Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þaulsætnasti þjóðhöfðinginn Kóngafólk og aðalsmenn hvaðanæva úr heiminum flykktust í Konungshöllina í Taílandi í gær til að minnast sextíu ára krýningarafmælis hins 78 ára gamla konugs, Bhumibol Adulyadejs, en enginn núlifandi þjóðhöfðingi hefur setið honum lengur á valdastóli. Hundruð manna söfnuðust saman við höllina og hlýddu á þegar þjóðsöngurinn var fluttur fyrir konungshjónin. 13.6.2006 08:00
Flytja átti einn fangann Bandaríkjaher hafði ákveðið að flytja til annars lands einn fanganna þriggja sem frömdu sjálfsvíg í Guantanamo-fangabúðunum á laugardag. Fanganum, sem var frá Sádi-Arabíu, hafði ekki verið tilkynnt um ákvörðunina. Þetta kom fram í upplýsingum sem talsmenn hersins gáfu í gær. 13.6.2006 08:00
Flóðin menga vatnsbólin Flóð af völdum mikilla rigninga mengaði vatnsból borgarinnar Miskolc, sem er um 160 kílómetra norðaustur af Búdapest, í síðustu viku. Tólf hundruð íbúar borgarinnar þjáðust greinilega af bakteríusýkingu, sem lýsti sér með niðurgangi, uppköstum og þreytu og enn eru um áttatíu þeirra á sjúkrahúsi. Unnið er að hreinsun vatnsins í borginni. 13.6.2006 07:00
Áfram rætt um saming Þingmenn Hamas samþykktu í gær að halda áfram viðræðum við forseta Palestínu um Fangaskjalið. Forsætisráðherra Ísraels er í Bretlandi í leit að stuðningi í friðarumleitunum milli Ísraels og Palestínu. 13.6.2006 07:00
Samið eftir málamiðlun Viðræður um fyrsta af 35 efnisköflum aðildarsamninga Tyrkja við Evrópusambandið hófust loks í gær, eftir að leysa tókst deilu sem stefndi í að valda því að ekkert yrði úr þessum áfanga í bili. 13.6.2006 06:30
Nýr leiðtogi vígamanna Hryðjuverkaöfl í Írak eru talin hafa fundið arftaka Abu Musab Al-Zarqawis, sem drepinn var í loftárás af íraska hernum á dögunum. Sá heitir Abu Hamza al-Muhajer, en hann hefur ekki verið sýnilegur í sögu samtakanna áður og virðist ekki vera eftirlýstur af bandarískum yfirvöldum. 13.6.2006 06:00
Loka skólum út af eldflaugaárásum Bæjaryfirvöld í ísraelska bænum Sderot hafa lokað barnaskóla í bænum til að þrýsta á stjórnvöld að bregðast harðar við sprengjuskothríð palestínskra vígamanna á bæinn. Bæjarbúar í Sderot gripu til þessara ráða eftir að rúmlega 30 heimagerðum eldflaugum var skotið að bænum í gær. 12.6.2006 23:55
Eiturlyfjabarónar kynda undir ólgu Eiturlyfjabarónar í suðurhluta Afganistans reyna nú að kynda til ófriðar í héraðinu til að spilla herferð stjórnvalda gegn eiturlyfjum. Þetta er álit sendiherra Bandaríkjanna í Afganistan. 12.6.2006 22:57
Segir al-Zarqawi hafi látist af innvortis meiðslum Bandaríska herstjórnin segir að al-Qaida leiðtoginn Abu Musab al-Zarqawi hafi dáið af innvortis meiðslum, fimmtíu og tveimur mínútum eftir að sprengju var varpað á hús sem hann var staddur í. Bandaríkjamenn harðneita að hann hafi verið barinn til bana. 12.6.2006 19:30
Barnaskóla lokað í Ísrael til að þrýsta á um aðgerðir Bæjaryfirvöld í ísraelska bænum Sderot hafa lokað barnaskóla í bænum til að þrýsta á stjórnvöld að bregðast harðar við sprengjuskothríð palestínskra vígamanna á bæinn. 12.6.2006 18:25
Aðildarviðræður hafnar við Tyrkland Evrópusambandið hefur nú hafið fyrstu lotu aðildarviðræðna við Tyrkland. Kýpversk stjórnvöld vildu að Evrópusambandið þrýsti harðar á Tyrkland um að aðildarviðræður myndu ekki hefjast fyrr en Tyrkland viðurkenndi Kýpur sem sjálfstætt ríki. 12.6.2006 17:50
