Fleiri fréttir

Snarpur skjálfti í S-Kaliforníu

Snarpur skjálfti upp á 5,6 á Richter varð í Suður-Kaliforníu í dag. Hann átti upptök sín skammt frá Palm Springs og fannst bæði í Los Angeles og norðurhluta Mexíkós, en engar fréttir hafa borist af skemmdum eða slysum á fólki.

Sprengjutilræði í Teheran

Einn lét lífið þegar lítil sprengja sem falin hafði verið í ruslagámi sprakk í fjölfarinni götu í miðborg Teheran, höfuðborgar Írans, í dag. Ekki er ljóst hvort einhverjir hafi slasast en vitni segja sjúkrabíla hafa þust á vettvang. Þetta er annað tilræðið í Íran í dag en í morgun sprungu fjórar sprengjur við stjórnarbyggingar í olíubænum Ahvaz í suðvesturhluta landsins.

Klofin stjórn vegna Guantanamo

Ríkisstjórn Bandaríkjanna er klofin í afstöðu sinni til þess hvort loka eigi fangabúðunum á Guantanamo-flóa við Kúbu. Þetta sagði Duncan Hunter, þingmaður Repúblikanaflokksins, í viðtali við <em>Fox</em>-fréttastofuna í dag.

Fundust í bíl á kafi í skurði

Breska lögreglan fann í morgun lík af fjórum mönnum í bíl sem var á kafi í skurði á leiðinni á milli Cardiff og Newport í Wales. Svo virðist sem bílinn hafi kastast út af veginum og telur lögregla að um slys hafi verið að ræða og að það hafi orðið í gærkvöld.

Kröfðust lausnar Khodorkovskís

Um tvö þúsund manns mótmæltu við skrifstofur rússnesku öryggislögreglunnar í Moskvu í dag og kröfðust þess að olíujöfurinn Míkhaíl Khodorkovskí yrði látinn laus. Að þeirra mati er hann pólitískur fangi. Mikil hátíðarhöld fóru fram í Rússlandi í dag þar sem falli kommúnistastjórnarinnar árið 1991 var fagnað.

Mannskæðustu árásir í áratug

Einn lést og fjórir slösuðust í sprengingu í miðborg Teheran í Íran í gær nokkrum klukkustundum eftir að átta létust og 36 særðust í fjórum sprengingum sem ætlaðar voru byggingum ríkisstjórnarinnar í Suðvestur-Íran.

Pink Floyd saman á ný

Skipuleggjendur Live 8 tónleikanna í London sögðu í gær að breska rokksveitin Pink Floyd myndi koma aftur saman til að spila á tónleikunum sem fara fram í Hyde Park júlí.

Fimm mánaða gíslingu lokið

Franska blaðakonan Florence Aubenas kom heim til Frakklands í gær eftir fimm mánaða gíslingu í Írak ásamt aðstoðarmanni sínum.

Fjórir teknir af lífi

Palestínsk yfirvöld tóku aftur upp dauðarefsinguna í gær þegar fjórir fangar voru teknir af lífi.

Skiptar skoðanir um afskriftir

Skiptar skoðanir eru um hversu stórt skref var stigið með afskriftum skulda fátækustu þjóða Afríku við ríkustu þjóðir heims. Einnig þurfi að auka fjárframlög því að það verði enginn saddur af niðurfellingu skulda einni og sér.

Fyrsti kvenráðherrann í Kúveit

Kona hefur í fyrsta sinn í sögu Kúveit verið skipuð ráðherra í ríkisstjórn landsins, mánuði eftir að kúveiska þingið samþykkti að veita konum kosningarétt og kjörgengi í þingkosningum.

Wolfowitz fagnar skuldasamningi

Paul Wolfowitz, forstjóri Alþjóðabankans, bar í gær lof á sögulegt samkomulag sem náðst hefur um niðurfellingu skulda nokkurra fátækustu ríkja heims. Hann sagðist jafnframt vongóður um að samkomulag myndi takast bráðlega um að létta skuldabyrði Nígeríu, skuldugasta lands Afríku.

Hvetja fólk til að hjóla

Hundruð naktra hjólreiðamanna mótmæltu á götum London, höfuðborgar Englands, á laugardag og hvöttu fólk til að nota hjól.

36 börn látast í flóðbylgju í Kína

Þrjátíu og sex börn og tveir fullorðnir létu lífið þegar flóðbylgja skall á barnaskóla í norðausturhluta Kína í dag. Björgunarmenn leita enn fimm barna og tveggja fullorðinna en auk þess voru 15 börn og tveir kennarar fluttir á sjúkrahús. Atvikið átti sér stað í bænum Shalan í Heilongjiang-héraði og hefur Reuters-fréttastofan eftir starfsmanni á sjúkrahúsi, þangað sem farið var með hina slösuðu, að stærstur hluti bæjarins sé enn á kafi í eins metra djúpu vatni.

