Fleiri fréttir Panama fékk sæti í öryggisráði Samneinuðu þjóðanna Panama hlaut í dag sæti í öryggisráði Samneinuðu þjóðanna. Mikil barátta hefur staðið um sætið en Venesúela og Guatemala sóttust einnig eftir því. Bandaríkjamenn studdu Guatemala gegn Venesúela. 7.11.2006 17:33 Lífstíðarfangelsi fyrir að skipuleggja stórfelld hryðjuverk Þrjátíu og fjögurra ára Lundúnabúi, sem sagður er tengdur al-Qaida samtökunum, var í dag dæmdur í lífstíðarfangelsi í Bretlandi fyrir að undirbúa stórfelld hryðjuverk bæði í Bretlandi og Bandaríkjunum. 7.11.2006 17:08 Mikil spenna í Bandaríkjunum vegna þingkosninganna 7.11.2006 16:52 Sleppur Hamas við að draga í land ? Palestinskur þingmaður segir að Mahmud Abbas, forseti, hafi fengið loforð um að vestrænar þjóðir muni hætta refsiaðgerðum, ef honum takist að mynda embættismannastjórn, með Hamas samtökunum. 7.11.2006 16:00 Viðurkenna ekki Norður-Kóreu sem kjarnorkuveldi Bandaríkin, Japan og Suður-Kórea hafa sammælst um að viðurkenna ekki Norður-Kóreu sem kjarnorkuveldi. Þessi ríki ætla að ræða við Rússa og Kínverja um að taka sömu afstöðu. 7.11.2006 15:30 Vilja að Saddam verði hengdur Íranar hvöttu í dag til þess að dauðadómurinn yfir Saddam Hussein verði látinn standa og að hann verði hengdur fyrir ódæðisverk sín. Ein milljón manna féll í átta ára stríði, sem hófst þegar Saddam réðst inn í Íran árið 1980. 7.11.2006 15:15 Evrópusambandið ráðleggur fólki að slökkva á farsímum erlendis 7.11.2006 14:39 Danskir hermenn verða áfram í Írak 7.11.2006 14:23 Kókaínfarmur á Atlantshafi Breskt herskip stöðvaði í dag dráttarbát á Atlantshafi og handtók áhöfnina, þegar í ljós kom að farmurinn var eitt koma þrjú tonn af kókaíni. 7.11.2006 14:04 Heiðursmorð með bareflum og rafmagni Jórdanskur maður hefur verið ákærður fyrir að hafa myrt sautján ára dóttur sína með því að berja hana margsinnis í höfuðið, með barefli og hleypa svo rafmagni í hana. Þetta gerðist síðastliðinn föstudag. 7.11.2006 13:45 Alvarlegir þurrkar í Ástralíu John Howard forsætisráðherra Ástralíu kallaði saman neyðarfund stjórnmálaleiðtoga og vísindamanna í Canberra í dag vegna mjög alvarlegra þurrka í heimsálfunni. Þurrkurnir hafa staðið í sex ár og eru þeir mestu sem vitað er um sögu Ástralíu. Ef fram heldur sem horfir mun mikilvægasta vatnakerfi álfunnar, í Murray-Darling dalnum, þorna upp á hálfu ári. Það sér um 70 prósentum af öllu ræktarlandi Ástralíu fyrir vatni. Meðal tillagna til að ráða bót á neyðarástandinu eru áætlanir til að spara vatn og tryggja skipti á vatni milli landssvæða. 7.11.2006 13:21 Óvíst hvort réttarhöldum yfir Saddam lýkur fyrir hengingu Saddam Hussein mætti fyrir dómara í morgun, tveimur dögum eftir að dauðadómur var kveðinn upp yfir honum. Að þessu sinni snerust réttarhöldin um fjöldamorð hans á 180 þúsund Kúrdum á árunum 1986-1989 en óvíst er hvort þeim verður lokið áður en dauðadómnum verður fullnægt. 7.11.2006 13:00 Hizbolla ætla að stjórna Líbanon 7.11.2006 12:42 Spennandi kosningar í dag 7.11.2006 12:42
