Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hryðjuverk reyndist rafmagnsbilun Sprenging varð á strætisvagnastöð í Moskvu í gær. Óttast var í fyrstu að um hryðjuverkaárás hefði verið að ræða, en tólf létust í hryðjuverkaárás í Minsk í Hvíta Rússlandi á mánudaginn. 13.4.2011 08:23
Vildu meina að brjóstakrabbameins-armbönd væru of klúr Dómari í Pennsylvaníu úrskurðaði á dögunum að tveir grunnskólanemendur mættu ganga um skólann með gúmmíarmbönd á hendinni sem á standa: Ég elska brjós 13.4.2011 08:21
Vongóðir um að finna svarta kassann Stél frönsku flugvélarinnar, sem hrapaði í Atlantshafið árið 2009 þegar hún var á leið frá Brasilíu til Evrópu, er fundið að sögn ættingja þeirra sem fórust í slysinu. 13.4.2011 08:18
Bandarískir ríkisborgarar fangar í Norður-Kóreu Ótilgreindur fjöldi Bandarískra ríkisborgara er í haldi stjórnvalda í Norður-Kóreu samkvæmt breska ríkisútvarpinu. 13.4.2011 08:16
Bloggarar Huffington Post vilja 12 milljarða Hópur bloggara ætlar í mál við fyrrverandi eiganda vefritsins Huffington Post. Ástæðan er sú að þeim finnst þeir hafa verið arðrændir. 13.4.2011 08:04
Fimmtugur þingmaður sagði af sér eftir að hafa skoðað klám í vinnunni "Ég vona að Guð fyrirgefi mér fyrir mistök mín," sagði indónesíski þingmaðurinn Arifinto, þegar hann sagði af sér þingmennsku á dögunum. 12.4.2011 22:58
Jarðgöng hrundu á Gaza Fjórir féllu og fjórir eru særðir eftir að jarðgöng hrundu nálægt bænum Rafah á Gaza-ströndinni í dag. 12.4.2011 21:42
Forsetinn fyrrverandi fékk hjartaáfall Hosni Mubarak, fyrrverandi forseti Egyptalands, fékk hjartaáfall í dag og var fluttur á sjúkrahús í strandbænum Sharm el-Sheikh. 12.4.2011 20:43
Mubarak fluttur á sjúkrahús Hosni Mubarak, fyrrum forseti Egyptalands, var fluttur á sjúkrahús í bænum Sharm el-Sheikh seinni partinn í dag. Ástand hans er sagt vera alvarlegt en aðstoðarmenn hans hafa borið þær fréttir til baka. Von er á yfirlýsingu síðar í dag. 12.4.2011 17:16
Frakkar og Bretar vilja harðari aðgerðir í Líbíu NATO þarf að herða aðgerðir sínar í Líbíu og eyðileggja þungavopn Gaddafís einræðisherra, að mati utanríkisráðherra Breta og Frakka. Alain Juppe, utanríkisráðherra Frakka, segir að óbreyttir borgarar í Líbíu búi enn við ógn frá Gaddafí þrátt fyrir sprengjuárásir NATO undandfarna daga. William Hague, breski kollegi, Juppe, tók í svipaðan streng í dag og hvatti NATO til þess að herða róðurinn. Þá hvatti hann Múammar Gaddafí eindregið til þess að láta af völdum. 12.4.2011 13:40
Lagaprófessorar til varnar Manning Tvöhundruð og fimmtíu bandarískir lagaprófessorar hafa undirritað bréf þar sem er mótmælt meðferðinni á hermanninum Bradley Manning. Manning er grunaður um að hafa lekið milljónum leyniskjala til Wikileaks. 12.4.2011 11:18
Fundu tíu milljónir dollara grafnar á landi hvítlauksbónda Suður-kóreska lögreglan fann tíu milljónir dollara grafna á landi hvítlauksbónda sem býr nokkuð fyrir utan höfuðborg landsins, Seúl. 12.4.2011 09:51
