Fleiri fréttir

Vörður um homma og lesbíur

Öflugur lögregluvörður var um nokkur þúsund homma og lesbíur og stuðningsfólk þeirra, í skrúðgöngu á Hinsegin dögum í Jerúsalem, í dag.

Náttúruverndarráð Noregs vill útrýma kóngakrabba í Noregi

Náttúruverndarráð Noregs vill að kóngakrabbar verði álitin umhverfisógn en ekki nytjategund og að veiðar á þeim verði auknar til þess að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu. Krabbinn er mesti vargur og leggst til dæmis á síldar- og loðnuhrogn. Hann er nýleg tegund í norskri lögsögu og skilur eftir sig sviðna jörð þar sem hann hefur farið um sjávarbotninn.

Uppstokkun í bresku ríkisstjórninni

Breski iðnaðar- og viðskiptaráðherrann Alistair Darling mun taka við embætti orkumálaráðherra, til viðbótar við núverandi embætti. Malcolm Wicks, sem verið hefur orkumálaráðherra færist yfir í vísindaráðuneytið þar sem David Sainsbury lávarður ætlar að draga sig í hlé úr stjórnmálum eftir átta ár sem ráðherra.

Miklir skipsskaðar í sjóorrustum á Sri Lanka

Stjórnarherinn á Srí Lanka sökkti í morgun tveimur skipum tamíla-tígra sem sögð voru hlaðin sprengiefnum. Þá var háttsettur stjórnmálamaður úr röðum tamíla skotinn til bana í morgun í höfuðborginni Colombo.

Ný skýrsla um vatnsmál í Afríku dregur upp dökka mynd

Samkvæmt nýrri skýrslu sem þróunarstofnun Sameinuðu þjóðanna sendi frá sér í dag er nauðsynlegt að eyða mun meiri fjármunum en nú er gert í hreinsun vatns. Skýrslan segir einnig að mun fleiri láti lífið úr sjúkdómum sem berast með óhreinu vatni heldur en af HIV/AIDS og malaríu samanlagt.

Erfðabreyttur vírus sem krabbameinslyf?

Erfðabreyttur vírus getur sýkt og drepið krabbameinsfrumur í heila fólks án þess að skaða heilbrigðar frumur. Þetta kom fram í nýjum rannsóknum sem voru birtar í dag.

Allen viðurkennir ósigur

George Allen, öldungadeildarþingmaður repúblikana í Virgínufylki viðurkenndi rétt í þessu ósigur sinn í kosningunum sem fram fóru þann 7. nóvember síðastliðinn.

Nýtt bænahús gyðinga opnar í Munchen

Nýtt bænahús gyðinga opnaði í Munchen í Þýskalandi í dag, 68 árum eftir að Adolf Hitler lét rífa niður bænahúsið sem stóð þar áður. Litið er á byggingu bænahússins sem staðfestingu á fjölgun gyðingasamfélagsins í Munchen en nasistar hreinsuðu borgina af gyðingum á valdatíma sínum.

Demókratar nær öruggir um sigur

Allt bendir til að demókratar hafi náð meirihluta í báðum deildum í bandarísku þingkosningunum, í fyrsta sinn í tólf ár. George Bush forseti hefur rétt út sáttahönd til leiðtoga þeirra og kveðst nú opinn fyrir öllum hugmyndum um hernaðinn í Írak.

Olmert segir að mistök hafi verið gerð

Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, segir að um "tæknileg mistök" hafi verið að ræða þegar stórskotaliðsárás var gerð á bæinn Beit Hanoun á Gazaströndinni sem kostaði átján lífið, þar af tíu börn. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna ræddi árásina á fundi sínum í dag.

Palestínumenn hrópa á hefnd

Tugir þúsunda Palestínumanna grétu og hrópuðu á hefnd þegar þeir fylgdu þeim sem létust í árásum Ísraela á Beit Hanoun til grafar í dag. Alls létust 18 óbreyttir borgara í árásinni sem Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, kallaði "tæknileg mistök".

Fréttahaukurinn Ed Bradley látinn

Fréttahaukurinn Ed Bradley, sem sjónvarpsáhorfendur þekkja úr fréttaskýringarþáttunum 60 mínútur, lést í dag á Mount Sinai spítalanum í New York. Hann var 65 ára og var banameinið hvítblæði.

