Fleiri fréttir Neitar að svara spurningum demókrata Aðstoðarkona Alberto Gonzales, aðalsaksóknara Bandaríkjanna, neitaði í dag að bera vitni fyrir þingnefnd um brottrekstur átta alríkissaksóknara og skýldi sér á bak við fimmta viðauka bandarísku stjórnarskrárinnar. Sá viðauki kveður á um að vitni þurfi ekki að svara spurningum ef að svörin gætu leitt til eigin sakfellingar. 26.3.2007 22:20 Bretar segjast geta sýnt fram á sakleysi sjóliða Bretar sögðu í dag að þeir muni sanna að bresku sjóliðarnir, sem Íranar handtóku á föstudaginn, hafi verið á írösku hafsvæði þegar handtökurnar átti sér stað. Sannanirnar segjast þeir ætla að sýna ef sjóliðunum verður ekki sleppt fljótlega. Íranar hafa haldið því fram að hermennirnir hafi verið á írönsku hafsvæði og að þess vegna hafi þeir verið handteknir. 26.3.2007 21:45 Sameinuðu þjóðirnar leggja til friðarráðstefnu Arabaríkja Sameinuðu þjóðirnar hafa lagt til að Ísraelar, Palestínumenn og Arabaríkin taki sig saman og reyni að endurlífga friðarferlið í Mið-Austurlöndum. Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er nú þar á ferðalagi sem og aðalritari Sameinuðu þjóðanna, Ban Ki-moon. 26.3.2007 21:25 Fjöldamótmæli í Pakistan Stjórnarandstæðingar í Pakistan mótmæltu í þúsundatali í víða um landið í dag og kröfðust afsagnar Pervez Musharraf, forseta landsins. Mótmælin voru friðsamleg en voru fámennari en skipuleggjendur höfðu vonast til. 26.3.2007 21:13 Egyptar kjósa um bann við trúarlegum stjórnmálaflokkum Rólegt var á kjörstöðum í Egyptalandi í dag en kosið var um breytingar á stjórnarskrá landsins. Allir helstu stjórnarandstöðuflokkar höfðu sagt fylgismönnum sínum að sniðganga þær þar sem þær banna trúarlega stjórnmálaflokka. 26.3.2007 20:50 Fyrsti fanginn fyrir endurbættan herrétt David Hicks, sem er fangi í Guantanamo fangelsi Bandaríkjamanna og ásakaður um að hafa barist gegn þeim í Afganistan, fór í dag fyrir herrétt Bandaríkjamanna. Hicks á yfir höfði sér lífstíðarfangelsi ef hann verður fundinn sekur. Hann hefur þegar eytt fimm árum í fangelsinu í Guantanamo. Hann er fyrsti fanginn sem fer fyrir hinn nýja dómstól sem notaður í málum gegn föngum í Guantanamo. 26.3.2007 20:09 Tamíl-tígrar gerðu loftárás Upplýsingafulltrúi norræna vopnahléseftirlitsins á Srí Lanka segir ekki of djúpt í árina tekið að segja landið ramba á barmi borgarastyrjaldar. Þrír týndu lífi og 16 særðust í loftárás Tamíl-tígra á herflugvöll í höfuðborginni Colombo. Loftárásin er sú fyrsta sem tígrarnir gera. 26.3.2007 19:00 Sögulegt samkomulag í höfn Sögulegt samkomulag tókst í dag um myndun heimastjórnar á Norður-Írlandi. Leiðtogar Sambandsflokksins og Sinn Fein sömdu um þetta á fundi í morgun en þar til þá höfðu þeir aldrei hist augliti til auglits. 26.3.2007 18:16 Talibanar boða árásir á þýska hermenn Einn af leiðtogum Talibana í Afganistan segir að þegar þeir hefja sókn sína í sumar muni þeir beina byssum sínum að þýskum hermönnum og hermönnum annarra þjóða sem hingaðtil hafa að mestu sloppið við áökt. Klerkurinn Obaidullah Akhund segir að sexþúsund ungir hermenn séu reiðubúnir að fórna sér fyrir Allah í komandi átökum. 