Fleiri fréttir

Engin átök í Tallinn í nótt

Stjórnvöld í Eistlandi kenna Rússum um þær óeirðir sem urðu í landinu fyrir helgi. Tvær nætur í röð kom til átaka milli mótmælenda og lögreglu vegna minnismerkis um fallna hermenn í seinni heimsstyrjöldinni sem stjórnvöld létu fjarlægja úr miðborg Tallinn á föstudaginn. Ekki kom til átaka í höfuðborginni í nótt.

Tamíl tígrar gerðu loftárásir í nótt

Uppreisnarmenn úr hópi Tamíl tígra gerðu í nótt loftárásir á eldsneytisgeymslur og bensínvinnslustöðvar í og við Colombo, höfuðborg Sri Lanka. Engar fregnir hafa borist af mannfalli í árásunum. Tígrarnir segja þetta gert vegna árás stjórnarhersins á stöðvar uppreisnarmanna fyrir helgi.

Styður Brown til formanns

Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, hefur ákveðið að styðja Gordon Brown, fjármálaráðherra, sem næsta leiðtoga Verkamannaflokksins og þar með í embætti forsætisráðherra fram að næstu kosningum. Þetta fullyrðir breska blaðið Sunday Times í morgun.

Kviknaði í eftir að eldingu laust niður

Miklir eldar loga nú í olíuvinnslustöð í Oklahóma í Bandaríkjunum eftir að eldingu laust niður í geymslustöð sem í voru 50 þúsund tunnur af ómeðhöndluðu bensíni. Eldur blossaði það upp og læsti hann sig svo í öðrum geymslutanki þar sem var að finna 30 þúsund tunnur af díselolíu.

Fjölmenn mótmæli í Istanbúl

Mörg þúsund Tyrkir komu saman til mótmælafundar í Istanbúl í morgun til að styðja við aðskilnað ríkis og trúarbragða í landinu. Deilt er um skipan forseta sem hefur haldið mikilli tryggð við rætur sínar í Íslam.

Vísindamenn heiðraðir

Guðmundur Þorgeirsson prófessor var útnefndur heiðursvísindamaður Landspítala – háskólasjúkrahúss 2007 á föstudag. Útnefningin fór fram á vísindadagskrá við upphaf Vísinda á vordögum. Við sama tækifæri var Sveinn Hákon Harðarson valinn Ungur vísindamaður ársins 2007.

Tamíl tígrar gerðu loftárás

Uppreisnarmenn úr hópi Tamíl tígra gerðu í nótt loftárásir á eldsneytisgeymslu og -vinnslustöð í og við Colombo, höfuðborg Sri Lanka. Engar fregnir hafa borist af mannfalli í árásunum. Tígrarnir segja þetta gert vegna árás stjórnarhersins á stöðvar uppreisnarmanna fyrir helgi.

Styttist í þingkosningar á Írlandi

Mary McAleese, forseti Írlands, hefur leyst upp þing í landinu og boðað til kosningar tuttugasta og fjórða maí næstkomandi. Þetta er gert að ósk Berties Ahern, forsætisráðherra. Kosið er til þings á Írlandi á fimm ára fresti. Skoðanakannanir benda til þess að mjótt verði á mununum en Ahern sækist eftir því að halda forsætisráðherraembættinu þriðja kjörtímabilið í röð.

Eistar kenna Rússum um

Stjórnvöld í Eistlandi kenna Rússum um þær óeirðir sem urðu í landinu fyrir helgi. Tvær nætur í röð kom til átaka milli mótmælenda og lögreglu vegna minnismerkis um fallna hermenn í seinni heimsstyrjöldinni sem stjórnvöld létu fjarlægja úr miðborg Tallinn á föstudaginn. Eistar segja það tákn um kúgun Sovétmanna en Eistar af rússneskum ættum segja það tákn um hetjur sem hafi barist gegn nasistum. Engar fregnir hafa borist af átökum í nótt.

Blair styður Brown

Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, hefur ákveðið að styðja Gordon Brown, fjármálaráðherra, sem næsta leiðtoga Verkamannaflokksins og þar með í embætti forsætisráðherra fram að næstu kosningum. Þetta fullyrðir breska blaðið Sunday Times í morgun. Blair tilkynnti í september í fyrra að hann ætlaði að víkja úr embætti innan árs.

99 bandarískir hermenn látnir í Írak í apríl

Fjöldi bandarískra hermanna sem hafa látist í Írak í þessum mánuði er kominn upp í 99. Í dag og í gær hafa níu bandarískir hermenn látist. Fjórir létust í vegasprengjum suður og suðaustur af Bagdad í dag samkvæmt upplýsingum frá yfirmönnum í bandaríska hernum. Í gær létust fimm hermenn í bardaga í vesturhluta Anbar héraðs sem er höfuðvígi súnní múslima.