Demókratar að ná yfirhöndinni í öldungadeild bandaríska þingsins

Búist er við því að repúblikaninn George Allen samþykki í dag að hann hafi tapað í kosningum, til öldungadeildar bandaríska þingsins, fyrir demókratanum Jim Webb. Ef þetta gengur eftir munu demókratar ná yfirhöndinni í öldungadeild bandaríska þingsins í fyrsta sinn í tólf ár.

Flóttamenn framtíðarinnar munu flýja sjóinn

Ef þær loftslagsbreytingar sem nú eru í gangi halda áfram að versna verða þjóðir heims verða að vera tilbúnar til þess að hjálpa milljónum "sjávarflóttamanna", en það er fólk sem þarf að flýja heimili sín vegna hækkandi yfirborðs sjávar.

Bush er tilbúinn til að hlusta á allt og alla

George Bush, forseti Bandaríkjanna, sagði í dag að hann væri opinn fyrir öllum tillögum um hvernig skuli leysa málin í Írak. Forsetinn lét þessi orð falla á fundi með fréttamönnum, í Rósagarðinum. Þar var forsetinn mættur ásamt ríkisstjórn sinni.

Sjóorrusta við strendur Sri Lanka

Tuttugu og þrem hraðskreiðum fallbyssubátum var sökkt í mikilli sjóorrustu undan ströndum Sri Lanka, í dag, að sögn stjórnvalda.

Það eru pabbarnir sem skipta máli

Ný bandarísk rannsókn bendir til þess að ef feður tala gott og vandað mál, þá hafi það mikil áhrif á málþroska barna. Það skiptir hinsvegar engu máli hvort móðirin talar gott og vandað mál, eða ekki.

Andlitslausi maðurinn er látinn

Austur-þýski njósnarinn Markus Wolf er látinn, áttatíu og þriggja ára að aldri. Lengst af kalda stríðinu var hann einn valdamesti maður Austur-Þýskalands.

Forsætisráðherra Ísraels segir árásina tæknileg mistök

Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, sagði í dag að árásin sem gerð var á Gaza-svæðið í gær, hefði verið tæknileg mistök hjá stórskotaliðinu. Átján óbreyttir borgarar féllu í árásinni, þar á meðal mörg börn.

Tveimur kjarnorkueldflaugum skotið í dag

Kalda stríðinu kann að vera lokið, en kjarnorkuveldin vilja þó vera viss um að þau geti ennþá sprengt hvert annað í loft upp, ef svo ber undir

Hamas hikar við árásir á Ísrael

Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, ræddi í dag í síma við Khaled Mashaal, hinn útlæga leiðtoga Hamas-samtakanna. Embættismenn segja að þetta sé vísbending um að þeir séu nálægt því að ná samkomulagi um þjóðstjórn.

Nýtt afbrigði af blátunguveirunni greinist á Sardiníu

Áður óþekkt afbrigði af blátunguveirunni sem veldur sjúkdómi í dýrum hefur fundist á ítölsku eyjunni Sardiníu og hefur 20 kílómetra varnarsvæði verið lokað af í kringum þar sem veiran fannst. Evrópuráðið tilkynnti í dag að veiran hefði greinst á mánudag og að hún hefði líklega borist til Evrópu með skordýrum. Hún hefur ekki áður fundist í Evrópu.

Fórnarlömb árása Ísraels borin til grafar

Tugþúsundir Palestínumanna fylgdu fórnarlömbum árásar Ísraela í Beit Hanoun í fyrrinótt til grafar í morgun. Átján manns létust í árásinni, þar á meðal fjölmargar konur og börn. Yfir höfðum syrgjenda sveimuðu ómannaðar ísraelskar eftirlitsflugvélar.

Íhuga kosti við að vinna saman

Sameinuðu þjóðirnar íhuga að blanda saman sveitum Sameinuðu þjóðanna í Darfur-héraði og sveitum Afríkusambandsins. Friðargæsluliðar Sameinuðu þjóðanna í Darfur-héraði í Súdan hafa mætt mikilli andstöðu. Sveitir Afríkusambandsins hafa takmarkað fjármagn og eru illa útbúnar. Sameinaðar sveitir gætu nýtt styrkleika beggja og náð þannig betri árangri.

Ungir fjölmenntu á kjörstaði

Fjöldi ungra Bandaríkjamanna sem mætti á kjörstaði í gær hefur ekki verið meiri í tuttugu ár. Í kringum 24% kosningabærra Bandaríkjamanna undir þrítugu kaus í þingkosningunum í gær. Talið er að þróun mála í Írak hafi ýtt á hópinn að kjósa og tryggja Demókrötum meirihluta á þingi.

