Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Japanskir sjómenn óttast um lifibrauð sitt Sjómenn í Fukushima, sem margir hverjir misstu bæði heimili sitt og fiskibáta, óttast nú að geislamengun í hafinu muni eyðileggja lifibrauð þeirra. "Jafnvel þótt stjórnin segi að fiskurinn sé öruggur, þá mun fólk ekki vilja kaupa fisk frá Fukushima,“ segir Ichiro Yamagata, sjómaður sem bjó í næsta nágrenni við kjarnorkuverið í Fukushima. "Sennilega getum við ekki veitt fisk næstu árin.“ 6.4.2011 11:00
Svíadrottning slasaðist á flótta undan ljósmyndara Sænska Aftonbladet hefur beðist afsökunar á aðgangshörku blaðamanns síns og ljósmyndara sem varð þess valdandi að Sylvía drottning datt og meiddist á hönd og fæti. 6.4.2011 10:08
Karlmenn yfir fimmtugu vanmetnir Jonas Gahr Støre, utanríkisráðherra Noregs, verður að öllum líkindum kosinn í stjórn norska Verkamannaflokksins á landsfundi flokksins um helgina. Dagblaðið Aftenposten segir að kjör hans yrði mjög umdeilt. Mörgum finnst rangt að kjósa karlmann yfir fimmtugu frá höfuðborginni inn í ráðið. 6.4.2011 10:01
Árás gerð á forsetahöll Fílabeinsstrandarinnar Frönsk stjórnvöld segja að liðsmenn Alassanes Qattara hafi í morgun gert árás á forsetahöllina á Fílabeinsströndinni þar sem Laurent Gbagbo þráast við að gefast upp. 6.4.2011 09:41
Raðmorðingi í New York-ríki Lík átta kvenna hafa nú fundist með stuttu millibili á strönd við New York. Lögreglan á svæðinu telur nú að um raðmorðingja sé að ræða. Frá þessu er greint á fréttavef BBC. 6.4.2011 09:30
Hið opinbera að lamast í Bandaríkjunum Ekkert gengur né rekur í samningum Barack Obama bandaríkjaforseta og leiðtoga á bandaríska þinginu um fjárlög landsins fram til september. 6.4.2011 07:52
Berlusconi sleppur við málaferli í Mílanó Meirihluti í neðri deild ítalska þingsins hefur samþykkt tillögu sem leiðir til þess að Silvio Berlusconi forsætisráðherra landsins sleppur við málaferli um kynferðisafbrot fyrir dómstóli í Mílanó. 6.4.2011 07:49
Hafna boði um skaðabætur vegna Fukushima kjarnorkuversins Bæjarfélagið Naime í Japan hefur hafnað skaðabótum sem Tepco, eigandi kjarnorkuversins í Fukushima hefur boðið þeim vegna lekans á geislavirkum efnum frá verinu. 6.4.2011 07:40
Vilja grafa Monu Lisu upp Ítalskir sérfræðingar undir forystu sagnfræðingsins Silvano Vinceti hafa tilkynnt að þeir hyggist grafa upp lík kaupmannsfrúarinnar Lisu Gherardiní sem talin er hafa verið fyrirmyndin að hinu þekkta verki Mona Lisa sem Leonardo da Vinci málaði á 16. öld. 6.4.2011 07:27
Aftöku frestað í annað sinn í Texas Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur frestað í annað sinn aftökunni á hinum 47 ára gamla Clive Foster í Texas. Hún átti að fara fram í nótt. 6.4.2011 07:20
Gbagbo hrökklast frá völdum Laurent Gbagbo hafði hreiðrað um sig í kjallarabyrgi ásamt fjölskyldu sinni í gær, umkringdur herliði andstæðinga sinna, en neitaði fram á síðustu stundu að semja um brotthvarf sitt frá völdum. Stjórnarherinn var hættur að berjast gegn liði uppreisnarmanna en leiðtogi þeirra lagði áherslu á að hann kæmist frá átökunum lifandi. 6.4.2011 06:00