26.3.2007 16:42 Fjórir umhverfisráðherrar gegn Sellafield Umhverfisráðherrar fjögurra landa hafa sent breskum stjórnvöldum beiðni um að opna ekki endurvinnslustöðina í Sellafield á nýjan leik. Umhverfisráðherrar Íslands, Noregs, Írlands og Austurríkis eru nú á fundi í Belfast, til að leggja áherslu á andstöðu sína við Sellafield. Stöðinni var lokað árið 2005 eftir innanhúss leka á mjög geislavirkum úrgangi. 26.3.2007 16:05 Vill veita Kosovo sjálfstæði 26.3.2007 15:36 Anna Nicole lést af of stórum lyfjaskammti 26.3.2007 14:52 Á hraðri leið til... Portúgölsk samtök sem berjast fyrir betri umferðarmenningu hafa skrifað páfa bréf þar sem þau biðja hann um sjá til þess að prestur nokkur sem á 150 hestafla Ford Fiesta, falli ekki í þá freistni að aka of hratt. Faðir Antonio Rodrigues er eini maðurinn í Portúgal sem á Ford Fiesta 2000 ST. 26.3.2007 14:22 Ráku flóttamenn í sjóinn 26.3.2007 13:50 Sögulegur aprílmánuður 26.3.2007 13:37
Sjá næstu 50 fréttir
Neitar að svara spurningum demókrata Aðstoðarkona Alberto Gonzales, aðalsaksóknara Bandaríkjanna, neitaði í dag að bera vitni fyrir þingnefnd um brottrekstur átta alríkissaksóknara og skýldi sér á bak við fimmta viðauka bandarísku stjórnarskrárinnar. Sá viðauki kveður á um að vitni þurfi ekki að svara spurningum ef að svörin gætu leitt til eigin sakfellingar. 26.3.2007 22:20
Bretar segjast geta sýnt fram á sakleysi sjóliða Bretar sögðu í dag að þeir muni sanna að bresku sjóliðarnir, sem Íranar handtóku á föstudaginn, hafi verið á írösku hafsvæði þegar handtökurnar átti sér stað. Sannanirnar segjast þeir ætla að sýna ef sjóliðunum verður ekki sleppt fljótlega. Íranar hafa haldið því fram að hermennirnir hafi verið á írönsku hafsvæði og að þess vegna hafi þeir verið handteknir. 26.3.2007 21:45
Sameinuðu þjóðirnar leggja til friðarráðstefnu Arabaríkja Sameinuðu þjóðirnar hafa lagt til að Ísraelar, Palestínumenn og Arabaríkin taki sig saman og reyni að endurlífga friðarferlið í Mið-Austurlöndum. Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er nú þar á ferðalagi sem og aðalritari Sameinuðu þjóðanna, Ban Ki-moon. 26.3.2007 21:25
Fjöldamótmæli í Pakistan Stjórnarandstæðingar í Pakistan mótmæltu í þúsundatali í víða um landið í dag og kröfðust afsagnar Pervez Musharraf, forseta landsins. Mótmælin voru friðsamleg en voru fámennari en skipuleggjendur höfðu vonast til. 26.3.2007 21:13
Egyptar kjósa um bann við trúarlegum stjórnmálaflokkum Rólegt var á kjörstöðum í Egyptalandi í dag en kosið var um breytingar á stjórnarskrá landsins. Allir helstu stjórnarandstöðuflokkar höfðu sagt fylgismönnum sínum að sniðganga þær þar sem þær banna trúarlega stjórnmálaflokka. 26.3.2007 20:50
Fyrsti fanginn fyrir endurbættan herrétt David Hicks, sem er fangi í Guantanamo fangelsi Bandaríkjamanna og ásakaður um að hafa barist gegn þeim í Afganistan, fór í dag fyrir herrétt Bandaríkjamanna. Hicks á yfir höfði sér lífstíðarfangelsi ef hann verður fundinn sekur. Hann hefur þegar eytt fimm árum í fangelsinu í Guantanamo. Hann er fyrsti fanginn sem fer fyrir hinn nýja dómstól sem notaður í málum gegn föngum í Guantanamo. 26.3.2007 20:09