Danska lögreglan fann tonn af kannabisefnum Karlmaður á fimmtugsaldri var handtekinn í gærkvöldi í aðgerðum lögreglunnar í Kaupmannahöfn gegn fíkniefnasölum í Kristjanínu. 12.4.2011 09:47
Mitt Romney vill verða forseti Bandaríkjanna Þingmaðurinn Mitt Romney hefur gefið kost á sér sem forsetaefni Repúblikana fyrir næstu forsetakosningar Bandaríkjanna. 12.4.2011 09:45
Fyrsta Súperman blaðið endurheimt Fyrsta tölublaðið um ofurhetjuna Súperman fannst á dögunum í læstum öryggisskáp í San Fernando dalnum í Bandaríkjunum. Blaðinu var stolið fyrir áratug síðan af kvikmyndastjörnunni Nicolas Cage. 12.4.2011 09:43
Rændu ritstjórn dagblaðs Fjórir vopnaðir menn ruddust inn á ritstjórn dagblaðs í mexíkóska bænum Villahermosa í Suður-Mexíkó. 12.4.2011 09:33
Tólf létust í tilræði í Hvíta-Rússlandi Heilbrigðisráðherra Hvíta-Rússlands segir að tólf hafi látist í sprengjuárásinni í neðanjarðarlestarstöð í Minsk í gær. 12.4.2011 09:31
Bloggari dæmdur í þriggja ára fangelsi Egypski herinn fékk 28 ára gamlan bloggara dæmdan í þriggja ára fangelsi í gær fyrir að gagnrýna störf hersins. Hann var að auki dæmdur án þess að hafa lögmann viðstaddan. 12.4.2011 09:07
Fimmtíu ár síðan Gagarín fór út í geiminn Fimmtíu ár eru liðin frá því geimfarinn Yuri Gagarín fór fyrstur manna út fyrir gufuhvolfið. 12.4.2011 09:01
Rak vænginn í stélið á JFK flugvellinum Tvær fullar farþegaþotur lentu í árekstri á flugbraut John F. Kennedy flugvallarins í Bandaríkjunum í gær. Önnur þotan var frá Air France-flugfélaginu en hin var að koma frá Boston. 12.4.2011 08:54
Enn finnast fjöldagrafir í Mexíkó Fjöldagröf fannst í Mexíkó síðustu helgi. Gröfin var fyrir utan smábæ nærri landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó. Alls voru 16 lík í gröfinni. 12.4.2011 08:09
Enn finnast bein á ströndinni Lögregluyfirvöld í New York grunar að raðmorðinginn sem leitað er í borginni geti verið fyrrverandi lögregluþjónn. Bein fundust í gær en ekki er búið að staðfesta að um enn eitt fórnarlamb morðingjans sé að ræða. Eitt lík af átta, sem fundist hafa á strönd á Long Island, er talið vera að barn, ekki eldra en átján mánaða. 12.4.2011 08:00
Varar við langvarandi borgarastríði í Líbíu Fyrrverandi utanríkisráðherra Líbíu, Moussa Koussa, sem flýði landið stuttu eftir að ófriðurinn hófst þar í landi, varar við langvarandi borgarastríði í Líbíu. 12.4.2011 07:58
Fukushima-kjarnorkuverið á sama hættustigi og Tsjernobyl-verið Viðvörunarstig kjarnorkuversins í Fukushima í Japan hefur verið hækkað upp í sjöunda stig vegna leka úr verinu. Ekkert annað kjarnorkuver hefur hækkað viðvörunarstigið svo hátt nema verið í Tsjernobyl sem að lokum bræddi úr sér. 12.4.2011 07:53
Engin áhrif á ESB-viðræður Aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið skaðast ekki af því að Íslendingar hafi hafnað því að staðfesta Icesave-samninginn í þjóðaratkvæðagreiðslu. 12.4.2011 07:00
Ellefu fórust í sprengjutilræði Ellefu létust og hundruð slösuðust í sprengingu í neðanjarðarlestakerfi Minsk, höfuðborgar Hvíta-Rússlands, um miðjan dag í gær. 12.4.2011 06:00