Verður tekin af lífi fyrir að ræna barni úr móðurkviði Lisa Montgomery, sem myrti ólétta konu og rændi ófæddu barni hennar úr móðurkviði skömmu fyrir jólin 2004, verður tekin af lífi. Þetta liggur fyrir eftir að dómari hafnaði í dag beiðni Lisu um að mál hennar yrði tekið upp á nýjan leik. 5.4.2011 21:05
Uppreisnarmenn í Líbíu vilja selja fleirum olíu Uppreisnarmenn í Líbíu vilja selja olíu til fleiri ríkja en Katar. Ennfremur krefjast þeir að Sameinuðu þjóðirnar aflétti banni á útflutningi á olíu frá landinu svo hægt verði að fjármagna neyðarhjálp til íbúa sem búa á svæðum uppreisnarmanna. 5.4.2011 21:31
Fékk loksins trúlofunarhring eftir 65 ára hjónaband Bandaríkjamaðurinn Everett Potter á skammt eftir ólifað og hans hinsta ósk var að gefa eiginkonu sinni til 65 ára trúlofunarhring. Everett hafði nefnilega ekki efni á að kaupa einn slíkan á sínum tíma. 5.4.2011 20:32
Stríðinu á Fílabeinsströndinni virðist vera að ljúka Stríðinu á Fílabeinsströndinni virðist vera að ljúka eftir að Frakkar gerðu harðar loftárásir á hersveitir Laurents Gbagbos í gærkvöldi. 5.4.2011 18:46
Forsetinn felur sig í kjallaranum Forseti Fílabeinsstrandarinnar Laurent Gbagbo, felur sig nú í kjallara forsetahallarinnar í Abidjan en hersveitir uppreisnarmanna sitja um höllina. Gbagbo hefur neitað að láta af embætti þrátt fyrir að hafa tapað í forsetakosningunum fyrir nokkru. Hersveitir Alessane Outtara sem sigraði í kosningunum hafa nú töglin og hagldirnar í landinu að því er virðist og þess skammt að bíða að Gbagbo gefist upp, að því er fram kemur á BBC. 5.4.2011 13:27
Til í aðra kóran-brennu Bandaríski klerkurinn Terry Jones segist ekki iðrast þess að hafa kveikt í kóraninum þótt sá gjörningur hafi kostað þrjátíu manns lífið og skilið 150 eftir særða. 5.4.2011 12:21
Líbíska konan fundin Líbíska konan sem sakaði hermenn Gaddafis um hópnauðgun hvarf af sjónarsviðinu eftir að hún var dregin út af hóteli vestrænna fréttamanna í síðustu viku. 5.4.2011 12:17
Leita að raðmorðingja skammt frá New York Rannsóknarlögreglumenn hafa nú fundið átta lík við ströndina skammt frá New York. Lögreglan í Suffolk sýslu telur að raðmorðingi gangi laus í sýslunni. 5.4.2011 07:35
Mæla geislavirkni í skólum í Fukushima Yfirvöld í Fukushima héraði hafa sett í gang neyðaráætlun sem miðaðar að því að geislamæla öll skólahús og skólalóðir í héraðinu. 5.4.2011 07:24
Sweet Micky líklega næsti forseti Haítí Fyrstu niðurstöður í seinni umferð forsetakosninganna á Haítí benda til að tónlistarmaðurinn Michel Martelly hafi náð kjöri. 5.4.2011 07:20
Uppreisnarmenn í Líbíu flytja út olíu Von er á olíuflutningaskipinu Equador til hafnar í Tobruk í Líbíu í dag en skipið mun lesta þar olíufarm. Um er að ræða fyrsta útflutning á olíu frá Líbíu á vegum uppreisnarmanna en þeir hafa Tobruk á sínu valdi. 5.4.2011 07:15