Sjá næstu 50 fréttir
Panama fékk sæti í öryggisráði Samneinuðu þjóðanna Panama hlaut í dag sæti í öryggisráði Samneinuðu þjóðanna. Mikil barátta hefur staðið um sætið en Venesúela og Guatemala sóttust einnig eftir því. Bandaríkjamenn studdu Guatemala gegn Venesúela. 7.11.2006 17:33
Lífstíðarfangelsi fyrir að skipuleggja stórfelld hryðjuverk Þrjátíu og fjögurra ára Lundúnabúi, sem sagður er tengdur al-Qaida samtökunum, var í dag dæmdur í lífstíðarfangelsi í Bretlandi fyrir að undirbúa stórfelld hryðjuverk bæði í Bretlandi og Bandaríkjunum. 7.11.2006 17:08
Sleppur Hamas við að draga í land ? Palestinskur þingmaður segir að Mahmud Abbas, forseti, hafi fengið loforð um að vestrænar þjóðir muni hætta refsiaðgerðum, ef honum takist að mynda embættismannastjórn, með Hamas samtökunum. 7.11.2006 16:00
Viðurkenna ekki Norður-Kóreu sem kjarnorkuveldi Bandaríkin, Japan og Suður-Kórea hafa sammælst um að viðurkenna ekki Norður-Kóreu sem kjarnorkuveldi. Þessi ríki ætla að ræða við Rússa og Kínverja um að taka sömu afstöðu. 7.11.2006 15:30
Vilja að Saddam verði hengdur Íranar hvöttu í dag til þess að dauðadómurinn yfir Saddam Hussein verði látinn standa og að hann verði hengdur fyrir ódæðisverk sín. Ein milljón manna féll í átta ára stríði, sem hófst þegar Saddam réðst inn í Íran árið 1980. 7.11.2006 15:15
Kókaínfarmur á Atlantshafi Breskt herskip stöðvaði í dag dráttarbát á Atlantshafi og handtók áhöfnina, þegar í ljós kom að farmurinn var eitt koma þrjú tonn af kókaíni. 7.11.2006 14:04
Heiðursmorð með bareflum og rafmagni Jórdanskur maður hefur verið ákærður fyrir að hafa myrt sautján ára dóttur sína með því að berja hana margsinnis í höfuðið, með barefli og hleypa svo rafmagni í hana. Þetta gerðist síðastliðinn föstudag. 7.11.2006 13:45
Alvarlegir þurrkar í Ástralíu John Howard forsætisráðherra Ástralíu kallaði saman neyðarfund stjórnmálaleiðtoga og vísindamanna í Canberra í dag vegna mjög alvarlegra þurrka í heimsálfunni. Þurrkurnir hafa staðið í sex ár og eru þeir mestu sem vitað er um sögu Ástralíu. Ef fram heldur sem horfir mun mikilvægasta vatnakerfi álfunnar, í Murray-Darling dalnum, þorna upp á hálfu ári. Það sér um 70 prósentum af öllu ræktarlandi Ástralíu fyrir vatni. Meðal tillagna til að ráða bót á neyðarástandinu eru áætlanir til að spara vatn og tryggja skipti á vatni milli landssvæða. 7.11.2006 13:21
Óvíst hvort réttarhöldum yfir Saddam lýkur fyrir hengingu Saddam Hussein mætti fyrir dómara í morgun, tveimur dögum eftir að dauðadómur var kveðinn upp yfir honum. Að þessu sinni snerust réttarhöldin um fjöldamorð hans á 180 þúsund Kúrdum á árunum 1986-1989 en óvíst er hvort þeim verður lokið áður en dauðadómnum verður fullnægt. 7.11.2006 13:00