Hundur stórslasar tveggja ára stúlku

Tveggja ára stúlka er á sjúkrahúsi eftir að hundur réðist á hana þar sem hún var gestkomandi í íbúð í Lancashire í Skotlandi. Stúlkan hlaut alvarlega áverka á andliti og hefur farið í eina aðgerð. Hundurinn er af Staffordshire bull terrier kyni. Hann hafði ekki áður ráðist að fólki og er ekki á lista yfir hættulega hunda.

Pakistan: Ráðherra slasaðist og 28 létust

Innanríkisráðherra Pakistan slasaðist og í það minnsta 28 manns létust í sjálfsmorðsárás í norðvesturhluta Pakistans í dag. 36 aðrir eru slasaðir. Maður með sprengju innanklæða gekk inn á opinberan fund í Charsadda sem er heimabær Aftab Ahmad Khan Sherpao innanríkisráðherra. Sherpao hafði nýlokið ræðu og var að tala við gesti á fundinum þegar öryggisverðir stöðvuðu manninn.

Til marks um uppgang þjóðernissinna

Um 800 mótmælendur hafa verið handteknir og 150 særst í átökum við lögreglu í Eistlandi vegna deilna um minnismerki um fallna hermenn í síðari heimsstyrjöldinni. Íslendingur sem búsettur er í landinu segir átökin til marks um uppgang þjóðernissinna í Eistlandi.

Jörð skalf undir fótum Englendinga

Íbúum í Kent-sýslu á Englandi brá heldur en ekki í brún í morgun þegar jörð tók að skjálfa undir fótum þeirra. Engin slasaðist alvarlega í jarðhræringunum en nokkrar skemmdir urðu á byggingum og rafmagn fór af stóru svæði um tíma.

Tyrkneski herinn haldi að sér höndum

Bandaríkjamenn og Evrópusambandið hvetja tyrkneska herinn til að halda að sér höndum nú þegar þing Tyrklands velur næsta forseta landsins. Svo gæti farið að íslamskur forseti verði fyrir valinu og hefur herinn hótað að grípa í taumana til að vernda sjálfstæði stjórnvalda gagnvart trúarbrögðum.

57 létust og 160 slösuðust í Írak

Í það minnsta 57 eru látnir og 160 slasaðir eftir að bílasprengja sprakk í Írösku borginni Karbala í dag. Þetta er önnur sprengingin af þessu tagi á tveimur vikum í borginni. Í henni eru tvö heilugustu bænahús síja múslíma. Fréttir herma að sprengjan hafi sprungið við hlið moskunnar Imam Abbas þegar fólk flykktist þangað til bæna.

Tattó auglýsingar fyrir lífstíð

Atvinnulaus maður í Brasilíu hefur fundið afar sérstaka leið til að afla sér lífsviðurværis. Hann notar líkama sinn sem auglýsingaskilti. Edson Alves hefur látið tattóvera tuttugu auglýsingar fyrirtækja frá heimabæ sínum á bak sitt og handleggi. Hann fer síðan úr að ofan við hvert tækifæri og gengur um bæinn.

Harry prins skotmark hryðjuverkasamtaka

Ákvörðun um að senda Harry Bretaprins til Íraks með herdeild sinni er nú til endurskoðunar hjá yfirmönnum breska hersins. Ákvörðunin var tekin í febrúar. Embættismenn óttast nú að Harry verði aðalskotmark hryðjuverkamanna, en ellefu breskir hermenn hafa látist í Írak í þessum mánuði.

England: Ekki heitara í apríl í rúm 300 ár

Hitastig í aprílmánuði í Englandi hefur ekki mælst jafn hátt frá upphafi mælinga sem hófust fyrir rúmum 300 árum. Gert er ráð fyrir að vormánuðirnir mars apríl og maí slái öll fyrri met. Fyrir allt Bretland er mánuðurinn sá hlýjasti í 140 ár. Á landsvísu er nýliðinn vetur annar hlýjasti veturinn frá því mælingar hófust.

Átök í Tallin

Allt logaði í óeirðum í Tallin höfuðborg Eistlands í gærkvöldi - annað kvöldið í röð. Deilt er um sovéskt minnismerki sem yfirvöld fjarlægðu úr höfuðborginni í gær en þar hefur það staðið í áratugi. Tíu mótmælendur særðust í átökum við lögreglu í gær og þrjú hundruð úr hópi þeirra voru handteknir.

Frá uppgröftrum

Mikil umskipti í fornleifarannsóknum á síðustu árum eru að skila bráðabirgðaniðurstöðum og þeim verður að skila til almennings og fræðasamfélagsins, heima og heiman. Fornleifafræðingar halda ráðstefnu í samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands í dag og kynna bráðabirgðaniðurstöður úr rannsóknum sem eru í gangi og hefst hún kl. 13 í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins.