Mestu flóð í Kína í 30 ár Nærri hundrað hafa látist í miklum flóðum í Kína undanfarna tíu daga. Úrhellisrigning undanfarið hefur valdið mestu flóðum sem orðið hafa í landinu í heil þrjátíu ár. 12.6.2006 14:15
Íbúar Flórída varaðir við aftakaveðri Íbúar Flórída hafa verið varaðir við úrhellisrigningu og aftakaveðri á morgun þegar hitabeltisstormurinn Alberto gæti náð þar landi. Alberto er fyrsti hitabeltisstormur ársins og stefnir nú óðfluga í átt að Kúbu og Flórída. 12.6.2006 11:15
Snarpur jarðskjálfti í Japan Fimm slösuðust í snörpum jarðskjálfta upp á 6,2 á Richter í suðurhluta Japans í morgun. Skjálftans varð vart á mjög stóru svæði í suður- og vesturhluta landsins en ekki varð verulegt eignatjón og engin flóðbylgjuviðvörun var gefin út. 12.6.2006 10:45
Átti að losna fljótlega úr Guantanamo-búðunum Einn þremenninganna sem hengdu sig í Guantanamo-fangabúðunum um helgina átti að losna úr prísundinni fljótlega, en vissi ekki af því sjálfur. 12.6.2006 10:12
Írönum ekki vel tekið Meira en þúsund þýskir gyðingar mótmæltu kröftuglega á götum Nurnberg í dag, þar sem Íranar spiluðu fyrsta leik sinn á HM. Lögreglan í Frankfurt þurfti að loka nokkrum hverfum í borginni vegna óláta eftir leik Englendinga og Paragvæ í gær. 11.6.2006 19:45
Sakaðir um að hafa barið Zarqawi til dauða Bandarískir hermenn eru sakaðir um að hafa barið al-Zarkawi, leiðtoga al-Kæda í Írak, til dauða. Samtökin hóta stórfelldum árásum í landinu til að hefna leiðtoga síns. 11.6.2006 19:30
Hengdu sig í Guantanamo Þrír fangar hengdu sig í Guantanamo-fangabúðunum á Kúbu um helgina. Hernaðaraðgerð gegn Bandaríkjunum, segir yfirmaður fangelsisins. 11.6.2006 19:00
Fyrsti hitabeltisstormur ársins. Yfirvöld á Kúbu og Flórída í Bandaríkjunum hafa gefið út viðvörun vegna fyrsta hitabeltisstorms ársins. Hitabeltisstormurinn Albert stefnir nú óðfluga í átt að Kúbu og Cayman-eyjum, þar sem hefur hellirignt í dag, og óttast er að aurskriður kunni að fylgja. 11.6.2006 16:30
Hóta stórfelldum árásum í Írak Al Qaeda í Írak hóta stórfelldum árásum í landinu eftir að al-Zarqawi, leiðtogi þeirra, var drepinn í vikunni. Þetta kemur fram á heimasíðu herskárra múslima í dag. 11.6.2006 16:17
Tilboðið gallað en þó gott Ari Larijani, helsti samningamaður Írana í kjarnorkudeilu þeirra við Vesturveldin, sagði í morgun að margt væri gallað við tilboð stórveldanna sex um lausn deilunnar en einnig margt sem Íranar gætu sætt sig við. 11.6.2006 11:45
Naktir hjólreiðamenn mótmæla í Mexíkó Á þriðja tug mótmælenda komu saman naktir á hjólum í miðborg Mexíkóborgar í gær til að mótmæla bílamenningu í Mexíkó. Með aðgerðunum vildu hjólreiðamenn einnig krefja ökumenn bíla um að sýna þeim virðingu. 11.6.2006 11:30
Loka varð hverfum í Frankfurt Lögreglan í Frankfurt í Þýskalandi þurfti að loka nokkrum hverfum í borginni vegna óláta eftir leik Englendinga og Paragvæ í gær. Englendingar unnu leikinn 1-0. 11.6.2006 11:15
Abbas og Haniyeh funda Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, og Ismail Haniyeh, forsætisráðherra heimastjórnarinnar, funduðu í gær eftir að Abbas boðaði til atkvæðagreiðslu í júlí um tillögu sem meðal annars tekur til þess hvort viðurkenna eigi Ísraelsríki. 11.6.2006 11:00