A fólk hefur hærri laun en B fólkið Það getur verið dýrkeypt að tilheyra svokölluðum B-hópi fólks. Þeir sem tilheyra A-hópnum hafa að meðaltali 7% hærri laun. 5.4.2011 07:02
Ætlar að safna milljarði dala Barack Obama og Joe Biden tilkynntu í gær að þeir ætluðu að gefa kost á sér til annars kjörtímabils sem forseti og varaforseti Bandaríkjanna. 5.4.2011 06:00
Reynt að ná flakinu upp Allt að mánuður getur liðið þangað til hægt verður að hefja vinnu við að ná flaki franskrar Airbus-farþegaþotu af botni Atlantshafsins, þar sem það hefur legið á 3.900 metra dýpi síðan vélin hrapaði í júní 2009. 5.4.2011 04:00
Réttað yfir hryðjuverkamönnum á Kúbu Réttarhöldin yfir Kahlid Sheikh Mohammed, sem hefur viðurkennt að hafa skipulagt hryðjuverkaárásirnar á Bandaríkin í september árið 2001, fara fram í herdómstóli í Guantanamó á Kúbu. 4.4.2011 21:26
Uppreisnarmenn reyndu að brjóta sér leið inn í Brega Bardagar í Líbíu halda áfram að vera ruglingslegir. Uppreisnarmenn reyndu að brjóta sér leið inn í borgina Brega í dag, en liðsmenn Moammars Gaddafis veittu harða mótspyrnu. 4.4.2011 19:53
Tíu fórust í flugslysi Að minnsta kosti tíu fórust þegar flugvél hrapaði við flugvöllinn í Kinshasa í Kongó í dag. Vélin var á vegum Sameinuðu þjóðanna og brotnaði hún í tvennt þegar hún brotlenti á flugbrautinni að því er vitni segja í samtali við BBC. Vélin mun hafa verið að koma frá norðausturhluta landsins en óljóst er enn hvað olli slysinu. Að minnsta kosti 16 slösuðust að því er fram kemur hjá Reuters. 4.4.2011 16:22
Norðmenn halda til sjóræningjaveiða Norðmenn ætla að blanda sér í baráttuna við sjóræningja undan ströndum Sómalíu með afgerandi hætti. Þeir ætla að senda fjögurra hreyfla Orion eftirlitsflugvél til Afríku en það eru fullkomnustu eftirlitsvélar sem völ er á. 4.4.2011 12:33
Þakhluti rifnaði af Boeing þotu Skelfing greip um sig meðal farþega í Boeing 737-300 þotu í Bandaríkjunum um helgina þegar hluti af þaki hennar rifnaði af. Vélin var á leið frá Phoenix til Sakramento með 123 farþega innanborðs. Farþegarnir sem voru næst gatinu segjast hafa séð í bláan himininn. 4.4.2011 11:07
Obama og Biden aftur í framboð Barack Obama og Joe Biden varaforseti hafa tilkynnt að þeir munu báðir verða í framboði í forsetakosningunum árið 2012. Bandaríska fréttastofan CNN segir að þeir félagar hafi tilkynnt um þetta í fyrra lagi til þess að geta byrjað að safna strax safna fé til kosningabaráttunnar. 4.4.2011 10:48
Nemendur og foreldrar kunna illa að taka tapi í kappleikjum Breskir grunnskólanemar kunna því afar illa að taka tapi í kappleikjum. Foreldrar þeirra eru ekkert skárri hvað þetta varðar. 4.4.2011 07:59
Bandaríkjamenn gefast upp á forseta Jemen Bandarísk stjórnvöld hafa gefist upp á Ali Abdullah Saleh forseta Jemen og ætla að hætta stuðningi sínum við hann. 4.4.2011 07:53
Lindsey Lohan leikur Sharon Tate Leikkonan Lindsey Lohan hefur fengið nýtt hlutverk í kvikmynd þar sem Charles Manson gengið kemur við sögu. 4.4.2011 07:49