Minnstu aukning vegna hernaðar síðan árið 2001 Útgjöld vegna hernaðar í heiminu jukust einungis um 1,3 prósent árið 2010 samkvæmt útreikningum sænsku stofnunarinnar SIPRI sem sérhæfir sig í að reikna útgjöld til hernaðar. . 11.4.2011 23:15
Bjóðast til að borga afborganir af húsum fyrir auglýsingu Fyrirtæki í Bretlandi hefur gert húseigendum í vanda sérkennilegt tilboð. Fyrirtækið, sem sérhæfir sig í að auglýsa snjallsíma, hefur auglýst eftir húseigandum sem eru tilbúnir að láta mála hús sín með auglýsingu fyrirtækisins. 11.4.2011 22:30
Fimm milljónir í sekt fyrir að neyða konu að vera í búrku Búrkubannið í Frakklandi tók formlega gildi í dag. Bannið var mjög umdeilt á sínum tíma en það tekur til kvenna fá Mið-Austurlöndum sem vilja hylja sig fullkomlega af trúarlegum ástæðum. 11.4.2011 22:00
Mubarak í yfirheyrslu Egypsk yfirvöld hafa boðað Hosni Mubarak í yfirheyrslur eftir gríðarlegan þrýsting almennings í landinu. Mubarak hrökklaðist frá völdum í byrjun febrúar eftir að hafa ríkst sem forsætisráðherra í landinu í um þrjátíu ár. 11.4.2011 21:00
Kínverjar gagnrýna Bandaríkjamenn Kínverjar hafa birt skýrslu þar sem þeir gagnrýna Bandaríkjamenn harðlega fyrir að virða ekki mannréttindi. Þá segir jafnframt í skýrslunni, að Bandaríkjamenn reyni að grafa undan öðrum ríkjum með því að tryggja frjálsan aðgang að internetinu. 11.4.2011 20:45
Sprenging í neðanjarðarlestastöð í Minsk Mikil sprenging varð í neðanjarðarlestastöð í Minsk höfuðborg Hvítarússlands í dag. Fregnir herma að nokkrir hafi látist og margir særst en engar staðfestar fregnir af mannfalli hafa þó enn borist. 11.4.2011 16:32
Gbagbo tekinn höndum Laurent Gbagbo fyrrverandi forseti Fílabeinsstrandarinnar hefur verið tekinn höndum í forsetahöllinni í Abidjan. Gbabgo hefur neitað að láta af völdum í landinu þrátt fyrir að hafa tapað í forsetakosningum og hafa hersveitir hliðhollir honum barist við hersveitir Alessane Outtara, sigurvegara kosninganna. Síðustu daga hafði Gbabgo komið sér fyrir ásamt mönnum sínum í kjallarara forsetahallarinnar en í dag réðust franskir sérsveitarmenn inn í höllina og tóku hann höndum. 11.4.2011 14:00
Útgjöld til hernaðar ekki verið minni í áratug Útgjöld vegna hernaðar í heiminum jukust einungis um 1,3 prósent árið 2010 samkvæmt útreikningum sænsku stofnunarinnar SIPRI sem sérhæfir sig í að reikna útgjöld til hernaðar. 11.4.2011 09:33
Dó fimm sinnum í fimm sápuóperum á sama deginum Kínverski leikarinn Law Lok Lam gæti hafa sett nýtt heimsmet í síðustu viku þegar hann lést fimm sinnum sama daginn í fimm mismunandi sápuóperum. 11.4.2011 09:29
Öflugur jarðskjálfti í Fukushima Öflugur jarðskjálfti reið yfir Fukushima í Japan í morgun. Talið er að hann sé 7,1 á richter. 11.4.2011 08:51
Hollenski fjármálaráðherrann vonsvikinn yfir niðurstöðunni Hollenski fjármálaráðherrann, Jan Kees de Jager, segist hafa orðið fyrir vonbrigðum með það að Íslendingar hafi hafnað Icesave samningunum. Nú kæmi það í hlut dómstóla að skera úr um málið. Íslendingar höfnuðu Icesave samningunum í þjóðaratkvæðagreiðslu í gær. "Ég er vonsvikinn yffir því að Icesave samningarnir hafi ekki náð í gegn. Þetta er ekki gott fyrir Ísland og ekki fyrir Hollendinga. Tími samningaumleitana er liðinn. Íslandi ber skylda til að greiða. Nú er það dómstólanna að skera úr um þetta,“ segir Jager í yfirlýsingu. Hann segir að Hollendingar muni ráðfæra sig við Breta um næstu skref í stöðunni. 10.4.2011 10:40
