Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hætt við útgáfu á bók O.J. Simpson Fyrirtækið News Corp. hefur hætt við útgáfu á bók O.J. Simpsons "If I did it", sem útleggst á hinu ylhýra sem "Ef ég hefði gert það" og fjallaði um hvernig hann hefði myrt fyrrum konu sína Nicole Brown Simpson og vin hennar Ron Goldman. Einnig hefur verið hætt við að sýna sjónvarpsviðtal við O.J. um bókina en það átti að sýna í næstu viku. 20.11.2006 21:18
Kína hugsanlega í samstarf við Pakistan Búist er við því að Kínverjar eigi eftir að tilkynna um samstarfssamning við Pakistan í kjarnorkumálum í næstu viku. Talið er að það sé vegna síaukinna tengsla Bandaríkjanna og Indlands og væntanlegs kjarnorkusamstarfs þeirra á næstu árum. 20.11.2006 21:07
Baráttan gegn fátækt í heiminum mikilvægust Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, sagði í viðtali í dag að hans mesta afrek í starfi væri að hafa sýnt þjóðum heims nauðsynina á því að berjast gegn fátækt í heiminum. 20.11.2006 20:47
Tony Blair í Afganistan Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands var í heimsókn í Afganistan í dag. Þar sagði hann að öryggi heimsins á komandi tímum myndi ráðast í bardögum við uppreisnarmenn Talibana í eyðimörkinni í Afganistan. 20.11.2006 20:11
Ísraelar sprengja á Gaza Ísraelski herinn hefur skotið flugskeyti á bíl í Gazaborg. Öryggissveitir í Palestínu skýrðu frá þessu. Sem stendur er enn ekki vitað hversu margir eða hvort einhverjir hafi látist eða slasast. Íraelski herinn vildi ekkert segja um árásina að svo stöddu. 20.11.2006 19:51
Tveir forsetar í Mexíkó Hinn vinstri sinnaði forsetaframbjóðandi í Mexíkó, Andres Manuel Obrador, ætlar í dag að láta sverja sig í embætti forseta Mexíkó. Það er ekki í frásögur færandi nema að hann tapaði í forsetakosningunum sem fram fóru í júlí síðastliðnum. 20.11.2006 19:28
Nágrannarnir aðstoða Íraskir ráðamenn eiga í viðræðum við nágranna sína í Sýrlandi og Íran um hvernig ráða megi bug á ofbeldinu í landinu. 20.11.2006 18:56
Rússnesk stjórnvöld neita aðild Líðan rússneska njósnarans Alexanders Litvinenko fer hrakandi en eitrað var fyrir hann á veitingastað í Lundúnum á dögunum. Nánir vinir hans telja fullvíst að stjórnvöld í Moskvu hafi staðið á bak við tilræðið. 20.11.2006 18:13
Lestir sprengdar í Indlandi Sprengingar urðu í tveimur farþegalestum í austurhluta Indlands í dag. Sex létust og talið er að um 53 hafi særst. Ekki er vitað hvers vegna sprengingarnar urðu og vildi lögreglan lítið segja um málið. Talsmaður lestarfyrirtækisins sagði hinsvegar að sprengjum hefði verið komið fyrir í lestunum. 20.11.2006 18:06
Serbneskur stríðsglæpamaður handtekinn í Noregi Serneskur strísglæpamaður sem eftirlýstur hefur verið um allan heim var handtekinn í Noregi í síðasta mánuði. Þetta hafa yfirvöld í Serbíu staðfest við AP-fréttastofuna. Maðurinn, Damir Sireta, mun hafa verið í felum í Noregi en hann var eftirlýstur fyrir að hafa tekið þátt í aftöku á 200 króatískum stríðsföngum nærri bænum Vukovar í Króatíu í nóvember árið 1991. 20.11.2006 17:17
Forseti Írans býður til viðræðna Forsetinn í Íran, Mahmoud Ahmadinejad, hefur boðið forsetum Íraks og Sýrlands til viðræðna varðandi það sívaxandi vandamál sem ofbeldið í Írak er. Forseti Íraks, Jalal Talabani, hefur þegar þekkst boðið og mun fara til Írans á laugardaginn kemur. 20.11.2006 17:11
