Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Örlagadagur runninn upp í Bandaríkjunum Örlagadagur er runninn upp í Bandaríkjunum því ef ekki næst samkomulag um fjárlög landsins fram á haustið mun stór hluti af hinu opinbera kerfi í Bandaríkjunum stöðvast á miðnætti. 8.4.2011 07:37
Skaut 12 börn til bana í grunnskóla í Brasilíu Þungvopnaður 24 ára gamall maður ruddist inn í grunnskóla í borginni Rio de Janeiro í Brasilíu í gærdag og skaut 12 börn til bana áður enn hann framdi sjálfsmorð. Um var að ræða fyrrum nemanda í skólanum. 8.4.2011 07:28
Leki kominn að öðru kjarnorkuveri í Japan Vatnsleki er kominn upp við annað kjarnorkuver í Japan. Um er að ræða Onagawa kjarnorkuverið í norðurausturhluta Japans en lekinn úr því hófst í kjölfar jarðsskjálfta upp á 7,4 á Richter sem reið yfir Japan í gærdag. 8.4.2011 07:25
Kínverjar framleiða fyrstu klámmyndina í þrívídd Kínverjar hafa riðið á vaðið og framleitt fyrstu þrívíddarklámmyndina í fullri lengd. Byrjað er að sýna myndina í Hong Kong og er fullt hús á hverri sýningu. 8.4.2011 07:22
Send heim í fjárlagadeilu Leiðtogar demókrata og repúblikana á Bandaríkjaþingi hafa fram á síðustu stundu ekki náð samkomulagi um fjárlög ársins. 8.4.2011 06:00
Talið að áhorfsmet falli Nú styttist óðum í hið konunglega brúðkaup Vilhjálms Bretaprins og Kate Middleton. Talið er að allt að tveir milljarðar manna um allan heim muni fylgjast með brúðkaupinu í beinni útsendingu í sjónvarpi eða á netinu. Þetta sagði talsmaður breska forsætisráðuneytisins í samtali við Reuters-fréttastofuna í dag. Um 750 milljónir manna fylgdust með brúðkaupi Díönu og Karls Bretaprins árið 1981, en talið er að áhorfsmet verði slegið. 7.4.2011 22:09
Neita að hafa haldið stúlku í kynlífsþrælkun í 18 ár Hjón á sextugsaldri í Kaliforníu neita að hafa rænt 11 ára stúlku árið 1991 og haldið henni í kynlífsþrælkun í 18 ár. Maðurinn, sem er dæmdur kynferðisbrotamaður, mun hafa nauðgað stúlkunni sem ól honum tvö börn. 7.4.2011 20:30
Reiði í Brasilíu vegna siðblinds kvikindis Að minnsta kosti 13 eru látnir eftir að maður hóf skothríð í grunnskóla í Ríó De Janeiro. Árásarmaðurinn er einn hinna látnu. Talið er hann sé fyrrverandi nemandi við skólann sem tekur nemendur frá 10 til 15 ára aldurs. 7.4.2011 19:56
Stór skjálfti í Japan - varað við flóðbylgju Stór jarðskjálfti, 7,4 stig á Ricther reið yfir Japan í dag. Skjálftinn átti upptök sín undan ströndum Miyagi héraðs að því er fram kemur hjá CNN fréttastofunni. Flóðbylgjuviðvörun hefur verið gefin út og er talið að bylgjan gæti orðið um meter á hæð. Því eru íbúar hvattir til að færa sig frá ströndinni. Tæpur mánuður er liðinn frá því risaskjálfti, níu stig, reið yfir sama svæði með skelfilegum afleiðingum. 7.4.2011 14:57
Þrettán létust í skotárás í brasilískum skóla Að minnsta kosti þrettán liggja í valnum eftir að byssumaður hóf skothríð í skóla í Rio De Janeiro í Brasilíu í dag. Árásarmaðurinn er á meðal hinna látnu en óljóst er hvort hann hafi fallið fyrir kúlum lögreglunnar eða hvort hann hafi framið sjálfsmorð að ódæðinu loknu. 7.4.2011 14:39
