Fleiri fréttir

Dagar Wolfowitz sagðir taldir

Enn einn fundurinn verður haldinn í stjórn Alþjóðabankans í dag um örlög bankastjórans Pauls Wolfowitz en flest bendir nú til að hann muni láta af störfum.

Barnaníðingar stöðvaðir

Lögregla í Frakklandi og Belgíu hefur handtekið þrjá menn sem voru komnir á fremsta hlunn með að ræna belgískri telpu og misþyrma henni.

Sýknaður af morði á Miðnesheiði

Herdómstóll í Bandaríkjunum sýknaði í gær hermann sem ákærður var fyrir morð á félaga sínum á varnarsvæðinu á Miðnesheiði í ágúst 2005, þrátt fyrir að sterkar vísbendingar væru fyrir sekt hans.

Hamas hóta sjálfsmorðsárásum

Hamas samtökin hótuðu því í morgun að hefja aftur sjálfsmorðsárásir gegn Ísrael eftir að ísraelski herinn gerði loftárásir á einar af höfuðstöðvum Hamas á Gaza svæðinu í morgun. „Þetta er opinber stríðsyfirlýsing gegn Hamas. Allir möguleikar standa nú opnir og þar á meðal sjálfsmorðsárásir.“ sagði talsmaður Hamas, Abu Ubaida, í dag.

Warhol verk fór á 4,5 milljarða

Málverk eftir Andy Warhol var selt á 71,7 milljónir dollara á uppboði hjá christie's í New York. Þetta er hæsta verð sem greitt hefur verið fyrir verk eftir Warhol. Í íslenskum krónum er upphæðin um 4,5 milljarðar.

Ísraelar gerðu loftárásir á Gaza

Ísraelski herinn gerði í morgun loftárásir á Gaza. Fólk sem býr í nágrenni við húsið sem ráðist var sagði að Hamas samtökin hefðu þar aðstöðu. Talsmaður ísraelska hersins staðfesti árásina við fjölmiðla. Þá ákærðu yfirvöld í Ísrael í morgun Palestínumann fyrir að hafa lagt á ráðin um að myrða Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels.

Eistar saka Rússa um netárásir

Eistar hafa sakað Rússa um að standa fyrir netárásum á vefþjóna ríkisstjórnarinnar og nokkura dagblaða í landinu. Ef rétt reynist, er þetta í fyrsta sinn sem að ríki ræðst gegn öðru með þessum hætti.

Kosið til þings í Alsír

Þingkosningar fara fram í Alsír í dag. Talið er líklegt að stjórnin sem nú er við völd haldi meirihluta. Hún samanstendur af flokknum sem barðist fyrir sjálfstæði landsins, FLN, lýðræðisflokknum RND og hófsömum íslömskum flokki, MSP. Einum stærsta flokk landsins er þó bannað að bjóða fram en það er flokkur róttækra múslima.

Rússi tekinn til yfirheyrslu vegna Madeleine

Lögregla í Portúgal hefur tekið 22 ára rússa til yfirheyrslu vegna hvarfsins á Madeleine McCann. Maðurinn er tölvunarfræðingur og kunningi Roberts Murat sem yfirheyrður var fyrr í vikunni. Hann hjálpaði Murat meðal annars við að setja upp internetsíðu. Sky fréttastofan greinir frá því að lögregla hafi leitað á heimili mannsins sem heitir Sergey Malinka. Hann býr í hverfi innan Praia de Luz, þaðan sem Madelein hvarf fyrir tveimur vikum.

Blása af kenningu um ísöld í N-Evrópu

Loftslagsfræðingar sem óttast hafa að hlýnun loftslags gæti haft þau þverstæðu áhrif að loftslag í Norðvestur Evrópu yrði kaldara, eru nú hættir að hafa áhyggjur af því. Á tímabili var því haldið fram að möguleiki væri á lítill ísöld á svæðinu. Sú kenning hefur tekið bólfestu í huga almennings segir í New York Times í dag.

Uppgötva gen sem örvar hárvöxt

Hingað til hefur því verið trúað að ekki væri hægt að laga skemmda hársekki sem hætt hafa að framleiða hár. Lið vísindamanna í Háskóla í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum hafa þróað nýjar hárfrumur í músum. Þeir segja að hægt sé að örva hárvöxt með einu geni.