Ástæður árásar í Vestfold enn ókunnar Lögregla í Vestfold í Noregi vinnur enn að rannsókn á því hvers vegna maður á fertugsaldri myrti þrjá og særði tvo alvarlega í fylkinu á laugardag. Málið hefur vakið mikinn óhug í Noregi en maðurinn myrti föður sinn og kærustu fyrst og stakk svo son sinn, sem var fjórtán ára, til bana og særði tvo aðra alvarlega áður en hann svipti sig lífi. 20.11.2006 16:54
Myrti hátt í þrjátíu sjúklinga á sjúkrahúsi í Þýskalandi Þýskur hjúkrunarfræðingur var í dag dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að hafa myrt nærri 30 sjúklinga á sjúkrahúsi í bænum Sonthofen í suðurhluta Þýskalands. Stephan Letter hóf störf á spítalanum í febrúar árið 2003 og talið er að hann hafi myrt fyrsta sjúklinginn innan við mánuði síðar. 20.11.2006 15:56
Neðanjarðarlestarkerfi Beijing verður heimsins stærsta Neðanjarðarlestarkerfi Beijing í Kína verður orðið hið stærsta í heimi eftir nokkur ár. Ætlun Kínverja er að stækka lstarkerfið úr 115 kílómetrum í 273 km fyrir árið 2010 og upp í 561 km árið 2020. þá yrði það orðið stærar en neðanjarðarlestarkerfi Lundúnaborgar sem nú er hið stærsta í heimi. 20.11.2006 15:45
Ætlar að slá lengsta golfhögg sögunnar Míkhaíl Tjúrín, geimfari í alþjóðlegu geimstöðinni, hyggst á miðvikudag reyna að skrá nafn sitt í sögubækurnar með því að slá lengsta högg í golfsögunni. Höggið slær hann í geimgöngu á stöðinni og á kúlan að fljúga í átt til jarðar. 20.11.2006 15:25
Fimm látnir eftir sprengingu í lest í Indlandi Fimm eru látnir og 25 alvarlega slasaðir eftir öfluga sprengingu í farþegalest í austurhluta Indlands í dag. Tveir vagnar í lestinni sem voru yfirfullir af fólki skemmdust mikið í sprengingunni sem varð á afskekktum teinum í Vestur-Bengalhéraði. 20.11.2006 14:57
Reyna að koma í veg fyrir loftárás Ísraelshers Fjöldi Palestínumanna safnaðist saman á og við hús háttsetts Hamas-liða í Beit Lahiya norðarlega á Gasaströndinni í dag vegna fregna af því að Ísraelsher hygðist gera loftárás á húsið. 20.11.2006 14:44
Heilsu Litvinenkos hrakar Líðan Alexanders Litvinenkos, fyrrverandi njósnara hjá KGB og síðar leyniþjónustu Rússlands, hefur versnað og hann hefur aftur verið fluttur á gjörgæsludeild University College sjúkrahússins í Lundúnum þar sem hann dvelur vegna eitrunar sem hann varð fyrir. 20.11.2006 14:17
Alræmdur glæpamaður sleppur úr fangelsi í S-Afríku Lögregla í Suður-Afríku leitar nú að einum af alræmdustu glæpamönnum landsins sem slapp úr öryggisfangelsi í Pretoríu á laugardagskvöld. Maðurinn, Ananias Mathe sem er frá Mósambík, var handtekinn fyrir rúmu ári og hefur verið ákærður fyrir yfir 50 brot, þar á meðal morð, nauðgun, vopnað rán og mannrán. 20.11.2006 13:43
Nærri þrjátíu slösuðust í lestarslysi í Berlín Hátt í þrjátíu manns slösuðust, þar af tveir alvarlega, þegar farþegalest rakst á farartæki sem ætlað er til viðhalds á lestum á lestarstöð í Suður-Berlín í morgun. Bæði lögregla og slökkvilið voru kvödd á vettvang til þess að hjálpa hinum slösuðu út úr lestinni en flestir munu hafa hlotið minni háttar meiðsl. 20.11.2006 13:24
Segja réttarhöld yfir Hussein meingölluð Mannréttindasamtökin Human Rights Watch segja að réttarhöldin yfir Saddam Hussein hafi verið meingölluð og dómurinn yfir honum því rangur. Verði hann tekinn að lífi er óttast að átök muni breiðast út um öll Miðausturlönd. 20.11.2006 13:15
Biður stuðningsmenn Hisbollah að vera reiðubúna til mótmæla Hassan Nasrallah, leiðtogi Hisbollah, sagði í dag stuðningsmönnum að vera reiðubúnir til þess að mæta í friðsamleg mótmæli á götum úti til þess að krefjast nýrrar ríkisstjórnar í stað núverandi ríkisstjórnar, sem hann og stjórnmálamenn úr fleiri fylkingum segja að samræmist ekki stjórnarskrá. Þetta kemur fram í líbanska blaðinu Daily Star. 20.11.2006 13:00