Lögreglan leitar að tvíburaníðingi Breskur barnaníðingur sem var á flótta í Evrópu var í gær handtekinn af frönsku lögreglunni. Hann hafði verið látinn laus úr fangelsi en var á skilorði sem bannaði honum að fara úr landi. Hann lagði þá á flótta ásamt tvíburabróður sínum, sem einnig er eftirlýstur fyrir sömu sakir. Lögreglan breska hefur farið fram á að maðurinn verði framseldur til Bretlands en tvíburabróðursins er enn leitað. 7.4.2011 14:24
Þarf sex hárgreiðslumenn Hin tilvonandi prinsessa Kate Middleton ætlar ekki að ganga með úfið hár inn kirkjugólfið 29. apríl næstkomandi, því hún hefur ráðið heila sex hárgreiðslumenn til að sjá um hárið sitt þennan merkisdag. 7.4.2011 13:30
Mér leið hræðilega og ég hafði ekkert að borða "Ég kom með ömmu minni í síðustu viku þegar bardagamennirnir komu. Þeir sögðu konum og börnum að fara til kaþólsku trúboðsstöðvarinnar. Við höldum að þeir hafi haldið karlmönnunum eftir til að drepa þá. Mér leið hræðilega og ég hafði ekkert að borða. Ég varð að sofa úti. Ég hef engin föt, bara einar buxur. Þar sem Barnaheill - Save the Children gáfu okkur hrísgrjón í vikunni, hef ég eitthvað að borða núna," segir 14 ára drengur í Duekoué á Fílabeinsströndinni. Hættuástand breiðist nú út á Fílabeinsströndinni og staða barna versnar með degi hverjum. Stórfelldur flótti almennings gerir það að verkum að tugir þúsunda svelta og smithætta eykst. Barnaheill - Save the Children segja að ef ekki komi til stórfelld mannúðaraðstoð, geti sjúkdómar lagt af velli berskjölduð og vannærð börn. Í bænum Duekoué í vestri, þar sem meint fjöldamorð á hundruðum manna á að hafa átt sér stað, hafa að minnsta kosti 27 þúsund manns þurft að flýja, margir af þeim börn. Þau, og fjölskyldur þeirra, hafa leitað skjóls í og í kringum opinberar byggingar, eins og kirkjur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Barnaheill. Hvarvetna í landinu er brýn þörf fyrir mannúðaraðstoð. Í verslunarborginni Abidjan, hafa hatrömm átökin leitt til skorts á vatni, matvælum og lyfjum. Mörgum sjúkrahúsum og heilsugæslustöðvum hefur verið lokað, eða hafa einangrast vegna átakanna, þar sem lyfjabirgðir eru litlar. Þegar áður en síðustu átök hófust í Abidjan, höfðu fjölskyldur ekki þau lyf sem þær þurftu eða aðgang að læknum til að hjálpa veikum börnum sínum. Móðir ein, sem flúði frá Abobo í Abidjan, sagði starfsfólki Barnaheilla - Save the Children að lyktin af líkum ylli henni enn, mörgum vikum eftir flóttann, höfuðverk en hún hefði engin lyf til að bæta úr því. Dóttir hennar var með hita og móðirin óttaðist að um malaríu væri að ræða en gat ekki fullvissað sig um það þar sem þær komust ekki á heilsugæslustöð. Í Bouaké í norðri, hefur flóð flóttamanna frá átökunum í Abidjan, leitt til þess að allt upp í 80 manns hafa þurft að deila einu húsi. Barnaheill - Save the Children segja að ef ekki komi til stórfelld mannúðaraðstoð, geti sjúkdómar lagt af velli berskjölduð og vannærð börn. Jafnvel áður en átökin hófust, lést eitt af hverjum tíu börnum á Fílabeinsströndinni fyrir fimm ára afmælið sitt, flest úr sjúkdómum sem auðveldlega má koma í veg fyrir, svo sem niðurgangur og malaría. 7.4.2011 10:40