Stjórnarskrá ESB er brýnt verkefni

Nicolas Sarkosy forseti Frakklands sagði í dag að brýnt væri að koma Evrópusambandinu úr stjórnarskrárlegri „lömun.“ Ummælin lét hann falla á fundi með Angelu Merkel kanslara Þýskalands í Berlín. Þjóðverjar fara með formennsku í Evrópusambandinu og G8 hópnum.

Gordon Brown verður næsti forsætisráðherra Breta

Sky sjónvarpsstöðin skýrði frá því fyrir stundu að Gordon Brown yrði næsti forsætisráðherra Bretlands og formaður Verkamannaflokksins. Þetta varð ljóst þegar Andrew MacKinlay, einn þingmanna flokksins, tilkynnti að hann styddi Brown. Fjármálaráðherrann hefur þá fengið 308 stuðningsatkvæði sem nægja til að tryggja honum sætið án þess að keppninautar hans hafi möguleika.

Litla hafmeyjan máluð rauð

Enn einu sinni hefur Litla hafmeyjan í Kaupmannahöfn orðið fyrir barðinu á skemmdarvörgum. Þegar menn fóru á stjá í gær sáu þeir að rauðri málningu hafði verið slett á andlit, brjóst og kjöltu þessa frægasta kennileiti borgarinnar.

Virginia Tech-skotleikur vekur upp reiði

Tölvuleikur sem notar skotárásirnar í Virginia Tech-háskólanum sem sögusvið hefur vakið mikla reiði í Bandaríkjunum. Höfundur leiksins segist munu taka hann af netinu gegn greiðslu.

Sarkozy farinn til fundar við Merkel

Nicolas Sarkozy sór embættiseið sem forseti Frakklands í dag. Í innsetningarræðu sinni kvaðst hann ætla að efla þjóðareiningu og blása í glæður efnahagslífsins. Búist er við að nýi forsetinn skipi ríkisstjórn sína á morgun

Búist við afsögn Wolfowitz í dag

Stjórn Alþjóðabankans leggur nú lokahönd á áætlun sem auðveldar Paul Wolfowitz bankastjóra að komast frá starfi sínu sem fyrst án þess að hljóta mikinn álitshnekki. Búist er við að Wolfowitz segi af sér seinna í dag vegna tilrauna hans til þess að fá stöðu- og launahækkun fyrir ástkonu sína sem vinnur hjá bankanum. Fréttastofa ABC greinir frá þessu.

Bræðravíg Palestínumanna halda áfram

Mahmoud Abbas forseti Palestínu hefur verið hvattur til að lýsa yfir neyðarástandi eftir að að minnsta kosti sextán manns féllu í innbyrðis átökum Palestínumanna í dag. Að minnsta kosti fjörutíu manns hafa fallið í bardögum síðan á föstudag. Það eru Fatah samtök Abbas og Hamas samtökin sem berast á banaspjót.

Rússar vildu eyða kjarnorkuveri Ísraela

Tveir ísraelskir rithöfundar halda því fram í nýrri bók að Sovétríkin hafi hrint sex daga stríðinu af stað, til þess að geta eyðilagt kjarnorkuvopnabúr Ísraels. Vopnin hafi snúist í höndum Rússa þegar Ísraelar gersigruðu heri Arabaríkjanna á ótrúlega skömmum tíma.

Harry prins ekki sendur til Íraks

Harry Bretaprins verður ekki sendur á vegum breska hersins til Íraks eins og til stóð. Þetta hefur Sky-sjónvarpsstöðin eftir heimildarmönnum sínum. Eftir því sem fram kemur á fréttavef Sky er ástæðan sú að hann er „segull á heilaga stríðsmenn."

Hóta árásum á París

Herskár íslamskur hópur hefur hótað árásum á París á næstu dögum í kjölfar þess að Nicolas Sarkozy varð forseti Frakklands. Hópurinn nefnist herdeild Abous Hafs Al-Masris og kennir sig við fyrrverandi leiðtoga al-Qaida í Afganistan.

Heini fær sjónina aftur og hittir mömmu sína

Hinn átta mánaða gamli blindi nashyrningur Heini hefur nú fengið hluta sjónar sinnar aftur. Fyrir tveimur vikum fór hann í augnaðgerð sem gekk vel. Mikil eftirvænting ríkti þegar hann hitti hjörð sína aftur eftir aðgerðina. Ef hún myndi hafna honum væri lífið svo gott sem búið fyrir Heini.

