aðferð við öryggisleit á flugvöllum sem á að vera þægilegri fyrir farþega og flugfélög. 9.6.2011 07:00
Mankell falsaður á Facebook Sænski rithöfundurinn Henning Mankell segir óprúttinn aðila hafa stofnað síður á Facebook í sínu nafni og látið þar falla ýmis öfgafull ummæli sem Mankell segir ekki samrýmast sínum skoðunum. Þá hafa nokkrum dagblöðum einnig borist tölvupóstar undir nafni rithöfundarins. 8.6.2011 21:00
Lét húðflúra á sig 152 Facebook-prófílmyndir Kona í Hollandi fór nýlega heldur óhefðbundna leið að því að sína vinum sínum væntumþykju og lét flúra Facebook-prófílmyndir þeirra allra á hægri handlegginn á sér. 8.6.2011 20:00
Létust í árekstri við fljúgandi skógarbjörn Tveir létust í undarlegu bílslysi í Kanada á mánudaginn þegar 130 kílóa skógarbjörn kom fljúgandi í gegnum rúðu fólksbíls. Björnin hafði lent fyrir flutningabíl sem var á leið í gagnstæða átt við fólksbílinn og við höggið tókst hann á loft yfir á hinn vegarhelminginn. Þar kom fólksbíllinn aðvífandi á fullri ferð og lenti björninn með fullum þunga á honum. 8.6.2011 16:43
Fílar gengu berserksgang Að minnsta kosti einn týndi lífinu þegar tveir villtir fílar gengu berserksgang í Mysore í suður Indlandi í dag. 8.6.2011 15:49
Fékk dauðan svan í hausinn Tólf ára gömul norsk telpa varð fyrir þeirri lífsreynslu á mánudaginn að dauður svanur féll á hana og slasaði nokkuð. Jenny Hegg var í útilegu á smáeyju ásamt bekkjarfélögum sínum þegar þetta gerðist. Hún segir í samtali við Aftenposten að þau hafi séð þrjá svani nálgast í lágflugi. 8.6.2011 10:25
Danir verða að sleppa sjóræningjum Danskir sjóliðar um borð í herskipinu Esbern Snare eru sárir og gramir yfir því að þurfa að hætta lífi sínu í baráttu við sjóræningja undan ströndum Sómalíu og sjá þá svo ganga frjálsa frá borði vegna þess að enginn fæst til að draga þá fyrir dóm. 8.6.2011 10:14
Mikill sólstormur skellur á Jörðinni í nótt Mikill sólstormur náði hámarki snemma í morgun og reiknað er með að eftirköst hans skelli á jörðinni í nótt eða í fyrramálið. 8.6.2011 07:43