Viðræður geta hafist í lok júní Eiginlegar aðildarviðræður Íslands og Evrópusambandsins geta hafist í lok júní, að því er Stefan Füle, stækkunarstjóri ESB, sagði í yfirlýsingu í gær. „Þetta er metnaðarfull en framkvæmanleg tímaáætlun þegar allir aðilar eru staðráðnir í að halda áfram,“ segir í yfirlýsingunni. 7.4.2011 10:00
Tveir milljarðar manna munu horfa á brúðkaupið Búist er við því að tveir milljarðar manna um allan heim muni verða límdir við sjónvarpsskjái eftir þrjár vikur þegar Vilhjálmur Bretaprins og Kate Middleton ganga í það heilaga. Þá er talið að um 500 þúsund manns muni flykkjast út á götur Lundúnaborgar til að berja prinsinn og brúði hans augum. 7.4.2011 09:33
Svona er hinn fullkomni dagur - sjón er sögu ríkari Suma daga gengur hreinlega ekkert upp og allt virðist vonlaust. En stundum er eins og þú sért óstöðvandi og allt sem þú tekur þér fyrir hendur gengur fullkomlega upp. Félagarnir Thomas Becker and Sebastian Stahlhofen hjá Patience Productions tóku sig til og gerðu myndband sem á að endurspegla hinn fullkomna dag. Þó er heldur ólíklegt að nokkur lendi í því að allt gangi jafn ótrúlega vel og þarna sést. En sjón er sögu ríkari. 7.4.2011 09:30
Réttarhöld yfir Berlusconi: Fjölmiðlar sagðir valda tjóni Marokkóska stúlkan Karima El Mahroug segir að umfjöllun fjölmiðla hafi valdið sér miklu tjóni en heldur fast við fyrri yfirlýsingar sínar um að hafa aldrei sængað hjá Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu. 7.4.2011 09:00
Gaddafi sendi Obama sérkennilegt bréf Bandaríska stórblaðið New York Times hefur komist yfir sérkennilegt bréf sem Muammar Gaddafi leiðtogi Líbíu hefur sent til Barack Obama bandaríkjaforseta. 7.4.2011 07:50
Leita enn að 130 manns eftir að bát hvolfdi Leit sendur enn yfir að 130 Túnisbúum sem voru á bát á leið til Möltu þegar honum hvolfdi síðdegis í gærdag um 60 kílómetra frá strönd eyjunnar. 7.4.2011 07:45
Slá minjapeninga um konunglegt brúðkaup Konunglega kanadíska myntsláttan hefur ákveðið að gefa út sérstaka minjapeninga í tilefni af brúðkaupi þeirra Villiams prins og Kate Middleton í Bretlandi. 7.4.2011 07:41
Kínverjar ásaka þekktan listamann um fjármálaglæpi Kínverska lögreglan hefur hafið rannsókn á listamanninum Ai Weiwei vegna meintra fjármálaglæpa hans. 7.4.2011 07:37
Hafsbotnin færðist til um 24 metra í jarðskjálftanum í Japan Nýjar mælingar á vegum japönsku strandgæslunnar sýna að hafsbotninn hefur fluttst til um 24 metra skammt frá upptökum jarðskjálftans mikla fyrr í vetur. 7.4.2011 07:18
Barist var um byrgi Gbagbos Hörð átök voru í gær í Abidjan, stærstu borg Fílabeinsstrandarinnar, þar sem liðsmenn Alassane Ouattara, réttkjörins forseta, sóttu að Laurent Gbagbo, sem neitaði enn að láta af völdum. 7.4.2011 05:30
Fer reglulega í útreiðatúra á kú Þegar foreldrar Reginu Meyer vildu ekki gefa henni hest fór hún ekki í fýlu eins og margir unglingar hefðu gert. Hún fór út í haga á bóndabænum þeirra í Þýskalandi og sótti kúna Lúnu. Það tók tvö ár fyrir þær að ná saman en núna söðlar Regína kúna reglulega og fer á henni í útreiðartúra. Lúna stekkur jafnvel yfir hindranir ef hún er í góðu skapi. Þetta hefur valdið nokkrum ruglingi í dýrheimum um hverskonar skepna Lúna er eiginlega. 6.4.2011 20:19