Aflétta banni á demanta-útflutningi

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í gær að aflétta banni á útflutningi á demöntum frá Afríkuríkinu Líberíu. Bannið hefur verið í gildi frá 2001 og var sett á til að koma í veg fyrir að ágóðinni af sölunni yrði notaður til að fjármagna stríð í Vestur-Afríku.

Jarðskjálfti skók Kent sýslu í Englandi

Jarðskjálfti sem mældist fjórir komma sjö á Richter skók Kent-sýslu á Englandi í morgun. Raflínur féllu til jarðar og rafmagnslaust er á stóru svæði. Skemmdir urðu á húsum. Engar fréttir hafa borist af slysum á fólki. Fram kemur á fréttavef BBC að sérfræðingar telji upptök skjálftans hafa orðið um tuttugu og fimm kílómetra suður af Canterbury og um tíu kílómetra undir jarðskorpunni.

Tíu særðust í mótmælum í Tallin

Tíu særðust og þrjú hundruð mótmælendur voru handteknir í óeirðum í Tallin, höfuðborg Eistlands, í gærkvöldi. Þetta er annar dagurinn í röð sem til átaka kemur. Tekist er á um niðurrif á sovésku minnismerki sem hefur staðið í miðborginni í áratugi.

Grátbiðja Uribe um að hefja viðræður

Tólf kólumbískir þingmenn sendu í dag forseta landsins, Alvaro Uribe, skilaboð um að hefja viðræður við uppreisnarmenn, FARC, sem hafa haldið þeim föngnum síðastliðin fimm ár. Fjölskyldur mannanna grétu á meðan þær horfðu á myndband þar sem þeir minntust barnanna sinna, heilsuðu eiginkonum sínum og grátbáðu Uribe að hefja viðræður við uppreisnarmennina.

Ætla að auka viðskipti yfir Atlantshafið

Leiðtogar Bandaríkjanna og Evrópusambandsins munu á mánudaginn kemur taka stórt skref í áttina að því að auka viðskipti yfir Atlantshafið. Þá skrifa Angela Merkel, kanslari Þýskalands, og George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, undir rammasamkomulag um frekari viðskipti. Þau ætla sér einnig að reyna að ljúka Doha viðræðunum, sem núna eru á sjötta ári, fljótlega.

Knattspyrna hvetur til kynlífs

Þýsk yfirvöld hafa skýrt frá því að fæðingar hafa aukist um 30 prósent miðað við sama tíma í fyrra. Og hver gæti ástæðan verið? Jú, knattspyrna.

Wolfowitz yfirheyrður á mánudaginn

Paul Wolfowitz, forseti Alþjóðabankans, og kærastan hans, Shaha Riza, munu koma fram fyrir sérstaka nefnd Alþjóðabankans á mánudaginn kemur til þess að svara spurningum um aðkomu hans að stöðu- og launahækkun Riza. Lögfræðingur Wolfowitz segir að þar muni koma fram að engir hagsmunaárekstrar hafi átt sér stað og að allt sé með felldu.

Kona giftist fjórum konum

Nígerísk lesbía frá ríkinu Kano, sem giftist fjórum konum um síðustu helgi, hefur farið í felur til þess að forðast íslömsku lögregluna. Samkvæmt íslömskum Sharia-lögum, sem voru sett á fyrir sjö árum, er samkynhneigð sem og hjónabönd fólks af sama kyni bönnuð. Bæði brotin eru talin mjög alvarleg. Til að mynda var leikhúsið þar sem brúðkaupið fór fram brotið niður.

Tyrkneski herinn segist verndari stjórnkerfisins

Herinn í Tyrklandi sendi í kvöld frá sér yfirlýsingu um að hann fylgdist vel með forsetakosningum þar í landi. Herinn sagðist hafa áhyggjur af stöðu mála eftir að fyrsta umferð kosninganna leiddi til pattstöðu á milli stjórnarflokka og stjórnarandstöðu. Tyrkneska þingið kýs forseta landsins.

Solana hvetur Bandaríkin til viðræðna

Utanríkismálaráðherra Evrópusambandsins, Javier Solana, hvatti í kvöld Bandaríkin til þess að hefja beinar viðræður við Írana um kjarnorkuáætlun þeirra. Solana sagðist jafnframt öruggur um að Íranar væru tilbúnir til slíkra viðræðna.

Viðskipti með demanta frá Líberíu leyfð

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna aflétti í dag sex ára banni á útflutning á líberískum demöntum. Banninu hafði verið ætlað að koma í veg fyrir viðskipti með svokallaða blóðdemanta en slík viðskipti fjármagna oftar en ekki stríðsherra í borgarastyrjöldum.

