Vildi myrða ættingja vegna arfs 11. júní 2005 00:01
Sautján ára stúlka kom fyrir rétt í Svíþjóð í gær ákærð fyrir að reyna að myrða sex ættingja sína. Móðir hennar var myrt með hamri og faðirinn liggur í dái á sjúkrahúsi. Stúlkan vildi erfa peninga fjölskyldunnar. Stúlkan hafði reiknað út að ef hún myrti foreldra sína, þrjú systkini og ömmu, þá myndi hún erfa um 100 milljónir íslenskra króna, geta farið í fegrunaraðgerð og lifað ljúfu lífi með kærasta sínum sem er átján ára. Fyrst reyndi parið að finna sér leigumorðingja á Netinu og bauð tíu milljónir króna fyrir verknaðinn. Þegar boðinu var ekki tekið ákváðu þau að fremja ódæðið sjálf. Þau bjuggu í Stokkhólmi, en 20. apríl síðastliðinn tóku þau lest til bæjarins Gislaved þar sem foreldrarnir bjuggu. Gislaved er suðaustan við Gautaborg. Klukkan eitt um nóttina læddust þau inn í hús foreldranna þar sem allir voru í fastasvefni. Kærastinn fór inn í svefnherbergi foreldranna og barði þau mörgum sinnum í höfuðið með hamri. Móðirin lét lífið en faðirinn liggur í dauðadái á sjúkrahúsi. Stúlkan fór hins vegar inn í svefnherbergi systur sinnar sem er 24 ára gömul. Hún hefur skýrt frá því að hún hafi vaknað við neyðaróp móður sinnar og þegar hún opnaði augun stóð litla systir hennar yfir henni með hamar í hendinni. Henni tókst þó að forða sér og komast til nágranna sem hringdu á lögreglu og sjúkrabíl. Parið var handtekið skömmu síðar. Það hefur sagt lögreglunni að eftir að hafa drepið ættingjana í Gislaved hafi verið ætlunin að fara aftur til Stokkhólms og myrða þar tvo bræður stúlkunnnar og ömmuna.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi Sjá meira