Tvísýnt um úrslit Bandaríkjamenn ganga að kjörborðinu í dag og kjósa til beggja þingdeilda. Baráttan er hörð og tvísýnt um úrslit. Nýjustu skoðanakannanir benda til þess að Repúblíkanar hafi saxað mjög á forskot Demókrata og ólíklegt að þeir nái meirihluta í báðum þingdeildum. Bandaríkjamenn ganga að kjörborðinu í dag og kjósa til beggja þingdeilda. Baráttan er hörð og tvísýnt um úrslit. Nýjustu skoðanakannanir benda til þess að Repúblíkanar hafi saxað mjög á forskot Demókrata og ólíklegt að þeir nái meirihluta í báðum þingdeildum. Kosið er um öll fjögur hundruð þrjátíu og fimm þingsæti í fulltrúadeild og þrjátíu og þrjú öldungadeildarþingsæti, eða þriðjung þeirra. Auk þess verður kosið um ríkisstjóra í þrjátíu og sex ríkjum. Einnig eru greidd atkvæði í nokkrum ríkjum um lagasetningu þar um hjónabönd samkynhneigðra, rannsóknir á stofnfrumur úr fósturvísum og lágmarkslaun, svo eitthvað sé nefnt. Auk þess er ekki síst litið á kosningarnar sem atkævðagreiðslu um stefnu Bush stjórnarinnar, meðal annars í Írak. Bandaríkjaforseti hefur komið fram á kosningafundum fyrir flokksbræður sína síðustu daga og tók þátt í kosningabaráttunni fram á síðustu mínútu. Ekki voru þó allir frambjóðendur flokksins sáttir við framlag forsetans og vildu margir hverjir fjarlægja sig frá honum vegna Íraksmálsins. Sem dæmi kaus frambjóðandi flokksins til fylkisstjóra í Flórída, væntanlegur arftaki Jeb Bush í embætti, að halda síðasta kosningafund sinn fjarri forsetanum sem var mættur til að styðja flokksbróður sinn þar. Bush lét það þó ekki á sig fá og hélt fund án frambjóðandans. Forsetinn sagðist sannfærður um að Repúblíkanar færu með sigur af hólmi í dag enda væri stefna flokksins í skatta- og öryggismálum sú rétta. Ekki virðist þó áhuginn mikill fyrir kosningunum meðal almennings og ekki búist við að kjörsókn fari yfir fjörutíu prósent. Kannanir benda til þess að Repúblíkanar hafi saxað á fylgi Demókrata síðustu daga og ólíklegt talið að þeir nái meirihluta í báðum deildum. Líklegast er að Repúblíkanar haldi meirihluta sínum í Öldungadeildinni en Demókratar nái yfirhöndinni í fulltrúadeildinni. Fjöldi Bandaríkjamanna hefur þegar kosið utan kjörfundar en þeir sem eiga það eftir kjósa í dag í sinni heimabyggð á þar til gerðum kosningavélum. Dómsmálaráðuneytið bandaríska hefur sent um áttahundruð og fimmtíu kosningaeftirlitsmenn til á sjöunda tug borga og bæja víða um Bandaríkin. Þeirra er að gæta þess að farið sé að lögum og reglum og grípa í taumana ef kosningavélar eru sagðar bila eða gefa sig. 7.11.2006 12:30
Þjóðverjar hafna hærri sköttum á bjór Þjóðverjar segjast munu beita neitunarvaldi til þess að koma í veg fyrir að skattar á áfengi verði hækkaðir um 31 prósent í aðildarríkjum Evrópusambandsins. Þýsk stjórnvöld óttast viðbrögð bjórdrykkjumanna heimafyrir, ef skatturinn verður hækkaður. 7.11.2006 11:30
Meirihlutinn telur það til góða ef Demókratar sigra kosningarnar Meirihluti Bandaríkjamanna telur að ef Demókratar ná meirihluta á þingi þá muni efnahagsmálum landsins, þróuninni í Írak og baráttunni gegn hryðjuverkum miða í rétta átt. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun sem fréttastöðin CNN lét gera og birti í dag. Þingkosningar í Bandaríkjunum fara fram á morgun. 6.11.2006 23:35