Sjálfsvíg í Guantanamo-fangelsinu Þrír fangar í Guantanamo-fangelsi Bandaríkjamanna á Kúbu fundust látnir í klefum sínum í gær. Að sögn Bandaríkjahers hengdu þeir sig allir með snöru sem þeir höfðu sjálfir búið til úr rúmfötum og fatnaði. 11.6.2006 10:30
Slagsmál á bólivíska þinginu Til handalögmála kom á bólivíska þinginu fyrir helgi þegar stjórn og stjórnarandstaða deildu um löggjöf um vegaþjónustu sem stjórn landsins vill fella úr gildi. Stjórnarandstöðuþingmaður var ítrekað laminn í höfuðið áður en yfir lauk. 10.6.2006 19:30
3 fangar í Guantanamo látnir Þrír fangar sem eru í haldi Bandaríkjamanna í Guantanamo-fangabúðunum á Kúbu fundust látnir í klefum sínum í dag. 10.6.2006 19:00
Abbas boðar til þjóðaratkvæðagreiðslu Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, boðaði í dag til þjóðaratkvæðagreiðslu síðla í júlí þar sem meðal annars verður tekin afstaða til þess hvort viðurkenna skuli tilverurétt Ísraelsríkis. Atkvæðagreiðslan er umdeild meðal Palestínumanna. 10.6.2006 18:45
Meira en fjórði hver Bandaríkjamaður trúir bókstaflega á Biblíuna Meira en fjórði hver Bandaríkjamaður trúir bókstaflega á Biblíuna samkvæmt nýrri skoðanakönnun Gallup. Þetta er samt nokkuð lægra hlutfall en fyrir 30 árum, þegar um 38% þjóðarinnar trúði bókstaflega á orð hins heilaga rits. 10.6.2006 12:00
Mannskæð flóð í Kína Miklar rigningar ollu töluverðum flóðum í Guangdong-kantónu í Suður-Kína í morgun en töluvert hefur rignt og flætt á svæðinu síðustu daga. Þrjú göt komu á stíflu í Liuxi fljóti og reyndu mörg hundruð lögreglumenn að hefta vatnsflauminn með sandpokum. 10.6.2006 11:45
Rúmlega 30 uppreisnarmenn drepnir í Afganistan í vikunni Kanadískar og afghanskar hersveitir drápu meira en 30 uppreisnarmenn úr röðum Talibana í áhlaupi á vígi þeirra í vikunni. Allt logar í óeirðum í suðurhluta Afghanistan og maímánuður var einn sá blóðugasti síðan ráðist var inn í landið fyrir fjórum og hálfu ári. 10.6.2006 11:30
Mannfall á Gaza-svæðinu Fjölmargir hafa fallið í eldflaugaárásum Ísraela og Palestínumanna á Gaza-ströndinni í dag. Meðal fallinna eru sjö meðlimir fjölskyldu sem hafði komið saman á strönd til að gera sér glaðan dag. Vopnaður armur Hamas-samtakana ætlar ekki að virða vopnahlé og hótar á ný árásum á Ísraelsmenn. 9.6.2006 23:00
Mörgæsabolti í Suður-Kóreu HM-æðinu virðist engin takmörk sett. Jafnvel mörgæsir í Suður-Kóreu eru að missa sig. Sædýrasafn í Kóreu hefur brugðist við heimsmeistaramótinu í knattspyrnu með því að klæða fjórar mörgæsir í búninga þeirra liða sem keppa í G-riðli. Í þeim riðli er Kórea ásamt Togo, Sviss og Frakklandi. Börn og fullorðnir fylgdust með leik mörgæsanna og hvöttu þær áfram. Allir höfðu gaman að þessu, en fyrir hönd Suður-Kóreu verðum við nú að vona, að lið þeirra sýni aðeins meiri tilþrif á vellinum en mörgæsirnar gerðu. Okkur er þó til efs að nokkuð lið geti verið sætara. 9.6.2006 22:32
Ættingjar al-Zarqawis fagna píslarvættisdauða hans Ættingjar jórdanska al-Kaída leiðtogans Abu Musab al-Zarqawi komu saman í heimabæ hans, Zarqa, í Jórdaníu í dag til að fagna því sem þeir kalla píslarvættisdauða hans. Al-Zarqawi féll í loftárás Bandaríkjamanna á miðvikudagskvöldið. Hann var enn á lífi þegar komið var að honum eftir árásina en hann lést skömmu síðar. 9.6.2006 22:30
Suu Kyi hugsanlega veik Fregnir hafa borist af því að Aung San Suu Kyi, leiðtoginn stjónarandstöðunnar í Myanmar, áður Búrma, hafi verið flutt á sjúkrahús. Það hefur þó ekki fengist staðfest. 9.6.2006 21:23