Brundtland stöðvuð vegna vegabréfs

Gro Harlem Brundtland, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs og yfirmaður Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, var í nóvember í fyrra stöðvuð við vegabréfaeftirlit á flugvellinum í Washington í Bandaríkjunum, að því er norska blaðið <em>Verdens Gang</em> greinir frá í dag. Henni var neitað að fara inn í landið þar sem vegabréf hennar uppfyllti ekki þar til gerð skilyrði.

Sjálfsmorðsárás á lögreglustöð

Tilræðismaður klæddur í lögreglubúning varð átta lögreglumönnum að bana og særði marga þegar hann sprengdi sig í loft upp í höfuðstöðvum lögreglunnar í Bagdad í morgun. Ellefu til viðbótar létust og tuttugu og níu særðust þegar bílsprengja sprakk á fjölfarinni götu í höfuðborginni.

Vildi myrða ættingja vegna arfs

Sautján ára stúlka kom fyrir rétt í Svíþjóð í gær, ákærð fyrir að reyna að myrða sex ættingja sína. Móðir hennar var myrt með hamri og faðirinn liggur í dái á sjúkrahúsi. Stúlkan vildi erfa peninga fjölskyldunnar.

Langt frá samkomulagi um aðstoð

Átta helstu iðnríki heims eru langt frá því að ná samkomulagi um hvernig eigi að aðstoða Afríku við að rísa upp úr fátækt og neyð.

64 létust í flóði í Shalan í Kína

Nú er ljóst að 62 börn og tveir fullorðnir létu lífið þegar flóðbylgja skall á barnaskóla í norðaustur Kína í dag. Frá þessu greinir Xinhua-fréttastofan. Flóðbylgjunni fylgdi skriða sem æddi í gegnum bæinn Shalan í Heilongjiang-héraði þar sem skólinn er. Dýpt vatnselgsins var allt að tveir metrar og segja vitni á staðnum að eins metra djúpt vatn sé í nánast öllum bænum.

Felldu verkamenn í rútu

Byssumenn myrtu tíu verkamenn og særðu þrjá þegar þeir skutu á rútu suður af Bagdad í morgun. Rútan var á leið frá bænum Hilla í Suður-Írak til höfuðborgarinnar þegar tveimur bílum var ekið upp að sitthvorri hlið rútunnar og hófu byssumennirnir skothríð í kjölfarið. Ástæður árásarinnar eru ókunnar.

Samið um niðurfellingu skulda

Átta helstu iðnríki heims hafa náð samkomulagi um að létta skuldum af fátækust ríkjum Afríku. Samkomulagið náðist á fundi fjármálaráðherra ríkjanna átta í Lundúnum en ekki hafði verið búist við því að af því yrði á næstu dögum. Ekki hefur verið gefið út hvað felst nákvæmlega í samningnum en rætt hefur verið um að undanförnu að fella niður skuldir að andvirði 40 milljarða dollara.

Kom upp um skattsvikahring

Spænska lögreglan hefur leyst upp alþjóðlegan skattsvikahring sem talinn er hafa svikið um 100 milljónir evra, tæplega 8 milljarða króna, út úr skattkerfi nokkurra Evrópulanda. Skattsvikararnir stofnuðu 95 fyrirtæki í sex Evrópusambandsríkjum og Bandaríkjunum sem þóttust selja hvert öðru tölvubúnað en með því fengu fyrirtækin endurgreidda skatta.

Fella niður 2600 milljarða skuldir

Átta helstu iðnríki heims hafa náð samkomulagi um að létta skuldum af fátækustu ríkjum Afríku að andvirði 2600 milljarðar króna. Samkomulagið náðist á fundi fjármálaráðherra ríkjanna í Lundúnum í dag en ekki hafði verið búist við því að það næðist á næstu dögum. Gordon Brown, fjármálaráðherra Bretlands, sagði eftir að samningurinn var í höfn að allar skuldir 18 fátækustu ríkja heims yrðu afskrifaðar nær samstundis.

Bílsprengjuárás á sendiráð Slóvaka

Fjórir særðust þegar tilræðismaður sprengdi sig og pallbíl sinn í loft upp fyrir utan sendiráð Slóvakíu í Bagdad í Írak í dag. Maðurinn hugðist aka upp að sendiráðinu en var stöðvaður við hliðið fyrir utan sendiráðið og í kjölfarið sprengdi hann sig í loft upp. Nokkrir starfsmenn voru í sendiráðinu þegar sprengingin varð en engan þeirra sakaði.

