Fleiri
Vill slíta stjórnmálasambandi 14.8.2006 05:45 Varð sótreiður við fangann 14.8.2006 05:30 Dánartala hækkar Dánartala þeirra sem létust eftir að fellibylurinn Saomai skall á Kína á fimmtudag hækkaði á sunnudag upp í 134 og er 163 saknað. Sum fórnarlambanna létust þegar skýli sem þau höfðu leitað í hrundu. 14.8.2006 05:00 Ný lyfjablanda skilar engu 14.8.2006 04:15 Bráðnar hraðar en talið var Ísinn á Grænlandi bráðnar enn hraðar en áður hafði verið talið. Þetta kemur fram í niðurstöðum rannsókna sem bandarískir vísindamenn hafa gert á grundvelli gerfihnattaljósmynda frá bandarísku geimferðastofnuninni, NASA, og birtar eru í nýjasta heftir vísindatímaritsins Science. 14.8.2006 04:00 Sjá næstu 50 fréttir
Fjöldagrafir teknar í Týrus Sprengjugnýrinn hefur hljóðnað um sinn fyrir botni Miðjarðarhafs og í tóminu er hægt að hefjast handa við að ganga frá eftir ógnaröldina. Lík 40 fórnarlamba árásanna undanfarinn mánuð voru greftruð í fjöldagröf í Týrus í gær. Líkin voru lögð í grunnar, númeraðar grafir og gert ráð fyrir því að fjölskyldur hinna látnu eigi hægt um vik að finna kistur ættingja sinna og finna þeim betri hvílu þegar allt er um garð gengið. Áður hafa Týrus-búar tekið tvær viðlíka fjöldagrafir þar sem hvíla yfir hundrað manns. Á níunda hundrað Líbana létu lífið í átökunum og 157 Ísraelar. 16.8.2006 08:26
Fjórum erlendum starfsmönnum rænt í Nígeríu Fjórum erlendum starfsmönnum olíufélags í Nígeríu var sleppt úr haldi mannræningja í dag. Þeim var rænt af skipi fyrir tæpri viku. Tveir þeirra eru frá Noregi og tveir frá Úkraínu. 15.8.2006 22:19
Vonast til að senda fleiri friðargæsluliða til Líbanon Vonast er til að hægt verði að senda allt að þrjú þúsund og fimm hundruð friðargæsluliða á vegum Sameinuðu þjóðanna til Líbanon á næstu tíu til fimmtán dögum. 15.8.2006 22:13
Koizumi ögrar nágrönnunum Junichiro Koizumi, forsætisráðherra Japans, hefur enn einu sinni reitt nágranna sína í Kína og Kóreu til reiði með því að heimsækja helgidóm þar sem japanskar stríðshetjur eru vegsamaðar. 15.8.2006 20:00
Segir stefnu BNA hafa beðið skipbrot Viðurstyggð eyðileggingarinnar mætti líbönskum flóttamönnum þegar þeir sneru til síns heima í morgun. Víða stendur ekki steinn yfir steini og margir hafa misst allt sitt. Forseti Sýrlands segir stefnu Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum hafa beðið skipbrot í ljósi átaka undanfarins mánaðar. 15.8.2006 19:00
Reyna að tryggja lausn tveggja starfsfélaga Tveir fulltrúar frá bandarísku fréttastöðinni Fox komu á Gaza-svæðið í dag til að reyna að tryggja lausn tveggja starfsfélaga sinna sem byssumenn rændu í gær. 15.8.2006 16:55
Grunaður um að hafa lagt á ráðin um hryðjuverk Svo gæti farið að yfirvöld í Pakistan framselji Breta sem er í haldi þar í landi, grunaður um að hafa átt þátt í að leggja á ráðin um að sprengja í loft upp farþegaflugvélar á leið frá Bretlandi til Bandaríkjanna. 15.8.2006 16:45
Ariel Sharon hrakar Heilsa Ariels Sharons, fyrrverandi forsætisráðherra Ísraels, fer enn versnandi samkvæmt læknum á sjúkrahúsinu þar sem hann dvelur. Sharon hefur verið í dái í átta mánuði eftir að hann fékk alvarlegt heilablóðfall í byrjun árs. 15.8.2006 13:45
60 börn létu lifið á Sri Lanka Uppreisnarmenn Tamíl-Tígra á Srí Lanka saka stjórnarherinn um fjöldamorð á börnum í árás á munaðarleysingjahæli í gær. Allt bendir til að vopnahlé milli Tamíl-Tígranna og Stjórnarhersins, sem tók gildi fyrir fjórum árum, sé farið út um þúfur. 15.8.2006 12:45