172 al-Kaída liðar handteknir í Sádi-Arabíu

Yfirvöld í Sádi-Arabíu segjast hafa komið upp um ráðagerð al-Kaída um að ráðast á olíu- og herstöðvar í landinu. Lögreglan handtók 172, þar á meðal menn sem voru í þjálfun til þess að gerast sjálfsmorðsflugmenn. Þá lagði lögreglan hald á fjölvörg vopn og meira en 340 milljónir íslenskra króna.

Hættan liðin hjá?

Svissneska lyfjafyrirtækið Roche, framleiðandi inflúensulyfsins Tamiflu, hefur dregið úr framleiðslu á lyfinu þar sem framboð er orðið meira en eftirspurn. Lyfið er það sem helst hefur verið talið gagnast gegn mögulega mannskæðu afbrigði fuglaflensunnar, H5NI. Þá er lyfið einnig notað við hefðbundnum inflúensufaröldrum.

Al-Kæda foringi til Gvantanamo

Háttsettur íraskur foringi í Al-Kæda var sendur í fangabúðirnar í Gvantanamo flóa á Kúbu í þessari viku, að sögn bandaríska varnarmálaráðuneytisins.

Harry hótar að hætta í hernum

Breska herstjórnin er orðin hikandi við að senda Harry prins til Íraks með hersveit sinni. Síðasti mánuður var sá blóðugasti sem breskir hermenn hafa upplifað í Írak, síðan innrásin var gerð árið 2003. Prinsinn er sagður hafa hótað því að hætta í hernum, ef hann verði ekki sendur. Harry er þriðji í erfðaröðinni til bresku krúnunnar.

Lærðu flug fyrir hryðjuverkaárásir

Grunaðir hryðjuverkamenn sem voru handtekinir í Saudi-Arabíu, voru að læra að fljúga til þess að geta gert sjálfsmorðsárásir á mikilvæg skotmörk eins og olíustöðvar og herstöðvar bæði innanlands og utan.

Berlusconi sýknaður aftur

Áfrýjunardómstóll í Mílanó sýknaði í dag Silvio Berlusconi fyrrverandi forsætisráðherra, af ákærum um spillingu. Þetta er í annað skipti sem hann er sýknaður í þessu sama máli. Í fyrra skiptið var það árið 2004.

Einn lést og 60 særðust í óeirðum í Tallin

Maður var stunginn til bana og hátt í sextíu manns særðust í miklum óeirðum í Tallinn í Eistlandi í gærkvöldi. Átökin brutust út þegar hópur fólks mótmælti niðurrifi sovésks minnismerkis um afrek Rauða hersins í seinni heimsstyrjöldinni, sem staðið hefur í miðborg Tallinn í áratugi.

„Noregur úr NATO og NATO úr þessum heimi“

Þetta voru slagorð mótmælenda gegn NATO á götum Óslóborgar í gærkvöldi. Óeirðalögreglan beitti á endanum táragasi á hópinn, og þurftu fréttamaður okkar og utanríkisráðherra að forða sér undan gasinu sem lagði um nágrenni ráðhússins.

West Ham gert að greiða metfjárhæð í sekt

Knattspyrnufélagið West Ham United, hefur verið sektað um fimm og hálfa milljón sterlingspunda fyrir brot á reglum um kaup á leikmönnum. Ekki verða hinsvegar dregin stig af félaginu, sem er mjög mikilvægt þar sem það er í fallbaráttu. Carlos Tevez fær ekki að spila fyrir félagið í bráð.

Markmiðið að tryggja sameiginlega hagsmuni

Markmið samninga Íslendinga við Dani og Norðmenn um öryggis- og varnarmál, sem undirritaðir voru í Ósló í gær, er að tryggja sameiginlega hagsmuni landanna í Norður-Atlantshafi. Auknu eftirliti með skipaferðum er ætlað að forða slysum við flutning á olíu og gasi.

Flaska á viku

Breskar stúlkur á aldrinum ellefu til þrettán ára sem á annað borð innbyrða áfengi drekka að meðaltali flösku af léttvíni á viku, eða átta áfengiseiningar. Þetta kemur fram í skýrslu sem samtökin Alcohol Concern létu gera þar í landi. Breskir drengir á þessum aldri drekka enn meira, eða sem samsvarar einni og hálfri léttvínsflösku á viku.

Ugluhausar hata Travolta

Íbúar smábæjarins Ugluhöfuðs í Maine í Bandaríkjunum eru þreyttir mjög á nágranna sínum John Travolta. Ástæðan er sú að við Ugluhöfuð er lítill flugvöllur, fyrir litlar einkaflugvélar. Það er óskrifuð regla hjá flugmönnum sem nota hann hann ekki eftir klukkan tíu á kvöldin til klukkan sex á morgnana.

Sjá næstu 50 fréttir