LOL komið í Oxford English Skammstöfunin LOL, sem þýðir á ensku „laughing out loud“, eða „að hlæja upphátt,“ er nýjasta viðbótin í ensku orðabók Oxford háskólans. 10.4.2011 10:00
Bretar ætla að ná Icesave peningunum aftur Danny Alexander, aðstoðarfjármálaráðherra Breta, lýsir yfir gríðarlegum vonbrigðum með lyktir þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Icesave í gær. Nú hafi verið reynt til þrautar að ná lausn í málinu með samningum. "Okkur ber skylda til þess að ná peningunum til baka og við munum halda áfram að reyna þangað til við náum þeim. Við erum í erfiðri fjárhagsstöðu sem þjóð og þessir peningar myndu hjálpa okkur,“ segir Alexander við BBC. 10.4.2011 09:35
Keikó vill verða forseti í Perú Keiko Fujimori, dóttir umdeilds fyrrverandi forseta í Perú, á samkvæmt skoðanakönnunum raunhæfa möguleika á öðru sætinu í forsetakosningum í Perú, sem haldnar verða á morgun. Reiknað er með að kosið verði milli tveggja efstu í seinni umferð kosninganna, sem haldnar yrðu í júní. 9.4.2011 15:30
Fimm létust í skotárás í Hollandi Fimm létust og ellefu særðust í skotárás í Hollandi í morgun. Árásarmaðurinn svipti sig lífi eftir árásina. Skotárásin varð í smábæ, um 25 kílómetrum frá Amsterdam. Bæjarstjórinn segir að maðurinn hafi skotið á fólkið með sjálfvirkri byssu og svo svipt sjálfan sig lífi. Ekki er vitað um ástæður verknaðarins. 9.4.2011 14:44
Bretar bíða spenntir eftir brúðkaupi Vilhjálms og Kate Bretar bíða spenntir eftir brúðkaupi ársins hinn 29. apríl þegar Vilhjálmur prins gengur að eiga unnustu sína, Kate Middleton. Enska biskupakirkjan biður fyrir því að hjónin verði hvort öðru trú. 9.4.2011 13:30
Samkomulag um fjárlög Repúblikanar og demókratar náðu í nótt samkomulagi um bráðabirgðafjárlög Bandaríkjanna, um klukkustund áður frestur til þess að samþykkja fjárlögin rann út. Samkomulag er um að skera niður um 38 milljarða bandaríkjatala á árinu allt til 30. september. Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, sagði af þessu tilefni að niðurskurðurinn yrði sársaukafullur. Hann sagði að um væri að ræða mesta niðurskurð í sögunni, en Bandaríkjamenn yrðu að fara að sníða sér stakk eftir vexti. 9.4.2011 09:32
Portúgal þarf 80 milljarða Fjármálafróðir embættismenn Evrópusambandsins munu sitja næstu vikurnar við að reikna út hve mikið fé portúgalska ríkið þarf í aðstoð frá ESB til að geta staðið við skuldbindingar sínar næstu mánuði og misseri. 9.4.2011 09:30
Gbagbo enn í byrginu sínu Enn ríkir óvissuástand á Fílabeinsströndinni þó Alassane Ouattara virðist hafa náð yfirráðum í landinu eftir fjögurra mánaða deilur í kjölfar forsetakosninga. Laurent Gbagbo, fráfarandi forseti, er enn í felum í neðanjarðarbyrgi undir forsetahöllinni. 9.4.2011 08:00