Fundu brak úr Air France þotu sem fórst fyrir tveimur árum Búið er að finna brak úr farþegaþotu Air France sem fórst yfir Atlantshafi fyrir tveimur árum síðan með 228 manns innanborðs. 4.4.2011 07:47
Geislavirkur leki frá Fukushima stöðvaður með dagblaðatætlum Starfsmennirnir sem berjast við afleiðingar kjarnorkuslyssins í Fukushima kjarnorkuverinu einbeittu sér að því um helgina að stöðva leka á geislavirku vatni úr verinu og út í Kyrrahafið. 4.4.2011 07:38
Líbískur ráðherra ræðir við grísk stjórnvöld Abdul Obeidi aðstoðarutanríkisráðherra Líbýu er nú staddur í Grikklandi. Hann ræddi í gærkvöldi við Papandreou, forsætisráðherra Grikklands. 4.4.2011 07:19
Snarpur jarðskjálfti suður af Jövu Allsnarpur jarðskjálfti um 300 kílómetra suður af eyjunni Jövu í gærkvöldi olli því að flóðbylgjuviðvörun var gefin út um sunnanverða Indónesíu. 4.4.2011 07:17
Þúsundir Dana skoðuðu búrhvalsreka um helgina Þúsundir Dana hafa eytt helginni við að skoða búrhvalsreka skammt norður af Ringköbing á Vestur Jótlandi. 4.4.2011 07:01
Fundu geislavirk lík starfsmanna Lík tveggja starfsmanna Fukushima Daiichi kjarnorkuversins, sem létust þegar flóðbylgja skall á verið í hamförunum í Japan fyrir rúmum þremur vikum, fundust á miðvikudag. Tilkynnt var um fundinn í gær, en eyða þurfti skaðlegum efnum úr líkunum áður en hægt var að skila þeim til fjölskyldna fórnarlambanna. 4.4.2011 05:30
Bónusgreiðslur fyrir öryggismál Fyrirtækið Transocean hefur veitt helstu yfirmönnum sínum veglegar bónusgreiðslur í tilefni góðs árangur í öryggismálum á síðasta ári. Transocean bar ábyrgð á rekstri olíuborpalls British Petroleum (BP) á Mexíkóflóa þar sem leki olli miklu umhverfisslysi í apríl á síðasta ári og hefur, ásamt BP og olíufélaginu Halliburton-olíufélaginu, verið kennt um slysið og mengunina undan ströndum Mexíkó og Bandaríkjanna. Frá þessu er sagt á vefsíðu BBC. 4.4.2011 04:45
Vill rannsókn á blóðbaðinu á Fílabeinsströndinni Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, Ban Ki-Moon vill að forseti Fílabeinsstrandarinnar, sem Sameinuðu þjóðirnar telja réttkjörinn, rannsaki fjöldamorð sem voru framin á tveimur dögum í bænum Duekoue í vikunni. 3.4.2011 17:07
Hryðjuverk í Pakistan - 41 látinn 41 létust í Punjab í Pakistan í dag þegar sjálfsmorðshryðjuverkamaður sprengdi sig sjálfan í loft upp nærri hofi þar sem Sufi-múslimar héldu upp á þriggja daga helgiathöfn. 3.4.2011 16:59
Keyrði niður rafmagnsstaur og kveikti í tveimur bílum Áttræð kona olli eldsvoða þegar hún ók á rafmagnsstaur á Long Island í New York fylki í gærdag. Rafmagnsstaurinn féll niður og olli eldsvoða sem teygði sig í tvo kyrrstæða bíla. Kalla þurfti á slökkviliðið sem slökkti eldana. 3.4.2011 15:50
Frakkar fjölga hermönnum á Fílabeinsströndinni Frakkar hafa fjölgað hermönnum á Fílabeinsströndinni þar sem hörð átök geysa á milli fylgismanna forseta landsins Laurent Gbagbo og mannsins sem sigraði hann í síðustu forsetakosningum, Alassane Ouattara. 3.4.2011 12:11