Fá ekki ríkisborgararétt Hæstiréttur Frakklands hefur staðfest úrskurð um að börn sem fædd eru af erlendum staðgöngumæðrum fái ekki franskan ríkisborgararétt. Undirréttur hafði fellt dóm í máli tvíburasystra sem bandarísk staðgöngumóðir hafði fætt. Foreldrarnir voru franskir. Undirréttur neitaði að skrá systurnar í frönsku þjóðskrána en það er forsenda þess að þær fái ríkisborgararétt. Staðgöngumæðrun er bönnuð í Frakklandi, hvort sem er í góðgerðar eða ábataskyni. 6.4.2011 20:45
Danskar herþotur í loftvarnaskothríð yfir Líbíu Danskar F-16 herþotur sem taka þátt í aðgerðunum gegn hersveitum Gaddafís í Líbíu hafa nokkrum sinnum lent í skothríð frá loftvarnarbyssum stjórnarhermanna. Yfirmaður dönsku flughersveitarinnar sem staðsett er á Sikiley segir í samtali við Extrabladet að engin vél hafi enn orðið fyrir skoti. Hann segir að vélarnar fljúgi í svo mikilli hæð að litlar líkur séu á því að kúlur loftvarnabyssanna nái upp til þeirra. 6.4.2011 13:37
Maður gelti á hund Það þykir meiri frétt að maður bíti hund en að hundur bíti mann. Lögreglan í Ohio hefur handtekið mann og ákært hann fyrir að gelta á lögregluhund. Hundurinn var aftur í lögreglubíl og hafði verið skilinn þar eftir meðan lögregluþjónninn sinnti umferðarlagabroti. 6.4.2011 12:32
Gaddafi skrifar Barack Obama Hin opinbera fréttastofa Líbíu segir að Moammar Gaddafi hafi sent Barack Obama skilaboð. Þau eru sögð í tilefni af því að Bandaríkjamenn hafi dregið sig út úr því sem leiðtoginn kallar krossferð nýlenduríkja gegn Líbíu. 6.4.2011 12:15
Japanskir sjómenn óttast um lifibrauð sitt Sjómenn í Fukushima, sem margir hverjir misstu bæði heimili sitt og fiskibáta, óttast nú að geislamengun í hafinu muni eyðileggja lifibrauð þeirra. "Jafnvel þótt stjórnin segi að fiskurinn sé öruggur, þá mun fólk ekki vilja kaupa fisk frá Fukushima,“ segir Ichiro Yamagata, sjómaður sem bjó í næsta nágrenni við kjarnorkuverið í Fukushima. "Sennilega getum við ekki veitt fisk næstu árin.“ 6.4.2011 11:00
Svíadrottning slasaðist á flótta undan ljósmyndara Sænska Aftonbladet hefur beðist afsökunar á aðgangshörku blaðamanns síns og ljósmyndara sem varð þess valdandi að Sylvía drottning datt og meiddist á hönd og fæti. 6.4.2011 10:08
Karlmenn yfir fimmtugu vanmetnir Jonas Gahr Støre, utanríkisráðherra Noregs, verður að öllum líkindum kosinn í stjórn norska Verkamannaflokksins á landsfundi flokksins um helgina. Dagblaðið Aftenposten segir að kjör hans yrði mjög umdeilt. Mörgum finnst rangt að kjósa karlmann yfir fimmtugu frá höfuðborginni inn í ráðið. 6.4.2011 10:01
Árás gerð á forsetahöll Fílabeinsstrandarinnar Frönsk stjórnvöld segja að liðsmenn Alassanes Qattara hafi í morgun gert árás á forsetahöllina á Fílabeinsströndinni þar sem Laurent Gbagbo þráast við að gefast upp. 6.4.2011 09:41
Raðmorðingi í New York-ríki Lík átta kvenna hafa nú fundist með stuttu millibili á strönd við New York. Lögreglan á svæðinu telur nú að um raðmorðingja sé að ræða. Frá þessu er greint á fréttavef BBC. 6.4.2011 09:30