Tamíl-tígrar gerðu loftárás Upplýsingafulltrúi norræna vopnahléseftirlitsins á Srí Lanka segir ekki of djúpt í árina tekið að segja landið ramba á barmi borgarastyrjaldar. Þrír týndu lífi og 16 særðust í loftárás Tamíl-tígra á herflugvöll í höfuðborginni Colombo. Loftárásin er sú fyrsta sem tígrarnir gera. 26.3.2007 19:00
Sögulegt samkomulag í höfn Sögulegt samkomulag tókst í dag um myndun heimastjórnar á Norður-Írlandi. Leiðtogar Sambandsflokksins og Sinn Fein sömdu um þetta á fundi í morgun en þar til þá höfðu þeir aldrei hist augliti til auglits. 26.3.2007 18:16
Talibanar boða árásir á þýska hermenn Einn af leiðtogum Talibana í Afganistan segir að þegar þeir hefja sókn sína í sumar muni þeir beina byssum sínum að þýskum hermönnum og hermönnum annarra þjóða sem hingaðtil hafa að mestu sloppið við áökt. Klerkurinn Obaidullah Akhund segir að sexþúsund ungir hermenn séu reiðubúnir að fórna sér fyrir Allah í komandi átökum. 26.3.2007 16:42
Fjórir umhverfisráðherrar gegn Sellafield Umhverfisráðherrar fjögurra landa hafa sent breskum stjórnvöldum beiðni um að opna ekki endurvinnslustöðina í Sellafield á nýjan leik. Umhverfisráðherrar Íslands, Noregs, Írlands og Austurríkis eru nú á fundi í Belfast, til að leggja áherslu á andstöðu sína við Sellafield. Stöðinni var lokað árið 2005 eftir innanhúss leka á mjög geislavirkum úrgangi. 26.3.2007 16:05
Á hraðri leið til... Portúgölsk samtök sem berjast fyrir betri umferðarmenningu hafa skrifað páfa bréf þar sem þau biðja hann um sjá til þess að prestur nokkur sem á 150 hestafla Ford Fiesta, falli ekki í þá freistni að aka of hratt. Faðir Antonio Rodrigues er eini maðurinn í Portúgal sem á Ford Fiesta 2000 ST. 26.3.2007 14:22
Loftárás bætir við fleiri óvissuþáttum Þrír týndu lífi og 16 særðust í loftárás Tamíl-tígra á herflugvöll nærri Colombo, höfuðborg Srí Lanka, í gærkvöldi. Þetta er í fyrsta sinn sem tígrarnir gera loftárás og segir upplýsingafulltrúi norræna vopnahléseftirlitsins þetta bæta við fleiri óvissuþáttum í landinu. 26.3.2007 12:45
Íranir hætta ekki auðgun úrans Mahmoud Ahadinejad forseti Íran segir að ekki verði hætt við kjarnorkuáætlun landsins þrátt fyrir hertar efnahagsþvinganir Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Hann segir á vefsíðu sinni að Íranir muni „aðlaga“ samskipti sín við þær þjóðir sem standi að ályktun ráðsins. „Íran mun ekki hætta við sína löglegu og friðsamlegu kjarnorkuáætlun, við munum ekki hika eina sekúndu vegna þessarar ólöglegu ályktunnar“, segir á vefsíðu forsetans, www.president.ir. „Íranska þjóðin mun ekki gleyma því hver studdi og hver hafnaði ályktuninni þegar við aðlögum alþjóðleg samskipti okkar,“ án þess að gefa til kynna hvað slík aðlögun felur í sér. 25.3.2007 20:00
Berlínarályktun undirrituð Leiðtogar Evrópusambandsríkjanna samþykktu í dag ályktun um að endurbætur verði gerðar á stofnanakerfi ESB innan tveggja ára. Hálf öld er í dag frá undirritun Rómarsáttmálans og var þeim tímamótum fagnað í Berlín. 25.3.2007 19:45
Haldi lífi í dreifðari byggðum Innflytjendur og farandverkafólk hafa, í mörgum tilfellum, hleypt miklu lífi í dreifðari byggðir Bretlands og Skotlands við að setjast þar að. Þetta segir breskur sérfræðingur í málefnum innflytjenda í dreifbýli. Hún geldur þó varhug við að stuðla að flutningi á svæði þar sem miklir erfiðleikar steðji að innfæddum. 25.3.2007 19:15