Komast leiðar sinnar með stolið norskt vegabréf

Norðmenn eru uggandi yfir þeirri þróun að sífellt fleiri séu stöðvaðir við vegabréfaeftirlit með falsað norskt vegabréf. Fréttavefur Aftenposten í Noregi greinir frá því að hjá Interpol séu tilkynningar um 130.000 norsk vegabréf sem er saknað. Alls eru 12 milljón stolin vegabréf á skrá hjá Interpol. Haft er eftir yfirmanni hjá lögreglunni í Noregi að stolin norsk vegabréf séu vinsæl erlendis.

Vatíkanið fordæmir Gleðigöngu samkynhneigðra

Vatíkanið hefur fordæmt Gleðigöngu samkynhneigðra sem halda á í Jerúsalem í Ísrael á föstudaginn kemur. Vatíkanið telur gönguna særandi í garð trúaðra og hvetur yfirvöld í Ísrael til að koma í veg fyrir gönguna.

Demókratar hafa tryggt sér Montana

Demókrataflokkurinn hefur tryggt sér öldunadeildarþingsæti í Montana en ekki er talin þörf á endurtalningu þar eins og líklegt var talið fyrr í dag. Þar með hafa Demókratar bætt við sig fimm öldungadeildarþingsætum og vantar aðeins eitt þingsæti til að ná völdum í Öldungadeildinni.

Donald Rumsfeld sagði af sér

Donald Rumsfeld varnarmálaráðherra Bandaríkjanna hefur sagt af sér. Við starfi hans tekur Robert Gates fyrrverandi yfirmaður CIA. Afsögnin er tilraun Bush forseta til að sætta ólík sjónarmið um utanríkisstefnu Bandaríkjanna eftir ósigur repúblikana í þingkosningunum í gær. Bandaríkjaforseti tilkynnti þetta í sjónvarpsávarpi nú fyrir skömmu.

Viðbrögð Bush við niðurstöðum kosninganna

Demókratar unnu stórsigur í þingkosningunum í Bandaríkjunum í gær. Flokkurinn náði aftur meirihluta í fulltrúadeild eftir tólf ára eyðimerkurgöngu. Svo gæti farið að flokkurinn nái einnig meirihluta í öldungadeild en eftir er að telja á ný í tveimur fylkjum. Útlit er fyrir að tvö síðustu ár George Bush, Bandaríkjaforseta, í embætti verði honum erfið. Hann flytur sjónvarpsávarp kl. 18 að íslenskum tíma sem verður sent út beint á visir.is

Sjáðu Napólí og deyðu

Lögreglan í Napólí, á Ítalíu, handtók í dag þrjátíu og, tvo menn, í fyrstu stóraðgerð sinni til þess að binda enda á morðöldu sem gengið hefur yfir borgina undanfarna mánuði.

Skothríð í Danmörku

Danska lögreglan hefur beitt skotvopnum sínum mun oftar á þessu ári, en undanfarin ár. Það sem af er árinu hefur verið hleypt af níutíu skotum.

Móðir Parísar stolt af klámmyndbandinu

Móðir Parísar Hilton er stolt af öllu sem hún hefur gert, einnig klámmyndbandinu sem fór á netið, ef marka má nýja ævisögu hennar sem Jerry nokkur Oppenheimer skráði.

Evrópusambandið setur Tyrkjum úrslitakosti

Evrópusambandið hefur gefið Tyrkjum frest fram í miðjan desember til þess að opna hafnir sínar fyrir skipum frá Kýpur, eða taka þeim afleiðingum sem áframhaldandi hafnbann hefði á aðildarumsókn landsins.

Segir Bandaríkjastjórn áfram stefna að öryggi í Írak

Zalmey Khalilzad, sendiherra Bandaríkjanna í Írak, fullvissaði í dag írakska stjórnmálamenn um að George Bush Bandaríkjaforseti stefndi áfram að því að tryggja öryggi í Írak og að hann myndi vinna með demókrötum að því markmiði. Þessi orð lét hann falla í kjölfar sigurs demókrata í kosningum til fulltrúadeildar Bandaríkjaþings í gær, en kosningarnar þóttu um margt mælikvarði á stuðning Bandaríkjamanna við aðgerðirnar í Írak.

Sjá næstu 50 fréttir