Hið opinbera að lamast í Bandaríkjunum Ekkert gengur né rekur í samningum Barack Obama bandaríkjaforseta og leiðtoga á bandaríska þinginu um fjárlög landsins fram til september. 6.4.2011 07:52
Berlusconi sleppur við málaferli í Mílanó Meirihluti í neðri deild ítalska þingsins hefur samþykkt tillögu sem leiðir til þess að Silvio Berlusconi forsætisráðherra landsins sleppur við málaferli um kynferðisafbrot fyrir dómstóli í Mílanó. 6.4.2011 07:49
Hafna boði um skaðabætur vegna Fukushima kjarnorkuversins Bæjarfélagið Naime í Japan hefur hafnað skaðabótum sem Tepco, eigandi kjarnorkuversins í Fukushima hefur boðið þeim vegna lekans á geislavirkum efnum frá verinu. 6.4.2011 07:40
Vilja grafa Monu Lisu upp Ítalskir sérfræðingar undir forystu sagnfræðingsins Silvano Vinceti hafa tilkynnt að þeir hyggist grafa upp lík kaupmannsfrúarinnar Lisu Gherardiní sem talin er hafa verið fyrirmyndin að hinu þekkta verki Mona Lisa sem Leonardo da Vinci málaði á 16. öld. 6.4.2011 07:27
Aftöku frestað í annað sinn í Texas Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur frestað í annað sinn aftökunni á hinum 47 ára gamla Clive Foster í Texas. Hún átti að fara fram í nótt. 6.4.2011 07:20
Gbagbo hrökklast frá völdum Laurent Gbagbo hafði hreiðrað um sig í kjallarabyrgi ásamt fjölskyldu sinni í gær, umkringdur herliði andstæðinga sinna, en neitaði fram á síðustu stundu að semja um brotthvarf sitt frá völdum. Stjórnarherinn var hættur að berjast gegn liði uppreisnarmanna en leiðtogi þeirra lagði áherslu á að hann kæmist frá átökunum lifandi. 6.4.2011 06:00
Uppreisnarmenn í Líbíu vilja selja fleirum olíu Uppreisnarmenn í Líbíu vilja selja olíu til fleiri ríkja en Katar. Ennfremur krefjast þeir að Sameinuðu þjóðirnar aflétti banni á útflutningi á olíu frá landinu svo hægt verði að fjármagna neyðarhjálp til íbúa sem búa á svæðum uppreisnarmanna. 5.4.2011 21:31
Fékk loksins trúlofunarhring eftir 65 ára hjónaband Bandaríkjamaðurinn Everett Potter á skammt eftir ólifað og hans hinsta ósk var að gefa eiginkonu sinni til 65 ára trúlofunarhring. Everett hafði nefnilega ekki efni á að kaupa einn slíkan á sínum tíma. 5.4.2011 20:32
Stríðinu á Fílabeinsströndinni virðist vera að ljúka Stríðinu á Fílabeinsströndinni virðist vera að ljúka eftir að Frakkar gerðu harðar loftárásir á hersveitir Laurents Gbagbos í gærkvöldi. 5.4.2011 18:46
Forsetinn felur sig í kjallaranum Forseti Fílabeinsstrandarinnar Laurent Gbagbo, felur sig nú í kjallara forsetahallarinnar í Abidjan en hersveitir uppreisnarmanna sitja um höllina. Gbagbo hefur neitað að láta af embætti þrátt fyrir að hafa tapað í forsetakosningunum fyrir nokkru. Hersveitir Alessane Outtara sem sigraði í kosningunum hafa nú töglin og hagldirnar í landinu að því er virðist og þess skammt að bíða að Gbagbo gefist upp, að því er fram kemur á BBC. 5.4.2011 13:27
Til í aðra kóran-brennu Bandaríski klerkurinn Terry Jones segist ekki iðrast þess að hafa kveikt í kóraninum þótt sá gjörningur hafi kostað þrjátíu manns lífið og skilið 150 eftir særða. 5.4.2011 12:21
Líbíska konan fundin Líbíska konan sem sakaði hermenn Gaddafis um hópnauðgun hvarf af sjónarsviðinu eftir að hún var dregin út af hóteli vestrænna fréttamanna í síðustu viku. 5.4.2011 12:17