Hataði hann og myrti Hæstiréttur í Suður-Afríku hefur nú til meðferðar mál gegn morðingjum Gísla Þorkelssonar, sem myrtur var á hrottafenginn hátt þar í landi sumarið 2005. Aðalsakborningurinn hefur játað að hafa skotið hann en gengst ekki við því að morðið hafi verið framið að yfirlögðu ráði. 25.3.2007 18:45
Ný stjórnarskrá ESB fyrir 2009 Leiðtogar Evrópusambandsríkja skrifuðu í dag undir yfirlýsingu þess efnis að stjórnarskrá sambandsins verði endurnýjuð á næstu tveimur árum og leidd í gildi árið 2009. „Berlínaryfirlýsingin“ er hún kölluð og var undirrituð í tilefni af 50 ára afmæli Rómarsáttmálans. Angela Merkel, kanslari Þýskalands sagði að þessu tilefni að ekkert væri því til fyrirstöðu að nefnd kæmi saman síðar á þessu ári til að ræða nýja stjórnarskrá. 25.3.2007 17:53
Myrti og brenndi fyrrverandi kærustu Nítján ára nemi í A&M háskólanum í Texas, Tynesha Stewart, var myrt af fyrrverandi kærasta sínum sem síðan bútaði lík hennar í sundur og brenndi líkið á grilli að sögn lögreglu. Lögregla hefur handtekið þann sem grunaður er um ódæðið, Timothy Shepherd, hann er 27 ára og er sagður hafa kyrkt stúlkuna vegna þess að hann var afbrýðisamur því hún var komin með nýjan kærasta. Lögregla leitar ekki lengur líkamsleifa Tynesha þar sem þeir segja litlar líkur á að nokkuð finnist í brunarústunum. Timothy hefur játað verknaðinn. 25.3.2007 17:39
Herferð gegn talibönum gengur vel Herforingjar NATO í Afganistan segja herferð sína gegn talibönum í suðurhluta landsins hafa gengið vel undanfarið. Akkilesar-áætlunin, eða vorherferð NATO gegn talibönum hófst í byrjun mánaðarins. Einn yfirmanna heraflans segir uppreisnarmenn talibana vera á flótta undan hersveitum. Stærstur hluti ópíumframleiðslu Afganistan er í suðurhluta landsins og þar hafa skærur milli uppreisnarmanna og hersveita verið tíðar undanfarna mánuði. 25.3.2007 17:29
Dauðadrukkinn Bretaprins réðist á ljósmyndara Harry Bretaprins fékk æðiskast og réðist að papparazzi-ljósmyndara sem var við að taka myndir af honum og stúlku sem hann var með á stefnumóti í gærkvöldi. Frá þessu er greint í breska slúðurtímaritinu News of the World. Það sem vekur einnig athygli News of the World er að stúlkan sem var á stefnumótinu með Harry var ekki kærasta hans til margra ára, Chelsey Davy heldur önnur, eldri stúlka. 25.3.2007 16:30
Rice: Stofnun sjálfstæðs ríkis Palestínumanna forgangsatriði Condoleeza Rice segir það að koma á tvíhliða viðræðum við stjórnvöld í Palestínu sé forgangsatriði í utanríkismálum Bandaríkjanna sem og stofnun sjálfstæðs ríkis Palestínumanna. Þetta sagði hún á blaðamannafundi eftir að hafa hitt Hosni Mubarak forseta Egyptalands á fundi í Kaíró. 25.3.2007 15:53
Samherjar leggja á ráðin gegn Mugabe Samstarfsmenn Roberts Mugabe, forseta Simbabve, í Zanu-flokknum hafa lagt á ráðin með leiðtogum stjórnarandstöðunnar um að koma Mugabe frá völdum sem allra fyrst. Þetta hefur BBC eftir heimildamönnum í MDC-flokknum, flokki Morgan Tsvangirai. 25.3.2007 15:15