Látinn eftir umsátur við grunnskóla í Þýskalandi Grímuklæddur maður vopnaður skambyssu, sem réðst inn í grunnskóla í Emsdetten í vesturhluta Þýskalands í morgun, er látinn. Óvíst er hvort hann féll fyrir eigin hendi eða byssukúlum öryggissveitarmanna sem höfðu umkringt skólabygginguna en að sögn BBC var maðurinn með sprengjubelti um sig miðjan. 20.11.2006 12:26
Sautján létust í sjálfsmorðssprengjuárás Sautján verkamenn létust og fjörtíu og níu særðust í sjálfsmorðssprengjuárás suður af Bagdad höfuðborg í Íraks í dag. Róstursamt hefur verið í landinu í dag en að minnsta kosti tuttugu og fjórir vopnaðir menn, klæddir í lögreglubúningum, stormuðu inn á heimili aðstoðarheilbrigðisráðherra Íraks og rændu honum. 19.11.2006 19:32
Liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi Breska lögreglan rannsakar hverjir eitruðu fyrir fyrrverandi forystumanni rússnesku leyniþjónustunnar sem leitaði hælis í Bretlandi fyrir sex árum. Hann liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi. 19.11.2006 19:30
Ekki endurlífgun ef fæðist 18 vikum fyrir tímann Breskir sérfræðingar leggja til að læknar þar í landi grípi ekki til endurlífgunartilrauna á börnum sem fæðast 18 vikum fyrir tímann eða fyrr. Tillagan hefur vakið miklar deilur í Bretlandi. Andstæðingar benda á að læknum beri að lina þjáningar en ekki deyða sjúklinga. 19.11.2006 19:00
Fordæmir ályktun SÞ Ísraelar fordæma þá ákvörðun Sameinuðu þjóðanna að rannsaka atburðina í Beit Hanoun á Gaza-svæðinu fyrir hálfum mánuði þegar hátt í tuttugu almennir borgarar týndu lífi í loftárás Ísraelshers á íbúðarhús. Ísraelsher hætti við árás á hús á Gaza í morgun þegar mörg hundruð Palestínumenn slógu skjaldborg um það. 19.11.2006 18:45
Aðstoðarheilbrigðisráðherra Íraka rænt Vopnaðir menn rændu í dag aðstoðarheilbrigðisráðherra Íraka þar sem han var staddur á heimili sínum. Ráðherrann, Síjinn Ammar al-Saffar, situr í ríkisstjórn Nuri al-Malaki og er í Dawaflokknum. 19.11.2006 15:25
Eitrað fyrir njósnara Breska lögreglan rannsakar nú hvernig eitrað hafi verið fyrir rússneskum njósnara sem leitaði hælis í Bretlandi fyrir sex árum. Hann liggur nú þungt haldinn á sjúkrahúsi. 19.11.2006 12:45
Gefin saman í ítölskum miðaldakastala Hollywood-stjörnurnar Tom Cruise og Katie Holmes gengu í það heilaga á Ítalíu í gær. Þetta var staðfest um kl. 19:30 í gærkvöldi. Fjölmargar stjörnur voru viðstaddar athöfnina en knattspyrnukappinn David Beckham varð frá að hverfa að kröfu þjálfara síns hjá Real Madrid. 19.11.2006 12:30
Árásir í Darfur-héraði Stjórnvöld í Súdan og Janjaweed-sveitirnar hafa hafið árásir á ný í norðurhluta Darfur-héraðs. Afríkubandalagið segir árásirnar brjóta í bága við öryggissáttmála sem er í gildi. Uppreisnarmenn á svæðinu telja að sjötíu manns hafi látist í árásunum. 18.11.2006 20:32
Eru nú hjón Giftingu stjörnuparsins Tom Cruise og Katie Holmes var að ljúka. Talsmaður leikarans Tom Cruise staðfesti þetta nú rétt í þessu. 18.11.2006 19:23
Ísland í alfaraleið Ísland verður í alfaraleið flutningaskipa í heiminum innan fárra ára. Þetta er mat íslensks prófessors sem telur að eftir sjö til átta ár muni fimm hundruð olíuskip fara framhjá Íslandi árlega. Við það aukist hættan á stóru olíuslysi við strendur landsins. 18.11.2006 19:08
Fjórir látnir og tveir helsærðir Norðmenn eru felmtri slegnir eftir að karlmaður myrti þrjá og svipti sig lífi í Noregi í dag. Tveir liggja helsærðir. Fólkið tengdist allt fjölskylduböndum. 18.11.2006 17:53