Þúsundir Líbana snúa heim Vopnahléið í Líbanon er talið ákaflega viðkvæmt en hefur þó haldið frá því það tók gildi í gærmorgun. Þúsundir Líbana flykkjast nú aftur til síns heima. Hassan Nasrallah leiðtogi Hizbollah og Ehud Olmert forsætisráðherra Ísraels segja hvor fyrir sig að vopnahléið sé sigur fyrir sinn málstað. 15.8.2006 12:15
Jarðskjálfti á Indónesíu Jarðskjálfti upp á 5,9 á Richter skók austurhluta Indónesíu klukkan tíu a indónesískum tíma í morgun. Engar fregnir hafa borist af slysum á fólki eða skemmdum á mannvirkjum og ekki var gefin út flóðbylgjuviðvörun. Jarðskjálftar eru tíðir á þessum slóðum, en í maí létust 5000 þúsund manns á eyjunni Jövu í öflugum skjálfta og þá dóu 600 í flóðbylgju af völdum jarðskjálfta í síðasta mánuði. 15.8.2006 09:15
Dell aftur kallar fjórir milljónir fartölvurafhlaðna Stærsti tölvuframleiðandi í heimi, Dell, hyggst innkalla ríflega fjórar milljónir fartölvurafhlaðna vegna hættu á að það kvikni í þeim. Greint er frá því á fréttavef BBC að Dell sé kunnugt um sex tilvik þar sem slíkar rafhlöður ofhitnuðu og eldur kom upp, en þess má geta að Sony framleiðir rafhlöðurnar fyrir Dell. 15.8.2006 08:30
Segir Hizbollah hafa unnið sögulegan sigur Sheik Hassan Nasrallah, leiðtogi Hizbollah-samtakanna, sagði í gær að skæruliðar hefðu unnið herfræðilegan og sögulegan sigur á Ísrael, en eins og kunnugt er gekk vopnahlé milli Ísraelsmanna og samtakanna í gildi fyrir sólarhring. 15.8.2006 08:00
Starfsmönnum Fox rænt Palestínskir byssumenn rændu í dag tveimur fréttamönnum bandarísku fréttastöðvarinnar Fox News á Gaza-svæðinu. Að sögn Palestínumanns, sem hafði unnið með mönnunum, er annar þeirra bandarískur en þjóðerni hins hefur ekki fengist uppgefið. Fox fréttastöðin segir ekki vitað hverjir rændu þeim en unnið að því að tryggja lausn þeirra. 14.8.2006 22:15
Heilsu Sharons hrakar Líðan Ariels Sharons, fyrrverandi forsætisráðherra Ísraels, hefur versnað til muna að sögn lækna á sjúkrahúsi þar sem hann dvelur nú. Sharon, sem er sjötíu og átta ára, hefur verið í dauðadái síðan 4. janúar síðastliðinn þegar hann fékk alvarlegt heilablóðfall. Hann hefur gengist undir fjölmargar aðgerðir síðan þá. Læknar segja heilastarfsemi hans hafa hrakað töluvert auk þess sem röntgenmyndir sýni sýkingu í lungum. Læknar segja of snemmt að segja til um hvort líf forsætisráðherrans fyrrverandi sé í hættu vegna þessa. Í síðasta mánuði var Sharon fluttur í skyndi á bráðadeild þar sem hann þurfti að fara í nýrnavél þar sem nýru hans voru að gefa sig. Það var þá sem læknar veittu því athygli að heilastarfsemi hans hafi hrakað, en það fékkst svo staðfest í dag. 14.8.2006 22:00
Leiðtogi Hizbollah lýsir yfir sögulegum sigri Leiðtogi Hizbollah segir samtökin hafa unnið sögulegan sigur í baráttu sinni við Ísraela. Í ávarpi sem sjónvarpað var hálfum sólahring eftir að vopnahlé tók gildi sagði hann ótímabært að ræða um að afvopna liðsmenn Hizbollah. 14.8.2006 21:41
Koizumi heimsækir umdeildan helgidóm Junichiro Koizumi, forsætisráðherra Japans, ætlar í pílagrímsför að Yasukuni-helgidómum í Tókýó á morgun. Helgidómurinn er til minnis um þá Japana sem fallið hafa í styrjöldum, þar á meðal dæmda stríðsglæpamenn. Kínverjar og Suður-Kóreumenn líta svo á að helgidómurinn sé tákn um herveldisstefnu Japana á árum áður og því má búast við að heimsókn Koizumis þangað verði umdeild. Forsætisráðherrann lætur af embætti í næsta mánuði og var búist við að hann myndi heimsækja helgidóminn þann fimmtánda ágúst en þá verða liðin sextíu og eitt ár frá því að Japanar gáfust upp í síðari heimsstyrjöldinni. 14.8.2006 21:30