Sakar Írani um að taka breska hermenn í írakskri landhelgi Tony Blair forsætisráðherra Bretlands sakaði í dag Írani um að hafa tekið starfsmenn breska flotans höndum í írakskri lögsögu. Hann sagði aðgerðrnar óréttlætanlegar og rangar. Blair sagði frá þessu á blaðamannafundi í Berlín í dag, þar sem hann er viðstaddur hátíðahöld vegna 50 ára afmælis Evrópusambandsins. Íranir handtóku Bretana 15 á föstudag fyrir að hafa verið í íranskri landhelgi. 25.3.2007 15:02
Tíu fórust í eldvoða í Moskvu Tíu fórust þegar eldur braust út á næturklúbbi í Moskvu, höfuðborg Rússlands í nótt. Eldurinn kom upp nærri bar næturklúbbsins og nokkrir létust nær samstundist, að því er haldið er úr kolmónoxíðeitrun. 25.3.2007 13:29
Öflugir jarðskjálftar undan strönd Japans Að minnsta kosti einn týndi lífi og 160 slösuðust í öflugum jarðskjálfta sem varð undan vesturstönd Honshu-eyju í Japan í nótt. Skjálftin mældist 7,1 á richter. 25.3.2007 13:15
Hættulegasta kona Þýskalands gengur laus Birgiette Monhaupt, einn forsprakka Rauðu herdeilda Baader-Meinhof, var látin laus úr fangelsi í Þýskalandi í dag. Þar hefur hún mátt dúsa í nær aldarfjórðung. Henni var á árum áður lýst sem einni hættulegustu konu Þýskalands enda hlaut hún fimmfaldan lífstíðardóm fyrir morð og hryðjuverk. 25.3.2007 12:45
Evrópusamstarf 50 ára Leiðtogar Evrópusambandsríkjanna 27 komu saman til stórveislu í Berlín í Þýskalandi í gærkvöldi í tilefni af því að í dag er hálf öld liðin frá undirritun Rómarsáttmálans og stofnun Efnahagsbandalags Evrópu, forvera Evrópusambandsins. Hátíðarhöld verða í borginni í dag. 25.3.2007 12:00
Forsætisráðherra Armeníu látinn Forsætisráðherra Armeníu, Andranik Margaryan er látinn. Talskona hans tilkynnti í morgun að forsætisráðherrann hefði fengið hjartaáfall og dáið. Margaryan gengdi embætti forsætisráðherra frá árinu 2000. Margaryan var einn þeirra sem barðist mest gegn áhrifum Sovíetríkjanna þegar Armenía var hluti af þeim. 25.3.2007 11:41
Vilja láta grafa Houdini upp Afkomendur töframannsins Harrys Houdinis vilja að lík hans verði grafið upp svo hægt verði að kryfja það með nútímatækni. Þeir eru sannfærðir um að hópur spíritista hafi eitrað fyrir töframanninum. 24.3.2007 20:15
Öryggisráðið samþykkti refsiaðgerðir einróma Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti nú í kvöld nýja ályktun um refsiaðgerðir vegna kjarnorkuáætlunar Írana. Hún felur í sér bann við vopnaútflutningi frá Íran og að eignir þeirra sem koma að kjarnorku- og eldflaugaáætlun Írana verða frystar. Ahmadínadjad, Íransforseti, var ekki viðstaddur atkvæðagreiðsluna í kvöld, líkt og hann óskaði eftir. Íranar segja það vegna þess að Bandaríkjamenn hafi tafið afgreiðslu á vegabréfsáritun fyrir hann. Bandarísk stjórnvöld hafa neitað því. 24.3.2007 19:55
Hunda- og kattamatur innkallaður í Bandaríkjunum Rottueitur hefur greinst í katta- og hundamat frá framleiðslufyrirtækinu Menu Foods í Bandaríkjunum. 15 kettir og 2 hundar hafa drepist eftir að hafa étið mat frá fyrirtækinu og óttast er að fleiri dýr hljóti sömu örlög. 60 milljón dósir og pokar með hunda- og kattamat frá fyrirtækinu hafa verið innkölluð. 24.3.2007 19:45
Kúbumenn og Svíar í hár saman Stirt er á milli Svía og Kúbumanna eftir að sænski utanríkisráðherrann sagði mannréttindabrot viðgangast á Kúbu. Svíar saka þá einnig um að hnýsast í póst sænska sendiráðsins í Havana. Kúbumenn segjast á móti ekki hegða sér eins og víkingar forðum daga. 24.3.2007 19:00