Svældu risarottu úr hreiðri sínu

Lengsta og þyngsta rotta Danaveldis hefur safnast til feðra sinna, næstum helmingi stærri en meðalrotta. Hún var svæld úr hreiðri sínu undir verslunarmiðstöð í Hillerød á Norður-Sjálandi og reyndist vera 580 grömm á þyngd og 46 sentímetra löng að frátöldum halanum.

Kanna hugsanlegan flugmiðaskatt

Fjármálaráðherrar átta helstu iðnríkja heims sömdu í dag um það að kanna möguleika á því að koma á sérstökum skatti á flugmiða sem á að renna til hjálparstarfs í Afríku. Ákvörðunin var tekin á fundi ráðherranna í Lundúnum þar sem einnig var ákveðið að fella niður skuldir fátækustu ríkja Afríku.

Rændu gesti á baðströnd í Portúgal

Um fimm hundruð ungmenni hafa valdið óróleika meðal gesta á strönd í nágrenni Lissabon, höfuðborgar Portúgals, með því að fara ránshendi um eigur þeirra. Mikill fjöldi var á Carcavelos-ströndinni í gær þar sem Portúgalir fögnuðu þjóðhátíðardegi sínum en sú gleði var skammvinn þar sem ungmennin réðust gegn fólkinu og heimtuðu eigur þess.

Rafsanjani nýtur mest fylgis

Rafsanjani, fyrrverandi forseti Írans, nýtur mest fylgis fyrir forsetakosningar sem fram fara í landinu í næstu viku samkvæmt skoðanakönnun fréttastofunnar IRNA sem birt var í dag. 27,1 prósent landsmanna styður Rafsanjani, sem kýs aukin samskipti við Vesturlönd, en á eftir honum kemur annar umbótasinni, Mustafa Moin, með tæplega 19 prósenta fylgi.

Borgaði frænda fyrir að sitja inni

Verkfræðingurinn Rupert Reddi í Suður-Afríku hefur heldur betur komist í heimsfréttirnar en hann hefur verið fangelsaður fyrir að koma sér hjá fangelsisvist. Reddi var dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir líkamsáras og hóf afplánun árið 2003 að því er fangelsismálayfirvöld héldu. Það kom hins vegar í ljós þegar þrír mánuðir voru liðnir að Ruddi sjálfur gekk laus en hins vegar sat frændi hans inni, en hann fékk greitt fyrir greiðviknina.

Gripinn vegna árásar á ráðherra

Danska lögreglan hefur handtekið mann sem grunaður er um að hafa kveikt í bíl innflytjendaráðherra Danmerkur, Rikke Hvilshoj, aðfararnótt miðvikudags. Eldurinn barst í hús Hvilshoj þar sem hún svaf vært ásamt fjölskyldu sinni en engan sakaði í brunanum. Lögregla komst á sporið eftir að fjölmiðlum barst tölvupóstur frá hópi sem nefnist Grænselöse Beate sem lýsti yfir ábyrgð á tilræðinu.

Enn ósamið um fjárhagsaðstoð

Átta helstu iðnríki heims náðu í dag sögulegu samkomulagi um að fella niður skuldir fátækustu ríkja Afríku. Enn er þó eftir að ná samkomulagi um aukna fjárhagsaðstoð.

Ráðist á blaðamenn í Eþíópíu

Vopnaðir lögreglumenn í Eþíópíu réðust í dag á blaðamenn og erindreka fyrir utan heimili eins af leiðtogum stjórnarandstöðunnar í landinu. Sendiherra Dana, sem er kona, var meðal þeirra sem lögreglumennirnir lögðu hendur á.

Átta handteknir

Lögreglan í Afganistan hefur handtekið átta manns sem eru grunuð um að eiga aðild að mannráni á ítalska hjálparstarfsmanninum Clementinu Cantoni.

Fékk betri einkunn en Karl

Vilhjálmur prins hefur útskrifast með meistaragráðu í landafræði. Prinsinn útskrifaðist með afar háa einkunn í faginu og hærri en faðir hans, Karl Bretaprins, fékk á sínum tíma

Tímamót í sögu fátækustu þjóðanna

Auðugustu ríki heims samþykktu í gær að fella niður 2.600 milljarða skuld átján fátækustu ríkja heims. Enn á þó eftir að semja um frekari þróunaraðstoð og ljúka við viðskiptasamning sem kemur þróunarríkjunum til góða.