Myndirnar af tungllendingunni týndar Skjalaverðir í gagnasöfnum Bandarísku geimferðastofnunarinnar leita nú logandi ljósi að upprunalegu myndunum af lendingu Apollo ellefta á tunglinu. 14.8.2006 21:00
Útilokar ekki að fjölga friðargæsluliðum Jonas Gahr Støre, utanríkisráðherra Noregs, leggur mikla áherslu á þátttöku Íslendinga í friðargæslu á Srí Lanka. Ákvörðun verður tekin síðar í vikunni en Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra útilokar ekki að íslenskum friðargæsluliðum verði fjölgað, þrátt fyrir vaxandi ólgu. 14.8.2006 20:00
Öryggisreglur gilda um alla flugfarþega Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að þær kröfur sem gerðar hafa verið til flugfarþega á leið til Bretlands og Bandaríkjanna gildi nú um alla farþega þar til annað verður ákveðið. Yfirvöld í Bretlandi hafa lækkað viðbúnaðarstig í landinu vegna hryðjuverkahættu. 14.8.2006 19:30
Byssurnar þagnaðar Vopnahlé Ísraelshers og Hizbollah-skæruliða gekk í gildi klukkan fimm í morgun og eftir því sem næst verður komist ríkti að mestu ró og friður á átakasvæðunum í dag. 14.8.2006 19:00
Mannskæð sprengjuárás á Srí Lanka Að minnsta kosti sjö létu lífð og tíu særðust þegar sprengja sprakk um borð í vélknúnum léttivagni í Colombo, höfuðborg Srí Lanka, í dag. Sendiherra Pakistana í landinu slapp ómeiddur úr árásinni en talið er að hún hafi beinst gegn honum. 14.8.2006 18:00
Barist við skógarelda á Spáni Svo virðist sem slökkviliðsmenn á norð vestur Spáni séu að ná tökum á skógareldum sem þar hafa logað í u.þ.b. viku. Enn logar þá á 40 stöðum. Fjórir hafa farist í eldunum. 14.8.2006 17:45
Myndir frá sjúkrabeði Castro Kúbanska ríkisdagblaðið Granma birti í dag myndir af Fidel Castro, forseta landsins, þar sem hann sem bróðir hans Raul og Hugo Chavez, forseti Venesúela heimsóttu hann á sjúkrabeði hans. Myndirnar, sem eru sjö talsins, voru birtar á vefsíðu blaðsins. 14.8.2006 17:30
Flóttamenn halda heim Líbanskir flóttamenn héldu margir hverjir til síns heima í dag þegar vopnahlé í átökum Ísraela og Hizbollah-skæruliða tók gildi. Þeir vonast til að geta haldið lífi sínu áfram þar sem frá var horfið áður en árásir Ísraela á Líbanon hófust fyrir rúmum fjórum vikum. 14.8.2006 17:20
Sprengjutilræði í Pakistan á þjóðhátíðardegi Tveir létust og níu særðust þegar sprengjur sprungu á tveimur stöðu í Suðvestur-Pakistan í dag. Sú fyrri sprakk við sölubás í bænum Hub þar sem verið var að selja pakistanska fánann í tilefni af þjóðhátíðardegi Pakistana og þar létust tveir og sex særðust. 14.8.2006 14:30
Reglur um handfarangur rýmkaðar í Bretlandi Yfirvöld í Bretlandi hafa lækkað viðbúnaðarstig í landinu vegna hryðjuverkahættu úr hættuástandi í viðbragðsstig. Um leið hafa reglur um handfarangur farþega í flugvélum verið rýmkaðar. 14.8.2006 13:00
Hjálpargögn farin að berast til S-Líbanons Hjálpargögn eru farin að berast til Suður-Líbanons, nokkrum klukkustundum eftir að vopnahlé milli Ísraels og Líbanons tók gildi. Ekki geta þó allir íbúar á svæðinu snúið til síns heima strax og hjá mörgum virðist að fáu að hverfa. 14.8.2006 12:00
Öflug sprenging í Kolombó í morgun Sjö létust og sautján særðust í árás á öryggissveitir sem fylgdu pakistönskum sendiráðssbíl í Kolombó á Srí Lanka í morgun. Svo virðist sem sprengju hafi verið komið fyrir á veginum og sprakk hún þegar bílalestin ók hjá. 14.8.2006 10:15