Nauðguðu, pyntuðu og myrtu heila fjölskyldu

Íbúar í smábænum Kherlani á Indlandi urðu svo reiðir þegar lágstéttarfjölskylda keypti sér lóð í bænum að þeir réðust á heimili hennar. Þeir nauðguðu, misþyrmdu og myrtu alla sem þeir náðu í. Þetta gerðist í september á síðasta ári, en málið er fyrst nú komið fram í dagsljósið. Í Bhotmange fjölskyldunni voru hjón, 17 ára dóttir og tveir synir 21 og 23 ára. Yfir 100 mann réðust á heimilið.

Serbar hafa tekið sig á

Yfirvöld í Serbíu hafa hert leitina að Ratko Mladic, sem grunaður er um stórfellda stríðsglæpi á tímum Balkanstríðanna, og því eru góðar líkur á að undirbúningur að viðræðum um ESB-aðild landsins fari í gang á ný. Þetta sagði Olli Rehn, yfirmaður stækkunarmála Evrópusambandsins, eftir samtöl við serbneska ráðamenn í Belgrað í morgun.

Skapadægur Wolfowitz nálgast

Búist er við að framtíð Pauls Wolfowitz, bankastjóra Alþjóðabankans, ráðist á fundi stjórnar bankans síðar í dag. Wolfowitz hefur legið undir miklu ámæli fyrir að hygla ástkonu sinni sem vinnur við bankann og hefur þrýstingur á bankastjórnina farið sívaxandi um að segja honum upp störfum.

Sarkozy orðinn forseti

Nicolas Sarkozy sór embættiseið sinn sem forseti Frakklands í morgun. Í setningarræðu sinni kallaði hann eftir þjóðareiningu og boðaði breytingar á frönsku samfélagi. Búist er við að Sarkozy skipi ríkisstjórn sína í fyrsta lagi á morgun.

Sarkozy kallaði eftir samstöðu Frakka

Nicolas Sarkozy, nýr forseti Frakklands, kallaði eftir samstöðu meðal frönsku þjóðarinnar í ávarpi sínu við embættistöku í Elysee-höll í morgun. Sarkozy, sem tekur við af Jacques Chirac, sagði jafnframt að breytinga væri þörf og að Frakkar þyrftu að taka meiri áhættu, en hann hefur lagt áherslu á að blása þurfi lífi í efnahagslíf landsins þar sem atvinnuleysi er átta prósent.

MySpace eyðir vefsíðum kynferðisafbrotamanna

Stjórnendur tengslavefsins MySpace sögðu í gær að þeir hefðu borið kennsl á og eytt vefsíðum þúsunda dæmdra kynferðisafbrotamanna. Þetta gera eigendur MySpace til þess að vernda yngri notendur. MySpace tilkynnti um þetta aðeins degi eftir að átta bandarískir saksóknarar kröfðust þess að tengslavefurinn léti af hendi upplýsingar um vefsíður kynferðisglæpamanna og eyddi þeim síðan. Samtals eru 175 milljón manns með vefsíðu á MySpace.

Dýr myndi James allur

Safnarar geta verið dálítið galnir. Til dæmis safnarinn sem borgaði rúmar fimm milljónir króna fyrir hnúðinn á gírstönginni af Aston Martin bílnum sem James Bond ók í Goldfinger. Myndin var frumsýnd árið 1964. Þessi gírhnúður var þeim eiginleikum gæddur að ef toppurinn á honum var opnaður var takki undir sem var notaður til þess að skjóta farþegasætinu upp úr bílnum. Alveg eins og í orrustuflugvél.

Dýrasta hús Svíþjóðar til sölu

Dýrasta hús Svíþjóðar er til sölu samkvæmt norrænum miðlum. Fram kemur að fyrir fjórum árum hafi það verið metið á um 100 milljónir danskra króna, jafnvirði um milljarðs íslenskra króna, en leynd hvílir yfir núverandi verði þess.

Mál Wolfowitz fyrir stjórn Alþjóðabankans

Paul Wolfowitz bankastjóri Alþjóðabankans fundar nú með 24 manna stjórn bankans vegna ásakana gegn honum. Áður hafði stjórnin komist að niðurstöðu um að Wolfowitz hefði brotið reglur með því að stuðla að launahækkun ástkonu sinnar, sem vinnur hjá bankanum. Stjórnin hefur völd til að reka Wolfowitz, eða lýsa yfir vantrausti á hann.