Tom Cruise og Katie Holmes komin í kastalann Fjöldi fólks hefur safnast saman við fimmtándu aldar kastala, rétt norðan við Róm á Ítalíu, þar sem búist er við að Hollywood leikararnir Tom Cruise og Katie Holmes gangi í það heilaga í dag. Parið er nú komið í kastalann og hafa stórstjörnur, á borð við Jennifer Lopez, Will Smith og Jim Carrey, streymt þangað í dag. 18.11.2006 15:56
Stakk þrjá til bana í Noregi Þrír létust og tveir eru alvarlega sárir eftir árás karlmanns á fertugsaldri í Noregi. Maðurinn stakk konu og tvo karlmenn í íbúð í bænum Nøtterøy fyrr í dag. Einn af þeim sem var í íbúðinni lést en hinir særðust. Árásarmaðurinn komst undan, og hélt til fjölskyldumeðlima sinna í Sandefjord, þar sem hann drap tvo þeirra. Maðurinn svipti sig svo lífi. 18.11.2006 15:08
Gagnrýna tillögur um að banna slæður Hollenskir múslímar gagnrýna tillögu stjórnvalda um að banna konum að ganga með búrkur eða slæður, sem hylja andlit múslímskra kvenna, á almannafæri. Hópar múslíma í Hollandi segja að bannið ala á ótta við múslimum og eingangra þá í þjóðfélaginu. 18.11.2006 14:05
SÞ: Ályktun samþykkt Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti í gærkvöldi ályktun þar sem Ísraelar eru hvattir til að kalla herlið sitt heim frá Gaza-svæðinu. Bandaríkjamenn greiddu atkvæði gegn ályktuninni og Ísraelar sögðu ekki tekið á mikilvægum atriðum málsins. 18.11.2006 13:05
Tómur kassi til sölu á Ebay Einn fermeter af úrvals "plássi í kassa" er nú á uppboði á Ebay uppboðsvefnum og getur sá sem sigrar sett hvað sem hann vill í kassann. Kassinn er úr gleri og er á listasafni í London. 17.11.2006 23:34
Breskum manni sleppt úr fangelsi í Pakistan Breskum ríkisborgara sem hafði verið dæmdur til dauða fyrir morð sem hann segist ekki hafa framið var sleppt úr fangelsi í Pakistan í dag eftir 18 ára fangelsisdvöl þar í landi. 17.11.2006 22:57
Pólverjar og Evrópusambandið í viðræðum Finnski forsætisráðherran sagði í dag að ekki hefði náðst samkomulag við Pólverja en þeir hóta nú að koma í veg fyrir nýjan samstarfssamning Rússlands og Evrópusambandsins vegna banns sem Rússar hafa sett á innflutning á pólsku kjöti. 17.11.2006 22:31
Bandaríkin hvetja til refsiaðgerða gegn Íran Bandaríkin hvöttu í kvöld Sameinuðu þjóðirnar til þess að hraða því að refsiaðgerðir verði settar á gegn Íran. Á sama tíma reyndu þau að sannfæra Rússa og Kínverja um að refsiaðgerðirnar myndu ekki verða of miklar. 17.11.2006 21:16
Elskan...hvar er fjarstýringin ? Hvaða gagn er að sjónvarpi ef það er engin fjarstýring ? Franskur innbrotsþjófur var þeirrar skoðunar að þá væri sjónvarpið gagnslaust. Það varð honum að falli. 17.11.2006 21:02
Mafían á Ítalíu fælir fjárfesta Mafían á suðurhluta Ítalíu fælir frá fjárfesta í miklu magni. Þetta kom fram í ræðu sem Romano Prodi, forsætisráðherra Ítalíu, hélt í dag. Hann sagði enn fremur að engin framþróun gæti orðið í landinu þegar mafían væri til staðar. 17.11.2006 20:53
David Blaine reynir við nýtt töfrabragð Töframaðurinn David Blaine ætlar sér að losa sig úr snúð sem hringsnýst um sjálfan sig allan tímann. Snúðurinn verður í um 10 metra hæð og fær Blaine 3 sólarhringa til þess að losa sig. Hefur verslunin Target í New York lofað því að gefa 100 fjölskyldum sem að hjálpræðisherinn þar velur 30.000 króna gjafakort til þess að versla fyrir jólin. 17.11.2006 19:54
Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Innlent
Munaði minnstu að hún væri sjálf komin út í þegar árásin varð: „Það verður bara allt í blóði í sjónum“ Erlent