Flóðbylgjan allt að 25 m há

Sjávarskaflinn sem olli gífurlegum hamförum í Suðaustur-Asíu um jólin var 25 metra hár þar sem hann var hæstur. Í fyrstu vísindalegu skýrslunni um flóðbylgjuna, sem gefin hefur verið út, er þetta staðfest. Hana gerði sérfræðingur við háskólann í Suður-Karólínu sem mældi hæð flóðbylgjunnar út frá skemmdum á trjám, mannvirkjum, hólum og hæðum.

Gasflutningabíll og lest óku saman

Ótrúlegt þykir að enginn skuli hafa látist eða slasast er gasflutningabíll og farþegalest lentu í hörðum árekstri í norðurhluta Frakklands í gær. Gasflutningabíllinn bilaði þegar hann var að fara yfir járnbrautarteina og náði bílstjórinn að forða sér áður en lestin lenti á honum.

Íhaldsflokkur stærstur í Svíþjóð

Íhaldsflokkurinn er stærsti flokkurinn í Svíþjóð samkvæmt skoðanakönnun sem sænska blaðið <em>Dagens Industri</em> lét gera. Flokkurinn nýtur næstum helmingi meira fylgis en í kosningunum árið 2002. Jafnaðarmenn, sem verið hafa öflugasti stjórnmálaflokkurinn í Svíþjóð um mjög langt skeið, njóta tæplega 32 prósenta fylgis en Íhaldsflokkurinn hefur tveggja og hálfs prósents forskot.

Enn mikil flóð í Kína

Að minnsta kosti 225 manns hafa farist eftir mikil flóð í suðurhluta Kína að undanförnu. Björgunaraðgerðir fara fram bæði dag og nótt en heilu þorpin hafa þurrkast út á svæðinu. Flóðin hafa haft áhrif á yfir 17 milljónir manna og hafa um 140 þúsund heimili eyðilagst vegna þeirra.

Kastaði sprengju inn í skólastofu

Að minnsta kosti fimmtíu manns slösuðust er nemandi í japönskum menntaskóla henti flösku sem innihélt sprengjuefni inn í bekkjarstofu skóla síns í morgun. Drengurinn, sem er 18 ára, hefur verið handtekinn. Lögreglan hefur ekki viljað gefa upp hvers konar efni voru í flöskunni en sjónarvottar segja að um nokkurs konar mólotovkokkteil hafi verið að ræða.

Hæstaréttardómari verður forseti

Eduardo Rodriguez, forseti Hæstarréttar Bólivíu, hefur verið skipaður forseti landsins til bráðabirgða en stefnt er að því að halda forsetakosningar í landinu innan fimm mánaða. Vonast er til að með þessu muni mótmælum í höfuðborg landsins, La Paz, ljúka en almenningur hefur krafist þess að auðlindir landsins verði þjóðnýttar.

Sprengja sprakk í Zaragoza

Sprengja sprakk skammt frá flugvellinum í Zaragoza á Spáni fyrir stundu og er ljóst að hryðjuverkasamtök aðskilnaðarsinna úr röðum Baska, ETA, komu henni fyrir. Áður en sprengjan sprakk barst viðvörun frá ETA. Engar fregnir hafa borist af skemmdum eða mannskaða.

Lýsa vantrausti á Schröder 1. júlí

Vantrausti verður lýst á Gerhard Schröder, kanslara Þýskalands, þann 1. júlí næstkomandi. Það er fyrsta skrefið í átt að þingkosningum í haust en allt bendir til þess að Schröder tapi þeim.

Handtöku Mladic að vænta

Ríkisstjórn Serbíu veit um felustað Ratkos Mladic, stríðsglæpamanns og yfirmanns hers Bosníu-Serba í borgarastríðinu fyrir áratug. Handtöku er að vænta, samkvæmt fréttum serbneskra fjölmiðla. Þrýstingur á stjórnvöld í Serbíu og Bosníu hefur verið stóraukinn í von um að þau afhendi stríðsglæpamenn.

Gleymdist í varðhaldi

Tuttugu og fjögurra ára gamall karlmaður frá Gíneu-Bissá sat í 22 daga í fangelsi í Danmörku án þess að eiga að vera þar vegna þess að lögreglan gleymdi honum. Dómari úrskurðaði manninn í gæsluvarðhald í byrjun maí og átti það að renna út þann átjánda þess mánaðar. Honum var hins vegar fyrst slepp í gær, 9. júní, og skýring fangelsismálayfirvalda er sú að danska lögreglan hafi gleymt máli mannsins.

Sjá næstu 50 fréttir