Yfir tvö hundruð látnir eftir fellibyl í Kína Yfir tvö hundruð manns hafa látist í Kína síðustu daga af völdum fellibylsins Saiomai. Fellibylurinn er sá sterkasti sem gengið hefur á land í Kína í hálfa öld og hefur hann eyðilagt tugþúsundir húsa og skemmt uppskeru á stóru svæðu. 14.8.2006 10:00
Viðbúnaðarstig lækkað í Bretlandi Yfirvöld í Bretlandi hafa lækkað viðbúnaðarstig í landinu vegna hryðjuverkahættu úr hættuástandi í viðbragðsstig. Hættuástand hefur verið í gildi frá því á fimmtudag þegar greint var frá því að tekist hefði að koma í veg fyrir að hryðjuverkamenn sprengdu nokkrar flugvélar á leið yfir Atlantshafið í loft upp. 14.8.2006 09:45
Bendir til aðildar al-Qaida Michael Chertoff, heimavarnaráðherra Bandaríkjanna, segir rannsókn á yfirvofandi sprengjutilræðum í flugvélum yfir Atlantshafi, sem greint var frá á fimmtudag, benda til aðildar hryðjuverkasamtakanna al-Qaida. 14.8.2006 09:32
Rafmagnslaust í Tókýó Rafmagnslaust varð á hundruðum þúsunda heimila í Tókýó, höfuðborg Japans, snemma í morgun eftir að stjórnandi byggingarkrana sleit óvart í sundur mikilvægar rafmagnslínur í borginni. 14.8.2006 09:24
Vopnahlé milli Ísraels og Hizbollah-skæruliða Vopnahlé milli Ísraels og Hizbollah-skæruliða tók gildi klukkan fimm í morgun að íslenskum tíma. Ísraelsher hélt áfram árásum á skotmörk í Líbanon allt fram á síðustu stundu. 14.8.2006 09:13
Öryggið orðið óþægilega mikið Verða vopnaðir verðir helstu ferðafélagar okkar í framtíðinni? Nýjar ógnir í loftferðum gera það að verkum að óþægindi ferðalanga hafa aukist til muna, sérstaklega í ferðum sem tengjast Bretlandi og Bandaríkjunum. Erfitt er að segja til um hversu lengi svo verði í pottinn búið, en nú þegar heyrast óánægjuraddir. 14.8.2006 07:30
Ísraelar samþykkja að gera hlé á hernaðaraðgerðum Ríkisstjórn Ísraels samþykkti í gær tillögu um hlé á hernaðaraðgerðum í Líbanon. Vopnahléið tók gildi klukkan fimm í nótt að íslenskum tíma. Þrátt fyrir vopnahlé er talið líklegt að átök í Líbanon haldi áfram. 14.8.2006 07:15
Vædderen lagður af stað Danska varðskipið Vædderen, sem breytt hefur verið í vísindaleiðangursskip, lagði fyrir helgi upp frá Kaupmannahöfn í hnattsiglingarleiðangurinn Galathea 3. 14.8.2006 07:00
Hryðjuverkaógn lamar flug í London Þriðjungi áætlunarflugs frá Heathrow flugvelli í London var aflýst á sunnudag vegna öngþveitis við öryggisleit. 14.8.2006 07:00
Norsk vegabréf á vergangi Norðmenn hafa týnt 95 þúsund vegabréfum síðan Noregur hóf þátttöku í Schengen-samstarfinu, kom fram á fréttasíðu norska blaðsins Aftenposten á fimmtudag. 14.8.2006 06:30
Ljósmyndari rekinn frá Reuters Reuters-fréttastofan hefur slitið öll tengsl við ljósmyndarann Adnan Hajj í Beirút, sem varð uppvís að því að breyta tveimur ljósmyndum frá átökunum í Líbanon. Reuters hefur eytt öllum 920 myndum ljósmyndarans úr gagnagrunni sínum. 14.8.2006 06:00
Dánartala hækkar Dánartala þeirra sem létust eftir að fellibylurinn Saomai skall á Kína á fimmtudag hækkaði á sunnudag upp í 134 og er 163 saknað. Sum fórnarlambanna létust þegar skýli sem þau höfðu leitað í hrundu. 14.8.2006 05:00
Bráðnar hraðar en talið var Ísinn á Grænlandi bráðnar enn hraðar en áður hafði verið talið. Þetta kemur fram í niðurstöðum rannsókna sem bandarískir vísindamenn hafa gert á grundvelli gerfihnattaljósmynda frá bandarísku geimferðastofnuninni, NASA, og birtar eru í nýjasta heftir vísindatímaritsins Science. 14.8.2006 04:00