Sjóliðarnir sagðir hafa játað Íranar segja breska sjóliða, sem teknir voru höndum á Persaflóa í gær, hafa viðurkennt að hafa siglt ólöglega inn í íranska landhelgi þar sem þeir voru teknir. Bretar segja þetta þvætting. Þeir hafi verið við eftirlit á írösku hafsvæði. Þess er krafist að mennirnir verði þegar látnir lausir. 24.3.2007 18:45
Keypti dagbækur Önnu Nicole fyrir 33 milljónir Tvær dagbóka Önnu Nicole Smith hafa verið seldar þýskum auðjöfri. Dagbækurnar eru frá árunum 1992 og 1994 og eru handskrifaðar af Önnu Nicole. Að því er fram kemur á danska fréttavefnum bt.dk þá hyggst þýski auðjöfurinn selja brot úr dagbókunum þeim fjölmiðlum sem áhuga á því hafa. 24.3.2007 14:54
Kveiktu í fíkniefnum Yfirvöld í Bólívíu og Perú lögðu fyrir helgi eld að um 35 tonnum af eiturlyfjum. Götuverðmætið er sagt mörg hundruð milljónir króna. Hald var lagt á efnin í fjölmörgum aðgerum lögreglu í báðum löndum. 24.3.2007 13:45
Sjóliðar fluttir til Teheran Evrópusambandið og bresk stjórnvöld krefjast þess að Íranar láti þegar lausa 15 breska sjó- og landgögnuliða sem teknir voru höndum á Persaflóa í gær. Stjórnvöld í Teheran segjast geta sannað það að mennirnir hafi farið ólöglega inn í íranska landhelgi. 24.3.2007 13:15
Bandaríkjaforseti ætlar að beita neitunarvaldi Bandaríkjaforseti ætlar að beita neitunarvaldi á frumvarp sem felur í sér heimkvaðningu bandarískra bardagasveita frá Írak fyrir fyrsta september á næsta ári. Varaforseti Íraks segist fullviss um að hægt verði að senda erlenda hermenn heim frá Írak fyrir þann tíma. 24.3.2007 12:45
Ný ályktun gegn Íran samþykkt í kvöld Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna greiðir í kvöld atkvæði um nýja ályktun gegn Írönum. Í gærkvöldi var gengið frá texta ályktunarinnar sem felur í sér frekari refsiaðgerðir vegna kjarnorkuáætlunar stjórnvalda í Teheran. Fulltrúi Breta í ráðinu greindi frá þessu og sagðist þess fullviss að ályktunin yrði samþykkt einróma. 24.3.2007 11:45
Dagbækur Önnu seldust á 35 milljónir Tvær dagbækur sem Anna Nicole Smith hélt voru í dag seldar uppboðsvefnum eBay fyrir meira en hálfa milljón dollara, eða um 35 milljónir íslenskra króna. Kaupandinn sagðist ætla að nota þær til þess að skrifa bók um Önnu. Dagbækurnar fundust þegar að hreingerningamaður var að fara í gegnum hús sem að Anna bjó í á meðan hún var við tökur á bíómyndum árið 1992 og 1994. Hann seldi þær síðan til safnara sem síðan geymdi þær allt þar til Anna lést og seldi þær nú á eBay. 23.3.2007 23:49
Íranar segja Breta hafa verið í órétti Stjórnvöld í Íran halda því fram að sjóliðarnir bresku sem þau handtóku í dag hafi verið á írönsku yfirráðasvæði. Utanríkisráðherra Breta, Margaret Beckett, þvertekur hins vegar fyrir þær fullyrðingar. 23.3.2007 23:30
Friður kominn á í Kinshasa Kongóski herinn hefur náð að stilla til friðar í höfuðborginni Kinshasa á ný. Síðastliðna tvo daga hafa harðir bardagar átt sér stað á milli fylgismanna Jean-Pierre Bemba, stjórnarandstöðuleiðtoga, og stjórnarhersins. Bemba, sem er fyrrum uppreisnarleiðtogi, hefur verið sakaður um landráð af yfirvöldum í Kongó. 23.3.2007 23:02