Rafmagn fór af Evrópu Norska skemmtiferðaskipið Norwegian Pearl slökkti um helgina ljósin í Evrópu. Milljónir manna í 12 löndum misstu rafmagnið. Skipið var að sigla upp eftir ánni Ems, í Þýskalandi. Ákveðið var að rjúfa straum á mikilvægri rafleiðslu þar sem skipið er afar stórt. Það varð til þess að yfirspenna varð á öðrum leiðslum og þær sló út. Við það fór rafmagnið af stórum hluta Frakklands, Spánar, Ítalíu, Portúgal, Austurríkis og fleiri landa. 6.11.2006 19:30
Ísjakar undan strönd Nýja Sjálands Yfirvöld á Nýja-Sjálandi hafa sent frá sér viðvörun til sjófarenda vegna mörg hundruð ísjaka undan strönd landsins. Töluverð hætta er talin geta skapast nærri jökunum þar sem veður á svæðinu mun versna. 6.11.2006 19:15
Lögfræðiteymi í bandaríska kosningaslaginn Bæði repúblikanar og demókratar í Bandaríkjunum eru búnir að safna saman hópum lögfræðinga, sem eiga að leggja fram kærur ef úrslit verða einhversstaðar í vafa í þingkosningunum sem fram fara á morgun. 6.11.2006 16:47
Útgöngubanni aflétt að hluta til í Bagdad Íröksk yfirvöld hafa aflétt útgöngubanni í höfðuborginni Bagdad að hluta til en því var komið á áður en Saddam Hussein, fyrrverandi forseti landsins, var dæmdur til dauða í gær fyrir glæpi gegn mannkyni. Óttast var að til uppþota kæmi í kjölfarið í höfuðborginni en allt hefur verið með kyrrum kjörum í dag. 6.11.2006 16:29
Bandaríkin segjast standa sig vel í loftslagsmálum Aðalsamningamaður Bandaríkjanna í umhverfismálum segir að Bandaríkin standi sig betur í því að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda en mörg önnur lönd. Hann á ekki von á því að bandaríkjamenn undirgangist Kyoto samkomulagið, meðan núverandi ríkisstjórn situr í Washington. 6.11.2006 16:14
Þingmönnum synjað um kött gegn músaplágu Yfirvöld hafa synjað beiðni breskra þingmanna um að fá kött, til þess að takast á við mikla músaplágu í þinghúsinu. Mýsnar hrjá bæði háa og lága; þær skoppa um á milli skrifborða blaðamanna, jafnt og í testofu þinghússins. 6.11.2006 15:25
Fimmti hver Dani fylgjandi dauðarefsingu Fimmti hver Dani er fylgjandi því að taka aftur upp dauðarefsingar í landinu samkvæmt nýrri könnun sem rannsóknarstofnunin IFKA hefur gert. Sagt er frá því á vef Jótlandspóstsins að dauðarefsing hafi verið endanlega tekin úr lögum í Danmörku árið 1993 en í dag séu um 20 prósent þjóðarinnar sem telji að refsa skuli fyrir sum brot með dauðadómi. 6.11.2006 15:08
Krefjast 38 þúsund ára fangelsis Spænskir saksóknarar segja að þeir muni krefjast 38 þúsund ára fangelsis fyrir hvern hryðjuverkamannanna sem ákærðir eru fyrir árásir á lestarkerfi Madridar, árið 2004. 6.11.2006 13:49
Blair getur unnið með palestínskri embættismannastjórn Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, segir að hann gæti gengið til samninga við palestinska stjórn, undir forystu Hamas, ef samtökin yrðu við alþjóðlegum kröfum um að afneita ofbeldi, og viðurkenna tilverurétt Ísraelsríkis. 6.11.2006 13:41