Yfir sextíu handteknir í Kristjaníu

Átök lögreglu og mótmælenda í fríríkinu Kristjaníu héldu áfram í nótt og í morgun og þegar yfir lauk hafði lögregla handtekið á sjötta tug manna. Mótmælin hófust í gærmorgun þegar yfirvöld hófu niðurrif húss sem kallaðist Vindlakassinn.

Spielberg þrýstir á Kína vegna Darfur

Óskarsverðlaunahafinn og leikstjórinn Steven Spielberg hefur krafist þess að forseti Kína beiti sér fyrir því að endi verði bundinn á þjóðarmorðin í Darfur í Súdan. Í bréfi til Hu Jintao, forseta Kína, hvatti leikstjórinn Kína til að þrýsta á Afríkulandið að leyfa Sameinuðu þjóðunum að senda friðargæslusveitir til landsins.

Sjónvarpspresturinn Jerry Falwell deyr

Jerry Falwell einn fyrsti sjónvarpsprestur Bandaríkjamanna lést á sjúrkahúsi í Bandaríkjunum í dag. Hann fannst meðvitundarlaus á skrifstofu sinni í Virginíu í eftirmiðdaginn og var fluttur á sjúkrahús. Aðstoðarmenn Falwells greindu frá því að lífgunartilraunir á sjúkrahúsinu hefðu ekki borið árangur.

Fékk 2.000 ára fangelsisdóm

Dómstóll í Valencia á Spáni dæmdi í dag svæfingalækni í tvö þúsund ára fangelsi fyrir að hafa smitað hátt í þrjú hundruð manns af lifrarbólgu af C-stofni. Brotin áttu sér stað á árunum 1988-1997 en á þeim tíma var læknirinn háður morfíni. Áður en hann sprautaði sjúklinga sína með lyfinu hafði hann það fyrir sið að sprauta sjálfan sig með sömu nál og þar með flytja veiruna úr sér yfir í þá.

Bretanum hefur verið sleppt

Portúgalska lögreglan greindi frá því nú síðdegis að ekki væru nægar vísbendingar til að ákæra breskan mann vegna hvarfsins á Madeleine McCann. Maðurinn var handtekinn í gærkvöld en hann er búsettur nærri hótelinu í Praia De Luz á Algarve þaðan sem hin fjögurra ára gamla telpan var numin á brott.

Watson segir öllum ráðum beitt

Skip á vegum Sea Sheperd-samtakanna undir stjórn Pauls Watson er á leið hingað til lands til að trufla hvalveiðar íslenskra skipa. Hann segir að öllum ráðum verði beitt, þar á meðal ásiglingum, og óttast ekki íslensku landhelgisgæsluna.

Skortir sönnunargögn til að handtaka meintan ræningja Madeleine

Portúgalska lögreglan tilkynnti á blaðamannafundi fyrir skömmu að hún hefði ekki næg sönnunargögn til að handtaka Robert Murat meintan ræningja Madeleine McCann, fögurra ára gamalli telpu sem hefur verið saknað í tólf daga. Lögreglan handtók Robert í gær en hann 41 árs gamall Breti búsettur í Portúgal.

Bandaríkin verja Wolfowitz

Bandaríkjamenn hafa tekið upp hanskann fyrir Paul Wolfowitz, bankastjóra Alþjóðabankans. Hann á mjög undir högg að sækja eftir að upp komst að hann hafði hyglað ástkonu sinni sem starfar hjá bankan um. Tony Snow, talsmaður Hvíta hússins viðurkenndi í dag að Wolfowitz hefði gert mistök, en þau væru ekki svo alvarleg að ástæða væri til þess að reka hann úr starfi.

Danskur hermaður særðist í Afganistan

Danskur hermaður særðist þegar hann og félagar hans óku yfir jarðsprengju á eftirlitsferð í Helmand-héraði í Afganistan í dag. Alls voru þrír í faratækinu sem ók yfir sprengjuna og voru þeir allir fluttir með þyrlu í á sjúkrahús í nálægri herstöð.

Hættu þessu bulli Vladimir

Bandaríkin munu ekki leyfa Rússum að beita neinskonar neitunarvaldi til að koma í veg fyrir að eldflaugaskjöldur verði byggður í Evrópu. Condoleezza Rice, utanríkisráðherra, sagði þetta í Molskvu í dag eftir fund með Vladimir Putin forseta Rússlands. Rice segir að það sé hlægilegt að halda því fram að Rússum stafi hætta af skildinum.

Sjá næstu 50 fréttir