Mannfall í loftárásum Ísraela á Gaza Að minnsta kosti níu Palestínumenn féllu og fjölmargir særðust í þremur flugskeytaárásum Ísraelshers á bílalestir á Gaza-ströndinni í dag. Talið er að háttsettur leiðtogi Hamas-samtakanna sé meðal þeirra sem særðust. Árásirnar eru sagðar svar við flugskeytaárásum Palestínumanna á ísraelskt landsvæði. Auk þess féllu að minnsta kosti sex Palestínumenn og á annan tug særðust í dag þegar skotið var á þá frá ísrelsku herskipi en mennirnir voru þá staddir á norðurhluta Gaza-strandarinnar. 9.6.2006 16:00
Spenna vex vegna morðsins á Samhadana Spenna hefur aukist fyrir botni Miðjarðarhafs í dag í kjölfar þess að Ísraelsher réð yfirmann öryggismála hjá palestínsku heimastjórninni af dögum í Rafah á Gasaströndini í gærkvöld. 9.6.2006 14:00
Ökutækjabann í Bagdad Umferð ökutækja er bönnuð í Bagdad í dag eftir öldu ofbeldis, bílsprengja og skotárása úr bílum á ferð, síðan al-Zarqawi, leiðtogi al Qaeda samtakanna í Írak, var drepinn í loftárásum Bandaríkjamanna á miðvikudagskvöld. 9.6.2006 10:30
Rússar framselja eftirlýstan stríðsglæpamann Rússar hafa framselt Bosníu-Serbann Dragan Zelenovic til bosnískra yfirvalda, en hann hefur verið eftirlýstur vegna glæpa í stríðinu á Balkanskaga á tíunda áratug síðustu aldar. Þetta hefur Interfax-fréttastofan eftir ónafngreindum heimildarmönnum í Moskvu. 9.6.2006 09:45
Leyfa notkun bóluefnis gegn leghálskrabbameini Lyfjaeftirlit Bandaríkjanna hefur í fyrsta sinn gefið leyfi fyrir því að nota bólefnið Gardasil gegn leghálskrabbameini. Bóluefnið, sem konur á aldrinum níu til tuttugu og sex ára geta notað, kemur í veg fyrir ákveðna veirusýkingu tengda kynmökum sem talin er leiða til leghálskrabbameins. 9.6.2006 09:15
Íbúar við Merapi snúa aftur Íbúar í þorpum nærri indónesíska eldfjallinu Merapi, sem flýðu heimili sín í gær vegna aukinnar virkni í fjallinu, sneru aftur til síns heima í dag þrátt fyrr að virknin væri enn mikil. 9.6.2006 08:30
Yfirmaður öryggismála drepinn á Gasaströndinni Yfirmaður öryggismála hjá palestínsku heimastjórninni var drepinn í gærkvöld í loftárás Ísraela á þjálfunarbúðir uppreisnarmanna í Rafa á suðurhluta Gasastrandarinnar. Maðurinn, Jamal Abu Samhadana, var ofarlega á lista Ísraela yfir eftirlýsta menn og grunaður um aðild að árás á bandaríska hersveit á Gasaströndinni árið 2003. 9.6.2006 08:00
Bóluefni gegn leghálskrabbameini á markað Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa heimilað notkun fyrsta bóluefnisins gegn algengustu tegundum leghálskrabbameins. Bóluefnið gæti bjargað lífi milljóna kvenna um allan heim. Fjöldi íslenskra kvenna hefur tekið þátt í rannsóknum á bóluefninu. 8.6.2006 22:51
Varað við hefndarárásum í Írak vegna dauða al-Zarqawi Khalid Khawaja, fyrrum aðstoðarmaður Osama bin Laden, varar við hefndaraðgerðum eftirmanna al-Zarqawis. Hann segir Zarqawi hafa dáið píslarvættisdauða og heilagt stríð í Írak, jihad, muni halda áfram. 8.6.2006 15:15
Leiðtogar Eystrasaltsráðsins funda Leiðtogar Eystrasaltsráðsins funda í dag í Reykjavík. Með því lýkur eins árs formennsku Íslands í ráðinu. Í ráðinu sitja löndin níu sem liggja að Eystrasaltinu auk Noregs og Íslands. 8.6.2006 11:15
Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Mig langaði ekkert í afsökunarbeiðni frá honum“ Innlent