Vantraust á kosningakerfi Þótt Osama bin Laden næðist í dag myndi það ekki hafa nein áhrif á atkvæði milljóna manna í kosningunum í Bandaríkjunum á morgun. Allt að helmingur kjósenda í sumum fylkjum hefur nefnilega þegar póstlagt atkvæðaseðil sinn. Breytingar á kosningakerfum fylkjanna hafa valdið vantrausti og flokkarnir búa sig undir harða baráttu um hvert einasta atkvæði. 6.11.2006 13:29
Forsprakkar eiturlyfjahrings dæmdir til dauða í Indónesíu Dómstóll í Indónesíu dæmdi í morgun tvö forsprakka eiturlyfjahrings til dauða. Mennirnir ráku verksmiðju sem framleiddi 30 þúsund e-töflur í viku hverri þar til henni var lokað fyrir ári. Mennirnir verða dregnir fyrir aftökusveit. 6.11.2006 13:15
Hugsanlegt að Bandaríkjamenn hætti að aðstoða Níkaragva Allt útlit er fyrir að Daniel Ortega, leiðtogi Sandinista, hafi sigrað í forsetakosningunum í Níkaragva sem fram fóru í gær. Verði þetta úrslitin getur svo farið að Bandaríkjamenn láti af aðstoð við þetta fátæka land. 6.11.2006 13:00
Enn ólga eftir dauðadóm Saddams Þrír bandarískir hermenn voru drepnir í dag og útgöngubann er enn í gildi í Bagdad annan daginn í röð, í kjölfar þess að Saddam Hussein var dæmdur til hengingar í gær. Bush Bandaríkjaforseti hreykir sér af því að hafa tekið rétta ákvörðun þegar hann sendi Bandaríkjaher til að steypa Saddam af stóli og draga hann fyrir dóm, til að vinna flokki sínum kosningafylgi. 6.11.2006 12:15
Spennan magnast fyrir þingkosningar í Bandaríkjunum Spennan fyrir þingkosningar í Bandaríkjunum heldur áfram að magnast, degi áður en Bandaríkjamenn ganga til kosninga. Ný skoðanakönnun sem dagblaðið USA Today og Gallup hafa gert sýnir að forskot demókrata í kosningunum til fulltrúadeildar Bandaríkjaþings hefur minnkað nokkuð á síðustu tveimur vikum og þá er mjög mjótt á munum í kosningum til öldungadeildarinnar. 6.11.2006 11:43
Óeirðir vegna erfiðra inntökuprófa í lögreglu á Indlandi Hundruðu manna gengu berserksgang í borginni Ghaziabad í norðurhluta Indlands í gærkvöld til þess að mótmæla erfiðum inntökuprófum í lögregluna. Mennirnir réðust bæði á fólk og farartæki sem á vegi þeirra varð og voru hátt í 30 menn handteknir í óeirðunum. 6.11.2006 11:10
Bush fagnar dauðadómi Saddams George W. Bush fagnaði niðurstöðu dómstólsins í Bagdad í dag. Hann sagði hann mikilvægan áfanga á leið Íraks til friðar og velsæmdar er hann talaði við fréttamenn á leið sinni um Texas í dag. 5.11.2006 19:18
Málsmeðferðin gagnrýnd Súnníar í Írak eru æfir vegna dauðadóms yfir Saddam Hússein, fyrrverandi forseta Íraks, en á sama tíma fagna sjíar. Mannréttindasamtök segja málsmeðferðina gagnrýnisverða. Bandarísk stjórnvöld fagna dómnum og segja hann fyrsta skrefið í átt að nýrri framtíð fyrir Íraka. 5.11.2006 18:45
Viðræður milli uppreisnarmanna og stjórnarerindreka í Sómalíu Þingforseti sómalska þingsins er nú í höfuðborg landsins, Mogadishu, í viðræðum við íslamska uppreisnarmenn. Eru viðræðurnar nýjasta tilraunin til þess að reyna að koma í veg fyrir stríð á milli stjórnarinnar og uppreisnarmanna. 5.11.2006 16:41
Bandarískur prestur leystur frá störfum vegna kynlífshneykslis Einn af áhrifamestu predikurum kristinnar trúar í Bandaríkjunum, Ted Haggard, var rekinn af kirkjuráði sínu nú um helgina. Haggard, sem er mikið á móti hjónabandi samkynhneigðra, viðurkenndi nú á föstudaginn að hann hefði keypt sér eiturlyf og farið í nuddtíma til karlkyns hóru. 5.11.2006 15:47
Forsetakosningar haldnar í Níkaragva Fimm eru í framboði í Níkaragva en baráttan er helst sögð standa milli Daniel Ortega, fyrrverandi forseta og skæruliðaleiðtoga, og athafnamannsins Eduardo Montealegre. 5.11.2006 15:38
Skutu 12 ára stúlku til bana Ísraelskar leyniskyttur skutu 12 ára palestínska stúlku til bana í bænum Beit Hanoun á Gaza-svæðinu í gær. Aðgerðir Ísraela þar síðan á miðvikudag hafa kostað á fimmta tug Palestínumanna lífið. Á sama tíma er þjóðstjórn Palestínumanna sögð ná næsta leyti. 5.11.2006 13:00
Saddam Hússein dæmdur til dauða Saddam Hússein, fyrrverandi forseti Íraks, var í morgun dæmdur til dauða fyrir glæpi gegn mannkyninu. Samkvæmt dómsorði verður hann hengdur. Sjíar fagna dómnum en Súnníar fordæma hann. Mannréttindasamtök segja málsmeðferðina gallaða. Málinu verður áfrýjað. 5.11.2006 12:30
Ísraelar halda árásum sínum á Gaza áfram Ísraelskar leyniskyttur skutu tvo Palestínumenn til bana í dag og var annar þeirra tólf ára stelpa. Sex í viðbót létust í árásum Ísraela á Gazasvæðið og er talið að fjórir þeirra hafi verið vígamenn. 4.11.2006 22:25
Kúbverjar undirbúa 50 ára afmæli byltingarinnar Hermenn marseruðu á götum úti í Kúbu í dag á meðan orrustuflugvélar þutu um loftin. Verið er að undirbúa hátíðarhöld fyrir 2. desember næstkomandi vegna 50 ára byltingarafmælis Kúbumanna og um leið er það 80 ára afmæli Fídels Kastró sem haldið verður upp á. 4.11.2006 22:09
"Aríabörn" nasista hittast opinberlega í fyrsta sinn Á tímum seinni heimsstyrjaldarinnar settu nasistar eitt metnaðarfyllsta verkefni sitt í gang. Að skapa hinn fullkomna "Aría" þjóðflokk. 4.11.2006 21:40
Haukar snúa baki við Bush Þeim fjölgar með hverjum deginum bandamönnum Bush Bandaríkjaforseta sem ákveða að snúa bakið við honum og hans stefnumálum. Nú síðast eru það tveir helstu haukarnir í hans hópi sem segja vanhæft fólk hafa haldið á spilunum eftir að innrás var gerð í Írak. 4.11.2006 21:00
Umhverfisverndarsinnar mótmæltu víða um heim Þúsundir manna söfnuðust saman á Trafalgartorgi í Lundúnum í dag til þess að krefjast aðgerða í umhverfismálum. Mótmælendur komu einnig saman í Brussel í Belgíu í dag og í Ástralíu í morgun. 4.11.2006 19:45
Forsætisráðherra íraks vonar að Saddam verði fundinn sekur Forsætisráðherra íraks, Nouri al-Maliki, sagði í dag að hann vonaðist til þess að Saddam Hussein, fyrrverandi forseti íraks fengi það sem hann ætti skilið. 4.11.2006 17:48